{"id":6803,"date":"2025-09-14T17:50:22","date_gmt":"2025-09-14T17:50:22","guid":{"rendered":"http:\/\/ornbardur.com\/2025\/09\/14\/krossinn-klyfur-klofhuga-heim\/"},"modified":"2025-09-14T17:50:22","modified_gmt":"2025-09-14T17:50:22","slug":"krossinn-klyfur-klofhuga-heim","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/ornbardur.com\/?p=6803","title":{"rendered":"Krossinn kl\u00fdfur klofhuga heim"},"content":{"rendered":"\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Grein \u00e1 Krossmessu a\u00f0 hausti eftir \u00d6rn B\u00e1r\u00f0 J\u00f3nsson<\/p>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-audio\"><audio controls src=\"https:\/\/pub-c849b6aaf98340c4bec7b480b0f7ffe9.r2.dev\/2025\/09\/krossinn-klyfur-klofhuga-heim.m4a\"><\/audio><\/figure>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00cd morgun, 14. september, \u00e1\u00f0ur en \u00e9g h\u00e9lt til messu haf\u00f0i \u00e9g sett inn f\u00e6rslu \u00e1 Facebook \u00fear sem \u00e9g undra\u00f0ist a\u00f0 fr\u00e9tt um fj\u00f6ldag\u00f6ngu f\u00f3lks \u00ed London v\u00e6ri komin ni\u00f0ur \u00e1 5. h\u00e6\u00f0 \u00ed kjallara netsins en \u00e1 1. h\u00e6\u00f0inni v\u00e6ri komin grein um nazistann G\u00f6ring sem var r\u00e9ttilega d\u00e6mdur og drepinn fyrir s\u00ednar misgj\u00f6r\u00f0ir.<\/p>\n\n\n\n<!--more-->\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c9g gagnr\u00fdndi \u00feetta og taldi a\u00f0 R\u00daV v\u00e6ri sofandi og meira en \u00fea\u00f0. Einhver benti \u00e1 a\u00f0 t\u00f6lva ra\u00f0a\u00f0i fr\u00e9ttum eftir aldri og \u00fev\u00ed f\u00e6ru fr\u00e9ttir g\u00e6rdagsins ni\u00f0ur. En m\u00e9r finnst n\u00fa a\u00f0 menn eigi ekki a\u00f0 l\u00fata vilja v\u00e9lmenna sem f\u00e6ra st\u00f3rfr\u00e9tt ni\u00f0ur \u00e1 plan sm\u00e1fr\u00e9ttar og koma henni fyrir \u00e1 5. h\u00e6\u00f0 ne\u00f0anjar\u00f0ar. \u00dea\u00f0 finnst m\u00e9r ekki r\u00f6k fyrir \u00fev\u00ed a\u00f0 leysa fr\u00e9ttamenn undan \u00fev\u00ed a\u00f0 meta gildi fr\u00e9tta og halda \u00feeim vi\u00f0, teljist \u00fe\u00e6r til t\u00ed\u00f0inda og jafnvel hreinna heimsfr\u00e9tta.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00de\u00e1 vildu menn halda fast vi\u00f0 fr\u00e9ttamat og teljara fr\u00e9ttamanna um a\u00f0 fj\u00f6ldinn hef\u00f0i veri\u00f0 um 100 \u00fe\u00fasund manns. Auglj\u00f3st er af myndum a\u00f0 d\u00e6ma a\u00f0 fj\u00f6ldinn var margfaldur \u00fea\u00f0.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">En l\u00e1tum \u00fea\u00f0 n\u00fa vera. Fr\u00e9ttirnar snerust ekki um menn, ekki um fj\u00f6lda \u00feeirra, heldur m\u00e1lefni\u00f0.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00deessi f\u00e6rsla m\u00edn, sem var sem eitt agnarl\u00edti\u00f0 net \u00ed sj\u00f3, dr\u00f3 a\u00f0 s\u00e9r b\u00e6\u00f0i skepnur lofts og jar\u00f0ar, \u00fev\u00ed \u00ed \u00fea\u00f0 fl\u00e6ktist &#8220;fugl og fiskur&#8221;. Voru \u00fear m.a. komnir einstaklingar \u00far &#8220;var\u00f0sveitum vinstrisins&#8221; sem d\u00e6ma hundru\u00f0 \u00fe\u00fasunda Breta sem fasista, almenning sem gekk um g\u00f6tur Lund\u00fana og m\u00f3tm\u00e6lti gj\u00f6rsamlega \u00f3\u00feolandi stefnu stj\u00f3rnvalda \u00fear \u00ed landi um \u00e1rara\u00f0ir, stefnu sem sn\u00fdr a\u00f0 innflytjendum.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>Innflytjendam\u00e1l<\/strong><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00dea\u00f0 er au\u00f0vita\u00f0 kristilegt og g\u00f6fugt a\u00f0 taka vel \u00e1 m\u00f3ti fl\u00f3ttam\u00f6nnum, en \u00feeim er \u00fe\u00e1 \u00e6tla\u00f0 a\u00f0 a\u00f0lagast n\u00fdjum heimkynnum, n\u00fdjum si\u00f0um. \u00dea\u00f0 gera margir sem betur fer, en einn h\u00f3pur sker sig \u00far og heldur fast, frekar fast vi\u00f0 s\u00ednar hef\u00f0ir og \u00ed jafnvel h\u00e9giljur. \u00dea\u00f0 eru <em>m\u00faslimarnir.