{"id":6733,"date":"2025-09-03T16:13:02","date_gmt":"2025-09-03T16:13:02","guid":{"rendered":"http:\/\/ornbardur.com\/2025\/09\/03\/hvad-ognar-vesturlondum-i\/"},"modified":"2025-09-03T16:13:02","modified_gmt":"2025-09-03T16:13:02","slug":"hvad-ognar-vesturlondum-i","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/ornbardur.com\/?p=6733","title":{"rendered":"Hva\u00f0 \u00f3gnar Vesturl\u00f6ndum? I"},"content":{"rendered":"\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>\u00dea\u00f0 sem f\u00e1ir \u00feora a\u00f0 tala um<\/strong><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Grein eftir \u00d6rn B\u00e1r\u00f0 J\u00f3nsson sem les<\/p>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-image size-large\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"1657\" height=\"892\" src=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2025\/09\/img_0363.jpg?w=1024\" alt=\"\" class=\"wp-image-6731\" \/><\/figure>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-audio\"><audio controls src=\"https:\/\/pub-c849b6aaf98340c4bec7b480b0f7ffe9.r2.dev\/2025\/09\/hvad-ognar-vesturlondum-i.m4a\"><\/audio><\/figure>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>Fyrri hluti<\/strong><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>I. Framandi menning og si\u00f0ir<\/strong><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Margt er \u00fea\u00f0 sem \u00f3gnar Vesturl\u00f6ndum og \u00feeirri menningu sem hefur sprotti\u00f0 fram innan \u00feeirra og teki\u00f0 aldir a\u00f0 \u00fer\u00f3a.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">A\u00f0 margra \u00e1liti er \u00fea\u00f0 andvaraleysi sem er a\u00f0 gera \u00fat af vi\u00f0 menningu okkar.<\/p>\n\n\n\n<!--more-->\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>N\u00fdjar breytur<\/strong><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Samf\u00e9lagsmi\u00f0lar hafa \u00e1 s\u00e9r tv\u00e6r hli\u00f0ar. \u00de\u00e1 m\u00e1 nota \u00e1 skynsamlegan h\u00e1tt, en \u00ed l\u00e6kjum \u00feeirra rennur \u00fe\u00f3 \u00f3tal margt sem skemmir. M\u00f6rg samf\u00e9l\u00f6g eru or\u00f0in eins og eiturlyfjasj\u00faklingur sem sprautar sig beint \u00ed \u00e6\u00f0. Samf\u00e9lagsmi\u00f0larnir eru fullir af bulli og andlegu eitri sem sl\u00e6vir f\u00f3lk og sker\u00f0ir d\u00f3mgreind \u00feess. Frakkar \u00edhuga n\u00fa a\u00f0 banna b\u00f6rnum undir 15 \u00e1ra aldri a\u00f0 nota samf\u00e9lagsmi\u00f0la. \u00c6ttum vi\u00f0 a\u00f0 brega\u00f0ast vi\u00f0 \u00e1 l\u00edkan h\u00e1tt? (Sj\u00e1 t.d. h\u00e9r: https:\/\/mannlif.is\/greinar\/frakkar-leggja-til-ad-banna-bornum-ad-nota-samfelagsmidla\/)<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00d3gnir samt\u00edmans eru margar. \u00deessi fr\u00e9tt birtist t.d. \u00e1 mbl.is 1. ma\u00ed 2025:<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">&#8220;S\u00e6nsk\u00adur bla\u00f0ama\u00f0ur hef\u00adur veri\u00f0 d\u00e6md\u00adur \u00ed 11 m\u00e1na\u00f0a skil\u00ador\u00f0sbundi\u00f0 fang\u00adelsi \u00ed Tyrklandi fyr\u00adir a\u00f0 m\u00f3\u00f0ga for\u00adseta lands\u00adins, Recep Tayyip Er\u00addog\u00adan. Hann g\u00e6ti \u00fe\u00f3 \u00e1tt yfir h\u00f6f\u00f0i s\u00e9r mun \u00feyngri d\u00f3m vegna \u00e1sak\u00adana tyrk\u00adneska r\u00edk\u00adis\u00adins um hry\u00f0ju\u00adverk.&#8221;<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">R\u00edki islams \u00feola illa gagnr\u00fdni og frelsi \u00edb\u00faanna er af mj\u00f6g skornum skammti.