{"id":6704,"date":"2025-08-25T11:40:23","date_gmt":"2025-08-25T11:40:23","guid":{"rendered":"http:\/\/ornbardur.com\/2025\/08\/25\/atokin-a-gaza-2\/"},"modified":"2025-08-25T11:40:23","modified_gmt":"2025-08-25T11:40:23","slug":"atokin-a-gaza-2","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/ornbardur.com\/?p=6704","title":{"rendered":"\u00c1t\u00f6kin \u00e1 Gaza II"},"content":{"rendered":"\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>Seinni hluti<\/strong><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Viltu hlusta? Tekur 19 m\u00edn\u00fatur.<\/p>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-audio\"><audio controls src=\"https:\/\/pub-c849b6aaf98340c4bec7b480b0f7ffe9.r2.dev\/2025\/08\/atokin-a-gaza-seinni-hluti-1.m4a\"><\/audio><\/figure>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>Gy\u00f0ingurinn Jes\u00fas Kristur<\/strong><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Eiga prestar a\u00f0 vera saklaus g\u00f3\u00f0menni og jafnvel sko\u00f0analausir aumingjar? Flutti Jes\u00fas eint\u00f3mar, sykra\u00f0ar hugvekjur? Gat hann veri\u00f0 hvassyrtur? \u00cd Fjallr\u00e6\u00f0unni er margt sem f\u00f3lk \u00feekkir. Hva\u00f0 segir\u00f0u um \u00feessi or\u00f0 Jes\u00fa:<\/p>\n\n\n\n<!--more-->\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-image size-large\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"1584\" height=\"1197\" src=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2025\/08\/img_0338.jpg?w=1024\" alt=\"\" class=\"wp-image-6702\" \/><figcaption class=\"wp-element-caption\">Matteusargu\u00f0spjall 7.13-29<\/figcaption><\/figure>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00deessi or\u00f0 eru m\u00e9r sj\u00e1lfum vi\u00f0v\u00f6rum um a\u00f0 rata r\u00e9ttan veg \u00ed l\u00edfinu. <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">A\u00f0 lifa er dau\u00f0ans alvara!<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>\u00d3l\u00e6si<\/strong><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">H\u00f3pur f\u00f3lks sem vir\u00f0ist ekki geta lesi\u00f0 s\u00e9r til gagns hefur afbaka\u00f0 flest sem \u00e9g hef sagt \u00e1 samf\u00e9lagsmi\u00f0lum um m\u00e1lefni Palest\u00ednu og \u00cdsraels. \u00dea\u00f0 vir\u00f0ist slegi\u00f0 blindu og skilur ekki f\u00e6rslur m\u00ednar, sn\u00fdr \u00fat \u00far \u00feeim og brenglar \u00ed taugaveikla\u00f0ri me\u00f0virkni me\u00f0 m\u00e1lsta\u00f0, sem au\u00f0velt er a\u00f0 leysa upp \u00ed frumeindir s\u00ednar og afsanna. \u00c9g vil helst tr\u00faa \u00e1 a\u00f0 gott s\u00e9 \u00ed \u00f6llum f\u00f3lki, en um lei\u00f0 undrast \u00e9g illskuna \u00ed hj\u00f6rtum sumra landa minna. \u00c9g veit a\u00f0 \u00ed okkur \u00f6llum b\u00fdr \u00ed senn m\u00f6guleikinn til a\u00f0 gera hi\u00f0 g\u00f3\u00f0a, en jafnframt hi\u00f0 illa. \u00dea\u00f0 kallar Bibl\u00edan <em>synd<\/em> en hugtaki\u00f0 \u00e1 frumm\u00e1linu, gr\u00edsku, er <em>hamartia, <\/em>sem merkir <em>geigun, <\/em>a\u00f0 missa marks. \u00deessi geigun, syndin, hrj\u00e1ir b\u00e6\u00f0i \u00feig og mig, okkur \u00f6ll! Og \u00e9g endurtek: <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">A\u00f0 lifa er dau\u00f0ans alvara!<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>Hva\u00f0a hugmyndafr\u00e6\u00f0i?