<\/em><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Fylgjendur <em>islam<\/em> eru upp til h\u00f3pa hi\u00f0 besta f\u00f3lk, en \u00feegar \u00feeir b\u00faa um sig \u00ed gett\u00f3um \u00fear sem <em>sharia<\/em> l\u00f6g eru l\u00e1tin gilda, og klerkaveldi r\u00edkja, \u00fe\u00e1 kann \u00fea\u00f0 ekki g\u00f3\u00f0ri lukku a\u00f0 st\u00fdra.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Til eru h\u00f3fsamir m\u00faslimar og \u00f6fgam\u00faslimar.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Bretum ofb\u00fd\u00f0ur fj\u00f6ldi m\u00faslima, einkum \u00feeirra sem ekki a\u00f0lagast.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Ef okkur er bo\u00f0i\u00f0 \u00ed heims\u00f3kn til f\u00f3lks \u00fe\u00e1 komum vi\u00f0 \u00e1 forsendum gestgjafa og f\u00f6rum a\u00f0 si\u00f0um \u00feeirra og venjum.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>Krossmessa<\/strong><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00cd dag, 14. september, er svonefnd Krossmessa a\u00f0 hausti, a\u00f0 fornum si\u00f0 og var stofna\u00f0 til hennar til a\u00f0 minnast \u00feess a\u00f0 kross Krists mun hafa fundist og hann reistur a\u00f0 n\u00fdju \u00e1 Golgata \u00ed Jer\u00fasalem \u00e1 4. \u00f6ld en \u00fe\u00e1 h\u00f6f\u00f0u kristnir loksins fengi\u00f0 vi\u00f0urkenningu \u00ed R\u00f3maveldi og ofs\u00f3knum var h\u00e6tt gegn \u00feeim. Segir \u00fea\u00f0 miki\u00f0 um kristna kirkju a\u00f0 h\u00fan \u00feoldi ofs\u00f3knir illfygla og gerir enn v\u00ed\u00f0a um heim. Kristnir eru drepnir og enginn m\u00f3tm\u00e6lir h\u00e9r \u00e1 landi, enginn gengur me\u00f0 krossf\u00e1nann okkar, \u00feeim til stu\u00f0nings, me\u00f0an f\u00e1ni Hamas er \u00ed upp\u00e1haldi margra.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Krossinn er merkilegt t\u00e1kn sem \u00ed upphafi var aft\u00f6kut\u00e6ki, hi\u00f0 hr\u00e6\u00f0ilegasta \u00e1 j\u00f6r\u00f0u. H\u00e6ttulegir gl\u00e6pamenn innan R\u00f3maveldis voru krossfestir. S\u00e1 dau\u00f0dagi var og er einn s\u00e1 hr\u00e6\u00f0ilegasti sem menn hafa af illgirni sinni fundi\u00f0 upp.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hinn krossfesti var afkl\u00e6ddur og negldur nakinn \u00e1 kross. Dau\u00f0inn vann sitt verk og eftir hr\u00e6\u00f0ilegar \u00fej\u00e1ningar d\u00f3 hinn \u00fej\u00e1\u00f0i eftir nokkrar klukkustundir. \u00de\u00e1 t\u00f3ku illfyglin vi\u00f0 s\u00e9r og byrju\u00f0u \u00e1 a\u00f0 g\u00e6\u00f0a s\u00e9r \u00e1 augum hins l\u00e1tna. Krossar voru reistir vi\u00f0 fj\u00f6lfarna vegi, almenningi til \u00e1minningar.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Augu Krists sluppu vi\u00f0 illfyglin en hann haf\u00f0i \u00fe\u00f3 heyrt hr\u00f3p \u00feeirra mennsku er \u00feeir h\u00e6ddu hann.<\/p>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-image size-large\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"1011\" height=\"1791\" src=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2025\/09\/img_0405.jpg?w=578\" alt=\"\" class=\"wp-image-6798\" \/><figcaption class=\"wp-element-caption\">Illfygli r\u00e1\u00f0ast \u00e1 krossfesta menn<br \/>Mynd af Wikipediu<\/figcaption><\/figure>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Vinir hans t\u00f3ku l\u00edk hans ni\u00f0ur af krossinum, svo hans bi\u00f0u ekki \u00feau \u00f6rl\u00f6g, sem flestir krossfestir \u00feurftu a\u00f0 \u00feola, a\u00f0 ver\u00f0a illfyglum a\u00f0 br\u00e1\u00f0.