{"id":6428,"date":"2025-06-14T11:56:42","date_gmt":"2025-06-14T11:56:42","guid":{"rendered":"http:\/\/ornbardur.com\/2025\/06\/14\/afallastreita-harmur-og-sorg\/"},"modified":"2025-06-14T11:56:42","modified_gmt":"2025-06-14T11:56:42","slug":"afallastreita-harmur-og-sorg","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/ornbardur.com\/?p=6428","title":{"rendered":"\u00c1fallastreita, harmur og sorg"},"content":{"rendered":"\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hvernig getum vi\u00f0 hj\u00e1lpa\u00f0 sorgm\u00e6ddum?<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hva\u00f0 hj\u00e1lpar?<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Grein eftir<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00d6rn B\u00e1r\u00f0 J\u00f3nsson sem les. <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Upptakan 12:42 m\u00edn\u00fatur \u00ed hlustun. <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Ef texti greinar birtist ekki, smelltu \u00fe\u00e1 \u00e1 fyrirs\u00f6gnina efst.<\/p>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-audio\"><audio controls src=\"https:\/\/pub-c849b6aaf98340c4bec7b480b0f7ffe9.r2.dev\/2025\/06\/afallastreita-harmur-og-sorg.m4a\"><\/audio><\/figure>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-image size-large\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"1755\" height=\"1158\" src=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2025\/06\/img_3929-1.jpg?w=1024\" alt=\"\" class=\"wp-image-6427\" \/><figcaption class=\"wp-element-caption\">https:\/\/totum.dk\/lidelser\/sorg\/<\/figcaption><\/figure>\n\n\n\n<!--more-->\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Dag hvern ver\u00f0ur einhver fyrir \u00e1falli vegna missis. Harmur og sorg taka yfir daglegt l\u00edf. Framt\u00ed\u00f0in blasir vi\u00f0 \u00e1 allt annan h\u00e1tt en \u00e1\u00f0ur. Vi\u00f0 ver\u00f0um \u00f6ll fyrir \u00e1f\u00f6llum \u00ed l\u00edfinu, en sum okkar f\u00e1 yfir sig harm sem l\u00edkja m\u00e1 vi\u00f0 brotsj\u00f3 sem breytir \u00f6llu.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00cd Gamla testamentinu eru margir merkir textar sem lagt hafa grunn a\u00f0 skilningi Vesturlanda \u00e1 l\u00edfinu og tilverunni. \u00dear eru til a\u00f0 mynda margir textar um r\u00e9ttl\u00e1ta og sanngjarna framkomu gagnvart n\u00e1unganum. Allar grunnhugmyndir okkar \u00ed \u00feeim efnum eru sprottnar \u00far l\u00edfi hir\u00f0ingja \u00ed Mi\u00f0-Austurl\u00f6ndum sem r\u00f6tu\u00f0u inn \u00ed hi\u00f0 mikla ritsafn sem vi\u00f0 k\u00f6llum Gamla testamenti\u00f0. \u00cd \u00feeirri b\u00f3k eru margar s\u00f6gur, sumar fagrar, a\u00f0rar lj\u00f3tar, enda er GT um f\u00f3lk me\u00f0 margskonar kosti og bresti. Segja m\u00e1 a\u00f0 \u00cdslendingas\u00f6gurnar s\u00e9u \u00e1 sama h\u00e1tt sannar s\u00f6gur \u00far mannl\u00edfinu, s\u00f6gur af breyzku f\u00f3lki.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Ein af perlum GT ber heiti\u00f0 Jobsb\u00f3k og er talin til merkra rita heimsb\u00f3kmenntanna. Job var r\u00e9ttl\u00e1tur ma\u00f0ur sem \u00e1tti allt, en hann missti b\u00e6\u00f0i afkomendur, fj\u00e1rmuni s\u00edna og heilsu. En hann komst \u00fe\u00f3 aftur \u00e1 f\u00e6tur og fann hamingjuna \u00e1 n\u00fd, en \u00fea\u00f0 au\u00f0nast reynar ekki \u00f6llum en von margra er himinn Gu\u00f0s.