{"id":6856,"date":"2025-09-22T23:04:08","date_gmt":"2025-09-22T23:04:08","guid":{"rendered":"http:\/\/ornbardur.com\/2025\/09\/22\/hid-salfraedilega-burdarvirki-ad-baki-rottaeka-koltinu\/"},"modified":"2025-09-22T23:04:08","modified_gmt":"2025-09-22T23:04:08","slug":"hid-salfraedilega-burdarvirki-ad-baki-rottaeka-koltinu","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/ornbardur.com\/?p=6856","title":{"rendered":"Hi\u00f0 s\u00e1lfr\u00e6\u00f0ilega bur\u00f0arvirki a\u00f0 baki r\u00f3tt\u00e6ka k\u00f6ltinu"},"content":{"rendered":"\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>Ver\u00f0ugt lesefni um eitt h\u00e6ttulegasta mein samt\u00edmans<\/strong><\/p>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-image size-large\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"991\" height=\"653\" src=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2025\/09\/img_0427.jpg?w=991\" alt=\"\" class=\"wp-image-6855\" \/><figcaption class=\"wp-element-caption\">Mynd af Vefnum<\/figcaption><\/figure>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c9g f\u00e9kk t\u00f6lvup\u00f3st fr\u00e1 fr\u00e6\u00f0imanninum, Dr. Iain McGilchrist ge\u00f0l\u00e6kni, sem er \u00ed upp\u00e1haldi hj\u00e1 m\u00e9r og hann m\u00e6lir \u00fear me\u00f0 grein eftir kollega sinn. Greinin vakti athygli m\u00edna og \u00e9g lag\u00f0i \u00ed a\u00f0 \u00fe\u00fd\u00f0a hana og bi\u00f0 lesendur a\u00f0 taka viljann fyrir verki\u00f0.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">McGilchrist segir um grein H\u00f6nnu Spier:<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c9g vil endilega deila me\u00f0 ykkur grein sem birtir dj\u00fapt inns\u00e6i h\u00f6fundar sem er norskur ge\u00f0l\u00e6knir, hvers skrifum \u00e9g fylgist me\u00f0. Greinin hj\u00e1lpar okkur a\u00f0 skilja brj\u00e1l\u00e6\u00f0i\u00f0 sem umlykur okkur. H\u00fan er hugrakkur h\u00f6fundur, langt fr\u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 vera ofst\u00e6kisfull, sem er mikilv\u00e6g a\u00f0greining fr\u00e1 \u00fev\u00ed f\u00f3lki sem h\u00fan greinir svo vel h\u00e9r.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">[https:\/\/hannahspier.substack.com\/about]<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00de\u00fd\u00f0andi vill taka \u00fea\u00f0 fram, a\u00f0 \u00ed sumum tilfellum er erfitt a\u00f0 nota \u00e6t\u00ed\u00f0 sama or\u00f0i\u00f0 \u00e1 \u00edslensku. Or\u00f0i\u00f0 Progressivism m\u00e1 t.d \u00fe\u00fd\u00f0a sem framfaratr\u00fa\/hyggju, en \u00e9g vil einnig \u00fe\u00fd\u00f0a \u00fea\u00f0 stundum me\u00f0 or\u00f0inu r\u00f3tt\u00e6kni.<\/p>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-audio\"><audio controls src=\"https:\/\/pub-c849b6aaf98340c4bec7b480b0f7ffe9.r2.dev\/2025\/09\/hid-salfraedilega-burdarvirki-ad-baki-rottaeka-koltinu-hannah-spier.m4a\"><\/audio><\/figure>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Smelltu \u00e1 fyrstu fyrirs\u00f6gnina ef \u00fe\u00fa vilt sj\u00e1  f\u00e6rsluna \u00ed heild, allan textann.<\/p>\n\n\n\n<!--more-->\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Greinin ber yfirskriftina:<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>Hi\u00f0 s\u00e1lfr\u00e6\u00f0ilega bur\u00f0arvirki a\u00f0 baki r\u00f3tt\u00e6ka k\u00f6ltinu<\/strong><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Ekkert foreldri getur horft \u00e1 s\u00f6guna um Tyler Robinson, manninn sem gruna\u00f0ur eru um a\u00f0 hafa myrt Charlie Kirk, og sagt af \u00f6ryggi: &#8220;Barni\u00f0 mitt mundi aldrei gera sl\u00edkt.&#8221; Tyler var ekki utangar\u00f0s. \u00c1ri\u00f0 2025, s\u00f6g\u00f0ust 34% h\u00e1sk\u00f3lanema (college) sty\u00f0ja, a\u00f0 beita m\u00e6tti ofbeldi til a\u00f0 \u00feagga ni\u00f0ur \u00ed r\u00e6\u00f0umanni innan sk\u00f3lans. Tyler var einfaldlega rei\u00f0ub\u00fainn og f\u00e6r um a\u00f0 beita \u00fev\u00ed ofbeldi sem h\u00f3purinn hans kalla\u00f0i eftir &#8211; og fyrir \u00fea\u00f0, er hann hylltur.