{"id":7188,"date":"2026-01-09T15:37:52","date_gmt":"2026-01-09T15:37:52","guid":{"rendered":"http:\/\/ornbardur.com\/2026\/01\/09\/steinar-antonsson-1936-2025\/"},"modified":"2026-01-09T15:37:52","modified_gmt":"2026-01-09T15:37:52","slug":"steinar-antonsson-1936-2025","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/ornbardur.com\/?p=7188","title":{"rendered":"+Steinar Antonsson 1936-2025"},"content":{"rendered":"\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00d6rn B\u00e1r\u00f0ur J\u00f3nsson<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Minningaror\u00f0<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00datf\u00f6r fr\u00e1 Neskirkju<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">f\u00f6studaginn<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">9. jan\u00faar 2026 kl. 13<\/p>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-image size-large\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"2000\" height=\"1431\" src=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2026\/01\/img_0661.jpg?w=1024\" alt=\"\" class=\"wp-image-7186\" \/><\/figure>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-image size-large\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"2000\" height=\"1433\" src=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2026\/01\/img_0662.jpg?w=1024\" alt=\"\" class=\"wp-image-7187\" \/><\/figure>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hlj\u00f3\u00f0upptaka er h\u00e9r og me\u00f0 \u00f6gn af innskotum sem ekki eru \u00ed ritu\u00f0um texta.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Smelltu \u00e1 nafni\u00f0 efst til a\u00f0 sj\u00e1 alla r\u00e6\u00f0una.<\/p>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-audio\"><audio controls src=\"https:\/\/pub-c849b6aaf98340c4bec7b480b0f7ffe9.r2.dev\/2026\/01\/steinar-antonsson-1936-2025.m4a\"><\/audio><\/figure>\n\n\n\n<!--more-->\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Fri\u00f0ur Gu\u00f0s s\u00e9 me\u00f0 oss.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Vi\u00f0 \u00e1ram\u00f3t l\u00edtum vi\u00f0 gjarnan um \u00f6xl og rifjum upp atvik li\u00f0ins t\u00edma. Og n\u00fa \u00feegar \u00e9g stend h\u00e9r og tala yfir Steinari Antonssyni, sem t\u00f3k \u00fe\u00e1tt \u00ed flestum messum sem \u00e9g s\u00f6ng h\u00e9r \u00ed Neskirkju \u00e1 15 \u00e1ra t\u00edmabili, og messum allra presta h\u00e9r fr\u00e1 upphafi, \u00fe\u00e1 fyllist ma\u00f0ur au\u00f0m\u00fdkt og vissum trega yfir hinu li\u00f0na og \u00f6llu \u00fev\u00ed g\u00f3\u00f0a f\u00f3lki sem ma\u00f0ur hefur kynnst \u00ed starfinu. A\u00f0 gera upp l\u00edf f\u00f3lks me\u00f0 minningaror\u00f0um vi\u00f0 \u00fatfarir um \u00e1rabil er \u00ed senn menntandi og minnir mann \u00e1 a\u00f0 \u00f6ll erum vi\u00f0 dau\u00f0leg og ver\u00f0um \u00ed fyllingu t\u00edmans a\u00f0 kve\u00f0ja \u00feetta l\u00edf. Tilfinning m\u00edn eftir \u00f6ll \u00feessi minningaror\u00f0 sem skipta hundru\u00f0um er s\u00fa a\u00f0 s\u00e9rhver \u00e6vi er d\u00fdrm\u00e6t og afar merkileg. Vi\u00f0 r\u00e9\u00f0um \u00fev\u00ed ekki sj\u00e1lf a\u00f0 vi\u00f0 ur\u00f0um til. Foreldrar okkar komu okkur \u00e1 legg og vi\u00f0 t\u00f3k \u00e1byrg\u00f0in \u00e1 l\u00edfinu, a\u00f0 lifa \u00fev\u00ed \u00e1 merkingarb\u00e6ran h\u00e1tt. Ekkert okkar hefur lifa\u00f0 l\u00edfinu \u00e1 fullkominn h\u00e1tt v.