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00deetta hr\u00e6\u00f0ilega t\u00e1kn, krossinn, hefur breyzt eftir krossfestingu Krists. Hann sem var Gu\u00f0 \u00e1 j\u00f6r\u00f0u var krossfestur af jar\u00f0neskum heimskingjum. Mundu a\u00f0 or\u00f0i\u00f0 er mynda\u00f0 af heimur. Hinn heimski er fullur af heimsins vizku. \u00deegar f\u00f3lk missir sj\u00f3nar af himninum og s\u00e9r bara hi\u00f0 jar\u00f0neska, s\u00e9r \u00fea\u00f0 l\u00edti\u00f0. Heimsmyndin ver\u00f0ur sk\u00f6kk. \u00c1 endanum sn\u00fdr syndarinn s\u00e9r a\u00f0 eigin mi\u00f0ju og ver\u00f0ur <em>klofhuga <\/em>(n\u00fdyr\u00f0i mitt) eins og sannast \u00e1 samt\u00edmanum.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00deeir sem fl\u00e6ktu f\u00e6tur s\u00edna \u00ed f\u00e6rslu minni fyrr \u00ed dag og f\u00e9llu \u00e1 h\u00f6fu\u00f0i\u00f0, \u00e1 sj\u00e1lfri Krossmessu a\u00f0 hausti, afhj\u00fapu\u00f0u sumir \u00fea\u00f0 sem alltof margir falla \u00ed \u00feegar skipzt er \u00e1 sko\u00f0unum. \u00deeir fara <em>\u00ed manninn<\/em> sem heitir \u00e1 fr\u00e6\u00f0im\u00e1li <em>ad hominem. <\/em>Sl\u00edkt er \u00ed raun banna\u00f0 \u00ed alv\u00f6ru samr\u00e6\u00f0um, en hendir f\u00f3lk oft \u00feegar r\u00f6k skynseminnar \u00fer\u00fdtur.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Er \u00e9g var sestur \u00e1 kirkjubekkinn r\u00e9tt \u00e1\u00f0ur en messan h\u00f3fst, t\u00f3k \u00e9g upp s\u00edmann og eyddi f\u00e6rslunni.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00deetta var\u00f0 \u00e9g a\u00f0 gera eftir a\u00f0 menn h\u00f6f\u00f0u ru\u00f0st fram eins og um einhvern v\u00edgv\u00f6ll v\u00e6ri a\u00f0 r\u00e6\u00f0a. \u00deeir geystust fram me\u00f0 offorsi og margir me\u00f0 <em>ad homin<\/em>em a\u00f0fer\u00f0inni. \u00deeir f\u00f3ru \u00ed manninn en ekki boltann, \u00ed mig en ekki inntak f\u00e6rslunnar.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c9g haf\u00f0i vaki\u00f0 athygli \u00e1 a\u00f0 n\u00fa finndist m\u00f6rgum Bretum n\u00f3g komi\u00f0 af m\u00e1ttleysi stj\u00f3rnvalda \u00ed innflytjendam\u00e1lum.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c9g var kalla\u00f0ur illum n\u00f6fnum, sem \u00ed reynd afhj\u00fapu\u00f0u \u00fe\u00e1 sj\u00e1lfa, sem f\u00f3ru me\u00f0 hva\u00f0 mestu \u00fej\u00f3sti um m\u00edna f\u00e6rslu og pers\u00f3nu.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00deetta er ekki fyrsta f\u00e6rslan sem \u00e9g hef eytt vegna ofbeldisfullra og stj\u00f3rnlausra manna sem kunna ekki mannasi\u00f0i. Sumir \u00feeirra eru b\u00fanir a\u00f0 koma s\u00e9r upp einhverjum pr\u00edvat &#8220;<em>shar\u00edal\u00f6gum&#8221;<\/em> sem \u00feeir einir r\u00e1\u00f0a og beita.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>Einhli\u00f0a heimur e\u00f0a tv\u00edhli\u00f0a?<\/strong><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">B\u00e6ti \u00fev\u00ed h\u00e9r inn til fr\u00f3\u00f0leiks a\u00f0 innan <em>islam<\/em> er ekkert jar\u00f0neskt svi\u00f0 til, bara himneskt og \u00fev\u00ed r\u00e6\u00f0ur Allah \u00f6llu \u00e1 j\u00f6r\u00f0u.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">En Gy\u00f0ingd\u00f3mur og kristni skilja \u00e1 milli skapara og sk\u00f6punar.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Yfir \u00f6llu er skaparinn en sk\u00f6punin er ekki Gu\u00f0 og \u00ed henni eru ekki go\u00f0m\u00f6gn eins og \u00ed hei\u00f0inni hugsun. Af \u00fev\u00ed lei\u00f0ir a\u00f0 ver\u00f6ldin er <em>jar\u00f0nesk <\/em>e\u00f0a <em>sek\u00falar. <\/em>\u00deessi gy\u00f0ing\/kristna hugsun er forsenda allra v\u00edsinda! Lesandinn athugi \u00fea\u00f0!