<\/p>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-image size-large\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"1431\" height=\"1070\" src=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2025\/09\/img_0426.jpg?w=1024\" alt=\"\" class=\"wp-image-6854\" \/><\/figure>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Fyrir hinum 22ja \u00e1ra gamla Tyler Robinson, sem \u00e1k\u00e6r\u00f0ur er fyrir mor\u00f0i\u00f0 \u00e1 Charlie Kirk, l\u00e1 ekki fyrir a\u00f0 ver\u00f0a ofbeldisma\u00f0ur. Hann \u00f3lst upp \u00ed heilsteyptri fj\u00f6lskyldu sem sty\u00f0ur Republicana-flokkinn, sonur l\u00f6greglufulltr\u00faa, aga\u00f0ur og elska\u00f0ur. En eftir eitt \u00e1r \u00ed h\u00e1sk\u00f3la var\u00f0 hann \u00f3\u00feekkjanlegur, &#8220;lestrarhestur&#8221; sem bj\u00f3 me\u00f0 manni sem vill vera kona, kl\u00e6ddist komm\u00fanista-skyrtum, birti f\u00e6rslur sem hann vista\u00f0i \u00e1 vef and-fasista, \u00fear sem hann s\u00ed\u00f0ar j\u00e1ta\u00f0i gl\u00e6p sinn, og breytti fj\u00f6lskyldubo\u00f0um gjarnan \u00ed v\u00edgv\u00f6ll. Hann uppnefndi Charlie Kirk sem fasista, a\u00f0 hann v\u00e6ri tilvistarleg \u00f3gnun og gr\u00f3f andfasist\u00edskar upphr\u00f3panir \u00e1 skothylkin sem hann haf\u00f0i \u00ed hyggju a\u00f0 nota.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Svari\u00f0 vi\u00f0 \u00fev\u00ed hvernig \u00feessi umbreyting \u00e1tti s\u00e9r sta\u00f0 er f\u00f3lgin \u00ed k\u00f6lt-hugmyndum sem liggja ekki \u00e6t\u00ed\u00f0 \u00ed augum uppi. Og eins og \u00f6llum k\u00f6ltum er sameiginlegt, \u00fe\u00e1 r\u00f3ta \u00feau upp \u00ed hugum unga f\u00f3lksins. Okkur hefur l\u00e6rst a\u00f0 \u00feekkja k\u00f6ltin einungis \u00feegar \u00feau eru framandi; eins og d\u00f3msdagsh\u00f3pur sem felur sig \u00ed sk\u00f3glendi e\u00f0a j\u00edhadistar veifandi sv\u00f6rtum f\u00e1num. En s\u00f6mu s\u00e1lfr\u00e6\u00f0ilegu mynstrin lj\u00fakast upp \u00ed raunt\u00edma, fr\u00e1 b\u00e6nah\u00fasum, til m\u00e6\u00f0ra \u00ed b\u00faningsklefum \u00ed\u00fer\u00f3ttah\u00fasa, og endurspegla r\u00f6kfr\u00e6\u00f0i \u00f6fgahyggju \u00e1n \u00feess a\u00f0 f\u00f3lk geri s\u00e9r grein fyrir \u00fev\u00ed.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>Narrat\u00edva k\u00f6ltsins: Hvernig framfaratr\u00fain \u00f6fgav\u00e6\u00f0ir \u00e6skuna<\/strong><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Sagan sem \u00f6fgahyggjan b\u00fd\u00f0ur upp \u00e1, fulln\u00e6gir almennum og \u00fdtrustu \u00fe\u00f6rf mannsins fyrir a\u00f0 tilheyra, a\u00f0 finna tilgang, merkingarb\u00e6rni og handanveru. S\u00e1lfr\u00e6\u00f0ingar eins og Arie Kruglanski og Clark McCauley hafa s\u00fdnt fram \u00e1 hvernig r\u00f3tt\u00e6kar hreyfingar fylgja fyrirsj\u00e1anlegu formi: heimurinn er spilltur, \u00fear er auglj\u00f3s \u00f3vinur, \u00fe\u00fa ert innv\u00edg\u00f0\/ur \u00ed r\u00e9ttl\u00e1tan h\u00f3p, frelsunin kemur \u00ed gegnum bar\u00e1ttu gegn \u00feeim sem eru utan h\u00f3psins, og ef \u00fe\u00fa yfirgefur h\u00f3pinn, hefur \u00fea\u00f0 aflei\u00f0ingar \u00ed f\u00f6r me\u00f0 s\u00e9r. Tyler, vinir hans og \u00f3tal unglingar l\u00e1ta dragast inn \u00ed s\u00f6gu um \u00f3r\u00e9ttl\u00e6ti og si\u00f0fer\u00f0ilega endurlausn, sem er miklu meira heillandi tilfinningalega, en nokku\u00f0 sem hi\u00f0 veraldlega, frj\u00e1lslynda samf\u00e9lag b\u00fd\u00f0ur n\u00fa upp \u00e1. \u00deetta er sama skipulag og hefur \u00e6t\u00ed\u00f0 kynt undir allri r\u00f3tt\u00e6kri hugmyndafr\u00e6\u00f0i.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>Heimurinn er spilltur.<\/strong> Ungt f\u00f3lk er svarts\u00fdnt \u00e1 framt\u00ed\u00f0ina, finnst \u00fea\u00f0 m\u00e1ttlaust gagnvart ford\u00e6malausu efnahags\u00e1standi og \u00f6murlegum vinnumarka\u00f0i, og finnur sig d\u00e6mt til a\u00f0 grei\u00f0a af skuldum, en eignast aldrei eigi\u00f0 heimili (meira en 50% ungmenna \u00ed Bandar\u00edkjunum eru afar \u00e1hyggjufull vegna loftslagsbreytinga).<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>Illmenni<\/strong>. \u00cd hinum frams\u00e6kna s\u00f6gu\u00fer\u00e6\u00f0i er heimurinn brotinn vegna <em>k\u00fagara<\/em> sem hagr\u00e6\u00f0a samf\u00e9laginu s\u00e9r \u00ed hag. Illmennin eru heilu kerfin og \u00feau sem sty\u00f0ja \u00feau: <em>fe\u00f0raveldi, yfirr\u00e1\u00f0 hv\u00edtra, kap\u00edtalismi, afneitun fj\u00f6lbreytileikans, n\u00fdlendustefna<\/em>. Allt er \u00fea\u00f0 sagt stofna l\u00edfi f\u00f3lks \u00ed h\u00e6ttu vegna \u00feess a\u00f0 \u00feeim er alveg sama um \u201emannr\u00e9ttindi\u201c \u00fe\u00edn. \u00deetta var oft sagt um Charlie Kirk sem, jafnvel eftir a\u00f0 hafa veri\u00f0 myrtur, var sm\u00e6tta\u00f0ur ni\u00f0ur \u00ed \u201et\u00e1kn eitra\u00f0rar menningar\u201c og \u201eillsku\u201c. \u00deetta \u00fdtir undir hugsunarh\u00e1ttinn \u201evi\u00f0 gegn \u00feeim\u201c sem Hillary Clinton haf\u00f0i grundvalla\u00f0 fyrir \u00e1ratugi, \u00feegar h\u00fan afgreiddi \u00edhaldsmenn, sem \u201ek\u00f6rfu fulla af \u00f3ge\u00f0i\u201c. Framfaratr\u00fain (progressivism) finnur s\u00e9r sk\u00fdrt skotmark fyrir rei\u00f0i, r\u00e9ttl\u00e6tingu og afmennskun.