<\/strong><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Svo er \u00fea\u00f0 m\u00e9r miki\u00f0 umhugsunarefni a\u00f0 \u00ed h\u00f3pi \u00feeirra sem fara me\u00f0 mestu \u00fej\u00f3sti um m\u00edn or\u00f0 vir\u00f0ast m\u00e9r margir vera gamlir kommar og vinstrimenn. Grunnt vir\u00f0ist vera \u00e1 gy\u00f0ingahatri \u00ed hugum \u00feeirra. Komm\u00fanisminn er hruninn og s\u00fa helstefna var n\u00fa ekki par hrifin af gy\u00f0ingum. Vinstri\u00f0 er \u00e1 vergangi \u00ed \u00feessum efnum. R\u00fassar voru ekki heldur hrifnir af gy\u00f0ingum \u00e1\u00f0ur en komm\u00fanisminn t\u00f3k yfir \u00fear \u00ed landi. \u00c1r\u00e1s \u00e1 gy\u00f0inga e\u00f0a svonefnt <em>pogram, <\/em>sem felst \u00ed \u00fev\u00ed a\u00f0 dey\u00f0a gy\u00f0inga \u00ed h\u00f3pum, er \u00feekkt \u00ed s\u00f6gunni, en n\u00e6st okkur \u00ed n\u00fat\u00edmanum \u00e1ttu sl\u00edkar ofs\u00f3knir gegn gy\u00f0ingum s\u00e9r sta\u00f0 \u00ed R\u00fasslandi \u00e1 19. og 20. \u00f6ld. Vi\u00f0 \u00feekkjum svo me\u00f0fer\u00f0 Nazista \u00e1 gy\u00f0ingum fyrir mi\u00f0ja s\u00ed\u00f0ustu \u00f6ld.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">J\u00e1, talandi um Nazista og \u00de\u00fdzkaland.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>St\u00f3\u00f0u \u00cdslendingar a\u00f0 dr\u00e1pum tug\u00fe\u00fasunda?<\/strong><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00cd Seinni-heimsstyrj\u00f6ldinni 1939-1945 t\u00f3ku \u00fej\u00f3\u00f0ir sig saman um a\u00f0 kn\u00e9setja nazismann. \u00de\u00e6r voru kalla\u00f0ar Bandamenn og vi\u00f0 t\u00f6ldumst til \u00feeirra \u00ed sko\u00f0unum og p\u00f3lit\u00edk.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hva\u00f0 var gert? Herir Bandamanna r\u00e9\u00f0ust \u00e1 \u00de\u00fdzkaland, dr\u00e1pu \u00fear b\u00f6rn, unglinga og fullor\u00f0na, hermenn og \u00f3breytta borgara. Flugher Breta sprengdi heilu borgirnar \u00ed \u00de\u00fdzkalandi upp \u00ed frumeindir s\u00ednar. Bandamenn voru Bandar\u00edkjamenn, Bretar, Frakkar og fleiri frj\u00e1lsar \u00fej\u00f3\u00f0ir. (Sj\u00e1 n\u00e1nar h\u00e9r: https:\/\/en.wikipedia.org\/wiki\/Allies_of_World_War_II)<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Manndr\u00e1p eru \u00e6t\u00ed\u00f0 hr\u00e6\u00f0ileg og r\u00edfa \u00ed hjarta allra manna sem eru me\u00f0 \u00f3brengla\u00f0 tilfinningal\u00edf. \u00c9g g\u00e6ti sj\u00e1lfur or\u00f0i\u00f0 f\u00f3rnarlamb \u00e1taka og \u00fe\u00fa l\u00edka!<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">S\u00ed\u00f0ari heimstyrj\u00f6ldin 1939-1945 \u00e1tti s\u00e9r sta\u00f0 \u00e1\u00f0ur en \u00e9g f\u00e6ddist, en foreldara m\u00ednir lif\u00f0u hana og kynsl\u00f3\u00f0in \u00e1 undan \u00feeim upplif\u00f0i Fyrri heimstyrj\u00f6ldina 1914-1918. Hva\u00f0 ger\u00f0u \u00cdslendingar til a\u00f0 hj\u00e1lpa konum, b\u00f6rnum, ungum og \u00f6ldru\u00f0um, f\u00f6tlu\u00f0um og veikum, \u00ed \u00de\u00fdzkalandi nazismans, \u00feegar sprengjuregni\u00f0, sem vi\u00f0 st\u00f3\u00f0um a\u00f0 sj\u00e1lf, sem hluti Bandamanna, buldi \u00e1 borgurum landsins? \u00cdslendingar studdu t.d. Nor\u00f0menn me\u00f0 matar- og fatagj\u00f6fum sem li\u00f0u undir hern\u00e1mi Nazista. Vi\u00f0 misstum 230 manns af v\u00f6ldum styrjaldarinnar, einkum sj\u00f3menn sem m\u00f6nnu\u00f0u skip, er skotin vori ni\u00f0ur af \u00dej\u00f3\u00f0verjum.