{"id":6390,"date":"2025-05-27T17:41:12","date_gmt":"2025-05-27T17:41:12","guid":{"rendered":"http:\/\/ornbardur.com\/2025\/05\/27\/hjortur-torfason\/"},"modified":"2025-05-27T17:41:12","modified_gmt":"2025-05-27T17:41:12","slug":"hjortur-torfason","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/ornbardur.com\/?p=6390","title":{"rendered":"+Hj\u00f6rtur Torfason"},"content":{"rendered":"\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00datf\u00f6r fr\u00e1 D\u00f3mkirkjunni 27. ma\u00ed 20205<\/p>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-image size-large\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"794\" height=\"1768\" src=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2025\/05\/img_3902-1.jpg?w=460\" alt=\"\" class=\"wp-image-6389\" \/><\/figure>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">R\u00e6\u00f0an er h\u00e9r ne\u00f0ar, b\u00e6\u00f0i texti og hlj\u00f3\u00f0upptaka. Kve\u00f0jur sem b\u00e1rust eru fyrir ne\u00f0an r\u00e6\u00f0una en ekki \u00e1 uppt\u00f6kunni.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Ritningartextar eru allra ne\u00f0st en \u00ed \u00feeim eru tr\u00faarleg stef og einnig l\u00f6gfr\u00e6\u00f0ileg.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Ef texti r\u00e6\u00f0unnar birtist ekki strax, smelli\u00f0 \u00fe\u00e1 \u00e1 nafni\u00f0 efst!<\/p>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-image size-large\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"2000\" height=\"1436\" src=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2025\/05\/img_3900-1.jpg?w=1024\" alt=\"\" class=\"wp-image-6387\" \/><\/figure>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-image size-large\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"2000\" height=\"1433\" src=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2025\/05\/img_3901-1.jpg?w=1024\" alt=\"\" class=\"wp-image-6388\" \/><\/figure>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-audio\"><audio controls src=\"https:\/\/pub-c849b6aaf98340c4bec7b480b0f7ffe9.r2.dev\/2025\/05\/hjortur-torfason-1935-2025-2.m4a\"><\/audio><\/figure>\n\n\n\n<!--more-->\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00d6rn B\u00e1r\u00f0ur J\u00f3nsson<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Minningaror\u00f0<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>+Hj\u00f6rtur Torfason<\/strong><br \/>fv. H\u00e6star\u00e9ttard\u00f3mari<br \/>1935-2025<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00datf\u00f6r fr\u00e1 D\u00f3mkirkjunni \u00ed Reykjav\u00edk<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00feri\u00f0judaginn 27. ma\u00ed 2025 kl. 15<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">&#8220;Kirkjan \u00f3mar \u00f6ll&#8221;, segir \u00ed g\u00f6mlum j\u00f3las\u00e1lmi og v\u00edst er a\u00f0 h\u00e9r er flutt f\u00f6gur t\u00f3nlist \u00far \u00fdmsum \u00e1ttum, enda var Hj\u00f6rtur Torfason mikill \u00e1hugama\u00f0ur um t\u00f3nlist og menningu.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">T\u00f3nlist er magna\u00f0 fyrirbrig\u00f0i. J\u00f6r\u00f0in er eini sta\u00f0urinn \u00ed alheiminum \u00fear sem hlj\u00f3\u00f0 berst innan gufuhvolfs, eini sta\u00f0urinn sem hefur r\u00e9tt skilyr\u00f0i fyrir t\u00f3nlist og menn og m\u00e1lleysingja me\u00f0 eyru og heyrn.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">L\u00edfi\u00f0 er undur og \u00feessi heimur okkar er d\u00e1samlegur og vonandi tort\u00edmir mannkyn ekki \u00feessari jar\u00f0nesku parad\u00eds.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hj\u00f6rtur f\u00e6ddist \u00e1 \u00cdsafir\u00f0i 19. september 1935. Foreldrar hans voru Torfi Hjartarson, s\u00fdsluma\u00f0ur og b\u00e6jarf\u00f3geti \u00e1 \u00cdsafir\u00f0i og s\u00ed\u00f0ar tollstj\u00f3ri \u00ed Reykjav\u00edk og s\u00e1ttasemjari r\u00edkisins, og Anna J\u00f3nsd\u00f3ttir, h\u00fasfreyja \u00e1 \u00cdsafir\u00f0i og \u00ed Reykjav\u00edk. Systkini Hjartar eru \u00feau Ragnhei\u00f0ur, fyrrverandi rektor Menntask\u00f3lans \u00ed Reykjav\u00edk, n\u00fdl\u00e1tin (f\u00e6dd 1937 og d\u00e1in 2025), Sigr\u00fan, skrifstofuma\u00f0ur \u00ed Toronto, l\u00e1tin (f\u00e6dd 1938 og d\u00e1in 1992) og Helga S\u00f3ley, hj\u00fakrunarfr\u00e6\u00f0ingur og lj\u00f3sm\u00f3\u00f0ir, (f\u00e6dd 1951).<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hj\u00f6rtur var\u00f0 st\u00fadent fr\u00e1 Menntask\u00f3lanum \u00ed Reykjav\u00edk 1954 og lauk l\u00f6gfr\u00e6\u00f0ipr\u00f3fi fr\u00e1 H\u00e1sk\u00f3la \u00cdslands 1960. Hann var vi\u00f0 framhaldsn\u00e1m vi\u00f0 Toronto-h\u00e1sk\u00f3la \u00ed Kanada fr\u00e1 1961 til 1963.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Eftirlifandi eiginkona Hjartar er Nanna \u00deorl\u00e1ksd\u00f3ttir, fyrrverandi hj\u00fakrunarritari, f\u00e6dd 1935. \u00deau kynntust \u00ed Menntask\u00f3lanum \u00ed Reykjav\u00edk og \u00e1ttu samlei\u00f0 \u00ed 70 \u00e1r. \u00deau gengu \u00ed hj\u00f3naband \u00e1ri\u00f0 1958. B\u00f6rn Hjartar og N\u00f6nnu eru \u00feau Torfi, f\u00e6ddur 1961, Logi, f\u00e6ddur 1962 og Margr\u00e9t Helga, f\u00e6dd 1968. Geta m\u00e1 \u00feess a\u00f0 \u00feau Nanna misstu fyrsta barn sem f\u00e6ddist andvana 1959 og reyndi \u00fea\u00f0 miki\u00f0 \u00e1 \u00feau en \u00fejappa\u00f0i ungu hj\u00f3num saman um lei\u00f0. Eiginkona Torfa er Svand\u00eds og b\u00f6rn \u00feeirra Oddur og Au\u00f0ur \u00c1str\u00e1\u00f0sb\u00f6rn og Tumi og Una, eiginkona Loga var Ragnhei\u00f0ur Dr\u00edfa og b\u00f6rn hennar Dagbj\u00f6rt og Bj\u00f6rgvin, eiginma\u00f0ur Margr\u00e9tar er Ing\u00f3lfur og synir \u00feeirra, Hj\u00f6rtur, Nj\u00f6r\u00f0ur og B\u00f6rkur.