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>Valinn h\u00f3pur.<\/strong> Varnara\u00f0ilar stigveldis f\u00f3rnarlambanna. Verjendur s\u00edvaxandi skilgreiningar \u00e1 \u201emannr\u00e9ttindum\u201c. \u00deeir eru svo si\u00f0avandir, \u00feeir d\u00fdrka hi\u00f0 \u00e6\u00f0sta g\u00f3\u00f0a: sam\u00fa\u00f0ina. En sam\u00fa\u00f0in beinist ekki a\u00f0 mennskunni sj\u00e1lfri, h\u00fan er ekki lengur heil\u00f6g. Gildi mennskunnar er veitt \u00ed samr\u00e6mi vi\u00f0 st\u00f6\u00f0u einstaklingsins \u00ed stigveldi k\u00fagunarinnar, \u00fear sem h\u00fa\u00f0litur, kyn\u00fe\u00e1ttur, kyn e\u00f0a jafnvel sta\u00f0setning (innan m\u00f3\u00f0urkvi\u00f0ar e\u00f0a utan) metur gildi\u00f0 \u00fat fr\u00e1 st\u00f6\u00f0u\/e\u00f0li e\u00f0a hlutverkinu sem f\u00f3rnarlambs.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>Lei\u00f0in til endurlausnar. <\/strong>\u00cd s\u00f6gu r\u00f3tt\u00e6krar \u00fer\u00f3unar (progressive) sprettur endurlausnin ekki af pers\u00f3nulegum vexti e\u00f0a si\u00f0fer\u00f0ilegri \u00e1reynslu, heldur fr\u00e1 undirgefni vi\u00f0 sameiginlega bar\u00e1ttu gegn hatri. \u00dea\u00f0 felst \u00ed \u00fev\u00ed a\u00f0 leggjast \u00e1 sveif me\u00f0 hinum \u201esam\u00fa\u00f0arfullu\u201c, gegn \u00feeim sem me\u00f0 \u00e1greiningi einum, eru sag\u00f0ir neita \u00f6\u00f0rum um grundvallar mannr\u00e9ttindi. \u00cd \u00feessu samhengi er samhyg\u00f0 ekki bara dygg\u00f0 &#8211; h\u00fan er eini si\u00f0fer\u00f0ilegi gjaldmi\u00f0illinn. Hatur er andst\u00e6\u00f0a \u00feessa, og allt sem tengist hatri er sj\u00e1lfkrafa illt. Or\u00f0 haturs eru me\u00f0h\u00f6ndlu\u00f0 sem ofbeldi; \u00fe\u00f6gn merkir samsekt.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Til a\u00f0 frelsast\/endurleysast, ver\u00f0ur \u00fe\u00fa a\u00f0 j\u00e1ta forr\u00e9ttindi \u00fe\u00edn, afneita fyrri f\u00e1fr\u00e6\u00f0i, tileinka \u00fe\u00e9r tungum\u00e1l hreyfingarinnar og birta hollustu \u00fe\u00edna. Oftast byrjar \u00feetta sm\u00e1tt: me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 lita h\u00e1ri\u00f0, \u00ed gl\u00edmu vi\u00f0 ge\u00f0heilsu, sem ver\u00f0ur opinber merkimi\u00f0i um a\u00f0 tilheyra h\u00f3pnum; me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 skilgreina sig sem &#8220;hinsegin&#8221;, kl\u00e6\u00f0ast \u00e1 \u00f6ndver\u00f0an h\u00e1tt og skera \u00e1 sambandi\u00f0 vi\u00f0 \u00f3samm\u00e1la foreldra. \u00cd vaxandi m\u00e6li tj\u00e1 foreldrar sig um hrikalegt sambandsleysi vi\u00f0 b\u00f6rn s\u00edn \u00e1 grundvelli hugmyndafr\u00e6\u00f0i. S\u00e9rhver heg\u00f0un tj\u00e1ir &#8220;ekta sj\u00e1lf&#8221; sem loksins hefur losna\u00f0 \u00far fj\u00f6trum \u00feeirra sem hata \u00feau.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>Heg\u00f0un innv\u00edg\u00f0ra: Dagleg framkoma s\u00e9rtr\u00faarsafna\u00f0arins<\/strong><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00deetta mekir a\u00f0 j\u00e1ta hin vi\u00f0urkenndu slagor\u00f0: \u201eR\u00e9ttindi transf\u00f3lks eru mannr\u00e9ttindi\u201c, \u201er\u00e9ttindi kvenna eru \u00e6xlunarr\u00e9ttindi\u201c og a\u00f0 f\u00e1 \u00feau fram \u00ed or\u00f0r\u00e6\u00f0unni og jafnvel me\u00f0 l\u00e6knisme\u00f0fer\u00f0. \u00dea\u00f0 merkir a\u00f0 samsama sig eftirfarandi fegur\u00f0arst\u00f6\u00f0lum: kynlausri t\u00edsku, endurunnum t\u00f6skum, si\u00f0legum neyslurit\u00fa\u00f6lum, virkum veganisma, afneita \u00feyngdaraukningu e\u00f0a vera enn me\u00f0 gr\u00edmu utandyra. \u00dea\u00f0 merkir a\u00f0 flagga f\u00e1na dagsins sem tj\u00e1ir m\u00e1lefni\u00f0, hvort sem \u00fea\u00f0 er f\u00e1ni Regnbogans, \u00dakra\u00ednu e\u00f0a Palest\u00ednu, allt a\u00f0laga\u00f0 a\u00f0 tj\u00e1ningu samf\u00e9lagsmi\u00f0lanna. Og \u00fea\u00f0 \u00fe\u00fd\u00f0ir a\u00f0 \u00feekkja r\u00e9ttu svipbrig\u00f0in: \u00e1hyggjufullt augnar\u00e1\u00f0, halla h\u00f6f\u00f0i og d\u00e6sa, samanbitnar varir um lei\u00f0 og eitthva\u00f0 er gefi\u00f0 \u00ed skyn sem telst vera &#8220;vandam\u00e1l&#8221;. \u00dea\u00f0 er einmitt svipurinn sem f\u00f3lk setur upp \u00ed bo\u00f0inu \u00feegar einhver hellir rau\u00f0v\u00edni \u00e1 hv\u00edta teppi\u00f0 &#8211; blanda af \u00f3\u00fe\u00e6gindum og illa dulinni \u00e1s\u00f6kun. Svipbrig\u00f0in mi\u00f0la van\u00fe\u00f3knun og si\u00f0fer\u00f0ilegum yfirbur\u00f0um \u00feegar f\u00f3lk fjarl\u00e6gir sig fr\u00e1 hinu dulda. Allir \u00ed herberginu vita n\u00fana a\u00f0 \u00fe\u00fa ert undir sm\u00e1sj\u00e1.