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Sj\u00f6t\u00edu\u00fe\u00fasund Bretar f\u00f3rnu\u00f0u l\u00edfi s\u00ednu \u00ed str\u00ed\u00f0inu vi\u00f0 Hitler og 2 millj\u00f3nir \u00dej\u00f3\u00f0verja l\u00e9tu l\u00edfi\u00f0 \u00ed \u00e1t\u00f6kunum. F\u00f3rnarkostna\u00f0urinn var g\u00edfurlegur. \u00cd str\u00ed\u00f0i eru \u00e6t\u00ed\u00f0 f\u00e6r\u00f0ar f\u00f3rnir og en s\u00fa f\u00f3rn var\u00f0 til \u00feess a\u00f0 \u00f3v\u00e6ran var uppr\u00e6tt.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Eitt er v\u00edst, f\u00f3lki\u00f0 h\u00e9r heima \u00e1 \u00cdslandi gekk ekki um g\u00f6tur og torg me\u00f0 skylti til a\u00f0 m\u00f3tm\u00e6la \u00e1r\u00e1sum \u00e1 \u00de\u00fdzkaland. F\u00f3lk var ekki \u00e1 b\u00f6mmer yfir \u00f6rl\u00f6gum \u00de\u00fdzkalands, e\u00f0a almennings sem \u00fej\u00e1\u00f0ist undir sprengjuregni. Eftir a\u00f0 str\u00ed\u00f0inu lauk kom svo \u00ed lj\u00f3s hvernig fari\u00f0 haf\u00f0i veri\u00f0 me\u00f0 gy\u00f0inga. \u00dea\u00f0 er lj\u00f3t saga og blettur \u00e1 mannkyni.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Gy\u00f0ingar voru ekki \u00ed str\u00ed\u00f0i \u00fe\u00e1 vi\u00f0 einn n\u00e9 neinn, en voru drepnir fyrir \u00fea\u00f0 eitt, a\u00f0 vera gy\u00f0ingar, deyddir skipulega, drepnir \u00ed gasklefum, fyrir tr\u00fa s\u00edna \u00e1 Gu\u00f0. Gy\u00f0ingar voru varnarlausir \u00e1 d\u00f6gum Helfararinnar, en \u00ed dag eru \u00feeir me\u00f0 her og geta varist vitfirrtum \u00f6fgam\u00f6nnum sem vilja \u00fatr\u00fdma \u00feeim.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Ungi, \u00fe\u00fdski gu\u00f0fr\u00e6\u00f0ingurinn og l\u00fatherski presturinn, doktor Dietrich Bonhoeffer (1906-1945) er \u00feekktur fyrir hugrekki sitt \u00e1 t\u00edmum s\u00ed\u00f0ari heimsstyrjaldarinnar. Hann var talinn hafa lagt \u00e1 r\u00e1\u00f0in um a\u00f0 koma Hitler fyrir kattarnef e\u00f0a \u00ed \u00fea\u00f0 minnsta a\u00f0 gagnr\u00fdna nazismann m.a. me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 tala gegn helf\u00f6rinni. Hann bygg\u00f0i r\u00f6k s\u00edn \u00e1 kristinni tr\u00fa og gu\u00f0fr\u00e6\u00f0i. H\u00f3pur sem hann \u00feekkti til kom fyrir sprengju \u00ed handt\u00f6sku \u00ed fundarsal \u00fear sem Hitler var me\u00f0 s\u00ednum sk\u00f3sveinum. Hitler slapp naumlega vi\u00f0 tilr\u00e6\u00f0i\u00f0.<\/p>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-image size-large\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"735\" height=\"1075\" src=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2025\/08\/img_0339.jpg?w=700\" alt=\"\" class=\"wp-image-6703\" \/><figcaption class=\"wp-element-caption\">Dietrich Bonhoeffer (1906-1945) &#8211; mynd af Vefnum<\/figcaption><\/figure>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Bonhoeffer var handtekinn og fangelsa\u00f0ur \u00ed apr\u00edl 1943. Hann var hengdur 9. apr\u00edl 1945, \u00f6rf\u00e1um d\u00f6gum fyrir fall \u00deri\u00f0ja r\u00edkisins. Hann var 39 \u00e1ra gamall og kvaddi samfanga, sem hann haf\u00f0i messa\u00f0 yfir og be\u00f0i\u00f0 me\u00f0 og styrkt \u00ed \u00f3vissu \u00feeirra. Og \u00feeir kv\u00f6ddu hann me\u00f0 t\u00e1r \u00e1 hv\u00f6rmum \u00fev\u00ed hann haf\u00f0i stappa\u00f0 \u00ed \u00fe\u00e1 st\u00e1linu og v\u00f6kva\u00f0 vonina \u00ed brj\u00f3stum \u00feeirra. Hann gekk \u00ed gegnum h\u00f3p samfanga sinna \u00feegar hann var leiddur til aft\u00f6ku og m\u00e6lti s\u00edn hinstu or\u00f0: <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">&#8220;\u00deetta eru endalokin &#8211; fyrir m\u00e9r upphaf l\u00edfsins!