{"id":703,"date":"2013-08-16T09:13:25","date_gmt":"2013-08-16T09:13:25","guid":{"rendered":"http:\/\/ornbardur.com\/?p=703"},"modified":"2013-08-16T09:13:25","modified_gmt":"2013-08-16T09:13:25","slug":"arni-kristmundsson-1937-2013","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/ornbardur.com\/?p=703","title":{"rendered":"\u00c1rni Kristmundsson 1937-2013"},"content":{"rendered":"<p><a href=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2013\/08\/arnikristmundsson.png\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" class=\"alignleft size-full wp-image-704\" alt=\"arnikristmundsson\" src=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2013\/08\/arnikristmundsson.png\" width=\"222\" height=\"300\" \/><\/a>Minningaror\u00f0<\/p>\n<p><strong>\u00c1rni Kristmundsson<\/strong><\/p>\n<p>b\u00edlam\u00e1lari<\/p>\n<p>1937-2013<\/p>\n<p>\u00datf\u00f6r fr\u00e1 K\u00f3pavogskirkju<\/p>\n<p>fimmdudaginn 15. \u00e1g\u00fast 2013 kl 15.<\/p>\n<p>R\u00e6\u00f0una er h\u00e6gt a\u00f0 lesa<\/p>\n<p>og hlusta \u00e1 h\u00e9r fyrir ne\u00f0an.<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p><!--more--><\/p>\n\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p><strong>N\u00e6rt\u00e6kasta<\/strong> samr\u00e6\u00f0uefni \u00cdslendinga er l\u00edklega ve\u00f0ri\u00f0. Ve\u00f0ri\u00f0 skiptir okkur \u00f6ll miklu m\u00e1li \u00fev\u00ed h\u00e9r eru ve\u00f0urbreytingar miklar og ve\u00f0ur oft v\u00e1lynd og sterk. \u00deess vegna sn\u00fdst l\u00edf okkar \u00f6\u00f0rum \u00fer\u00e6\u00f0i um a\u00f0 finna skj\u00f3l e\u00f0a mynda skj\u00f3l.<\/p>\n<p>Hvar er skj\u00f3l a\u00f0 finna \u00ed ve\u00f0rum l\u00edfsins? Og hvar er skj\u00f3l a\u00f0 finna \u00feegar ma\u00f0ur ver\u00f0ur \u00e1 endanum einn \u00fat \u00ed storminum sem hr\u00edfur mann \u00ed burt? Hvar er skj\u00f3l a\u00f0 finna?<\/p>\n<p>\u00deau bygg\u00f0u s\u00e9r h\u00fas vi\u00f0 Skj\u00f3lbraut og \u00fear bjuggu \u00feau lengst af me\u00f0 g\u00f3\u00f0um n\u00e1gr\u00f6nnum \u00ed barnm\u00f6rgu hverfi. B\u00f6rn leitu\u00f0u oft til \u00c1rna. Hann var barng\u00f3\u00f0ur og gaf sig a\u00f0 b\u00f6rnum, r\u00e6ddi vi\u00f0 \u00feau og t\u00f3k \u00feeim sem jafningjum. \u00deegar veri\u00f0 var a\u00f0 byggja h\u00fasi\u00f0 og \u00feau vildu vera \u00ed kringum smi\u00f0ina var au\u00f0veldast a\u00f0 f\u00e1 \u00feeim verkefni, l\u00e1na \u00feeim hamar e\u00f0a k\u00fabein og l\u00e1ta \u00feau finna kr\u00f6ftum s\u00ednum vi\u00f0n\u00e1m \u00ed g\u00f3\u00f0um verkum. \u00deau komu \u00e1 \u00f6llum aldri og alltaf haf\u00f0i \u00c1rni t\u00edma til a\u00f0 tala vi\u00f0 \u00feau. Hann var l\u00edka helsti vopnasmipur \u00feeirra. Hj\u00e1 \u00c1rna fengust sver\u00f0 og bogar, leikf\u00f6ng og d\u00f3t sem til ur\u00f0u \u00far efnivi\u00f0 sem hann \u00e1tti heima. Stundum s\u00e1st hann \u00fati vi\u00f0 trj\u00e1be\u00f0 og engu l\u00edkara en a\u00f0 hann v\u00e6ri a\u00f0 tala vi\u00f0 sj\u00e1lfan sig en svo kom \u00ed lj\u00f3s a\u00f0 handan runnans voru b\u00f6rn \u00e1 tali vi\u00f0 vin sinn.