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Jobsb\u00f3k er \u00ed raun varnarsaga um Gu\u00f0. Kenningar um sl\u00edkt kallast <em>teodice<\/em> e\u00f0a <em>gu\u00f0sr\u00e9ttl\u00e6ting<\/em> og sn\u00faast um a\u00f0 sanna a\u00f0 Gu\u00f0 standi ekki a\u00f0 baki \u00fev\u00ed sem \u00f3gnar okkur \u00ed tilverunni. Hann er s\u00fdkna\u00f0ur af sl\u00edku \u00fev\u00ed illskan \u00e1 anna\u00f0 heimilisfang en himinninn.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00deessi afsta\u00f0a, a\u00f0 s\u00fdkna Gu\u00f0, var kristnum m\u00f6nnum kunn, sem st\u00f3\u00f0u \u00e1 \u00deingvelli \u00e1ri\u00f0 1000 \u00feegar kristnitakan var r\u00e6dd. Eldgos var hafi\u00f0 \u00e1 Hellishei\u00f0i og hei\u00f0nir menn t\u00f6ldu go\u00f0in vera rei\u00f0 yfir \u00fer\u00f3un m\u00e1la. \u00de\u00e1 m\u00e6lti Snorri go\u00f0i: &#8220;Um hva\u00f0 reiddust go\u00f0in \u00fe\u00e1, er h\u00e9r brann hrauni\u00f0, er n\u00fa st\u00f6ndum v\u00e9r \u00e1?\u201c Eldgos \u00fe\u00e1 e\u00f0a n\u00fa eru ekki sending Gu\u00f0s e\u00f0a go\u00f0magna. N\u00e1tt\u00faran l\u00fdtur s\u00ednum l\u00f6gm\u00e1lum og fer s\u00ednu fram.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00cd Jobsb\u00f3k er leitast vi\u00f0 a\u00f0 svara spurningunni: Hvers vegna ver\u00f0ur gott f\u00f3lk fyrir harmi og \u00fej\u00e1ningu? Af hverju deyja sumir lagt fyrir aldur fram?<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>Enginn kemst lifandi \u00far \u00feessu l\u00edfi<\/strong><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00cd starfi m\u00ednu sem prestur stend \u00e9g oft frammi fyrir spurningum af \u00fev\u00ed tagi sem gl\u00edmt er vi\u00f0 \u00ed Jobsb\u00f3k. Dau\u00f0inn m\u00e6tir f\u00f3lki \u00ed margskonar gervi og a\u00f0st\u00e6\u00f0um. \u00c9g sag\u00f0i \u00ed p\u00e1skapr\u00e9dikun 2025: Enginn kemst lifandi \u00far \u00feessu l\u00edfi.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Eitt sinn skal hver deyja og um \u00fe\u00e1 sta\u00f0reynd orti s\u00e9ra Hallgr\u00edmur P\u00e9tursson \u00f3dau\u00f0legan s\u00e1lm: Um dau\u00f0ans \u00f3vissan t\u00edma. \u00cd 7. versi m\u00e6lir sk\u00e1ldi\u00f0:<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Afl dau\u00f0ans eins nam krenkja<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">alla \u00ed ver\u00f6ld h\u00e9r<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Skal \u00e9g \u00fe\u00e1 \u00feurfa\u00b4 a\u00f0 \u00feenkja<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">hann \u00feyrmi einum m\u00e9r?<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Adams er e\u00f0li runni\u00f0<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00ed mitt n\u00e1tt\u00farlegt hold,<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00e9g hef \u00fear og til unni\u00f0<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">aftur a\u00f0 ver\u00f0a mold.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Eitt \u00fea\u00f0 mikilv\u00e6gasta \u00ed l\u00edfinu er vin\u00e1tta og samf\u00e9lag vi\u00f0 anna\u00f0 f\u00f3lk og \u00feegar sorgin vitjar manns \u00fe\u00e1 er ekkert betra en n\u00e6rvera vina.