{"id":6350,"date":"2025-05-16T18:58:20","date_gmt":"2025-05-16T18:58:20","guid":{"rendered":"http:\/\/ornbardur.com\/2025\/05\/16\/hrafn-bragason\/"},"modified":"2025-05-16T18:58:20","modified_gmt":"2025-05-16T18:58:20","slug":"hrafn-bragason","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/ornbardur.com\/?p=6350","title":{"rendered":"+Hrafn Bragason"},"content":{"rendered":"\n<p class=\"wp-block-paragraph\">1938-2025<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">fv. h\u00e6star\u00e9ttard\u00f3mari<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Viltu lesa og\/e\u00f0a hlusta? Smelltu \u00e1 nafni\u00f0 efst og \u00fe\u00e1 opnast allt.<\/p>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-image size-large\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"2000\" height=\"1433\" src=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2025\/05\/re-salmaskra-hrafn-bragason-utfor-fra-neskirkju-fostudaginn-16.-mai-kl.-15.png?w=1024\" alt=\"\" class=\"wp-image-6348\" \/><\/figure>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-image size-large\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"2000\" height=\"1438\" src=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2025\/05\/img_3849-1.jpg?w=1024\" alt=\"\" class=\"wp-image-6347\" \/><\/figure>\n\n\n\n<!--more-->\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00d6rn B\u00e1r\u00f0ur J\u00f3nsson<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Minningaror\u00f0<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>+Hrafn Bragason<\/strong><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">fv. h\u00e6star\u00e9ttard\u00f3mari<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">B\u00e1lf\u00f6r fr\u00e1 Neskirkju<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">f\u00f6studaginn 16. ma\u00ed kl. 15<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Upptaka \u00e1 r\u00e6\u00f0unni er h\u00e9r fyrir ne\u00f0an og enn ne\u00f0ar upptaka \u00e1 lestri lj\u00f3\u00f0a\u00fe\u00fd\u00f0ingar f\u00f6\u00f0ur Hrafns.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>Ritningarlestur<\/strong><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Fyrra Korintubr\u00e9f 13. 1-13 &#8211; \u00d3\u00f0urinn um k\u00e6rleikann<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>Gu\u00f0spjall<\/strong><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Matteus 5.1-16 &#8211; Upphaf Fjallr\u00e6\u00f0u Jes\u00fa<\/p>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-audio\"><audio controls src=\"https:\/\/pub-c849b6aaf98340c4bec7b480b0f7ffe9.r2.dev\/2025\/05\/hrafn-bragason-1938-2025-1.m4a\"><\/audio><\/figure>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Fri\u00f0ur Gu\u00f0s s\u00e9 me\u00f0 okkur.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u201eSannleiks\u00e1st og r\u00e9ttl\u00e6tistilfinning<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">eru&nbsp;eitt og hi\u00f0 sama.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Tv\u00e6r greinar \u00e1&nbsp;einum stofni.&#8221;<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Svo m\u00e6lti, Sigurj\u00f3n Fri\u00f0j\u00f3nsson, afi Hrafns, \u00ed riti s\u00ednu, Skriftam\u00e1l einsetumannsins.