&#8221;<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00cd str\u00ed\u00f0i er f\u00f3lk nefnilega drepi\u00f0, mannfall er fylgifiskur vopna\u00f0ra \u00e1taka \u00fear sem gagnst\u00e6\u00f0ar fylkingar takast \u00e1.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>R\u00f6k hins illa<\/strong><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">A\u00f0 l\u00edkja \u00cdsraelsm\u00f6nnum n\u00fa vi\u00f0 \u00dej\u00f3\u00f0verja \u00e1 t\u00edmum nazismans er alvarlegur d\u00f3mgreindarbrestur, \u00fev\u00ed \u00f3l\u00edku er saman a\u00f0 jafna.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hins vegar er Hamas sem st\u00fdrt hefur Gaza, einmitt \u00e1 \u00feeim \u00fareltu nazista-buxum, a\u00f0 \u00fatr\u00fdma eigi gy\u00f0ingum. Gy\u00f0ingar voru ekki \u00e1 bandi \u00f3vina \u00dej\u00f3\u00f0verja \u00e1 d\u00f6gum Seinni heimstyrjaldarinnar. \u00deeir voru bara tiltekinn h\u00f3pur \u00edb\u00faa, duglegir, g\u00e1fa\u00f0ir, sumir efna\u00f0ir, a\u00f0rir f\u00e1t\u00e6kir. \u00deeir voru ekki \u00ed tengslum vi\u00f0 hry\u00f0juverkasamt\u00f6k \u00e1 \u00feeim t\u00edma eins og f\u00f3lki\u00f0 \u00e1 Gaza \u00ed dag sem kaus Hamas yfir sig.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c1r\u00e1sir nazista \u00e1 gy\u00f0inga voru ekki \u00e1 hry\u00f0juverkasamt\u00f6k heldur h\u00f3p f\u00f3lks me\u00f0 tiltekna tr\u00fa. \u00cdsrealsmenn eiga \u00ed str\u00ed\u00f0i vi\u00f0 hry\u00f0juverkasamt\u00f6kin Hamas sem sk\u00fdlir s\u00e9r \u00e1 bak vi\u00f0 almenning \u00ed landinu og vill alla gy\u00f0inga feiga vegna tr\u00faar hinna s\u00ed\u00f0arnefndu. Almennir borgarar l\u00e1ta l\u00edfi\u00f0 \u00fear sem Hamas notar \u00fe\u00e1 sem fallbyssuf\u00f3\u00f0ur og f\u00f3rnar \u00ed senn me\u00f0virkum samborgurum s\u00ednum og l\u00edka saklausum sem ekki sty\u00f0ja brj\u00e1l\u00e6\u00f0i \u00feeirra. \u00deetta eru hinar hryllilegu sta\u00f0reyndir.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c1 Gaza eru stj\u00f3rnv\u00f6ld, sem almenningur kaus yfir sig, og \u00feessi brj\u00e1lu\u00f0u stj\u00f3rnv\u00f6ld h\u00f3fu str\u00ed\u00f0 vi\u00f0 \u00cdsrael. \u00c1 Gaza fl\u00e6kjast allir \u00ed \u00feetta str\u00ed\u00f0 vi\u00f0 \u00cdsrael og f\u00f3lki\u00f0 er reki\u00f0 \u00e1fram af har\u00f0ri hendi Hamas.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Og skiljanlega fara \u00cdsraelsmenn mikinn gegn \u00f3v\u00e6runni Hamas og \u00fea\u00f0 kostar miklar f\u00f3rnir, \u00fev\u00ed arabarnir nota f\u00f3lki\u00f0 sitt \u00e1 Gaza sem skj\u00f6ld.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hamasli\u00f0ar d\u00fdrkar dau\u00f0ann og \u00fea\u00f0 a\u00f0 deyja fyrir m\u00e1lsta\u00f0inn er s\u00e1 allra besti hei\u00f0ur sem \u00feeir telja sig geta hlotnast, \u00fev\u00ed hann gefur mesta s\u00e6lu og laun \u00e1 himnum svk. \u00feeirra brj\u00e1lu\u00f0u l\u00edfsko\u00f0un \u00far K\u00f3raninum. \u00deeir tr\u00faa \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feeir f\u00e1i hver fyrir sig, 72 hreinar meyjar \u00e1 himnum, til a\u00f0 gamna s\u00e9r me\u00f0! <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Er einhver heil br\u00fa \u00ed sl\u00edkri tr\u00fa og skilningi \u00e1 l\u00edfinu og tilverunni?<\/p>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-embed is-type-rich is-provider-twitter wp-block-embed-twitter\"><div class=\"wp-block-embed__wrapper\">\n<div class=\"embed-twitter\"><blockquote class=\"twitter-tweet\" data-width=\"500\" data-dnt=\"true\"><p lang=\"en\" dir=\"ltr\">Islam makes its intentions crystal clear:<br>Not to coexist. Not to assimilate.