\u00fe.a. vi\u00f0 erum \u00f6ll breyskar manneskjur, en vi\u00f0 f\u00e1um a\u00f0 heyra \u00fea\u00f0 \u00e1 vettvangi kirkjunnar a\u00f0 vi\u00f0 s\u00e9um \u00e6t\u00ed\u00f0 elsku\u00f0. Enginn greinarmunur er ger\u00f0ur \u00e1 mannf\u00f3lkinu hva\u00f0 \u00fea\u00f0 var\u00f0ar.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Dau\u00f0inn er fyrirbrig\u00f0i sem enginn kemst hj\u00e1 a\u00f0 m\u00e6ta og \u00fev\u00ed er l\u00edfi\u00f0 a\u00f0 hluta til f\u00f3lgi\u00f0 \u00ed \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00edhuga tilveruna, l\u00edfi\u00f0 og dau\u00f0ann.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Benedikt XVI p\u00e1fi rita\u00f0i dj\u00fapa huglei\u00f0ingu um dau\u00f0ann \u00ed febr\u00faar 2022 en hann l\u00e9st \u00e1 gaml\u00e1rsdag sama \u00e1r 95 \u00e1ra a\u00f0 aldri.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hann sag\u00f0i:<\/p>\n\n\n\n<blockquote class=\"wp-block-quote is-layout-flow wp-block-quote-is-layout-flow\">\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Br\u00e1tt mun \u00e9g standa frammi fyrir hinsta d\u00f3mara l\u00edfs m\u00edns. \u00de\u00f3tt \u00e9g geti haft mikla \u00e1st\u00e6\u00f0u til a\u00f0 \u00f3ttast og skj\u00e1lfa \u00feegar \u00e9g l\u00edt til baka \u00e1 langa \u00e6vi m\u00edna, \u00fe\u00e1 er \u00e9g samt sem \u00e1\u00f0ur me\u00f0 h\u00fdrri h\u00e1, \u00fev\u00ed \u00e9g treysti \u00fev\u00ed sta\u00f0fastlega a\u00f0 Drottinn s\u00e9 ekki a\u00f0eins r\u00e9ttl\u00e1tur d\u00f3marinn, heldur einnig vinur og br\u00f3\u00f0ir sem sj\u00e1lfur hefur \u00feegar \u00fej\u00e1\u00f0st fyrir galla m\u00edna og er \u00fev\u00ed einnig talsma\u00f0ur minn, \u201ehj\u00e1lpari\u201c minn [Paraclete\/hj\u00e1lpari nota\u00f0 um heilagan anda \u00ed NT]. \u00cd lj\u00f3si d\u00f3msstundarinnar ver\u00f0ur n\u00e1\u00f0in sem felst \u00ed \u00fev\u00ed a\u00f0 vera kristinn m\u00e9r enn lj\u00f3sari. H\u00fan veitir m\u00e9r \u00feekkingu, og jafnvel vin\u00e1ttu, vi\u00f0 d\u00f3mara l\u00edfs m\u00edns og gerir m\u00e9r \u00feannig kleift a\u00f0 ganga af \u00f6ryggi gegnum myrkar dyr dau\u00f0ans. \u00cd \u00feessu sambandi er \u00e9g st\u00f6\u00f0ugt minntur \u00e1 \u00fea\u00f0 sem J\u00f3hannes segir okkur \u00ed upphafi Opinberunarb\u00f3kar J\u00f3hannesar: hann s\u00e9r Mannssoninn \u00ed allri sinni d\u00fdr\u00f0 og fellur fram a\u00f0 f\u00f3tum hans sem dau\u00f0ur v\u00e6ri. Samt leggur hann h\u00e6gri h\u00f6nd s\u00edna yfir J\u00f3hannes og segir vi\u00f0 hann: \u201eVertu ekki hr\u00e6ddur, \u00e9g er hinn fyrsti og hinn s\u00ed\u00f0asti &#8230;&#8221; (Opinberunarb\u00f3k J\u00f3hannesar 1:12-17).