{"id":671,"date":"2013-08-02T14:12:31","date_gmt":"2013-08-02T14:12:31","guid":{"rendered":"http:\/\/ornbardur.com\/?p=671"},"modified":"2013-08-02T14:12:31","modified_gmt":"2013-08-02T14:12:31","slug":"thordur-saevar-jonsson-1934-2013","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/ornbardur.com\/?p=671","title":{"rendered":"\u00de\u00f3r\u00f0ur S\u00e6var J\u00f3nsson 1934-2013"},"content":{"rendered":"<p><a href=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2013\/08\/c3bec3b3rc3b0ur-s-jc3b3nsson.jpg\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" class=\"alignleft size-medium wp-image-673\" alt=\"\u00de\u00f3r\u00f0ur S J\u00f3nsson\" src=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2013\/08\/c3bec3b3rc3b0ur-s-jc3b3nsson.jpg?w=300\" width=\"300\" height=\"239\" \/><\/a>\u00d6rn B\u00e1r\u00f0ur J\u00f3nsson<\/p>\n<p>Minningaror\u00f0<\/p>\n<p><strong>\u00de\u00f3r\u00f0ur S\u00e6var J\u00f3nsson<\/strong><\/p>\n<p>f.24.8.1934, d. 18.7.2013<\/p>\n<p>\u00datf\u00f6r fr\u00e1 Neskirkju 2. \u00e1g\u00fast 2013 kl. 13<\/p>\n<p>R\u00e6\u00f0una er h\u00e6gt a\u00f0 lesa h\u00e9r fyrir ne\u00f0an.<\/p>\n<p>Einnig er h\u00e6gt a\u00f0 hlusta \u00e1 r\u00e6\u00f0una me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 smella \u00e1 \u00fer\u00edhyrninginn &#8211; Play-takkann.<\/p>\n<p>S\u00e1lmaskr\u00e1in er \u00a0ne\u00f0anm\u00e1ls sem pdf-skjal.<\/p>\n<p><!--more--><\/p>\n\n<p><strong>Fri\u00f0ur<\/strong> Gu\u00f0s s\u00e9 me\u00f0 ykkur.<\/p>\n<p>\u201eOg \u00e9g s\u00e1 borgina helgu . . . \u201c<\/p>\n<p>\u00de\u00f3r\u00f0ur var borgarbarn, f\u00e6ddur \u00ed mi\u00f0borginni og alinn \u00fear upp. Hann haf\u00f0i alla t\u00ed\u00f0 fingur \u00e1 p\u00falsi \u00fej\u00f3\u00f0f\u00e9lagsins og l\u00e6r\u00f0i ungur a\u00f0 svamla \u00ed hafi mannl\u00edfsins og var\u00f0 vel syndur \u00ed \u00feeim efnum. Hann kom v\u00ed\u00f0a vi\u00f0 og var allsta\u00f0ar auf\u00fasugestur, vins\u00e6ll, elskulegur og g\u00f3\u00f0ur drengur.<\/p>\n<p>\u00c9g kynntist honum ekki fyrr en \u00e1 kv\u00f6ldi \u00e6vi hans. Gruna\u00f0i reyndar ekki a\u00f0 hann \u00e6tti jafnt skammt eftir og raun ber vitni.<\/p>\n<p>Hann var flottur kallinn \u00feegar vi\u00f0 vorum saman \u00e1 Vestfj\u00f6r\u00f0um \u00ed a\u00f0draganda al\u00feingiskosninganna \u00ed vor. Svarti b\u00edllinn st\u00edfb\u00f3na\u00f0ur. \u00de\u00f3r\u00f0ur \u00f3k aldrei inn \u00ed Reykjav\u00edk \u00feegar hann kom utan af landi \u00e1n \u00feess a\u00f0 \u00fevo b\u00edlinn fyrst. En aftur vestur \u00ed okkar s\u00f6gu! Vagnstj\u00f3rinn sj\u00e1lfur var \u00ed sv\u00f6rtum le\u00f0urfrakka og b\u00fainn a\u00f0 koma fyrir festingum fyrir f\u00e1nast\u00f6ng \u00e1 varadekkinu sem hangir \u00e1 afturhur\u00f0inni. \u00dear blakti vi\u00f0 h\u00fan f\u00e1ni L\u00fd\u00f0r\u00e6\u00f0isvaktarinnar, merki \u00feeirra hugsj\u00f3na, sem fela \u00ed s\u00e9r drauminn um n\u00fdtt \u00fej\u00f3\u00f0f\u00e9lag, sanngjarnara og r\u00e9ttl\u00e1tara \u00fej\u00f3\u00f0f\u00e9lag, drauminn um borgina helgu.