{"id":6584,"date":"2025-07-30T12:44:22","date_gmt":"2025-07-30T12:44:22","guid":{"rendered":"http:\/\/ornbardur.com\/2025\/07\/30\/ad-brjota-nidur-eda-byggja-upp\/"},"modified":"2025-07-30T12:44:22","modified_gmt":"2025-07-30T12:44:22","slug":"ad-brjota-nidur-eda-byggja-upp","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/ornbardur.com\/?p=6584","title":{"rendered":"A\u00f0 brj\u00f3ta ni\u00f0ur e\u00f0a byggja upp?"},"content":{"rendered":"\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>\u00deankar um ferli breytinga \u00e1 textum helgihalds \u00ed Handb\u00f3k kirkjunnar<\/strong><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00d6rn B\u00e1r\u00f0ur J\u00f3nsson &#8211; j\u00fal\u00ed 2025<\/p>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-audio\"><audio controls src=\"https:\/\/pub-c849b6aaf98340c4bec7b480b0f7ffe9.r2.dev\/2025\/07\/ad-brjota-nidur-eda-byggja-upp.m4a\"><\/audio><\/figure>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-image size-large\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"1150\" height=\"1139\" src=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2025\/07\/img_0267.jpg?w=1024\" alt=\"\" class=\"wp-image-6583\" \/><figcaption class=\"wp-element-caption\">Mynd af Veraldarvefnum <br \/>(Royalty Free Vector Image)<\/figcaption><\/figure>\n\n\n\n<!--more-->\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>Myndbrot \u00ed s\u00f6gu og samt\u00ed\u00f0<\/strong><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Byltingar \u00e9ta gjarnan b\u00f6rn s\u00edn og buru. \u00c6\u00f0i hlj\u00f3p \u00ed sumt si\u00f0breytingarf\u00f3lk \u00ed kj\u00f6lfar m\u00f3tm\u00e6la L\u00fathers. F\u00f3lk ey\u00f0ilag\u00f0i listaverk \u00ed kirkjum \u00ed N-Evr\u00f3pu og v\u00ed\u00f0ar. M\u00f6nnum s\u00e1st ekki fyrir. Til er hugtaki\u00f0 <em>\u00edk\u00f3n\u00f3klast\u00edk<\/em> \u00ed erlendum m\u00e1lum, sem \u00fe\u00fd\u00f0a m\u00e1 me\u00f0 or\u00f0inu <em>myndbrot<\/em>. Or\u00f0i\u00f0 v\u00edsar til \u00feess \u00feegar r\u00e1\u00f0izt er \u00e1 listaverk sem eru almenningi d\u00fdrm\u00e6t og \u00feau ey\u00f0il\u00f6g\u00f0. Myndverk voru b\u00f3kstaflega brotin og ey\u00f0il\u00f6g\u00f0 af brj\u00e1lu\u00f0u og ofst\u00e6kisfullu f\u00f3lki. N\u00e6r \u00ed t\u00edma er \u00feegar Tal\u00edbanar ey\u00f0il\u00f6g\u00f0u risavaxnar B\u00fadda-styttur \u00ed Bamiyan-dalnum \u00ed Afganistan \u00e1ri\u00f0 2001. Tr\u00faarofst\u00e6ki er alltaf vont, sem ey\u00f0andi eldur.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">N\u00fa stendur yfir \u00fatg\u00e1fa n\u00fdrrar Handb\u00f3kar kirkjunnar sem geymir \u00f6ll helztu rit\u00fa\u00f6l sem notu\u00f0 eru vi\u00f0 helgar athafnir. \u00c9g hef ekki fengi\u00f0 a\u00f0 sj\u00e1 dr\u00f6g a\u00f0 n\u00fdrri handb\u00f3lk kirkjunnar og h\u00fan finnzt ekki \u00e1 vefnum. Sumt sem breyta \u00e1 l\u00edkar m\u00e9r alls ekki. \u00c9g nefni or\u00f0in oss\/v\u00e9r sem eiga a\u00f0 v\u00edkja fyrir okkur\/ykkur. Kynntist \u00fev\u00ed \u00ed vetur me\u00f0an \u00e9g leysti af \u00e1 N-Austurlandi a\u00f0 veri\u00f0 v\u00e6ri a\u00f0 fikta \u00ed m\u00e1lfari messunnar.<\/p>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-image size-large\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"2000\" height=\"1304\" src=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2025\/07\/img_0260.jpg?w=1024\" alt=\"\" class=\"wp-image-6576\" \/><figcaption class=\"wp-element-caption\"><br \/> Kalv\u00ednistar &#8220;hreinsa&#8221; kirkjur me\u00f0 uppreisn 20. \u00e1g\u00fast 1566<\/figcaption><\/figure>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>Afbygging og ey\u00f0ing<\/strong><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00cd m\u00e1li menntaf\u00f3lks heyrist oft t\u00edzkuor\u00f0i\u00f0 a\u00f0 <em>afbyggja <\/em>einst\u00f6k or\u00f0 e\u00f0a texta. Or\u00f0 m\u00e1 afbyggja til a\u00f0 brj\u00f3ta til mergjar og efla skilning, en anna\u00f0 er \u00feegar breyta \u00e1 grundvallarhef\u00f0um kristinnar kirkju og umturna m\u00e1lfari messunnar. \u00dea\u00f0 er myndbrot, ni\u00f0urrif. \u00de\u00e1 v\u00edsa \u00e9g til \u00feess a\u00f0 sumir kvenprestar veigra s\u00e9r vi\u00f0 a\u00f0 nefna Gu\u00f0 f\u00f6\u00f0ur og sleppa f\u00f6\u00f0urnafninu \u00ed helgum textum kristinnar kirkju.