{"id":6378,"date":"2025-05-24T13:55:10","date_gmt":"2025-05-24T13:55:10","guid":{"rendered":"http:\/\/ornbardur.com\/2025\/05\/24\/einhlida-ja-og-nei\/"},"modified":"2025-05-24T13:55:10","modified_gmt":"2025-05-24T13:55:10","slug":"einhlida-ja-og-nei","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/ornbardur.com\/?p=6378","title":{"rendered":"Einhli\u00f0a? J\u00e1 og nei!"},"content":{"rendered":"\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>Umr\u00e6\u00f0ur og afsta\u00f0a \u00ed t\u00edma og r\u00fami<\/strong><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Viltu lesa? Viltu hlusta? Upptakan tekur r\u00famar 18 m\u00edn\u00fatur.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Ef greinin birtist ekki \u00f6ll skaltu smella \u00e1 heiti hennar.<\/p>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-image size-large\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"720\" height=\"740\" src=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2025\/05\/img_3892-1.jpg?w=720\" alt=\"\" class=\"wp-image-6377\" \/><figcaption class=\"wp-element-caption\">Eitt af margr\u00e6\u00f0um listaverkum eftir Escher<\/figcaption><\/figure>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-audio\"><audio controls src=\"https:\/\/pub-c849b6aaf98340c4bec7b480b0f7ffe9.r2.dev\/2025\/05\/einhlida-ja-og-nei-um-israel-og-palestinu.m4a\"><\/audio><\/figure>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>Andar og \u00e1hrif<\/strong><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00cd Bibl\u00edunni, \u00feeim mikla mannsl\u00edfsspegli, er sagt fr\u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 andar geti haft \u00e1hrif \u00e1 f\u00f3lk.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Til eru andar \u00ed ver\u00f6ldinni. \u00c9g hef kynnst \u00feeim b\u00e6\u00f0i g\u00f3\u00f0um og illum. Unnt er a\u00f0 skynja anda \u00ed einstaklingum og h\u00f3pum.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hjar\u00f0hugsun er hugtak sem Wikipedia skilgreinir t.d. me\u00f0 \u00feessu h\u00e6tti:<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">&#8220;H\u00f3phugsun er s\u00e1lfr\u00e6\u00f0ilegt fyrirb\u00e6ri sem \u00e1 s\u00e9r sta\u00f0 innan h\u00f3ps f\u00f3lks \u00fear sem l\u00f6ngunin til s\u00e1ttar e\u00f0a samr\u00e6mis \u00ed h\u00f3pnum lei\u00f0ir til \u00f3skynsamlegrar e\u00f0a \u00f3virkrar \u00e1kvar\u00f0anat\u00f6ku. Samheldni, e\u00f0a \u00fer\u00e1 eftir samheldni, \u00ed h\u00f3pi getur valdi\u00f0 tilhneigingu me\u00f0al me\u00f0lima hans til a\u00f0 koma s\u00e9r saman um afst\u00f6\u00f0u, hva\u00f0 sem \u00fea\u00f0 kostar. \u00deetta veldur \u00fev\u00ed a\u00f0 h\u00f3purinn l\u00e1gmarkar \u00e1t\u00f6k og n\u00e6r samst\u00f6\u00f0u\u00e1kv\u00f6r\u00f0un \u00e1n mikilv\u00e6gs mats.&#8221; (\u00de\u00fd\u00f0ing min \u00ed samvinnu vi\u00f0 G\u00fagglu)<\/p>\n\n\n\n<!--more-->\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Vi\u00f0 erum oft sem hjar\u00f0d\u00fdr, au\u00f0rekin \u00fat \u00ed allsskyns \u00f3f\u00e6rur.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>Neti\u00f0<\/strong><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Samf\u00e9lagsmi\u00f0lar og m\u00f6guleikinn til tj\u00e1ningar og dreifingar hugmynda hefur b\u00f3lgna\u00f0 \u00fat sem p\u00fakinn \u00e1 fj\u00f3sbitanum \u00ed s\u00f6gu S\u00e6mundar fr\u00f3\u00f0a.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Stundum byrjar hugmynd \u00ed huga okkar og er h\u00e6geldu\u00f0 af hj\u00f6r\u00f0inni og svo er hitinn h\u00e6kka\u00f0ur og hugmyndin or\u00f0in a\u00f0 heitu m\u00e1li, skylti teiknu\u00f0 og svo er fari\u00f0 \u00ed m\u00f3tm\u00e6lag\u00f6ngu.