<\/p>\n<p>Borgin helga er \u00ed gy\u00f0inglegum og kristnum litterat\u00far myndhverfing um hina jar\u00f0nesku Jer\u00fasalemborg sem allir stefndu til en l\u00edka um hina himnesku borg. Borgin helga er \u00edtrasta von um \u00e6\u00f0stu fegur\u00f0 mannl\u00edfsins \u00fear sem \u201er\u00e9ttl\u00e6ti og fri\u00f0ur kyssast\u201c eins og sagt er \u00e1 einum sta\u00f0 \u00ed hinni helgu b\u00f3k. Borgin helga er myndhverfing um n\u00fdtt og betra \u00fej\u00f3\u00f0f\u00e9lag.<\/p>\n<p>Kristin tr\u00fa er upphaflega borgarfyrirbrig\u00f0i en ekki sveita. H\u00fan er hreyfing f\u00f3lks \u00ed borgarsamf\u00e9lagi, \u00fe\u00e9ttb\u00fdli, hreyfing um n\u00fd vi\u00f0mi\u00f0, n\u00fdjar reglur, elskulegra samf\u00e9lag, hreyfing um samhlj\u00f3m vi\u00f0 hi\u00f0 st\u00f3ra samhengi l\u00edfsins, hreyfing sem vill sl\u00e1 \u00ed takti vi\u00f0 alheimshjarta\u00f0 sj\u00e1lft.<\/p>\n<p>Heimurinn er ekki bara kaldur steinn \u00ed j\u00f6kulk\u00f6ldum, dimmum geimi, \u00fear sem stj\u00f6rnur \u00e6\u00f0a um \u00e1 \u00f3gnarhra\u00f0a og hverfa a\u00f0 lokum inn \u00ed svarthol ey\u00f0ingarinnar. Nei heimurinn hefur a\u00f0 kjarna elsku. \u00deegar J\u00f3hannes gu\u00f0spjallama\u00f0ur tj\u00e1\u00f0i sig um Gu\u00f0 nota\u00f0 hann eitt sinn a\u00f0eins \u00ferj\u00fa or\u00f0 um e\u00f0li hans og sag\u00f0i: Gu\u00f0 er k\u00e6rleikur. \u00dear me\u00f0 er innsta e\u00f0li heimsins elska. Um lei\u00f0 f\u00e6r heimurinn inntak og gildi og \u00fea\u00f0 er \u00e1 grundvelli \u00feess a\u00f0 vi\u00f0 kunnum a\u00f0 elska og kunnum a\u00f0 vona og \u00fer\u00e1 betri heim, bjartari og fegurri.<\/p>\n<p>\u00de\u00f3r\u00f0ur S\u00e6var J\u00f3nsson f\u00e6ddist \u00ed Hafnarstr\u00e6ti 17 \u00ed Reykjav\u00edk 24. \u00e1g\u00fast 1934 og \u00f3lst upp \u00ed \u00deingholtsstr\u00e6ti 1 \u00fear sem n\u00fa er veitingarsta\u00f0urinn Car\u00fas\u00f3. Foreldrar hans voru Margr\u00e9t S\u00e6mundsd\u00f3ttir f. 19.8.1910, d. 25.12.1985, fr\u00e1 Eyjarh\u00f3lum \u00ed M\u00fdrdal, og J\u00f3n \u00de\u00f3r\u00f0arson kaupma\u00f0ur \u00ed Reykjav\u00edk f. 3.4.1907, d. 25.12.1973. \u00de\u00f3r\u00f0ur var m\u00f6rg sumur \u00ed V\u00edk hj\u00e1 \u00f6mmi og afa og l\u00e6r\u00f0i \u00fear t.a.m. ungur \u00e1 b\u00edl.