{"id":6695,"date":"2025-08-22T12:25:29","date_gmt":"2025-08-22T12:25:29","guid":{"rendered":"http:\/\/ornbardur.com\/2025\/08\/22\/atokin-a-gaza\/"},"modified":"2025-08-22T12:25:29","modified_gmt":"2025-08-22T12:25:29","slug":"atokin-a-gaza","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/ornbardur.com\/?p=6695","title":{"rendered":"\u00c1t\u00f6kin \u00e1 Gaza I"},"content":{"rendered":"\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>Fyrri<\/strong> <strong>hluti<\/strong><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00deankar um \u00e1stand og \u00e1byrg\u00f0<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">eftir \u00d6rn B\u00e1r\u00f0 J\u00f3nsson<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Viltu hlusta? Tekur 15 m\u00edn\u00fatur.<\/p>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-audio\"><audio controls src=\"https:\/\/pub-c849b6aaf98340c4bec7b480b0f7ffe9.r2.dev\/2025\/08\/atokin-a-gaza-fyrri-hluti.m4a\"><\/audio><\/figure>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c1ri\u00f0 2023 f\u00f3r \u00e9g \u00ed h\u00f3pfer\u00f0 til \u00cdsraels. S\u00fa fer\u00f0 var afar fr\u00f3\u00f0leg og m\u00f6gnu\u00f0 \u00e1 margan h\u00e1tt. \u00c9g fr\u00e6ddist um margt og upplif\u00f0i einnig spennuna sem m.a. kom fram \u00ed \u00fev\u00ed a\u00f0 vopna\u00f0ir hermenn voru v\u00ed\u00f0a me\u00f0 alv\u00e6pni. Vi\u00f0 \u00feekkjum \u00fea\u00f0 \u00f6ll a\u00f0 p\u00f3list\u00edskar deilur hafa \u00e1tt s\u00e9r sta\u00f0 \u00ed \u00cdsrael og \u00fer\u00f3ast yfir \u00ed \u00e1t\u00f6kin \u00e1 Gaza sem vi\u00f0 \u00feekkjum af fj\u00f6lmi\u00f0lum sem flytja urmul fr\u00e9tta \u00fea\u00f0an, b\u00e6\u00f0i sannar og lognar.<\/p>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-image size-large\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"2000\" height=\"1186\" src=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2025\/08\/img_0332.jpg?w=1024\" alt=\"\" class=\"wp-image-6694\" \/><figcaption class=\"wp-element-caption\">Mynd fr\u00e1 BBC<\/figcaption><\/figure>\n\n\n\n<!--more-->\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c9g hef voga\u00f0 m\u00e9r a\u00f0 tj\u00e1 mig um m\u00e1lefnin fyrir botni Mi\u00f0jar\u00f0arhafs og sett spurningarmerki vi\u00f0 margt \u00ed \u00feeim efnum. \u00c9g tr\u00fai t.d. ekki \u00f6llu sem sagt er um Gaza e\u00f0a f\u00f3lki\u00f0 sem \u00fear b\u00fdr og kalla\u00f0 er Palest\u00ednumenn.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00dea\u00f0 var Jasser Arafat (1929-2004) sem byrja\u00f0i a\u00f0 tala um f\u00f3lki\u00f0 sem Palest\u00ednumenn \u00e1 6. og 7. \u00e1ratugi li\u00f0innar aldar. Um er a\u00f0 r\u00e6\u00f0a araba eins og f\u00f3lki\u00f0 flest \u00ed l\u00f6ndunum fyrir botni Mi\u00f0jar\u00f0arhafs.