{"id":7452,"date":"2026-03-21T15:32:37","date_gmt":"2026-03-21T15:32:37","guid":{"rendered":"http:\/\/ornbardur.com\/2026\/03\/21\/ad-fjarlaegja-gud-ur-stjornmalum\/"},"modified":"2026-03-21T15:32:37","modified_gmt":"2026-03-21T15:32:37","slug":"ad-fjarlaegja-gud-ur-stjornmalum","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/ornbardur.com\/?p=7452","title":{"rendered":"Lennox \u00ed Westminster: A\u00f0 fjarl\u00e6gja Gu\u00f0 \u00far stj\u00f3rnm\u00e1lum"},"content":{"rendered":"\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>skapar si\u00f0fer\u00f0ilegt t\u00f3mar\u00fam<\/strong><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>sem veraldarhyggjan getur ekki fyllt<\/strong><\/p>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-image size-large\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"2000\" height=\"959\" src=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2026\/03\/img_0889.jpg?w=1024\" alt=\"\" class=\"wp-image-7451\" \/><figcaption class=\"wp-element-caption\">V\u00eddindi &#8211; Tr\u00fa<\/figcaption><\/figure>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00dar greininni:<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">&#8220;Jafnvel J\u00fcrgen Habermas vi\u00f0urkennir, [l\u00e1tinn 14. mars 2026] fremsti heimspekingur gy\u00f0leysingja, a\u00f0 vestr\u00e6n lykilgildi komi \u00far Bibl\u00edunni. Hann skrifar a\u00f0 hugmyndir eins og mannr\u00e9ttindi, frelsi og l\u00fd\u00f0r\u00e6\u00f0i, s\u00e9u bein arfleif\u00f0 gy\u00f0inglegrar si\u00f0fr\u00e6\u00f0i um r\u00e9ttl\u00e6ti\u00f0 og kristinnar si\u00f0fr\u00e6\u00f0i um k\u00e6rleikann. \u00der\u00e1tt fyrir veraldlegar fullyr\u00f0ingar, lifum vi\u00f0 enn \u00e1 si\u00f0fer\u00f0ilegri arfleif\u00f0 kristninnar. Allt anna\u00f0, sag\u00f0i Habermas, er bara aumt hjal \u00ed anda p\u00f3stm\u00f3dernisma.&#8221;<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Og h\u00e9r er greinin \u00f6ll:<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>Grein eftir Dr. JOHN LENNOX, fv. st\u00e6r\u00f0fr\u00e6\u00f0ipr\u00f3fessor vi\u00f0 Cambridge h\u00e1sk\u00f3lann \u00ed Bretlandi.<\/strong><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>A\u00f0 fjarl\u00e6gja Gu\u00f0 \u00far stj\u00f3rnm\u00e1lum<\/strong><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>skapar si\u00f0fer\u00f0ilegt t\u00f3mar\u00fam<\/strong><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>sem veraldarhyggjan getur ekki fyllt<\/strong><\/p>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-audio\"><audio controls src=\"https:\/\/pub-c849b6aaf98340c4bec7b480b0f7ffe9.r2.dev\/2026\/03\/lennox-i-westminster.m4a\"><\/audio><\/figure>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c1 morgunver\u00f0arfundi breska \u00feingsins \u00ed Westminster h\u00e9lt hinn \u00feekkti kristni hugsu\u00f0ur og st\u00e6r\u00f0fr\u00e6\u00f0ipr\u00f3fessor, John Lennox, \u00fev\u00ed fram a\u00f0 \u00fea\u00f0 a\u00f0 fjarl\u00e6gja Gu\u00f0 \u00far stj\u00f3rnm\u00e1lum myndi skapa si\u00f0fer\u00f0ilegt t\u00f3mar\u00fam sem veraldarhyggjan eigi enga m\u00f6guleika \u00e1 a\u00f0 fylla upp \u00ed. H\u00e9r eru or\u00f0 hans \u00ed heild sinni:<\/p>\n\n\n\n<!--more-->\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Ma\u00f0ur kemst ekki hj\u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 taka eftir \u00feeirri \u00fer\u00f3un a\u00f0 kristnum gildum s\u00e9 \u00ed vaxandi m\u00e6li varpa\u00f0 inn \u00ed hina opinberu stj\u00f3rnm\u00e1laumr\u00e6\u00f0u.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Fyrr \u00e1 \u00feessu \u00e1ri \u00e1ttu varaforseti [BNA] JD Vance og Rory Stewart \u00ed mj\u00f6g heift\u00fa\u00f0legri deilu \u00e1 X-inu um \u00fea\u00f0 hvernig nota \u00e6tti kristna k\u00e6rleiksgu\u00f0fr\u00e6\u00f0i \u00ed umr\u00e6\u00f0unni um innflytjendur. Bibl\u00eduvers og tilvitnanir \u00ed \u00c1g\u00fast\u00ednus og T\u00f3mas fr\u00e1 Aquino flugu um v\u00ed\u00f0an v\u00f6ll. Engu var l\u00edkara en a\u00f0 Gu\u00f0 v\u00e6ri kominn aftur inn \u00ed opinbera umr\u00e6\u00f0u.