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Framfarasinnar (progressives) eru oft stoltir af a\u00f0 vera \u00e1 skj\u00f6n vi\u00f0 hi\u00f0 vi\u00f0tekna (non-conformist) vegna ofur\u00e1herslu sinnar \u00e1 vi\u00f0urkenningu og umbur\u00f0arlyndi, en kaldh\u00e6\u00f0nislegt er \u00fea\u00f0, a\u00f0 engin \u00f6nnur hugmyndafr\u00e6\u00f0i samt\u00edmans skapar jafn sl\u00e1andi einsleitni. Fyrir \u00feau sem eru utan h\u00f3psins, er au\u00f0velt a\u00f0 koma auga \u00e1 \u00feetta f\u00f3lk: \u00dea\u00f0 munar aldrei nema \u00f6gn \u00ed fr\u00e1vikum, ekki nema einum h\u00e1rlubba fr\u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 d\u00e6ma \u00f6ll vi\u00f0horf pers\u00f3nunnar \u00far p\u00f6ntunarlista \u00f3l\u00edkra sko\u00f0ana. \u00deessi tegund einsleitni bendir til s\u00e1lfr\u00e6\u00f0ilegra krafta sem kn\u00fdja \u00e1fram d\u00fdnam\u00edk s\u00e9rtr\u00faarsafna\u00f0arins: breytingu hugsunarinnar.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Ge\u00f0l\u00e6knirinn Robert Lifton rannsaka\u00f0i hvernig ma\u00f3istarnir \u00ed K\u00edna notu\u00f0u \u201ehugbreytingu\u201c og settu fram \u00e1tta vi\u00f0mi\u00f0 til a\u00f0 s\u00fdna fram \u00e1 hvernig \u00feeir m\u00f3tu\u00f0u kerfisbundi\u00f0 hugsun f\u00f3lks. \u00cd samr\u00e6mi vi\u00f0 hugmyndir Erving Goffman um hvernig \u201eheildarstofnunin\u201c- byggir \u00e1 fangelsum, ge\u00f0veikrah\u00e6lum e\u00f0a klaustrum &#8211; og \u00fevingar l\u00edfi\u00f0 undir eitt yfirvald, sem gerir and\u00f3f \u00f3m\u00f6gulegt. A\u00f0fer\u00f0in fellur eins og fl\u00eds vi\u00f0 rass a\u00f0 \u00feeim a\u00f0fer\u00f0um sem r\u00f3tt\u00e6kir beita n\u00fa.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>Mist\u00edsk misbeiting. <\/strong>Si\u00f0fer\u00f0ileg upphef\u00f0 samkenndar og or\u00f0in \u201eumbur\u00f0arlyndi\u201c, \u201ejafnr\u00e9tti\u201c, \u201ea\u00f0l\u00f6gun\u201c og \u201efj\u00f6lbreytileiki er styrkur okkar\u201c \u00fej\u00f3na sem yfirskilvitleg gildi. Og \u00fear sem sam\u00fa\u00f0 telst til \u00e6\u00f0su gilda, \u00fe\u00e1 telst \u00fea\u00f0 a\u00f0 syrgja \u201ehatarann\u201c Charlie Kirk vera \u00fea\u00f0 sama og a\u00f0 sv\u00edkja sam\u00fa\u00f0ina sj\u00e1lfa. A\u00f0 syrgja hann myndi \u00fear me\u00f0 sta\u00f0setja mann utan h\u00f3psins. Eins og vi\u00f0 er a\u00f0 b\u00faast heyrum vi\u00f0 \u00feetta fr\u00e1 hverjum einasta sj\u00e1lskipu\u00f0um vitringi: \u201eP\u00f3lit\u00edskt ofbeldi er aldrei \u00ed lagi, en\u2026\u201c \u2013 \u00e6t\u00ed\u00f0 fylgt eftir af r\u00e9ttl\u00e6tingu, sem \u00e1 r\u00e6tur a\u00f0 rekja til sko\u00f0ana Kirks. \u00cd eyrum \u00feeirra sem reynslu hafa g\u00e6ti \u00feetta hlj\u00f3ma\u00f0 sem hlutl\u00e6gt og skynsamlegt vi\u00f0horf. En \u00ed raun er h\u00e9r um a\u00f0 r\u00e6\u00f0a rit\u00faal og or\u00f0f\u00e6ri hinna innv\u00edg\u00f0u.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c1 sama h\u00e1tt, \u00feegar \u00feetta (mor\u00f0i\u00f0 \u00e1 Kirk) er bori\u00f0 saman vi\u00f0 mor\u00f0in \u00e1 Martin Luther King, John F. Kennedy e\u00f0a jafnvel mor\u00f0i\u00f0 \u00e1 George Floyd, eru vi\u00f0br\u00f6g\u00f0in \u00feau a\u00f0 l\u00e1ta kn\u00e9 fylgja kvi\u00f0i og hafna samanbur\u00f0i, \u00e1samt fur\u00f0u yfir \u00fev\u00ed a\u00f0 f\u00f3lk vogi s\u00e9r yfirh\u00f6fu\u00f0 a\u00f0 bera \u00feetta saman. \u00deessi vi\u00f0br\u00f6g\u00f0 s\u00fdna \u00ed sj\u00e1lfu s\u00e9r loka\u00f0an v\u00edtahring: sum dau\u00f0sf\u00f6ll eru heil\u00f6g, \u00f6nnur ekki. M\u00f6rkin eru ekki dregin af sta\u00f0reynd mor\u00f0s, mannlegu gildi e\u00f0a allsherjarreglu, heldur me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 samsama \u00fea\u00f0 hinum r\u00f3tt\u00e6ku, yfirskilvitlegu gildum.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>Krafa um hreinleika.