<\/p>\n<\/blockquote>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00cd \u00feessum texta vitna\u00f0i \u00e6\u00f0sti ma\u00f0ur Ka\u00fe\u00f3lsku kirkjunnar, sj\u00e1lfur p\u00e1finn \u00ed R\u00f3m, um breyskleika sinn andsp\u00e6nis n\u00e1\u00f0 Gu\u00f0s og k\u00e6rleika. Hr\u00edfandi texti sem kn\u00fdr okkur til a\u00f0 hugsa um vegfer\u00f0 okkar og \u00feau endalok sem b\u00ed\u00f0a okkar &#8211; e\u00f0a \u00f6llu heldur n\u00fdja v\u00eddd sem opnast mun vi\u00f0 dau\u00f0ans dyr. Hann var viss um a\u00f0 m\u00e6ta Kristi.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Steinar Antonsson f\u00e6ddist 10. j\u00fan\u00ed 1936 \u00ed Reykjav\u00edk. Hann l\u00e9st \u00e1 Landakotssp\u00edtala, 15. desember. Foreldrar Steinars voru hj\u00f3nin Hulda Gy\u00f0a \u00de\u00f3r\u00f0ard\u00f3ttir, h\u00fasfreyja og hj\u00fakrunarkona f. 28. september 1906, d. 11. 8. 1990 og Anton Sigur\u00f0sson, byggingameistari, f. 17. 11. 1900, d. 21. j\u00fal\u00ed 1991. Br\u00e6\u00f0ur Steinars eru Haraldur, f. 02. 7. 1934, d. 3. 10. 2025, Sigur\u00f0ur, f. 13. 4. 1939 og Ing\u00f3lfur, 24.10.1942. Steinar var \u00f3kv\u00e6ntur og barnlaus.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Steinar \u00f3lst upp \u00ed foreldrah\u00fasum \u00ed Reykjav\u00edk. Lauk st\u00fadentspr\u00f3fi fr\u00e1 Menntask\u00f3lanum \u00ed Reykjav\u00edk. Br\u00e6\u00f0ur hans og \u00e1stvinir rifju\u00f0u upp bernskuna \u00ed texta sem \u00e9g f\u00e9kk \u00ed hendur.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hulda m\u00f3\u00f0ir \u00feeirra br\u00e6\u00f0ra greindist me\u00f0 berkla 1944 og var l\u00f6g\u00f0 inn \u00e1 V\u00edfilsta\u00f0asp\u00edtala \u00ed kj\u00f6lfari\u00f0. \u00de\u00e1 st\u00f3\u00f0 Anton einn me\u00f0 fj\u00f3ra str\u00e1ka \u00e1 aldrium 2ja, 5, 8, 10 \u00e1ra. &nbsp;Hann ger\u00f0i allt til a\u00f0 halda heimili, f\u00e9kk r\u00e1\u00f0skonu til a\u00f0 sj\u00e1 um h\u00fashald og seinna kom systir Huldu til a\u00f0sto\u00f0ar.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Steinar dvaldi einn vetur \u00e1 heimavist \u00ed Laugarnessk\u00f3la og sumari\u00f0 eftir dv\u00f6ldu Halli og Steini a\u00f0 Laugum \u00ed S\u00e6lingsdal. Halli og Steinar voru byrja\u00f0ir \u00ed sk\u00f3la og h\u00f6f\u00f0u noti\u00f0 \u00feess a\u00f0 f\u00f6\u00f0uramma \u00feeirra bj\u00f3 \u00ed n\u00e1grenninu og haf\u00f0i kennt \u00feeim a\u00f0 lesa og skrifa. Eftir a\u00f0 barnask\u00f3la lauk f\u00f3r Steinar \u00ed Gagnfr\u00e6\u00f0ask\u00f3la Vesturb\u00e6jar vi\u00f0 Hringbraut, landspr\u00f3fsbekk, Menntask\u00f3lann \u00ed Reykjav\u00edk. L\u00e6r\u00f0i h\u00fasasm\u00ed\u00f0i hj\u00e1 f\u00f6\u00f0ur s\u00ednum.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c1ri\u00f0 1960 f\u00f3r hann \u00ed verkfr\u00e6\u00f0in\u00e1m til \u00de\u00fdskalands en f\u00f3r eftir eins \u00e1rs dv\u00f6l \u00fear \u00ed t\u00e6knifr\u00e6\u00f0in\u00e1m vi\u00f0 K\u00f6benhavns Teknikum og \u00fatskrifa\u00f0ist \u00fea\u00f0an 1965.