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Enn n\u00e6r \u00ed t\u00edma, hefur n\u00fdveri\u00f0 bori\u00f0 \u00e1 \u00f6flugri m\u00e1lsv\u00f6rn fyrir gagnst\u00e6\u00f0u sj\u00f3narmi\u00f0i. \u00deingmenn me\u00f0 \u201e\u00f3skilgreindar tr\u00faarlegar sko\u00f0anir&#8221; voru hvattir til a\u00f0 halda sl\u00edkum sko\u00f0unum utan vi\u00f0 stj\u00f3rnm\u00e1lin. Pers\u00f3nulegar tr\u00faarsko\u00f0anir manna \u00e6ttu ekki a\u00f0 blandast inn \u00ed opinber m\u00e1lefni, heldur \u00e6tti veraldleg skynsemi a\u00f0 r\u00edkja \u00fear. Um er a\u00f0 r\u00e6\u00f0a tv\u00e6r mj\u00f6g \u00f3l\u00edkar sko\u00f0anir \u00e1 \u00fev\u00ed hvort Gu\u00f0 eigi erindi inn \u00ed opinbera umr\u00e6\u00f0u. Er \u00f6nnur sko\u00f0unin r\u00e9tt e\u00f0a hvorug?<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Svar mitt er tv\u00ed\u00fe\u00e6tt. \u00cd fyrsta lagi ber s\u00e9rhver ma\u00f0ur tr\u00fa s\u00edna \u00e1 eitthva\u00f0 tilteki\u00f0 me\u00f0 s\u00e9r inn \u00e1 hinn opinbera vettvang.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00dea\u00f0 er algengur misskilningur a\u00f0 tr\u00fain \u00e1 Gu\u00f0 eigi einungis vi\u00f0 um einkal\u00edf f\u00f3lks og a\u00f0 veraldleg v\u00edsindi og skynsemi s\u00e9u fyrir hi\u00f0 opinbera l\u00edf. \u00c1 bak vi\u00f0 \u00feessa fullyr\u00f0ingu liggja \u00fdmsar ranghugmyndir.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">S\u00fa fyrsta er s\u00fa a\u00f0 tr\u00fa \u00e1 Gu\u00f0 s\u00e9 endilega \u00f3skynsamleg. \u00c9g get a\u00f0eins tala\u00f0 fyrir kristna tr\u00fa, sem \u00ed raun metur mikils b\u00e6\u00f0i skynsemi og sannanir. Til d\u00e6mis segist J\u00f3hannes gu\u00f0spjallama\u00f0ur, hafa skr\u00e1\u00f0 \u00ed gu\u00f0spjall sitt, tiltekin or\u00f0 og gj\u00f6r\u00f0ir Jes\u00fa Krists, sem g\u00f6gn er \u00feurfi ranns\u00f3knar vi\u00f0 svo a\u00f0 f\u00f3lk g\u00e6ti eignast grundv\u00f6ll til a\u00f0 treysta honum og \u00feannig \u00f6\u00f0last eil\u00edft l\u00edf (20:31). \u00dear af lei\u00f0andi er kristin tr\u00fa bygg\u00f0 \u00e1 g\u00f6gnum, en grunnur margra helstu h\u00e1sk\u00f3la heims byggir einmitt \u00e1 s\u00f6mu grunnhugsun.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">A\u00f0 \u00fev\u00ed leyti er kristin tr\u00fa mj\u00f6g l\u00edk v\u00edsindum, \u00fe\u00f3tt okkur s\u00e9 oft sagt a\u00f0 vi\u00f0 ver\u00f0um a\u00f0 velja milli Gu\u00f0s og v\u00edsinda. En \u00fea\u00f0 er ekki satt. Vi\u00f0 \u00feurfum ekki frekar a\u00f0 velja milli Gu\u00f0s og v\u00edsinda sem sk\u00fdringa \u00e1 heiminum en vi\u00f0 \u00feurfum a\u00f0 velja milli Sir Frank Whittle og v\u00edsinda \u00feegar kemur a\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fatsk\u00fdra \u00feotuhreyfil [breskur v\u00edsindama\u00f0ur sem fann upp \u00feotuhreyfilinn]. \u00deessar sk\u00fdringar keppa ekki hver vi\u00f0 a\u00f0ra e\u00f0a stangast \u00e1, heldur uppfylla \u00fe\u00e6r hver a\u00f0ra. B\u00e1\u00f0ar eru nau\u00f0synlegar. Gu\u00f0 er ekki samskonar sk\u00fdring og v\u00edsindi. Gu\u00f0 er sk\u00fdringin \u00e1 \u00fev\u00ed hvers vegna alheimurinn er yfir h\u00f6fu\u00f0 til, \u00fear sem unnt er a\u00f0 stunda v\u00edsindi, e\u00f0a jafnvel stj\u00f3rnm\u00e1l.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00deess vegna st\u00f3\u00f0 tr\u00fa hinna st\u00f3ru v\u00edsindabrautry\u00f0jenda \u00e1 Gu\u00f0 \u2014 Gal\u00edle\u00f3s, Keplers, Newtons og Clerk Maxwells \u2014 ekki \u00ed vegi fyrir v\u00edsindum \u00feeirra, heldur var h\u00fan drifkrafturinn \u00e1 bak vi\u00f0 \u00feau. Tr\u00fain \u00e1 v\u00edsindalegt framtak og tr\u00fain \u00e1 Gu\u00f0 eru fyrirtaks samherjar. Eins og hinn l\u00e1tni yfirrabb\u00edni Lord Sacks or\u00f0ar \u00fea\u00f0: tr\u00faarbr\u00f6g\u00f0 og v\u00edsindi eru \u00f3l\u00edk, og vi\u00f0 \u00feurfum hvor tveggja. V\u00edsindi taka hlutina \u00ed sundur til a\u00f0 sj\u00e1 hvernig \u00feeir virka. Tr\u00faarbr\u00f6g\u00f0in setja hlutina saman til a\u00f0 sko\u00f0a merkingu \u00feeirra.