{"id":742,"date":"2013-09-20T16:47:02","date_gmt":"2013-09-20T16:47:02","guid":{"rendered":"http:\/\/ornbardur.com\/?p=742"},"modified":"2013-09-20T16:47:02","modified_gmt":"2013-09-20T16:47:02","slug":"magnus-thorgeir-einarsson-1936-2013","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/ornbardur.com\/?p=742","title":{"rendered":"Magn\u00fas \u00deorgeir Einarsson 1936-2013"},"content":{"rendered":"<p><a href=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2013\/09\/magnuseinarsson.png\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" class=\"alignleft size-medium wp-image-743\" alt=\"MagnusEinarsson\" src=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2013\/09\/magnuseinarsson.png?w=206\" width=\"206\" height=\"300\" \/><\/a>\u00d6rn B\u00e1r\u00f0ur J\u00f3nsson<\/p>\n<p>Minningaror\u00f0<\/p>\n<p><b>Magn\u00fas \u00deorgeir Einarsson<\/b><\/p>\n<p>fasteignasali<\/p>\n<p>1936-2013<\/p>\n<p>Sk\u00falag\u00f6tu 10, Reykjav\u00edk<\/p>\n<p>\u00datf\u00f6r fr\u00e1 Hallgr\u00edmskirkju<\/p>\n<p>f\u00f6studaginn 20. september kl. 13<\/p>\n<p>Jar\u00f0sett \u00ed G\u00f6r\u00f0um<\/p>\n<p>R\u00e6\u00f0una er h\u00e6gt a\u00f0 lesa h\u00e9r fyrir ne\u00f0an og einnig hlusta \u00e1 hana.<\/p>\n<p><!--more--><\/p>\n\n<p>\u00cd s\u00e1lmaskr\u00e1nni eru tv\u00e6r myndir af Magn\u00fasi einum. M\u00f6rg \u00e1r li\u00f0u \u00e1 milli \u00feeirra tveggja en \u00feau \u00e1r eru sem \u00f6rskotsstund \u00feegar liti\u00f0 er til baka. Str\u00e1kslegur svipurinn leynir s\u00e9r ekki, glettnin \u00ed augum og brosi. Magn\u00fas var flottur ma\u00f0ur sem haf\u00f0i g\u00f3\u00f0 \u00e1hrif \u00e1 umhverfi sitt og alla sem honum kynntust.<\/p>\n<p>Margt bar \u00e1 g\u00f3ma \u00e1 milli \u00feessara tvegga mynda. L\u00edfi\u00f0 er vegfer\u00f0, \u201etilvera okkar er undarlegt fer\u00f0alag\u201c, sag\u00f0i sk\u00e1ldi\u00f0. Og svo l\u00fdkur \u00feessari fer\u00f0 og vi\u00f0 ver\u00f0um \u00f6ll kv\u00f6dd \u00ed fyllingu t\u00edmans af h\u00f3pi f\u00f3lks sem mun sakna okkar og vonandi kve\u00f0ja okkur \u00feakkl\u00e1tum huga.<\/p>\n<p>Hann lif\u00f0i og starfa\u00f0i \u00ed borginni, f\u00e6ddist \u00e1 Bergsta\u00f0atr\u00e6ti 46, bj\u00f3 um t\u00edma \u00ed Sogam\u00fdrinni en lengst af bernsku sinnar \u00ed Laugarnesinu. \u00dear var gott a\u00f0 vera str\u00e1kur \u00ed h\u00f3pi fj\u00f6rugra f\u00e9laga og milli tveggja br\u00e6\u00f0ra.<\/p>\n<p>Foreldrar hans voru Einar Kristj\u00e1nsson og Helga Haraldsd\u00f3ttir, b\u00e6\u00f0i upprunnin austur \u00ed sveit, hann fr\u00e1 Langholtsparti \u00ed Fl\u00f3a en h\u00fan fr\u00e1 Hrafnkelsst\u00f6\u00f0um \u00ed Hrunamannahreppi.