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Leit mannkyns a\u00f0 merkingu l\u00edfsins hefur sta\u00f0i\u00f0 yfir lengi og hugt\u00f6kin sem Sigurj\u00f3n birti \u00ed s\u00ednum texta eru grundvallarhugt\u00f6kin r\u00e9ttl\u00e6ti og sannleikur. \u00deessi hugt\u00f6k eru ekki eins og s\u00fdni \u00ed hillu \u00e1 ranns\u00f3knarstofu heldur eru \u00feau einskonar frummyndir \u00ed anda Plat\u00f3ns, eil\u00edf og handanverandi. Hlutverk mannkyns er a\u00f0 kallast \u00e1 vi\u00f0 \u00feessi hugt\u00f6k og reyna a\u00f0 skilja \u00feau og raungera \u00ed \u00feeirri ver\u00f6ld sem mannf\u00f3lki\u00f0 b\u00fdr \u00ed. Og hugt\u00f6kin er n\u00e1skyld eins segir \u00ed Skriftam\u00e1lum einsetumannsins, \u00feau eru greinar \u00e1 sama stofni.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Vi\u00f0 erum menn og eitt af \u00fev\u00ed sem einkennir mannkyn og greinir fr\u00e1 \u00f6\u00f0rum spend\u00fdrum, er a\u00f0 ma\u00f0urinn getur komi\u00f0 hugsun sinni fr\u00e1 s\u00e9r, \u00fat \u00far h\u00f6f\u00f0inu og sett \u00ed \u00e1\u00fereifanlegt form, meitla\u00f0 \u00ed stein e\u00f0a rita\u00f0 \u00e1 bla\u00f0, dreift og var\u00f0veitt ef svo ber undir.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Fyrir \u00feremur \u00e1rum fundu \u00edsraelskir fornleifafr\u00e6\u00f0ingar kamb \u00far beini \u00ed Tel Lachish \u00ed SV-\u00cdsrael sem er um 3.700 \u00e1ra gamall og ber l\u00edklega elstu \u00feekktu heilu setninguna \u00e1 kanversku ritm\u00e1li. \u00c1letrunin inniheldur 17 stafi og setningin hlj\u00f3\u00f0ar svo: \u201eMegi \u00feessi kambur uppr\u00e6ta l\u00fasina \u00far h\u00e1ri m\u00ednu og skeggi.\u201c<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">S\u00e9rfr\u00e6\u00f0ingar segja a\u00f0 uppg\u00f6tvunin varpi n\u00fdju lj\u00f3si \u00e1 eina af fyrstu notkun mannkynsins \u00e1 stafr\u00f3fi me\u00f0 lausum st\u00f6fum, sem fundi\u00f0 var upp um 1800 f.Kr. og er grundv\u00f6llur allra s\u00ed\u00f0ari stafr\u00f3fskerfa, svo sem hebresku, arab\u00edsku, gr\u00edsku, latnesku og k\u00fdrill\u00edsku. Og \u00fear me\u00f0 er b\u00fai\u00f0 a\u00f0 finna r\u00e6tur okkar \u00edslenska stafr\u00f3fs.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Stafr\u00f3fi\u00f0 er merkileg uppfinning, sem gerir f\u00f3lki kleift a\u00f0 koma hugsuninni fr\u00e1 s\u00e9r \u00e1 hlutl\u00e6gan h\u00e1tt. Og af \u00fev\u00ed eru sprottin \u00f6nnur merkileg verk mannsandans, svo sem prentlistin, \u00fatvarp, sj\u00f3nvarp, t\u00f6lvur og n\u00fa gervigreindin, sem F\u00e6reyingar kalla vitl\u00edki.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Allar \u00feessar byltingar hafa gefi\u00f0 f\u00f3lki aukna m\u00f6guleika \u00e1 a\u00f0 tj\u00e1 sig og var\u00f0veita og jafnframt a\u00f0 dreifa hugsun sinni. \u00cd raun er enginn e\u00f0lismunur \u00e1 \u00feessum byltingum, \u00fe\u00e6r nota a\u00f0eins \u00f3l\u00edka t\u00e6kni.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Minnst var \u00e1 gervigreind. En hva\u00f0 er greind eiginlega? \u00cd or\u00f0ab\u00f3k segir: \u201eh\u00e6fileiki til a\u00f0 afla s\u00e9r vitneskju, skilja samhengi \u00f3l\u00edkra fyrirb\u00e6ra, greina m\u00e1lefnin og hugsa \u00f3hlutbundi\u00f0\u201c.