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Reyndar fundu R\u00f3mverjar upp nafni\u00f0 Palest\u00edna eftir a\u00f0 hafa lagt \u00cdsraelsr\u00edki \u00ed r\u00fast \u00e1ri\u00f0 70 e.Kr., brennt musteri\u00f0 fagra og dregi\u00f0 pl\u00f3ga yfir Jer\u00fasalem og reki\u00f0 gy\u00f0inga burt af sv\u00e6\u00f0inu. Hugtaki\u00f0 Palest\u00ednumenn er aftur \u00e1 m\u00f3ti n\u00fdyr\u00f0i fr\u00e1 s\u00ed\u00f0ustu \u00f6ld.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Stj\u00f3rnm\u00e1lamenn reka \u00e1r\u00f3\u00f0ur fyrir \u00fdmsu. \u00deeir eru gjarnan \u00e1 vins\u00e6ldavei\u00f0um og eiga \u00fea\u00f0 til a\u00f0 falla \u00ed \u00fe\u00e1 freistni a\u00f0 skreyta sig dygg\u00f0um. N\u00fa, sumari\u00f0 2025, hafa sumir \u00feeirra vakna\u00f0 upp af svefni og vilja sam\u00feykkja hina svonefndu Palest\u00ednu sem stj\u00e1lfstj\u00f3rnarsv\u00e6\u00f0i og \u00fear \u00e1 me\u00f0al utanr\u00edkisr\u00e1\u00f0herra okkar. Og hvernig f\u00f3rst Palest\u00ednum\u00f6nnu a\u00f0 r\u00e1\u00f0a s\u00e9r sj\u00e1lfir eftir a\u00f0 \u00feeim var veitt sj\u00e1lfst\u00e6\u00f0i? Hefur\u00f0u teki\u00f0 eftir \u00fev\u00ed a\u00f0 ekkert arabar\u00edkjanna \u00ed heiminum hyggst vi\u00f0urkenna Palest\u00ednu \u00feegar \u00feetta er rita\u00f0?<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hinir svonefndu Palest\u00ednumenn hafa keypt \u00fe\u00e1 hugmynd a\u00f0 \u00feeir s\u00e9u s\u00e9rst\u00f6k \u00fej\u00f3\u00f0. \u00deeir eru arabar eins og flest anna\u00f0 f\u00f3lk \u00e1 \u00feessum sl\u00f3\u00f0um.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c1t\u00f6kin n\u00fa sanna a\u00f0 \u00fea\u00f0 var flj\u00f3tr\u00e6\u00f0i og f\u00e1fr\u00e6\u00f0i sem r\u00e9\u00f0i f\u00f6r \u00feegar \u00feessu f\u00f3lki var gefi\u00f0 leyfi til a\u00f0 stofna r\u00edki og halda l\u00fd\u00f0r\u00e6\u00f0islegar kosningar 20. jan\u00faar 1996 en 25. jan\u00faar 2006 voru haldnar a\u00f0rar kosningar og \u00fe\u00e6r reyndust afdrifar\u00edkar.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Og hver var ni\u00f0ursta\u00f0an? \u00deau kusu yfir sig hugmyndafr\u00e6\u00f0i Hamas-samtakanna sem ver\u00f0a n\u00fa varla kennd vi\u00f0 k\u00e6rleika og mann\u00fa\u00f0. Hamas er nefnilega <em>dau\u00f0ak\u00f6lt<\/em> af mei\u00f0i <em>islam<\/em> og \u00feeirra \u00e6\u00f0sta markmi\u00f0 er a\u00f0 drepa alla gy\u00f0inga. \u00deeir \u00e6tla a\u00f0 ey\u00f0a \u00cdsrealsr\u00edki og \u00f6llum gy\u00f0ingum \u00ed heiminum. Og f\u00f3lki\u00f0 t\u00f3k upp \u00feeirra m\u00e1lsta\u00f0 e\u00f0a var neytt til \u00feess og vi\u00f0 sl\u00edkar a\u00f0st\u00e6\u00f0ur er ekki au\u00f0velt a\u00f0 vera \u00e1 m\u00f3ti ofbeldism\u00f6nnum me\u00f0 sver\u00f0 \u00e1 lofti.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00cd stofnskr\u00e1 Hamas ber nokku\u00f0 \u00e1 <em>ap\u00f3kalypt\u00edskum<\/em> hugmyndum en svo eru heims-slita-kenningar nefndar \u00ed fr\u00e6\u00f0um og \u00ed anda sl\u00edkra kenninga er \u00feeirra lokamarkmi\u00f0 a\u00f0 ey\u00f0a gy\u00f0ingum og minnir \u00fea\u00f0 mj\u00f6g \u00e1 lokalausn nazistanna e\u00f0a &#8220;Endl\u00f6sung der Judenfrage&#8221;.