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Geta m\u00e1 \u00feess a\u00f0 Hj\u00f6rtur og sonur hans Logi eiga sama f\u00e6\u00f0ingardag og \u00fatf\u00f6r Hjartar er ger\u00f0 \u00e1 afm\u00e6lisdegi Torfa. Til hamingju Torfi! &#8211; og til hamingju me\u00f0 l\u00edfi\u00f0, fj\u00f6lskyldan \u00f6ll!<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c1 bernsku\u00e1rum Hjartar bj\u00f3 \u00e1 heimilinu, Helga J\u00f3nasd\u00f3ttir \u00far Skagafir\u00f0i (f. 1881, d. 1965). H\u00fan kom \u00e1 heimili m\u00f3\u00f0ur Hjartar eftir a\u00f0 amma hans, S\u00f3ley l\u00e9st ung \u00far berklum. H\u00fan var jafnan k\u00f6llu\u00f0 F\u00f3stra og var \u00e1 heimili Torfa og \u00d6nnu alla t\u00ed\u00f0 \u00fear til h\u00fan f\u00f3r \u00e1 elliheimili. H\u00fan var \u00f3gift og barnlaus, hristi stundum h\u00f6fu\u00f0i\u00f0 yfir fj\u00f6rlegu heimilinu og sag\u00f0i \u00fe\u00e1 gjarnan: \u00deetta er vitlaust f\u00f3lk! Hj\u00f6rtur og systur hans voru b\u00f6rnin hennar, l\u00edf og yndi. Hj\u00f6rtur naut mikils \u00e1str\u00edkis, ekki bara einnar heldur tveggja kvenna \u00e1 heimilinu a\u00f0 \u00f3gleymdum systrunum \u00feremur. Sigr\u00fan systir hans kom til Hjartar og N\u00f6nnu \u00e1 n\u00e1ms\u00e1rum hans \u00ed Kanada og festi \u00fear r\u00e6tur en samband \u00feeirra systkina allra var \u00e6t\u00ed\u00f0 n\u00e1i\u00f0.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00cd uppvexti og \u00e1 n\u00e1ms\u00e1rum h\u00e9r reyndi Hj\u00f6rtur margt, var til d\u00e6mis \u00ed sveit vi\u00f0 \u00cdsafjar\u00f0ardj\u00fap, vann sumarlangt \u00e1 eynni M\u00f6n, f\u00e9kkst vi\u00f0 steypuvinnu og m\u00farbrot me\u00f0 loftpressu \u00e1 Keflav\u00edkurflugvelli, var h\u00e1seti \u00e1 togaranum J\u00f3ni forseta og veiddi hval. Nanna sag\u00f0i stundum a\u00f0 hann hef\u00f0i \u00e1tt a\u00f0 ver\u00f0a sj\u00f3ari e\u00f0a jafnvel v\u00edsnas\u00f6ngvari og flytja \u00edrsku l\u00f6gin \u00ed st\u00edl Clancy Brothers og Tommy Makem sem voru \u00ed miklu upp\u00e1haldi hj\u00e1 honum. Yngra f\u00f3lk \u00ed fj\u00f6lskyldunni talar l\u00edka um hvernig hann f\u00e6r\u00f0i heim pl\u00f6tur me\u00f0 alls konar v\u00edsnat\u00f3nlist og \u00e1hugaver\u00f0u t\u00f3nlistarf\u00f3lki \u00far \u00f3tal vinnufer\u00f0um til Evr\u00f3pulanda og Amer\u00edku.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hj\u00f6rtur starfa\u00f0i vi\u00f0 l\u00f6gmennsku n\u00e6r \u00f3sliti\u00f0 \u00ed \u00ferj\u00e1 \u00e1ratugi og vann \u00fe\u00e1 miki\u00f0 fyrir r\u00edkisstj\u00f3rn og Landsvirkjun a\u00f0 \u00e1byrg\u00f0armiklum verkefnum tengdum virkjanaframkv\u00e6mdum og st\u00f3ri\u00f0ju auk almennra l\u00f6gfr\u00e6\u00f0istarfa fyrir fyrirt\u00e6ki og einstaklinga sem stundum t\u00f3ku miki\u00f0 af hans t\u00edma. \u00c1ri\u00f0 1990 var hann skipa\u00f0ur d\u00f3mari vi\u00f0 H\u00e6star\u00e9tt \u00cdslands en haf\u00f0i \u00e1\u00f0ur veri\u00f0 settur d\u00f3mari um nokkurra m\u00e1na\u00f0a skei\u00f0 \u00e1ri\u00f0 1988. Eftir a\u00f0 hann l\u00e9t af st\u00f6rfum sem d\u00f3mari vi\u00f0 65 \u00e1ra aldur starfa\u00f0i hann \u00e1fram vi\u00f0 l\u00f6gfr\u00e6\u00f0ir\u00e1\u00f0gj\u00f6f, einkum var\u00f0andi samninga ger\u00f0 fyrir Landsvirkjun. Hj\u00f6rtur var\u00f0 l\u00f6ggiltur skjala\u00fe\u00fd\u00f0andi \u00ed ensku 1968. \u00de\u00e1 sinnti Hj\u00f6rtur \u00fdmsum f\u00e9lags- og tr\u00fana\u00f0arst\u00f6rfum, til a\u00f0 mynda \u00ed yfir kj\u00f6rstj\u00f3rn Reykjav\u00edkur um \u00e1ratugaskei\u00f0, \u00ed stj\u00f3rn L\u00f6gmannaf\u00e9lags \u00cdslands og sem fastafulltr\u00fai \u00cdslands \u00ed Feneyjanefnd Evr\u00f3pur\u00e1\u00f0sins.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">T\u00f3nlist var hans yndi og lj\u00f3smyndun vi\u00f0 alls konar tilefni. Hann var\u00f0i m\u00f6rgum stundum \u00ed a\u00f0 flokka myndir og l\u00e1ta framkalla aukaeint\u00f6k til a\u00f0 gefa \u00e6ttingjum og vinum.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00deau skipti sem \u00e9g hitti Hj\u00f6rt, t\u00f6lu\u00f0um vi\u00f0 alltaf eitthva\u00f0 um \u00cdsafj\u00f6r\u00f0, en hann flutti \u00fea\u00f0an 7 e\u00f0a 8 \u00e1ra en mundi alla t\u00ed\u00f0 hverjir bjuggu \u00ed \u00f6llum h\u00fasum Hrannarg\u00f6tunnar \u00fear sem hann f\u00e6ddist. \u00deegar \u00cdsfir\u00f0ingar af hans kynsl\u00f3\u00f0 h\u00e9r sy\u00f0ra, voru jar\u00f0sungnir og \u00e9g s\u00e1 um ath\u00f6fn, \u00fe\u00e1 m\u00e6tti hann oft til a\u00f0 kve\u00f0ja, flottur \u00ed tauinu a\u00f0 vanda og me\u00f0 sitt einstaka bros og augun hl\u00fd. \u00cdsafj\u00f6r\u00f0ur fylgdi honum alla t\u00ed\u00f0 og \u00fea\u00f0 k\u00e6tti hann a\u00f0 sj\u00e1 barnab\u00f6rnin mynda \u00feanga\u00f0 tengsl.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">(N\u00e1nari uppl\u00fdsingar um \u00e6viferil Hjartar eru ne\u00f0anm\u00e1ls)<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">R\u00e6tur. Hva\u00f0an erum vi\u00f0 \u00feegar d\u00fdpst er sko\u00f0a\u00f0 og hvert f\u00f6rum vi\u00f0? Um \u00feetta hefur f\u00f3lk spurt um aldir og \u00e1r\u00fe\u00fasund. Sv\u00f6rin er helst a\u00f0 finna \u00ed listum og menningu, sk\u00e1ldin sj\u00e1 lengra en \u00f6ll v\u00edsindi, \u00feau geta flogi\u00f0 og s\u00e9\u00f0 hi\u00f0 \u00f3s\u00fdnilega, hi\u00f0 \u00f3skiljanlega, hi\u00f0 handanverandi. V\u00edddir l\u00edfsins eru mun fleiri en raunv\u00edsindin greina. Tr\u00fain er afl sem fylgt hefur mannkyni fr\u00e1 fyrstu t\u00ed\u00f0, h\u00e6fileikinn til a\u00f0 hugsa \u00fat fyrir boxi\u00f0, sj\u00e1 a\u00f0rar v\u00edddir og tilvist sem aldrei ver\u00f0ur s\u00f6nnu\u00f0, en lifir innra me\u00f0 okkur flestum \u00ed einhverri mynd. Um tr\u00fana gildir sama s\u00f6nnunarbyr\u00f0i og um \u00e1stina, fegur\u00f0ina og handanveruna alla. Vi\u00f0 sko\u00f0um allt \u00feetta st\u00f3ra og \u00f3r\u00e6\u00f0a me\u00f0 augun tr\u00faar og vonar &#8211; og me\u00f0 sk\u00e1ldskap og listsk\u00f6pun.