<\/strong> Endalaust eftirlit me\u00f0 tungum\u00e1li og heg\u00f0un \u00fer\u00fdstir \u00e1 st\u00f6\u00f0uga leit a\u00f0 smiti. A\u00f0 segja, &#8220;j\u00e6ja vinur&#8221; e\u00f0a &#8220;j\u00e6ja vinan&#8221; hafnar og l\u00f6ggildir aldurstengt tal sem \u00ed e\u00f0li s\u00ednu er k\u00fagandi. Pr\u00f3fessorar og starfsmenn standa frammi fyrir \u00e1minningum fyrir a\u00f0 nota hugt\u00f6k eins og \u201elita\u00f0 f\u00f3lk\u201c \u00ed sta\u00f0 \u201ef\u00f3lk af litarh\u00e6tti\u201c (&#8220;colored people&#8221; \u00ed sta\u00f0 &#8220;people of color&#8221;). \u00deeir sem s\u00e6kja um vinnu vita a\u00f0 \u00feeir eru skylda\u00f0ir til a\u00f0 tilgreina forn\u00f6fn \u00e1 LinkedIn (sbr. hann\/h\u00fan), gr\u00ednistar missa &#8220;gigg&#8221; vegna brandara sem \u00e1\u00f0ur \u00fe\u00f3ttu \u00ed lagi. Veganismi f\u00e6r si\u00f0fr\u00e6\u00f0ilega skilgreiningu um hreint matar\u00e6\u00f0i, me\u00f0an kj\u00f6t\u00e6tur eru skamma\u00f0ar fyrir a\u00f0 vera sam\u00feykkir k\u00faguninni. Pr\u00f3fanir \u00e1 umhverfishreinleika birtast \u00ed \u00e1minningum gagnvart m\u00e6\u00f0rum sem halda barnaafm\u00e6li me\u00f0 plaststr\u00e1um e\u00f0a m\u00e6ta \u00e1 bens\u00edn- e\u00f0a d\u00edselb\u00edlum. S\u00e9rhvert rit\u00faal gerir \u00fea\u00f0 heyrinkunnugt a\u00f0 hi\u00f0 minnsta fr\u00e1vik d\u00e6mir \u00feig \u00f3hreinan.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>J\u00e1tning<\/strong>. Kerfisbundin rit\u00fa\u00f6l sj\u00e1lfsau\u00f0m\u00fdkingar koma fram \u00e1 margskonar h\u00e1tt eins t.d. \u00ed \u00feessum or\u00f0um: \u201e\u00e9g er \u00ed forr\u00e9ttindah\u00f3pi og \u00fev\u00ed leyfist m\u00e9r ekki a\u00f0 tj\u00e1 mig um \u00feetta\u201c, einnig \u00ed \u00fev\u00ed \u00feegar hv\u00edtar konur l\u00fata sv\u00f6rtum, karlar v\u00edkja fyrir konum og \u00ed skyldubundnum yfirl\u00fdsingum um fj\u00f6lbreytileika innan fyrirt\u00e6kja og h\u00e1sk\u00f3la.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>Heil\u00f6g v\u00edsindi. <\/strong>Kerfisbundin k\u00fagun virkar \u00ed sj\u00e1lfu s\u00e9r sem \u00f3umdeild kenning. Eins og rannsakandinn James Nuzzo hefur s\u00fdnt fram \u00e1 hefur frams\u00e6kin hugtakanotkun gegns\u00fdrt fr\u00e6\u00f0irit a\u00f0 \u00fev\u00ed marki a\u00f0 \u00e1n \u00feess or\u00f0f\u00e6ris mundu \u00fe\u00e6r oftar en ekki falla fyrir d\u00f3mi samkennara.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>A\u00f0 hla\u00f0a tungum\u00e1li\u00f0.<\/strong> Frasar eins og \u201esm\u00e1-\u00e1r\u00e1sir\u201c, \u201esvigr\u00fam\u201c, \u201ehef\u00f0bundi\u00f0 vi\u00f0horft til kynja\u201c, \u201eyfirvega\u00f0ur\u201c og \u201elifandi reynsla\u201c helga pers\u00f3nulegar yfirl\u00fdsingar sem \u00f3umdeilanlegar, \u00e1 me\u00f0an \u00f3hef\u00f0bundi\u00f0 or\u00f0alag eins og \u201e\u00f3skr\u00e1\u00f0\u201c \u00ed sta\u00f0 \u00f3l\u00f6glegs e\u00f0a \u201ekynju\u00f0 sta\u00f0festingarumhyggja\u201c \u00ed sta\u00f0 \u00f3frj\u00f3semisa\u00f0ger\u00f0 eru d\u00e6mi um m\u00e1lfar sem umbreytir veruleikanum.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>Kenningar \u00ed sta\u00f0 pers\u00f3nu.<\/strong> Aukaverkanir kyn\u00feroskahamlandi lyfja og kynjamismunandi a\u00f0ger\u00f0a voru lengi faldar &#8211; og eru enn ekki almennt vi\u00f0urkenndar. Eins og skj\u00f6l World Professional Association for Transgender Health leiddu \u00ed lj\u00f3s, leyndu margir l\u00e6knar ni\u00f0urst\u00f6\u00f0um s\u00ednum til a\u00f0 vernda kenninguna. Kenningin er tekin fram yfir pers\u00f3nur og \u00feess krafist a\u00f0 einstaklingar afneiti e\u00f0a endurt\u00falki eigin reynslu til a\u00f0 h\u00fan passi vi\u00f0 hugmyndafr\u00e6\u00f0ina.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>\u00dathlutun tilvistar.<\/strong> And\u00f3fsmenn eru t\u00falka\u00f0ir sem \u201eford\u00f3mafullir\u201c e\u00f0a \u201enazistar\u201c. \u00deegar Charlie Kirk var drepinn, leyf\u00f0i h\u00f3purinn ekki bara, heldur kraf\u00f0ist h\u00e1t\u00ed\u00f0arhalda. Ungur ma\u00f0ur s\u00e1st jafnvel trampa \u00e1 minningu Kirks og var kl\u00e6ddur \u00e1 sama h\u00e1tt og mor\u00f0inginn. \u00deetta er l\u00e6r\u00f0 e\u00f0a a\u00f0l\u00f6gu\u00f0 ge\u00f0veiki \u00ed verki. Venjulegt, ungt f\u00f3lk, ali\u00f0 upp me\u00f0 normal samvisku, l\u00e6rir a\u00f0 kveikja \u00e1 samkennd me\u00f0 \u00feeim sem eru innangar\u00f0s og sl\u00f6kkva \u00e1 samkennd me\u00f0 \u00feeim sem eru utangar\u00f0s. \u00deetta er ekki ge\u00f0sj\u00fakd\u00f3mur heldur \u00e6vaforn, \u00fer\u00f3a\u00f0ur h\u00e6fileiki. \u00c6ttb\u00e1lkar komust af me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 vernda s\u00edna eigin me\u00f0limi og afmennska \u00f3vini. \u00cd k\u00f6lti hinna r\u00f3tt\u00e6ku hefur \u00feessi a\u00f0fer\u00f0 veri\u00f0 endurvirkju\u00f0.