{"id":6437,"date":"2025-06-16T11:11:49","date_gmt":"2025-06-16T11:11:49","guid":{"rendered":"http:\/\/ornbardur.com\/2025\/06\/16\/ad-skilja-ekki-utundan\/"},"modified":"2025-06-16T11:11:49","modified_gmt":"2025-06-16T11:11:49","slug":"ad-skilja-ekki-utundan","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/ornbardur.com\/?p=6437","title":{"rendered":"A\u00f0 skilja ekki \u00fatundan"},"content":{"rendered":"\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>Um m\u00e1lfar helgihalds &#8211; Gengisfelling og atlaga a\u00f0 f\u00f6\u00f0ur\u00edmyndinni<\/strong><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Eftir \u00d6rn B\u00e1r\u00f0 J\u00f3nsson sem les. Hlustun tekur 10:43 m\u00edn.<\/p>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-image size-large\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"1544\" height=\"1088\" src=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2025\/06\/img_3935-2-1.jpg?w=1024\" alt=\"\" class=\"wp-image-6436\" \/><figcaption class=\"wp-element-caption\">Shutterstock\/Wondermind<\/figcaption><\/figure>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-audio\"><audio controls src=\"https:\/\/pub-c849b6aaf98340c4bec7b480b0f7ffe9.r2.dev\/2025\/06\/ad-skilja-ekki-utundan.-um-malfar-helgiha.m4a\"><\/audio><\/figure>\n\n\n\n<!--more-->\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">M\u00e1nudaginn 16. j\u00fan\u00ed 2025.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Greinarkorn \u00feetta hefur legi\u00f0 \u00ed salti hj\u00e1 m\u00e9r \u00ed eina 10 daga og n\u00fa gef \u00e9g \u00fev\u00ed v\u00e6ngi og sendi \u00fat fyrir \u00fej\u00f3\u00f0h\u00e1t\u00ed\u00f0ardaginn \u00ed \u00feeirri von a\u00f0 einhverjar hef\u00f0ir lifi \u00e1fram \u00ed \u00feessu landi. Svo er \u00fea\u00f0 efni \u00ed a\u00f0ra grein a\u00f0 fjalla um kynuslann. Tek \u00fea\u00f0 fyrir s\u00ed\u00f0ar.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00cd \u00f3nefndum b\u00e6 l\u00e1 \u00fatlent skip vi\u00f0 akkeri me\u00f0an \u00e1h\u00f6fnin f\u00f3r \u00ed land a\u00f0 skemmta s\u00e9r. Enginn vakt var um bor\u00f0. \u00d3pr\u00fattnir heimamenn r\u00e9ru \u00fat a\u00f0 skipinu um n\u00f3tt me\u00f0 \u00fea\u00f0 fyrir augum a\u00f0 r\u00e6na og rupla. \u00deeir klifru\u00f0u upp ka\u00f0alstiga og komust um bor\u00f0 en einn var skilinn eftir til a\u00f0 g\u00e6ta skektunnar vi\u00f0 skipshli\u00f0. Honum var annt um sinn hag og hr\u00f3pa\u00f0i til \u00feeirra: &#8220;Str\u00e1kar, steli\u00f0i l\u00edka fyrir mig!&#8221; \u00dea\u00f0 telst v\u00edst til kristinna dygg\u00f0a a\u00f0 skilja ekki \u00fatundan og um \u00fea\u00f0 ver\u00f0ur m.a. fjalla\u00f0 \u00ed ni\u00f0urlagsor\u00f0um \u00feessa greinarkorns.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>M\u00e1lhreinsun<\/strong><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">N\u00fa er mikil m\u00e1lhreinsun \u00ed gangi innan \u00dej\u00f3\u00f0kirkjunnar og eins og al\u00fej\u00f3\u00f0 \u00feekkir \u00fe\u00e1 s\u00f3pa n\u00fdir vendir best. N\u00fa skal taka til hendi og breyta m\u00e1lfari messunnar. Eigi ver\u00f0ur lengur leyft a\u00f0 segja: &#8220;Drottinn s\u00e9 me\u00f0 y\u00f0ur.&#8221; M\u00e1lfreyjurnar miklu halda v\u00edst a\u00f0 f\u00f3lk skilji ekki lengur m\u00e1l af \u00feessu tagi og vilja segja: &#8220;Drottinn s\u00e9 me\u00f0 ykkur.