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Vi\u00f0 eigum uppruna okkar \u00ed lj\u00f3sinu og sk\u00e1ldi\u00f0 sem rita\u00f0i sk\u00f6punars\u00f6guna \u00ed Bibl\u00edunni, sem \u00ed raun er lofgj\u00f6r\u00f0artexti e\u00f0a lj\u00f3\u00f0, en ekki v\u00edsindatexti, s\u00e1 fyrir s\u00e9r a\u00f0 lj\u00f3si\u00f0 v\u00e6ri upphaf alls l\u00edfs. Og \u00fea\u00f0 sta\u00f0festa v\u00edsindi s\u00ed\u00f0ari alda. Og Jes\u00fas \u00feekkti \u00feau sannindi og sag\u00f0i um okkur mannf\u00f3lki\u00f0: &#8220;\u00de\u00e9r eru\u00f0 lj\u00f3s heimsins&#8221;.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Lj\u00f3si\u00f0 s\u00e9st \u00ed augum okkar, \u00fear til \u00fea\u00f0 slokknar og hverfur. Lj\u00f3si\u00f0 er orka og skv. e\u00f0lisfr\u00e6\u00f0i \u00fe\u00e1 hverfur orka aldrei, h\u00fan breytist bara. Hva\u00f0 ver\u00f0ur \u00fe\u00e1 um lj\u00f3s augna okkar? Fer \u00fea\u00f0 aftur til uppsprettu sinnar? Hverfur l\u00edfi\u00f0 aftur til upphafsins? Og hva\u00f0 var \u00e1 undan \u00f6llu? Fer l\u00edf okkar \u00feanga\u00f0? Er \u00fea\u00f0 tr\u00fain ein sem veit \u00feetta \u00e1n \u00feess \u00fe\u00f3 a\u00f0 geta sanna\u00f0 \u00fea\u00f0? Ef vi\u00f0 g\u00e6tum sanna\u00f0 allar st\u00f3ru spurningarnar \u00fe\u00e1 yr\u00f0i tr\u00fain \u00f3\u00fe\u00f6rf. \u00cd allri Bibl\u00edunni, \u00feeirri miklu tr\u00faarb\u00f3k, er ein setning, eitt vers, sem skilgreinir tr\u00fana svohlj\u00f3\u00f0andi:<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">&#8220;Tr\u00fain er fullvissa um \u00fea\u00f0 sem menn vona, sannf\u00e6ring um \u00fe\u00e1 hluti sem eigi er au\u00f0i\u00f0 a\u00f0 sj\u00e1.&#8221; (Heb. 11.1)<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Snorri Hjartarson, f\u00f6\u00f0urbr\u00f3\u00f0ir Hjartar, tj\u00e1\u00f0i sig \u00ed lj\u00f3\u00f0inu M\u00e9r dvaldist of lengi.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">M\u00e9r dvaldist of lengi \u00fea\u00f0 dimmir af n\u00f3tt<br \/>haustkaldri n\u00f3tt \u00e1 hei\u00f0i.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c9g finn lynggr\u00f3na kvos vi\u00f0 l\u00e6kjardrag<br \/>og les saman sprek \u00ed eldinn<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">barnsm\u00e1 og hv\u00edt og brotgj\u00f6rn sprek.<br \/>Sj\u00e1 logarnir leika vi\u00f0 strauminn<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">r\u00edsa \u00far strengnum me\u00f0 r\u00f6dd hans og glit.<br \/>\u00d3 mannsbarn \u00e1 myrkri hei\u00f0i<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">sem villist \u00ed dimmunni vitja\u00f0u m\u00edn<br \/>vermdu \u00feig sn\u00f6ggvast vi\u00f0 eldinn<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">fylgdu svo l\u00e6knum lei\u00f0ina heim.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Um hva\u00f0 fjallar \u00feetta lj\u00f3\u00f0? Vi\u00f0 getum haft \u00e1 \u00fev\u00ed \u00f3l\u00edkar sko\u00f0anir. \u00cd \u00fev\u00ed fer\u00f0ast sk\u00e1ldi\u00f0 \u00ed dimmunni, en \u00fear er eldur sem logar og l\u00fdsir og l\u00e6kurinn sem lei\u00f0ir heim. Vi\u00f0 erum \u00f6ll \u00e1 lei\u00f0inni heim \u00fev\u00ed hei\u00f0in er bara gistista\u00f0ur, H\u00f3tel j\u00f6r\u00f0, eins og anna\u00f0 sk\u00e1ld \u00ed miklu upp\u00e1haldi hj\u00e1 N\u00f6nnu orti \u00e1 s\u00ednum t\u00edma.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hva\u00f0 vitum vi\u00f0? Hva\u00f0 skiljum vi\u00f0?<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Eitt er v\u00edst a\u00f0 hann Hj\u00f6rtur vissi margt og skildi \u00fdmislegt en \u00fe\u00f3 ekki allt fremur en a\u00f0rir. En hann var vel af Gu\u00f0i ger\u00f0ur; g\u00e1fa\u00f0ur, minnugur, vel lesinn, fr\u00f3\u00f0leiksf\u00fas, leitandi og spyrjandi alla t\u00ed\u00f0. Hann var s\u00edstarfandi og gegndi mikilv\u00e6gum hlutverkum \u00e1 l\u00edfslei\u00f0inni.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Oft var hann frumlegur \u00ed \u00feeim st\u00f6rfum og gjarn \u00e1 a\u00f0 skila s\u00e9ratkv\u00e6\u00f0i \u00ed d\u00f3mum, \u00fev\u00ed hann vildi v\u00edkka framsetningu r\u00e9ttarins og l\u00e1ta muna um sitt \u00e1lit og skilning \u00e1 hinu r\u00e9tta. Hann skila\u00f0i til a\u00f0 mynda s\u00e9ratkv\u00e6\u00f0i \u00ed kunnu m\u00e1li sem var\u00f0a\u00f0i kv\u00f3tann og benti \u00e1 hef\u00f0arr\u00e9tt sj\u00e1varbygg\u00f0a hringinn \u00ed kringum landi\u00f0.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00cd bla\u00f0avi\u00f0tali sag\u00f0i hann m.a. um s\u00e9ratkv\u00e6\u00f0i:<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Um s\u00e9ratkv\u00e6\u00f0in \u00e1tti \u00fea\u00f0 oftast vi\u00f0 a\u00f0 \u00e9g haf\u00f0i hreinlega a\u00f0ra sko\u00f0un \u00e1 l\u00f6gunum en f\u00e9lagar m\u00ednir &#8230; [&#8230;]<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Einu sinni haf\u00f0i hann \u00e1 or\u00f0i a\u00f0 l\u00f6gmenn og d\u00f3marar m\u00e6ttu stundum leggja minni \u00e1herslu \u00e1 l\u00f6gfr\u00e6\u00f0ina og meiri \u00e1 r\u00e9ttl\u00e6ti\u00f0. Hann li\u00f0sinnti stundum f\u00e9lagasamt\u00f6kum og t\u00f3k \u00fe\u00e1tt \u00ed a\u00f0 m\u00f3ta l\u00f6ggj\u00f6f fyrir tr\u00faf\u00e9l\u00f6g. En hi\u00f0 r\u00e9tta er n\u00fa l\u00edklega aldrei eins og eitt stykki smj\u00f6r, skilgreind st\u00e6r\u00f0, vegin og ver\u00f0l\u00f6g\u00f0, sem h\u00e6gt a\u00f0 s\u00e6kja \u00fat \u00ed b\u00fa\u00f0 og br\u00e1\u00f0nar \u00ed stofuhita. L\u00edfi\u00f0 er fl\u00f3knara en svo.