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Or\u00f0i\u00f0 <em>afbyggja<\/em> er au\u00f0skili\u00f0 enda er \u00edslenskan oft gegns\u00e6 og sk\u00fdr. Hugtaki\u00f0 er \u00fe\u00fd\u00f0ing \u00e1 ensku s\u00f6gninni <em>to deconstruct<\/em>. Hugtaki\u00f0 er fr\u00e1 19. \u00f6ld og mj\u00f6g \u00ed t\u00edzku \u00ed munni h\u00e1sk\u00f3laf\u00f3lks sem margt gengur \u00fat fr\u00e1 tveim andst\u00e6\u00f0um p\u00f3lum \u00ed anda marxisma og skilgreinir hina k\u00fagu\u00f0u andsp\u00e6nis k\u00fagaranum. Skautun hrj\u00e1ir samt\u00edma okkar. \u00cdslendingar kunna l\u00edtt r\u00f6kr\u00e6\u00f0ur en eru duglegir vi\u00f0 a\u00f0 grafa s\u00e9r gr\u00f6f hver \u00e1 s\u00ednum reit.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Sko\u00f0um messuna. M\u00e9r finnst skj\u00f3ta sk\u00f6kku vi\u00f0 a\u00f0 breyta svonefndri me\u00f0hj\u00e1lparab\u00e6n vi\u00f0 upphaf messunnar. \u00dear segir lesarinn, einn e\u00f0a me\u00f0 s\u00f6fnu\u00f0inum: <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">&#8220;Drottinn, <strong>\u00e9g<\/strong> er kominn \u00ed \u00feitt heilaga h\u00fas til a\u00f0 lofa \u00feig og \u00e1kalla&#8230;&#8221; <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00deessu \u00e1 a\u00f0 breyta \u00ed: <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">&#8220;Drottinn, <strong>vi\u00f0<\/strong> erum komin&#8230;&#8221; <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Syndaj\u00e1ntinguna \u00e1 l\u00edka a\u00f0 umor\u00f0a og segja: <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">&#8220;<strong>Vi\u00f0<\/strong> j\u00e1tum fyrir \u00fe\u00e9r&#8230;&#8221; \u00ed sta\u00f0: <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">&#8220;<strong>\u00c9g<\/strong> j\u00e1ta fyrir \u00fe\u00e9r&#8230;&#8221; eins og veri\u00f0 hefur um aldir. (Leturbreytingar eru m\u00ednar)<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Aftur a\u00f0 syndaj\u00e1tningunni. Vi\u00f0 erum \u00f6ll syndug en or\u00f0i\u00f0 synd er \u00ed NT tj\u00e1\u00f0 me\u00f0 or\u00f0inu <em>hamartia<\/em> sem merkir a\u00f0 \u00ed okkur \u00f6llum er <em>geigun<\/em>. Okkur h\u00e6ttir til a\u00f0 fara \u00fat af hinum r\u00e9tta vegi.<\/p>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-image size-large\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"1691\" height=\"778\" src=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2025\/07\/img_0262.jpg?w=1024\" alt=\"\" class=\"wp-image-6577\" \/><figcaption class=\"wp-element-caption\">Ein\/einn frammi fyrir Gu\u00f0i &#8211; en samt saman!<\/figcaption><\/figure>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Enginn j\u00e1tar syndir annarra. \u00c9g get ekki fari\u00f0 til kollega og skrifta\u00f0 fyrir anna\u00f0 f\u00f3lk. L\u00father aflag\u00f0i \u00ed raun ekki skriftir. Einstakar syndir eru ekki heldur j\u00e1ta\u00f0ar \u00ed k\u00f3r nema \u00feannig a\u00f0 hver og einn, hver og ein, hvert og eitt Gu\u00f0sbarn segir: <strong>\u00c9G j\u00e1ta <em>&#8211; <\/em><\/strong>og svo er syndirnar j\u00e1ta\u00f0ar, almennt tala\u00f0 &#8211; en pr\u00edvat \u00ed huga hvers og eins. Syndaj\u00e1tningin \u00ed messunni er sameiginleg og lesin \u00ed k\u00f3r, en hvert og eitt gu\u00f0sbarn, bi\u00f0ur fyrir sj\u00e1lfu s\u00e9r og j\u00e1tar fyrir sig og a\u00f0eins fyrir sig. Syndaj\u00e1tningin er sameiginleg, en syndarinn sj\u00e1lfur er \u00ed brennidepli, en \u00fe\u00f3 aldrei horfinn sem einstaklingur \u00ed b\u00e6nahjali allra.