&#8221;<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Or\u00f0in okkur og ykkur hlj\u00f3ma h\u00f6r\u00f0 og k\u00f6ld. \u00dea\u00f0 fl\u00e6\u00f0ir b\u00f3kstaflega allt \u00ed k\u00e1um og \u00fev\u00ed legg \u00e9g til a\u00f0 \u00dej\u00f3\u00f0kirkjan ver\u00f0i framvegis ritu\u00f0 me\u00f0 sex k\u00e1um: \u00dej\u00f3\u00f0kkkirkkkjan til a\u00f0 nafni\u00f0 kallist \u00e1 vi\u00f0 b\u00e6nas\u00f6ng k\u00e1-v\u00e6\u00f0ingarinnar.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>Og blessa\u00f0ur s\u00e9rtu n\u00fa, Fa\u00f0ir minn<\/strong><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Svo \u00e1 l\u00edka a\u00f0 kynbreyta signingunni og tr\u00faarj\u00e1tningunni og strika Gu\u00f0 f\u00f6\u00f0ur \u00fat og setja m\u00f3\u00f0ur \u00ed sta\u00f0inn.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">M\u00farbrot feministanna gagnvart meintu fe\u00f0raveldi aldanna hefur sta\u00f0i\u00f0 \u00ed \u00e1ratugi og vir\u00f0ist ganga vel me\u00f0 n\u00fdjum loftpressum og st\u00f3rvirkum vinnuv\u00e9lum og h\u00f6ggin berast l\u00edka \u00far h\u00e1sk\u00f3lum heimsins og kannski kemur tr\u00favillan einmitt \u00fea\u00f0an.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">K\u00f6rlum er kennt um allt sem mi\u00f0ur hefur fari\u00f0 \u00ed heimi kvenna \u00ed gegnum t\u00ed\u00f0ina. Geta m\u00e1 \u00feess \u00fe\u00f3 a\u00f0 \u00fea\u00f0 voru tveir karlar sem &#8220;frelsu\u00f0u&#8221; \u00fe\u00e6r undan karlaveldinu me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 finna upp pilluna. \u00c1rangur r\u00e9ttindabar\u00e1ttu kvenna hef\u00f0i aldrei or\u00f0i\u00f0 barn \u00ed br\u00f3k nema fyrir pilluna.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Veldi karla og kvenna st\u00f3\u00f0u hli\u00f0 vi\u00f0 hli\u00f0 \u00e1 hverjum b\u00e6 h\u00e9r \u00e1\u00f0ur fyrr. H\u00fasfreyjan r\u00e9\u00f0 \u00f6llu innanstokks en karlinn hinu ytra. \u00c9g veit a\u00f0 \u00e9g ver\u00f0 v\u00e6ndur um einf\u00f6ldun, en \u00feetta er ekki fr\u00e6\u00f0ileg ritger\u00f0 til pr\u00f3fs og \u00fe.a.l. l\u00e6t n\u00e6gja a\u00f0 t\u00e6pa \u00e1 flestum m\u00e1lum \u00ed \u00feessum stutta pistli. En \u00feessi grein er \u00fe\u00f3 ekki ritu\u00f0 me\u00f0 hj\u00e1lp vitl\u00edkis e\u00f0a gervigreindar eins og margir gera \u00ed masterspr\u00f3fum sem mega ekki lengur heita meistarapr\u00f3f upp\u00e1 \u00edslensku og gengisskr\u00e1ningu pr\u00f3fsk\u00edrteina \u00fev\u00ed vart treystandi.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 taka f\u00f6\u00f0urinn \u00fat \u00far grundvallartextum kirkjunnar og setja m\u00f3\u00f0ur \u00ed sta\u00f0inn er framkv\u00e6mt skemmdarverk og ger\u00f0 atlaga a\u00f0 f\u00f6\u00f0ur\u00edmyndinni \u00ed s\u00f6gu og samt\u00ed\u00f0. Hvers eigum vi\u00f0 karlar a\u00f0 gjalda a\u00f0 vera ekki taldir til neins br\u00faklegir? Hva\u00f0a skilabo\u00f0 eru send til drengja og ungra karla? \u00cd raun er veri\u00f0 a\u00f0 segja: &#8220;Bless, pabbi! H\u00e9r eftir t\u00f6lum vi\u00f0 bara um m\u00f6mmu \u00ed fj\u00f6lskyldu okkar!&#8221; Ver\u00f0ur \u00fea\u00f0 til b\u00f3ta a\u00f0 sn\u00faa bara d\u00e6minu vi\u00f0? Svona bylting minnir \u00e1 \u00e6\u00f0i sem \u00e1\u00f0ur hefur gripi\u00f0 \u00f6fgaf\u00f3lk \u00ed s\u00f6gunni. \u00dei\u00f0 \u00feekki\u00f0 sl\u00edk d\u00e6mi. Og n\u00fa er vekni-li\u00f0i\u00f0 \u00e1 fer\u00f0 me\u00f0 sinn kl\u00e1\u00f0a, v\u00f6kustaurarnir me\u00f0 uppglennt augu. Ykkur v\u00e6ri hollast a\u00f0 leggja ykkur um stund og f\u00e1 ykkur blund til a\u00f0 hv\u00edla heilann og leyfa honum a\u00f0 vinna sitt hreinsunarstarf.