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hann var fram \u00far h\u00f3fi vandvirkur, \u00e1tti \u00fea\u00f0 til a\u00f0 koma s\u00e9r seint a\u00f0 verki og var stundum seinn \u00e1 sta\u00f0i \u00fear sem hans var v\u00e6nst. Og \u00feessi gl\u00edma vi\u00f0 t\u00edmann t\u00f3k stundum miki\u00f0 \u00e1 N\u00f6nnu sem \u00feurfti oft a\u00f0 byrsta sig til a\u00f0 f\u00e1 hann til a\u00f0 m\u00e6ta \u00e1 r\u00e9ttum t\u00edma. Segja m\u00e1 a\u00f0 \u00feegar \u00feau, b\u00e6\u00f0i MR-ingar, ur\u00f0u \u00e1stfangin, hafi tv\u00f6 st\u00f3rveldi gert me\u00f0 s\u00e9r bandalag og \u00feegar tv\u00e6r blokkir m\u00e6tast \u00fe\u00e1 getur hrikt \u00ed. Svo \u00e1ttu \u00feau b\u00e6\u00f0i r\u00e6tur til \u00cdsafjar\u00f0ar og \u00fear er n\u00fa yfirleitt tala\u00f0 hreint \u00fat &#8211; en hvorugt tamdi s\u00e9r \u00fe\u00f3 vestfirzka frambur\u00f0inn!<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Um samband \u00feeirra haf\u00f0i tengdad\u00f3ttir \u00feeirra \u00feessi or\u00f0:<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">&#8220;Hj\u00f6rtur og Nanna \u00e1ttu n\u00e6r sj\u00f6t\u00edu \u00e1ra samlei\u00f0. Samband \u00feeirra var marglaga og m\u00f3ta\u00f0 af trygg\u00f0, samveru og \u00feeirri d\u00fdpt sem fylgir l\u00f6ngu l\u00edfi saman \u2013 me\u00f0 lj\u00f3si og skuggum, hl\u00fdju og l\u00edfskrafti sem alltaf tengdi \u00feau \u00ed gegnum \u00e1r og \u00e1ratugi. Heimili \u00feeirra var mi\u00f0ja \u00ed l\u00edfi margra um \u00e1ratuga skei\u00f0.&#8221;<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">T\u00edminn sem eiginlega er ekki unnt a\u00f0 skilja e\u00f0a skilgreina og landn\u00e1msmenn skiptu honum \u00ed \u00ferennt, Ur\u00f0i, Ver\u00f0andi og Skuld. Hi\u00f0 li\u00f0na er \u00feegar or\u00f0i\u00f0 og \u00fev\u00ed fari\u00f0. Og andr\u00e1in, Ver\u00f0andin, er mj\u00f3rri en f\u00ednasta h\u00e1r og vart m\u00e6lanleg og svo kemur Skuldin. Vi\u00f0 skuldum framt\u00ed\u00f0ina e\u00f0a h\u00f6fum skyldur gagnvart henni. N\u00f3g um t\u00edmann a\u00f0 sinni, en segja m\u00e1 a\u00f0 \u00fea\u00f0 hlj\u00f3ti a\u00f0 vera viss l\u00e9ttir fyrir Hj\u00f6rt, a\u00f0 komast inn \u00ed eil\u00edf\u00f0ina, \u00fear sem t\u00edminn er ekki lengur, engar klukkur tifa!<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">T\u00f3nlist og t\u00edmi eru h\u00e1\u00f0 hvort \u00f6\u00f0ru, \u00fev\u00ed t\u00f3nlistin er meira og minna leikur a\u00f0 t\u00f3num \u00ed t\u00edma og takti og \u00fear voru eyru Hjartar n\u00e6m og nutu fegur\u00f0arinnar og oft n\u00e1\u00f0i t\u00f3nlistin svo til hjartans a\u00f0 honum v\u00f6kna\u00f0i um augu.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hj\u00f6rtur las alla t\u00ed\u00f0 miki\u00f0 og kunni margt. Hann var vel ger\u00f0ur ma\u00f0ur en langt \u00ed fr\u00e1 gallalaus, enda mundi sl\u00edkt f\u00f3lk hvort sem er ekki \u00fer\u00edfast \u00ed mannheimum, \u00fev\u00ed \u00fe\u00e1 mundi samhengi\u00f0 ri\u00f0last algj\u00f6rlega.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hann var velkomi\u00f0 barn, kotroskinn og flj\u00f3tur til m\u00e1ls og greip \u00e1 lofti \u00fdmislegt sem hann heyr\u00f0i og gat l\u00e1ti\u00f0 \u00fea\u00f0 flj\u00faga \u00e1 fullor\u00f0na \u00e1n tilefnis eins og \u00feegar hann lyfti mj\u00f3lkurglasi barnungur og sag\u00f0i stundarh\u00e1tt vi\u00f0 gestkomandi konu: &#8220;Sk\u00e1l, gamli refur!&#8221;<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">F\u00f6\u00f0urbr\u00e6\u00f0ur hans tveir, sk\u00e1ldi\u00f0 Snorri og sagnfr\u00e6\u00f0ingurinn \u00c1sgeir, voru um t\u00edma \u00e1 \u00cdsafir\u00f0i og \u00c1sgeir haf\u00f0i me\u00f0 s\u00e9r myndskreytta b\u00f3k um s\u00f6gu og s\u00f6gufr\u00e6gar pers\u00f3nur. Ein \u00feeirra var landk\u00f6nnu\u00f0urinn Mikkelsen. Snorri \u00e1tti k\u00e6rustu og var me\u00f0 henni \u00ed g\u00f3\u00f0u ve\u00f0ri utan vi\u00f0 b\u00e6inn \u00feegar hann s\u00e1 Hj\u00f6rt litla, l\u00edklega \u00e1 fj\u00f3r\u00f0a \u00e1ri, tr\u00edtla me\u00f0 b\u00f3kina undir hendinni \u00e1 lei\u00f0 \u00fat \u00ed Hn\u00edfsdal. &#8220;Hvert ertu a\u00f0 fara?&#8221; spur\u00f0i sk\u00e1ldi\u00f0 &#8211; og svari\u00f0 l\u00e9t ekki \u00e1 s\u00e9r standa: &#8220;\u00c9g \u00e6tla a\u00f0 s\u00fdna honum Mikkelsen \u00fat \u00ed hafsauga.&#8221;<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Go\u00f0afr\u00e6\u00f0in st\u00f3\u00f0 l\u00edka Hirti n\u00e6rri og \u00fear var Akkilles \u00ed h\u00e1vegum. S\u00fa pers\u00f3na er \u00feekkt um ver\u00f6ld v\u00ed\u00f0a fyrir sinn veika h\u00e6l og er okkur \u00f6llum \u00e1minning um eigin skafanka og varnarleysi. Hver er Akkilesarh\u00e6ll \u00feinn og minn?<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hj\u00f6rtur var stemningsma\u00f0ur, hrifn\u00e6mur og t\u00e1ra\u00f0ist oft yfir g\u00f3\u00f0ri t\u00f3nlist og kvikmyndum. Hann reyndist m\u00f6rgum vel sem l\u00f6gma\u00f0ur og gleymdi gjarnan a\u00f0 rukka f\u00f3lk og s\u00e9rstaklega sem hann haf\u00f0i sam\u00fa\u00f0 me\u00f0 og \u00fea\u00f0 er mikilv\u00e6gt a\u00f0 f\u00f3lk \u00ed g\u00f3\u00f0um st\u00f6\u00f0um og h\u00e1um emb\u00e6ttum tapi aldrei tilfinningunni fyrir f\u00f3lki \u00ed ney\u00f0 og \u00feeim sem h\u00f6llum f\u00e6ti standa. Hann var rausnarlegur um flest, en gat veri\u00f0 fastheldinn \u00e1 \u00fea\u00f0 sem honum var k\u00e6rt. Hann kom gjarnan f\u00e6randi hendi fr\u00e1 \u00fatl\u00f6ndum og gladdi konu s\u00edna og b\u00f6rn.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hann var heimsma\u00f0ur og \u00f3lst upp vi\u00f0 a\u00f0 nj\u00f3ta lj\u00fafra veiga sem foreldrar veittu gestum og gangandi, gle\u00f0ima\u00f0ur og hr\u00f3kur alls fagna\u00f0ar sem elska\u00f0i s\u00f6ng og b\u00f3kmenntir og gat slegi\u00f0 \u00e1 l\u00e9tta strengi \u00ed g\u00f3\u00f0ra vina h\u00f3pi en v\u00edndrykkjan gat l\u00edka haft s\u00ednar skuggahli\u00f0ar eins og vi\u00f0 \u00feekkjum \u00f6ll.