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Vi\u00f0 sj\u00e1um h\u00e6ttuna \u00e1 hjar\u00f0hugsun \u00ed fj\u00f6lmi\u00f0lum, einhli\u00f0a umfj\u00f6llum a.m.k. um sum m\u00e1lefni l\u00ed\u00f0andi stundar.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>R\u00edkis\u00fatvarpi\u00f0 &#8211; R\u00daV<\/strong><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">R\u00daV vir\u00f0ist m\u00e9r til a\u00f0 mynda vera yfirleitt mj\u00f6g einhli\u00f0a \u00ed umfj\u00f6llun sinni um m\u00e1lefni Palest\u00ednu.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Tek \u00fea\u00f0 sk\u00fdrt fram h\u00e9r a\u00f0 \u00e1t\u00f6kin \u00fear eru \u00ed m\u00ednum augum \u00feyngri en t\u00e1rum taki.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">En hvernig v\u00e6ri a\u00f0 sko\u00f0a m\u00e1li\u00f0 \u00ed st\u00e6rra samhengi? Er til m\u00e1l sem hefur a\u00f0eins eina hli\u00f0? \u00c1ttu kannski einhli\u00f0a mynt til a\u00f0 varpa me\u00f0 hlutkesti, sem gefur \u00fe\u00e9r \u00fear me\u00f0 \u00e6t\u00ed\u00f0 s\u00f6mu ni\u00f0urst\u00f6\u00f0u?<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hver fr\u00e9ttama\u00f0urinn \u00e1 f\u00e6tur \u00f6\u00f0rum st\u00edgur fram og a\u00f0 \u00fev\u00ed er vir\u00f0ist me\u00f0 s\u00f6mu einhli\u00f0a umfj\u00f6llunina. \u00c1litsgjafar \u00far f\u00e9lagsgreinum h\u00e1sk\u00f3lanna koma me\u00f0 s\u00ednar t\u00falkanir, sem eru meira e\u00f0a minna \u00e1 einn veg, enda eru \u00fe\u00e6r greinar \u00feekktar fyrir a\u00f0 vera einhli\u00f0a og me\u00f0 marx\u00edsku \u00edvafi b\u00e6\u00f0i vestan hafs og austan. S\u00f6mu gleraugun eru noti\u00f0 \u00e1 flest m\u00e1l ef ekki \u00f6ll. Og svo eru \u00fea\u00f0 W\u00f6ku-fr\u00e6\u00f0ingarnir, sem eru ofurn\u00e6mir fyrir \u00f6llum fr\u00e1vikum fr\u00e1 hugmyndum \u00feeirra sj\u00e1lfra og t\u00falkun \u00e1 ver\u00f6ldinni. W\u00f6kustaurarnir benda st\u00f6\u00f0ugt \u00e1 hitt og \u00feetta og heg\u00f0a s\u00e9r eins og \u00feeir s\u00e9u me\u00f0 ofsakl\u00e1\u00f0a og \u00fe\u00e1 er r\u00e9ttast a\u00f0 slaufa \u00f6\u00f0rum og halda s\u00e9r bara vi\u00f0 eigin h\u00f3p.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">M\u00e9r \u00feykir R\u00daV oftast vera &#8220;Gazalega hlutlaust&#8221; &#8211; e\u00f0a \u00feannig &#8211; \u00ed s\u00ednum fr\u00e9ttaflutningi. Fr\u00e9ttamenn geta t.d. hugsanlega veri\u00f0 skyldir e\u00f0a tengdir f\u00f3lki sem s\u00e9r a\u00f0eins eina hli\u00f0 \u00e1 \u00feessu m\u00e1li og kunna jafnvel a\u00f0 vera f\u00e9lagar \u00ed samt\u00f6kum um sl\u00edka afst\u00f6\u00f0u. Mega starfsmenn R\u00daV stunda \u00e1r\u00f3\u00f0ur \u00feegar \u00feeir lesa fr\u00e9ttir? Hvar er eftirlit me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 m\u00e1l s\u00e9u sett fram af yfirvegun og v\u00ed\u00f0s\u00fdni?<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Vita \u00feau ekki a\u00f0 Hamas er um allt \u00e1 Gaza, samt\u00f6kin fara um og leynast t.d. \u00ed merktum sj\u00fakrab\u00edlum, \u00e1 s\u00e9rv\u00f6ldum st\u00f6\u00f0um, sj\u00fakrah\u00fasum, sk\u00f3lum og \u00e6t\u00ed\u00f0 \u00ed skj\u00f3li borgara, sem \u00feeir skeyta engu um? Hamas er algj\u00f6rlega sama um \u00feetta f\u00f3lk, \u00fev\u00ed \u00feeir eru \u00ed herfer\u00f0 islam gegn Gy\u00f0ingum og \u00fe\u00e1 skal alla drepa og \u00feeim aldrei fyrirgefa og aldrei skal s\u00fdna \u00feeim neitt nema hatur.