<\/p>\n<p>Svon var \u00c1rni.<\/p>\n<p>En hann var l\u00edka margt anna\u00f0.<\/p>\n<p>\u00c1rni Kristmundsson f\u00e6ddist \u00ed Reykjav\u00edk 11. n\u00f3vember 1937. Hann l\u00e9st 5. \u00e1g\u00fast 2013 \u00e1 Landsp\u00edtalanum \u00ed Fossvogi. Foreldrar hans voru Kristmundur \u00c1rnason, f. 1910, d.1990 og Gu\u00f0finna Magn\u00fasd\u00f3ttir, f.1902, d.1974. Br\u00f3\u00f0ir \u00c1rna var Sigur\u00f0ur Kristmundsson, f.1931, d. 2002 og uppeldisbr\u00f3\u00f0ir hans er Sveinn Valgeir J\u00f3nsson, f.1943.<\/p>\n<p>\u00c1rni kv\u00e6ntist Geirlaugu Egilsd\u00f3ttir 1961 verslunarmanni og h\u00fasfreyju, f.1936. Frumbur\u00f0ur \u00feeirra, drengur, f\u00e6ddist andvana. B\u00f6rnin sem lif\u00f0u eru:<\/p>\n<ol>\n<li>Kristmundur \u00c1rnason, f.1960, maki Karlotta P\u00e1lmad\u00f3ttir, f.1961. B\u00f6rn \u00feeirra: P\u00e1lmi Kristmundsson, f.1986, \u00c1rni Geir Kristmundsson, f.1989, samb\u00fdliskona J\u00f3hanna Sofia Karlsd\u00f3ttir, f.1987, Gu\u00f0r\u00fan Birna Kristmundsd\u00f3ttir, f.1993.<\/li>\n<li>Sigr\u00ed\u00f0ur Bj\u00f6rg \u00c1rnad\u00f3ttir, f. 1962, maki Gu\u00f0mundur \u00c1rni J\u00f3nsson, f.1958, d. 2005, d\u00f3ttir \u00feeirra Stefan\u00eda \u00d6sp Gu\u00f0mundsd\u00f3ttir, f.1988 samb\u00fdlisma\u00f0ur Einar Sigur\u00f0sson, f. 1981.<\/li>\n<li>Egill \u00d6rn \u00c1rnason, f. 1963. Sonur J\u00f6kull Egilsson, f. 1988. Samb\u00fdliskona Egils, Inga Margr\u00e9t Gu\u00f0mundsd\u00f3ttir, f. 1966. B\u00f6rn hennar Gu\u00f0mundur Bj\u00f6rn Sigurgeirsson, f.1988 og H\u00f3lmfr\u00ed\u00f0ur Eva Bj\u00f6rnsd\u00f3ttir, f. 1996.<\/li>\n<li>Gu\u00f0finnur M\u00e1r \u00c1rnason, f. 1964, maki Elsa Mar\u00eda Hallvar\u00f0sd\u00f3ttir, f. 1964. B\u00f6rn: Sandra Sif Gu\u00f0finnsd\u00f3ttir, f. 1986 maki Sigur\u00f0ur Ragnar Gu\u00f0laugsson, f. 1985, sonur \u00feeirra Arnar Sm\u00e1ri Sigur\u00f0sson, f. 2012. Sm\u00e1ri Gu\u00f0finnsson, f. 1988 maki \u00cdrunn Vi\u00f0arsd\u00f3ttir, f. 1988. Halla Krist\u00edn Gu\u00f0finnsd\u00f3ttir, f. 1989.<\/li>\n<\/ol>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>\u00c1rni f\u00e6ddist \u00ed Reykjav\u00edk og bj\u00f3 ungur \u00ed Skerjafir\u00f0inum en flutti svo \u00ed K\u00f3pavoginn me\u00f0 pabba og m\u00f6mmu sem voru me\u00f0al frumbyggja h\u00e9r \u00ed b\u00e6 um mi\u00f0ja s\u00ed\u00f0ustu \u00f6ld.