<\/p>\n<p>Eldir br\u00f3\u00f0ir Magn\u00fasar var Haraldur f. 1934 d. 2013 en yngri er Kristinn f. 1944.<\/p>\n<p>\u00c1stin vitja\u00f0i ungra manna \u00far Laugarnesinu eins og vera ber og \u00fear var Magn\u00fas tilb\u00fainn fyrir l\u00edfi\u00f0 en \u00e1stin hans kom ekki \u00far hverfinu e\u00f0a \u00f6r\u00f0um hverfum h\u00f6fu\u00f0borgarinnar. K\u00e6rastan kom \u00far Hafnarfir\u00f0i, Gu\u00f0r\u00fan \u00de. J\u00f3hannsd\u00f3ttir og \u00feanga\u00f0 f\u00f3r Magn\u00fas um t\u00edma og \u00feau bjuggu \u00fear saman fyrstu hj\u00faskapar\u00e1rin. Hva\u00f0 gera menn ekki fyrir \u00e1stina? Foreldrar Gu\u00f0r\u00fanar komu af Su\u00f0urnesjum, m\u00f3\u00f0irin \u00far Gar\u00f0inum en fa\u00f0irinn \u00far Leirunni.<\/p>\n<p>\u00deegar \u00feau h\u00f3fu b\u00faskap, Maggi og R\u00fana, var ekki eins au\u00f0velt a\u00f0 skj\u00f3tast \u00e1 milli Fjar\u00f0arins og h\u00f6fu\u00f0borgarinnar og n\u00fa. Landlei\u00f0ir s\u00e1u um flutninga f\u00f3lks \u00ed bl\u00e1um og hv\u00edtum r\u00fatum sem sniglu\u00f0ust um hlykj\u00f3ttan veginn og yfir K\u00f3pavogsbr\u00fana \u00fear sem varla var h\u00e6gt a\u00f0 m\u00e6ta \u00f6\u00f0rum b\u00edl. R\u00fatan \u00e1 lei\u00f0inni til Reykjav\u00edkur kleif yfir K\u00f3pavogsh\u00e1lsinn \u00e1\u00f0ur en gj\u00e1in var\u00f0 til og svo var fr\u00edhj\u00f3la\u00f0 ni\u00f0ur \u00ed Fossvog og \u00fea\u00f0an silast upp \u00d6skjuhl\u00ed\u00f0ina fram me\u00f0 Fossvogskirkjugar\u00f0i \u00e1 mj\u00f3um malarvegi og b\u00edlstj\u00f3rinn s\u00edfellt a\u00f0 skipta ni\u00f0ur og tv\u00edk\u00fapla. Svona voru n\u00fa a\u00f0st\u00e6\u00f0ur \u00fe\u00e1.<\/p>\n<p>Magn\u00fas var alltaf sn\u00f6ggur a\u00f0 sn\u00faa s\u00e9r vi\u00f0. Hann var flj\u00f3thuga, viljugur, duglegur og einkar hj\u00e1lpsamur ma\u00f0ur. Einu sinni sem oftar hj\u00e1lpa\u00f0i hann b\u00f6rnunum vi\u00f0 a\u00f0 standsetja \u00edb\u00fa\u00f0. Hann m\u00e6tti galvaskur, t\u00f3k m\u00e1lningar\u00falluna \u00ed h\u00f6nd og var b\u00fainn a\u00f0 heilan vegg \u00feegar tengdad\u00f3tturin n\u00e1\u00f0i a\u00f0 segja honum a\u00f0 hann hef\u00f0i m\u00e1la\u00f0 \u00ed vitlausum lit.<\/p>\n<p>Hann s\u00e1 alltaf hundra\u00f0 lausnir \u00ed hverju m\u00e1li en \u00fe\u00e6r voru n\u00fa kannski ekki allar \u00feaulhugsa\u00f0ar og pr\u00f3fa\u00f0ar en oftast rata\u00f0i hann \u00fe\u00f3 r\u00e9tta lei\u00f0. Hann s\u00e1 jafnan allssta\u00f0ar opnar dyr og t\u00e6kif\u00e6ri. Hann var gamansamur og haf\u00f0i yndi af a\u00f0 gr\u00ednast. Svo var hann \u00e1g\u00e6t eftirherma og gat brug\u00f0i\u00f0 s\u00e9r \u00ed l\u00edki margra kunnra manna.