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Gervigreind er ekkert merkilegri en stafr\u00f3fi\u00f0 e\u00f0a prentlistin, \u00fatvarp e\u00f0a sj\u00f3nvarp, t\u00f6lva e\u00f0a fars\u00edmi. H\u00fan er bara n\u00fdrri t\u00e6kni sem opnar a\u00f0rar v\u00edddir eins og allar hinar eldri greindir ger\u00f0u og gera enn. En \u00f6ll t\u00e6kni til tj\u00e1ningar, allt fr\u00e1 stafr\u00f3fi til gervigreindar, er unnt a\u00f0 nota til g\u00f3\u00f0s e\u00f0a ills og um \u00fea\u00f0 fjallar t.d. sagan um Adam og Evu \u00ed Edensgar\u00f0i \u00ed samskiptum s\u00ednum vi\u00f0 l\u00edfi\u00f0 og freistingar \u00feess \u00fear sem freistingarnar eru settar fram af h\u00f6ggormi me\u00f0 klofna tungu. S\u00fa saga er s\u00fdndarveruleiki, listaverk rith\u00f6fundar, spegill, sem v\u00edsar til raunveruleikans og sannleikans um okkur sj\u00e1lf og birtir okkur dj\u00fapa s\u00fdn \u00e1 vanda allra manna.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Textinn \u00far Skriftam\u00e1lum einsetumannsins er tj\u00e1ning og \u00fear er myndl\u00edking um greinar \u00e1 tr\u00e9. Menningin m\u00e1lar myndir, me\u00f0 or\u00f0um e\u00f0a litum og breg\u00f0ur \u00feannig upp speglum sem vi\u00f0 horfum \u00ed og \u00far ver\u00f0ur n\u00fd hugsun og t\u00falkun og svo framvegis. Tr\u00faarb\u00f3kin \u00e1 altari kirkjunnar er safn texta og l\u00edkinga um l\u00edfi\u00f0 og er \u00fev\u00ed b\u00f3kmenntaverk sem sl\u00edk, ritu\u00f0 af m\u00f6nnum, rit\u00f6fundum. Mannl\u00edfi\u00f0 gengur \u00fat \u00e1 \u00fea\u00f0 a\u00f0 skiptast \u00e1 or\u00f0um, hugt\u00f6kum og myndum, lifa \u00ed samf\u00e9lagi me\u00f0 \u00f6\u00f0ru f\u00f3lki, sty\u00f0ja og vera studd, hl\u00e6gja og gr\u00e1ta saman.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Og \u00ed \u00feessu samhengi \u00fe\u00e1 sprettur fram l\u00f6gfr\u00e6\u00f0ileg spurning \u00ed huga m\u00e9r og \u00e9g tel mig vita svari\u00f0. Heyrst hafa raddir um a\u00f0 banna eigi gervigreind. Hef\u00f0u fyrri t\u00ed\u00f0ar kynsl\u00f3\u00f0ir \u00e1tt a\u00f0 banna stafr\u00f3fi\u00f0 og alla a\u00f0ra t\u00e6kni sem kom \u00ed kj\u00f6fari\u00f0, vegna \u00feess a\u00f0 unnt v\u00e6ri a\u00f0 misnota t\u00e6knina? Au\u00f0vita\u00f0 ekki, en vi\u00f0 ver\u00f0um a\u00f0 l\u00e6ra a\u00f0 umgangast hana og l\u00e1ta hana ekki brengla okkur og brj\u00e1la.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Or\u00f0 afa Hrafns, sem fyrr er vitna\u00f0 til, eru \u00ed raun gervigreind sem til er \u00e1 bla\u00f0i, hugsun forf\u00f6\u00f0ur, sem kom henni fr\u00e1 s\u00e9r me\u00f0 hlutl\u00e6gum h\u00e6tti<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u201eSannleiks\u00e1st og r\u00e9ttl\u00e6tistilfinning eru&nbsp;eitt og hi\u00f0 sama. Tv\u00e6r greinar \u00e1&nbsp;einum stofni.&#8221;<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Og \u00feessi or\u00f0 afa hans m\u00e6tti vel meitla \u00ed stein og hafa yfir dyrum d\u00f3msalar.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hrafn Bragason fyrrverandi h\u00e6star\u00e9ttard\u00f3mari f\u00e6ddist \u00e1 Akureyri 17. j\u00fani 1938 og l\u00e9st \u00ed hj\u00fakrunarheimilinu S\u00f3lt\u00fani \u00ed Reykjav\u00edk \u00feann 27. apr\u00edl 2025, \u00e1 87. aldurs\u00e1ri.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Foreldrar Hrafns voru hj\u00f3nin Bragi Sigurj\u00f3nsson, f.1910, d. 1995, og Helga J\u00f3nsd\u00f3ttir, f.1909, d. 1996.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Systkini hans eru Sigurj\u00f3n, d. 1976,<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00de\u00f3runn,<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Gunnhildur,<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Ragnhildur, d. 2010,<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">og \u00dalfar.