<\/p>\n<p>\u00c1rni var mikill h\u00famoristi og skemmtilegur ma\u00f0ur a\u00f0 s\u00f6gn vi\u00f0m\u00e6lenda minna. Hann var listr\u00e6nn \u00ed s\u00e9r og alltaf a\u00f0 dunda eitthva\u00f0. Barnab\u00f6rnin nutu alla t\u00ed\u00f0 vin\u00e1ttu hans og eiga g\u00f3\u00f0ar minningar um afa. Verkefnin sem \u00feau unnu me\u00f0 honum voru gefandi og \u00feroskandi og hann haf\u00f0i einstakt lag \u00e1 a\u00f0 gera hversdagslega hluti skemmtilega.<\/p>\n<p>\u00c1rni og Geirlaug kynntust \u00ed Vetrargar\u00f0inum sem var vins\u00e6ll skemmtista\u00f0ur h\u00e9r \u00e1\u00f0ur fyrr en \u00c1rni haf\u00f0i alla t\u00ed\u00f0 gaman af a\u00f0 dansa og hlusta \u00e1 g\u00f3\u00f0a t\u00f3nlist.<\/p>\n<p>\u00deau l\u00f6g\u00f0u upp \u00ed fer\u00f0 saman og fundu l\u00edfi s\u00ednu skj\u00f3l h\u00e9r \u00ed K\u00f3pavogi, bygg\u00f0u h\u00fas me\u00f0 foreldrum hans og \u00fear uxu b\u00f6rnin \u00far grasi. Geirlaug e\u00f0a Gilla, sem er Siglfir\u00f0ingur, vann l\u00f6ngum sem verslunardama e\u00f0a vi\u00f0 framrei\u00f0slu en var au\u00f0vita\u00f0 \u00ed s\u00edld \u00e1 s\u00ednum yngri \u00e1rum eins og Siglfir\u00f0inga var si\u00f0ur.<\/p>\n<p>\u00c1rni vann ungur vi\u00f0 byggingu Mj\u00f3lk\u00e1rvirkjunar \u00ed Arnarfir\u00f0i. S\u00ed\u00f0ar vann hann hj\u00e1 Skeljungi og sigldi \u00e1 ol\u00eduskipinu Kyndli og svo \u00e1 millilandaskipum. Hann vann \u00ed Dan\u00edelsslippi sem verkstj\u00f3ri og vann einnig vi\u00f0 verkstj\u00f3rn vi\u00f0 byggingu blokka \u00ed Rekjav\u00edk hj\u00e1 br\u00f3\u00f0ur s\u00ednum. Hann l\u00e6r\u00f0i b\u00edlam\u00e1lun og vann lengi vi\u00f0 \u00fea\u00f0 h\u00e9r \u00ed b\u00e6. Listfengi hans naut s\u00edn \u00ed \u00feeirri i\u00f0n og hann haf\u00f0i unun af a\u00f0 skreyta b\u00edla og punta. Hann var \u00farr\u00e6\u00f0ag\u00f3\u00f0ur fagma\u00f0ur og haf\u00f0i alla t\u00ed\u00f0 gaman af handverki. Stundum hurfu sokkabuxurnar hennar Gillu \u00far sk\u00e1pnum \u00fev\u00ed \u00c1rna vanta\u00f0i hentugt efni til a\u00f0 s\u00eda lakk og engar a\u00f0ra s\u00edur \u00ed bo\u00f0i. \u00deegar Kiddi fermdist vanta\u00f0i bor\u00f0 fyrir veislugesti og \u00c1rni var ekki lengi a\u00f0 sm\u00ed\u00f0a nokkur sl\u00edk. Eitt sinn \u00feegar hann m\u00e1la\u00f0i stofuna heima hr\u00e6r\u00f0i hann m\u00e1lninguna \u00ed hr\u00e6riv\u00e9l heimilisins.<\/p>\n<p>Margt fallegt hefur h\u00e9r veri\u00f0 sagt um \u00c1rna en hann var \u00fe\u00f3 ekki gallalaus ma\u00f0ur. Hann gl\u00edmdi l\u00f6ngum vi\u00f0 sterk ve\u00f0rabrig\u00f0i \u00ed s\u00e1lu sinni og \u00fear voru sviptivindar Bakkusar hva\u00f0 erfi\u00f0astir. \u201e\u00d6l er innri ma\u00f0ur\u201c, er gjarnan sagt en einnig \u201e\u00f6l er annar ma\u00f0ur\u201c. \u00c1rni var\u00f0 annar ma\u00f0ur me\u00f0 v\u00edni og \u00fe\u00e1 ur\u00f0u stormar stundum svo str\u00ed\u00f0ir a\u00f0 f\u00f3ki\u00f0 hans var a\u00f0 finna s\u00e9r anna\u00f0 sk\u00f3l. \u00dea\u00f0 var s\u00e1rt en \u00fea\u00f0 er jafnframt fyrirgefi\u00f0. Elska hans og