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Oftast er \u00f3\u00fearfi a\u00f0 vinir hafi m\u00f6rg or\u00f0 um sorgina. Syrgjandinn \u00fearf hins vegar oft a\u00f0 tj\u00e1 sig, a\u00f0 f\u00e1 r\u00fdmi til a\u00f0 segja fr\u00e1 harmi s\u00ednum og missi, or\u00f0a tilfinningar s\u00ednar<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">&#8211; og hlustendur a\u00f0 taka l\u00fdsingarnar alvarlega og m\u00e6ta \u00feeim af skilningi og k\u00e6rleika. Og \u00fe\u00e1 skiptir n\u00e6rvera mestu, \u00fev\u00ed k\u00e6rleikurinn virkar oft best \u00ed \u00fe\u00f6gulli n\u00e6rveru og hl\u00fdju vi\u00f0m\u00f3ti. R\u00f6kr\u00e6\u00f0ur gagnvart syrgjanda, um a\u00f0 hann e\u00f0a h\u00fan \u00feurfi n\u00fa a\u00f0 taka sig \u00e1 og h\u00e6tta s\u00ednu voli, eru algj\u00f6rlega tilgangslausar. \u00de\u00e6r geta jafnvel virka\u00f0 sem ofbeldi, hrein mannvonska og heimska.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">[Innskot \u00e1 hlj\u00f3\u00f0uppt\u00f6ku me\u00f0 \u00fe\u00e1tt deyfilyjfa \u00ed sorgarferli]<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Einveran er oft erfi\u00f0ust fyrir syrgjendur og \u00fev\u00ed er mikilv\u00e6gt a\u00f0 vera til taks t.d. eftir \u00fatf\u00f6r og sty\u00f0ja syrgjendur a\u00f0 fylgjast me\u00f0 \u00feeim n\u00e1nustu og vera tilb\u00fain til a\u00f0 veita stu\u00f0ning. En um lei\u00f0 \u00fearf a\u00f0 gefa f\u00f3lki r\u00fdmi til a\u00f0 vera \u00fat af fyrir sig ef svo ber undir.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>Sorgin er ekki sj\u00fakd\u00f3mur<\/strong><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Sorgin er n\u00e1tt\u00farulegt vi\u00f0brag\u00f0 vi\u00f0 missi, h\u00f6ggi, sem l\u00e6tur um sig muna. \u00c1hrifin vara um \u00f3komna t\u00ed\u00f0. Erfi\u00f0 sorg hverfur aldrei \u00far minni f\u00f3lks me\u00f0an minni\u00f0 er \u00f3skert. En hins vegar erum vi\u00f0 \u00feannig ger\u00f0, a\u00f0 vi\u00f0 getum tekist \u00e1 vi\u00f0 s\u00e1rsauka og missi og n\u00e1\u00f0 okkur a\u00f0 vissu marki.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Tr\u00e9 sem rifi\u00f0 er upp me\u00f0 r\u00f3tum og f\u00e6rt \u00e1 annan sta\u00f0, getur laufgast \u00e1 n\u00fd og bori\u00f0 \u00e1v\u00f6xt. En \u00fea\u00f0 kann a\u00f0 bera merki \u00e1fallsins \u00fear til \u00fea\u00f0 visnar sj\u00e1lft og deyr.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">&#8220;\u00d6llu er afm\u00f6rku\u00f0 stund&#8221; segir \u00ed b\u00f3k Pr\u00e9dikarans \u00ed Gamla testamentinu.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Sagt er a\u00f0 gle\u00f0in og sorgin s\u00e9u systur &#8211; og \u00fe\u00e1 eru k\u00e6rleikurinn og missirinn br\u00e6\u00f0ur. Vi\u00f0 syrgjum \u00feau sem vi\u00f0 h\u00f6fum elska\u00f0 og \u00fe\u00f3tt v\u00e6nt um.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Allt eru \u00feetta sta\u00f0reyndir sem syrgjendur \u00feekkja, en gott er a\u00f0 rifja \u00feetta upp og muna a\u00f0 enginn er eyland. Vi\u00f0 erum samf\u00e9lagsverur og \u00fer\u00edfumst ekki vel \u00ed einveru, nema stuttan t\u00edma \u00ed senn. Ma\u00f0ur er manns gaman og hl\u00fd or\u00f0 og n\u00e6rvera geta veri\u00f0 sem ferskt vatn er \u00feyrstum manni.