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hlusti\u00f0 \u00e1 tr\u00faralei\u00f0toga islam tala um &#8220;vantr\u00faa\u00f0a&#8221; sem allir eru r\u00e9ttdr\u00e6pir og \u00feessir vantr\u00fau\u00f0u \u00ed \u00feeirra augum eru allir sem ekki tr\u00faa \u00e1 Allah, sem sagt Gy\u00f0ingar, gu\u00f0lausir og l\u00edka vi\u00f0 sem erum kristin! \u00c9g hef hlusta\u00f0 \u00e1 uppt\u00f6kur tr\u00faarlei\u00f0toga islam tala me\u00f0 \u00feessum h\u00e6tti. \u00deeir beinl\u00ednis segja a\u00f0 m\u00faslimar eigir alls ekki a\u00f0 elska n\u00e1ungann, alls ekki \u00feau sem k\u00f6llu\u00f0 er &#8220;inf\u00eddels&#8221; &#8211; vantr\u00fau\u00f0. Vi\u00f0, hin vestr\u00e6nu, erum vantr\u00fau\u00f0 og \u00fear me\u00f0 r\u00e9ttdr\u00e6p \u00ed augun \u00f6fga islamista.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00deessi \u00e1t\u00f6k eru hr\u00e6\u00f0ileg, en afsta\u00f0a allt of margra er bygg\u00f0 \u00e1 takmarka\u00f0ri s\u00f6gu\u00feekkingu e\u00f0a hreinlega kolrangri s\u00f6gut\u00falkun.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00cdsrael er, \u00fer\u00e1tt fyrir \u00e1t\u00f6kin og framg\u00f6ngu s\u00edna, eina landi\u00f0 \u00ed Mi\u00f0-Austurl\u00f6ndum, \u00fear sem konur hafa sama r\u00e9tt og karlar. \u00dear r\u00edkir \u00feingbundi\u00f0 l\u00fd\u00f0r\u00e6\u00f0i. \u00dear er velmegun.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>Sv\u00e6\u00f0i\u00f0 heims\u00f3tt &#8211; Gy\u00f0ingar, m\u00faslimar og kristnir<\/strong><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c9g heims\u00f3tti \u00cdsrael og Palest\u00ednu 2023, f\u00f3r um og sko\u00f0a\u00f0i, s\u00e1 veggina sem skilja a\u00f0 Palest\u00ednumenn og a\u00f0ra \u00edb\u00faa, sko\u00f0a\u00f0i safn um r\u00f3tt\u00e6ka listsk\u00f6pun \u00e1 Gaza, sem \u00f6ll var til stu\u00f0nings Palest\u00ednu, hlusta\u00f0i \u00e1 m\u00faslimskan fr\u00e6\u00f0imann \u00ed einn og h\u00e1lfan t\u00edma, tala um islam og vanda \u00feeirrar tr\u00faar, hvernig K\u00f3raninn er misnota\u00f0ur me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 hann er gefinn \u00fat me\u00f0 t\u00falkunum sem eru prenta\u00f0ar ne\u00f0anm\u00e1ls og afvegalei\u00f0a f\u00f3lk. Hann berst fyrir \u00fev\u00ed a\u00f0 h\u00e6tt ver\u00f0i a\u00f0 prenta \u00feann skakka \u00e1r\u00f3\u00f0ur sem er a\u00f0 mestu fj\u00e1rmagna\u00f0ur af S\u00e1dum.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Annars m\u00e1 minna \u00e1 a\u00f0 M\u00fahame\u00f0 var \u00f3l\u00e6s og skrifandi og elstu textar K\u00f3ransins ur\u00f0u ekki til fyrr en um tv\u00f6hundru\u00f0 \u00e1rum eftir meinta tilvist hans. M\u00fahame\u00f0 blanda\u00f0i t.d. saman Miriam, systur M\u00f3se og Mar\u00edu m\u00f3\u00f0ur Jes\u00fa og vissi ekki a\u00f0 \u00e1 milli \u00feeirra tveggja voru ekki nema um 12-1300 \u00e1r!<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Elstu textar N\u00fdja testamentisins, voru hins vegar rita\u00f0i \u00e1 milli 50-70 +\/- e. Krist e\u00f0a me\u00f0an hann var enn \u00ed manna minnum. Beztu hlutar K\u00f3ransins eru textar kristinna &#8220;fr\u00e1villinga&#8221; sem yfirg\u00e1fu kristni \u00e1 4. \u00f6ld vegna \u00feess a\u00f0 \u00feeir vi\u00f0urkenndu ekki gu\u00f0d\u00f3m Krists. S\u00e1lmahef\u00f0 \u00feeirra rata\u00f0i inn i K\u00f3rarinn. Svo var M\u00fahamme\u00f0 \u00f6tull herforingi og margfaldur illvirki. Viltu bera hann saman vi\u00f0 Jes\u00fa? \u00dea\u00f0 er \u00f3gerningur \u00fev\u00ed \u00fear er engan samj\u00f6fnu\u00f0 a\u00f0 finna.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Islam er ekkert lamb a\u00f0 leika s\u00e9r vi\u00f0, en mikilv\u00e6gt er a\u00f0 greina \u00e1 milli <em>islam<\/em>, \u00fe.e. tr\u00faarkerfisins og <em>m\u00faslima<\/em> \u00fe.e.a.s. f\u00f3lksins. Eitt er a\u00f0 fara boltann \u00fe.e. a\u00f0 gagnr\u00fdna kenningarkerfi\u00f0, en hitt er svo a\u00f0 fara <strong>ekki <\/strong>\u00ed manninn sj\u00e1lfan, fylgjanda islam. Sama gildir um f\u00f3tboltann. Millj\u00f3nir m\u00faslima eru hi\u00f0 besta f\u00f3lk, en l\u00edti\u00f0 \u00fearf til a\u00f0 \u00fdfa upp \u00ed \u00feeim ofsa me\u00f0 vondum textum \u00far K\u00f3raninum. Islam hefur aldrei gengi\u00f0 \u00ed gegnum \u00fe\u00e1 h\u00f6r\u00f0u endursko\u00f0un sem kristnin hefur fari\u00f0 \u00ed gegnum \u00ed samtali vi\u00f0 strauma og stefnur \u00ed gu\u00f0fr\u00e6\u00f0i og heimspeki s.l. h\u00e1lft \u00e1r\u00fe\u00fasund e\u00f0a svo.