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00deessi endurvirkjun hj\u00e1 ungmennum \u00e1 s\u00e9r sta\u00f0 fyrir tilstilli \u201ealveldis-stofnunarinnar&#8221; (the total institution), sem Goffman l\u00fdsti.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>Hugsunarbreytingar \u00e1 menningarlegum skala<\/strong><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>Lokun<\/strong>. F\u00f3lk syndir n\u00fa \u00ed einni moralskri narrat\u00edvu \u00e1n \u00feess a\u00f0 gera s\u00e9r grein fyrir \u00fev\u00ed a\u00f0 valkostir eru kerfisbundi\u00f0 s\u00eda\u00f0ir \u00fat. Eins og \u00e1r\u00f3\u00f0ursl\u00edkan Hermans benti \u00e1, ritsko\u00f0a fj\u00f6lmi\u00f0lar sjaldan beint; \u00ed sta\u00f0inn varpa \u00feeir lj\u00f3si \u00e1 sumar sta\u00f0reyndir og skyggja \u00e1 a\u00f0rar \u00e1 \u00feann h\u00e1tt a\u00f0 \u00feeir styrkja st\u00f6\u00f0ugt r\u00edkjandi hugmyndafr\u00e6\u00f0i. Dagleg mettun sama hugmyndafr\u00e6\u00f0ilega or\u00f0afor\u00f0a \u00ed menntun, fr\u00e9ttum og af\u00fereyingu, skapar n\u00e1kv\u00e6mlega \u00fea\u00f0 umhverfi sem Goffman \u00e1tti vi\u00f0 me\u00f0 lokun.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00deegar Wikipedia, einn \u00e1hrifamesti dreifingara\u00f0ili almennrar \u00feekkingar, gefur greinum mismunandi titla, svo sem: \u201eDr\u00e1pi\u00f0 \u00e1 Charlie Kirk\u201c, \u201eDr\u00e1pi\u00f0 \u00e1 Irynu Zarutska\u201c en \u201eMor\u00f0i\u00f0 \u00e1 George Floyd\u201c. Og \u00feegar New York Times dregur Kirk ni\u00f0ur \u00ed ekkert anna\u00f0 en \u201et\u00e1knmynd eitra\u00f0rar menningar\u201c, m\u00f3tar \u00fea\u00f0 hugsunina.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hinn almenni fr\u00e9ttaneytandi, sem aldrei heyr\u00f0i um hina myrtu Melissu Hortman, fulltr\u00faa Dem\u00f3krata, hefur n\u00fa veri\u00f0 kennt a\u00f0 nefna nafn hennar \u00ed \u00f6grandi svari: \u201eJ\u00e6ja, varstu jafn dapur\/d\u00f6pur og \u00feegar Melissa Hortman var myrt?\u201c \u2013 eins og \u00fea\u00f0 a\u00f0 muna ekki alla myrta Dem\u00f3krata r\u00e9ttl\u00e6ti a\u00f0 fagna dau\u00f0a \u00edhaldsmanns. Munurinn sem gjarnan gleymist &#8211; og hann skiptir m\u00e1li &#8211; a\u00f0 engin \u00edhaldss\u00f6m st\u00f6\u00f0 sem sag\u00f0i fr\u00e1 mor\u00f0inu \u00e1 Hortman, nefndi stj\u00f3rnm\u00e1lasko\u00f0anir hennar.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Vi\u00f0 syndum \u00ed kerfi sem upphefur og helgar l\u00edf sumra og gengisfellir a\u00f0ra. \u00dea\u00f0 er merki um s\u00e9rtr\u00faarlega afst\u00f6\u00f0u gagnvart skilgreindum \u00fatl\u00e6gum h\u00f3pi. A\u00f0 spyrja: \u201eHverju tr\u00fa\u00f0i hann?\u201c \u00ed samhengi vi\u00f0 mor\u00f0 er ekkert fr\u00e1brug\u00f0i\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 spyrja f\u00f3rnarlamb nau\u00f0gunar: \u201eJ\u00e6ja, hvernig varstu kl\u00e6dd?\u201c E\u00f0lisl\u00e6g hr\u00e6\u00f0sla vi\u00f0 \u00feessa saml\u00edkingu sannar m\u00e1li\u00f0: sta\u00f0a f\u00f3rnarlambanna r\u00e6\u00f0ur tilfinningalegum vi\u00f0br\u00f6g\u00f0um. Ekki ver\u00f0a \u00f6ll nau\u00f0gunarf\u00f3rnarl\u00f6mb fyrir s\u00f6mu rei\u00f0i; f\u00f3rnarl\u00f6mb h\u00f3pnau\u00f0gunar \u00ed Englandi voru gleymd eftir a\u00f0 hafa a\u00f0eins fengi\u00f0 l\u00e1gmarks umfj\u00f6llun.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hin hrottalega hn\u00edfsstungu\u00e1r\u00e1s \u00e1 Irynu Zarutska \u00ed ne\u00f0anjar\u00f0arlestinni var \u00e1 sama h\u00e1tt endurskilgreind af NYT og AP News til a\u00f0 einbl\u00edna ekki \u00e1 gl\u00e6pinn heldur \u00e1 vi\u00f0br\u00f6g\u00f0 h\u00e6gri manna vi\u00f0 honum. Hef\u00f0i hlutverkunum veri\u00f0 sn\u00fai\u00f0 vi\u00f0 hef\u00f0i kyn\u00fe\u00e1ttahli\u00f0in veri\u00f0 \u00ed forgrunni me\u00f0 or\u00f0f\u00e6ri \u00e6tlu\u00f0u til a\u00f0 kveikja n\u00fdja bylgju \u00f3eir\u00f0a.