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>Arfur Hamas<\/strong><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hamas-samt\u00f6kin ger\u00f0u l\u00edti\u00f0 til a\u00f0 byggja upp innvi\u00f0i samf\u00e9lagsins. \u00deeir v\u00f6r\u00f0u skattf\u00e9 og tekjum r\u00edkisins a\u00f0allega \u00ed vopnakaup og fengu a\u00f0 auki styrki fr\u00e1 nyts\u00f6mum sakleysingjum og kj\u00e1num \u00e1 Vesturl\u00f6ndum og bygg\u00f0u g\u00f6ng undir Gaza til a\u00f0 geta stunda\u00f0 s\u00edna brj\u00e1lsemi og komist \u00f3hindra\u00f0 undir landam\u00e6ri og inn \u00ed n\u00e1grannar\u00edkin, fram og til baka. \u00deeir heg\u00f0a s\u00e9r \u00e1 engan h\u00e1tt eins og l\u00fd\u00f0r\u00e6\u00f0islega kosin stj\u00f3rn. G\u00f6ngin eru s\u00f6g\u00f0 \u00e1 vi\u00f0 ne\u00f0anjar\u00f0arg\u00f6ng New York borgar. Inngangarnir eru undir sj\u00fakrah\u00fasum, sk\u00f3lum, opinberum byggingum, l\u00e6knastofum o.\u00fe.h. \u00dear h\u00e9ldu \u00feeir til, bl\u00f3\u00f0\u00feyrstir og si\u00f0vana, sem raun ber vitni. \u00deeir leynast sem \u00f3breyttir borgarar me\u00f0al \u00edb\u00faanna, sem \u00feeim er algj\u00f6rlega sama um. \u00deeir nota ekki herb\u00faninga \u00fev\u00ed \u00feeir vilja fara huldu h\u00f6f\u00f0i. En \u00feeir nota \u00edb\u00faana miskunnarlaust sem skj\u00f6ld \u00ed str\u00ed\u00f0i og skj\u00f3ta s\u00ednum eldflaugum \u00far mi\u00f0jum h\u00f3pi almennings. Blessa\u00f0 f\u00f3lki\u00f0 er margt algerlega heila\u00fevegi\u00f0 af bo\u00f0skap Hamas og \u00fev\u00ed dofi\u00f0 og samsekt \u00ed \u00f6llum \u00feessum hryllingi. Til a\u00f0 n\u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 r\u00e1\u00f0ast \u00e1 Hamas er \u00cdsraelsher neyddur til a\u00f0 fara \u00ed gegnum skj\u00f6ldinn, f\u00f3lki\u00f0, sem Hamas stillir upp sem fallbyssuf\u00f3\u00f0ri vi\u00f0 munna ganganna, undir sj\u00fakrah\u00fasum, l\u00e6knastofum, sk\u00f3lum og opinberum byggingum.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Al\u00fej\u00f3\u00f0astofnanir og r\u00edkjabandal\u00f6g eins og Evr\u00f3pusambandi\u00f0, d\u00e6ldu f\u00e9 \u00ed \u00feessa h\u00fdt, a\u00f0 \u00f3gleymdum \u00cdr\u00f6num sem stutt hafa Hamas um \u00e1rabil. Hva\u00f0 gengur f\u00f3lki til innan hins Vestr\u00e6na heims a\u00f0 sty\u00f0ja vi\u00f0 \u00feessa \u00fatr\u00fdmingar\u00e1\u00e6tlun og ey\u00f0ingu \u00cdsraels? Hvers vegna sty\u00f0ur almenningur \u00e1 \u00cdslandi \u00e1\u00e6tlun um \u00fatr\u00fdmingu \u00e1 \u00f6llum gy\u00f0ingum og \u00cdsraelsr\u00edkis?<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Margir hafa hj\u00e1lpa\u00f0 Palest\u00ednum\u00f6nnum og \u00cdsrael l\u00e9t ekki sitt eftir liggja. \u00cdsraelsr\u00edki l\u00e9t Gaza t.d. \u00ed t\u00e9 \u00f3keypis rafmagn og vatn \u00e1rum saman. \u00deeir skildu einnig eftir brei\u00f0ur af gr\u00f3\u00f0urh\u00fasum sem \u00edb\u00faarnir \u00e1 Gaza hef\u00f0u geta\u00f0 n\u00fdtt s\u00e9r til atvinnusk\u00f6punar og framf\u00e6rslu. Margt fleira l\u00e9tu \u00feeir \u00feeim \u00ed t\u00e9. Allt f\u00f3r \u00fea\u00f0 \u00ed handaskolum hj\u00e1 Gaza-b\u00faum.