<\/p>\n<p>Magn\u00fas og Gu\u00f0r\u00fan eignu\u00f0ust \u00ferj\u00e1 myndarsyni. \u00deeir eru:<\/p>\n<ol>\n<li>Einar \u00de\u00f3r Magn\u00fasson f. 1964 kv\u00e6ntur H\u00f6nnu S\u00edmonard\u00f3ttur f. 1966. B\u00f6rn \u00feeirra: Magn\u00fas M\u00e1r f. 1989, Agnes Eir f. 1992, Anton Ari f. 1994, og Patrik El\u00ed f. 1996.<\/li>\n<li>Elvar \u00d6rn Magn\u00fasson f. 1968 kv\u00e6ntur \u00d6nnu Mar\u00edu Snorrad\u00f3ttur f. 1971. B\u00f6rn \u00feeirra: Alexandra f. 1995, R\u00fana Maren f. 2001 og Snorri Hrafn f. 2007.<\/li>\n<li>Agnar M\u00e1r Magn\u00fasson f. 1974 kv\u00e6ntur Berglindi Helgu Sigur\u00fe\u00f3rsd\u00f3ttur f. 1974. B\u00f6rn \u00feeirra: Gauti Leon f. 2002, Egill Dofri f. 2008 og L\u00e1ra Krist\u00edn f. 2011.<\/li>\n<\/ol>\n<p>Ungur a\u00f0 \u00e1rum var\u00f0 hann fasteignasali. \u00dea\u00f0 starf \u00e1tti vel vi\u00f0 hann. Hann var viljugur, \u00e1tti gott me\u00f0 a\u00f0 eiga kurteisleg og opin samskipti vi\u00f0 f\u00f3lk, var grei\u00f0vikinn og i\u00f0inn. \u00de\u00e1 var bransinn allt annar en \u00ed dag. En \u00fe\u00e1 eins og n\u00fa var f\u00f3lk a\u00f0 h\u00f6ndla me\u00f0 aleigu s\u00edna \u00fev\u00ed steinsteypan hefur l\u00f6ngum veri\u00f0 helsti og besti fj\u00e1rfestingarkostur landans. H\u00e9r \u00e1\u00f0ur fyrr \u00feurfti f\u00f3lk a\u00f0 borga \u00fat helming \u00edb\u00fa\u00f0arver\u00f0s, 25% vi\u00f0 saming og s\u00f6mu upph\u00e6\u00f0 vi\u00f0 lok, en fj\u00e1rmagna hin 50% me\u00f0 l\u00e1num. \u00de\u00e1 voru bankar allt a\u00f0rar stofnanir en n\u00fa. \u00de\u00e1 birtu \u00feeir ekki augl\u00fdsingar me\u00f0 gyllbo\u00f0um til a\u00f0 la\u00f0a f\u00f3lk til l\u00e1nt\u00f6ku. \u00de\u00e1 sneri \u00feetta alveg \u00f6fugt. F\u00f3lk var\u00f0 a\u00f0 standa \u00ed bi\u00f0\u00f6\u00f0um \u00ed b\u00f6nkum og b\u00ed\u00f0a \u00feess a\u00f0 komast inn \u00ed herbergi bankastj\u00f3rans sem var stundum eiginlega ekki nema fyrir reykkafara, svo mikill gat vindlareykurinn veri\u00f0. Peningar fengust sjaldan a\u00f0 l\u00e1ni nema fyrir kl\u00edkuskap enda voru l\u00e1n eins og happdr\u00e6ttisvinningur \u00fev\u00ed ver\u00f0b\u00f3lgan s\u00e1 um a\u00f0 borga \u00feau. N\u00fa er \u00f6ldin \u00f6nnur og vi\u00f0 \u00feurfum a\u00f0 \u00fer\u00e6la fyrir l\u00e1nunum. Samt vill enginn \u00feessa \u201cgood old days\u201c. J\u00e1, l\u00edfi\u00f0 \u00e1 \u00cdslandi er oft eins og s\u00farreal\u00edst\u00edskur farsi.<\/p>\n<p>Magn\u00fas \u00feekkti t\u00edmana tvennan og a\u00f0laga\u00f0ist hverjum t\u00edma, var alltaf eins og vel syndur fiskur \u00ed sj\u00f3. Hann passa\u00f0i vel upp \u00e1 s\u00edna k\u00fanna, var vins\u00e6ll \u00ed s\u00ednu fagi og margir \u00e6ttli\u00f0ir s\u00f6mu fj\u00f6lskyldu \u00e1ttu gjarnan vi\u00f0skipti vi\u00f0 hann. Hann var g\u00f3\u00f0ur \u00ed a\u00f0 s\u00e6tta sj\u00f3narmi\u00f0 og koma \u00e1 samningum \u00feannig a\u00f0 b\u00e6\u00f0i kaupandi og seljandi g\u00e6tu vel vi\u00f0 una\u00f0.