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">MR-h\u00f3parnir \u00feeirra hj\u00f3na, st\u00fadentar 1954 og 55 voru \u00feeim afar k\u00e6rir. Hj\u00f6rtur var \u00e1ri \u00e1 undan N\u00f6nnu, haf\u00f0i hlaupi\u00f0 yfir bekki \u00ed Gagnfr\u00e6\u00f0ask\u00f3la Austurb\u00e6jar og fannst \u00fea\u00f0 erfitt. \u00deau Nanna voru \u00ed s\u00f6mu stofu \u00ed MR og Nanna segist hafa s\u00e9\u00f0 hann fyrst \u00feegar hann kom feimnislegur inn \u00ed stelpubekkinn a\u00f0 s\u00e6kja leikfimif\u00f6tin s\u00edn sem hann geymdi \u00ed kennarabor\u00f0inu! \u00deau hj\u00f3nin hafa \u00e1tt samlei\u00f0 \u00ed 70 \u00e1r og gott betur.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c1ri\u00f0 1961 flutti fj\u00f6lskyldan til Toronto \u00ed Kanada \u00fear sem Hj\u00f6rtur stunda\u00f0i framhaldsn\u00e1m og vann jafnframt \u00e1 l\u00f6gmannsstofu \u00ed borginni. Nanna segir \u00feessi \u00e1r hafi veri\u00f0 g\u00f3\u00f0. Hann skrifa\u00f0i pr\u00f3fritger\u00f0 s\u00edna \u00e1 ensku og var alla t\u00ed\u00f0 vel m\u00e6ltur \u00e1 \u00feeirri tungu, haf\u00f0i b\u00e6tt vi\u00f0 sig fr\u00f6nsku og lat\u00ednan \u00far MR og H\u00e1sk\u00f3lanum var honum \u00e6t\u00ed\u00f0 k\u00e6r. Enskukunn\u00e1ttan og \u00feekking \u00e1 f\u00e9lagar\u00e9tti f\u00e6r\u00f0i honum m\u00f6rg verkefni \u00ed hendur. M\u00e1lkennd hans \u00e1 m\u00f3\u00f0urm\u00e1linu og ensku var r\u00edk, enda var hann vel lesinn og Sturlunga var ofarlega \u00e1 vins\u00e6ldalistanum. Hann var mikill textama\u00f0ur og kunni \u00fe\u00e1 list a\u00f0 beita m\u00e1linu, sem er mikilv\u00e6g g\u00e1fa \u00ed vi\u00f0leitni manna til a\u00f0 tj\u00e1 hugsun s\u00edna \u00ed tali e\u00f0a ritu\u00f0um texta. Hann var s\u00e9r \u00feess me\u00f0vitandi a\u00f0 mikilv\u00e6gt v\u00e6ri a\u00f0 sty\u00f0ja sko\u00f0anir s\u00ednar me\u00f0 g\u00f3\u00f0um r\u00f6kum og sk\u00fdru m\u00e1lfari.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">M\u00e1lfar og tj\u00e1ning skipta m\u00e1li. &#8220;Cogito ergo sum&#8221; &#8211; \u00e9g hugsa \u00feess vegna er \u00e9g, sag\u00f0i Descartes.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Vi\u00f0 erum \u00f6ll a\u00f0 \u00fej\u00f3na sama Herra me\u00f0 st\u00f6rfum okkar og b\u00f6rnin inna s\u00edna gu\u00f0s\u00fej\u00f3nustu af hendi, sag\u00f0i L\u00father, me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 leika s\u00e9r! Hj\u00f6rtur \u00e1tti \u00fea\u00f0 til a\u00f0 fresta hlutum og var oft seinn me\u00f0 skattframtali\u00f0 og fyrr var minnt \u00e1 gleymsku hans a\u00f0 rukka, sj\u00e1lfur s\u00fdslumannssonurinn!<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hj\u00f6rtur var oftar en ekki upptekinn vi\u00f0 s\u00edns st\u00f6rf og Nanna s\u00e1 um b\u00f6rnin en \u00feau eiga g\u00f3\u00f0ar minningar um d\u00fdrm\u00e6tar stundir me\u00f0 pabba sem synti t.d. me\u00f0 \u00feau \u00f6ll \u00e1 bakinu \u00ed sundlaugum. Hann sv\u00e6f\u00f0i \u00feau oft og \u00fe\u00e1 greip hann gjarnan \u00ed g\u00edtarinn og s\u00f6ng. Oft var be\u00f0i\u00f0 um \u00f3skalag: &#8220;Manninn me\u00f0 svanina&#8221;. Og \u00fe\u00e1 raula\u00f0i hann Svanas\u00f6ng \u00e1 hei\u00f0i. Hann s\u00f6ng l\u00edka fyrir \u00feau \u00edrsk \u00fej\u00f3\u00f0l\u00f6g sem hann sneri \u00ed gamni \u00e1 \u00edslensku og l\u00e9t sn\u00faast um veru str\u00e1kanna \u00ed leiksk\u00f3lanum Tjarnarborg. Um systur \u00feeirra litlu s\u00f6ng hann hann b\u00edtlalag, &#8220;Obla di obla da, Margr\u00e9t Helga&#8221;. L\u00f6gin hans pabba sem hann s\u00f6ng \u00e1 \u00fatlensku og h\u00fan skildi ekki kalla\u00f0i h\u00fan &#8220;l\u00f6gfr\u00e6\u00f0ingal\u00f6gin&#8221;. L\u00f6ngu \u00e1\u00f0ur en myndas\u00f6gurnar um Asterix voru \u00fe\u00fdddar \u00e1 \u00edslensku las hann \u00fe\u00e6r fyrir b\u00f6rnin \u00far fr\u00f6nsku og \u00fe\u00fdddi jafn\u00f3\u00f0um.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">En \u00feegar hann sag\u00f0i eigin s\u00f6gur \u00e1tti hann \u00fea\u00f0 til a\u00f0 fara \u00ed sk\u00f3garfer\u00f0ir, full langar stundum en fann oftast lei\u00f0ina til baka a\u00f0 \u00fer\u00e6\u00f0inum og n\u00e1\u00f0i a\u00f0 kl\u00e1ra me\u00f0 st\u00e6l.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Einn vi\u00f0m\u00e6lenda minna sag\u00f0i a\u00f0 helsti gallinn hans Hjartar hafi veri\u00f0 s\u00e1 hva\u00f0 hann var g\u00f3\u00f0ur ma\u00f0ur! \u00dea\u00f0 er ekki \u00f3n\u00fdt einkunn.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hj\u00f6rtur \u00e1tti m\u00f6rg \u00e1hugam\u00e1l og fylgdist vel me\u00f0 enska boltanum og l\u00edka \u00feeim amer\u00edska eftir b\u00fasetuna \u00ed Kanada.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Barnab\u00f6rnin spila sum f\u00f3tbolta og Hj\u00f6rtur kom oft til a\u00f0 fylgjast me\u00f0. Hann m\u00e6tti stundum seint sem \u00e1horfandi, en \u00fe\u00e1 ger\u00f0ist \u00fea\u00f0 oft, a\u00f0 li\u00f0inu hans og \u00fear me\u00f0 \u00feeirra, f\u00f3r a\u00f0 ganga betur!<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hj\u00f6rtur var l\u00edka duglegur a\u00f0 s\u00e6kja t\u00f3nleika barnabarnanna og ein hans s\u00ed\u00f0asta fer\u00f0 var me\u00f0 N\u00f6nnu \u00e1 s\u00f6ngleikinn Storm. M\u00f6rg eiga \u00feau l\u00edka minningar um t\u00f3nleikafer\u00f0ir me\u00f0 Hirti \u00fear sem hann var allra \u00e1horfenda \u00e1kafastur.