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Sk\u00f3larnir kenna b\u00f6rnunum \u00e1 Gaza margt gagnlegt og l\u00edka margt sem vi\u00f0 mundum ekki leyfa \u00ed okkar sk\u00f3lum. Upp hefur komist a\u00f0 b\u00f6rnum er t.d. kenndur reikningur me\u00f0 d\u00e6mi \u00ed \u00feessum st\u00edl. Sj\u00f6 \u00e1ra b\u00f6rn eru spur\u00f0:<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">&#8220;Ef \u00fe\u00fa hefur drepi\u00f0 tvo \u00edsraelsmenn og drepur svo tvo \u00ed vi\u00f0b\u00f3t, hva\u00f0 ertu \u00fe\u00e1 b\u00fainn a\u00f0 drepa marga?&#8221;<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00deegar \u00e9g f\u00f3r yfir \u00e1 Vesturbakkann s\u00e1 \u00e9g \u00feetta f\u00f3lk fara fram og aftur \u00ed gegnum \u00f6ryggishli\u00f0, \u00feau s\u00f6mu og \u00e9g f\u00f3r um \u00e1 fer\u00f0um m\u00ednum inn \u00e1 Vesturbakkann og til baka, en \u00fear b\u00faa Palest\u00ednumenn undir stj\u00f3rn Muhammad Abbas en \u00e1 Gaza r\u00e6\u00f0ur Hamas r\u00edkjum og \u00fear hafa veri\u00f0 strangari reglur. Seinustu \u00e1rin hefur \u00cdsrael \u00fe\u00f3 leyft \u00fe\u00fasundum Gazab\u00faa a\u00f0 vinna innan landam\u00e6ra r\u00edkisins. \u00c1ri\u00f0 2021 h\u00f6f\u00f0u 7.000 Gazab\u00faar atvinnuleyfi \u00ed \u00cdsrael. \u00c1ri\u00f0 2022 var kv\u00f3tinn kominn upp \u00ed 17.000 og stefnt var a\u00f0 20.000 leyfum skv. Wikipediu.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Svo kom a\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feessi falski draumur gekk ekki upp hj\u00e1 ar\u00f6bunum sem kalla sig Palest\u00ednumenn undir stj\u00f3rn Hamas.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00deeir r\u00e9\u00f0ust til atl\u00f6gu 7. okt\u00f3ber 2023 og vi\u00f0 \u00feekkjum framhaldi\u00f0. \u00c1r\u00e1sin var hryllileg. H\u00fan var svo taumlaus \u00ed tryllingi og \u00f3ge\u00f0i, a\u00f0 sl\u00edkt er eiginlega ekki h\u00e6gt a\u00f0 rifja upp. Og skr\u00edllinn, &#8220;g\u00f3\u00f0a f\u00f3lki\u00f0&#8221; \u00ed Palest\u00ednu, komst \u00ed v\u00edmu\u00e1stand, fann kikki\u00f0 og s\u00e6luna yfir &#8220;sigrinum&#8221;. Myndirnar \u00feegar l\u00edk kvenna fr\u00e1 \u00cdsrael, sem haf\u00f0i veri\u00f0 nau\u00f0ga\u00f0, voru dregin um g\u00f6tur og torg, eru sem fjarst\u00e6\u00f0ukenndur hryllingur. \u00de\u00e1 var l\u00edkum afh\u00f6f\u00f0a\u00f0ra barna og brenndra engin vir\u00f0ing s\u00fdnd. Heg\u00f0un Hamas ber vott um brj\u00e1l\u00e6\u00f0i og efast m\u00e1 um a\u00f0 sl\u00edkir brj\u00e1l\u00e6\u00f0ingar eigi yfir h\u00f6fu\u00f0 tilvistarr\u00e9tt \u00e1 \u00feessari j\u00f6r\u00f0. Grimmdarverk \u00feeirra eru me\u00f0 \u00fev\u00ed sv\u00e6snasta sem \u00feekkist \u00ed s\u00f6gu mannkyns. Og skr\u00edllinn \u00e6pti \u00ed s\u00e6luv\u00edmu, s\u00e1 sami og n\u00fa \u00fej\u00e1ist undir grimmd og brj\u00e1l\u00e6\u00f0i Hamas, \u00f6fgamanna sem f\u00f3lki\u00f0 sj\u00e1lft kaus yfir sig!