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>Eftirlit<\/strong>. Opinber ni\u00f0url\u00e6ging \u00e1 samf\u00e9lagsmi\u00f0lum kn\u00fdr fram reglufylgni. \u00der\u00fdstingur h\u00f3psins birtist \u00ed \u00f6rlitlum bendingum og hollustuath\u00f6fnum, allt fr\u00e1 svipbrig\u00f0um sem gefa til kynna \u201evandr\u00e6\u00f0alega\u201c athugasemd til nemenda, sem tilkynna yfirv\u00f6ldum rangar hugsanir bekkjarf\u00e9laga.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>Stj\u00f3rnun<\/strong>. \u00dej\u00f3\u00f0legar athafnir og samsemd m\u00f3ta vi\u00f0bur\u00f0i \u00e1rsins me\u00f0 \u00fej\u00f3\u00f0um: Stoltm\u00e1nu\u00f0ur (Pridemonth), M\u00e1nu\u00f0ur s\u00f6gu svartra, Kvennadagurinn, vi\u00f0urkenningar \u00e1 landi, heitstrengingar um DEI &#8211; Fj\u00f6lbreytni, Jafnr\u00e9tti og Inngildingu.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>A\u00f0 fjarl\u00e6gja sj\u00e1lfsmynd.<\/strong> Heildarstofnunin (einsleitnin) hefur getu til a\u00f0 fjarl\u00e6gja fyrri sj\u00e1lfsmyndir til a\u00f0 skapa n\u00fdjar, stofnanalega skilgreindar. \u00deetta \u00fe\u00fd\u00f0ir a\u00f0 sama hversu vel foreldrar ala upp barn sitt, \u00fe\u00e1 mun kerfi\u00f0 sem \u00feau ganga inn \u00ed endurhanna sj\u00e1lfsmynd \u00feeirra \u00e1 grunni gilda kerfisins. \u00dea\u00f0 er af \u00feessum ors\u00f6kum, a\u00f0 \u00feegar Peter Boghossian, PragerU e\u00f0a Turning Point taka vi\u00f0t\u00f6l vi\u00f0 venjulegt f\u00f3lk \u00e1 g\u00f6tunni, \u00fe\u00e1 s\u00e9r\u00f0u undrunarsvip \u00e1 andliti \u00feeirra \u00feegar \u00feau standa frammi fyrir einf\u00f6ldum m\u00f3tr\u00f6kum. Ekki vegna \u00feess a\u00f0 \u00feau s\u00e9u heimsk, heldur vegna \u00feess a\u00f0 \u00feau hafa b\u00f3kstaflega aldrei heyrt uppl\u00fdsingarnar \u00e1\u00f0ur. \u00deetta er eins og \u00fe\u00fa sj\u00e1ir villubo\u00f0 \u00ed augum \u00feeirra. \u00deau munu anna\u00f0 hvort neita a\u00f0 taka frekari \u00fe\u00e1tt \u00ed vi\u00f0talinu vegna \u00f3\u00fe\u00e6ginda af hugr\u00e6num \u00f3samhlj\u00f3mi e\u00f0a vi\u00f0urkenna \u201e\u00e9g hef aldrei heyrt \u00feetta.\u201c Hvort tveggja lei\u00f0ir \u00ed lj\u00f3s tilvist loka\u00f0s kerfis.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00deeir f\u00e1u sem eru utan loka\u00f0a kerfisins svara oft me\u00f0 vantr\u00fa, gremju e\u00f0a l\u00f6ngun til a\u00f0 hrista upp \u00ed f\u00f3lki. A\u00f0rir munu samsama sig \u00f6\u00f0rum samf\u00e9l\u00f6gum \u00ed rei\u00f0i, jafnvel \u00fe\u00f3tt eini samnefnarinn s\u00e9 andsta\u00f0a vi\u00f0 s\u00e9rtr\u00faars\u00f6fnu\u00f0inn. Loka\u00f0a hringr\u00e1sin skilur b\u00e1\u00f0a a\u00f0ila eftir \u00ed gildru: \u00fear sem innri a\u00f0ilinn getur ekki spurt spurninga og hinn utana\u00f0komandi n\u00e6r ekki \u00ed gegn.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>Menningarlegt var\u00f0hald.<\/strong> \u00dea\u00f0 sem h\u00f3fst \u00ed h\u00e1sk\u00f3lum hefur teygt anga s\u00edna \u00fat \u00ed menninguna. Eftir dau\u00f0a George Floyd fylltu kirkjur og samkunduh\u00fas p\u00f3sth\u00f3lf f\u00e9lagsmanna me\u00f0 vandlega or\u00f0u\u00f0um samst\u00f6\u00f0uyfirl\u00fdsingum. \u00cd kristnum og gy\u00f0inglegum stofnunum geisa umr\u00e6\u00f0ur um kvenkyns og hinsegin presta (LGBTQ) og \u00ed pr\u00e9dikunarst\u00f3lum eru m\u00e1lefni eins og innflytjendam\u00e1l til umr\u00e6\u00f0u \u00e1 gildishl\u00f6\u00f0nu m\u00e1li (Lifton&#8217;s loaded language) og pr\u00e9dika\u00f0 a\u00f0 mestu um sam\u00fa\u00f0, eins a\u00f0 \u00fea\u00f0 s\u00e9 eina dygg\u00f0in \u00ed Ritningunni. Ni\u00f0ursta\u00f0an er ein yfirstofnun (einsleit hugsun), sem n\u00e6r til alls samf\u00e9lagsins.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>Kostna\u00f0ur vi\u00f0 \u00fatg\u00f6ngu.