<\/p>\n<p>Magn\u00fas rifa\u00f0i upp \u00ed bla\u00f0avi\u00f0tali \u00feegar s\u00edmar voru ekki til \u00e1 hverju heimili og hann var\u00f0 a\u00f0 fer\u00f0ast um b\u00e6inn \u00ed str\u00e6t\u00f3 e\u00f0a me\u00f0 leigub\u00edl og stundum skilja eftir skilabo\u00f0 \u00ed n\u00e6sta h\u00fasi vi\u00f0 seljanda e\u00f0a kaupanda um a\u00f0 hafa samband. \u00de\u00e1 var oft einn s\u00edmi \u00ed stigagangi fj\u00f6lb\u00fdlish\u00fass sem dug\u00f0i tugum \u00edb\u00faa. Sl\u00edkur s\u00edmi gat veri\u00f0 \u00e1 st\u00e6r\u00f0 vi\u00f0 t\u00f6lvuprentara en n\u00fa er s\u00edmi \u00ed vasa hvers manns og hvergi fri\u00f0ur fyrir hringingum. Mikil d\u00e1semd er t\u00e6kni n\u00fat\u00edmans!<\/p>\n<p>Magn\u00fas byrja\u00f0i hj\u00e1 Eignas\u00f6lunni 1957, keypti hana s\u00ed\u00f0an og rak til 1998. Eftir \u00fea\u00f0 vann hann \u00ed 3 \u00e1r hj\u00e1 H\u00fasakaupum en t\u00f3k \u00fe\u00e1 vi\u00f0 starfi framkv\u00e6mdastj\u00f3ra F\u00e9lags fasteignasala og gengdi \u00fev\u00ed \u00ed 3 \u00e1r. Hann var fyrsti og eini hei\u00f0ursf\u00e9laginn \u00ed 30 \u00e1ra s\u00f6gu f\u00e9lagsins og segir \u00fea\u00f0 margt um \u00feennan g\u00f3\u00f0a dreng. Hann settist \u00ed helgan stein eins og sagt er me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 sinna konu sinni, b\u00f6rnum og barnab\u00f6rnum enn betur en \u00e1\u00f0ur, ditta a\u00f0 sumarh\u00fasinu og spila golf sem er, ef \u00fei\u00f0 viti\u00f0 \u00fea\u00f0 ekki, kristilegasta \u00ed\u00fer\u00f3tt sem til er \u00fev\u00ed engin \u00f6nnur \u00ed\u00fer\u00f3tt er me\u00f0 s\u00e9rstakt og \u00fatreikna\u00f0 kerfi til a\u00f0 fyrirgefa syndir e\u00f0a klaufaskap. \u00dea\u00f0 er kalla\u00f0 forgj\u00f6f en \u00e6tti au\u00f0vita\u00f0 a\u00f0 heita fyrirgefning. G\u00f3\u00f0vild Magn\u00fasar og hj\u00e1lpsemi lauk aldrei. Hann starfa\u00f0i \u00ed heims\u00f3knarvinnu hj\u00e1 Rau\u00f0a krossinum eftir a\u00f0 hann h\u00e6tti a\u00f0 vinna og svo s\u00f3tti hann p\u00edan\u00f3t\u00edma.<\/p>\n<p>J\u00e1, hann Maggi var alltaf sprelllifandi af \u00e1huga \u00e1 s\u00ednum vi\u00f0fangsefnum. Kristinn br\u00f3\u00f0ir d\u00e1ist enn a\u00f0 \u00fev\u00ed hva\u00f0 Maggi gat leiki\u00f0 s\u00e9r me\u00f0 honum og yngri str\u00e1kum. Hann vakti st\u00f3ra br\u00f3\u00f0ur oft a\u00f0 morgni til a\u00f0 taka eina br\u00f6nd\u00f3tta. Maggi reis upp vi\u00f0 dogg og sag\u00f0i: Stilli\u00f0 upp! Og svo var sk\u00e1kin tefld til enda.