<br>But to kill, destroy, and conquer.<br><br>They openly admit it.<br>So why is the West still blind, still inviting its own downfall? <a href=\"https:\/\/t.co\/XKy1UozogR\">pic.twitter.com\/XKy1UozogR<\/a><\/p>&mdash; Yossi BenYakar (@YossiBenYakar) <a href=\"https:\/\/twitter.com\/YossiBenYakar\/status\/1959480238859014490?ref_src=twsrc%5Etfw\">August 24, 2025<\/a><\/blockquote><script async src=\"https:\/\/platform.twitter.com\/widgets.js\" charset=\"utf-8\"><\/script><\/div>\n<\/div><\/figure>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Tilfinningar \u00fdfast upp vi\u00f0 a\u00f0 sj\u00e1 myndir fr\u00e1 Gaza og \u00fea\u00f0 vita Hamasli\u00f0ar. \u00c1r\u00f3\u00f0ursstr\u00ed\u00f0 er stunda\u00f0 me\u00f0 f\u00f6lskum fr\u00e9ttum og myndum. Sj\u00faklingar me\u00f0 v\u00f6\u00f0var\u00fdrnun eru l\u00e1tinir leika &#8220;sveltandi&#8221; og deyjandi f\u00f3lk. M\u00f3\u00f0ir sj\u00faklingsins situr s\u00e6lleg \u00ed g\u00f3\u00f0um holdum vi\u00f0 r\u00fam sonarins. Svelta \u00feau? Sumir \u00e1horfendur sj\u00e1 \u00ed gegnum leikmyndir af \u00feessu tagi. En au\u00f0vita\u00f0 er h\u00f6rmungar\u00e1stand \u00e1 Gaza. \u00c9g dreg ekki dul \u00e1 \u00fea\u00f0. Og blessu\u00f0 b\u00f6rnin l\u00ed\u00f0a \u00ed \u00feessum \u00e1t\u00f6kum, en \u00e1byrg\u00f0in er foreldranna og forystumanna \u00feeirra.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Svo eru \u00fea\u00f0 fr\u00e9ttamennirnir m\u00f6rgu sem \u00feurfa a\u00f0 fylla \u00e1 hro\u00f0af\u00edknina hj\u00e1 lesendum og \u00e1horfendum \u00e1 Vesturl\u00f6ndum og \u00fe\u00e1 er freistandi a\u00f0 b\u00faa til sem allra mestan hasar og hrylling. Og \u00feetta gerist \u00e1 b\u00e1\u00f0a b\u00f3ga. En R\u00fav s\u00e9r bara a\u00f0ra hli\u00f0ina.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Og vi\u00f0, almenningur, erum eins og vanka\u00f0ir sau\u00f0ir, au\u00f0tr\u00faa, me\u00f0virk \u00ed k\u00e6rleika og yfirm\u00e1ta \u00ferungin af harmi yfir \u00feessu \u00f6llu. Og \u00e9g er \u00fear me\u00f0 \u00ed \u00feessum h\u00f3pi f\u00f3lks sem finnur til, en er \u00fe\u00f3 me\u00f0 a\u00f0ra afst\u00f6\u00f0u en sumir. Engar tv\u00e6r manneskjur \u00ed heiminun hugsa n\u00e1kv\u00e6mlega eins. Gleymdu \u00fev\u00ed aldrei og hugsa\u00f0u um \u00fea\u00f0 \u00feegar \u00fe\u00fa slaufar \u00f6\u00f0rum vegna sko\u00f0ana \u00feeirra. \u00de\u00fa munt aldrei eignast h\u00f3p f\u00f3lks sem er 100% samm\u00e1la \u00fe\u00e9r um allt!<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c9g hef kynnst f\u00f3lki \u00ed F\u00e9laginu \u00cdsland-Palest\u00edna og gaf \u00feeim \u00e1 s\u00ednum t\u00edma leyfi til a\u00f0 halda fund \u00ed safna\u00f0arsal Neskirkju \u00ed kjallara kirkjunnar \u00feegar \u00e9g var \u00fear prestur. \u00c9g lag\u00f0i mig fram um a\u00f0 skilja bo\u00f0skap \u00feeirra og f\u00f3r a.m.k. einu sinni \u00e1 opinn \u00fatifund samtakanna. En augu m\u00edn hafa opnast fyrir \u00feeim mikla misskilningi sem felst \u00fev\u00ed a\u00f0 tala um Palest\u00ednumenn, \u00fev\u00ed hugtaki\u00f0 er yngra en \u00e9g sj\u00e1lfur og fundi\u00f0 upp fyrir nokkrum \u00e1rum, m.a. til \u00feess a\u00f0 b\u00faa til jar\u00f0veg fyrir and\u00f3f. \u00c9g haf\u00f0i alltaf efasemdir um \u00feeirra p\u00f3lit\u00edk og hef enn og \u00ed r\u00edkari m\u00e6li en \u00e1\u00f0ur. Au\u00f0vita\u00f0 er almenningur \u00e1 Gaza venjulegt f\u00f3lk me\u00f0 drauma og \u00fer\u00e1r eins og vi\u00f0 \u00f6ll, en \u00feau eru \u00ed kl\u00f3m h\u00e6ttulegrar og dj\u00f6fullegrar hugmyndafr\u00e6\u00f0i og \u00fear me\u00f0 er hluti \u00feeirra or\u00f0inn a\u00f0 me\u00f0virkum f\u00f3rnarl\u00f6mbum \u00ed \u00f6murlegum a\u00f0st\u00e6\u00f0um.