<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>Hva\u00f0 er til r\u00e1\u00f0a?<\/strong><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hva\u00f0 mundir \u00fe\u00fa gera ef brj\u00e1l\u00e6\u00f0ingar s\u00e6tu um h\u00fasi\u00f0 \u00feitt e\u00f0a hverfi? Mundir \u00fe\u00fa bara bukka \u00feig og beygja, krj\u00fapa og bi\u00f0ja og bj\u00f3\u00f0a \u00fe\u00e1 velkomna me\u00f0 sve\u00f0jur s\u00ednar og v\u00e9lbyssur? Mundir \u00fe\u00fa kannski reyna a\u00f0 koma \u00fe\u00e9r upp v\u00f6rnum? Og ef \u00fe\u00fa k\u00e6mir \u00fe\u00e9r upp g\u00f3\u00f0u safni af vopnum, mundir \u00fe\u00fa \u00fe\u00e1 beita \u00feeim ef \u00e1 \u00feig v\u00e6ri r\u00e1\u00f0ist? \u00de\u00fa svarar \u00feessu fyrir \u00feig.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c9g \u00feekki s\u00f6gu gy\u00f0inga \u00ed Mi\u00f0-Austurl\u00f6ndum s.l. fj\u00f6gur \u00e1r\u00fe\u00fasund \u00e1r a\u00f0 einhverju marki. \u00c9g hef lesi\u00f0 forns\u00f6gu \u00cdsraels til pr\u00f3fs \u00ed h\u00e1sk\u00f3la og einnig tr\u00faarbrag\u00f0afr\u00e6\u00f0i um \u00f6ll helstu tr\u00faarbr\u00f6g\u00f0 heims. Gy\u00f0ingar eiga r\u00e9tt \u00e1 \u00feessu landi. \u00deeir einir tilheyr\u00f0u konungsr\u00edki \u00e1 sv\u00e6\u00f0inu.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">R\u00edki Dav\u00ed\u00f0s konungs er \u00ed raun fyrirmynd allra konungsr\u00edkja s\u00ed\u00f0ari t\u00edma \u00ed heiminum. Konungur \u00cdsraels var ekki alr\u00e1\u00f0ur. Honum var gert a\u00f0 r\u00edkja undir stj\u00f3rn Gu\u00f0s me\u00f0 l\u00f6gm\u00e1li\u00f0 og texta gy\u00f0inga um r\u00e9ttl\u00e6ti og miskunn til lei\u00f0sagnar. Til vi\u00f0b\u00f3tar var\u00f0 hann og arftakar hans a\u00f0 lifa vi\u00f0 gagnr\u00fdni sp\u00e1manna \u00cdsraels. \u00deeir voru ekki hluti af kerfinu heldur \u00e1 eigin vegum sem t\u00falkendur r\u00e9tt\u00e6tis og sannleika. R\u00f6dd \u00feeirra var einskona stj\u00f3rnarandsta\u00f0a. \u00deeir voru m\u00f3tm\u00e6lendur en \u00fe\u00f3 a\u00f0eins sem einstaklingar hverju sinni. \u00deeir voru \u00e1hrifavaldar (reyndar er b\u00fai\u00f0 a\u00f0 gengisfella \u00fea\u00f0 or\u00f0, ef ekki ey\u00f0ileggja, me\u00f0 v\u00edsun \u00ed einhverja &#8220;nobodies&#8221; sem telja sig vera &#8220;sombodies&#8221;).<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Sp\u00e1menn \u00cdsraels for\u00f0um g\u00e1tu sett konunginn \u00ed klemmu eins og Natan ger\u00f0i vi\u00f0 Dav\u00ed\u00f0 er hann leiddi k\u00f3ng sinn \u00ed gildru og l\u00e9t hann d\u00e6ma sj\u00e1lfan sig fyrir eiginn gl\u00e6p.