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>A\u00d0 FJARL\u00c6GJA GU\u00d0 \u00daR OPINBERRI UMR\u00c6\u00d0U SKAPAR EKKI EITTHVA\u00d0 HLUTLEYSI<\/strong><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Skynsamleg v\u00edsindi, tr\u00faarbr\u00f6g\u00f0 og stj\u00f3rnm\u00e1l nota \u00f6ll r\u00f6kstu\u00f0ning sem byggir \u00e1 g\u00f6gnum. Taktu hi\u00f0 fr\u00e6ga d\u00e6mi William Wilberforce og bar\u00e1ttu hans gegn \u00fer\u00e6lahaldi. Drifkrafturinn \u00e1 bak vi\u00f0 hana var kristin sannf\u00e6ring hans \u2014 tr\u00fa hans \u00e1 a\u00f0 allir menn, karlar sem konur, v\u00e6ru j\u00f6fn a\u00f0 reisn og gildi, vegna \u00feess a\u00f0 \u00feau v\u00e6ru sk\u00f6pu\u00f0 \u00ed mynd Gu\u00f0s. \u00de\u00f3 hef\u00f0i bar\u00e1ttan hans aldrei tekist \u00e1n \u00feess a\u00f0 safna geysilegu magni af hlutl\u00e6gum g\u00f6gnum og r\u00f6kr\u00e6\u00f0um um alla \u00fe\u00e6tti \u00fer\u00e6laverslunarinnar.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00d6nnur ranghugmyndin er s\u00fa a\u00f0 veraldleg, stj\u00f3rnm\u00e1laleg hugsun byggi eing\u00f6ngu \u00e1 skynsemi og v\u00edsindum \u00e1n tr\u00faar. \u00deetta er alrangt. Or\u00f0i\u00f0 \u201etr\u00fa&#8221; hefur tvennskonar merkingu. \u00cd fyrsta lagi getur or\u00f0i\u00f0 tr\u00fa veri\u00f0 nota\u00f0 um tr\u00faarbr\u00f6g\u00f0 \u2014 gy\u00f0ingatr\u00fa, kristni og \u00edslam o.s.frv. \u00cd \u00f6\u00f0ru lagi er or\u00f0i\u00f0 tr\u00fa samheiti yfir traust, sem \u00e1 r\u00e6tur \u00ed latneska or\u00f0inu <em>fides<\/em>, sem merkir trygg\u00f0 og traust. \u00cd \u00feeim skilningi setur veraldarhyggjan tr\u00fa s\u00edna \u00e1 v\u00edsindi og skynsemi til a\u00f0 byrja me\u00f0.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00dear a\u00f0 auki berum vi\u00f0 \u00f6ll inn \u00ed stj\u00f3rnm\u00e1l okkar helling af sko\u00f0unum sem hafa m\u00f3tast af margv\u00edslegum \u00e1hrifum \u2014 fj\u00f6lskylduuppeldi, \u00far v\u00ed\u00f0ara f\u00e9lagslegu umhverfi, af reynslu okkar, s\u00e1lfr\u00e6\u00f0ilegum skilningi okkar og j\u00e1, l\u00edka tr\u00faarbr\u00f6g\u00f0um. \u00d6ll eigum vi\u00f0 heimsmynd, grundv\u00f6ll sko\u00f0ana okkar og afst\u00f6\u00f0u til st\u00e6rstu spurninga l\u00edfsins: Hver er veruleikinn \u00ed raun? Hva\u00f0 felst \u00ed \u00fev\u00ed a\u00f0 vera manneskja? Er einhver tilgangur me\u00f0 tilvist okkar? \u00deessi heimsmynd hefur \u00e1hrif \u00e1 allt l\u00edf okkar, stj\u00f3rnm\u00e1l, stj\u00f3rns\u00fdslu og hversdagslegar \u00e1kvar\u00f0anir. Sama hvort heimsmynd okkar er bygg\u00f0 \u00e1 gu\u00f0leysi, kristni, gy\u00f0ingd\u00f3mi, \u00edslam e\u00f0a m\u00f3tu\u00f0 af annarri heimspeki e\u00f0a hef\u00f0um, \u00fe\u00e1 tj\u00e1um vi\u00f0 \u00f6ll tiltekna tr\u00fa \u00e1 heimsmynd, jafnvel \u00fe\u00f3tt vi\u00f0 gefum henni ekki nafn.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Polly Toynbee haf\u00f0i fullkomlega r\u00e9tt fyrir s\u00e9r \u00feegar h\u00fan skrifa\u00f0i \u00ed The Guardian: \u201e\u00c1 hverjum degi \u00ed \u00feinginu berast gj\u00f6r\u00f3l\u00edkar heimsmyndir \u00e1 banaspj\u00f3t. Stj\u00f3rnm\u00e1l sn\u00faast a\u00f0allega um \u00e1t\u00f6k milli si\u00f0fer\u00f0ilegra heima.&#8221;<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00cd n\u00fdjustu sk\u00fdrslu fr\u00e1 Theos skrifar Nick Spencer a\u00f0 raunverulegur meiningamunur s\u00e9 ekki \u00e1 milli tr\u00faarlegra e\u00f0a tr\u00falausra r\u00f6ksemdaf\u00e6rslna \u00feegar stefna er tekin. Allar r\u00f6ksemdaf\u00e6rslur byggja \u00e1 einhverskonar tr\u00fa \u00e1 heimspekilegan grunn, sem svo \u00fer\u00e6\u00f0ir sig \u00ed inn \u00ed sannf\u00e6ringu okkar um mannlegt e\u00f0li, meginreglur og a\u00f0 lokum inn \u00ed stefnum\u00f3tun okkar. \u00dea\u00f0 sem skilur \u00e1 milli er munurinn \u00e1 g\u00f3\u00f0ri r\u00f6ksemdaf\u00e6rslu og l\u00e9legri \u2014 \u00e1 milli \u00feeirra sem eru meira e\u00f0a minna samkv\u00e6mir s\u00e9r, \u00feeirra sem nota betri e\u00f0a verri r\u00f6k, \u00feeirra sem hafa sterkari e\u00f0a veikari grundv\u00f6ll.