<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Kristnin s\u00e9r ver\u00f6ldina tv\u00edhli\u00f0a, himin og j\u00f6r\u00f0.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Innan <em>islam<\/em> er ekkert <em>sek\u00falert, <\/em>ekkert veraldlegt og \u00feess vegna eru til klerkastj\u00f3rnir sem r\u00e1\u00f0a \u00ed nafni Allah og \u00e1 grundvelli K\u00f3ransins. Veraldars\u00fdn \u00feeirra er einhli\u00f0a.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Gu\u00f0leysi <em>komm\u00fanismans<\/em> er einnig einhli\u00f0a eins og <em>islam<\/em>, en me\u00f0 \u00f6fugum formerkjum. \u00dear er enginn Gu\u00f0, hvorki Allah n\u00e9 Gu\u00f0 kristninnar, bara ma\u00f0urinn me\u00f0 sinn nafla \u00ed efnisheiminum. Engin andleg v\u00eddd er til. Ver\u00f6ldin telst bara vera hi\u00f0 <em>sek\u00falera &#8211; veraldlega!<\/em><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Komm\u00fanistar eru \u00fev\u00ed, a\u00f0 \u00feessu leyti, andlega skyldari islam en kristni.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>Lesum okkur til um Krist<\/strong><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Vi\u00f0 \u00e6ttum \u00f6ll a\u00f0 lesa meir um Krist, mesta hugsu\u00f0 mannkynss\u00f6gunnar, lesa or\u00f0 hans um k\u00e6rleikann og l\u00edka \u00feau or\u00f0 sem hann l\u00e9t falla og sumum l\u00edka\u00f0i ekki, \u00fev\u00ed hann kunni m\u00e6lskulist, kunni s\u00edna <em>rhetor\u00edk<\/em>, og tala\u00f0i gjarnan \u00ed <em>h\u00fdperb\u00f3lum, <\/em>e\u00f0a \u00ed yfirdrifnum st\u00edl. Sagan um bj\u00e1lkann og fl\u00edsina \u00ed auga er ein sl\u00edk <em>h\u00fdperb\u00f3la<\/em>.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">R\u00f3mverjarnir sem \u00fe\u00e1 r\u00e9\u00f0u r\u00edkjum, tr\u00fa\u00f0u bara \u00e1 eigin nafla, eins og komm\u00fanistar gera l\u00edka flestir. A\u00f0 v\u00edsu \u00e1ttu R\u00f3mverjar til gu\u00f0agaller\u00ed me\u00f0 duttlungafullum verum, h\u00e1lfmennskum og h\u00e1lfgu\u00f0legum, sem ekki voru \u00e1 vetur setjandi hva\u00f0 var\u00f0ar ge\u00f0slag e\u00f0a gu\u00f0fr\u00e6\u00f0i.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Allir sem ekki tr\u00faa \u00e1 neitt s\u00e9r \u00e6\u00f0ra, tr\u00faa \u00ed raun \u00e1 sj\u00e1lfa sig, \u00e1 eigin nafla.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00deannig \u00feenkjandi menn t\u00f3ku merkustu pers\u00f3nu mannkynss\u00f6gunnar, t\u00f3ku Jes\u00fa og krossfestu hann \u00ed alfaralei\u00f0, nakinn og alsnau\u00f0an. \u00cd hef\u00f0 kirkjunnar er hann sveipa\u00f0ur kl\u00e6\u00f0i um lendar s\u00e9r en l\u00edklega var hann allsnakinn. Hann var n\u00fdddur af valdinu og skr\u00edlnum \u00e1 eins ni\u00f0url\u00e6gjandi h\u00e1tt og unnt var a\u00f0 s\u00fdna nokkrum manni.<\/p>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-image size-large\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"2000\" height=\"1676\" src=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2025\/09\/img_0402.jpg?w=1024\" alt=\"\" class=\"wp-image-6797\" \/><figcaption class=\"wp-element-caption\">Kristur \u00e1 krossinum &#8211;<br \/>m\u00e1la\u00f0 af h\u00f6fundi greinarinnar \u00e1 pappakassa<\/figcaption><\/figure>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>Vafas\u00f6m \u00f6fl<\/strong><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Valdi\u00f0 vill ekki a\u00f0 \u00fev\u00ed s\u00e9 \u00f6gra\u00f0 e\u00f0a \u00fea\u00f0 lei\u00f0r\u00e9tt og valdi\u00f0 \u00e1 \u00e6t\u00ed\u00f0 sinn fylgispaka skr\u00edl sem eltir \u00ed blindni og tr\u00fa \u00e1 ofbeldi og sk\u00edtkast, skr\u00edl sem beitir <em>ad hominem<\/em> sp\u00f6rkum \u00ed k\u00e1lfa og sk\u00f6flunga \u00feeirra sem \u00feeir eru \u00f3samm\u00e1la og hata.