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Sama \u00f3gn ste\u00f0jar einnig a\u00f0 vestr\u00e6num l\u00fd\u00f0r\u00e6\u00f0isr\u00edkjum. \u00cd London var 71 \u00e1rs, fv. l\u00f6gregluma\u00f0ur handtekinn og ger\u00f0 h\u00fasleit hj\u00e1 honum, fyrir a\u00f0 hafa skrifa\u00f0 f\u00e6rslu \u00e1 Neti\u00f0 me\u00f0 athugasemd um framfer\u00f0i f\u00f3lks sem studdi m\u00e1lsta\u00f0 Palest\u00ednu \u00ed m\u00f3tm\u00e6lag\u00f6ngu. Sex l\u00f6grelgumenn komu heim til hans, handj\u00e1rnu\u00f0u hann og t\u00e6mdu alla sk\u00e1pa og sk\u00faffur \u00ed leit a\u00f0 g\u00f6gnum sem g\u00e6tu sanna\u00f0 a\u00f0 hann v\u00e6ri \u00f6fgama\u00f0ur. Hann var l\u00e1tinn d\u00fasa \u00ed fangaklefa \u00ed 8 klukkustundir. Sem betur fer, ba\u00f0 l\u00f6grelgan hann afs\u00f6kunar \u00e1 tilefnislausri h\u00fasleit og handt\u00f6ku. (The Telegraph 10. ma\u00ed 2025)<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">A\u00f0ger\u00f0ir \u00cdsraelsmanna \u00ed Palest\u00ednu, vir\u00f0ast oftar en ekki, s\u00e9\u00f0ar me\u00f0 eineyg\u00f0um fr\u00e9ttam\u00f6nnum h\u00e9r \u00e1 landi. F\u00e1ir \u00feeirra reyna a\u00f0 sko\u00f0a m\u00e1li\u00f0 fr\u00e1 \u00f6\u00f0rum hli\u00f0um en \u00feeirri sem Hamas st\u00fdrir. J\u00e1, taktu eftir, \u00e1r\u00f3\u00f0ur Hamas st\u00fdrir algj\u00f6rlega hugsun sumra fr\u00e9ttamanna \u00ed landinu.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Og \u00e9g spyr: Hvar er f\u00f3lki\u00f0 sem fara \u00e6tti \u00ed kr\u00f6fug\u00f6ngu fyrir \u00fev\u00ed a\u00f0 Hamas l\u00e1ti af \u00feeirri stefnu a\u00f0 drepa skuli alla Gy\u00f0inga heimsins og \u00fatr\u00fdma \u00cdsraelsr\u00edki?<\/p>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-image size-large\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"1257\" height=\"1234\" src=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2025\/09\/img_0361.jpg?w=1024\" alt=\"\" class=\"wp-image-6728\" \/><figcaption class=\"wp-element-caption\">Fr\u00e9tt fra jan\u00faar 2024 um hatursgl\u00e6pi \u00e1 Englandi og \u00ed Wales gegn Gy\u00f0ingum<\/figcaption><\/figure>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>A\u00f0 ford\u00e6ma<\/strong><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c9g hef veri\u00f0 snupra\u00f0ur af f\u00f3lki sem telur sig \u00feekkja s\u00f6guna betur en \u00e9g. \u00c1st\u00e6\u00f0an er s\u00fa a\u00f0 \u00e9g hef kennt Hamas um uppt\u00f6k \u00feeirra \u00e1taka sem n\u00fa eiga s\u00e9r sta\u00f0 \u00ed Palest\u00ednu, allt fr\u00e1 7. okt\u00f3ber 2023. \u00deeir tala um a\u00f0 \u00e9g kunni ekki s\u00f6guna og hafi ekkert lesi\u00f0. Hamas framdi <em>pogrom<\/em> en \u00fea\u00f0 hugtak nota\u00f0 um a\u00f0 drepa gy\u00f0inga \u00ed h\u00f3pum og er \u00feekkt \u00ed s\u00f6gunni.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c9g hef \u00fe\u00f3 lesi\u00f0 s\u00f6gu \u00cdsreals fr\u00e1 upphafi vega, m\u00f6rg \u00fe\u00fasund \u00e1ra gamla s\u00f6gu og fylgst me\u00f0 \u00cdsraelsr\u00edki fr\u00e1 \u00fev\u00ed \u00e9g komst til vits og \u00e1ra. Kynsl\u00f3\u00f0 foreldra minna man vel stofnun \u00cdsraelsr\u00edkis 1948, sem \u00cdsland studdi \u00e1 vettvangi Sameinu\u00f0u \u00fej\u00f3\u00f0anna.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Fimm arabar\u00edki r\u00e9\u00f0ust \u00e1 \u00cdsrael \u00e1 fyrstu tilvistard\u00f6gum \u00feess. \u00cdsrael hefur svara\u00f0 \u00e1r\u00e1sum e\u00f0a sk\u00e6rum araba \u00ed \u00e1ranna r\u00e1s: 1948-49, 1956, 1967, 1973, 1982, 2006 og 2023 til okkar daga. Fyrir stofnun \u00cdsraelsr\u00edkis r\u00e9\u00f0ust arabar \u00e1 Gy\u00f0inga \u00ed Pales\u00ednu \u00e1ri\u00f0 1921 (Jaffa-\u00f3eir\u00f0irnar) og aftur nokkrum \u00e1rum s\u00ed\u00f0ar. H\u00e9r er sl\u00f3\u00f0 um \u00e1r\u00e1sir araba \u00e1 Gy\u00f0inga \u00ed Palest\u00ednu allt fr\u00e1 \u00e1rinu 1517 til 2023: https:\/\/www.reddit.com\/r\/Israel\/comments\/1dag6gn\/arab_palestinian_attacks_on_jews_since_1517\/<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">&#8220;Vitringana&#8221; sem \u00feykjast \u00feekkja s\u00f6guna betur en \u00e9g, spyr \u00e9g: Hva\u00f0a s\u00f6gu hafi\u00f0 \u00fei\u00f0 lesi\u00f0? Sagan er nefnilega ekki ein, h\u00fan er m\u00f6rg. Hver skrifa\u00f0i s\u00f6guna sem \u00fe\u00fa hefur lesi\u00f0? \u00c9g leyfi m\u00e9r a\u00f0 fullyr\u00f0a a\u00f0 fyrrnefndir &#8220;vitringar&#8221; hafa ekki lesi\u00f0 nema brot af \u00fev\u00ed sem \u00e9g hef lesi\u00f0.