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">H\u00e1lfbr\u00e6\u00f0ur samfe\u00f0ra eru Helgi \u00d3mar og Korm\u00e1kur \u00der\u00e1inn.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Eiginkona Hrafns var Ingibj\u00f6rg \u00c1rnad\u00f3ttir, f. 1941, d. 2007, b\u00f3kasafnsfr\u00e6\u00f0ingur hj\u00e1 H\u00e1sk\u00f3lab\u00f3kasafni. Foreldrar hennar voru Steinunn Dav\u00ed\u00f0sd\u00f3ttir og \u00c1rni Marin\u00f3 R\u00f6gnvaldsson.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hrafn var\u00f0 st\u00fadent fr\u00e1 Menntask\u00f3lanum \u00e1 Akureyri \u00e1ri\u00f0 1958. \u00c1ri\u00f0 1965 lauk hann emb\u00e6ttispr\u00f3fi fr\u00e1 lagadeild H\u00e1sk\u00f3la \u00cdslands. Stunda\u00f0i hann s\u00ed\u00f0ar framhaldsn\u00e1m vi\u00f0 \u00d3sl\u00f3arh\u00e1sk\u00f3la 1967-1968 og vi\u00f0 h\u00e1sk\u00f3lann \u00ed Bristol \u00ed Englandi \u00e1ri\u00f0 1973.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hann var skipa\u00f0ur borgard\u00f3mari \u00ed Reykjav\u00edk \u00e1 \u00e1runum 1972 til 1987 \u00e1\u00f0ur en hann var skipa\u00f0ur h\u00e6star\u00e9ttard\u00f3mari.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Me\u00f0fram st\u00f6rfum s\u00ednum sem borgard\u00f3mari kenndi Hrafn \u00ed lagadeildinni og sat \u00ed hinum \u00fdmsu stj\u00f3rnum, \u00fear \u00e1 me\u00f0al L\u00f6gfr\u00e6\u00f0ingaf\u00e9lagi \u00cdslands, \u00ed stj\u00f3rn Bandalags h\u00e1sk\u00f3lamanna, \u00ed stj\u00f3rn D\u00f3maraf\u00e9lags \u00cdslands og \u00ed yfirkj\u00f6rstj\u00f3rn Reykjav\u00edkur. Var hann einnig um t\u00edma forma\u00f0ur r\u00e9ttarfarsnefndar og forma\u00f0ur \u00cdslandsdeildar Amnesty International.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hrafn var d\u00f3mari vi\u00f0 H\u00e6star\u00e9tt \u00ed tuttugu \u00e1r e\u00f0a fr\u00e1 \u00e1rinu 1987 til 2007. Hann var forseti r\u00e9ttarins \u00e1 \u00e1runum 1994 og 1995 og varaforseti 1993.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hrafn sat einnig \u00ed og leiddi nefndir, \u00fear \u00e1 me\u00f0al nefnd \u00e1 vegum Atvinnuvega- og n\u00fdsk\u00f6punarr\u00e1\u00f0uneytisins sem var fali\u00f0 a\u00f0 undirb\u00faa l\u00f6ggj\u00f6f um frj\u00e1ls f\u00e9lagasamt\u00f6k og sj\u00e1lfseignarstofnanir sem starfa a\u00f0 almannaheillum.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00de\u00e1 var Hrafn forma\u00f0ur \u00feriggja manna \u00fattektarnefndar um starfsemi l\u00edfeyrissj\u00f3\u00f0anna \u00ed a\u00f0draganda efnahagshrunsins \u00e1 \u00cdslandi \u00e1ri\u00f0 2008.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hrafn var kv\u00e6ntur Ingibj\u00f6rgu \u00c1rnad\u00f3ttur, sem l\u00e9st \u00e1ri\u00f0 2007.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">B\u00f6rn Hrafns og Ingibjargar eru:<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Steinunn og<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">B\u00f6rkur.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Steinunn, f. 1964, pr\u00f3fessor \u00ed f\u00e9lagsr\u00e1\u00f0gj\u00f6f. Maki: Haraldur Arnar Haraldsson. B\u00f6rn \u00feeirra eru Andri \u00de\u00f3r, d. 2024, og Felix.