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c1 hva\u00f0a vegfer\u00f0 er heimurinn sem hatar kirkju og kristni, hata\u00f0i Charlie Kirk v.\u00fe.a. hann vildi minna \u00e1 grunngildi Vesturlanda, kristna tr\u00fa og fj\u00f6lskyldul\u00edf. Taktu eftir eftirnafni hans sem v\u00edsar \u00ed kirkjuna og er komi\u00f0 \u00far norr\u00e6nu og fornensku, kirk\/kirkja. Hann tala\u00f0i gegn <em>kynuslanum<\/em> sem er s\u00e1larmein samt\u00edmans sem erfitt er a\u00f0 koma fyrir innan alv\u00f6ru v\u00edsinda. \u00c1r\u00f3\u00f0ur, um a\u00f0 b\u00f6rn viti ekki hvort \u00feau s\u00e9u karlkyns e\u00f0a kvenkyns, er herna\u00f0ur gegn s\u00e1larl\u00edfi barna og sj\u00e1lfsmynd, gl\u00e6pur gegn bernskunni. \u00deau geta p\u00e6lt \u00ed sl\u00edkum fab\u00falum \u00feegar \u00feau ver\u00f0a eldri og \u00e1 eigin forsendum en ekki undir \u00fer\u00fdstingi \u00f6fgatr\u00faarf\u00f3lks sem f\u00e6r a\u00f0 va\u00f0a inn \u00ed sk\u00f3la me\u00f0 hugmyndir sem engin raunveruleg v\u00edsindi sta\u00f0festa.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Kirk tala\u00f0i m.a. \u00ed <em>h\u00fdperb\u00f3lum, <\/em>ydda\u00f0i m\u00e1lflutning sinn, tala\u00f0i \u00ed sk\u00fdrum andst\u00e6\u00f0um, en var tilb\u00fainn a\u00f0 r\u00f6kr\u00e6\u00f0a vi\u00f0 alla, l\u00edka har\u00f0a andst\u00e6\u00f0inga, og reyndi a\u00f0 for\u00f0ast a\u00f0 ni\u00f0url\u00e6gja \u00fe\u00e1. Hann h\u00e9lt fram klass\u00edskum kristnum gildum sem \u00d6LL Vesturl\u00f6nd hafa hinga\u00f0 til byggt \u00e1 s\u00ednar hugmyndir um mannl\u00edf og mannr\u00e9ttindi. Au\u00f0vita\u00f0 var\u00f0 honum einhverju sinni \u00e1 \u00ed messunni eins og okkur \u00f6llum, en \u00e1 heildina liti\u00f0 telja millj\u00f3nir a\u00f0 hann hafi veri\u00f0 heilsteyptur ma\u00f0ur og talsma\u00f0ur hef\u00f0bundinna, hollra gilda.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Marxismi, feminismi og einhli\u00f0a veraldarhyggja r\u00e1\u00f0ast gegn hinu hef\u00f0bundna. \u00dear fer styrj\u00f6ldin fram sem mestu skiptir fyrir framt\u00ed\u00f0 heimsins. Sigrar Kristur e\u00f0a heimskan, gu\u00f0 heimsins, heimskunnar, einhli\u00f0a veraldarhyggjunnar?<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">V\u00ed\u00f0a um l\u00f6nd hefur f\u00f3lks stigi\u00f0 fram og beitt s\u00e9r af h\u00f6rku gegn \u00feeim sem ekki eru tilb\u00fanir a\u00f0 samsinna tveimur \u00fareltum hugmyndaheimum, <em>fasisma <\/em>og\/e\u00f0a <em>marxisma. <\/em>B\u00e1\u00f0ar \u00feessar helstefnur leiddu af s\u00e9r h\u00f6rmungar yfir heiminn og gera enn.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c9g tala gegn \u00fev\u00ed sem \u00f3gnar kristnum gildum og kristinni tr\u00fa. Heimurinn hefur aldrei \u00e1tt betri kenningar en \u00fe\u00e6r sem Kristur og fylgjendur hans bo\u00f0u\u00f0u og mun aldrei eignast.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Kristnu f\u00f3lki hefur lengst af tekist a\u00f0 n\u00fdta \u00fea\u00f0 bezta fr\u00e1 h\u00e6gri og vinstri og st\u00e6rstan hluta \u00feeirra tel \u00e9g vera \u00e1 mi\u00f0junni \u00ed p\u00f3lit\u00edk.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c9g set p\u00f3lit\u00edskar stefnur gjarnan \u00e1 klukkusk\u00edfu til a\u00f0 einfalda tj\u00e1ningu m\u00edna.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Klukkan 6 er mi\u00f0jan.