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>Upphaf si\u00f0mennningarinnar<\/strong><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">St\u00f6ndum \u00e6t\u00ed\u00f0 me\u00f0 \u00feeim sem \u00fej\u00e1st og finna til, me\u00f0 sj\u00fakum og sorgm\u00e6ddum.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Eitt sinn las \u00e9g tilv\u00edsun \u00ed or\u00f0 og vizku mannfr\u00e6\u00f0ingsins, Margareth Mead (1901-1978). Kjarninn \u00ed \u00feeirri f\u00e6rslu var a\u00f0 h\u00fan hafi sagt, a\u00f0 upphaf si\u00f0menningar v\u00e6ri ekki a\u00f0 f\u00f3lk l\u00e6r\u00f0i a\u00f0 sm\u00ed\u00f0a s\u00e9r verkf\u00e6ri og vopn. Nei! H\u00fan v\u00edsa\u00f0i til mja\u00f0marbeins sem fundist haf\u00f0i, bein sem haf\u00f0i brotna\u00f0 og gr\u00f3i\u00f0. H\u00fan sag\u00f0i \u00feetta bein, vitna um upphaf si\u00f0menningar, nefnilega \u00fea\u00f0 a\u00f0 s\u00e1 e\u00f0a s\u00fa, sem brotna\u00f0i, hafi hloti\u00f0 hj\u00fakrun og umhyggju til a\u00f0 komast aftur \u00e1 f\u00e6tur \u00ed sta\u00f0 \u00feess a\u00f0 lenda \u00ed gini villid\u00fdra.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00dear me\u00f0 h\u00f3fst si\u00f0menningin!<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Fyrstu v\u00edsar a\u00f0 hj\u00fakrunarheimilum \u00e1 \u00cdslandi voru klaustrin \u00ed ka\u00fe\u00f3lskri t\u00ed\u00f0 og \u00fear settist f\u00f3lk &#8220;\u00ed helgan stein&#8221; eins og \u00fea\u00f0 er or\u00f0a\u00f0, flutti \u00ed steinh\u00fasi\u00f0 og borga\u00f0i fyrir heilbrig\u00f0is\u00fej\u00f3nustuna eins og vi\u00f0 gerum enn.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Prestar s\u00e1u um a\u00f0 kenna \u00f6llum b\u00f6rnum lestur og skrift eftir si\u00f0breytingu.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Menningin er f\u00f3lgin \u00ed umhyggju og uppl\u00fdsingu og \u00fear hefur kirkjan leiki\u00f0 lykilhlutverk um aldir.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>\u00derj\u00e1r v\u00edddir sem skipta \u00f6llu<\/strong><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">H\u00f6fundur nokkur, Iain McGilchrist, hvers b\u00e6kur \u00e9g hef veri\u00f0 a\u00f0 lesa \u00e1 li\u00f0num misserum, og er mennta\u00f0ur ge\u00f0l\u00e6knir, en einnig \u00ed b\u00f3kmenntafr\u00e6\u00f0i, heimspeki og l\u00edfeindafr\u00e6\u00f0i, segir a\u00f0 vi\u00f0 \u00feurfum a\u00f0 r\u00e6kta me\u00f0 okkur tengsl vi\u00f0:<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><em><strong>f\u00f3lk<\/strong>,<\/em><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong><em>n\u00e1tt\u00faruna<\/em><\/strong> og<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong><em>Gu\u00f0<\/em><\/strong>, hi\u00f0 st\u00f3ra samhengi alls sem er.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Kristin tr\u00fa hefur veri\u00f0 f\u00f3lki huggun um aldir. S\u00e1lmi s\u00e9ra Hallgr\u00edms P\u00e9turssonar, <em>Um dau\u00f0ans \u00f3vissan t\u00edma<\/em> m\u00e1 l\u00edkja vi\u00f0 n\u00e1mskei\u00f0 \u00ed dau\u00f0anum. \u00cd fyrstu n\u00edu versunum lei\u00f0ir hann fram sta\u00f0reyndir um dau\u00f0ann \u00e1 m\u00e1li sem allir geta teki\u00f0 undir, hverrar tr\u00faar sem \u00feeir eru. Lokaversin fj\u00f6gur tj\u00e1 \u00fe\u00e1 von og tr\u00fa, huggun og styrk, sem sk\u00e1ldi\u00f0 fann \u00ed Kristi \u00ed eigin harmkv\u00e6lum og sorg.