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">B\u00f6rkur, f. 1969, l\u00f6gma\u00f0ur og fasteignasali. Maki El\u00edn Nor\u00f0mann. B\u00f6rn \u00feeirra eru: Sn\u00e6d\u00eds, Tinna, J\u00f3n Hrafn og \u00d3skar \u00c1rni.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Margt fleira m\u00e6tti segja um \u00e6vi Hrafns og \u00ed \u00fev\u00ed sambandi v\u00edsa \u00e9g \u00ed form\u00e1la a\u00f0 minningargreinum um hann \u00ed Morgunbla\u00f0inu \u00ed dag og greinar sem bera l\u00edfi hans fagurt vitni.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Bernskusl\u00f3\u00f0irnar voru honum k\u00e6rar. \u00cd afm\u00e6lisfr\u00e9tt um hann \u00ed Morgunbla\u00f0inu 17. j\u00fan\u00ed 2023 er hann fagna\u00f0i 85 \u00e1ra afm\u00e6li s\u00ednu, var teki\u00f0 vi\u00f0tal vi\u00f0 hann undir yfirskriftinni, &#8220;Mannr\u00e9ttindi \u00e1vallt ofarlega i huga&#8221;. \u00c9g birti h\u00e9r nokkur brot \u00far \u00fev\u00ed vi\u00f0tali:<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">&#8220;Hann bj\u00f3 fyrst \u00e1 Gler\u00e1rg\u00f6tu 3 en s\u00ed\u00f0ar \u00ed Bjarkarst\u00edg 7, beint \u00e1 m\u00f3ti Dav\u00ed\u00f0sh\u00fasi.&#8221; Hann mundi vel er &#8220;menntask\u00f3lanemar f\u00f3ru me\u00f0 vi\u00f0h\u00f6fn til Dav\u00ed\u00f0s \u00e1 sextugsafm\u00e6li hans. \u00dea\u00f0 var mj\u00f6g h\u00e1t\u00ed\u00f0legt&#8221; rifja\u00f0i hann upp.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Eftir st\u00fadentspr\u00f3f 1958 f\u00f3r hann til Sp\u00e1nar til a\u00f0 nema sp\u00e6nsku \u00ed Madrid. Hann sag\u00f0i svo fr\u00e1:<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">&#8220;\u00deetta var \u00e1 Francot\u00edmanum og ma\u00f0ur var alltaf undir eftirliti \u00fear, \u00feurfti a\u00f0 m\u00e6ta reglulega \u00ed vi\u00f0tal \u00e1 l\u00f6greglust\u00f6\u00f0. \u00c1 Sp\u00e1ni l\u00e6r\u00f0i \u00e9g a\u00f0 meta l\u00fd\u00f0r\u00e6\u00f0i og mannr\u00e9ttindi.&#8221;<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Mannr\u00e9ttindi voru honum ofarlega \u00ed huga alla t\u00ed\u00f0, heil\u00f6g og grundvallandi fyrir mann og heim.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Og \u00e9g spyr \u00e1 \u00feessu t\u00edmapunkti: Hvert stefnir ver\u00f6ldin n\u00fa?<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">D\u00f3marastarfi\u00f0 kenndi honum margt. Hann sag\u00f0i t.d. um \u00fea\u00f0:<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">&#8220;\u00c9g var ekki miki\u00f0 fyrir a\u00f0 d\u00e6ma f\u00f3lk \u00ed fangelsi \u00fev\u00ed \u00e9g tel a\u00f0 st\u00f3r hluti manna sem er veri\u00f0 a\u00f0 d\u00e6ma \u00ed fangelsi s\u00e9u veikir einstaklingar.&#8221;<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">H\u00e9r talar l\u00edfsreyndur ma\u00f0ur og vitur og skynja m\u00e1 k\u00e6rleika og dj\u00fapan mannskilning \u00ed or\u00f0um hans.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">&#8220;Hrafn og Ingibj\u00f6rg, f\u00f3ru miki\u00f0 \u00ed leikh\u00fas og \u00e1 t\u00f3nleika. \u00deau fer\u00f0u\u00f0ust mj\u00f6g miki\u00f0 b\u00e6\u00f0i innanlands og utan og \u00fe\u00e1 s\u00e9rstaklega me\u00f0 J\u00f3ni B\u00f6\u00f0varssyni \u00ed tenglsum vi\u00f0 n\u00e1mskei\u00f0 \u00ed Endurmenntun H\u00cd um \u00cdslendingas\u00f6gurnar.