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Skynsamt f\u00f3lk er margt \u00e1 bilinu \u00e1 milli klukkan 5 og 7 \u00ed p\u00f3lit\u00edskum sko\u00f0unum.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Ef f\u00f3lk er b\u00fai\u00f0 a\u00f0 koma s\u00e9r fyrir klukkan 9 vinstra megin e\u00f0a 3 h\u00e6gra megin, \u00fe\u00e1 eru sko\u00f0anirnar or\u00f0nar all nokku\u00f0 ydda\u00f0ar.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Ef vi\u00f0 f\u00f6rum svo lengra me\u00f0 vinstri\u00f0 og h\u00e6gri\u00f0 og setjum \u00fe\u00e6r stefnum \u00e1 sk\u00edfuna, vinstri\u00f0 kl. 11 a\u00f0 kv\u00f6ldi en h\u00e6gri\u00f0 kl. 1 a\u00f0 n\u00f3ttu, \u00fe\u00e1 er n\u00fa stutt \u00ed a\u00f0 <em>vinstri\u00f0 <\/em>og<em> fasi\u00f0<\/em> sameinist \u00e1 mi\u00f0n\u00e6tti og fallist \u00ed fa\u00f0ma \u00feegar klukkan sl\u00e6r 12!<\/p>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-image size-large\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"1745\" height=\"1719\" src=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2025\/09\/img_0406.jpg?w=1024\" alt=\"\" class=\"wp-image-6799\" \/><figcaption class=\"wp-element-caption\">H\u00e9r er t\u00falkun sem kallast \u00e1 vi\u00f0 klukkuhugmynd h\u00f6fundar<\/figcaption><\/figure>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>A\u00f0 h\u00e6tta a\u00f0 spyrna m\u00f3ti broddunum<\/strong><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">A\u00f0 endingu er h\u00e9r fr\u00e1s\u00f6gn Postulas\u00f6gunnar \u00ed NT af breyttum a\u00f0st\u00e6\u00f0um S\u00e1ls, sem var \u00e1 m\u00f3ti kristnum og ofs\u00f3tti \u00fe\u00e1. Hann var \u00e1 lei\u00f0 til Damaskus til \u00feess a\u00f0 handtaka kristi\u00f0 f\u00f3lk, en var\u00f0 \u00fe\u00e1 fyrir reynslu, sem sneri honum til kristinnar tr\u00faar og ger\u00f0i S\u00e1l a\u00f0 P\u00e1li postula. S\u00e1l talar h\u00e9r til Agrippa konungs, sem haf\u00f0i hneppt hann \u00ed var\u00f0hald. Hann ver sig eins og fyrir d\u00f3mi og segir fr\u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 hann hafi veri\u00f0 \u00ed \u00feeim erindagj\u00f6r\u00f0um a\u00f0 handtaka kristi\u00f0 f\u00f3lk a\u00f0 skipun \u00e6\u00f0stu presta gy\u00f0inga \u00ed Jer\u00fasalem. Heyrum varnarr\u00e6\u00f0u S\u00e1ls:<\/p>\n\n\n\n<blockquote class=\"wp-block-quote is-layout-flow wp-block-quote-is-layout-flow\">\n<p class=\"wp-block-paragraph\">12 \u00de\u00e1 er \u00e9g var \u00e1 lei\u00f0 til Damaskus sl\u00edkra erinda me\u00f0 vald og umbo\u00f0 fr\u00e1 \u00e6\u00f0stu prestunum 13 s\u00e1 \u00e9g, konungur, \u00e1 veginum um mi\u00f0jan dag lj\u00f3s af himni s\u00f3lu bjartara leiftra um mig og \u00fe\u00e1 sem m\u00e9r voru samfer\u00f0a. 14 Vi\u00f0 f\u00e9llum allir til jar\u00f0ar og \u00e9g heyr\u00f0i r\u00f6dd er sag\u00f0i vi\u00f0 mig \u00e1 hebresku: S\u00e1l, S\u00e1l, hv\u00ed ofs\u00e6kir \u00fe\u00fa mig? Erfitt ver\u00f0ur \u00fe\u00e9r a\u00f0 spyrna m\u00f3ti broddunum. 15 En \u00e9g sag\u00f0i: Hver ert \u00fe\u00fa, herra? Og Drottinn sag\u00f0i: \u00c9g er Jes\u00fas sem \u00fe\u00fa ofs\u00e6kir. 16 R\u00eds n\u00fa upp og statt \u00e1 f\u00e6tur. \u00c9g birtist \u00fe\u00e9r til \u00feess a\u00f0 \u00fe\u00fa \u00fej\u00f3nir m\u00e9r og segir fr\u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fe\u00fa hefur s\u00e9\u00f0 mig b\u00e6\u00f0i n\u00fa og s\u00ed\u00f0ar er \u00e9g mun birtast \u00fe\u00e9r. 17 \u00c9g mun senda \u00feig til Gy\u00f0inga og hei\u00f0ingja og vernda \u00feig fyrir \u00feeim. 