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">En Palest\u00edna er ekki ein \u00ed heiminum. Um \u00feessar mundir drepa islamistar kristi\u00f0 f\u00f3lk \u00ed \u00fe\u00fasundatali \u00ed N\u00edger\u00edu. Enginn lyftir fingri \u00e1 \u00cdslandi til a\u00f0 benda \u00e1 \u00feau mor\u00f0, engin m\u00f3tm\u00e6li \u00e1 Austurvelli, engir f\u00e1nar. &#8220;G\u00f3\u00f0a&#8221; f\u00f3lki\u00f0 er nefnilega ekki \u00e1 vakt fyrir neina a\u00f0ra og l\u00e6tur s\u00e9r \u00ed l\u00e9ttu r\u00fami liggja a\u00f0 tr\u00fasystkini margra okkar eru myrt fyrir tr\u00fa s\u00edna \u00e1 Jes\u00fa Krist \u00ed N\u00edger\u00edu.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>S\u00f6kud\u00f3lgurinn?<\/strong><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Og svo er allt sagt \u00cdsrael a\u00f0 kenna \u00feegar kemur a\u00f0 Gaza.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00deegar tveir deila bera b\u00e1\u00f0ir \u00e1byrg\u00f0. \u00c9g hef reynt a\u00f0 benda \u00e1 a\u00f0 \u00e1 m\u00e1linu s\u00e9u a.m.k. tv\u00e6r hli\u00f0ar. Fyrir \u00fea\u00f0 f\u00e6 \u00e9g yfir mig sk\u00edt og \u00f3hr\u00f3\u00f0ur fr\u00e1 f\u00f3lki sem \u00e9g hef annars tali\u00f0 \u00feokkalega heilt \u00e1 s\u00f6nsum, en er n\u00fa farinn a\u00f0 efast mj\u00f6g um d\u00f3mgreind \u00feess og andlegt atgervi, \u00feeirra sem \u00e6stust eru og \u00f6fgafyllst.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00cdsrael er eina r\u00edki\u00f0 fyri botni Mi\u00f0jar\u00f0arhafs \u00fear sem l\u00fd\u00f0r\u00e6\u00f0i og \u00feingr\u00e6\u00f0i r\u00edkir. Almenningur hefur \u00fea\u00f0 gott og arabar sem \u00fear b\u00faa og starfa, una hag s\u00ednum vel. \u00cdsrael \u00e1 engar n\u00e1tt\u00faruau\u00f0lindir. Landi\u00f0 er agnarsm\u00e1tt, eitt minnsta r\u00edki veraldar, en \u00fea\u00f0 er a\u00f0 afli til sem st\u00f3rveldi.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c9g heims\u00f3tti landi\u00f0 \u00ed ma\u00ed 2023 og fr\u00e6ddist um land og \u00fej\u00f3\u00f0. \u00c9g hl\u00fdddi \u00e1 m\u00faslimskan fr\u00e6\u00f0imann tala \u00ed einn og h\u00e1lfan t\u00edma um islam og \u00fear \u00e1 me\u00f0al vandam\u00e1l sem hann r\u00e6ddi og sn\u00fdr a\u00f0 kenningum islam. \u00dea\u00f0 var fr\u00f3\u00f0legt \u00e1 a\u00f0 hl\u00fd\u00f0a.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Engan beinan \u00e1r\u00f3\u00f0ur f\u00e9kk \u00e9g fr\u00e1 \u00cdsraelsm\u00f6nnum, nema \u00fe\u00e1 \u00feann sem b\u00fdr \u00ed \u00fe\u00f6glum m\u00farum og steinum, gr\u00f3\u00f0ri og s\u00f6ndum, brimseltu Dau\u00f0hafsins, Massada-virkinu, s\u00fdnag\u00f3gum og kirkjum og Musterish\u00e6\u00f0inni sj\u00e1lfri, a\u00f0 \u00f3gleymdum Gr\u00e1tm\u00farnum og s\u00f6gu og menningu lands, sem hefur f\u00e6tt af s\u00e9r merkustu veraldars\u00fdn sem heimurinn \u00e1 \u00ed s\u00ednu safni. Gr\u00e1tm\u00farinn er helgasti sta\u00f0ur gy\u00f0inga \u00fev\u00ed hann er hluti undirst\u00f6\u00f0u musterins sem lagt var \u00ed r\u00fast af R\u00f3mverju \u00e1ri\u00f0 70 e.Kr. \u00dearna liggja r\u00e6tur gy\u00f0ingd\u00f3ms og kristni. \u00d6ll okkar helgu gildi eru sprottin \u00far \u00feessum jar\u00f0vegi. Steinarnir hr\u00f3pa, sag\u00f0i Jes\u00fas og \u00fea\u00f0 gera \u00feeir svo sannarlega \u00ed \u00cdsrael. Minnjar og markver\u00f0ir sta\u00f0ir, tala s\u00ednu m\u00e1li.