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>F\u00f6\u00f0urveigrun<\/strong><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Sko\u00f0um aftur \u00fe\u00e1 f\u00f6\u00f0urveigrun sem \u00e1 s\u00e9r sta\u00f0 \u00ed m\u00e1li sumra presta sem taka f\u00f6\u00f0urinn \u00fat \u00far j\u00e1tningum, signingu, sk\u00edrn, hj\u00f3nav\u00edgslu, greftrun. H\u00e9r \u00feykir m\u00e9r afbyggingarsleggjurnar vera or\u00f0nar frekar. \u00de\u00e6r vilja r\u00e1\u00f0ast \u00e1 \u00fea\u00f0 sem er grundv\u00f6llur kristinnar tr\u00faar. \u00deetta \u00e1 l\u00edklega r\u00e6tur \u00ed \u00fev\u00ed a\u00f0 f\u00e9lagsv\u00edsindin hafa sungi\u00f0 \u00e1ratugum saman, m\u00f6ntruna um hi\u00f0 meinta fe\u00f0raveldi.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Svo er \u00fea\u00f0 blessu\u00f0 konan sem taldi sig sk\u00edra barn ef ekki m\u00f6rg b\u00f6rn, og s\u00e1st \u00ed sj\u00f3nvarpi, \u00e1n \u00feess a\u00f0 nefna \u00ferenninguna \u00e1 nafn. Hvort sem \u00fea\u00f0 var gert viljandi e\u00f0a \u00f3viljandi \u00fe\u00e1 m\u00e1 velta \u00fev\u00ed fyrir s\u00e9r hvort b\u00f6rnin s\u00e9u ekki \u00f3sk\u00edr\u00f0 og \u00fearfnist sk\u00edrnar \u00ed nafni heilagrar \u00ferenningar. \u00cdkon\u00f3klast\u00edk er v\u00ed\u00f0a \u00e1 ferli.<\/p>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-image size-large\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"1411\" height=\"2000\" src=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2025\/07\/img_9654.jpg?w=722\" alt=\"\" class=\"wp-image-6578\" \/><figcaption class=\"wp-element-caption\">Myndbrot<\/figcaption><\/figure>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Or\u00f0alag og vandvirkni skiptir m\u00e1li. M\u00e1lfr\u00e6\u00f0in birtir \u00ed reglum s\u00ednum og vizku byggingu m\u00e1ls og hugsunar eins og \u00ed signingunni \u00fear sem komman eftir nafn Gu\u00f0s skiptir h\u00f6fu\u00f0m\u00e1li og skilur \u00e1 milli frumlags og andlags og m\u00e1 ekki falla ni\u00f0ur \u00ed m\u00e6ltu m\u00e1li eins og algengt er \u00feegar prestar kl\u00fa\u00f0ra \u00feernningunnni \u00f3\u00f0am\u00e1l og \u00e1n \u00feess a\u00f0 blikna.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Or\u00f0 skapa. Or\u00f0 skipta m\u00e1li. Minna m\u00e1 \u00e1 a\u00f0 alheimskirkjan klofna\u00f0i \u00e1ri\u00f0 1054, tveim \u00e1rum fyrir v\u00edgslu fyrsta biskups \u00cdslands, \u00cdsleifs Gissuarsonar, \u00fat af einu latnesku or\u00f0i, <em>filioque<\/em> &#8211; sem merkir <em>&#8220;og syni&#8221;<\/em> og v\u00edsar til \u00feessa a\u00f0 R\u00f3markirkjan vildi segja a\u00f0 Heilagur andi v\u00e6ri \u00fatgenginn af &#8220;f\u00f6\u00f0ur og syni&#8221; en ekki bara f\u00f6\u00f0ur eins og Austurkirkjan\/or\u00fe\u00f3doxar hafa \u00e6t\u00ed\u00f0 haldi\u00f0 fram. \u00dear me\u00f0 klofna\u00f0i kirkjan \u00ed tvennt. \u00c1ri\u00f0 2024 ger\u00f0i L\u00fatherska heimssambandi\u00f0 samkomulag vi\u00f0 Austurkirkjuna um a\u00f0 \u00feurrka or\u00f0in &#8220;og syni&#8221; &#8211; \u00fat \u00far N\u00edkeuj\u00e1tningunni fr\u00e1 325 en li\u00f0in eru 1700 \u00e1r fr\u00e1 ritun hennar og h\u00fan var \u00f3breytt fram \u00e1 11. \u00f6ld \u00feegar r\u00f3mverskir vildu b\u00e6ta inn &#8220;og syni&#8221; og \u00fea\u00f0an kom s\u00fa \u00fatg\u00e1fa inn \u00ed okkar ka\u00fe\u00f3lska kristind\u00f3m og h\u00e9lt \u00fev\u00ed \u00e1fram \u00ed kirkjunni eftir si\u00f0breytinguna \u00e1 16. \u00f6ld. N\u00edkeuj\u00e1tningin \u00ed n\u00fdju S\u00e1lmab\u00f3kinni 2024 stendur enn me\u00f0 &#8220;og syni&#8221; &#8211; og \u00fev\u00ed \u00fearf a\u00f0 breyta \u00ed n\u00e6stu prentun!