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c9g l\u00e6t ekki s\u00f6gu, sem ritu\u00f0 er af m\u00faslimum e\u00f0a \u00f6fgahreyfingum innan <em>islam<\/em>, stj\u00f3rna skilningi m\u00ednum \u00e1 \u00cdsrael e\u00f0a m\u00e1lflutning annarra nytsamra sakleysingja \u00e1 bandi <em>islam<\/em>. \u00deeir eiga s\u00edna fulltr\u00faa \u00ed fj\u00f6lmi\u00f0lum, sem reka einhli\u00f0a \u00e1r\u00f3\u00f0ur \u00ed hverjum fr\u00e9ttat\u00edmanum \u00e1 f\u00e6tur \u00f6\u00f0rum h\u00e9r \u00e1 landi.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c9g kaupi ekki heldur s\u00f6gu sem sk\u00e1ldu\u00f0 er af komm\u00fanistum, s\u00f3sialistum e\u00f0a feministum me\u00f0 marx\u00edsk gleraugu \u00e1 nefi s\u00ednu sem gefa \u00e6t\u00ed\u00f0 tveggja p\u00f3la ni\u00f0urst\u00f6\u00f0u: k\u00fagarinn og hin k\u00fagu\u00f0u. \u00deessi einf\u00f6ldun s\u00f6gunnar er ein lj\u00f3tasta f\u00f6lsun sem \u00e1tt hefur s\u00e9r sta\u00f0 \u00ed s\u00f6gu mannsandans. Henni m\u00e1 l\u00edkja vi\u00f0 t\u00f6lvuv\u00edrus sem eitrar allt.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hver skrifar s\u00f6guna? Hva\u00f0a s\u00f6gu lest \u00fe\u00fa? Ert \u00fe\u00fa \u00ed h\u00f3pi \u00feeirra sem ganga \u00ed k\u00e6rleiksv\u00edmu \u00ed kr\u00f6fug\u00f6ngum \u00ed einhli\u00f0a og me\u00f0virkri elsku og sj\u00e1 ekki heildarmyndina? F\u00f3lki\u00f0 sem gengur undir f\u00e1na Palest\u00ednu h\u00e9r \u00e1 landi sty\u00f0ur nefnilega Hamas, me\u00f0vita\u00f0 e\u00f0a \u00f3me\u00f0vita\u00f0 um \u00fe\u00e1 reginvillu s\u00edna.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00cdsrael er umkringt af brj\u00e1lu\u00f0u f\u00f3lki, sem vill ey\u00f0a r\u00edkinu og drepa hvern einasta Gy\u00f0ing. F\u00f3lki\u00f0 \u00e1 Gaza kaus yfir sig Hamas, hryllilegasta h\u00f3p villid\u00fdar, sem \u00e1 j\u00f6r\u00f0inni lifa um \u00feessar mundir. \u00deau kusu Hamas yfir sig \u00ed l\u00fd\u00f0r\u00e6\u00f0islegum kosningum! Hamas vill ekki neina samninga, \u00fev\u00ed \u00fe\u00e1 ver\u00f0a \u00feeir a\u00f0 h\u00e6tta a\u00f0 d\u00fdrka dau\u00f0ann. Hamas er nefnilega dau\u00f0ak\u00f6lt. \u00c9g veit ekki hvort almenningur skilur sl\u00edkt brj\u00e1l\u00e6\u00f0i, hve \u00f3gnardj\u00fapt \u00fea\u00f0 er og dj\u00f6fullegt og svo langt fr\u00e1 heilbrig\u00f0ri skynsemi sem &#8220;austri\u00f0 er fr\u00e1 vestrinu&#8221;.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Einn af stofnendum Hamas, Mahmoud al Zahar tilkynnti eftirfarandi \u00ed desember 2022:<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Vi\u00f0 erum ekki a\u00f0 tala um a\u00f0 frelsa landi\u00f0 okkar&#8230;. Allir 510 millj\u00f3n ferk\u00edl\u00f3metrar pl\u00e1netunnar J\u00f6r\u00f0 munu falla undir [kerfi\u00f0] \u00fear sem enginn \u00f3r\u00e9ttur ver\u00f0ur, engin k\u00fagun, enginn Z\u00edonismi, enginn svikull Kristind\u00f3mur . . .<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">(S.33-34 \u00ed rafb\u00f3kinni The Builder&#8217;s Stone: How Jews and Chistians Built the West &#8211; and Why Only They Can Save It, eftir Melanie Philips)<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Markmi\u00f0 Hamas eru sk\u00fdr &#8211; ey\u00f0ing alls sem ekki er undir sharia-l\u00f6gum islam.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Og n\u00fa st\u00edga fram forystumenn nokkurra l\u00fd\u00f0r\u00e6\u00f0isr\u00edkja og vilja vi\u00f0urkenna Palest\u00ednu! Hva\u00f0a p\u00f3lit\u00edska keiluspil er n\u00fa \u00ed gangi? Var Palest\u00edna ekki frj\u00e1ls? Voru ekki haldnar l\u00fd\u00f0r\u00e6\u00f0islegar kosningar? Og f\u00f3lki\u00f0 kaus Hamas! F\u00f3lki\u00f0 kaus yfir sig mor\u00f0ingja og brj\u00e1l\u00e6\u00f0inga. Nytsamir sakleysingjar kusu yfir sig menn sem l\u00edta \u00e1 eigi\u00f0 f\u00f3lk eins og f\u00e9 sem lei\u00f0a m\u00e1 stil sl\u00e1trunar undir merkjum m\u00e1lsta\u00f0ar um a\u00f0 ey\u00f0a skuli Gy\u00f0ingum og \u00cdsrael.