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Eftir heimkomuna starfa\u00f0i hann hj\u00e1 Verkfr\u00e6\u00f0istofu Sigur\u00f0ar Thoroddsen, m.a. sinnti hann \u00fdmsum st\u00f6rfum (vatnsveitu, holr\u00e6si, teikna\u00f0i upp g\u00f6mul h\u00fas o.fl.) fyrir Sey\u00f0isfjar\u00f0arb\u00e6. Eftir veru s\u00edna fyrir austan r\u00e9\u00f0i hann sig hj\u00e1 Vatnsveitu Reykjav\u00edkur og fylgdist m.a. me\u00f0 rennsli kalda vatnsins til h\u00f6fu\u00f0borgarb\u00faa \u00ed m\u00f6rg \u00e1r af mikilli samviskusemi e\u00f0a \u00fear til starfsferlinum lauk.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Steinar \u00e1tti n\u00e6r alla s\u00edna t\u00ed\u00f0 Willisjeppa sem var annar vinnusta\u00f0ur hans, fullur af m\u00e6lit\u00e6kjum sem tilheyr\u00f0i starfi hans.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Eftir dv\u00f6lina \u00ed S\u00e6lingsdal var\u00f0 a\u00f0 finna dvalarsta\u00f0 fyrir str\u00e1kana n\u00e6sta sumar, Anton var svo heppinn a\u00f0 komast \u00ed samband vi\u00f0 \u00e1b\u00faendur \u00e1 Rau\u00f0abergi og Seljalandi \u00ed Vestur Skaftafellss\u00fdslu.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Steinar vann vi\u00f0 sveitast\u00f6rf \u00e1tta sumur hj\u00e1 \u00feessu f\u00f3lki og var \u00ed g\u00f3\u00f0u sambandi vi\u00f0 \u00fea\u00f0 alla t\u00ed\u00f0. &nbsp;<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Yngri br\u00e6\u00f0urnir minntust fr\u00e1sagnar hans af veru hans og Halla og af fer\u00f0alagi \u00ed sveitina og dvalar sem var me\u00f0 miklum \u00e6vint\u00fdrabl\u00e6. \u00deeir f\u00f3ru me\u00f0 r\u00fatu a\u00f0 \u00f3br\u00fau\u00f0u j\u00f6kulflj\u00f3tunum sem ekki voru f\u00e6r b\u00edlum. \u00dear t\u00f3ku b\u00e6ndurnir \u00e1 m\u00f3ti \u00feeim komandi \u00e1 hestum og undirbjuggu fer\u00f0 yfir beljandi j\u00f6kul\u00e1rnar, Dj\u00fap\u00e1 og Hverfisflj\u00f3t. Svo voru \u00fea\u00f0 fer\u00f0irnar me\u00f0 Helga inn a\u00f0 j\u00f6kulspor\u00f0unum og yfir \u00ed N\u00fapsta\u00f0arsk\u00f3g. &nbsp;<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Steinar var \u00e6ttr\u00e6kinn og heims\u00f3tti oft \u00e6ttmenni s\u00edn \u00e1 Sn\u00e6fellsnesi, dvaldi oft langdv\u00f6lum og hlusta\u00f0i \u00e1 fr\u00e1sagnir af f\u00f3lkinu s\u00ednu, sem fj\u00f6lskyldan hans naut svo g\u00f3\u00f0s af.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Steinar \u00e1tti g\u00f3\u00f0a f\u00e9laga fr\u00e1 menntask\u00f3la\u00e1runum og nefni \u00e9g s\u00e9rstaklega Bjarna heitinn Felixson og Sveinbj\u00f6rn Bj\u00f6rnsson fv. rektor H\u00cd.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Steinar haf\u00f0i mikinn \u00e1huga \u00e1 allskyns f\u00e9lags- og fr\u00e6\u00f0astarfsemi, hann var mikill n\u00e1tt\u00faruunnandi og fer\u00f0a\u00f0ist miki\u00f0 um landi\u00f0 sitt \u00cdsland. Steinar var mj\u00f6g \u00e6ttr\u00e6kinn og einstaklega barng\u00f3\u00f0ur.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hann gaf \u00fea\u00f0 til kynna s\u00ed\u00f0ar \u00e1 \u00e6vinni a\u00f0 hann hef\u00f0i \u00ed raun vilja\u00f0 ver\u00f0a l\u00e6knir.