<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">(https:\/\/lutheranworld.org\/news\/lutheran-orthodox-common-statement-filioque)<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>Konur og Kristur<\/strong><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Kristur \u00e1tti marga fylgjendur me\u00f0al kvenna og ger\u00f0i \u00feeim h\u00e1tt undir h\u00f6f\u00f0i. M\u00f3\u00f0ir hans, Mar\u00eda, er h\u00e1tt upphafin \u00ed s\u00f6gu kirkjunnar. Vi\u00f0 \u00feekkjum l\u00edka systurnar M\u00f6rtu og Mar\u00edu og margar fleiri, b\u00e6\u00f0i \u00ed Gamla testamentinu og hinu N\u00fdja. Hi\u00f0 kvenlega kemur v\u00ed\u00f0a fram \u00ed textum Bibl\u00edunnar. H\u00e9r fylgja d\u00e6mi um texta \u00fear sem Gu\u00f0 er kvenger\u00f0ur:<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">&#8220;Var\u00f0veit mig sem sj\u00e1aldur augans, fel mig \u00ed skugga v\u00e6ngja \u00feinna&#8221; Sl. 17.8 H\u00e9r er tilv\u00edsun \u00ed ungam\u00f3\u00f0urina sem g\u00e6tir unga sinna. Sj\u00e1 einnig S\u00e1lm 57.1 og 91.4.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Sama myndl\u00edking er \u00ed Matteusargu\u00f0spjalli:<\/p>\n\n\n\n<blockquote class=\"wp-block-quote is-layout-flow wp-block-quote-is-layout-flow\">\n<p class=\"wp-block-paragraph\">&#8220;Jer\u00fasalem, Jer\u00fasalem! \u00de\u00fa sem l\u00edfl\u00e6tur sp\u00e1mennina og gr\u00fdtir \u00fe\u00e1 sem sendir eru til \u00fe\u00edn! Hversu oft vildi \u00e9g safna b\u00f6rnum \u00fe\u00ednum, eins og h\u00e6nan safnar ungum s\u00ednum undir v\u00e6ngi s\u00e9r, og \u00fe\u00e9r vildu\u00f0 eigi?&#8221; (Matt 23.37)<\/p>\n<\/blockquote>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Vi\u00f0 getum nota\u00f0 \u00ed huga okkar og m\u00e1lfari myndir af Gu\u00f0i sem \u00ed senn eru kven- og\/e\u00f0a karll\u00e6gar.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">D\u00e6min er m\u00fdm\u00f6rg og konur hafa gegnt lykilhlutverkum \u00ed s\u00f6gu Gy\u00f0inga og kristinna manna um aldir og \u00e1r\u00fe\u00fasund. \u00c9g nefni Evu, S\u00f6ru, El\u00edsabetu, Miriam, Rakel, Rut, Deb\u00f3ru, Ester, Rahab, Abigail, Mar\u00edu Magdalenu, Priskillu. N\u00f6fnin eru mun fleiri. Konur og karlar fylgdu Kristi og voru lei\u00f0andi \u00ed sigurf\u00f6r k\u00e6rleikans um l\u00f6nd og \u00e1lfur og eru enn.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>Hallar aftur \u00e1 \u00f3jafnr\u00e9tti\u00f0 en n\u00fa \u00ed hina \u00e1ttina?<\/strong><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">R\u00e9ttindi kvenna eru mikil me\u00f0al &#8220;vestr\u00e6nna \u00fej\u00f3\u00f0a&#8221; en \u00feau hafa leitt til \u00feess a\u00f0  s\u00f6mu \u00fej\u00f3\u00f0ir eru a\u00f0 deyja \u00fat v.\u00fe.a. hinar vestr\u00e6nu, frj\u00e1lsu konur, eignast of f\u00e1 b\u00f6rn. \u00dea\u00f0 er au\u00f0vita\u00f0 s\u00f6k og vandi beggja kynja.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Konum eru allir vegir f\u00e6rir h\u00e9r \u00e1 landi eins og al\u00fej\u00f3\u00f0 veit. En munum a\u00f0 vi\u00f0 erum saman \u00e1 \u00feessari pl\u00e1netu, konur og karlar. Kirkjan breiddist \u00fat \u00ed \u00e1rdaga m.a. me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 f\u00f3lk kom saman \u00e1 heimilum hvers annars \u00e1\u00f0ur en kirkjur voru reistar. \u00cd Postulas\u00f6gunni 18. kafla eru nefnd til s\u00f6gunnar hj\u00f3n sem \u00e9g held upp\u00e1. \u00deau h\u00e9tu Priskilla og Akv\u00edlas og karlinn s\u00e1 er \u00fev\u00ed nafni minn. \u00deau voru gestrisin og stundu\u00f0u b\u00e6\u00f0i tr\u00fabo\u00f0. Priskilla er \u00e6t\u00ed\u00f0 nefnd \u00e1 undan honum \u00ed textum N\u00fdja testamentisins.