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00deessi arfur var lag\u00f0ur \u00ed r\u00fast af R\u00f3mverjum. Gy\u00f0ingar dreif\u00f0ust v\u00ed\u00f0a um l\u00f6nd en \u00fe\u00f3 ekki allir. Gy\u00f0ingar hafa b\u00fai\u00f0 \u00e1 sv\u00e6\u00f0inu \u00ed \u00fe\u00fasundir \u00e1ra og voru \u00fear fyrir stofnun \u00cdsraelsr\u00edkis \u00e1ri\u00f0 1948 og eru enn. Til landsins fluttu svo gy\u00f0ingar fr\u00e1 \u00f6llum heimshornum. Arabar hafa l\u00f6ngum haft horn \u00ed s\u00ed\u00f0u \u00feeirra og gert \u00e1 \u00fe\u00e1 fj\u00f6lda \u00e1r\u00e1sa og r\u00e9tt er a\u00f0 minnast \u00feess a\u00f0 arabar\u00edkin r\u00e9\u00f0ust \u00edtreka\u00f0 \u00e1 r\u00edki gy\u00f0inga flj\u00f3tlega eftir stofnun \u00feess. Sko\u00f0i\u00f0 s\u00f6guna!<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00cdsraelsr\u00edki er \u00feingbundi\u00f0 l\u00fd\u00f0r\u00e6\u00f0isr\u00edki. Konur b\u00faa \u00fear vi\u00f0 jafnr\u00e9tti. F\u00f3lk af \u00f3l\u00edkum tr\u00faarbr\u00f6g\u00f0um b\u00fdr \u00fear og vinnur saman. \u00cdsraelsr\u00edki hefur komi\u00f0 s\u00e9r upp \u00f6flugum her sem hefur \u00fe\u00f3 reynst vera g\u00e6tinn \u00ed vali \u00e1 skotm\u00f6rkum og reynt a\u00f0 n\u00e1 lei\u00f0togum Hamas \u00ed \u00feeim \u00e1t\u00f6kum sem n\u00fa standa yfir. \u00deegar herinn r\u00e9\u00f0st inn \u00ed \u00cdran 2025, voru s\u00e9rst\u00f6k skotm\u00f6rk \u00ed mi\u00f0i, en ekki almennir borgarar. \u00cdranir sv\u00f6ru\u00f0u, en ekki me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 r\u00e1\u00f0ast \u00e1 herna\u00f0armannvirki, heldur almenna borgara \u00ed Tel Aviv og v\u00ed\u00f0ar. Si\u00f0leysi \u00f3vina \u00cdsraels \u00ed vi\u00f0br\u00f6g\u00f0um, afhj\u00fapar l\u00e9legan m\u00e1lsta\u00f0.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Deilurnar \u00e1 Gaza eru kap\u00edtuli \u00fat af fyrir sig. \u00dear \u00e1 s\u00e9r sta\u00f0 hryllingur sem oftar en ekki er fylgifiskur \u00e1taka og ekki s\u00edst styrjalda.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Gy\u00f0ingar hafa \u00feola\u00f0 ofs\u00f3knir um aldir. \u00deeir skara fram\u00far flestum vegna dugna\u00f0ar og festu. \u00deeir eiga urmul N\u00f3belsver\u00f0launahafa og fj\u00f6lda \u00f6flugra handhafa ver\u00f0launa \u00ed flestum greinum v\u00edsinda.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Vesturl\u00f6nd hafa si\u00f0agrundv\u00f6ll sinn \u00far tveimur \u00e1ttum, fr\u00e1 gy\u00f0ingum og kristnum, me\u00f0 \u00edvafi \u00far \u00feri\u00f0ju \u00e1tt. Gy\u00f0ingar hafa lagt okkur til hugmyndir s\u00ednar um r\u00e9ttl\u00e6ti, einkum Bo\u00f0or\u00f0in t\u00edu og M\u00f3seb\u00e6kurnar. Konugd\u00e6mi \u00cdsraels er l\u00edka fyrirmynd \u00ed stj\u00f3rnm\u00e1las\u00f6gu heimsins.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Kristur kenndi okkur svo me\u00f0 afgerandi h\u00e6tti a\u00f0 elska n\u00e1ungann. Au\u00f0vita\u00f0 var n\u00e1ungak\u00e6rleikur \u00ed l\u00f6gm\u00e1li gy\u00f0inga og finnst einnig innan annarra tr\u00faarbrag\u00f0a en Kristur setti k\u00e6rleikann fram me\u00f0 einst\u00f6kum h\u00e6tti, sem fullyr\u00f0a m\u00e1 a\u00f0 eigi s\u00e9r hvergi samj\u00f6fnu\u00f0 \u00ed ver\u00f6ldinni. \u00deetta tvennt, gy\u00f0ingd\u00f3mur og kristni me\u00f0 