g\u00e6ska \u00e1 \u00feurrum d\u00f6gum b\u00e6tti \u00fea\u00f0 allt upp og svo hitt a\u00f0 fyrir aldarfj\u00f3r\u00f0ungi e\u00f0a svo h\u00e6tti hann alveg a\u00f0 drekka, f\u00f3r a\u00f0 stunda AA-fundi og Geirlug Al-anon. \u00deau st\u00f6rfu\u00f0u miki\u00f0 \u00ed samt\u00f6kunu og t\u00f3ku \u00fe\u00e1tt \u00ed a\u00f0 stofna n\u00fdja deild h\u00e9r \u00ed K\u00f3pavogi. Hann h\u00e6tti einnig a\u00f0 reykja fyrir 16 \u00e1rum og \u00fea\u00f0 var g\u00f3\u00f0ur gj\u00f6rningur. Batnandi m\u00f6nnum er best a\u00f0 lifa, segir m\u00e1lt\u00e6ki\u00f0. Hann var hraustur framan af \u00e6vi en baki\u00f0 bila\u00f0i eftir b\u00edlslys sem hann lenti \u00ed og svo t\u00f3ku reykingarnar og lakkvinnan toll sinn af lungunum sem voru or\u00f0in mj\u00f6g veikbur\u00f0a. Hann var sj\u00faklingur s\u00ed\u00f0ustu \u00e1rin og l\u00e9st 75 \u00e1ra eftir erfi\u00f0an lokakafla \u00fear sem verkir hrj\u00e1\u00f0u hann oft \u00e1 t\u00ed\u00f0um. Hann sag\u00f0i vi\u00f0 hana Geirlaugu s\u00edna: \u201eElsku Gilla m\u00edn, \u00fe\u00fa veist \u00e9g elska \u00feig en n\u00fa get \u00e9g ekkert gert. Hvernig get \u00e9g launa\u00f0 \u00fe\u00e9r?\u201c<\/p>\n<p>Hann var \u00ed \u00feakkarskuld og \u00feau eru m\u00f6rg sem eru \u00ed \u00feakkarskuld vi\u00f0 hann og d\u00e1g\u00f3\u00f0ur h\u00f3pur fylgir honum h\u00e9r hinsta sp\u00f6linn. Kve\u00f0ja er h\u00e9r flutt fr\u00e1 Gu\u00f0r\u00fanu Birnu Kristmundsd\u00f3ttur, afastelpu, sem er \u00e1 Sp\u00e1ni og fr\u00e1 starfsf\u00f3lki B\u00edlastj\u00f6rnunnar Cars. Sigr\u00ed\u00f0ur e\u00f0a Sirr\u00fd fr\u00e6nka og Hafsteinn ma\u00f0ur hennar sem b\u00faa \u00ed Kanada bi\u00f0ja fyrir kve\u00f0ju og loks Sveinn Valgeir uppeldisr\u00f3\u00f0ir \u00c1rna sem b\u00fdr \u00ed Noregi.<\/p>\n<p>\u00cd \u00e1ranna r\u00e1s komu b\u00f6rn oft til \u00c1rna me\u00f0 dau\u00f0a fugla e\u00f0a \u00f6nnur d\u00fdr og hann hj\u00e1lpa\u00f0i \u00feeij a\u00f0 koma \u00feeim \u00ed g\u00f3\u00f0a mold. Allir \u00feurfa sitt skj\u00f3l og umhyggja barna fyrir d\u00fdrum segir margt um \u00feau og um okkur mannf\u00f3lki\u00f0 yfirleitt en \u00fea\u00f0 a\u00f0 l\u00e1ta s\u00e9r annt um l\u00edfi\u00f0 og anna\u00f0 f\u00f3lk er einn af mikilv\u00e6gustu eiginleikum mannsins. Og n\u00fa eru\u00f0 \u00fei\u00f0 h\u00e9r sem l\u00e1ti\u00f0 ykkur annt um \u00c1rna og minningu hans. Oft fengu heimilislausir skj\u00f3l heima hj\u00e1 \u00c1rna og Gillu, menn sem \u00feau kynntust \u00ed gegnum AA. Skj\u00f3lbraut 7a st\u00f3\u00f0 undir nafni.<\/p>\n<p>Hvar er skj\u00f3l a\u00f0 finna? Hver geymir okkur \u00feegar hinsti stormurinn gengur yfir? Hver sk\u00fdlir okkur a\u00f0 l\u00edfi loknu?