<\/p>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-image size-large\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"715\" height=\"746\" src=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2025\/07\/img_0265.jpg?w=715\" alt=\"\" class=\"wp-image-6579\" \/><figcaption class=\"wp-element-caption\">\u00d3jafnv\u00e6gi<\/figcaption><\/figure>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Konum vegnar vel \u00e1 \u00cdslandi \u00ed dag og gegna m\u00f6rgum lykilemb\u00e6ttum \u00ed stj\u00f3rns\u00fdslu landsins. \u00deeim hefur og fj\u00f6lga\u00f0 \u00ed h\u00e1sk\u00f3lum og einnig \u00fear gegna \u00fe\u00e6r h\u00e1um st\u00f6\u00f0um. En n\u00fa er svo komi\u00f0 a\u00f0 drengir eiga undir h\u00f6gg a\u00f0 s\u00e6kja \u00ed \u00fej\u00f3\u00f0f\u00e9laginu. Kvennabyltingin er byrju\u00f0 a\u00f0 \u00e9ta b\u00f6rnin s\u00edn. Af \u00feeim s\u00f6kum \u00feurfa konur a\u00f0 leggjast \u00e1 \u00e1rar me\u00f0 okkur k\u00f6rlum til a\u00f0 r\u00e9tta hlut drengja og karla \u00e1 \u00f6llum aldri. Vi\u00f0 hlj\u00f3tum a\u00f0 vilja jafnr\u00e9tti og ekki neitt anna\u00f0. Forr\u00e9ttindi kvenna n\u00fa um \u00feessar mundir mega ekki sn\u00faast um hefnd og endurgrei\u00f0slu vegna meintra forr\u00e9ttinda karla for\u00f0um daga. Allar kynsl\u00f3\u00f0ir voru b\u00f6rn s\u00edns t\u00edma og vi\u00f0 n\u00fana. Hvernig mun sagan d\u00e6ma okkur?<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Vi\u00f0 komum \u00f6ll inn \u00ed \u00feennan heim \u00e1 byrjunarreit og f\u00e1um vonandi j\u00f6fn t\u00e6kif\u00e6ri \u00ed l\u00edfinu og \u00e1 okkar t\u00edmum. Hi\u00f0 li\u00f0na er li\u00f0i\u00f0 og ver\u00f0andin er \u00e1 hverju andartaki, t\u00e6kif\u00e6ri til j\u00f6fnu\u00f0ar og gagnkv\u00e6mnar vir\u00f0ingar. B\u00e6\u00f0i kynin hafa s\u00edna styrkleika og veikleika. En hallann ver\u00f0ur a\u00f0 laga me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 valdefla drengi og unga karla. Vi\u00f0 h\u00f6fum skyldur gagnvart framt\u00ed\u00f0inni hva\u00f0 jafnr\u00e9tti var\u00f0ar, vi\u00f0 skuldum komandi kynsl\u00f3\u00f0um jafnr\u00e9tti, en hi\u00f0 forna nafn fyrir farmt\u00ed\u00f0ina er Skuld. Jafnr\u00e9ttisbar\u00e1ttan hefur \u00ed vissum skilningi skili\u00f0 eftir sig svi\u00f0na j\u00f6r\u00f0 sem b\u00e6\u00f0i konur og karlar bera \u00e1byr\u00f0 \u00e1. Vi\u00f0 h\u00f6fum skyldum a\u00f0 gegna, vi\u00f0 eru \u00ed skuld.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>Alvarlegt myndbrot \u00ed helgihaldi kirkjunnar<\/strong><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">A\u00f0 taka nafn f\u00f6\u00f0urins \u00fat \u00far tr\u00faarj\u00e1tningu, signingu og m\u00e1lfari kirkjunnar er alvarlegt myndbrot, <em>\u00edkon\u00f3klast\u00edk<\/em> \u00e1 h\u00e1u stigi, sem \u00e9g \u00f3ttast a\u00f0 lei\u00f0a mun til klofnings \u00fej\u00f3\u00f0kirkjunnar. \u00c9g \u00f3ttast a\u00f0 f\u00f3lk muni yfirgefa hana \u00ed \u00fe\u00fasundatali og vi\u00f0 karlarnir munum margir leita \u00e1 \u00f6nnur mi\u00f0, \u00fev\u00ed tr\u00fain lifir au\u00f0vita\u00f0 \u00e1fram \u00ed hj\u00f6rtum okkar en hana kann a\u00f0 vera illf\u00e6rt a\u00f0 r\u00e6kta \u00e1 tungum\u00e1li \u00fear sem m\u00e1lbl\u00f3m og d\u00fdpt kynsl\u00f3\u00f0anna v\u00edkur fyrir t\u00edskustraumum og kl\u00e1\u00f0akenndri Vekni.