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Steinar var g\u00f3\u00f0um g\u00e1fum g\u00e6ddur. Hann var minnugur og gat flutt s\u00ednu f\u00f3lki fr\u00e9ttir daganna. \u00dea\u00f0 kom m.a. fram er \u00e9g hitti br\u00e6\u00f0ur hans og \u00e6ttf\u00f3lk til a\u00f0 undirb\u00faa \u00feessa ath\u00f6fn a\u00f0 hann sag\u00f0i oft fr\u00e1 kirkjufer\u00f0um s\u00ednum, tilt\u00f3lk gu\u00f0spjalli\u00f0 sem l\u00e1 til grundvallar r\u00e6\u00f0u prestsins og rakti pr\u00e9dikunina \u00ed st\u00f3rum dr\u00e1ttum og ger\u00f0i grein fyrir upplifun sinni af helgihaldi kirkjunnar.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c9g hitti hann oft fyrir og eftir messur og vi\u00f0 spj\u00f6llu\u00f0um um eitt og anna\u00f0, en hann var \u00fe\u00f3 aldrei or\u00f0margur \u00ed \u00feeim samt\u00f6lum, en \u00e6t\u00ed\u00f0 fylgdist hann grannt me\u00f0 \u00f6llu og haf\u00f0i mikinn \u00e1huga \u00e1 m\u00f6nnum og m\u00e1lefnum. Hann m\u00e6tti \u00e1 flesta fyrirlestra sem \u00ed bo\u00f0i voru \u00ed Neskirkju, n\u00e1mskei\u00f0 og a\u00f0ra vi\u00f0bur\u00f0i, sumarfer\u00f0ir og fleira. Steinar s\u00f3tti messu hj\u00e1 \u00f6llum prestum Neskirkju fr\u00e1 upphafi til okkar dags.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Prestar safna\u00f0arins og starfsf\u00f3lk \u00feakka Steinari fyrir tr\u00fafesti hans vi\u00f0 kirkjuna og g\u00f3\u00f0 samskipti \u00ed gegnum \u00e1rin og bi\u00f0ja fyrir sam\u00fa\u00f0ar\u00f3skir til \u00e1stvina hans.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Steinar var um margt s\u00e9rstakur ma\u00f0ur. Hann \u00e1tti g\u00f3\u00f0an feril sem n\u00e1msma\u00f0ur en eitthva\u00f0 \u00e1tti s\u00e9r sta\u00f0 \u00ed efsta bekk MR sem breytti forsendum a\u00f0 nokkru hva\u00f0 var\u00f0a\u00f0i framt\u00ed\u00f0ina. Inn \u00ed \u00fea\u00f0 kann a\u00f0 hafa spila\u00f0 a\u00f0 sama vetur missti hann n\u00e1inn sk\u00f3laf\u00e9laga sinn er var\u00f0skipi\u00f0 Herm\u00f3\u00f0ur f\u00f3rst me\u00f0 allri \u00e1h\u00f6fn.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c9g sag\u00f0i fyrr \u00ed r\u00e6\u00f0unni a\u00f0 vi\u00f0 hefum ekki r\u00e1\u00f0i\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 vi\u00f0 ur\u00f0um til og fengum l\u00edfi\u00f0 a\u00f0 gj\u00f6f og verkefni. En hins vegar \u00feegar bernsku og unglings\u00e1rum sleppir \u00fe\u00e1 h\u00f6fum vi\u00f0 au\u00f0vita\u00f0 \u00f6ll \u00e1kve\u00f0inn vilja og m\u00e1tt til a\u00f0 taka \u00e1kvar\u00f0anir fyrir okkur sj\u00e1lf og a\u00f0ra.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hann bj\u00f3 alla s\u00edna \u00e6vi \u00ed sama h\u00fasinu a\u00f0 Fornhaga 26.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Og n\u00fa b\u00ed\u00f0ur hans h\u00fas \u00e1 himnum e\u00f0a eins og P\u00e1ll postuli segir \u00ed S\u00ed\u00f0ara br\u00e9fi s\u00ednu til Korintumanna 5.1-2:<\/p>\n\n\n\n<blockquote class=\"wp-block-quote is-layout-flow wp-block-quote-is-layout-flow\">\n<p class=\"wp-block-paragraph\">1 Vi\u00f0 vitum a\u00f0 \u00fe\u00f3tt jar\u00f0nesk tjaldb\u00fa\u00f0 okkar ver\u00f0i rifin ni\u00f0ur \u00fe\u00e1 h\u00f6fum vi\u00f0 h\u00fas fr\u00e1 Gu\u00f0i, eil\u00edft h\u00fas \u00e1 himnum sem eigi er me\u00f0 h\u00f6ndum gert. 2 \u00c1 me\u00f0an andv\u00f6rpum vi\u00f0 og \u00fer\u00e1um a\u00f0 \u00edkl\u00e6\u00f0ast h\u00fasi okkar fr\u00e1 himnum.