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00cdsreal er sem klettur \u00ed hafi m\u00faslimskra \u00fej\u00f3\u00f0a sem umkringja r\u00edki Gy\u00f0inga og ef \u00feeim tekst a\u00f0 ey\u00f0a \u00cdsrael \u00fe\u00e1 er \u00fea\u00f0 a\u00f0eins fyrsta stoppust\u00f6\u00f0. Evr\u00f3pa b\u00ed\u00f0ur og vegna andvaraleysis, me\u00f0 dyr s\u00ednar opnar upp \u00e1 g\u00e1tt. Villur\u00e1fandi f\u00f3lk \u00ed hugmyndafr\u00e6\u00f0ilegri \u00feoku og me\u00f0virkri elsku, s\u00e9r \u00fev\u00ed mi\u00f0ur ekki \u00ed gegnum hry\u00f0jur hro\u00f0ans \u00ed \u00feessum efnum.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hamas hefur enga sam\u00fa\u00f0 me\u00f0 f\u00f3lkinu \u00e1 Gaza en notar \u00fea\u00f0 sem skj\u00f6ld \u00ed bar\u00e1ttu sinni og tryllingi gegn Gy\u00f0ingum, sem n\u00e1\u00f0 hafa a\u00f0 reka eina r\u00edki\u00f0 \u00ed s\u00ednum heimshluta sem hefur l\u00fd\u00f0r\u00e6\u00f0i og mannr\u00e9ttindi \u00ed \u00f6ndvegi.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hinn 7. okt\u00f3ber 2023 dr\u00e1pu Hamasli\u00f0ar um tv\u00f6 \u00fe\u00fasund \u00cdsraelsmenn, karla, konur og b\u00f6rn. \u00deeir nau\u00f0gu\u00f0u konum og dr\u00f3gu l\u00edkin um g\u00f6tur og torg &#8211; og lifandi og limlestar konur l\u00edka &#8211; \u00fear sem skr\u00edllinn &#8211; &#8220;g\u00f3\u00f0mennin&#8221; \u00ed Palest\u00ednu &#8211; f\u00f6gnu\u00f0u eins og f\u00f3lk fagnar \u00e1ram\u00f3tum e\u00f0a sigrum \u00ed \u00ed\u00fer\u00f3ttum. \u00deeir sk\u00e1ru f\u00f3stur \u00far kvi\u00f0i \u00edsraelskra kvenna og augl\u00fdstu illvirki s\u00edn \u00e1 torgum. Og f\u00f3lki\u00f0 emja\u00f0i af s\u00e6lu \u00feegar \u00fea\u00f0 f\u00e9kk \u00fe\u00e1 andlega fulln\u00e6gingu sem hrottaksapurinn gaf \u00feeim.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Palest\u00ednumenn voru nefnilega r\u00e6kilega teknir \u00ed gegn af Hamas og heila\u00fevegnir \u00ed gegnum sk\u00f3lakerfi\u00f0 og me\u00f0 \u00f6llum r\u00e1\u00f0um \u00e1r\u00f3\u00f0ursmeistara illvirkjanna.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00deegar \u00cdsrealsmenn sv\u00f6ru\u00f0u, f\u00f6ldu Hamasli\u00f0arnir sig \u00ed jar\u00f0g\u00f6ngunum sem \u00feeir bygg\u00f0u me\u00f0 peningum heila\u00feveginna hj\u00e1lparstofnana Vesturlandab\u00faa og tregra m\u00f3tm\u00e6lenda \u00e1 Austurvelli og v\u00ed\u00f0ar. \u00deeir taka n\u00e1nast \u00f6ll hj\u00e1lparg\u00f6gn og selja svo s\u00ednu &#8220;\u00e1sk\u00e6ra&#8221; f\u00f3lki \u00e1 uppsprengdu ver\u00f0i. Og vi\u00f0, Vesturlandab\u00faar, n\u00e6rum \u00feessa spillingu me\u00f0 gj\u00f6fum okkar eins og heiladofnir h\u00e1lfvitar. G\u00f6ngin eru 500 k\u00edl\u00f3metra l\u00f6ng og \u00ed \u00feeim eru sprengjuheldar hvelfinga, rafmang, loftk\u00e6ling, allt, allur l\u00faxus. Inngangar \u00ed g\u00f6ngin eru taldir vera um 5.700 talsins. En Palest\u00ednuf\u00f3lki\u00f0 f\u00e6r aldrei a\u00f0 st\u00edga f\u00e6ti inn \u00ed \u00feessi g\u00f6ng. \u00deau er bara til a\u00f0 sk\u00fdla brj\u00e1l\u00e6\u00f0ingunum \u00ed Hamas sem er sk\u00edtsama um f\u00f3lki\u00f0 en stillir \u00fev\u00ed upp vi\u00f0 inngangana sem eru allir undir sj\u00fakrah\u00fasum, sk\u00f3lum, l\u00e6knastofum, leiksk\u00f3lum og opinberum byggingum.<\/p>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-image size-large\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"1330\" height=\"1191\" src=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2025\/09\/img_0362.jpg?w=1024\" alt=\"\" class=\"wp-image-6729\" \/><figcaption class=\"wp-element-caption\">Teikning h\u00f6fundar<\/figcaption><\/figure>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Sameinu\u00f0u\u00fej\u00f3\u00f0irna \u00e1lykta um allt og ekkert og sty\u00f0ja Hamas en hata \u00cdsreal v.\u00fe.a. illa uppl\u00fdstar \u00fej\u00f3\u00f0ir \u00ed hugmyndafr\u00e6\u00f0ilegri \u00feoku hafa n\u00e1\u00f0 \u00fear undirt\u00f6kum.