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>A\u00f0 byggja br\u00fdr og brj\u00f3ta<\/strong><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00deegar \u00e9g \u00fej\u00f3na\u00f0i sem s\u00f3knarprestur \u00ed Nesprestakalli \u00ed Reykjav\u00edk (1989-2014) studdi \u00e9g vi\u00f0 \u00fea\u00f0 a\u00f0 efnt var til samtals milli m\u00faslima og kristinna \u00ed s\u00f6fnu\u00f0inum sem enn stendur yfir undir heitinu Horizon.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Gy\u00f0ingar berjast vi\u00f0 Hamas sem nota sitt eigi\u00f0 f\u00f3lk sem skj\u00f6ld og f\u00f3rnar \u00fev\u00ed miskunnarlaust \u00ed brj\u00e1lsemi og hatri. Hvers vegna gera n\u00e1grannar\u00edkin, m\u00faslimarnir miskunns\u00f6mu og g\u00f3\u00f0u <strong>EKKERT<\/strong> til a\u00f0 hj\u00e1lpa \u00feessu f\u00f3lki? Hvers vegna er Palest\u00ednuf\u00f3lkinu ekki hleypt yfir landam\u00e6rin og inn \u00ed &#8220;parad\u00edsir&#8221; islam? Hvar er matara\u00f0sto\u00f0in \u00feeirra?<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">A\u00f0 sj\u00e1lfs\u00f6g\u00f0u eigum vi\u00f0 a\u00f0 vir\u00f0a allt f\u00f3lk, \u00f3h\u00e1\u00f0 tr\u00fa, litarh\u00e6tti e\u00f0a kynhneig\u00f0, svo a\u00f0eins \u00ferj\u00e1r skilgreiningar s\u00e9u h\u00e9r nefndar.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Bo\u00f0 Jes\u00fa um a\u00f0 elska n\u00e1ungann er alt\u00e6kt en \u00fea\u00f0 n\u00e6r hins vegar <strong>ekki<\/strong> til sko\u00f0ana af hva\u00f0a tagi sem er. Hann tala\u00f0i sk\u00fdrt gegn villu og rangri tr\u00fa, en ydda\u00f0i s\u00ednar kenningar um elskuna til hins \u00fdtrasta. Jes\u00fas f\u00f3r \u00ed boltann en ekki manninn.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Au\u00f0vita\u00f0 er til gott f\u00f3lk allsta\u00f0ar, \u00f3h\u00e1\u00f0 tr\u00fa, litarh\u00e6tti e\u00f0a kynhneig\u00f0, en til eru allskonar hugmyndir um l\u00edfi\u00f0 og tilveruna og m\u00e9r hugnast sum hugmyndafr\u00e6\u00f0i engan veginn og leyfi m\u00e9r a\u00f0 tala gegn \u00f6llu sem m\u00e9r finnst krenkja l\u00edfi\u00f0 og fegur\u00f0 \u00feess.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c9g vil leitast vi\u00f0 a\u00f0 n\u00e1lgast m\u00e1l af yfirvegun og hlutleysi, en \u00fe\u00f3 \u00e1n \u00feess a\u00f0 vera &#8220;Gazalega-hlutlaus&#8221; eins og m\u00e9r finnst R\u00daV oftast vera \u00ed m\u00e1lefnum Palest\u00ednu.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Eftir a\u00f0 hafa sett inn tv\u00e6r f\u00e6rslur \u00e1 F\u00e9sb\u00f3kina um Palest\u00ednu, h\u00f3pa\u00f0ist a\u00f0 m\u00e9r f\u00f3lk sem vir\u00f0ist \u00fej\u00e1st af ofsakl\u00e1\u00f0a ef \u00e9g \u00fdja a\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 verja tilvist \u00cdsraels. Ef Palest\u00edna er gagnr\u00fdnd vegna \u00e1hrifa Hamas \u00fe\u00e1 g\u00fds sama ofn\u00e6mi\u00f0 upp. \u00c9g hef veri\u00f0 saka\u00f0ur um a\u00f0 hafa illan hug, ford\u00f3ma, f\u00e1fr\u00e6\u00f0i, veri\u00f0 nudda\u00f0 upp\u00far \u00fev\u00ed a\u00f0 vera <em>prestur<\/em> me\u00f0 \u00f3\u00e6skilegar sko\u00f0anir. R\u00e1\u00f0ist hefur veri\u00f0 a\u00f0 m\u00e9r eins og um v\u00e6ri a\u00f0 r\u00e6\u00f0a h\u00e6ttulega veiru. Hins vegar ver\u00f0 \u00e9g a\u00f0 geta \u00feess a\u00f0 fleiri l\u00e9tu s\u00e9r \u00fe\u00f3 l\u00edka f\u00e6rslur m\u00ednar en \u00feau sem \u00fdf\u00f0u fja\u00f0rirnar. \u00dea\u00f0 gladdi mig \u00ed \u00f6llu f\u00e1rinu og brj\u00e1l\u00e6\u00f0inu.