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>Hlutverk beggja kynja eru mikilv\u00e6g<\/strong><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Fe\u00f0ur eru ekki fullkomnir frekar en m\u00e6\u00f0ur. Kirkjan hefur fr\u00e1 fyrstu t\u00ed\u00f0 gert konum h\u00e1tt undir h\u00f6f\u00f0i. Konur voru margar me\u00f0al fylgjenda Krists og fyrstu vottar a\u00f0 upprisu hans. Viska og \u00edr\u00f3n\u00eda Gu\u00f0s kom m.a. fram \u00ed \u00fev\u00ed a\u00f0 l\u00e1ta konur vera fyrstu votta upprisunnar \u00fev\u00ed \u00fe\u00e6r t\u00f6ldust ekki vitnisb\u00e6rar \u00e1 \u00feeim t\u00edma. Skemmtilegur m\u00e1tleikur Himnaf\u00f6\u00f0urins.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Kirkjan gaf konum r\u00edkulegt t\u00e6kif\u00e6ri utan heimilis me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 ganga \u00ed klaustur til jafns vi\u00f0 karla og l\u00e1ta um sig muna \u00fear. Sum klaustrin ur\u00f0u v\u00edsindastofnanir t.d. \u00e1 svi\u00f0i r\u00e6ktunar og \u00fear \u00e1ttu nunnur r\u00edkan hlut a\u00f0 m\u00e1li og l\u00f6g\u00f0u mikilv\u00e6g l\u00f3\u00f0 \u00e1 vogarsk\u00e1lar jurtafr\u00e6\u00f0innar eins og munkar ger\u00f0u l\u00edka. \u00c1 bl\u00f3mat\u00edma klaustranna var\u00f0 klausturl\u00edf m\u00f6rgum konum \u00edgildi pillunnar sem leysti \u00fe\u00e6r undan barneignum. Or\u00f0i\u00f0 Abbad\u00eds er sagt vera kvenkyns afbrig\u00f0i af heitinu \u00e1b\u00f3ti. Hugsanlega er s\u00f6gnin a\u00f0 abbast komin af \u00fev\u00ed. N\u00fa abbast \u00fe\u00e6r upp\u00e1 karlkyni\u00f0, sag\u00f0i karlinn.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Mar\u00eda m\u00f3\u00f0ir Jes\u00fa hefur veri\u00f0 hyllt sem m\u00e6tust me\u00f0al kvenna. \u00de\u00e1 m\u00e6tti nefna skara margra merkra kvenna sem gengt hafa lykilhlutverkum \u00ed s\u00f6gunni.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>Fa\u00f0ir vor<\/strong><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Um brenglun b\u00e6nar Drottins hef \u00e9g \u00feegar fjalla\u00f0 \u00ed grein sem lesa m\u00e1 og hlusta \u00e1 h\u00e9r: http:\/\/localhost:8081\/2025\/06\/03\/ad-brengla-heilaga-threnningu\/<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">En h\u00e9r r\u00e6\u00f0i \u00e9g hvort \u00e1varpi\u00f0 Fa\u00f0ir vor eigi a\u00f0 breyta \u00ed flatneskju.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">&#8220;Fa\u00f0ir vor, \u00fe\u00fa sem ert \u00e1 himnum&#8221;, segir \u00ed b\u00e6n Jes\u00fa. Algengur misskilningur er a\u00f0 h\u00e9r s\u00e9 um \u00fe\u00e9run a\u00f0 r\u00e6\u00f0a en svo er ekki \u00fev\u00ed um lei\u00f0 og or\u00f0inu <em>vor<\/em> sleppir er sagt, &#8220;<em>\u00fe\u00fa<\/em> sem ert \u00e1 himnum&#8221;. Pers\u00f3nufornafni\u00f0 <em>vor<\/em> \u00ed \u00feessu tilfelli er h\u00e1tignarfleirtala og \u00ed fornu m\u00e1li var fornafni\u00f0 <em>vi\u00f0<\/em>, nota\u00f0 um tvo (tv\u00edtala) en or\u00f0i\u00f0 <em>vor<\/em> (fleirtala) um \u00ferj\u00e1 og fleiri. Ef sagt ver\u00f0ur &#8220;Drottinn s\u00e9 me\u00f0 ykkur&#8221; v\u00edsar \u00fea\u00f0 skv. fornri m\u00e1lhef\u00f0 a\u00f0eins til tveggja. \u00dea\u00f0 mun au\u00f0vita\u00f0 vera vi\u00f0eigandi ef svo f\u00e6kkar \u00ed kirkjum a\u00f0 v\u00ed\u00f0a ver\u00f0i a\u00f0eins tveir, tv\u00e6r e\u00f0a tv\u00f6 sem m\u00e6ta til messu.