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>S\u00e1lmar og d\u00e6gurl\u00f6g<\/strong><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">S\u00e1lmarnir \u00ed s\u00e1lmab\u00f3k \u00dej\u00f3\u00f0kirkjunnar eru einstakur kve\u00f0skapur sem greinir sig fr\u00e1 \u00f6llum \u00f6\u00f0rum kve\u00f0skap, \u00fev\u00ed s\u00e1lmarnir bo\u00f0a \u00e6t\u00ed\u00f0 von og tr\u00fa. Ef \u00e9g l\u00edki l\u00edfinu vi\u00f0 akstur \u00ed bifrei\u00f0, \u00fe\u00e1 eru minningartengd lj\u00f3\u00f0 og l\u00f6g \u00ed baks\u00fdnisspeglinum. S\u00e1lmarnir eru hins vegar \u00ed framr\u00fa\u00f0inni. \u00deeir horfa fram og upp\u00e1 vi\u00f0, til himinsins heim og benda \u00e1 tr\u00fa og von.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">D\u00e6gurl\u00f6g, sem s\u00e1 e\u00f0a s\u00fa sem vi\u00f0 kve\u00f0jum, haf\u00f0i \u00e1n\u00e6gju af a\u00f0 heyra, vekja upp minningar okkar sem kve\u00f0jum, n\u00e6ra og f\u00f3\u00f0ra sorgina, me\u00f0an s\u00e1lmarnir milda hana og beina sj\u00f3num okkar \u00e6t\u00ed\u00f0 \u00e1fram og h\u00e6rra, til bjartari framt\u00ed\u00f0ar \u00ed von og tr\u00fa. Vi\u00f0 megum ekki frestast \u00ed fort\u00ed\u00f0inni. Leyfum okkur a\u00f0 l\u00edta um \u00f6xl og rifja upp \u00fea\u00f0 sem gaf gle\u00f0i og vi\u00f0 erum \u00feakkl\u00e1t fyrir, en vi\u00f0 skulum \u00fe\u00f3 um lei\u00f0 beina sj\u00f3num okkar sem allra mest fram \u00e1 veginn.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Elsti s\u00e1lmur sem til er \u00e1 Norr\u00e6nni tungu er s\u00e1lmur Kolbeins Tumasonar fr\u00e1 1208, sem hann er sag\u00f0ur hafa ort \u00e1 sinni banastund. Hann \u00e1 enga hj\u00e1lp nema \u00ed Kristi.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Heyr, himna smi\u00f0ur,<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">hvers sk\u00e1ldi\u00f0 bi\u00f0ur,<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">komi mj\u00fak til m\u00edn<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">miskunnin \u00fe\u00edn.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00dev\u00ed heit eg \u00e1 \u00feig,<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00fe\u00fa hefur skaptan mig,<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00e9g er \u00fer\u00e6llinn \u00feinn,<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00fe\u00fa ert Drottinn minn.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Gu\u00f0, heit eg \u00e1 \u00feig,<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">a\u00f0 gr\u00e6\u00f0ir mig,<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">minnst, mildingur, m\u00edn,<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">mest \u00feurfum \u00fe\u00edn.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Ry\u00f0 \u00fe\u00fa, r\u00f6\u00f0la gramur,<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">r\u00edklyndur og framur,<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">h\u00f6lds hverri sorg<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00far hjartaborg.