gr\u00edsk-heimspekilegu \u00edvafi er grundv\u00f6llur hugmyndafr\u00e6\u00f0i Vesturlanda. \u00cd Gamla testamentinu eru \u00f3tal textar um samskipti f\u00f3lks og \u00fea\u00f0 er \u00ed raun merkilegt a\u00f0 \u00feessar reglur um heilbrig\u00f0 samskipti hafi or\u00f0i\u00f0 til \u00e1 me\u00f0al hir\u00f0ingja \u00e1 hrj\u00f3strugum sv\u00e6\u00f0um fyrir botni Mi\u00f0jar\u00f0arhafs sem lif\u00f0u \u00e1n mi\u00f0stj\u00f3rnarvalds en tr\u00fa\u00f0u \u00e1 handanverandi visku, r\u00e9ttl\u00e6ti og sannleika. Gu\u00f0 var \u00feeirra k\u00f3ngur.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Svo er \u00fea\u00f0 \u00e1 hverri t\u00ed\u00f0 spurning hvernig f\u00f3lki tekst a\u00f0 fara eftir kenningunum um r\u00e9ttl\u00e6ti og k\u00e6rleika. \u00dear skulum vi\u00f0 bara l\u00edta \u00ed eigin barm, hvert og eitt, \u00e1\u00f0ur en vi\u00f0 d\u00e6mum a\u00f0ra. Munum hva\u00f0 Jes\u00fas sag\u00f0i um fl\u00edsina og bj\u00e1lkann!<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>Svarthv\u00edt hugsun e\u00f0a marglit?<\/strong><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c9g hef reynt a\u00f0 halda \u00fev\u00ed \u00e1 lofti h\u00e9r \u00e1 landi me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 tj\u00e1 mig \u00ed netmi\u00f0lum a\u00f0 \u00e1 deilunni milli f\u00f3lksins \u00e1 Gaza og \u00cdsraels s\u00e9u a.m.k. tv\u00e6r hli\u00f0ar. Fyrir \u00fea\u00f0 er \u00e9g ausinn auri og hro\u00f0a af f\u00f3lki sem missir sig gj\u00f6rsamlega. \u00c9g hef bent \u00e1 \u00fea\u00f0 sem sanna\u00f0 hefur veri\u00f0 a\u00f0 Hamas hefur stoli\u00f0 meirihluta allra hj\u00e1lpargagna til a\u00f0 selja \u00feau eigin f\u00f3lki. \u00deessar a\u00f0ger\u00f0ir Hamas eru ekki bara or\u00f0r\u00f3mur heldur sta\u00f0festa virtar stofnanir \u00feessi illvirki \u00feeirra og grimmd gaganvart eigin f\u00f3lki. \u00deeir sv\u00edfast einskis \u00ed blindu hatri s\u00ednu og hryllingsverkum.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00de\u00e1 kemur \u00fea\u00f0 einnig \u00ed lj\u00f3s a\u00f0 margt f\u00f3lk h\u00e9r heima vir\u00f0ist ekki geta lesi\u00f0 s\u00e9r til skilnings. \u00dea\u00f0 kann a\u00f0 v\u00edsu stafr\u00f3fi\u00f0 og skilur einst\u00f6k or\u00f0, en vir\u00f0ist ekki skilja samhengi m\u00e1ls, r\u00edfur setningar \u00ed sundur og afbakar allt sem sagt er. \u00deetta hef \u00e9g reynt \u00e1 netmi\u00f0lum. Margir l\u00e1ta stj\u00f3rnast af tilfinningasemi og me\u00f0virkum k\u00e6rleika og einnig ber \u00e1 svonefndum dygg\u00f0askreytingum inn \u00e1 milli.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">F\u00f3lk nennir ekki a\u00f0 setja sig inn \u00ed m\u00e1l e\u00f0a m\u00e1lflutning, en r\u00fdkur \u00ed a\u00f0 andm\u00e6la \u00fev\u00ed sem \u00fea\u00f0 hefur ekki skili\u00f0.