<\/p>\n<p>Hann var alla t\u00ed\u00f0 sn\u00f6ggur til, flj\u00f3thuga og opinn. \u00deegar \u00feau hj\u00f3nin voru eitt sinn st\u00f6dd \u00ed Budapest s\u00e1u \u00feau Clinton forseta \u00e1 gangi me\u00f0 l\u00edfv\u00f6r\u00f0um. Magn\u00fas kalla\u00f0i kump\u00e1nlega yfir g\u00f6tuna: \u201eHey, Bill, \u00e6tlar \u00fe\u00fa ekki a\u00f0 koma aftur til \u00cdslands?\u201c Og Bill t\u00f3k striki\u00f0 yfir g\u00f6tuna til a\u00f0 spjalla vi\u00f0 \u00feennan hressa \u00cdslending. \u00deegar hann bar\u00f0ist vi\u00f0 veikindin s\u00ed\u00f0ari \u00e1rin br\u00e1st \u00fea\u00f0 ekki ef vinir hringdu a\u00f0 hann var alltaf fyrr til a\u00f0 sag\u00f0i: \u201eS\u00e6ll. Hvernig hefur\u00f0u \u00fea\u00f0?\u201c \u00de\u00f3tt hann v\u00e6ri or\u00f0inn lasbur\u00f0a \u00fe\u00e1 var\u00f0 a\u00f0 halda aftur af honum \u00feegar hann vildi upp \u00e1 \u00feak sumarh\u00fassins til a\u00f0 m\u00e1la me\u00f0 sonunun. Alltaf var hann til \u00ed tuski\u00f0. Hugurinn var oftar en ekki \u00e1 undan eins og \u00feegar \u00feau voru eitt sinn a\u00f0 fl\u00fdta s\u00e9r \u00e1 sk\u00ed\u00f0i og Magn\u00fas vildi n\u00e1 fyrstur upp \u00ed brekkurnar. Hann var b\u00fainn a\u00f0 hla\u00f0a \u00f6llu \u00e1 toppgrind b\u00edlsins sem var inni \u00ed b\u00edlsk\u00far og svo var eki\u00f0 af sta\u00f0 en farangurinn var\u00f0 eftir \u00fev\u00ed hur\u00f0aropi\u00f0 var allt of l\u00e1gt! Svo rifju\u00f0u str\u00e1karnir \u00fea\u00f0 upp \u00feegar \u00feau voru \u00ed Danm\u00f6rku og Magn\u00fas keyr\u00f0i greitt til a\u00f0 n\u00e1 far\u00feegferjunni og l\u00e1 svo miki\u00f0 \u00e1 a\u00f0 hann henti str\u00e1kunum yfir bor\u00f0stokkinn. Landfestar voru \u00f3bundnar og \u00fev\u00ed eins gott a\u00f0 fl\u00fdta s\u00e9r. Allt var rifi\u00f0 \u00fat \u00far b\u00edlnum og \u00fev\u00ed hent \u00e1 dekki\u00f0 og svo hoppu\u00f0u \u00feau hj\u00f3nin um bor\u00f0 seinust. \u00de\u00e1 sag\u00f0i skipperinn: \u201eVi\u00f0 m\u00e6ttum kannski f\u00e1 a\u00f0 leggjast a\u00f0 bryggju.\u201c Ferjan var sem sagt a\u00f0 koma en ekki fara!<\/p>\n<p>Maggi og R\u00fana ger\u00f0u margt skemmtilegt me\u00f0 b\u00f6rnum s\u00ednum og barnab\u00f6rnum. Svo fer\u00f0u\u00f0ust \u00feau v\u00ed\u00f0a hin s\u00ed\u00f0ari \u00e1r, f\u00f3ru \u00e1 framandi sl\u00f3\u00f0ir, til T\u00e6lands og um Karab\u00edska hafi\u00f0 og f\u00f3ru einar fj\u00f3rar fer\u00f0ir utan eftir a\u00f0 hann veiktist. \u00deau \u00e1ttu Hrei\u00f0ri\u00f0 h\u00e9r heima \u00ed Biskupsstungum og hlut \u00ed h\u00fasi \u00ed Torre Vieja \u00e1 Sp\u00e1ni. \u00deau \u00e1ttu g\u00f3\u00f0a \u00e6vi saman, vi\u00f0bur\u00f0arr\u00edka og skemmtilega. Heimili \u00feeirra ber vott um smekkv\u00edsi og f\u00e1gun. \u00dear er hver hlutur \u00e1 s\u00ednum sta\u00f0 og heildin falleg. Hrei\u00f0ri\u00f0 \u00ed Biskupstungum var \u00feeim k\u00e6rt og \u00fear \u00feykir fj\u00f6lkyldunni gott a\u00f0 vera. En heimili \u00feeirra var l\u00edka fallegt hrei\u00f0ur hvar sem \u00fea\u00f0 var sta\u00f0sett \u00e1 hverjum t\u00edma.