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Vi\u00f0 vorum nokkrir karlar saman \u00ed h\u00f3p og f\u00f3rum v\u00ed\u00f0a til a\u00f0 sko\u00f0a landi\u00f0. \u00c9g naut \u00feess hei\u00f0urs a\u00f0 messa \u00e1 b\u00f6kkum Gal\u00edleuvatnsins \u00fear sem P\u00e9tur og Andr\u00e9s, Jakob og J\u00f3hannes, stundu\u00f0u vei\u00f0ar og hittu Jes\u00fa. Steinaltari\u00f0 st\u00f3\u00f0 \u00ed v\u00f6rinni vi\u00f0 vatni\u00f0 \u00fear sem \u00feeir l\u00f6g\u00f0u fr\u00e1 landi og komu til baka me\u00f0 feng sinn. \u00c9g helga\u00f0i brau\u00f0 og v\u00edn og vi\u00f0 neyttum saman m\u00e1lt\u00ed\u00f0ar, \u00e1samt me\u00f0 hinum upprisna \u00ed heilagri n\u00e6rveru hans \u00ed hj\u00f6rtum okkar!<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Vi\u00f0 f\u00f3rum til Betlehem, sem er handan h\u00e1rra, steyptra veggja og sko\u00f0u\u00f0um listasafn, sem ber heiti\u00f0, Banksy&#8217;s Walled Off Hotel. Nafni\u00f0 er or\u00f0aleikur sem kallast \u00e1 vi\u00f0 hi\u00f0 fr\u00e6ga Waldorf h\u00f3tel \u00e1 Mahattan \u00ed New York. Myndlistin \u00fear er margslungin og \u00f6grandi, en safni\u00f0 er r\u00e9tt handan steypuveggjanna h\u00e1u sem skilja \u00e1 milli \u00edb\u00faa \u00cdsraels og Palest\u00ednumanna \u00e1 Vesturbakka J\u00f3rdanar, sem geta \u00fe\u00f3 fari\u00f0 daglega \u00ed gegnum \u00f6ryggishli\u00f0 til vinnu sinnar \u00ed \u00cdsrael.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00cdsrael er \u00f3tr\u00falegt r\u00edki og dugna\u00f0ur gy\u00f0inga vekur manni \u00e6t\u00ed\u00f0 undrun og a\u00f0d\u00e1un. Hvers \u00e1 \u00feetta f\u00f3lk a\u00f0 gjalda sem hefur barist fyrir l\u00edfi s\u00ednu um aldir? \u00deeir eiga \u00feann heilaga r\u00e9tt a\u00f0 f\u00e1 a\u00f0 verjast \u00e1r\u00e1sum \u00f3vinveittra einstaklinga, hreyfinga og \u00fej\u00f3\u00f0a. Vi\u00f0 eigum \u00f6ll \u00feann heilaga r\u00e9tt a\u00f0 mega verjast \u00f3gnandi f\u00f3lki og bj\u00e1lsemi heila\u00feveginna vitleysingja.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Myndir \u00fe\u00fa verja \u00feig og \u00feitt f\u00f3lk ef \u00e1 ykkur yr\u00f0i r\u00e1\u00f0ist?<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Myndir \u00fe\u00fa taka upp vopn ef r\u00e1\u00f0ist yr\u00f0i \u00e1 \u00cdsland?<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">E\u00f0a \u00e6tlar \u00fe\u00fa bara a\u00f0 veina \u00e1 torgum me\u00f0 skylti \u00ed me\u00f0virkum, \u00f3rauns\u00e6jum k\u00e6rleika, sem sn\u00fdst upp \u00ed andst\u00e6\u00f0u s\u00edna og hittir \u00feig a\u00f0 lokum fyrir sem bj\u00fagverpill er sn\u00fdr vi\u00f0, smellur \u00e1 \u00fe\u00e9r me\u00f0 afli og afhj\u00fapar grunnhyggni \u00fe\u00edna? \u00de\u00fa ert nefnilega, me\u00f0 stu\u00f0ningi vi\u00f0 andst\u00e6\u00f0ing \u00cdsraels, \u00ed raun a\u00f0 sty\u00f0ja \u00fatr\u00fdmingu gy\u00f0inga og \u00fear me\u00f0 stefnu nazista og Hamas!