<\/p>\n<p>Systir \u00de\u00f3r\u00f0ar er \u00de\u00f3ra J\u00f3nsd\u00f3ttir f. 12.5.1947, maki Bj\u00f6rn G. Bj\u00f6rnsson f. 26.5.1944. Synir \u00feeirra: Bj\u00f6rn \u00de\u00f3r f. 30.10.1981 og \u00cdvar f. 24.10.1990. F\u00f3stursonur \u00feeirra er Steingr\u00edmur J\u00f3n f.12.4.1967, sonur \u00de\u00f3r\u00f0ar.<\/p>\n<p>\u00de\u00f3r\u00f0ur kv\u00e6ntist Berglj\u00f3tu A\u00f0alsteinsd\u00f3ttur f. 4.6.1934 \u2013 d. 14.8.1965. \u00deau skildu. B\u00f6rn \u00feeirra: 1) J\u00f3n S\u00e6var \u00de\u00f3r\u00f0arson f. 29.2.1956, maki Elfa Bj\u00f6rt Gylfad\u00f3ttir f. 20.5.1963. Synir \u00feeirra: \u00de\u00f3r\u00f0ur S\u00e6var f. 5.9.1989 og Gauti P\u00e1ll f. 16.6.1999. D\u00f3ttir J\u00f3ns me\u00f0 Ingunni Einarsd\u00f3ttur er Berglj\u00f3t f. 7.11.1980, b\u00fasett \u00ed Hollandi. H\u00fan er k\u00f6llu\u00f0 Bella og sendir kve\u00f0ju s\u00edna til ykkar og \u00feakkar vin\u00e1ttu afa. Maki Berglj\u00f3tar er Amid Ayoub f. 1.12.1979, b\u00f6rn \u00feeirra: Liam f. 27.12.2006 og Emma f. 27.4.2012. 2) Gu\u00f0n\u00fd Arnd\u00eds \u00de\u00f3r\u00f0ard\u00f3ttir f.12.7.1958, d. 29.5.1973 sem l\u00e9st \u00ed b\u00edlslysi \u00e1 15. \u00e1ri, \u00f6llum harmdau\u00f0i og s\u00e1rt sakna\u00f0 alla t\u00ed\u00f0.<\/p>\n<p>\u00de\u00f3r\u00f0ur kv\u00e6ntist Arngunni J\u00f3nsd\u00f3ttur f.13.7.1942, d. 10.6.1994. \u00deau skildu. B\u00f6rn \u00feeirra: 1) Margr\u00e9t f. 7.4.1966, maki Fri\u00f0rik \u00de\u00f3r Halld\u00f3rsson f. 13.4.1961. D\u00e6tur \u00feeirra: \u00de\u00f3ra Margr\u00e9t f. 19.9.1993 og Katr\u00edn Erla f. 27.9.1999. 2) Steingr\u00edmur J\u00f3n f. 12.4.1967, maki Lind Einarsd\u00f3ttir f. 23.7.1969. D\u00e6tur \u00feeirra: Perla f. 29.4.1997 og Harpa f. 12.3.1999.<\/p>\n<p>\u00de\u00f3r\u00f0ur kv\u00e6ntist L\u00e1ru Thorarensen f. 2.2.1952. Sonur L\u00e1ru er Jakob Hinriksson f. 4.3.1972, maki Pricilla Kelly f. 28.11.1980. Sonur \u00feeirra: \u00f3sk\u00edr\u00f0ur f. 12.6.2013. D\u00f3ttir Pricillu er: Gabriely Victoria f. 8.3.2002.<\/p>\n<p>Fj\u00f6lskylda \u00de\u00f3r\u00f0ar er honum \u00feakkl\u00e1t fyrir allt og honum er jafnframt fyrirgefi\u00f0 allt sem s\u00fdnir elsku \u00feeirra og gle\u00f0i yfir a\u00f0 hafa \u00e1tt hann a\u00f0 \u00e1 l\u00edfsg\u00f6ngunni me\u00f0 s\u00ednum kostum og g\u00f6llum. Vi\u00f0 erum \u00f6ll gallagripir og komumst ekki af \u00e1n fyrirgefningar og elsku samfer\u00f0af\u00f3lksins. Fj\u00f6lskyldan hj\u00e1lpa\u00f0ist a\u00f0. \u00cd afr\u00edsku m\u00e1lt\u00e6ki segir a\u00f0 \u00fea\u00f0 \u00feurfi heilt \u00feorp til a\u00f0 ala upp barn. B\u00f6rnin hans \u00de\u00f3\u00f0ar fengu gott atl\u00e6ti \u00e6ttar\u00feorpsins og hafa komst vel af \u00ed h\u00f6r\u00f0um heimi. \u00deeir g\u00f6ntu\u00f0ust stundum me\u00f0 \u00fea\u00f0 Bj\u00f6rn Bj\u00f6rnsson m\u00e1gur hans og \u00de\u00f3r\u00f0ur a\u00f0 \u00feeir \u00e6ttu b\u00f6rn saman og stundum var tala\u00f0 um Litla foreldraf\u00e9lagi\u00f0.