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00cdsraelsher \u00e1 \u00ed str\u00ed\u00f0i vi\u00f0 Hamas sem eru samt\u00f6k heila\u00feveginna illvirkja sem sv\u00edfast einskis!<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00deau sem gagnr\u00fdna \u00cdsrael h\u00e6st og fara me\u00f0 mestu \u00fej\u00f3sti um g\u00f6tur og torg, vita \u00fe\u00f3 innst inni a\u00f0 hinn kristni heimur hefur samvisku og mann\u00fa\u00f0ar\u00feel \u00ed brj\u00f3sti s\u00e9r og \u00feess vegna er kalla\u00f0 eftir hj\u00e1lp \u00fea\u00f0an en ekki a\u00f0 handan \u00far hinu hugmyndakerfinu.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Ef um heimili mitt og fj\u00f6lskyldu s\u00e6tu brj\u00e1la\u00f0ir og \u00feungvopna\u00f0ir mor\u00f0ingjar islamista, \u00fe\u00e1 mundi \u00e9g vopnv\u00e6\u00f0ast, verjast og berjast til s\u00ed\u00f0asta bl\u00f3\u00f0dropa.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00cd n\u00fdlegri grein \u00ed Morgunbla\u00f0ninu eftir Indverjann, Rajan Parrikar, rafmagnsverkfr\u00e6\u00f0ing, um \u00fea\u00f0 hvernig islam t\u00f3k yfir Kasm\u00edr og eyddi fagurri menningu sem sta\u00f0i\u00f0 haf\u00f0i \u00ed um \u00ferj\u00fa \u00fe\u00fasund \u00e1r. Hann l\u00fdsir \u00fev\u00ed hvernig islam tort\u00edmir menningu. Mynstri\u00f0 sem islam beitir er alltaf hi\u00f0 sama. \u00c9g vara ykkur vi\u00f0: \u00deeir \u00e6tla s\u00e9r alla Evr\u00f3pu. \u00deessi grein er skyldulesning. Sj\u00e1 ne\u00f0anm\u00e1ls.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>Gy\u00f0ingahatur<\/strong><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Sama hva\u00f0 d\u00e6min eru m\u00f6rg sem \u00feeir nefna \u00fe\u00e1 eru \u00e1 \u00feeim \u00f6llum a.m.k. tv\u00e6r hli\u00f0ar.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Sko\u00f0um gy\u00f0ingahatri\u00f0.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Fyrsta <em>pogrom<\/em> veraldar var frami\u00f0 \u00ed R\u00fasslandi \u00e1 s\u00ednum t\u00edma.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><em>Pogrom<\/em> er r\u00fassneskt or\u00f0 sem \u00fe\u00fd\u00f0ir \u201ea\u00f0 valda usla, a\u00f0 r\u00edfa ni\u00f0ur me\u00f0 ofbeldi\u201c. S\u00f6gulega v\u00edsar hugtaki\u00f0 til ofbeldisfullra \u00e1r\u00e1sa \u00e1 Gy\u00f0inga \u00ed R\u00fassneska heimsveldinu og \u00ed \u00f6\u00f0rum l\u00f6ndum. Tali\u00f0 er a\u00f0 fyrsta sl\u00edka atviki\u00f0 sem kalla\u00f0 er <em>pogrom<\/em> hafi veri\u00f0 \u00f3eir\u00f0ir gegn Gy\u00f0ingum \u00ed \u00d3dessa \u00e1ri\u00f0 1821. Sem l\u00fdsandi hugtak var\u00f0 \u201epogrom\u201c almennt nota\u00f0 um v\u00ed\u00f0t\u00e6kar \u00f3eir\u00f0ir gegn Gy\u00f0ingum sem geisu\u00f0u um su\u00f0ur- og vesturh\u00e9ru\u00f0 R\u00fassneska heimsveldisins \u00e1 \u00e1runum 1881\u20131884, eftir mor\u00f0i\u00f0 \u00e1 Alexander II. keisara.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Gerendur <em>pogrom<\/em> skipul\u00f6g\u00f0u sig \u00e1 sta\u00f0num, stundum me\u00f0 hvatningu stj\u00f3rnvalda og l\u00f6greglu. \u00deeir nau\u00f0gu\u00f0u og myrtu gy\u00f0ingaf\u00f3rnarl\u00f6mb s\u00edn og r\u00e6ndu eignum \u00feeirra. \u00cd borgarastyrj\u00f6ldinni sem fylgdi bols\u00e9v\u00edkabyltingunni 1917, t\u00f3ku \u00fakra\u00ednskir \u00fej\u00f3\u00f0ernissinnar, p\u00f3lskir emb\u00e6ttismenn og hermenn Rau\u00f0a hersins \u00fe\u00e1tt \u00ed pogrom-l\u00edku ofbeldi \u00ed vesturhluta Hv\u00edta-R\u00fasslands (Hv\u00edta-R\u00fasslandi) og Galis\u00eduh\u00e9ra\u00f0i \u00ed P\u00f3llandi (n\u00fa Vestur-\u00dakra\u00ednu) og dr\u00e1pu tug\u00fe\u00fasundir Gy\u00f0inga \u00e1 milli 1918 og 1920.