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Nanna og Hj\u00f6rtur f\u00f3ru oft \u00ed leikh\u00fas me\u00f0 ungvi\u00f0i\u00f0 e\u00f0a \u00e1 \u00f3perur og b\u00f6rnin og barnab\u00f6rnin komust vel upp\u00e1 brag\u00f0i\u00f0. Hann kynnti N\u00f6nnu fyrir \u00f3perunnni Cavalleria Rusticana en Intermezz\u00f3i\u00f0, sem h\u00e9r var leiki\u00f0 \u00ed upphafi athafnar, var honum afar k\u00e6rt. H\u00e6gt var a\u00f0 fletta upp \u00ed honum um allt sem tengdist \u00f3perum og Verdi og Wagner voru hans menn.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hann var \u00e1n efa vins\u00e6ll t\u00f3nleikagestur, s\u00e9rstaklega hj\u00e1 s\u00f6ngvurum sem oft fengu h\u00e1tt og snjallt &#8220;brav\u00f3&#8221; fr\u00e1 stemningsmanninum. Hann fylgdist me\u00f0 \u00edslenskum s\u00f6ngvurum af \u00e1huga, hringdi \u00ed \u00fe\u00e1 og \u00feakka\u00f0i fyrir t\u00f3nleika. Flest sumarfr\u00ed \u00feeirra hj\u00f3na voru prj\u00f3nu\u00f0 \u00ed kringum \u00f3perus\u00fdningar me\u00f0 \u00edslenskum s\u00f6ngvurum \u00ed Evr\u00f3pu.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">&#8220;Hj\u00f6rtur haf\u00f0i \u00e6ti\u00f0 n\u00f3g a\u00f0 gera. H\u00e9r talar hann \u00ed vi\u00f0tali \u00ed fyrra:<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c9g keyr\u00f0i mig \u00ed h\u00e1lfgert \u00ferot fyrir tveimur \u00e1rum en vann fram a\u00f0 \u00fev\u00ed \u00e1 skrifstofu heima, a\u00f0allega \u00ed \u00fe\u00fd\u00f0ingum en var \u00fe\u00f3 sm\u00e1vegis \u00ed l\u00f6gfr\u00e6\u00f0ist\u00f6rfum. \u00c9g reyndi l\u00edka a\u00f0 fylgjast med st\u00f6rfum Feneyjanefndar Evr\u00f3pur\u00e1\u00f0sins (The Venice Commission) en \u00fear var \u00e9g fastafulltr\u00fai \u00cdslands \u00ed m\u00f6rg \u00e1r me\u00f0fram d\u00f3marast\u00f6rfunum og er enn varafulltr\u00fai. \u00c9g s\u00f3tti fj\u00f6lmarga fundi \u00ed Feneyjum og v\u00ed\u00f0a \u00ed l\u00f6ndum Austur-Evr\u00f3pu sem \u00feurftu a\u00f0sto\u00f0 vi\u00f0 a\u00f0 breyta l\u00f6gum \u00ed l\u00fd\u00f0r\u00e6\u00f0is\u00e1tt eftir fall Berl\u00ednarm\u00farsins. \u00c9g fylgdist me\u00f0 fjarfundum \u00e1 Covidt\u00edmanum og er n\u00fa \u00e1 lei\u00f0 til Feneyja \u00e1 j\u00fan\u00edfund nefndarinnar eftir langa fjarveru. \u00dea\u00f0 ver\u00f0ur gaman og gefandi a\u00f0 hitta aftur gamla f\u00e9laga og kynnast n\u00fdjum. \u00c6tli \u00e9g ver\u00f0i ekki aldursforseti \u00feessa fundar!&#8221;<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Feneyjanefndin var Hirti k\u00e6r og hann haf\u00f0i lagt \u00e1 \u00fea\u00f0 r\u00edka \u00e1herslu s\u00ed\u00f0ustu \u00e1rin a\u00f0 komast \u00e1 a.m.k. einn fund \u00ed vi\u00f0b\u00f3t eftir a\u00f0 hann h\u00e6tti sem a\u00f0alfulltr\u00fai \u00cdslands. Vegna heilsubrests var or\u00f0i\u00f0 tv\u00eds\u00fdnt a\u00f0 \u00fea\u00f0 t\u00e6kist, en \u00fea\u00f0 var\u00f0 sem betur fer \u00far, a\u00f0 Margr\u00e9t Helga og Ing\u00f3lfur, f\u00f3ru sem a\u00f0sto\u00f0armenn me\u00f0 Hirti til Feneyja \u00e1 j\u00fan\u00edfund nefndarinnar 2024 \u00fear sem hann hitti \u00fdmsa gamla f\u00e9laga og naut samfunda og hei\u00f0urs. \u00deeim var vel teki\u00f0 og var hi\u00f0 mesta \u00e6vint\u00fdri sem reyndist hinsta utanlandsfer\u00f0 Hjartar.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">H\u00e9r m\u00e6tti segja svo \u00f3tal margt anna\u00f0. Genginn er ma\u00f0ur sem f\u00e6ddist milli str\u00ed\u00f0a en eftir S\u00ed\u00f0ari heimsstyrj\u00f6ldina rofa\u00f0i til \u00ed heiminum og margt gott st\u00e6kka\u00f0i til muna og t\u00e6kif\u00e6ri ungs f\u00f3lks ur\u00f0u jafnvel eins og \u00ed \u00e6vint\u00fdrum samanbori\u00f0 vi\u00f0 kynsl\u00f3\u00f0 foreldra \u00feeirra.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00dei\u00f0 eigi\u00f0 \u00f6ll minningar um Hj\u00f6rt og \u00feegar grannt er sko\u00f0a\u00f0 \u00fe\u00e1 var hann margir menn eins og vi\u00f0 \u00f6ll erum margar manneskjur og fer \u00fea\u00f0 eftir \u00fev\u00ed hver horfir, hva\u00f0an og hven\u00e6r.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c1 skyrtubol sem m\u00e9r var gefinn er \u00feessi \u00e1letrun eftir \u00de\u00f3rarin Eldj\u00e1rn:<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>\u00c1horf<\/strong><\/p>\n\n\n\n<blockquote class=\"wp-block-quote is-layout-flow wp-block-quote-is-layout-flow\">\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Horfa ekki a\u00f0eins h\u00e9\u00f0an<br \/>heldur \u00fea\u00f0an.<br \/>Mikilv\u00e6gt \u00e1 me\u00f0an<br \/>a\u00f0 muna hva\u00f0an.<\/p>\n<\/blockquote>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">L\u00edfi\u00f0 er ekki kyrrst\u00e6tt, \u00fea\u00f0 er \u00e1 fleygifer\u00f0 og \u00ed \u00fev\u00ed er oftast framvinda en svo geta l\u00edka komi\u00f0 baksl\u00f6g eins og mig grunar a\u00f0 n\u00fa eigi s\u00e9r sta\u00f0 \u00e1 \u00fdmsum svi\u00f0um heimsm\u00e1la.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c9g hef oft vitna\u00f0 \u00ed borgarsk\u00e1ldi\u00f0, T\u00f3mas Gu\u00f0mundsson, sem var staddur \u00e1 \u00cdtal\u00edu for\u00f0um daga og s\u00e1 \u00fear f\u00f6ngulega konu r\u00edsa upp \u00far \u00f6ldunum eins og Venus. Hann orti um hana og endar lj\u00f3\u00f0i\u00f0 svo:<\/p>\n\n\n\n<blockquote class=\"wp-block-quote is-layout-flow wp-block-quote-is-layout-flow\">\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Og \u00fea\u00f0 er \u00e1 sl\u00edkum stundum, a\u00f0 ma\u00f0ur getur gert s\u00e9r eins grein fyrir \u00fev\u00ed og vert ert, a\u00f0 kynsl\u00f3\u00f0 vor hin eina kynsl\u00f3\u00f0 er, sem n\u00fdtur \u00feeirra hamingju a\u00f0 hafa ekki d\u00e1i\u00f0. Svo hjartanlega n\u00e1i\u00f0 er l\u00edfi\u00f0 okkur enn, sem betur fer.<\/p>\n<\/blockquote>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">J\u00e1, og n\u00fa tilheyrum vi\u00f0 einu kynsl\u00f3\u00f0 allrar veraldars\u00f6gunnar sem ekki er d\u00e1in. Er \u00fea\u00f0 ekki st\u00f3rt gle\u00f0iefni?