<\/p>\n<p>\u00de\u00f3r\u00f0ur gekk \u00ed Mi\u00f0b\u00e6jarsk\u00f3lann og Verslunarsk\u00f3lann og stunda\u00f0i verslunarst\u00f6rf um hr\u00ed\u00f0 en f\u00f3r snemma \u00e1 sj\u00f3inn, fyrst \u00e1 togara en sigldi s\u00ed\u00f0an \u00e1 millilandaskipum Eimskipaf\u00e9lagsins um \u00e1rabil. \u00c1 \u00feeim \u00e1rum reyndi hann margt og minnisst\u00e6\u00f0ur var honum t\u00farinn \u00feegar \u00feeir ur\u00f0u a\u00f0 berja hnaus\u00feykka \u00edsinguna af r\u00e1 og rei\u00f0a til a\u00f0 skipinu hvolfdi ekki \u00ed aftakave\u00f0ri \u00e1 N\u00fdfundnalandsmi\u00f0um. Hann kom oft \u00e1 Laugaveg 11 til a\u00f0 hitta b\u00f3hema og anna\u00f0 br\u00e1\u00f0skemmtilegt f\u00f3lk sem kunni a\u00f0 krydda mannl\u00edfi\u00f0.<\/p>\n<p>Seinna vann hann vi\u00f0 virkjanir \u00e1 h\u00e1lendi \u00cdslands einkum vi\u00f0 akstur.<\/p>\n<p>\u00de\u00f3r\u00f0ur og L\u00e1ra bjuggu fyrst \u00e1 Laugabakka \u00ed Mi\u00f0fir\u00f0i en fluttust \u00e1 Hvammstanga \u00fear sem \u00feau r\u00e1ku s\u00f6lusk\u00e1la \u00ed t\u00edu \u00e1r. \u00dea\u00f0an fluttu \u00feau til Flateyrar \u00e1ri eftir snj\u00f3fl\u00f3\u00f0i\u00f0 og r\u00e1ku \u00fear veitingah\u00fasi\u00f0 Vagninn \u00ed m\u00f6rg \u00e1r. \u00dear var l\u00f6ngum samasta\u00f0ur Flateyringa \u00e1 erfi\u00f0um t\u00edmum. \u00deau h\u00f6f\u00f0u b\u00fai\u00f0 \u00e1 Flateyri \u00ed 17 \u00e1r \u00feegar \u00de\u00f3r\u00f0ur l\u00e9st. Seinustu \u00e1rin reri hann me\u00f0 \u00d3la popp \u00e1 Sj\u00e1varperlunni a\u00f0 eltast vi\u00f0 sk\u00f6tusel. \u00de\u00f3r\u00f0ur st\u00f3\u00f0 keikur vi\u00f0 bor\u00f0stokkinn og dr\u00f3 \u00edsk\u00f6ld netin \u00far sj\u00f3, berhentur. Hann var upp\u00e1finningasamur og s\u00e1 t\u00e6kif\u00e6ri \u00ed \u00f6llum a\u00f0st\u00e6\u00f0um eins og til a\u00f0 mynda \u00feegar honum datt \u00ed hug a\u00f0 r\u00e6kta kr\u00f3k\u00f3d\u00edla \u00e1 Laugabakka.<\/p>\n<p>\u00de\u00f3r\u00f0ur var kalla\u00f0ur D\u00fadd\u00f3 sem drengur og Doddi fyrir vestan og me\u00f0 nafnb\u00f3tinni Vagnstj\u00f3ri. \u00c1 Vagninum var fj\u00f6lskr\u00fa\u00f0ugt mannl\u00edf. \u00dear var sungi\u00f0 og spila\u00f0 af hjartans list og Doddi l\u00e9t gjarnan renna \u00f3m\u00e6lt \u00ed gl\u00f6s og bolla og allt skrifa\u00f0 hj\u00e1 \u00feeim sem vildu borga seinna &#8211; e\u00f0a ekki. \u00c6t\u00ed\u00f0 var vi\u00f0m\u00f3t \u00feeirra \u00de\u00f3r\u00f0ar og L\u00e1ru elskulegt og opi\u00f0 og af \u00feeim