<\/p>\n<p>\u00c1rni var tr\u00faa\u00f0ur ma\u00f0ur. M\u00f3\u00f0ir hans var gu\u00f0hr\u00e6ddi kona sem kenndi honum b\u00e6nir og vers. Hann ba\u00f0 Gillu gjarnan a\u00f0 fara me\u00f0 Fa\u00f0ir vor b\u00e6nina me\u00f0 s\u00e9r a\u00f0 kv\u00f6ldi dags og lag\u00f0i \u00feannig sig og s\u00edna \u00ed hendur Gu\u00f0s. B\u00e6nin er tj\u00e1ning vonar. H\u00fan er samtal vi\u00f0 hinn h\u00e6sta, skapara alls sem er, Gu\u00f0 hins st\u00f3ra samhengis. Vi\u00f0 erum \u00ed hendi hans \u00ed l\u00edfi og dau\u00f0a. Hann er skj\u00f3lbraut l\u00edfsins, brautin helga og g\u00f3\u00f0a sem liggur til eil\u00edfs l\u00edfs.<\/p>\n<p>Ert \u00fe\u00fa \u00e1 skj\u00f3lbrautinni? \u00c1ttu tr\u00fa \u00e1 Gu\u00f0? Treystir \u00fe\u00fa honum fyrir \u00fe\u00e9r og \u00fe\u00ednum? Hvert beinir \u00fe\u00fa huga \u00fe\u00ednum \u00feegar \u00f6ll sund lokast?<\/p>\n<p>Er \u00c1rni vinur heima? spur\u00f0u b\u00f6rnin stundum sem b\u00f6r\u00f0u a\u00f0 dyrum \u00e1 Skj\u00f3lbraut 7a.<\/p>\n<p>Gu\u00f0 er vinur okkar. Jes\u00fas er besta og t\u00e6rasta mynd vin\u00e1ttu sem mannkyn hefur eignast. Vi\u00f0 drepum n\u00fa \u00e1 dyr \u00e1 skj\u00f3lbraut eil\u00edf\u00f0arinnar og vitjum \u00feess vinar sem Gu\u00f0 er \u00ed daglegu l\u00edfi og felum \u00c1rna vin\u00e1ttu hans og elsku. Gu\u00f0 geymi hann og var\u00f0veiti. Gu\u00f0 blessi minningu hans og Gu\u00f0 blessi \u00feig. Amen.<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Minningaror\u00f0 \u00c1rni Kristmundsson b\u00edlam\u00e1lari 1937-2013 \u00datf\u00f6r fr\u00e1 K\u00f3pavogskirkju fimmdudaginn 15. \u00e1g\u00fast 2013 kl 15. R\u00e6\u00f0una er h\u00e6gt a\u00f0 lesa og hlusta \u00e1 h\u00e9r fyrir ne\u00f0an. &nbsp;<\/p>\n","protected":false},"author":2,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_jetpack_newsletter_access":"","_jetpack_dont_email_post_to_subs":false,"_jetpack_newsletter_tier_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paywalled_content":false,"_jetpack_hide_featured_image":false,"_jetpack_featured_image_duplicate_dismissed":0,"_jetpack_feature_clip_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":"","jetpack_post_was_ever_published":false},"categories":[4],"tags":[],"class_list":["post-703","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-greinar-og-hugvekjur-articles"],"jetpack_sharing_enabled":true,"jetpack_featured_media_url":"","_links":{"self":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/703","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/users\/2"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcomments&post=703"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/703\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fmedia&parent=703"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcategories&post=703"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Ftags&post=703"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}