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Ef sl\u00f3\u00f0in birtist ekki smelltu \u00fe\u00e1 \u00e1 &#8220;t\u00f3mi\u00f0&#8221; innan svigans!<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">(https:\/\/encyclopedia.ushmm.org\/content\/en\/article\/pogroms)<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hatur gegn Gy\u00f0ingum er lj\u00f3tur blettur \u00e1 heimsbygg\u00f0inni og enn m\u00e1 skynja hugl\u00e6gt lyktina af gasi li\u00f0innar aldar sem drap millj\u00f3nir \u00feeirra.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Bandamenn r\u00e9\u00f0ust gegn Hitler og hans hyski og ur\u00f0u a\u00f0 f\u00f3rna \u00fe\u00fasundum saklausra \u00dej\u00f3\u00f0verja, sem h\u00f6f\u00f0u l\u00e1ti\u00f0 heila\u00fevo sig af nazismanum \u00e1 \u00e1runum fyrir str\u00ed\u00f0. Bandamenn misstu tugi \u00fe\u00fasunda hermanna. Var \u00fea\u00f0 str\u00ed\u00f0 til einskis? Hvernig \u00e1tti annars a\u00f0 r\u00e1\u00f0 ni\u00f0url\u00f6gum mor\u00f0\u00f3\u00f0ra mann me\u00f0 hugmyndafr\u00e6\u00f0i andskotans \u00ed h\u00f6f\u00f0i s\u00e9r?<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>Fri\u00f0ur og k\u00e6rleikur<\/strong><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Jes\u00fas Kristur bo\u00f0a\u00f0i fri\u00f0 og k\u00e6rleika, en hann var ekki \u00f3rauns\u00e6r kj\u00e1ni. Hann tala\u00f0i t\u00e6pitungulaust og ford\u00e6mdi dj\u00f6fulskap sinnar samt\u00ed\u00f0ar.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00deegar \u00e9g minnti \u00e1 a\u00f0 hry\u00f0juverka\u00e1r\u00e1s Hamas 7. okt\u00f3ber 2023 hef\u00f0i veri\u00f0 kveikjan a\u00f0 atbur\u00f0arr\u00e1sinni sem n\u00fa stendur yfir, \u00fe\u00e1 ri\u00f0u menn fram \u00e1 v\u00f6llinn sem hugumst\u00f3rir riddarara og d\u00e6mdu mig vanvita og illa innr\u00e6ttan mann og komu me\u00f0 \u00f3tal d\u00e6mi um a\u00f0 \u00feessi e\u00f0a hinn atbur\u00f0urinn hafi veri\u00f0 hin raunverulega kveikja e\u00f0a ors\u00f6k alls \u00f3fri\u00f0ar \u00e1 sv\u00e6\u00f0inu.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">A\u00f0 rekja upp sl\u00edkan prj\u00f3naskap skilar engu af s\u00e9r nema endalausum lopa.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">T\u00f6lum um samt\u00edmann!<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00cdsrael stafar \u00f3gn af islam og \u00feeir eru unkringdir m\u00faslimum allt um kring. L\u00f6ndin \u00feau voru \u00f6ll kristin fyrir h\u00e1lfu \u00e1r\u00fe\u00fasundi e\u00f0a \u00fear um bil.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hin kristna menning hefur veri\u00f0 \u00feurrku\u00f0 \u00fat \u00ed \u00feessum l\u00f6ndum og henni gj\u00f6reytt af islam.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>Sj\u00f3narhorni\u00f0 skiptir mestu<\/strong><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Sem \u00e9g lauk \u00feessum skrifum var\u00f0 m\u00e9r liti\u00f0 \u00ed spegil og \u00e1 \u00e1letrun \u00e1 bolnum sem m\u00e9r var gefin me\u00f0 texta eftir \u00de\u00f3rarinn Eldj\u00e1rn, segir:<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><em>\u00c1horf<\/em><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><em>Horfa ekki a\u00f0eins h\u00e9\u00f0an<\/em><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><em>heldur \u00fea\u00f0an.<\/em><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><em>Mikilv\u00e6gt \u00e1 me\u00f0an<\/em><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><em>a\u00f0 muna hva\u00f0an.