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Fr\u00e6\u00f0imenn halda \u00fev\u00ed fram a\u00f0 samf\u00e9lagsmi\u00f0larnir hafi \u00feau \u00e1hrif \u00e1 samt\u00ed\u00f0 okkar a\u00f0 vi\u00f0 ver\u00f0um \u00fer\u00f6ngs\u00fdnni en \u00e1\u00f0ur. \u00c9g hef nota\u00f0 l\u00edkinguna um hina st\u00f6\u00f0ugu s\u00fald \u00far Netheimum sem hefur sl\u00e6vt hugsun \u00feorra almennings og herra Algr\u00edmur (algorithm) s\u00e9r svo um a\u00f0 mata okkur \u00e1 \u00fev\u00ed sem hann reiknar \u00fat a\u00f0 vi\u00f0 h\u00f6fum \u00e1huga \u00e1. \u00deannig er okkur \u00fdtt d\u00fdpra og d\u00fdpra \u00ed gr\u00f6f eigin \u00fer\u00f6ngs\u00fdni og villu. Neti\u00f0 \u00ed dropatali veldur ekki st\u00f3rum ska\u00f0a, en steypiregn, allan s\u00f3larhringinn, \u00ed m\u00f6rg \u00e1r, heila\u00fev\u00e6r okkur a\u00f0 lokum me\u00f0 s\u00e9rv\u00f6ldu efni sem Algr\u00edmur velur og skammtar. G\u00e6ttu a\u00f0 hvort \u00fe\u00fa standir \u00f3vart \u00ed drullupolli \u00e1r\u00f3\u00f0urs og villutr\u00faar!<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">H\u00e9r l\u00fdkur fyrri hluta \u00feessara \u00feanka minna.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c9g \u00feakka \u00e1heyrnina. G\u00f3\u00f0ar stundir.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Fyrri hluti \u00deankar um \u00e1stand og \u00e1byrg\u00f0 eftir \u00d6rn B\u00e1r\u00f0 J\u00f3nsson Viltu hlusta? Tekur 15 m\u00edn\u00fatur. \u00c1ri\u00f0 2023 f\u00f3r \u00e9g \u00ed h\u00f3pfer\u00f0 til \u00cdsraels. S\u00fa fer\u00f0 var afar fr\u00f3\u00f0leg og m\u00f6gnu\u00f0 \u00e1 margan h\u00e1tt. \u00c9g fr\u00e6ddist um margt og upplif\u00f0i einnig spennuna sem m.a. kom fram \u00ed \u00fev\u00ed a\u00f0 vopna\u00f0ir hermenn voru v\u00ed\u00f0a me\u00f0 alv\u00e6pni. [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":2,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_jetpack_newsletter_access":"","_jetpack_dont_email_post_to_subs":false,"_jetpack_newsletter_tier_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paywalled_content":false,"_jetpack_hide_featured_image":false,"_jetpack_featured_image_duplicate_dismissed":0,"_jetpack_feature_clip_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":"","jetpack_post_was_ever_published":false},"categories":[4],"tags":[32,223,250,256,50,367,447,517],"class_list":["post-6695","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-greinar-og-hugvekjur-articles","tag-arfur","tag-gaza","tag-gydingdomur","tag-hamas","tag-isreal","tag-kristni","tag-menning","tag-raetur"],"jetpack_sharing_enabled":true,"jetpack_featured_media_url":"","_links":{"self":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/6695","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/users\/2"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcomments&post=6695"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/6695\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fmedia&parent=6695"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcategories&post=6695"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Ftags&post=6695"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}