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Palest\u00ednumenn keyptu vopn fyrir f\u00e9 fr\u00e1 Vesturl\u00f6ndum og svo f\u00f6ldu Hamasli\u00f0ar sig s\u00edvilkl\u00e6ddir \u00ed sj\u00fakrah\u00fasum og \u00f6\u00f0rum opinberum byggingum. Nei, \u00feeir komu ekki fram sem hermenn \u00ed hermannab\u00faningum, sem v\u00e6ri hi\u00f0 eina si\u00f0lega og a\u00f0 verjast sem sl\u00edkir, nei, \u00feeir dulb\u00faa sig sem almennir borgar, \u00fev\u00ed \u00feeir eru heiglar og aumingjar og \u00ed heila \u00feeirra b\u00fdr vonin um s\u00e6luv\u00edmuna af \u00fev\u00ed a\u00f0 deyja, \u00fev\u00ed \u00feeir tilbi\u00f0ja dau\u00f0ann og \u00fev\u00ed m\u00e1 skilgreina Hamas sem dau\u00f0a-k\u00f6lt. \u00deeir eiga \u00ed v\u00e6ndum skv. K\u00f3raninum, 72 hreinar meyjar \u00e1 himnum ef \u00feeir deyja p\u00edslarv\u00e6ttisdau\u00f0a. Er einhver heil br\u00fa \u00ed sl\u00edkri tr\u00fa?<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00dej\u00f3\u00f0irnar \u00ed l\u00f6ndunum \u00ed kring um \u00cdsreal hafa l\u00edti\u00f0 \u00fer\u00f3ast \u00ed 1400 \u00e1r, nema \u00fe\u00e6r sem hafa ol\u00edu og hafa geta\u00f0 b\u00e6tt l\u00edfskj\u00f6r s\u00edn a\u00f0 einhverju leyti en ekkert \u00ed l\u00edkingu vi\u00f0 Vesturl\u00f6nd. \u00deessar \u00fej\u00f3\u00f0ir halda f\u00f3lki enn \u00ed fj\u00f6trum og \u00e1n flestra vestr\u00e6nna mannr\u00e9ttinda og enn hafa konur \u00ed l\u00f6ndum m\u00faslima takm\u00f6rku\u00f0 r\u00e9ttindi. Mannr\u00e9ttindin sem vi\u00f0 viljum halda \u00ed eru, Nota Bene, \u00d6LL sprottin \u00far gy\u00f0ing\/kristnum jar\u00f0vegi. Og hvers vegna skyldu fl\u00f3ttamenn streyma til Evr\u00f3pu? Svari\u00f0 liggur \u00ed augun uppi! \u00dear eru l\u00edfsg\u00e6\u00f0in mest enda \u00fe\u00f3tt vestr\u00e6n \u00fej\u00f3\u00f0f\u00e9l\u00f6g s\u00e9u langt \u00ed fr\u00e1 fullkomin.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>Frumskyldur r\u00edkisstj\u00f3rna<\/strong><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">S\u00e9rhver landsstj\u00f3rn, l\u00fdr\u00e6\u00f0islega kosin e\u00f0a ekki, ber \u00fe\u00e1 \u00e1byrg\u00f0 a\u00f0 \u00fej\u00f3na s\u00ednu f\u00f3lki, tryggja \u00fev\u00ed sem allra best l\u00edf, sty\u00f0ja \u00fea\u00f0 \u00ed n\u00e1tt\u00faruhamf\u00f6rum og vernda \u00fea\u00f0 fyrir \u00e1r\u00e1sum \u00f3vinveittra afla.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hefu Hamas gert \u00feetta gagnvart s\u00ednu f\u00f3lki? Nei! G\u00f6ngin \u00feeirra g\u00e6tu h\u00fdst alla \u00edb\u00faa landsins, en almenningur f\u00e6r ekki a\u00f0 setja t\u00e6rnar yfir \u00fer\u00f6skuldana \u00ed \u00feeim sprengjuheldu g\u00edm\u00f6ldum. R\u00edkisstj\u00f3rn \u00e1 a\u00f0 tryggja f\u00f3lki \u00f6ryggi og a\u00f0 matv\u00e6li n\u00e1i \u00f3hindra\u00f0 til almennings? Hefur Hamast s\u00e9\u00f0 um \u00fea\u00f0? Nei, \u00feeir hafa komi\u00f0 \u00ed veg fyrir a\u00f0 matv\u00e6lum s\u00e9 dreift til f\u00f3lksins og s\u00e9\u00f0 um a\u00f0 \u00feau ey\u00f0ileggist undir brennandi geislum s\u00f3lar \u00e1 Gaza. Og kenna svo \u00cdsraelsm\u00f6nnum um a\u00f0 hindra a\u00f0 hj\u00e1lparg\u00f6gn n\u00e1i til f\u00f3lksins, sem er ein af \u00fe\u00fasund lygum hinna vitfirrtu Hamas-li\u00f0a.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00deetta sty\u00f0ur margt f\u00f3lk \u00e1 Vesturl\u00f6ndum \u00e1n \u00feess \u00ed raun a\u00f0 gera s\u00e9r grein fyrir villu sinni.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>II. Ol\u00eda og vatn blandast ekki<\/strong><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong><em>Islam<\/em><\/strong><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Vi\u00f0, Vesturlandab\u00faar, sofum \u00e1 ver\u00f0inum, \u00feegar kemur a\u00f0 <em>islam<\/em>.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Au\u00f0vita\u00f0 er gott f\u00f3lk innan allra tr\u00faarbrag\u00f0a, en <em>islam<\/em> sker sig fr\u00e1 \u00feeim flestum \u00feegar kenningarnar eru sko\u00f0a\u00f0ar. \u00c9g leyfi m\u00e9r a\u00f0 fara \u00ed boltann \u00ed \u00feessu sambandi, \u00fe.e. kenninguna, en ekki manneskjuna, ekki \u00ed m\u00faslimann. Millj\u00f3nir m\u00faslima eru hi\u00f0 besta f\u00f3lk, en islam hefur \u00fe\u00f3 \u00ed s\u00e9r fr\u00e6 \u00f6fga og illinda. \u00dev\u00ed mi\u00f0ur. Innan islam eru til dj\u00f6fullegar hugmyndir sem eiga s\u00e9r ekki r\u00e6tur \u00ed neinu jar\u00f0nesku. \u00de\u00e6r r\u00e6tur liggja l\u00f3\u00f0beint ni\u00f0ur \u00ed helv\u00edti.