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c9g hr\u00f6kk \u00ed k\u00fat er \u00e9g m\u00e6tti \u00ed messu sem haldin var \u00e1 Austurlandi \u00fear sem \u00e9g hef leyst af \u00ed vetur og vissi ekki af \u00feessu m\u00e1lhreinsunar\u00e6\u00f0i &#8211; sem f\u00f3r framhj\u00e1 okkur m\u00f6rgum sem komir eru \u00e1 eftirlaun &#8211; og fannst eins og \u00edsn\u00e1lar skyllu \u00e1 m\u00e9r me\u00f0 \u00f6llum k\u00e1-unum \u00ed \u00e1v\u00f6rpum og sv\u00f6rum: Drottin s\u00e9 me\u00f0 YKKUR &#8211; og ef \u00e9g man r\u00e9tt \u00fe\u00e1 var hitt svona: Drottinn, miskunna \u00fe\u00fa OKKUR. Og af \u00fev\u00ed a\u00f0 notu\u00f0 var hin forna tv\u00edtala \u00fe\u00e1 leit \u00e9g \u00ed kringum mig til a\u00f0 finna \u00feessa tvo, \u00feessar tv\u00e6r, \u00feessi tv\u00f6 sem presturinn var a\u00f0 \u00e1varpa \u00fev\u00ed \u00e9g t\u00f3k \u00feetta alls ekki til m\u00edn<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">M\u00e9r br\u00e1 og fannst eins og messan v\u00e6ri komin ni\u00f0ur \u00e1 eitthvert hvunndagsplan og bj\u00f3st vi\u00f0 kirkjukaffi \u00e1 eftir me\u00f0 beinakexi og lap\u00feunnu kaffi, sem reyndar var\u00f0 ekki raunin. En m\u00e1lfari\u00f0! Gu\u00f0 minn g\u00f3\u00f0ur! \u00dev\u00edl\u00edk flatneskja!<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Haldi\u00f0 \u00fei\u00f0 virkilega a\u00f0 allt \u00ed einu eftir 2000 \u00e1r, geti f\u00f3lk ekki samsama\u00f0 sig hinu aldagamla m\u00e1lfari? Er ekki til \u00f6nnur lausn, einhver \u00e1bur\u00f0ur sem sv\u00edar \u00e1 \u00feetta ofn\u00e6mi ykkar?<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>Me\u00f0hj\u00e1lparab\u00e6nin og syndaj\u00e1tningin<\/strong><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Upphafsb\u00e6n messunnar er forn og venjan er a\u00f0 me\u00f0hj\u00e1lpari flytji hana fyrir h\u00f6nd safna\u00f0arins e\u00f0a me\u00f0 honum: &#8220;Drottinn, <strong>\u00e9g<\/strong> er kominn \u00ed \u00feitt heilaga h\u00fas&#8230;&#8221; (leturbr. m\u00edn). <strong>\u00c9g<\/strong> er kominn. Vi\u00f0 segjum \u00feetta saman og t\u00f6lum \u00ed fyrstu pers\u00f3nu og sama \u00e1 vi\u00f0 um syndaj\u00e1tninguna: &#8220;\u00c9g j\u00e1ta fyrir \u00fe\u00e9r, alm\u00e1ttugi Gu\u00f0 . . . &#8221; Enginn getur j\u00e1ta\u00f0 syndir annarra og enginn be\u00f0i\u00f0 Gu\u00f0 a\u00f0 hj\u00e1lpa s\u00e9r nema s\u00e1 sem bi\u00f0ur, einstaklingurinn, gu\u00f0sbarni\u00f0 sj\u00e1lft. Hvorug yr\u00f0ingin er kollekt\u00edf, h\u00fan er pers\u00f3nuleg og ekkert anna\u00f0!<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>Ekki skilja \u00fatundan!<\/strong><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">M\u00e1lfarsfasismi er e.t.v. or\u00f0 \u00ed sterkara lagi til a\u00f0 nota um \u00feessa \u00e1\u00e6tlun fem\u00ednistanna innan kirkjunnar. En fyrst \u00fe\u00e6r \u00e6tla a\u00f0 hreinsa \u00fat karlkynsor\u00f0 \u00far m\u00e1li messunnar og okkur\/ykkur-v\u00e6\u00f0a messusv\u00f6rin og breyta svo l\u00edka Bibl\u00edunni, \u00fe\u00e1 er vert a\u00f0 minna \u00e1 yfirskrift \u00feessa greinarkorns um a\u00f0 skilja ekki neinn \u00fatundan.