&#8221;<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Og fyrst b\u00f3kmenntaarfinn okkar \u00cdslendinga ber \u00e1 g\u00f3ma \u00fe\u00e1 er hann s\u00fdndarveruleiki, fr\u00e1sagnir og t\u00falkanir \u00e1 mannlegum samskiptum, raunveruleika \u00ed sk\u00e1ldlegri framsetningu sem er s\u00fdndarveruleiki sem kallast \u00e1 vi\u00f0 hinn handanverandi, fullkomna veruleika.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Og \u00e1fram \u00far afm\u00e6lisfr\u00e9ttinni:<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">&#8220;Helsta \u00e1hugam\u00e1l Hrafns hefur veri\u00f0 l\u00f6gfr\u00e6\u00f0in en einnig fer\u00f0al\u00f6g innanlands og utan. S\u00f6mulei\u00f0is lestur g\u00f3\u00f0ra b\u00f3ka, s\u00e9rstaklega sk\u00e1ldsagna, \u00cdslendingasagna, sagnfr\u00e6\u00f0i, heimspeki og lj\u00f3\u00f0a. &#8220;\u00c9g les miki\u00f0&#8221;, sag\u00f0i hann \u00ed vi\u00f0talinu &#8230; &#8220;Svo fylgist \u00e9g n\u00e1tt\u00farlega me\u00f0 \u00fej\u00f3\u00f0m\u00e1lum og heimsm\u00e1lum. \u00deetta er a\u00f0allega \u00fea\u00f0 sem \u00e9g geri, kemst l\u00edti\u00f0 \u00ed fer\u00f0al\u00f6g n\u00fana.&#8221;<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Til hans var leita\u00f0 \u00ed gegnum \u00e1rin \u00far m\u00f6rgum \u00e1ttum \u00ed samf\u00e9laginu um l\u00f6gfr\u00e6\u00f0ileg m\u00e1l og hann kom v\u00ed\u00f0a vi\u00f0 sem fr\u00e6\u00f0ima\u00f0ur og traustur \u00e1litsgjafi. Hann sinnti \u00f3tal verkefnum og sat \u00ed m\u00f6rgum nefndum um \u00e6vina og skrifa\u00f0 t.a.m. &#8220;L\u00f6g um f\u00e9l\u00f6g til almannaheilla.&#8221;<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">&#8220;\u00deau hj\u00f3nin \u00e1ttu auk \u00feess sumarh\u00fas \u00ed Laugar\u00e1si \u00ed Biskupstungum \u00fear sem \u00feau v\u00f6r\u00f0u miklum t\u00edma me\u00f0 fj\u00f6lskyldu sinni.&#8221;<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Svo m\u00f6rg voru \u00feau or\u00f0 \u00far fyrrnefndu vi\u00f0tali.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Gr\u00f3\u00f0ur og n\u00e1tt\u00fara gefa okkur miki\u00f0. Vi\u00f0 erum mold, segir viska aldanna.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">S\u00f6knu\u00f0ur hans var mikill eftir fr\u00e1fall Ingibjargar og b\u00f6rnin s\u00f6g\u00f0u hann hafa &#8220;bogna\u00f0 en ekki brotna\u00f0.&#8221; Vinnan og hj\u00f3nabandi\u00f0 voru honum allt.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hann naut \u00feess a\u00f0 fer\u00f0ast og f\u00f3r margar fer\u00f0ir utan me\u00f0 b\u00f6rnum s\u00ednum. \u00de\u00e1 f\u00f3r hann v\u00ed\u00f0a me\u00f0 Steinunni \u00fe\u00e1 er h\u00fan vann \u00ed ranns\u00f3knum \u00ed \u00fatl\u00f6ndum og \u00fe\u00e1 g\u00e6tti Hrafn yngsta barnabarnsins m.a. \u00ed Dublin og Kantaraborg.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00de\u00e1 f\u00f3r hann nokkrar fer\u00f0ir me\u00f0 fj\u00f6lskyldunni til Tenerife og naut s\u00f3lar og varma.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hrafn f\u00f3r ekki me\u00f0 h\u00e1va\u00f0a um g\u00f6tur e\u00f0a torg, hann var h\u00f3gv\u00e6r en fastur fyrir, \u00edhugull og greinandi en sl\u00edkir kostir hlj\u00f3ta a\u00f0 gagnast vel \u00ed d\u00f3maras\u00e6ti.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c9g tel \u00fea\u00f0 vera dau\u00f0ans alv\u00f6ru a\u00f0 vera d\u00f3mari og \u00fea\u00f0 \u00ed H\u00e6star\u00e9tti, a\u00f0 vera kalla\u00f0ur til a\u00f0 skera \u00far m\u00e1lum f\u00f3lks og finna hina r\u00e9ttu l\u00ednu, sem skilur \u00e1 milli \u00feess, sem er r\u00e9tt og sanngjarnt og hins sem ekki stenst m\u00e1l um r\u00e9tt og satt.