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Sem betur fer eru ekki allar konur \u00e1 \u00feessari fem\u00ednist\u00edsku l\u00ednu. A\u00f0 afbyggja er sakleysislegt or\u00f0 en \u00fea\u00f0 merkir \u00ed raun a\u00f0 r\u00edfa ni\u00f0ur. A\u00f0 fara um helga texta \u00e1 st\u00f3rum vinnuv\u00e9lum, svo nota\u00f0 s\u00e9 l\u00edkingam\u00e1l, er ekki til uppbygginar heldur lei\u00f0ir \u00fea\u00f0 til ey\u00f0ileggingar og au\u00f0nar nema g\u00e6tilega s\u00e9 fari\u00f0 me\u00f0 mj\u00fakum fingrum. Sagan geymir \u00fev\u00ed mi\u00f0ur m\u00f6rg d\u00e6mi um skj\u00f3tr\u00e6\u00f0i og grunnhyggni \u00ed ver\u00f0andi hverrar t\u00ed\u00f0ar.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>P\u00f3lit\u00edk og tr\u00fa<\/strong><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00de\u00e1 vil \u00e9g minna \u00e1 a\u00f0 <em>fem\u00ednismi<\/em> er p\u00f3lit\u00edsk hreyfing \u00ed grunni s\u00ednum. Sama \u00e1 vi\u00f0 um bar\u00e1ttu f\u00f3lks fyrir mannr\u00e9ttindum undir merki <em>regnbogans<\/em>. S\u00fa bar\u00e1tta er rammp\u00f3lit\u00edsk og hla\u00f0in \u00e1r\u00f3\u00f0ri, en v\u00edsindi koma \u00fear l\u00edtt vi\u00f0 s\u00f6gu. F\u00e9lagsgreinarnar hafa stutt \u00feessa byltingu og r\u00e9ttast er \u00fev\u00ed a\u00f0 s\u00f6mu greinar taki til eftir sig. Au\u00f0vita\u00f0 sty\u00f0 \u00e9g mannr\u00e9ttindi samkynhneig\u00f0ra. Nema hva\u00f0!<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Allt fr\u00e1 \u00fev\u00ed kv\u00f3takerfi\u00f0 var sett \u00ed l\u00f6g hef \u00e9g tala\u00f0 og skrifa\u00f0 gegn \u00feeirri lagasetningu, v.\u00fe.a. m\u00e9r fannst a\u00f0 vitlaust hef\u00f0i veri\u00f0 gefi\u00f0 \u00e1 s\u00ednum t\u00edma. Gr\u00ed\u00f0arlegur au\u00f0ur var gefinn f\u00e1um \u00fatv\u00f6ldum. En n\u00fa, t\u00e6pum 40 \u00e1rum s\u00ed\u00f0ar, fagna \u00e9g n\u00fdrri lagasetningu og l\u00edka \u00f6flugum \u00fatger\u00f0arf\u00e9l\u00f6gum og g\u00f3\u00f0um rekstri me\u00f0 st\u00f3rum og \u00f6flugum skipum. \u00d3r\u00e9tturinn var mikill og hann hefur ekki veri\u00f0 lei\u00f0r\u00e9ttur, fyrr en n\u00fa \u00ed sumar af hugr\u00f6kkum konum og k\u00f6rlum \u00e1 Al\u00feingi. Mikill meirihluti \u00fej\u00f3\u00f0ar studdi r\u00edkisstj\u00f3rnina \u00ed m\u00e1linu e\u00f0a um 69%. \u00c9g hef leyft m\u00e9r a\u00f0 fara \u00ed kerfi\u00f0, en ekki f\u00f3lki\u00f0, sem rekur s\u00edn fyrirt\u00e6ki innan \u00feess, reyni a\u00f0 fara \u00ed boltann en ekki manninn.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c9g nefni \u00feetta h\u00e9r vegna \u00feess a\u00f0 bar\u00e1tta fyrir r\u00e9ttl\u00e6ti er m\u00e1lefni sem kirkjan \u00e1 hverjum t\u00edma \u00e1 a\u00f0 l\u00e1ta til s\u00edn taka \u00ed or\u00f0i og verki, en \u00fe\u00f3 ekki \u00e1 \u00feann h\u00e1tt a\u00f0 \u00ed messuhaldi megi bera p\u00f3lit\u00edsk t\u00e1kn, m\u00e1lefnum t\u00edmans til stu\u00f0nings.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Prestar bera svonefnda st\u00f3lu, en svo nefnist bor\u00f0inn, sem lag\u00f0ur er \u00e1 her\u00f0ar prestum og er t\u00e1kn um a\u00f0 \u00feeir axli \u00e1byrg\u00f0 \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 bo\u00f0a Gu\u00f0s or\u00f0 hreint og \u00f3menga\u00f0. Og n\u00fa vil \u00e9g spyrja:<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">M\u00e6tti \u00e9g \u00ed umfj\u00f6llum um r\u00e9ttl\u00e6ti \u00ed fiskvei\u00f0istj\u00f3rnarm\u00e1lum, bera st\u00f3lu vi\u00f0 messu me\u00f0 t\u00e1kni Samfylkingarinnar, Vi\u00f0reisnar og Flokks f\u00f3lksins? M\u00e6tti \u00e9g \u00e1 hinn b\u00f3ginn, ef \u00e9g v\u00e6ri einl\u00e6gur andst\u00e6\u00f0ingur n\u00fdju laganna um stj\u00f3rn fiskvei\u00f0a, bera st\u00f3lu me\u00f0 t\u00e1kni Sj\u00e1lfst\u00e6\u00f0isflokksins, Frams\u00f3knar, Mi\u00f0flokks: f\u00e1lkanum, kornaxi og st\u00f3\u00f0hesti? Svari\u00f0 liggur \u00ed augum uppi og \u00fea\u00f0 er: NEI!<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Enga s\u00e9rt\u00e6ka p\u00f3lit\u00edk \u00ed helgihaldi, takk fyrir!