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00cd \u00fev\u00ed sambandi er vert a\u00f0 gleyma ekki einni pers\u00f3nu sem margir \u00feekkja a\u00f0 minnsta kosti af afspurn ef ekki pers\u00f3nulega. Sumir vir\u00f0ast vera beinl\u00ednis \u00ed vinfengi vi\u00f0 hann. J\u00e1, hann er karlkyn og heitir Satan. Nau\u00f0syn ber n\u00fa til a\u00f0 kvengera hann sem einnig er kalla\u00f0ur dj\u00f6full. Hann getur \u00fear me\u00f0 kallast Satan\u00eda og Dj\u00f6fla sem beygist eins og Krafla og fellur vel a\u00f0 m\u00e1linu og Andskotinn ver\u00f0u \u00e1n efa feginn a\u00f0 f\u00e1 loksins fr\u00ed og afhenda sinni Andskotu lyklav\u00f6ldin.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c9g segi n\u00fa eins og kerlingin og sl\u00e6 m\u00e9r \u00e1 l\u00e6r:<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">&#8220;Gu\u00f0 s\u00e9 oss n\u00e6stur!&#8221;<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Og til vi\u00f0b\u00f3tar ein spurning:<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Gu\u00f0 er karlkynsor\u00f0 og hva\u00f0 \u00e6tla \u00fe\u00e6r a\u00f0 setja \u00ed sta\u00f0inn fyrir hann?<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Minni \u00e1 v\u00edsd\u00f3msor\u00f0 Sigurbjarnar Einarssonar, biskups, sem hann vi\u00f0haf\u00f0i \u00ed \u00fatvarpi um kirkjuna og samt\u00ed\u00f0 s\u00edna:<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">&#8220;Ef kirkjan giftist t\u00ed\u00f0arandanum ver\u00f0ur h\u00fan ekkja \u00e1 morgun.&#8221;<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Og svo minni \u00e9g \u00e1 a\u00f0 kirkjan giftist en kv\u00e6nist ekki, skv. m\u00e1lhef\u00f0inni, \u00fev\u00ed h\u00fan er kvenkyns!<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c1 a\u00f0 skilja kirkjuna \u00fatundan? Hva\u00f0 \u00e6tla \u00fe\u00e6r a\u00f0 kalla hana?<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00deessu br\u00f6lti kirkjustj\u00f3rnarinnar m\u00e1 alveg l\u00edkja vi\u00f0 gl\u00e6p.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Steli\u00f0i l\u00edka fyrir mig, sag\u00f0i kallinn.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Um m\u00e1lfar helgihalds &#8211; Gengisfelling og atlaga a\u00f0 f\u00f6\u00f0ur\u00edmyndinni Eftir \u00d6rn B\u00e1r\u00f0 J\u00f3nsson sem les. Hlustun tekur 10:43 m\u00edn.<\/p>\n","protected":false},"author":2,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_jetpack_newsletter_access":"","_jetpack_dont_email_post_to_subs":false,"_jetpack_newsletter_tier_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paywalled_content":false,"_jetpack_hide_featured_image":false,"_jetpack_featured_image_duplicate_dismissed":0,"_jetpack_feature_clip_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":"","jetpack_post_was_ever_published":false},"categories":[4],"tags":[178,187,340,360,429,430],"class_list":["post-6437","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-greinar-og-hugvekjur-articles","tag-fadir","tag-fodurimynd","tag-ka-vaeding","tag-konur","tag-malfar","tag-malfarsfasismi"],"jetpack_sharing_enabled":true,"jetpack_featured_media_url":"","_links":{"self":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/6437","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/users\/2"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcomments&post=6437"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/6437\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fmedia&parent=6437"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcategories&post=6437"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Ftags&post=6437"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}