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c9g hef lesi\u00f0 tr\u00faarbrag\u00f0afr\u00e6\u00f0i til pr\u00f3fs \u00ed h\u00e1sk\u00f3la og \u00fe\u00e1 voru \u00f6ll tr\u00faarbr\u00f6g\u00f0 heims undir. Mj\u00f6g fr\u00f3\u00f0leg og skemmtileg n\u00e1msgrein, en \u00e9g man hva\u00f0 <em>islam<\/em> st\u00f3\u00f0 \u00ed m\u00e9r vegna kekkjanna \u00ed kenningunum. <em>Islam<\/em> er undarleg blanda af \u00fdmsu tagi, en fegurstu bitarnir \u00ed K\u00f3raninum, eru taldir vera textar kristins f\u00f3lks sem hafna\u00f0i gu\u00f0d\u00f3mi Krists \u00e1 4. \u00f6ld og var\u00f0 vi\u00f0skila vi\u00f0 kirkjuna og dreif\u00f0ist v\u00ed\u00f0a um l\u00f6ndin fyrir botni Mi\u00f0jararhafs. \u00d6ldum s\u00ed\u00f0ar rann arfur \u00feeirra inn \u00ed <em>islam<\/em> sem einnig hafnar gu\u00f0d\u00f3mi Krists, en nefnir hann \u00fe\u00f3 me\u00f0al sp\u00e1manna \u00ed K\u00f3raninum.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Var M\u00fahamme\u00f0 til? Hann er sag\u00f0ur hafa f\u00e6\u00f0st um 570 e. Kr. En fr\u00e6\u00f0ima\u00f0ur sem \u00e9g hef hlusta\u00f0 \u00e1 halda fyrirlestur hefur \u00e1samt kollegum s\u00ednum rannsaka\u00f0 texta fr\u00e1 l\u00f6ndum araba fr\u00e1 6. \u00f6ld og n\u00e6stu aldir \u00e1 eftir. Hann segir a\u00f0 hvergi s\u00e9 a\u00f0 finna einn einasta texta um a\u00f0 ma\u00f0ur a\u00f0 nafni M\u00fahamme\u00f0 hafi veri\u00f0 til \u00e1 6. \u00f6ld. Og nafni\u00f0 er \u00ed raun ekki nafn heldur \u00e1varp og \u00fe\u00fd\u00f0ir &#8220;hinn smur\u00f0i&#8221; eins og einnig var nota\u00f0 um Jes\u00fa, \u00e1 gr\u00edsku, KRISTOS, hinn smur\u00f0i.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Mekka er heldur ekki til \u00ed neinum textum fr\u00e1 6. e\u00f0a 7. \u00f6ld, en til eru fj\u00e1lglegar l\u00fdsingar \u00e1 grasi gr\u00f3inni borg me\u00f0 bl\u00f3mum og trj\u00e1lundum svo sem \u00ed aldingar\u00f0i. En \u00fea\u00f0 stenst engan veginn \u00fev\u00ed Mekka er \u00ed vatnslausri ey\u00f0im\u00f6rk og a\u00f0 brunnum, sem eiga a\u00f0 vera heilagir \u00fear \u00ed borg, hafa veri\u00f0 lag\u00f0ar lei\u00f0slur me\u00f0 vatni \u00far fj\u00f6llum langt \u00ed burtu til a\u00f0 blekkja p\u00edlagr\u00edmana sem n\u00fa flykkjast \u00ed hina helgu borg og bergja af meintum, helgum brunnum!<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">L\u00fdsingarnar \u00e1 Mekka og allt sem rita\u00f0 eru um M\u00fahamme\u00f0 var rita\u00f0 400-900 \u00e1rum eftir meinta tilvist hans. \u00c9g endurtek 400-900 \u00e1rum eftir a\u00f0 M\u00fahamme\u00f0 er sag\u00f0ur hafa veri\u00f0 til.<\/p>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-image size-large\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"1497\" height=\"1221\" src=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2025\/09\/img_0364.jpg?w=1024\" alt=\"\" class=\"wp-image-6732\" \/><figcaption class=\"wp-element-caption\">Mekka, mynd af Vefnum tekin \u00far geimnum<\/figcaption><\/figure>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">L\u00fdsingar \u00e1 Mekka voru l\u00edklega rita\u00f0ar \u00ed Islamabad \u00ed Pakistan, \u00f6ldum s\u00ed\u00f0ar, \u00fear sem allt \u00f6nnur gr\u00f3\u00f0urskilyr\u00f0i eru fyrir hendi og g\u00e6tu l\u00fdsingarnar \u00e1tt vi\u00f0 um \u00fe\u00e1 borg en ekki Mekka.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">M\u00fahamme\u00f0, hafi hann veri\u00f0 til, var \u00f3l\u00e6s og \u00f3skrifandi. En s\u00e1 e\u00f0a \u00feeir sem ritu\u00f0ur K\u00f3raninn h\u00f6f\u00f0u einhverja vitneskju um texta \u00feeirra sem yfirg\u00e1fu kristnina og einnig hafa \u00feeir \u00feekkt Gamla testementi\u00f0, tr\u00faarb\u00f3k gy\u00f0inga en svo illa voru \u00feeir a\u00f0 s\u00e9r a\u00f0 \u00feeir ger\u00f0u eina manneskju \u00far Miriam systur M\u00f3se og Mar\u00edu m\u00f3\u00f0ur Jes\u00fa, en \u00e1 milli \u00feeirra voru \u00fe\u00f3 ekki nema um 1500 \u00e1r!