<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Og er \u00fea\u00f0 ekki gle\u00f0iefni a\u00f0 geta kvatt mann sem loki\u00f0 hefur l\u00edfsstarfi s\u00ednu sem var miki\u00f0 a\u00f0 v\u00f6xtum og inntaki &#8211; og gert \u00fea\u00f0 \u00ed f\u00f6grum helgid\u00f3mi sem v\u00edg\u00f0ur er tr\u00fa, von og k\u00e6rleika og bo\u00f0skap Krists um r\u00e9ttl\u00e6ti og sannleika, n\u00e1\u00f0 og miskunn?<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Enginn hefur haft eins g\u00f3\u00f0 \u00e1hrif \u00e1 heiminn og Kristur, me\u00f0 s\u00ednu g\u00f3\u00f0a starfi, sem st\u00f3\u00f0 \u00fe\u00f3 \u00ed styttri t\u00edma en \u00fea\u00f0 hefur lengst af teki\u00f0 a\u00f0 ver\u00f0a st\u00fadent fr\u00e1 MR. \u00dev\u00edl\u00edk viska, sem honum hlotna\u00f0ist vi\u00f0 b\u00e6n og \u00edhugun \u00ed \u00f3bygg\u00f0um Landsins helga. \u00dear eiga s\u00e9r n\u00fa sta\u00f0 hr\u00e6\u00f0ilegir atbur\u00f0ir sem r\u00edfa \u00ed, hj\u00e1 \u00f6llum sem hafa gott hjartalag.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Gu\u00f0 blessi minningu Hjartar Torfasonar, og Gu\u00f0 blessi N\u00f6nnu, b\u00f6rn \u00feeirra, tengdab\u00f6rn og afkomendur, fr\u00e6ndgar\u00f0 og vini. Hann er h\u00e9r kvaddur af fj\u00f6lda \u00e1stvina og samfer\u00f0af\u00f3lki, me\u00f0 undurfagurri t\u00f3nlist og sk\u00e1ldlegum s\u00f6ngtextum og s\u00e1lmum.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Megi andi Krists um k\u00e6rleika, n\u00e1\u00f0 og miskunn, fyrirgefningu og r\u00e9ttl\u00e1tan d\u00f3m \u00e1 efsta degi, fylgja okkur \u00e1 l\u00edfsveginum me\u00f0 or\u00f0um fr\u00e6nda hins l\u00e1tna:<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00d3 mannsbarn \u00e1 myrkri hei\u00f0i<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">sem villist \u00ed dimmunni vitja\u00f0u m\u00edn<br \/>vermdu \u00feig sn\u00f6ggvast vi\u00f0 eldinn<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">fylgdu svo l\u00e6knum lei\u00f0ina heim.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Amen<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">&#8212;-<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">KVE\u00d0JUR:<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Kve\u00f0jur \u00feessar, sem geti\u00f0 ver\u00f0ur s\u00ed\u00f0ar \u00ed ath\u00f6fninni. \u00de\u00e6r ver\u00f0a birtar ne\u00f0anm\u00e1ls \u00e1 heimas\u00ed\u00f0u h\u00f6fundar: ornbardur.com<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Dr\u00edfa J\u00f3nsd\u00f3ttir, fr\u00e6nka N\u00f6nnu sem b\u00fdr i Ontario \u00ed Kanada sendir hl\u00fdjar kve\u00f0jur en Hj\u00f6rtur var a\u00f0 hennar \u00e1liti yndislegur ma\u00f0ur og grei\u00f0vikinn.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Arna Krist\u00edn Einarsd\u00f3ttir og Anna Karlsd\u00f3ttir, \u00e6skuvinkonur Margr\u00e9tar Helgu eru b\u00e1\u00f0ar staddar erlendis en senda fj\u00f6lskyldu og vinum innilegar sam\u00fa\u00f0arkve\u00f0jur vegna andl\u00e1ts Hjartar Torfasonar me\u00f0 \u00feakkl\u00e6ti fyrir a\u00f0 hafa fengi\u00f0 a\u00f0 vera vi\u00f0hengi og heimalningar \u00ed B\u00falandinu \u00ed gegnum \u00e6sku- og unglings\u00e1rin. Hj\u00f6rtur kenndi okkur me\u00f0al annars a\u00f0 hlusta \u00e1 \u00f3perur \u00ed botni. Honum til hei\u00f0urs munum vi\u00f0 blasta Pavarotti \u00ed Stokkh\u00f3lmi og Seoul og hugsa heim til ykkar allra.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">K\u00e6ra fj\u00f6lskylda okkur langar a\u00f0 votta ykkur okkar innilegustu og d\u00fdpstu sam\u00fa\u00f0arkve\u00f0jur. Hj\u00f6rtur var oft \u00ed huga okkar og ver\u00f0ur \u00fea\u00f0 \u00e6t\u00ed\u00f0. Hugheilar kve\u00f0jur, Ing\u00f3lfur og St\u00edna fr\u00e1 Hellulandi Stella Delli-Zuani, fr\u00e6nka Hjartar sem er erlendis, bi\u00f0ur fyrir \u00fe\u00f6kk og kve\u00f0ju til \u00e1stvina.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00de\u00e1 bi\u00f0ja Ingi S\u00f6rensen br\u00f3\u00f0ir N\u00f6nnu og kona hans Ellen \u00ed Virginia fyrir \u00fe\u00f6kk og hl\u00fdjar kve\u00f0jur.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>Ritningarlestrar<\/strong> vi\u00f0 \u00fatf\u00f6r Hjartar Torgasonar 27. ma\u00ed 2025:<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">1. lestur \u00far Speki Sal\u00f3mons 3.1 nn<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Von hinna r\u00e9ttl\u00e1tu<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">1 En s\u00e1lir r\u00e9ttl\u00e1tra eru \u00ed hendi Gu\u00f0s<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">og engin kv\u00f6l mun n\u00e1 til \u00feeirra.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">[&#8230;]<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">6 Eins og gull \u00ed deiglu reyndi hann \u00fe\u00e1<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">og t\u00f3k vi\u00f0 \u00feeim sem brennif\u00f3rnargj\u00f6f.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">[&#8230;]<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">8 \u00deeir munu d\u00e6ma \u00fej\u00f3\u00f0irnar og drottna yfir l\u00fd\u00f0unum<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">og Drottinn mun ver\u00f0a konungur \u00feeirra a\u00f0 eil\u00edfu.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">9 \u00deeir sem treysta \u00e1 hann munu \u00feekkja sannleikann<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">og hinir tr\u00fau munu vera hj\u00e1 honum \u00ed k\u00e6rleika.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hann mun veita s\u00ednum heil\u00f6gu n\u00e1\u00f0 og miskunn<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">og vitja sinna \u00fatv\u00f6ldu.