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>VI\u00d0 LIFUM ENN \u00c1 SI\u00d0FER\u00d0ILEGRI ARFLEIF\u00d0 KRISTNINNAR<\/strong><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Vi\u00f0 \u00f6ll \u2014 tr\u00fau\u00f0 e\u00f0a \u00e1n tr\u00faar \u2014 erum tr\u00fau\u00f0, og hvort sem \u00fea\u00f0 er auglj\u00f3st e\u00f0a leynt, berum vi\u00f0 sko\u00f0anir okkar me\u00f0 okkur inn \u00e1 hinn opinbera vettvang. Vi\u00f0 gerum \u00fea\u00f0 \u00f6ll. Ef halda \u00e1 tr\u00fau\u00f0u f\u00f3lki utan opinberrar umr\u00e6\u00f0u, \u00fe\u00e1 ver\u00f0ur h\u00fan t\u00f3m. A\u00f0 fjarl\u00e6gja Gu\u00f0 \u00far opinberri umr\u00e6\u00f0u gerir hana ekki a\u00f0 einhverju hlutleysi. Nei. \u00dea\u00f0 sem gerist er, \u00ed sta\u00f0 or\u00f0r\u00e6\u00f0u um Gu\u00f0, kemur eitthva\u00f0 sem er ekki um Gu\u00f0 &#8211; me\u00f0 \u00f6\u00f0rum or\u00f0um, heimsmynd gu\u00f0leysis f\u00e6r \u00fe\u00e1 a\u00f0 r\u00e1\u00f0a, jafnvel \u00fe\u00f3tt vi\u00f0 gerum okkur ekki \u00e6t\u00ed\u00f0 grein fyrir \u00fev\u00ed. Opinber umr\u00e6\u00f0a er deigla allskonar heimsmynda, tr\u00fa \u00e1 gu\u00f0 \u00e6tti einmitt a\u00f0 f\u00e1 a\u00f0 vera \u00fear me\u00f0al annarra l\u00edfssko\u00f0ana.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">En \u00e9g vil ganga lengra og halda \u00fev\u00ed fram a\u00f0 vi\u00f0 \u00feurfum kristna tr\u00fa \u00e1 hinu opinbera svi\u00f0i. \u00deegar kemur a\u00f0 gildum, lendir vestr\u00e6n menning n\u00fat\u00edmans \u00ed alvarlegum vandr\u00e6\u00f0um. Vi\u00f0 eigum okkur h\u00e1ar, si\u00f0fer\u00f0ilegar hugsj\u00f3nir. Vi\u00f0 tr\u00faum \u00e1 jafnr\u00e9tti allra, frelsi, sj\u00e1lfr\u00e6\u00f0i og reisn. \u00deessi gildi lei\u00f0a okkur til a\u00f0 hafna \u00fer\u00e6lahaldi, kyn\u00fe\u00e1ttamisr\u00e9tti, mansali, gy\u00f0ingahatri, \u00fej\u00f3\u00f0ernishreinsun, barnamor\u00f0um, kvenhatri og margskonar \u00f6\u00f0ru \u00f3r\u00e9ttl\u00e6ti. \u00deessi gildi hafa ekki borist til okkar \u00ed gegnum v\u00edsindi.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Einstein sag\u00f0i eitt sinni a\u00f0 h\u00e6gt v\u00e6ri a\u00f0 tala um si\u00f0fer\u00f0ilegan grundv\u00f6ll v\u00edsinda, en ekki um v\u00edsindanlegan grundv\u00f6ll si\u00f0fer\u00f0is. Hva\u00f0an h\u00f6fum vi\u00f0 \u00fe\u00e1 fengi\u00f0 \u00feessi gildi? \u00dea\u00f0 er h\u00e1lf vandr\u00e6\u00f0alegt, \u00fev\u00ed st\u00f3r hluti vestr\u00e6nna hugmynda \u00ed menningu okkar, telur mannf\u00f3lki\u00f0 vera afur\u00f0 \u00f3pers\u00f3nulegra, stj\u00f3rnlausra n\u00e1tt\u00farulegra ferla, sem mi\u00f0a eing\u00f6ngu a\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 komast af og geta dreift \u00e1fram erf\u00f0aefni \u00feess.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Samkv\u00e6mt \u00feessu vi\u00f0horfi eru si\u00f0fer\u00f0ilegar reglur eing\u00f6ngu f\u00e9lagsleg sm\u00ed\u00f0 til a\u00f0 stu\u00f0la a\u00f0 \u00feessum tilgangi. \u00dear er engan si\u00f0fer\u00f0ilegan grundv\u00f6llur a\u00f0 finna til a\u00f0 vernda veika, vi\u00f0kv\u00e6ma og \u00feolendur \u00f3r\u00e9ttl\u00e6tis. Eins og \u00e1hrifamikill gu\u00f0laus hugsu\u00f0ur Yuval Noah Harari or\u00f0ar \u00fea\u00f0: \u201eL\u00edfsbar\u00e1ttan, l\u00e6tur s\u00e9r allt \u00ed l\u00e9ttu r\u00fami liggja og er grimmlega \u00f3j\u00f6fn. Mannr\u00e9ttindi eru eins mikill sk\u00e1ldskapur og Gu\u00f0inn sem skrifar upp\u00e1 \u00feau.&#8221;<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Vi\u00f0 erum \u00fe\u00e1 eins og skilin eftir \u00ed alheimi sem kom \u00far engu, stefnir ekkert, og hefur enga endanlega merkingu. Lord Sacks l\u00fdsir \u00feeirri dramat\u00edsku gengisfellingu \u00e1 gildi mannkyns \u00ed eftirfarandi vi\u00f0horfi:<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u201e\u00de\u00fa og \u00e9g erum ekki anna\u00f0 en efnagrautur, flj\u00f3tandi \u00ed eigingj\u00f6rnum genum, sem fj\u00f6lga s\u00e9r blindandi inn \u00ed n\u00e6stu kynsl\u00f3\u00f0. Allar hugsj\u00f3nir eru blekking. Allar vonir eru d\u00e6mdar til a\u00f0 tort\u00edmast. Og l\u00edfi\u00f0 hefur yfirh\u00f6fu\u00f0 enga merkingu.