<\/p>\n<p>\u00deau bjuggu fyrst \u00ed K\u00f3pavogi og svo \u00ed Hafnarfir\u00f0i, \u00fe\u00e1 \u00ed Fossvogi. \u00de\u00e1 bygg\u00f0u \u00feau s\u00e9r h\u00fas vi\u00f0 Brei\u00f0vang \u00ed Hafnarfir\u00f0i og bjuggu \u00fear lengst af uns \u00feau fluttu a\u00f0 Sk\u00falag\u00f6tu 10 \u00e1ri\u00f0 1997. Og n\u00fa flyst hann enn \u00e1 n\u00fd og mun gista \u00ed Gar\u00f0ab\u00e6 \u00fea\u00f0 sem eftir er. Hann ver\u00f0ur jar\u00f0settur \u00ed G\u00f6r\u00f0um \u00fea\u00f0an sem s\u00e9st yfir Hafnarfj\u00f6r\u00f0 og til Keilis og fjallgar\u00f0sins \u00e1 Reykjanesi. \u00dear \u00e1 hann n\u00fdtt hrei\u00f0ur sem Gu\u00f0 g\u00e6tir, verndar og blessar.<\/p>\n<p>Magn\u00fas \u00e1tti g\u00f3\u00f0a \u00e6vi og hann er kvaddur h\u00e9r \u00ed dag af \u00feakkl\u00e1tu samfer\u00f0af\u00f3lki.<\/p>\n<p>\u00deessi stuttor\u00f0a en kjarnyrta minningargrein tengdad\u00f3ttur Magn\u00fasar segir kannski allt sem segja \u00fearf:<\/p>\n<p>\u201eGla\u00f0lyndur, grallari, lj\u00fafmenni, t\u00f6ffari. Rausnarlegur, r\u00f6skur og framkv\u00e6mdagla\u00f0ur.<br \/>\nAlls ekki sm\u00e1munasamur. Hei\u00f0arlegur, hrifn\u00e6mur, hl\u00fdr og hj\u00e1lpsamur. Stemmningsma\u00f0ur. Matelskur, t\u00f3nelskur, skarpur og b\u00f3khneig\u00f0ur. Virkur, skemmtilegur, sjarmerandi, eftirs\u00f3ttur, yndislegur og umfram allt, \u00e6\u00f0rulaus.\u201c<\/p>\n<p>(Berglind Helga Sigur\u00fe\u00f3rsd\u00f3ttir \u00ed Mbl \u00ed dag).<\/p>\n<p>Gott er a\u00f0 vera \u00e6\u00f0rulaus e\u00f0a \u00f3ttalaus.<\/p>\n<p>Magn\u00fas \u00e1tti tr\u00fa \u00e1 hi\u00f0 st\u00f3ra samhengi tilverunnar, tr\u00fa\u00f0i \u00e1 fleira en alla jafnan s\u00e9st. Hann var g\u00f3\u00f0ur vinur barna sinna og barnabarna, l\u00e9k vi\u00f0 \u00feau, sag\u00f0i \u00feeim s\u00f6gur og gr\u00edna\u00f0ist \u00f3spart vi\u00f0 \u00feau. Hann var alla t\u00ed\u00f0 hvetjandi \u00ed uppeldi gagnvart sonum s\u00ednum, hei\u00f0arlegur ma\u00f0ur me\u00f0 r\u00edka r\u00e9ttl\u00e6tiskennd, l\u00edfsgla\u00f0ur og skemmtilegur. Eitt sinn var hann \u00ed str\u00e6t\u00f3 \u00ed Sv\u00ed\u00fej\u00f3\u00f0 og fannst h\u00e1lf dauflegt yfir f\u00f3lkinu \u00ed vagninum. \u00de\u00e1 h\u00f3f hann a\u00f0 syngja um Flickorna \u00ed Sm\u00e5land \u00fear til allir voru farnir a\u00f0 syngja me\u00f0. Hann var m\u00fas\u00edkalskur, l\u00e9k \u00e1 klarinett og \u00feekkti m\u00f6rg klass\u00edsk verk og haf\u00f0i yndi af t\u00f3nlist og ekki s\u00edst jazzt\u00f3nlist og l\u00e9k \u00e1 p\u00edan\u00f3 hin s\u00ed\u00f0ar \u00e1rin s\u00e9r og s\u00ednum til gle\u00f0i.