<\/em><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Einhli\u00f0a? J\u00e1 og nei! er yfirskrift \u00feessa texta. Mikilv\u00e6gt er a\u00f0 horfa b\u00e6\u00f0i h\u00e9\u00f0an og \u00fea\u00f0an en taka s\u00ed\u00f0an afst\u00f6\u00f0u. Og \u00fe\u00e1 ver\u00f0ur afsta\u00f0an oftast einhli\u00f0a, en h\u00fan byggir samt \u00e1 marghli\u00f0a athugun. Menn velja og hafna.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Heimspekingurinn Gottlieb Lessing (1729-1781) r\u00e6ddi um mikilv\u00e6gi \u00feess a\u00f0 leita sannleikans. Hann \u00edmynda\u00f0i s\u00e9r a\u00f0 hann st\u00e6\u00f0i frammi fyrir Gu\u00f0i sem r\u00e9tti \u00fat hendur s\u00ednar og \u00ed annarri v\u00e6ri sannleikurinn sj\u00e1lfur en \u00ed hinni leitin a\u00f0 sannleikanum. \u00de\u00e1 mundi Lessing velja leitina a\u00f0 sannleikanum \u00fev\u00ed h\u00fan v\u00e6ri d\u00fdrm\u00e6tari og meira \u00feroskandi en a\u00f0 eignast hann.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c9g veit <em>hva\u00f0an<\/em> \u00e9g horfi &#8211; fr\u00e1 Vestri &#8211; og \u00feeim gildum &#8211; sem \u00fear hafa veri\u00f0 \u00fer\u00f3u\u00f0 \u00e1 li\u00f0num \u00f6ldum og geti\u00f0 af s\u00e9r m\u00f6rg af bestu samf\u00e9l\u00f6gum veraldar.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Gleymum ekki hva\u00f0an vi\u00f0 komum og horfum, einmitt \u00fea\u00f0an, sem frelsi og fegur\u00f0 r\u00edkir, k\u00e6rleikur og sannleikur.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00deegar vi\u00f0 vitum hva\u00f0an vi\u00f0 komum \u00fe\u00e1 ver\u00f0ur okkur lj\u00f3st hvert stefna skal.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>Or\u00f0 Jes\u00fa<\/strong><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Lestu svo h\u00e6gt og r\u00f3lega \u00feennan texta Jes\u00fa \u00far Fjallr\u00e6\u00f0unni.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Anda\u00f0u dj\u00fap \u00ed gegnum nefi\u00f0 og svo skaltu \u00edhuga \u00feessi m\u00f6gnu\u00f0u or\u00f0:<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Bi\u00f0ji\u00f0, leiti\u00f0<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">7 Bi\u00f0ji\u00f0 og y\u00f0ur mun gefast, leiti\u00f0 og \u00fe\u00e9r munu\u00f0 finna, kn\u00fdi\u00f0 \u00e1 og fyrir y\u00f0ur mun upp loki\u00f0 ver\u00f0a. 8 \u00dev\u00ed a\u00f0 hver s\u00e1 \u00f6\u00f0last sem bi\u00f0ur, s\u00e1 finnur sem leitar, og fyrir \u00feeim sem \u00e1 kn\u00fdr mun upp loki\u00f0 ver\u00f0a. 9 E\u00f0a hver er s\u00e1 ma\u00f0ur me\u00f0al y\u00f0ar sem gefur barni s\u00ednu[ stein er \u00fea\u00f0 bi\u00f0ur um brau\u00f0? 10 E\u00f0a h\u00f6ggorm \u00feegar \u00fea\u00f0 bi\u00f0ur um fisk? 11 Fyrst \u00fe\u00e9r sem eru\u00f0 vond hafi\u00f0 vit \u00e1 a\u00f0 gefa b\u00f6rnum y\u00f0ar g\u00f3\u00f0ar gjafir, hve miklu fremur mun \u00fe\u00e1 fa\u00f0ir y\u00f0ar \u00e1 himnum gefa \u00feeim g\u00f3\u00f0ar gjafir sem bi\u00f0ja hann?<br \/>12 Allt sem \u00fe\u00e9r vilji\u00f0 a\u00f0 a\u00f0rir menn geri y\u00f0ur, \u00fea\u00f0 skulu\u00f0 \u00fe\u00e9r og \u00feeim gera. \u00dev\u00ed a\u00f0 \u00feetta er l\u00f6gm\u00e1li\u00f0 og sp\u00e1mennirnir.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00der\u00f6ngt hli\u00f0<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">13 Gangi\u00f0 inn um \u00fer\u00f6nga hli\u00f0i\u00f0. \u00dev\u00ed a\u00f0 v\u00edtt er hli\u00f0i\u00f0 og vegurinn brei\u00f0ur sem liggur til gl\u00f6tunar og margir \u00feeir sem \u00fear fara inn. 14 Hve \u00fer\u00f6ngt er \u00fea\u00f0 hli\u00f0 og mj\u00f3r s\u00e1 vegur er liggur til l\u00edfsins og f\u00e1ir \u00feeir sem finna hann.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Af \u00e1v\u00f6xtum \u00feeirra<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">15 Varist falssp\u00e1menn. \u00deeir koma til y\u00f0ar \u00ed sau\u00f0akl\u00e6\u00f0um en innra eru \u00feeir gr\u00e1\u00f0ugir vargar. 