&#8221;<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00deetta \u00fe\u00fd\u00f0ir a\u00f0 veraldleg vestr\u00e6n menning \u00e1 ekki \u00fe\u00e6r si\u00f0fer\u00f0ilegu au\u00f0lindir sem \u00fearf til a\u00f0 sty\u00f0ja vi\u00f0 h\u00e1ar hugsj\u00f3nir hennar.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Heimspekingurinn Friedrich Nietzsche \u00e1 19. \u00f6ld, skildi aflei\u00f0ingar \u00feess a\u00f0 losa sig vi\u00f0 Gu\u00f0. Hann skrifa\u00f0i, a\u00f0 \u00feegar ma\u00f0urinn gefi kristna tr\u00fa upp \u00e1 b\u00e1tinn, \u00fe\u00e1 missi hann um lei\u00f0 grundv\u00f6ll kristins si\u00f0fer\u00f0is me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 brj\u00f3ta \u00fat \u00far \u00feeim grunni megin\u00fe\u00e1ttinn sem er tr\u00fain \u00e1 gu\u00f0 \u2014 og b\u00e6tti vi\u00f0 \u2014 og \u00fe\u00e1 br\u00fdtur hann heildina.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Alexander Solzhenitsyn kenndi hryllingi Stal\u00edns-stj\u00f3rnarinnar einmitt um \u00feetta tap:<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u201eMenn hafa gleymt Gu\u00f0i.&#8221;<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">E\u00f0a, eins og r\u00fassneskur fr\u00e6\u00f0ima\u00f0ur sag\u00f0i eitt sinn vi\u00f0 mig \u00ed S\u00edber\u00edu:<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u201eVi\u00f0 h\u00e9ldum a\u00f0 vi\u00f0 g\u00e6tum losa\u00f0 okkur vi\u00f0 Gu\u00f0 og haldi\u00f0 eftir gildi manneskjunnar. Vi\u00f0 h\u00f6f\u00f0um rangt fyrir okkur.&#8221;<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Jafnvel J\u00fcrgen Habermas vi\u00f0urkennir, [l\u00e1tinn 14. mars 2026] fremsti heimspekingur gy\u00f0leysingja, a\u00f0 vestr\u00e6n lykilgildi komi \u00far Bibl\u00edunni. Hann skrifar a\u00f0 hugmyndir eins og mannr\u00e9ttindi, frelsi og l\u00fd\u00f0r\u00e6\u00f0i, s\u00e9u bein arfleif\u00f0 gy\u00f0inglegrar si\u00f0fr\u00e6\u00f0i um r\u00e9ttl\u00e6ti\u00f0 og kristinnar si\u00f0fr\u00e6\u00f0i um k\u00e6rleikann. \u00der\u00e1tt fyrir veraldlegar fullyr\u00f0ingar, lifum vi\u00f0 enn \u00e1 si\u00f0fer\u00f0ilegri arfleif\u00f0 kristninnar. Allt anna\u00f0, sag\u00f0i Habermas, er bara aumt hjal \u00ed anda p\u00f3stm\u00f3dernisma.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Sagnfr\u00e6\u00f0ingurinn Tom Holland kemst a\u00f0 svipa\u00f0ri ni\u00f0urst\u00f6\u00f0u \u00ed b\u00f3k sinni Yfirr\u00e1\u00f0 e\u00f0a Dominion. \u00deegar hann sko\u00f0ar \u00e1hrif N\u00fdja testamentisins, skrifar hann, a\u00f0 n\u00e6stum allt sem breg\u00f0ur birtu \u00e1 n\u00fat\u00edmaheiminn \u2014 hugt\u00f6k eins og \u00fej\u00f3\u00f0r\u00e9ttur og mannr\u00e9ttindi \u2014 ver\u00f0i ekki raki\u00f0 til gr\u00edsku heimspekinganna. Og ekki heldur til r\u00f3mverskra heimsvaldasinna. \u00deau ver\u00f0a bara rakin til P\u00e1ls postula, br\u00e9fa hans, og til gu\u00f0spjallanna fj\u00f6gurra, sem eru \u00e1hrifamestu og byltingarkenndustu skrif hins forna heims.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Habermas og Holland komast \u00fear af lei\u00f0andi a\u00f0 \u00feeirri merkilegu ni\u00f0urst\u00f6\u00f0u, a\u00f0 hin eiginlegu gildi sem liggja \u00ed hjarta allrar hugsunar um mannlegar verur og vestr\u00e6nt samf\u00e9lag \u2014 hvort sem \u00feau eru tr\u00faarleg e\u00f0a veraldleg \u2014 komi \u00ed raun \u00far grundvallarkenningum Bibl\u00edunnar: a\u00f0 allir karlar og konur s\u00e9u j\u00f6fn a\u00f0 gildi og reisn, vegna \u00feess a\u00f0 \u00feau eru sk\u00f6pu\u00f0 \u00ed mynd Gu\u00f0s.