s\u00f6kum la\u00f0a\u00f0ist a\u00f0 \u00feeim f\u00f3lk hvar sem \u00feau st\u00f6rfu\u00f0u. Ef honum fannst L\u00e1ra ekki vera s\u00e9r n\u00e6gjanlega samm\u00e1la sag\u00f0i hann stundum: L\u00e1ra m\u00edn, \u00fe\u00fa ert svo miklu yngri en \u00e9g og \u00e9g g\u00e6ti n\u00fa bara veri\u00f0 pabbi \u00feinn! Hj\u00e1 \u00feeim var alltaf opi\u00f0 h\u00fas og alltaf n\u00f3g handa \u00f6llum. \u00deetta f\u00e9kk \u00e9g a\u00f0 reyna \u00e1 eigin skinni er \u00e9g gisti hj\u00e1 \u00feeim \u00ed vor.<\/p>\n<p>\u00de\u00f3r\u00f0ur var v\u00ed\u00f0f\u00f6rull um dagana og f\u00f3r m.a. til K\u00edna \u00e1samt \u00c1rna J\u00f3nssyni eins og fram kemur \u00ed kvikmynd L\u00fd\u00f0s \u00c1rnasonar l\u00e6knis um \u00fe\u00e1 fr\u00e6g\u00f0arf\u00f6r, en \u00de\u00f3r\u00f0i breg\u00f0ur fyrir \u00ed fleiri myndum hans. Hann sigldi \u00fat um h\u00f6fin bl\u00e1 \u00ed sautj\u00e1n \u00e1r, segir \u00ed s\u00f6ngtexta. \u00de\u00f3r\u00f0ur f\u00f3r v\u00ed\u00f0a og oft til Hamborgar sem flesta farmenn dreymdi um a\u00f0 heims\u00e6kja. Eitt sinn t\u00f3k hann\u00a0 \u00de\u00f3ru systur me\u00f0 s\u00e9r 15 \u00e1ra og s\u00fdndi henni Strassann og allt. \u00deau f\u00f3ru l\u00edka til a\u00f0 hlusta \u00e1 fj\u00f6ruga str\u00e1ka spila \u00e1 b\u00fallu sem voru vi\u00f0 \u00fea\u00f0 a\u00f0 hefja s\u00edna sigurf\u00f6r um heiminn og kenndu sig vi\u00f0 bj\u00f6llutegund og takt og nefndu sig The Beatles. T\u00edu \u00e1ra f\u00e9kk elsti sonurinn a\u00f0 fara me\u00f0 pabba til New York, Boston og Gloucester. Hann s\u00e1 Empire State bygginguna og fyrstu h\u00e6\u00f0ir tveggja n\u00fdrra bygginga sem s\u00ed\u00f0ar \u00e1ttu eftir a\u00f0 hrynja \u00ed \u00e1r\u00e1s og ver\u00f0a s\u00f6gulegt kennileiti, Tv\u00edburaturnarnir. Afi \u00ed \u00deingholtsstr\u00e6ti kenndi drengnum a\u00f0 hlusta \u00e1 skipafr\u00e9ttir og sko\u00f0a s\u00ed\u00f0an \u00e1 sj\u00f3korti \u00fat fr\u00e1 t\u00f6lum um lengdar- og breiddargr\u00e1\u00f0u hvar skip pabba v\u00e6ri statt \u00e1 hverjum t\u00edma.<\/p>\n<p>F\u00f3lki\u00f0 hans segir a\u00f0 alltaf \u00feegar \u00de\u00f3r\u00f0ur kom \u00ed heims\u00f3kn var allaf eins og hann v\u00e6ri a\u00f0 koma \u00far siglingu, l\u00edka \u00feegar hann kom \u00ed b\u00e6inn a\u00f0 nor\u00f0an e\u00f0a fr\u00e1 Flateyri. Hundurinn hennar Margr\u00e9tar gr\u00e9t alltaf af gle\u00f0i \u00feegar \u00de\u00f3r\u00f0ur birtist og p\u00e1fagaukur Bj\u00f6ssa og \u00de\u00f3ru er enn a\u00f0 leita a\u00f0 honum. Margir hundar nutu g\u00f3\u00f0s atl\u00e6tis hj\u00e1 \u00de\u00f3r\u00f0i og L\u00e1ru \u00e1 Flateyrir og l\u00edka margt gott f\u00f3lk.