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">G\u00e6t, mildingur, m\u00edn,<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">mest \u00feurfum \u00fe\u00edn<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">helzt hverja stund<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00e1 h\u00f6lda grund.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Set, meyjar m\u00f6gur,<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">m\u00e1ls efni f\u00f6gur,<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00f6ll er hj\u00e1lp af \u00fe\u00e9r,<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00ed hjarta m\u00e9r.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>Hva\u00f0 merkja or\u00f0in \u00ed s\u00e1lminum?<\/strong><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>\u00der\u00e6ll<\/strong> &#8211; \u00fej\u00f3nn e\u00f0a s\u00e1 sem Gu\u00f0 \u00e1.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>R\u00f6\u00f0la gramur<\/strong> &#8211; r\u00f6\u00f0ull merkir s\u00f3l og gramur er konungskenning, r\u00f6\u00f0la gramur er \u00fe\u00e1 konungur s\u00f3lnanna.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>Mildingur<\/strong> &#8211; s\u00e1 sem er g\u00f3\u00f0ur og mildur.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>Meyjar m\u00f6gur <\/strong>&#8211; s\u00e1 sem meyjan\/m\u00f3\u00f0irin Mar\u00eda elskar sbr. \u00e1stm\u00f6gur \u00fej\u00f3\u00f0ar er s\u00e1 sem \u00fej\u00f3\u00f0in elskar.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Gu\u00f0 blessi \u00feig sem hefur gefi\u00f0 \u00fe\u00e9r t\u00edma til a\u00f0 \u00edhuga sorgina me\u00f0 m\u00e9r.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">G\u00f3\u00f0ar stundir!<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Hvernig getum vi\u00f0 hj\u00e1lpa\u00f0 sorgm\u00e6ddum? Hva\u00f0 hj\u00e1lpar? Grein eftir \u00d6rn B\u00e1r\u00f0 J\u00f3nsson sem les. Upptakan 12:42 m\u00edn\u00fatur \u00ed hlustun. Ef texti greinar birtist ekki, smelltu \u00fe\u00e1 \u00e1 fyrirs\u00f6gnina efst.<\/p>\n","protected":false},"author":2,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_jetpack_newsletter_access":"","_jetpack_dont_email_post_to_subs":false,"_jetpack_newsletter_tier_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paywalled_content":false,"_jetpack_hide_featured_image":false,"_jetpack_featured_image_duplicate_dismissed":0,"_jetpack_feature_clip_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":"","jetpack_post_was_ever_published":false},"categories":[4],"tags":[134,243,261,545,584,613],"class_list":["post-6428","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-greinar-og-hugvekjur-articles","tag-daegurlog","tag-gud","tag-harmur","tag-salmar","tag-sorg","tag-syrgjendur"],"jetpack_sharing_enabled":true,"jetpack_featured_media_url":"","_links":{"self":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/6428","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/users\/2"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcomments&post=6428"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/6428\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fmedia&parent=6428"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcategories&post=6428"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Ftags&post=6428"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}