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>GU\u00d0 ER N\u00da \u00deEGAR H\u00c9R<\/strong><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hin bibl\u00edulega heimsmynd hefur gegnt mi\u00f0l\u00e6gu hlutverki \u00ed uppgangi Vesturlanda. Hin enska Bibl\u00eda Wycliffes fr\u00e1 14. \u00f6ld og King James Bibl\u00edan fr\u00e1 17. \u00f6ld, h\u00f6f\u00f0u gr\u00ed\u00f0arleg \u00e1hrif \u00e1 enska tungu og menningu, \u00e1 gildagrunn okkar og hinar st\u00f3ru borgaralegu stofnanir \u2014 til d\u00e6mis \u00feessa \u00feings [Lennox flutti r\u00e6\u00f0una eimnitt \u00ed Breska \u00feingh\u00fasinu]. Og , \u00feess vegna eru enn \u00feann dag \u00ed dag \u00e6\u00f0stu stj\u00f3rnm\u00e1lamenn e\u00f0a r\u00e1\u00f0herrar kalla\u00f0ir &#8220;ministers&#8221; [h\u00e9r v\u00edsar h\u00f6fundur til \u00feess a\u00f0 or\u00f0i\u00f0 <em>minister<\/em> v\u00edsar til kirkjulegrar \u00fej\u00f3nustu en s\u00f3knarprestur \u00e1 ensku er einmitt <em>minister<\/em>].<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Wycliffe skrifa\u00f0i: \u201eBibl\u00edan hefur algj\u00f6ra yfirbur\u00f0i \u00feegar kemur a\u00f0 mannlegri hugsun. H\u00fan er fr\u00e1 Gu\u00f0i komin. H\u00fan er s\u00f6nn. H\u00fan er grundv\u00f6llur allra samf\u00e9laga.&#8221; \u00dea\u00f0 er \u00ed Bibl\u00edunni og kristinni tr\u00fa sem vi\u00f0 eigum grundv\u00f6ll hinnar opinberu umr\u00e6\u00f0u sem tryggir \u00f6ll gildin sem eru okkur k\u00e6r. Gu\u00f0 er \u00ed raun \u00feegar til sta\u00f0ar \u00e1 hinu opinbera svi\u00f0i \u2014 enda \u00fe\u00f3tt f\u00f3lk komi ekki auga \u00e1 hann.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Jafnvel \u00fea\u00f0 eitt a\u00f0 nefna Gu\u00f0 \u00e1 \u00feeim vettvangi, gerir sumt f\u00f3lk kv\u00ed\u00f0i\u00f0 vegna \u00feess a\u00f0 \u00fea\u00f0 \u00f3ttast b\u00f3kstafstr\u00fa og \u00f6fgar. \u00c9g deili \u00feeim \u00f3tta me\u00f0 ykkur \u00fear sem fj\u00f6lskylda m\u00edn \u00e1 Nor\u00f0ur-\u00cdrlandi hefur \u00fej\u00e1\u00f0st af sl\u00edku ofbeldi og k\u00fagun. En \u00e9g \u00f3ttast ekki bara tr\u00faarlegar \u00f6fgar. \u00c9g \u00f3ttast einnig \u00fea\u00f0 sem \u00e9g s\u00e1 \u00ed Austur-\u00de\u00fdskalandi og R\u00fasslandi \u00e1 m\u00f6rgum fer\u00f0um m\u00ednum \u00fear um, \u00e1 t\u00edmum kalda str\u00ed\u00f0sins og eftir \u00fea\u00f0: a\u00f0 opinbert gu\u00f0leysi haf\u00f0i \u00ed s\u00e9r \u00f3\u00feol og \u00f6fgakennda tr\u00fa, sem reyndi a\u00f0 koma \u00e1 \u00f6fgakenndu, f\u00e9lagslegu eftirliti og sko\u00f0anak\u00fagun og \u00fath\u00fdsa \u00fear me\u00f0 \u00f6llum sj\u00f3narhornum nema s\u00ednum eigin.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hvernig getum vi\u00f0 \u00fe\u00e1 for\u00f0ast \u00fea\u00f0 a\u00f0 tr\u00faarbr\u00f6g\u00f0in ver\u00f0i verkf\u00e6ri k\u00fagunar? Me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 fylgja Gu\u00f0i \u00e1 \u00feann h\u00e1tt sem Jes\u00fas ger\u00f0i, sem lei\u00f0ir okkur a\u00f0 \u00e1hugaver\u00f0ri samr\u00e6\u00f0u hans og r\u00f3mverska landstj\u00f3rans, P\u00edlatusar.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">P\u00edlatus var hr\u00e6ddur \u2014 hr\u00e6ddur um a\u00f0 Jes\u00fas v\u00e6ri p\u00f3lit\u00edsk \u00f3gn vi\u00f0 R\u00f3m, einmitt \u00fe\u00e1 tegund k\u00fagandi og tr\u00faarlegs stj\u00f3rnarfars sem \u00e9g hef veri\u00f0 a\u00f0 l\u00fdsa. \u00deannig a\u00f0 me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 lei\u00f0a Jes\u00fas inn \u00ed r\u00e9ttarh\u00f6ld sem hry\u00f0juverkamann, spur\u00f0i P\u00edlatus hvort hann v\u00e6ri konungur. Jes\u00fas svara\u00f0i:<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u201eMitt r\u00edki er ekki af \u00feessum heimi. V\u00e6ri mitt r\u00edki af \u00feessum heimi hef\u00f0u \u00fej\u00f3nar m\u00ednir barist svo \u00e9g yr\u00f0i ekki framseldur Gy\u00f0ingum. En n\u00fa er r\u00edki mitt ekki \u00fea\u00f0an.\u201c (J\u00f3hannes 18.36)<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hann \u00fatsk\u00fdr\u00f0i enn frekar:<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u201eTil \u00feess er \u00e9g f\u00e6ddur og til \u00feess er \u00e9g kominn \u00ed heiminn a\u00f0 \u00e9g beri sannleikanum vitni. Hver sem er sannleikans megin heyrir m\u00edna r\u00f6dd.