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">2. lestur: R\u00f3mverjabr\u00e9f P\u00e1ls postula 8.31-36<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">K\u00e6rleikur Gu\u00f0s \u00ed Kristi Jes\u00fa<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">31 Hva\u00f0 eigum vi\u00f0 \u00fe\u00e1 a\u00f0 segja vi\u00f0 \u00feessu? Ef Gu\u00f0 er me\u00f0 okkur hver er \u00fe\u00e1 \u00e1 m\u00f3ti okkur? 32 Hann sem \u00feyrmdi ekki s\u00ednum eigin syni heldur framseldi hann fyrir okkur \u00f6ll, hvort mundi hann ekki l\u00edka gefa okkur allt me\u00f0 honum? 33 Hver skyldi \u00e1saka Gu\u00f0s \u00fatv\u00f6ldu? \u00dea\u00f0 er Gu\u00f0 sem s\u00fdknar. 34 Hver sakfellir? Kristur Jes\u00fas er s\u00e1 sem d\u00e1inn er. Og meira en \u00fea\u00f0: Hann er upprisinn, hann er vi\u00f0 h\u00e6gri h\u00f6nd Gu\u00f0s og hann bi\u00f0ur fyrir okkur. 35 Hver mun gera okkur vi\u00f0skila vi\u00f0 k\u00e6rleika Krists?[ Mun \u00fej\u00e1ning geta \u00fea\u00f0 e\u00f0a \u00ferenging, ofs\u00f3kn, hungur e\u00f0a nekt, h\u00e1ski e\u00f0a sver\u00f0? 36 \u00dea\u00f0 er eins og rita\u00f0 er:<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00de\u00edn vegna er okkur dau\u00f0i b\u00fainn allan daginn<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">og vi\u00f0 metin sem sl\u00e1turf\u00e9.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><br \/>37 Nei, \u00ed \u00f6llu \u00feessu vinnum vi\u00f0 fyllsta sigur \u00ed krafti hans sem elska\u00f0i okkur. 38 \u00dev\u00ed a\u00f0 \u00e9g er \u00feess fullviss a\u00f0 hvorki dau\u00f0i n\u00e9 l\u00edf, englar n\u00e9 tignir, hvorki hi\u00f0 yfirstandandi n\u00e9 hi\u00f0 \u00f3komna, hvorki kraftar, 39 h\u00e6\u00f0 n\u00e9 d\u00fdpt n\u00e9 nokku\u00f0 anna\u00f0 skapa\u00f0 muni geta gert okkur vi\u00f0skila vi\u00f0 k\u00e6rleika Gu\u00f0s sem birtist \u00ed Kristi Jes\u00fa, Drottni vorum.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">3. Gu\u00f0spjall &#8211; \u00dar Fjallr\u00e6\u00f0unni Matt 5.38-48<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Veri\u00f0 fullkomin<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">38 \u00de\u00e9r hafi\u00f0 heyrt a\u00f0 sagt var: Auga fyrir auga og t\u00f6nn fyrir t\u00f6nn. 39 En \u00e9g segi y\u00f0ur: R\u00edsi\u00f0 ekki gegn \u00feeim sem gerir y\u00f0ur mein. Nei, sl\u00e1i einhver \u00feig \u00e1 h\u00e6gri kinn \u00fe\u00e1 bj\u00f3\u00f0 honum einnig hina. 40 Og vilji einhver \u00fereyta l\u00f6g vi\u00f0 \u00feig og hafa af \u00fe\u00e9r kyrtil \u00feinn gef honum eftir yfirh\u00f6fnina l\u00edka. 41 Og ney\u00f0i einhver \u00feig me\u00f0 s\u00e9r eina m\u00edlu \u00fe\u00e1 far me\u00f0 honum tv\u00e6r. 42 Gef \u00feeim sem bi\u00f0ur \u00feig og sn\u00fa ekki baki vi\u00f0 \u00feeim sem vill f\u00e1 l\u00e1n hj\u00e1 \u00fe\u00e9r.<br \/>43 \u00de\u00e9r hafi\u00f0 heyrt a\u00f0 sagt var: \u00de\u00fa skalt elska n\u00e1unga \u00feinn og hata \u00f3vin \u00feinn. 44 En \u00e9g segi y\u00f0ur: Elski\u00f0 \u00f3vini y\u00f0ar og bi\u00f0ji\u00f0 fyrir \u00feeim sem ofs\u00e6kja y\u00f0ur. 45 \u00deannig s\u00fdni\u00f0 \u00fe\u00e9r a\u00f0 \u00fe\u00e9r eru\u00f0 b\u00f6rn f\u00f6\u00f0ur y\u00f0ar \u00e1 himnum er l\u00e6tur s\u00f3l s\u00edna renna upp yfir vonda sem g\u00f3\u00f0a og rigna yfir r\u00e9ttl\u00e1ta sem rangl\u00e1ta. 46 \u00de\u00f3tt \u00fe\u00e9r elski\u00f0 \u00fe\u00e1 sem y\u00f0ur elska, hver laun eigi\u00f0 \u00fe\u00e9r fyrir \u00fea\u00f0? Gera ekki tollheimtumenn hi\u00f0 sama? 47 Og hva\u00f0 er \u00fea\u00f0 \u00fe\u00f3tt \u00fe\u00e9r heilsi\u00f0 br\u00e6\u00f0rum y\u00f0ar og systrum[ einum? \u00dea\u00f0 gera jafnvel hei\u00f0nir menn. 48 Veri\u00f0 \u00fev\u00ed fullkomin eins og fa\u00f0ir y\u00f0ar himneskur er fullkominn.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00datf\u00f6r fr\u00e1 D\u00f3mkirkjunni 27. ma\u00ed 20205 R\u00e6\u00f0an er h\u00e9r ne\u00f0ar, b\u00e6\u00f0i texti og hlj\u00f3\u00f0upptaka. Kve\u00f0jur sem b\u00e1rust eru fyrir ne\u00f0an r\u00e6\u00f0una en ekki \u00e1 uppt\u00f6kunni. Ritningartextar eru allra ne\u00f0st en \u00ed \u00feeim eru tr\u00faarleg stef og einnig l\u00f6gfr\u00e6\u00f0ileg. Ef texti r\u00e6\u00f0unnar birtist ekki strax, smelli\u00f0 \u00fe\u00e1 \u00e1 nafni\u00f0 efst!<\/p>\n","protected":false},"author":2,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_jetpack_newsletter_access":"","_jetpack_dont_email_post_to_subs":false,"_jetpack_newsletter_tier_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paywalled_content":false,"_jetpack_hide_featured_image":false,"_jetpack_featured_image_duplicate_dismissed":0,"_jetpack_feature_clip_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":"","jetpack_post_was_ever_published":false},"categories":[7],"tags":[243,246,333,409,390,557,548,602,640],"class_list":["post-6390","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-minningarord-eulogies","tag-gud","tag-gudfraedi","tag-jesus","tag-ljosid","tag-logfraedi","tag-sidferdi","tag-soknudur","tag-stjornmal","tag-tru"],"jetpack_sharing_enabled":true,"jetpack_featured_media_url":"","_links":{"self":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/6390","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/users\/2"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcomments&post=6390"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/6390\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fmedia&parent=6390"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcategories&post=6390"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Ftags&post=6390"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}