<\/p>\n<p>\u00de\u00f3r\u00f0ur \u00feekkti st\u00f6rfin b\u00e6\u00f0i \u00e1 sj\u00f3 og landi. Hann \u00feekkti kl\u00e6ki kv\u00f3takerfisins og vissi hvernig \u00fea\u00f0 mismunar f\u00f3lki, gerir suma r\u00edka en marga f\u00e1t\u00e6ka. Hann sem var \u00ed Heimdalli sem str\u00e1kur og fylgdi Sj\u00e1lfst\u00e6\u00f0isflokknum a\u00f0 m\u00e1lum l\u00e6r\u00f0i \u00e1 efri \u00e1rum a\u00f0 hugsa sj\u00e1lfst\u00e6tt og l\u00e1ta hjarta\u00f0 r\u00e1\u00f0a. Hann s\u00e1 fyrir s\u00e9r n\u00fdja lei\u00f0. Skerjafjar\u00f0arsk\u00e1ldi\u00f0 Kristj\u00e1n Hreinsson orti lj\u00f3\u00f0 sem ber yfirskriftina, Lei\u00f0:<\/p>\n<p>Vi\u00f0 fylgjum \u00feeim sem rata r\u00e9tta lei\u00f0<\/p>\n<p>og reynum s\u00edst af b\u00f6ls\u00fdni a\u00f0 fyllast;<\/p>\n<p>ef l\u00edfsins tr\u00f6\u00f0 er grei\u00f0f\u00e6r, bein og brei\u00f0<\/p>\n<p>\u00ed birtu dagsins enginn \u00fearf a\u00f0 villast.<\/p>\n<p>En f\u00f3lk sem ekki \u00feekkir neina \u00feraut<\/p>\n<p>og \u00feykist vera s\u00e1tt \u00e1 l\u00edfsins g\u00f6ngu<\/p>\n<p>\u00fea\u00f0 getur ekki meti\u00f0 beina braut<\/p>\n<p>og bori\u00f0 hana saman vi\u00f0 \u00fe\u00e6r r\u00f6ngu.<\/p>\n<p>Af reynslu sumra v\u00edst \u00fea\u00f0 g\u00e6ti virst<\/p>\n<p>sem ver\u00f0i allir \u00e1ttunum a\u00f0 t\u00fdna,<\/p>\n<p>\u00fev\u00ed r\u00e9tta lei\u00f0in h\u00fan er farin fyrst<\/p>\n<p>af f\u00f3lkinu sem \u00feorir kjark a\u00f0 s\u00fdna.<\/p>\n<p>Hann haf\u00f0i vakandi \u00e1huga \u00e1 \u00fej\u00f3\u00f0m\u00e1lum alla t\u00ed\u00f0 og t\u00f3k \u00fe\u00e1tt \u00ed stj\u00f3rnm\u00e1lastarfi. \u00de\u00f3r\u00f0ur var v\u00ed\u00f0s\u00fdnn og umbur\u00f0arlyndur. Hann skipa\u00f0i hei\u00f0urss\u00e6ti \u00e1 lista L\u00fd\u00f0r\u00e6\u00f0isvaktarinnar \u00ed Nor\u00f0vestur- kj\u00f6rd\u00e6mi \u00ed s\u00ed\u00f0ustu Al\u00feingiskosningum.<\/p>\n<p>Og n\u00fa er hann horfinn, \u00feessi \u00f6\u00f0lingur sem \u00e1tti hug og harta allra sem honum kynntust. \u00c9g flyt ykkur kve\u00f0jur fjarstaddra \u00e6ttingja og vina:<\/p>\n<p>\u00de\u00f3rgunnur J\u00f3nsd\u00f3ttir bi\u00f0ur fyrir g\u00f3\u00f0ar kve\u00f0jur til fj\u00f6lskyldu \u00de\u00f3r\u00f0ar.<\/p>\n<p>Kve\u00f0ja fr\u00e1 Vald\u00edsi Thorarensen og Miriam \u00e1 Akureyri.<\/p>\n<p>G\u00f3g\u00f3, P\u00e9tur og Gr\u00f3a Bj\u00f6rnsd\u00f3ttir bi\u00f0ja fyrir kve\u00f0jur, einnig Eir\u00edkur Finnur og Gulla sem \u00f6ll st\u00f6dd \u00e1 Flateyri um \u00feessar mundir. \u00deau \u00e6tla a\u00f0 taka eina g\u00f3\u00f0a Doddabl\u00f6ndu \u00e1 Flateyri \u00ed kv\u00f6ld.