\u201c (v. 37)<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Og kannski m\u00e6lir P\u00edlatus \u00ed or\u00f0asta\u00f0 margra er hann spyr Jes\u00fa:<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u201eHva\u00f0 er sannleikur?&#8221;<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hann komst \u00ed \u00fea\u00f0 minnsta a\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 sannleikanum ver\u00f0ur ekki komi\u00f0 \u00e1 me\u00f0 voldbo\u00f0i og \u00fev\u00ed l\u00fdsti hann Jes\u00fa saklausan.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>KRISTNIN BYGGIR \u00c1 TRAUSTUM OG S\u00d6NNUM G\u00d6GNUM<\/strong><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">En \u00ed hverju er \u00fe\u00e1 sannleikurinn um konungd\u00f3m Jes\u00fa f\u00f3lginn? Svari\u00f0 kom \u00feegar Jes\u00fas var s\u00ed\u00f0ar leiddur \u00fat til krossfestingar \u00e1 sta\u00f0 sem heitir Golgata. P\u00edlatus skipa\u00f0i a\u00f0 skrifa skyldi yfirl\u00fdsingu og festa \u00e1 krossinn. \u00dear st\u00f3\u00f0:<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u201eJes\u00fas fr\u00e1 Nasaret, konungur Gy\u00f0inga.&#8221;<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">J\u00f3hannes, \u00e6vis\u00f6guritari Jes\u00fa, skilur okkur ekki eftir \u00ed vafa \u2014 ef vi\u00f0 viljum skilja konungd\u00f3m hans, ver\u00f0um vi\u00f0 a\u00f0 horfa \u00e1 krossinn. Vi\u00f0 sj\u00e1um \u00fear Gu\u00f0 \u00ed mannlegu holdi \u2014 ekki kominn til a\u00f0 ford\u00e6ma okkur, heldur til a\u00f0 borga gjaldi\u00f0 fyrir si\u00f0fer\u00f0ilegt hrun okkar og opna lei\u00f0 til hj\u00e1lpr\u00e6\u00f0is; konungur fullkomins r\u00e9ttl\u00e6tis, sem ekki kom til a\u00f0 d\u00e6ma, heldur til a\u00f0 bera d\u00f3minn okkar \u00e1 sj\u00e1lfum s\u00e9r; ekki a\u00f0 knosa \u00f3vini s\u00edna, heldur a\u00f0 deyja fyrir \u00fe\u00e1 af einsk\u00e6rum k\u00e6rleika. Voldugur konungur sem leggur ni\u00f0ur vald sitt svo a\u00f0 b\u00e6\u00f0i sterkir og veikir g\u00e6tu fengi\u00f0 n\u00fdjan kraft til a\u00f0 lifa.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hann b\u00fd\u00f0ur upp \u00e1 fyrirgefningu, fri\u00f0 og sam\u00feykki Gu\u00f0s \u2014 ekki unni\u00f0 me\u00f0 ver\u00f0leikum, heldur gefi\u00f0 af frj\u00e1lsum vilja \u00ed i\u00f0run og tr\u00fa. \u00cd kjarnanum er \u00feetta: Kristur gaf sj\u00e1lfan sig fyrir mig. \u00cd einhverjum dj\u00fapum skilningi bar hann fulla \u00feyngd syndar minnar og sektar \u00e1 krossinum, og Gu\u00f0 reisti hann upp fr\u00e1 dau\u00f0um, sem mikla yfirl\u00fdsingu um \u00fea\u00f0, a\u00f0 hann s\u00e9 sannarlega Sonur Gu\u00f0s.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>KRISTUR ER OKKAR VON<\/strong><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00deessi kristni bo\u00f0skapur er einstakur. Jes\u00fas keppir ekki vi\u00f0 neinn, \u00fear sem enginn annar getur veitt okkur \u00fea\u00f0, sem hann gefur. Sannlega, sannlega, sag\u00f0i hann inn \u00ed mj\u00f6g \u00f3vissan heim \u00feess t\u00edma \u2014 og hann segir \u00fea\u00f0 enn \u00e1 n\u00fd \u2014 \u201eS\u00e1 sem heyrir or\u00f0 mitt og tr\u00fair \u00feeim sem sendi mig hefur eil\u00edft l\u00edf og kemur ekki til d\u00f3ms heldur er hann stiginn yfir fr\u00e1 dau\u00f0anum til l\u00edfsins.&#8221; [J\u00f3h 5.24].<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Kristur er sannarlega von okkar \u00ed l\u00edfi og dau\u00f0a, og \u00fea\u00f0 hefur veri\u00f0 s\u00e1 grundv\u00f6llur sem \u00e9g hef byggt l\u00edf mitt \u00e1.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Kristnir einstaklingar eru kalla\u00f0ir til a\u00f0 vera salt og lj\u00f3s \u00ed heiminum \u2014 a\u00f0 bera sannleikanum vitni me\u00f0 r\u00f6kr\u00e6\u00f0um \u00e1 opinberum vettvangi, eins og Jes\u00fas og postular hans ger\u00f0u, me\u00f0 sannf\u00e6ringu en ekki \u00fevingun, og \u00e1n \u00feess a\u00f0 missa sj\u00f3nar \u00e1 \u00feeirri sta\u00f0reynd a\u00f0 \u00feeir sem eru \u00f3samm\u00e1la eru samfer\u00f0af\u00f3lk, skapa\u00f0 \u00ed mynd Gu\u00f0s.