<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00deeir sem settu K\u00f3raninn saman, sk\u00e1ldu\u00f0u \u00feetta allt meira og minna me\u00f0 hrafli \u00far Bibl\u00edunni, Gamla testamentinu og hinu N\u00fdja.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">M\u00fahamme\u00f0 er l\u00fdst sem herforingja og margf\u00f6ldum mor\u00f0ingja sem t\u00f3k s\u00e9r svo n\u00edu \u00e1ra st\u00falku og b\u00e6tti \u00ed h\u00f3p eiginkvenna sinna. Hann gaf s\u00e9r og k\u00f6rlum almennt leyfi til a\u00f0 eiga 4 konur, en svo f\u00e9kk HANN n\u00fdja &#8220;vitrun&#8221; sem leyf\u00f0i HONUM a\u00f0 eiga 11 konur!<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00de\u00fa m\u00e1tt reyna a\u00f0 bera M\u00fahamme\u00f0 saman vi\u00f0 Krist, en \u00fea\u00f0 er ekki h\u00e6gt!<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Elstu textar k\u00f3ransins voru \u00fev\u00ed rita\u00f0ir um 400-900 \u00e1rum eftir meintan t\u00edma M\u00fahamme\u00f0s, sem talinn er hafa f\u00e6\u00f0st um 570 e. Kr.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Elstu textar N\u00fdja testamentisins (NT), sem bera Jes\u00fa vitni, eru hins vegar fr\u00e1 \u00fev\u00ed um 20-60 \u00e1rum eftir a\u00f0 hann gekk um og kenndi.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">H\u00f6fundar NT skr\u00e1\u00f0u s\u00ednar eigin minningar e\u00f0a eftir fr\u00e1s\u00f6gn sj\u00f3narvotta sem \u00feekktu Jes\u00fa og h\u00f6f\u00f0u heyrt r\u00e6\u00f0ur hans. \u00c1 \u00feeim t\u00edmum \u00feurfti f\u00f3lk a\u00f0 muna og mundi mun betur en vi\u00f0, \u00fev\u00ed engir voru fj\u00f6lmi\u00f0larnir, hva\u00f0 \u00fe\u00e1 Alneti\u00f0. Og Gy\u00f0ingar og grikkir sem ritu\u00f0u N\u00fdja testamenti\u00f0 voru b\u00e6\u00f0i l\u00e6sir og skrifandi, kunnu auk \u00feess r\u00f6kfr\u00e6\u00f0i og ritlist \u00e1 h\u00e1u stigi. N\u00fdja testamenti\u00f0 var allt skrifa\u00f0 \u00e1 1. \u00f6ld \u00fe.e.a.s. eftir dau\u00f0a Jes\u00fa \u00e1ri\u00f0 33 og fram yfir \u00e1ri\u00f0 90 e. Kr.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c9g, me\u00f0 minn n\u00fat\u00edma huga, sem er h\u00e1\u00f0ur b\u00f3kum og Netinu, man \u00fer\u00e1tt fyrir \u00fea\u00f0 greinilega hva\u00f0 ger\u00f0ist 22. n\u00f3vember 1963, man svip m\u00f3\u00f0ur minnar, \u00feegar h\u00fan tilkynnti m\u00e9r vi\u00f0bur\u00f0 dagsins \u00far heimsfr\u00e9ttunum:<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">John F. Kennedy, Bandar\u00edkjaforseti, haf\u00f0i veri\u00f0 myrtur.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c9g man \u00fea\u00f0 eins og \u00fea\u00f0 hef\u00f0i gerst \u00ed g\u00e6r, en li\u00f0in eru t\u00e6p 62 \u00e1r fr\u00e1 atbur\u00f0inum. \u00c9g g\u00e6ti skrifa\u00f0 um \u00fea\u00f0 fr\u00e1s\u00f6gn sem v\u00e6ri n\u00e1kv\u00e6m og st\u00e6\u00f0ist alla gagnr\u00fdni.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">F\u00f3lk sem hlusta\u00f0i \u00e1 Jes\u00fa, gleymdi honum aldrei og ekki heldur or\u00f0um hans.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Ritendur N\u00fdja testamentisins mundu allt betur en vi\u00f0 og \u00fea\u00f0 ger\u00f0i f\u00f3lk almennt \u00e1 \u00feeim t\u00edma.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>Uppl\u00fdsingin og Si\u00f0b\u00f3tin<\/strong><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Kristin kirkja hefur gengi\u00f0 \u00ed gegnum heimspekilega strauma li\u00f0inna alda og \u00feurft a\u00f0 endurmeta allan sinn grunn og endurt\u00falka og \u00fear me\u00f0 texta Bibl\u00edunnar, b\u00e6\u00f0i Gamla testamenti\u00f0 og hi\u00f0 N\u00fdja.