<\/p>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-image size-large\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"487\" height=\"344\" src=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2025\/07\/img_0264.jpg?w=487\" alt=\"\" class=\"wp-image-6581\" \/><figcaption class=\"wp-element-caption\">\u00deessa fann \u00e9g \u00e1 vefnum!<\/figcaption><\/figure>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c9g m\u00e1 sem prestur tala um r\u00e9ttl\u00e6ti\u00f0 og v\u00edsa til m\u00e1la \u00ed samf\u00e9laginu, en \u00e9g m\u00e1 ekki reka p\u00f3lit\u00edskan \u00e1r\u00f3\u00f0ur me\u00f0 p\u00f3lit\u00edskum t\u00e1knum og myndm\u00e1li og breyta hef\u00f0um kirkjunnar sem nota\u00f0 hefur s\u00e9rstaka liti um aldir til a\u00f0 leggja \u00e1herslu \u00e1 \u00feemu \u00f3l\u00edkra t\u00edmabila kirkju\u00e1rsins. Kirkjan er ekki t\u00edzkus\u00fdningarh\u00fas. Gucci-gellur og Boss-gaurar geta flagga\u00f0 s\u00ednum merkjum utan messunnar.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Engar regnbogast\u00f3lur, engar flokkslegar st\u00f3lur, engar fyrirt\u00e6kjaaugl\u00fdsingar \u00ed messum, <strong>engin p\u00f3lit\u00edsk t\u00e1kn!!!<\/strong><\/p>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-image size-large\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"700\" height=\"895\" src=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2025\/07\/img_0266.jpg?w=700\" alt=\"\" class=\"wp-image-6580\" \/><figcaption class=\"wp-element-caption\">D\u00e6mi um regnbogast\u00f3lu<\/figcaption><\/figure>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Allt \u00feetta mega prestar bera utan helgihalds kirkjunnar, sem almennir borgarar, en alls ekki fyrir altari e\u00f0a vi\u00f0 athafnir undir merki kristinnar kirkju.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c1 Bretlandseyjum s\u00e6kir Ka\u00fe\u00f3lska kirkjan n\u00fa \u00ed sig ve\u00f0ri\u00f0 ef marka m\u00e1 fr\u00e9ttir \u00fea\u00f0an. F\u00f3lk er nefnilega or\u00f0i\u00f0 \u00fereytt \u00e1 yfirbor\u00f0skenndum l\u00e9ttleika innan ensku \u00fej\u00f3\u00f0kirkjunnar me\u00f0 regnbogast\u00f3lum og sprikli \u00ed sta\u00f0 helgihalds sem er fornt og taktfast, dj\u00fapt og heilagt og sm\u00edgur inn \u00ed vitundina og tengir hana hinu st\u00e6rsta, \u00e6\u00f0sta og d\u00fdpsta. Meira a\u00f0 segja j\u00e1tar \u00fer\u00f3unarl\u00edffr\u00e6\u00f0ingurinn, Richard Dawking, sem kalla m\u00e1 p\u00e1fa gu\u00f0leysingjanna \u00ed heiminum, a\u00f0 hann s\u00e9 &#8220;Cultural Christian&#8221;. Hva\u00f0 \u00e1 hann vi\u00f0? J\u00fa, honum \u00feykir v\u00e6nt um fornar bygginar Ensku biskupakirkjunnar og svo er messus\u00f6ngurinn honum k\u00e6r, <em>evensong<\/em>, sem \u00e1 s\u00e9r sterkar r\u00e6tur \u00ed hj\u00f6rtum f\u00f3lksins. \u00dea\u00f0 er taktur aldanna sem skiptir m\u00e1li ekki f\u00e1lmkenndar n\u00fdungar og vanhugsa\u00f0ar breytingar!<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>\u00c9g bi\u00f0&#8230;<\/strong><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00deessi grein er b\u00e6n m\u00edn til forystu kirkjunnar um a\u00f0 fara varlega \u00ed a\u00f0 breyta \u00fev\u00ed sem er heilagt og hefur sta\u00f0i\u00f0 \u00f3hagga\u00f0 \u00ed tv\u00f6 \u00fe\u00fasund \u00e1r.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c9g minni \u00e1 a\u00f0 forysta Kirkjugar\u00f0a Reykjav\u00edkurpr\u00f3fastsd\u00e6mis vildi taka krossinn \u00far merki kirkjugar\u00f0anna og sitjandi biskup l\u00fdsti vel\u00fe\u00f3knun sinni \u00fear um. \u00deetta var um mitt \u00e1r 2024. H\u00e6tt var vi\u00f0 \u00feessa breytingu vegna andm\u00e6la almennings. Krossinn stendur \u00fear \u00e1fram.