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Og ef vi\u00f0 t\u00f6lum ekki, \u00fe\u00e1 munu kannski jafnvel \u00feessir margra \u00fe\u00fasund \u00e1ra g\u00f6mlu steinar hr\u00f3pa: Imago Dei<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">[e\u00f0a \u00e1 \u00edslensku &#8211; \u00cdmynd Gu\u00f0s]<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00de\u00fd\u00f0andi:<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00d6rn B\u00e1r\u00f0ur J\u00f3nsson, fv. s\u00f3knarprestur, Doctor of Ministry<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><em>John Lennox flutti \u00feetta erindi \u00e1 B\u00e6na- og morgunvar\u00f0arfundi \u00ed breska \u00feingh\u00fasinu \u00ed Westminster. Vi\u00f0bur\u00f0urinn var haldinn af samt\u00f6kunum Kristnir \u00e1 \u00feingi (Christians in Parliament) \u00ed samvinnu vi\u00f0 fleiri.<\/em><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><em>John Lennox, pr\u00f3fessor \u00ed st\u00e6r\u00f0fr\u00e6\u00f0i vi\u00f0 Oxford-h\u00e1sk\u00f3la (emeritus), er \u00feektur fyrirlesari v\u00ed\u00f0a um heim sem talar um tengsl v\u00edsinda, heimspeki og tr\u00faarbrag\u00f0a. Hann kennir reglulega vi\u00f0 fj\u00f6lmargar h\u00e1sk\u00f3lastofnanir, er f\u00e9lagi \u00ed Trinity Forum og hefur skrifa\u00f0 b\u00f3kaflokk sem fjallar um tengsl v\u00edsinda og kristni. Hann er forseti OCCA, Oxford Centre for Christian Apologetics. Hann er h\u00f6fundur fj\u00f6lda b\u00f3ka, \u00fear \u00e1 me\u00f0al v\u00e6ntanlegrar b\u00f3kar, God, AI and the End of History: Understanding the Book of Revelation in an Age of Intelligent Machines (SPCK).<\/em><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><em>H\u00e9r er tegill \u00e1 frumtexta erindisins \u00e1 ensku:<\/em><\/p>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-embed\"><div class=\"wp-block-embed__wrapper\">\nhttps:\/\/www.premierchristianity.com\/politics\/god-belongs-in-politics-john-lennox-makes-the-case-for-faith-in-public-life\/19637.article\n<\/div><\/figure>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>skapar si\u00f0fer\u00f0ilegt t\u00f3mar\u00fam sem veraldarhyggjan getur ekki fyllt \u00dar greininni: &#8220;Jafnvel J\u00fcrgen Habermas vi\u00f0urkennir, [l\u00e1tinn 14. mars 2026] fremsti heimspekingur gy\u00f0leysingja, a\u00f0 vestr\u00e6n lykilgildi komi \u00far Bibl\u00edunni. Hann skrifar a\u00f0 hugmyndir eins og mannr\u00e9ttindi, frelsi og l\u00fd\u00f0r\u00e6\u00f0i, s\u00e9u bein arfleif\u00f0 gy\u00f0inglegrar si\u00f0fr\u00e6\u00f0i um r\u00e9ttl\u00e6ti\u00f0 og kristinnar si\u00f0fr\u00e6\u00f0i um k\u00e6rleikann. \u00der\u00e1tt fyrir veraldlegar fullyr\u00f0ingar, lifum vi\u00f0 [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":2,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_jetpack_newsletter_access":"","_jetpack_dont_email_post_to_subs":false,"_jetpack_newsletter_tier_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paywalled_content":false,"_jetpack_hide_featured_image":false,"_jetpack_featured_image_duplicate_dismissed":0,"_jetpack_feature_clip_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":"","jetpack_post_was_ever_published":false},"categories":[4],"tags":[],"class_list":["post-7452","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-greinar-og-hugvekjur-articles"],"jetpack_sharing_enabled":true,"jetpack_featured_media_url":"","_links":{"self":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/7452","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/users\/2"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcomments&post=7452"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/7452\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fmedia&parent=7452"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcategories&post=7452"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Ftags&post=7452"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}