<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00dej\u00f3\u00f0kirkjan lag\u00f0i \u00e1herslu \u00e1 fri\u00f0 me\u00f0 klukknahringingum \u00ed d\u00f3mkirkjum landsins fimmtudaginn 7. \u00e1g\u00fast s.l. Undir \u00fe\u00e1 b\u00e6n t\u00f3k \u00e9g, en \u00fe\u00f3 ekki \u00ed f\u00e1v\u00edsri e\u00f0a \u00f3rauns\u00e6rri tr\u00fa og \u00fea\u00f0an af s\u00ed\u00f0ur me\u00f0virkum k\u00e6rleika sem kann ekki a\u00f0 setja nein m\u00f6rk. F\u00f3rnarl\u00f6mb str\u00ed\u00f0s\u00e1taka hvar sem er \u00ed heiminum vekja sam\u00fa\u00f0 me\u00f0 \u00f6llu velmeinandi f\u00f3lki e\u00f0a eins og sk\u00e1ldi\u00f0 T\u00f3mas Gu\u00f0mundsson sag\u00f0i:<\/p>\n\n\n\n<p class=\"has-text-align-center wp-block-paragraph\">Samt d\u00e1\u00f0ist \u00e9g enn meir a\u00f0 hinu,<br \/>hve hj\u00f6rtum manna svipar saman<br \/>\u00ed S\u00fadan og Gr\u00edmsnesinu.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Lj\u00faka \u00fearf \u00e1t\u00f6kunum og skapa f\u00f3lkinu \u00e1 Gaza t\u00e6kif\u00e6ri til a\u00f0 lifa \u00ed s\u00e1tt og fri\u00f0i vi\u00f0 alla n\u00e1granna s\u00edna, me\u00f0 l\u00fd\u00f0r\u00e6\u00f0i og manng\u00f6fgi a\u00f0 lei\u00f0arlj\u00f3si. \u00dea\u00f0 ver\u00f0ur ekki gert undir stj\u00f3rn Hamas. Hvort \u00fea\u00f0 ver\u00f0ur \u00e1 Gaza e\u00f0a handan landam\u00e6ranna \u00ed l\u00f6ndum \u00fear sem \u00fej\u00f3\u00f0ir b\u00faa, sem eru skyldari \u00feeim a\u00f0 skilningi \u00e1 l\u00edfinu og tilverunni &#8211; \u00fea\u00f0 mun framt\u00ed\u00f0in lei\u00f0a \u00ed lj\u00f3s.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Gu\u00f0 blessi f\u00f3lki\u00f0 \u00e1 Gaza og \u00ed \u00cdsrael og megi hann gefa okkur r\u00e9tta og sanna mynd af \u00e1standinu fyrir botni Mi\u00f0jar\u00f0arhafs.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c9g \u00feakka \u00feeim sem hafa hlusta\u00f0.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">G\u00f3\u00f0ar stundir!<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Seinni hluti Viltu hlusta? Tekur 19 m\u00edn\u00fatur. Gy\u00f0ingurinn Jes\u00fas Kristur Eiga prestar a\u00f0 vera saklaus g\u00f3\u00f0menni og jafnvel sko\u00f0analausir aumingjar? Flutti Jes\u00fas eint\u00f3mar, sykra\u00f0ar hugvekjur? Gat hann veri\u00f0 hvassyrtur? \u00cd Fjallr\u00e6\u00f0unni er margt sem f\u00f3lk \u00feekkir. Hva\u00f0 segir\u00f0u um \u00feessi or\u00f0 Jes\u00fa:<\/p>\n","protected":false},"author":2,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_jetpack_newsletter_access":"","_jetpack_dont_email_post_to_subs":false,"_jetpack_newsletter_tier_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paywalled_content":false,"_jetpack_hide_featured_image":false,"_jetpack_featured_image_duplicate_dismissed":0,"_jetpack_feature_clip_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":"","jetpack_post_was_ever_published":false},"categories":[4],"tags":[223,256,291,49,50,333,518,557,584],"class_list":["post-6704","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-greinar-og-hugvekjur-articles","tag-gaza","tag-hamas","tag-heimurinn","tag-israel","tag-isreal","tag-jesus","tag-rettlaeti","tag-sidferdi","tag-sorg"],"jetpack_sharing_enabled":true,"jetpack_featured_media_url":"","_links":{"self":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/6704","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/users\/2"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcomments&post=6704"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/6704\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fmedia&parent=6704"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcategories&post=6704"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Ftags&post=6704"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}