<\/p>\n<p>F\u00f6gur t\u00f3nlist hlj\u00f3mar yfir honum \u00ed Hallgr\u00edmskirkju \u00ed dag. Hann ver kvaddur me\u00f0 vir\u00f0ingu og \u00fe\u00f6kk.<\/p>\n<p>\u00c6vin er stutt. Hver dagur er d\u00fdrm\u00e6t gj\u00f6f. Gr\u00edpum daginn og nj\u00f3tum hans.<\/p>\n<p>Blessu\u00f0 s\u00e9 minning Magn\u00faar Einarssonar og Gu\u00f0 blessi \u00feig.<\/p>\n<p>Amen.<\/p>\n<p>\u00c9g flyt ykkur s\u00e9rstakar kve\u00f0jur:<\/p>\n<p>fr\u00e1 S\u00edmoni og \u00deur\u00ed\u00f0i, tengdaforeldrum\u00a0 Einars, sem eru \u00e1 Sp\u00e1ni og senda s\u00ednar bestu kve\u00f0jur til \u00e1stvina og \u00feakka Magn\u00fasi fyrir allt;<\/p>\n<p>fr\u00e1 Birni, Sigr\u00ed\u00f0i og fj\u00f6lskyldu \u00ed Sv\u00ed\u00fej\u00f3\u00f0 sem minnast Magn\u00fasar me\u00f0 hl\u00fdju og \u00fe\u00f6kk.<\/p>\n<p>Jar\u00f0sett ver\u00f0ur \u00ed G\u00f6r\u00f0um.<\/p>\n<p>Erfi \u00e1 Grand Hotel.<\/p>\n<p>Minningaror\u00f0in birt.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00d6rn B\u00e1r\u00f0ur J\u00f3nsson Minningaror\u00f0 Magn\u00fas \u00deorgeir Einarsson fasteignasali 1936-2013 Sk\u00falag\u00f6tu 10, Reykjav\u00edk \u00datf\u00f6r fr\u00e1 Hallgr\u00edmskirkju f\u00f6studaginn 20. september kl. 13 Jar\u00f0sett \u00ed G\u00f6r\u00f0um R\u00e6\u00f0una er h\u00e6gt a\u00f0 lesa h\u00e9r fyrir ne\u00f0an og einnig hlusta \u00e1 hana.<\/p>\n","protected":false},"author":2,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_jetpack_newsletter_access":"","_jetpack_dont_email_post_to_subs":false,"_jetpack_newsletter_tier_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paywalled_content":false,"_jetpack_hide_featured_image":false,"_jetpack_featured_image_duplicate_dismissed":0,"_jetpack_feature_clip_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":"","jetpack_post_was_ever_published":false},"categories":[4],"tags":[],"class_list":["post-742","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-greinar-og-hugvekjur-articles"],"jetpack_sharing_enabled":true,"jetpack_featured_media_url":"","_links":{"self":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/742","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/users\/2"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcomments&post=742"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/742\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fmedia&parent=742"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcategories&post=742"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Ftags&post=742"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}