<\/p>\n<p>\u00de\u00f3r\u00f0ar ver\u00f0ur s\u00e1rt sakna\u00f0. Missir eiginkonu hans, barna og systur, fr\u00e6ndf\u00f3lks og vina er mikill. L\u00edfi\u00f0 tekur enda hj\u00e1 okkur \u00f6llum. \u00de\u00f3r\u00f0ur er farinn \u00ed s\u00edna hinstu fer\u00f0 og vi\u00f0 erum eftir og eigum fyrir h\u00f6ndum a\u00f0 berja bl\u00e1gr\u00e6na \u00edsingu spillingar af r\u00e1 og rei\u00f0a \u00fej\u00f3\u00f0arsk\u00fatunnar. Vi\u00f0 h\u00f6fum verk a\u00f0 vinna \u00ed anda draumsins um hina helgu borg. Bar\u00e1ttunni fyrir sanngjarnara og r\u00e9ttl\u00e1tara samf\u00e9lagi l\u00fdkur ekki fyrr en vi\u00f0 lok t\u00edmans \u00feegar \u00feessi heimur hverfur og n\u00fd og betri tilvera f\u00e6\u00f0ist \u00far huga alm\u00e6ttisins.<\/p>\n<p>\u00de\u00f3r\u00f0ur l\u00e9st \u00e1 L\u00edknardeild Landsp\u00edtalans \u00ed K\u00f3pavogi 18. j\u00fal\u00ed. s.l. \u00ed fa\u00f0mi fj\u00f6lskyldunnar. \u00dea\u00f0 var heil\u00f6g stund sem \u00e9g \u00e1tti me\u00f0 honum og \u00feeim \u00fear. Hann var me\u00f0 litla me\u00f0vitund en heyr\u00f0i \u00fe\u00f3 og skyldi flest a\u00f0 \u00e9g tel. \u00c9g r\u00e6ddi vi\u00f0 hann um kosningabar\u00e1ttuna, um f\u00e1nann okkar og hugsj\u00f3nir, rifja\u00f0i upp skemmtilegar s\u00f6gur og sag\u00f0ist mundu st\u00edga upp \u00e1 kassann aftur \u00ed fyllingu t\u00edmans.<\/p>\n<p>(ST\u00cdGA \u00c1 KASSANN)<\/p>\n<p>\u00c9g flutti honum fyrirheit frelsarans um blessun og eil\u00edft l\u00edf og f\u00f3r me\u00f0 b\u00e6nir \u00e1samt fj\u00f6lskyldunni. \u00dea\u00f0 lengdist \u00e1 milli andartaka og loks opna\u00f0i hann augun og sag\u00f0i veikum r\u00f3mi: Bless &#8211; og gaf upp andann, \u00feakkl\u00e1tur og gla\u00f0ur yfir \u00fev\u00ed a\u00f0 hafa \u00e1tt l\u00edfi\u00f0 og allt sitt g\u00f3\u00f0a f\u00f3lk til stu\u00f0nings \u00ed verkefnum daganna.<\/p>\n<p>\u00de\u00f3r\u00f0ur haf\u00f0i yndi af trj\u00e1r\u00e6kt og gr\u00f3\u00f0ri. Pappi hans stunda\u00f0i trj\u00e1r\u00e6kt vi\u00f0 Rau\u00f0avatn langt \u00e1 undan sinni samt\u00ed\u00f0 og \u00de\u00f3r\u00f0i var\u00f0 lj\u00f3st me\u00f0 honum a\u00f0 vonin breytir heiminum og s\u00e1 sem vill sj\u00e1 n\u00fdtt land \u00e1 morgun gr\u00f3\u00f0ursetur tr\u00e9 \u00ed dag. Gar\u00f0ur \u00feeirra L\u00e1ru vi\u00f0 Hrannarg\u00f6tu \u00e1 Flateyri ber gr\u00e6num fingrum hans og L\u00e1ru fagurt vitni. \u00c9g kom \u00feanga\u00f0 \u00ed vor en \u00fe\u00e1 voru enn skaflar \u00ed gar\u00f0inum en greinilegt a\u00f0 \u00fear bi\u00f0u bl\u00f3m og fr\u00e6 eftir vorgeislum bl\u00ed\u00f0um.<\/p>\n<p>Og aftur vitna \u00e9g \u00ed Skerjafjar\u00f0arsk\u00e1ldi\u00f0:<\/p>\n<p>Vi\u00f0 F\u00f6gruhl\u00ed\u00f0 er vori\u00f0 vafi\u00f0 lj\u00f3ma,<\/p>\n<p>\u00ed vi\u00f0jum moldar leynist undrakraftur<\/p>\n<p>\u00fev\u00ed undir snj\u00f3 er falin brei\u00f0a bl\u00f3ma<\/p>\n<p>sem b\u00ed\u00f0ur \u00feess a\u00f0 f\u00e1 a\u00f0 vakna aftur.