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Endurreisnin (Renaissance) og Uppl\u00fdsingin (Enlightenment) voru t\u00edmar endurmats \u00e1 \u00f6llum kerfum, tr\u00faarkenningum og framsetningu menntamanna og skilnings \u00feeirra \u00e1 l\u00edfinu og tilverunni. Si\u00f0b\u00f3tina m\u00e1 l\u00edklega ennfremur flokka sem beina afur\u00f0 \u00feessara strauma sem gengu yfir Evr\u00f3pu.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><em>Islam<\/em> hefur ekki gengi\u00f0 \u00ed gegnum neina samb\u00e6rilega uppl\u00fdsingu og endurn\u00fdjun. R\u00edki \u00feeirra einkennast af f\u00e1fr\u00e6\u00f0i, ranghugmyndum um mann og heim. Konur hafa \u00fear l\u00edtil sem engin r\u00e9ttindi. Varhugavert er samt a\u00f0 alh\u00e6fa \u00ed \u00feessu sambandi. Fj\u00f6ldi kvenna innan <em>islam <\/em>f\u00e6r \u00ed sumum l\u00f6ndum a\u00f0 ganga menntaveginn og gegna mikilv\u00e6gum hlutverkum innan sinna heimalanda.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">D\u00f3ttir m\u00edn, sem starfa\u00f0i fyrir margt l\u00f6ngu \u00ed p\u00edlagr\u00edmaflugi og var sta\u00f0sett \u00ed Saudi-Arab\u00edu, var\u00f0 a\u00f0 kl\u00e6\u00f0st b\u00farku ef h\u00fan \u00feurfi a\u00f0 fara \u00fat \u00ed b\u00fa\u00f0. Og \u00fe\u00e1 \u00feurfti starfsf\u00e9lagi hennar af gagnst\u00e6\u00f0u kyni, a\u00f0 ganga \u00e1 undan henni. H\u00fan m\u00e1tti ekki ganga vi\u00f0 hli\u00f0 hans.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">M\u00faslimar skiptast \u00ed tvo flokka. Annars vegar eru svonefndir <em>s\u00fann\u00ed-<\/em>m\u00faslimar sem \u00feykja mildari og v\u00ed\u00f0s\u00fdnni en <em>sh\u00edtar<\/em> sem hallast meir a\u00f0 b\u00f3kstafstr\u00fa og telja sig vera afkomendur M\u00fahamme\u00f0s.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">M\u00faslimar telja yfir einn og h\u00e1lfan milljar\u00f0, sem reiknast um fimmtungur mannkyns. \u00deeir hafa margir illar bifur \u00e1 Gy\u00f0ingum og einnig kristnum og \u00fea\u00f0 er vegna \u00feess a\u00f0 \u00feeir s\u00ed\u00f0arnefndu tr\u00faa \u00e1 gu\u00f0d\u00f3m Krists \u00fe.e. a\u00f0 Hann hafi veri\u00f0 meira en sp\u00e1ma\u00f0ur, a\u00f0 Hann hafi veri\u00f0 gu\u00f0d\u00f3murinn sj\u00e1lfur \u00ed mannsmynd.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00dea\u00f0 sem f\u00e1ir \u00feora a\u00f0 tala um Grein eftir \u00d6rn B\u00e1r\u00f0 J\u00f3nsson sem les Fyrri hluti I. Framandi menning og si\u00f0ir Margt er \u00fea\u00f0 sem \u00f3gnar Vesturl\u00f6ndum og \u00feeirri menningu sem hefur sprotti\u00f0 fram innan \u00feeirra og teki\u00f0 aldir a\u00f0 \u00fer\u00f3a. A\u00f0 margra \u00e1liti er \u00fea\u00f0 andvaraleysi sem er a\u00f0 gera \u00fat af vi\u00f0 menningu [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":2,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_jetpack_newsletter_access":"","_jetpack_dont_email_post_to_subs":false,"_jetpack_newsletter_tier_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paywalled_content":false,"_jetpack_hide_featured_image":false,"_jetpack_featured_image_duplicate_dismissed":0,"_jetpack_feature_clip_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":"","jetpack_post_was_ever_published":false},"categories":[4],"tags":[243,246,256,291,326,49,333,495,518,640],"class_list":["post-6733","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-greinar-og-hugvekjur-articles","tag-gud","tag-gudfraedi","tag-hamas","tag-heimurinn","tag-islam","tag-israel","tag-jesus","tag-palestina","tag-rettlaeti","tag-tru"],"jetpack_sharing_enabled":true,"jetpack_featured_media_url":"","_links":{"self":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/6733","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/users\/2"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcomments&post=6733"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/6733\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fmedia&parent=6733"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcategories&post=6733"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Ftags&post=6733"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}