<\/p>\n<\/blockquote>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Von okkar \u00ed Kristi er f\u00f6gur og h\u00fan veitir \u00e6\u00f0ruleysi og gefur styrk \u00e1 l\u00edfsg\u00f6ngunni, hvort sem um er a\u00f0 r\u00e6\u00f0a t\u00e6knifr\u00e6\u00f0ing, p\u00e1fa e\u00f0a prest. Vonin er ein og s\u00f6m, vonin um eil\u00edft l\u00edf, n\u00e1\u00f0 og miskunn. K\u00e6rleikurinn sem vi\u00f0 h\u00f6fum kynnst \u00e1 l\u00edfslei\u00f0inni er a\u00f0eins forsmekkur \u00feess sem koma skal.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Gott er a\u00f0 lifa \u00ed tr\u00fa, von og k\u00e6rleika og \u00ed vissu um a\u00f0 l\u00edfi\u00f0 s\u00e9 ekki tilgangslaust og kalt, heldur merkingarb\u00e6rt og mun st\u00e6rra en vi\u00f0 getum \u00ed raun \u00edmynda\u00f0 okkur.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Vi\u00f0 kve\u00f0jum Steinar Antonsson me\u00f0 vir\u00f0ingu og \u00fe\u00f6kk fyrir umhyggjusemi hans og vin\u00e1ttu, tr\u00famennsku og trygg\u00f0 vi\u00f0 helg gildi.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Megi hann hv\u00edla \u00ed fri\u00f0i og f\u00f3lki\u00f0 hans nj\u00f3ta blessunar og gle\u00f0i til \u00e6viloka.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Blessu\u00f0 s\u00e9 minning Steinars Antonssonar.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Amen.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00d6rn B\u00e1r\u00f0ur J\u00f3nsson Minningaror\u00f0 \u00datf\u00f6r fr\u00e1 Neskirkju f\u00f6studaginn 9. jan\u00faar 2026 kl. 13 Hlj\u00f3\u00f0upptaka er h\u00e9r og me\u00f0 \u00f6gn af innskotum sem ekki eru \u00ed ritu\u00f0um texta. Smelltu \u00e1 nafni\u00f0 efst til a\u00f0 sj\u00e1 alla r\u00e6\u00f0una.<\/p>\n","protected":false},"author":2,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_jetpack_newsletter_access":"","_jetpack_dont_email_post_to_subs":false,"_jetpack_newsletter_tier_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paywalled_content":false,"_jetpack_hide_featured_image":false,"_jetpack_featured_image_duplicate_dismissed":0,"_jetpack_feature_clip_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":"","jetpack_post_was_ever_published":false},"categories":[7],"tags":[],"class_list":["post-7188","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-minningarord-eulogies"],"jetpack_sharing_enabled":true,"jetpack_featured_media_url":"","_links":{"self":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/7188","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/users\/2"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcomments&post=7188"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/7188\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fmedia&parent=7188"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcategories&post=7188"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Ftags&post=7188"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}