18 \u00de\u00fa \u00e1tt a\u00f0 opna augu \u00feeirra og sn\u00faa \u00feeim fr\u00e1 myrkri til lj\u00f3ss, fr\u00e1 valdi Satans til Gu\u00f0s, til \u00feess a\u00f0 \u00feeir tr\u00fai \u00e1 mig og \u00f6\u00f0list fyrirgefningu syndanna og arf me\u00f0 \u00feeim sem helga\u00f0ir eru.<br \/>19 Fyrir \u00fev\u00ed ger\u00f0ist \u00e9g, Agrippa konungur, eigi \u00f3hl\u00fd\u00f0inn hinni himnesku vitrun 20 heldur bo\u00f0a\u00f0i \u00e9g fyrst \u00feeim \u00ed Damaskus og \u00ed Jer\u00fasalem, s\u00ed\u00f0an um alla J\u00fadeubygg\u00f0 og hei\u00f0ingjunum a\u00f0 taka sinnaskiptum og sn\u00faa s\u00e9r til Gu\u00f0s og s\u00fdna \u00fea\u00f0 \u00ed verki. 21 Sakir \u00feessa gripu Gy\u00f0ingar mig \u00ed helgid\u00f3minum og reyndu a\u00f0 r\u00e1\u00f0a m\u00e9r bana. 22 En Gu\u00f0 hefur hj\u00e1lpa\u00f0 m\u00e9r og \u00fev\u00ed stend \u00e9g allt til \u00feessa dags og vitna b\u00e6\u00f0i fyrir h\u00e1um og l\u00e1gum. M\u00e6li \u00e9g ekki anna\u00f0 en \u00fea\u00f0 sem b\u00e6\u00f0i sp\u00e1mennirnir og M\u00f3se hafa sagt a\u00f0 ver\u00f0a mundi, 23 a\u00f0 Kristur \u00e6tti a\u00f0 l\u00ed\u00f0a og fyrstur r\u00edsa upp fr\u00e1 dau\u00f0um og bo\u00f0a b\u00e6\u00f0i Gy\u00f0ingum og hei\u00f0ingjunum lj\u00f3si\u00f0.\u201c<\/p>\n<\/blockquote>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-image size-large\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"1146\" height=\"1040\" src=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2025\/09\/img_0408.jpg?w=1024\" alt=\"\" class=\"wp-image-6800\" \/><figcaption class=\"wp-element-caption\">Mynd af Vefnum<\/figcaption><\/figure>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Og enn spyrna menn m\u00f3t broddunum og \u00feola ekki hina heiln\u00e6mu kenningu Krists, sem vill beina \u00feeim \u00e1 r\u00e9ttan veg. \u00deeir munu allir \u00feurfa a\u00f0 horfast \u00ed augu vi\u00f0 eigin villu \u00ed fyllingu t\u00edmans er \u00feeir sj\u00e1 a\u00f0 ver\u00f6ldin er tv\u00edhli\u00f0a, himinn og j\u00f6r\u00f0, hi\u00f0 heilaga og hi\u00f0 sek\u00falera.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00cd Fyrra Korintubr\u00e9fi 1:18 segir P\u00e1ll:<\/p>\n\n\n\n<blockquote class=\"wp-block-quote is-layout-flow wp-block-quote-is-layout-flow\">\n<p class=\"wp-block-paragraph\">18 \u00dev\u00ed a\u00f0 or\u00f0 krossins er heimska \u00feeim er stefna \u00ed gl\u00f6tun en okkur sem h\u00f3lpin ver\u00f0um er \u00fea\u00f0 kraftur Gu\u00f0s. 19 Rita\u00f0 er:<\/p>\n<\/blockquote>\n\n\n\n<blockquote class=\"wp-block-quote is-layout-flow wp-block-quote-is-layout-flow\">\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c9g mun ey\u00f0a speki spekinganna<\/p>\n<\/blockquote>\n\n\n\n<blockquote class=\"wp-block-quote is-layout-flow wp-block-quote-is-layout-flow\">\n<p class=\"wp-block-paragraph\">og hyggindi hyggindamannanna mun \u00e9g a\u00f0 engu gera.<\/p>\n<\/blockquote>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Flettu upp \u00e1 Fyrra Korintubr\u00e9fi \u00ed NT og lestu allan 1. kaflann og helzt allt br\u00e9fi\u00f0!<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">A\u00f0 endingu vil \u00e9g ekki l\u00e1ta hj\u00e1 l\u00ed\u00f0a a\u00f0 geta \u00feess a\u00f0 \u00e9g \u00feekki komm\u00fanista, vinstrimenn og krata og ennfremur h\u00e6gri menn n\u00e1l\u00e6gt mi\u00f0ju og lengra fr\u00e1 henni. Innan allra \u00feessara stefna \u00feekki \u00e9g gott f\u00f3lk og \u00e6tla alls ekki a\u00f0 d\u00e6ma allt litr\u00f3f stj\u00f3rnm\u00e1lanna, f\u00f3lki\u00f0 til h\u00e6gri og vinsti, fyrir sko\u00f0anir s\u00ednar, en \u00e9g er ekki samm\u00e1la hverju sem er. Sumt \u00ed kenningum stj\u00f3rnm\u00e1lanna kallast \u00e1 vi\u00f0 kristna tr\u00fa og gildi, en ekkert kemur, a\u00f0 m\u00ednu mati, \u00ed sta\u00f0inn fyrir einl\u00e6ga og heilsteypta tr\u00fa, sem hefur n\u00e1\u00f0 til hjartans og m\u00f3tar manneskjuna. Eitt er a\u00f0 \u00feekkja hi\u00f0 g\u00f3\u00f0a \u00ed kristninni, en hitt er svo a\u00f0 leyfa \u00fev\u00ed aldrei a\u00f0 skj\u00f3ta r\u00f3tum \u00ed s\u00e1linni.