16 Af \u00e1v\u00f6xtum \u00feeirra skulu\u00f0 \u00fe\u00e9r \u00feekkja \u00fe\u00e1. Hvort lesa menn v\u00ednber af \u00feyrnum e\u00f0a f\u00edkjur af \u00feistlum? 17 \u00deannig ber s\u00e9rhvert gott tr\u00e9 g\u00f3\u00f0a \u00e1v\u00f6xtu en sl\u00e6mt tr\u00e9 vonda. 18 Gott tr\u00e9 getur ekki bori\u00f0 vonda \u00e1v\u00f6xtu, ekki heldur sl\u00e6mt tr\u00e9 g\u00f3\u00f0a \u00e1v\u00f6xtu. 19 Hvert \u00fea\u00f0 tr\u00e9, sem ber ekki g\u00f3\u00f0an \u00e1v\u00f6xt, ver\u00f0ur upp h\u00f6ggvi\u00f0 og \u00fev\u00ed \u00ed eld kasta\u00f0. 20 Af \u00e1v\u00f6xtum \u00feeirra skulu\u00f0 \u00fe\u00e9r \u00fev\u00ed \u00feekkja \u00fe\u00e1.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">&#8212;<\/p>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-image size-large\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"2000\" height=\"905\" src=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2025\/05\/img_3863-1.jpg?w=1024\" alt=\"\" class=\"wp-image-6375\" \/><figcaption class=\"wp-element-caption\">Athyglisver\u00f0 grein sem vi\u00f0 \u00feurfum \u00f6ll a\u00f0 lesa!<\/figcaption><\/figure>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Bendi svo \u00e1 grein fr\u00e1 \u00fev\u00ed \u00ed jan\u00faar \u00e1 \u00feessu \u00e1ri, sem \u00e9g birt \u00e1 heimas\u00ed\u00f0u minn:<\/p>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-embed is-type-wp-embed is-provider-rn-b-r-ur-j-nsson-and-quot-bard-art-quot wp-block-embed-rn-b-r-ur-j-nsson-and-quot-bard-art-quot\"><div class=\"wp-block-embed__wrapper\">\nhttp:\/\/localhost:8081\/2025\/01\/21\/af-maurathufum-og-marxisma\/\n<\/div><\/figure>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Umr\u00e6\u00f0ur og afsta\u00f0a \u00ed t\u00edma og r\u00fami Viltu lesa? Viltu hlusta? Upptakan tekur r\u00famar 18 m\u00edn\u00fatur. Ef greinin birtist ekki \u00f6ll skaltu smella \u00e1 heiti hennar. Andar og \u00e1hrif \u00cd Bibl\u00edunni, \u00feeim mikla mannsl\u00edfsspegli, er sagt fr\u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 andar geti haft \u00e1hrif \u00e1 f\u00f3lk. Til eru andar \u00ed ver\u00f6ldinni. \u00c9g hef kynnst \u00feeim b\u00e6\u00f0i [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":2,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_jetpack_newsletter_access":"","_jetpack_dont_email_post_to_subs":false,"_jetpack_newsletter_tier_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paywalled_content":false,"_jetpack_hide_featured_image":false,"_jetpack_featured_image_duplicate_dismissed":0,"_jetpack_feature_clip_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":"","jetpack_post_was_ever_published":false},"categories":[4],"tags":[166,243,246,291,326,49,333,495,518,640],"class_list":["post-6378","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-greinar-og-hugvekjur-articles","tag-elska","tag-gud","tag-gudfraedi","tag-heimurinn","tag-islam","tag-israel","tag-jesus","tag-palestina","tag-rettlaeti","tag-tru"],"jetpack_sharing_enabled":true,"jetpack_featured_media_url":"","_links":{"self":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/6378","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/users\/2"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcomments&post=6378"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/6378\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fmedia&parent=6378"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcategories&post=6378"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Ftags&post=6378"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}