<\/strong> \u00d3gnvekjandi sj\u00e1lfsritsko\u00f0un innan h\u00e1sk\u00f3lanna s\u00fdnir okkur hversu h\u00e1r kostna\u00f0urinn er vi\u00f0 a\u00f0 yfirgefa s\u00e9rtr\u00faars\u00f6fnu\u00f0inn. Samkv\u00e6mt k\u00f6nnun sem ber heiti\u00f0 <em>FIRE 2026 <\/em>vi\u00f0urkenna meira en 80% h\u00e1sk\u00f3lanema a\u00f0 hafa ritsko\u00f0a\u00f0 sj\u00e1lfa sig a\u00f0 minnsta kosti stundum og n\u00e6stum \u00feri\u00f0jungur oft &#8211; h\u00e6sta hlutfall sem m\u00e6lst hefur. Kennarar standa frammi fyrir sama \u00fer\u00fdstingi: <em>\u00feri\u00f0jungur segir<\/em> a\u00f0 \u00feeir hafi dregi\u00f0 \u00far skrifum s\u00ednum til a\u00f0 for\u00f0ast deilur (n\u00e6stum fj\u00f3rum sinnum fleiri en \u00e1 t\u00edmum McCarthyismans), en n\u00e6stum fj\u00f3r\u00f0ungur hefur \u00e1hyggjur af \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fea\u00f0 a\u00f0 tj\u00e1 sko\u00f0anir s\u00ednar g\u00e6ti kosta\u00f0 \u00fe\u00e1 vinnuna. \u00deegar nemandi hefur l\u00fdst sig \u201ea\u00f0ger\u00f0arsinna gegn rasima\u201c e\u00f0a \u201esty\u00f0janda trans\u201c \u00e1 samf\u00e9lagsmi\u00f0lum, lei\u00f0ir h\u00f6rfun til au\u00f0m\u00fdkingar. Ef \u00fe\u00fa yfirgefur hugmyndafr\u00e6\u00f0ina, gerist \u00fe\u00fa \u201eford\u00f3mafull\/ur\u201c, \u00e1n sj\u00e1lfsmyndar, \u00e1n vina og si\u00f0fer\u00f0ilegs vir\u00f0is.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Anna\u00f0 merki um a\u00f0 r\u00f3tt\u00e6kni hafi teki\u00f0 \u00e1 sig einkenni s\u00e9rtr\u00faar, er andsta\u00f0a \u00e1k\u00f6fustu gagnr\u00fdnenda hennar. \u00deeir sem and\u00e6fa hva\u00f0 har\u00f0ast hinni r\u00f3tt\u00e6ku narrat\u00edvu, eru oft, a\u00f0 eigin s\u00f6gn, <em>fyrrum frj\u00e1lslyndir<\/em>. F\u00f3lk sem eitt sinn skilgreindi sig sem hef\u00f0bundi\u00f0-frj\u00e1lslynt, finnur sig n\u00fa skyndilega stimpla\u00f0 sem \u00edhaldssamt. \u00deau segjast vera ringlu\u00f0, \u00fear sem \u00feessar sko\u00f0anir t\u00f6ldust almennar fyrir \u00e1ratug s\u00ed\u00f0an, og eins og fyrrverandi me\u00f0limir s\u00e9rtr\u00faar, finnst \u00feeim \u00feau bera skyldu til a\u00f0 afhj\u00fapa innri virkni loka\u00f0a kerfisins, sem \u00feau fl\u00fa\u00f0u fr\u00e1 og vilja vara a\u00f0ra vi\u00f0 h\u00e6ttum \u00feess. R\u00e9tt eins og fyrrverandi me\u00f0limir s\u00e9rtr\u00faar l\u00fdsa erfi\u00f0leikunum vi\u00f0 a\u00f0 brj\u00f3tast \u00ed gegnum ford\u00f3ma fj\u00f6lskyldu og vina, sem enn eru inni, eiga \u00feessir fyrrverandi frj\u00e1lslyndu menn \u00ed erfi\u00f0leikum me\u00f0 a\u00f0 vekja athygli \u00ed menningu sem neitar \u00fev\u00ed a\u00f0 s\u00e9rtr\u00faars\u00f6fnu\u00f0urinn s\u00e9 jafnvel til.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00deetta er ekki m\u00e1l sem sn\u00fdst um h\u00e6gri\u00f0 gegn vinstrinu. \u00deetta sn\u00fdst um hin r\u00f3tt\u00e6ku (pr\u00f3gress\u00edfu) annarsvegar og alla a\u00f0ra hins vegar. \u00deetta sn\u00fdst um foreldra sem gera sitt \u00fdtrasta, en mistekst samt vegna samanbur\u00f0ar vi\u00f0 hina r\u00f3tt\u00e6ku s\u00e9rtr\u00fa sem hefur s\u00edast inn \u00ed allar stofnanir \u00ed kringum okkur.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Ver\u00f0ugt lesefni um eitt h\u00e6ttulegasta mein samt\u00edmans \u00c9g f\u00e9kk t\u00f6lvup\u00f3st fr\u00e1 fr\u00e6\u00f0imanninum, Dr. Iain McGilchrist ge\u00f0l\u00e6kni, sem er \u00ed upp\u00e1haldi hj\u00e1 m\u00e9r og hann m\u00e6lir \u00fear me\u00f0 grein eftir kollega sinn. Greinin vakti athygli m\u00edna og \u00e9g lag\u00f0i \u00ed a\u00f0 \u00fe\u00fd\u00f0a hana og bi\u00f0 lesendur a\u00f0 taka viljann fyrir verki\u00f0. McGilchrist segir um grein H\u00f6nnu [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":2,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_jetpack_newsletter_access":"","_jetpack_dont_email_post_to_subs":false,"_jetpack_newsletter_tier_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paywalled_content":false,"_jetpack_hide_featured_image":false,"_jetpack_featured_image_duplicate_dismissed":0,"_jetpack_feature_clip_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":"","jetpack_post_was_ever_published":false},"categories":[4],"tags":[243,291,457,438,518,521,640],"class_list":["post-6856","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-greinar-og-hugvekjur-articles","tag-gud","tag-heimurinn","tag-mord","tag-motmaeli","tag-rettlaeti","tag-rottaekni","tag-tru"],"jetpack_sharing_enabled":true,"jetpack_featured_media_url":"","_links":{"self":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/6856","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/users\/2"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcomments&post=6856"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/6856\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fmedia&parent=6856"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcategories&post=6856"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Ftags&post=6856"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}