<\/p>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-image size-large\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"1543\" height=\"1788\" src=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2025\/09\/img_0407.jpg?w=884\" alt=\"\" class=\"wp-image-6801\" \/><figcaption class=\"wp-element-caption\">Kristur &#8211; vatnslitamynd eftir h\u00f6fundinn &#8211; <br \/>st\u00e6kku\u00f0 og sett \u00ed stafr\u00e6nt samhengi<\/figcaption><\/figure>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Bendi svo \u00e1 n\u00fdlega grein m\u00edna \u00ed 2 hlutum undir heitinu: &#8220;Hva\u00f0 \u00f3gnar Vesturl\u00f6ndum&#8221; en \u00fear fr\u00e6\u00f0i \u00e9g m.a. um <em>islam<\/em> \u00fat fr\u00e1 tr\u00faarbrag\u00f0afr\u00e6\u00f0i, s\u00f6gu og samt\u00ed\u00f0.<\/p>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-embed is-type-wp-embed is-provider-rn-b-r-ur-j-nsson-and-quot-bard-art-quot wp-block-embed-rn-b-r-ur-j-nsson-and-quot-bard-art-quot\"><div class=\"wp-block-embed__wrapper\">\nhttp:\/\/localhost:8081\/2025\/09\/03\/hvad-ognar-vesturlondum-i\/\n<\/div><\/figure>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c9g \u00feakka \u00feeim er l\u00e1su og\/e\u00f0a hl\u00fdddu \u00e1.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">G\u00f3\u00f0ar stundir!<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Grein \u00e1 Krossmessu a\u00f0 hausti eftir \u00d6rn B\u00e1r\u00f0 J\u00f3nsson \u00cd morgun, 14. september, \u00e1\u00f0ur en \u00e9g h\u00e9lt til messu haf\u00f0i \u00e9g sett inn f\u00e6rslu \u00e1 Facebook \u00fear sem \u00e9g undra\u00f0ist a\u00f0 fr\u00e9tt um fj\u00f6ldag\u00f6ngu f\u00f3lks \u00ed London v\u00e6ri komin ni\u00f0ur \u00e1 5. h\u00e6\u00f0 \u00ed kjallara netsins en \u00e1 1. h\u00e6\u00f0inni v\u00e6ri komin grein um nazistann [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":2,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_jetpack_newsletter_access":"","_jetpack_dont_email_post_to_subs":false,"_jetpack_newsletter_tier_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paywalled_content":false,"_jetpack_hide_featured_image":false,"_jetpack_featured_image_duplicate_dismissed":0,"_jetpack_feature_clip_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":"","jetpack_post_was_ever_published":false},"categories":[4],"tags":[166,243,246,291,333,409,518,542,602,640,673,688],"class_list":["post-6803","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-greinar-og-hugvekjur-articles","tag-elska","tag-gud","tag-gudfraedi","tag-heimurinn","tag-jesus","tag-ljosid","tag-rettlaeti","tag-sannleikur","tag-stjornmal","tag-tru","tag-vatnslitir","tag-veroldin"],"jetpack_sharing_enabled":true,"jetpack_featured_media_url":"","_links":{"self":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/6803","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/users\/2"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcomments&post=6803"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/6803\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fmedia&parent=6803"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcategories&post=6803"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Ftags&post=6803"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}