<\/p>\n<p>\u00deessi mynd minnir \u00e1 vonina um n\u00fdtt l\u00edf, um framhald \u00ed borginni helgu \u00fear sem n\u00fdtt l\u00edf f\u00e6\u00f0sit \u00ed Hafnarstr\u00e6ti eil\u00edf\u00f0ar og dafnar \u00ed \u00deingholtum \u00feeim sem draga nafn sitt af \u00feingi sannleika og r\u00e9ttl\u00e6tis, fri\u00f0ar og elsku.<\/p>\n<p>Blessu\u00f0 s\u00e9 minning \u00de\u00f3r\u00f0ar S\u00e6var J\u00f3nssonar og Gu\u00f0 blessi \u00feig. Amen.<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>S\u00e1lmaskr\u00e1in:<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p><a href=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2013\/08\/c3besj-innsidur.pdf\">\u00deSJ innsidur<\/a> <a href=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2013\/08\/c3besj-utsidur.pdf\">\u00deSJ utsidur<\/a><\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00d6rn B\u00e1r\u00f0ur J\u00f3nsson Minningaror\u00f0 \u00de\u00f3r\u00f0ur S\u00e6var J\u00f3nsson f.24.8.1934, d. 18.7.2013 \u00datf\u00f6r fr\u00e1 Neskirkju 2. \u00e1g\u00fast 2013 kl. 13 R\u00e6\u00f0una er h\u00e6gt a\u00f0 lesa h\u00e9r fyrir ne\u00f0an. Einnig er h\u00e6gt a\u00f0 hlusta \u00e1 r\u00e6\u00f0una me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 smella \u00e1 \u00fer\u00edhyrninginn &#8211; Play-takkann. S\u00e1lmaskr\u00e1in er \u00a0ne\u00f0anm\u00e1ls sem pdf-skjal.<\/p>\n","protected":false},"author":2,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_jetpack_newsletter_access":"","_jetpack_dont_email_post_to_subs":false,"_jetpack_newsletter_tier_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paywalled_content":false,"_jetpack_hide_featured_image":false,"_jetpack_featured_image_duplicate_dismissed":0,"_jetpack_feature_clip_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":"","jetpack_post_was_ever_published":false},"categories":[4],"tags":[],"class_list":["post-671","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-greinar-og-hugvekjur-articles"],"jetpack_sharing_enabled":true,"jetpack_featured_media_url":"","_links":{"self":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/671","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/users\/2"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcomments&post=671"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/671\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fmedia&parent=671"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcategories&post=671"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Ftags&post=671"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}