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Og enn minni \u00e9g \u00e1 viskuna \u00ed or\u00f0um Sigurbjarnar Einarssonar, biskups, sem hann l\u00e9t falla \u00e1 s\u00ednum t\u00edma:<\/p>\n\n\n\n<blockquote class=\"wp-block-quote is-layout-flow wp-block-quote-is-layout-flow\">\n<p class=\"wp-block-paragraph\">&#8220;Ef kirkjan giftist t\u00ed\u00f0arandanum, ver\u00f0ur h\u00fan ekkja \u00e1 morgun.&#8221;<\/p>\n<\/blockquote>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Vi\u00f0 megum ekki hlaupa eftir \u00f6llu t\u00edzkustraumum. Taktu eftir a\u00f0 \u00e9g rita t\u00edzka me\u00f0 zetu \u00fev\u00ed \u00fea\u00f0 er komi\u00f0 af t\u00ed\u00f0-sku og \u00f0+s ve\u00f0ur a\u00f0 zetu skv. m\u00e1lfr\u00e6\u00f0i sem var afl\u00f6g\u00f0 me\u00f0 lagasetningu \u00e1ri\u00f0 1974, illu heilli. T\u00edzka er t\u00ed\u00f0arandi og \u00feegar f\u00f3lk l\u00e6tur undan heimsku og grunnhyggni \u00feess anda \u00fe\u00e1 fer ekki vel. St\u00f6ndum v\u00f6r\u00f0 um \u00f6ll helg gildi kristinnar menningar.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">For\u00f0um daga var sagt eftir a\u00f0 h\u00edb\u00fdli h\u00f6f\u00f0u veri\u00f0 \u00ferifin h\u00e1tt og l\u00e1gt fyrir j\u00f3l:<\/p>\n\n\n\n<pre class=\"wp-block-verse\">Komi \u00feeir sem koma vilja<\/pre>\n\n\n\n<pre class=\"wp-block-verse\">Veri \u00feeir sem vera vilja<\/pre>\n\n\n\n<pre class=\"wp-block-verse\">Fari \u00feeir sem fara vilja<\/pre>\n\n\n\n<pre class=\"wp-block-verse\">M\u00e9r og m\u00ednum a\u00f0 meinlausu<\/pre>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00de\u00e1 er m\u00e9r \u00ed lj\u00f3si \u00feess sem a\u00f0 framan greinir, ofarlega \u00ed huga br\u00fdning Jes\u00fas til fylgjenda sinna:<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u201eEn hvar sem ekki er teki\u00f0 vi\u00f0 ykkur n\u00e9 \u00e1 ykkur hl\u00fdtt, \u00fea\u00f0an skulu\u00f0 \u00fei\u00f0 fara og hrista dusti\u00f0 af f\u00f3tum ykkar \u00feeim til vi\u00f0v\u00f6runar.\u201c (Mk 6.11)<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c9g hugsa minn gang.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Gu\u00f0 blessi \u00feig sem gafst \u00fe\u00e9r t\u00edma til a\u00f0 lesa og\/e\u00f0a hlusta.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00deankar um ferli breytinga \u00e1 textum helgihalds \u00ed Handb\u00f3k kirkjunnar \u00d6rn B\u00e1r\u00f0ur J\u00f3nsson &#8211; j\u00fal\u00ed 2025<\/p>\n","protected":false},"author":2,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_jetpack_newsletter_access":"","_jetpack_dont_email_post_to_subs":false,"_jetpack_newsletter_tier_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paywalled_content":false,"_jetpack_hide_featured_image":false,"_jetpack_featured_image_duplicate_dismissed":0,"_jetpack_feature_clip_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":"","jetpack_post_was_ever_published":false},"categories":[4],"tags":[192,243,246,291,333,337,360,464,518,602,640],"class_list":["post-6584","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-greinar-og-hugvekjur-articles","tag-feminismi","tag-gud","tag-gudfraedi","tag-heimurinn","tag-jesus","tag-karlar","tag-konur","tag-myndbrot","tag-rettlaeti","tag-stjornmal","tag-tru"],"jetpack_sharing_enabled":true,"jetpack_featured_media_url":"","_links":{"self":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/6584","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/users\/2"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcomments&post=6584"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/6584\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fmedia&parent=6584"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcategories&post=6584"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Ftags&post=6584"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}