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Um aldir og \u00e1r\u00fe\u00fasund hafa d\u00f3marar \u00fej\u00f3na\u00f0 samf\u00e9l\u00f6gum manna. En hva\u00f0an koma \u00feau hugt\u00f6k sem afi Hrafns tekur fyrir \u00ed \u00e1\u00f0urnefndri tilv\u00edsun: sannleikur og r\u00e9ttl\u00e6ti? \u00deau eiga r\u00e6tur \u00ed hebresk\/kristnum arfi og gr\u00edsk\/f\u00edl\u00f3s\u00f3f\u00edskum og vitundin um r\u00e9tt og rangt er ritu\u00f0 \u00ed hj\u00f6rtu okkar skv. kristinni tr\u00fa.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">P\u00e1ll postuli segir \u00ed br\u00e9fi s\u00ednu til Efesusmanna um vald Krists sem situr \u00e1 veldisst\u00f3li \u00e1 himnum (Ef. 1.21-23):<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">&#8220;&#8230; ofar hverri tign og valdi og m\u00e6tti, ofar \u00f6llum herrad\u00f3mi og s\u00e9rhverju nafni sem nefnt er, ekki a\u00f0eins \u00ed \u00feessari ver\u00f6ld heldur og \u00ed hinni komandi.&#8221;<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">N\u00f3belssk\u00e1ldi\u00f0 vir\u00f0ist r\u00f3a \u00e1 s\u00f6mu mi\u00f0 \u00ed Kristnihaldi undir J\u00f6kli og or\u00f0ar s\u00edna s\u00fdn \u00e1 handanveruna svohlj\u00f3\u00f0andi:<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">&#8220;\u00dear sem j\u00f6kulinn ber vi\u00f0 loft h\u00e6ttir landi\u00f0 a\u00f0 vera jar\u00f0neskt, en j\u00f6r\u00f0in f\u00e6r hlutdeild \u00ed himninum, \u00fear b\u00faa ekki framar neinar sorgir og \u00feessvegna er gle\u00f0in ekki nau\u00f0synleg, \u00fear r\u00edkir fegur\u00f0in ein, ofar hverri kr\u00f6fu.&#8221;<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Vi\u00f0 stefnum \u00feanga\u00f0 sem fegur\u00f0in r\u00edkir.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">H\u00e9rvera og handanvera kallast \u00e1 og hafa gert fr\u00e1 \u00fev\u00ed manneskjan var\u00f0 til og f\u00e9kk vitund s\u00edna \u00ed arf.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Eitt af ritum Bibl\u00edunnar \u00ed GT ber heiti\u00f0 D\u00f3marab\u00f3kin og er kennd vi\u00f0 t\u00edmabil \u00ed s\u00f6gu \u00cdsraels er \u00feeim var stj\u00f3rna\u00f0 af d\u00f3murum. \u00deeir sk\u00e1ru ekki bara \u00far m\u00e1lum f\u00f3lks heldur voru \u00feeir lei\u00f0togar. A\u00f0eins ein kona, Deb\u00f3ra, var \u00ed h\u00f3pi \u00feeirra. B\u00f3kin hefst vi\u00f0 landn\u00e1mi\u00f0 og n\u00e6r yfir t\u00edmabili\u00f0 1200 f. Kr. og l\u00edkur um 1000 f. Kr. \u00feegar konungsd\u00e6mi komst \u00e1 \u00ed landinu. S\u00fa gu\u00f0fr\u00e6\u00f0i sem birtist \u00ed ritinu er, a\u00f0 hl\u00fd\u00f0ni vi\u00f0 Drottin, lei\u00f0ir til blessunar og fri\u00f0ar en \u00f3hl\u00fd\u00f0ni lei\u00f0ir til \u00f6r\u00f0ugleika og \u00f3sigra. (\u00dar sk\u00fdringartexta Bibl\u00edu 21. aldar (2007))<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Ni\u00f0ursta\u00f0an er \u00fe\u00e1 s\u00fa, \u00fat fr\u00e1 hugmyndum okkar um sannleika og r\u00e9ttl\u00e6ti, a\u00f0 fars\u00e6last s\u00e9 a\u00f0 fylgja l\u00f6gum og grunngildum, hvort sem menn hafa Gu\u00f0 \u00ed myndinni e\u00f0ur ei.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">D\u00f3marar koma v\u00ed\u00f0a vi\u00f0 s\u00f6gu \u00e1 ferli mannkyns um l\u00f6nd og \u00e1lfur. Mannlegt samf\u00e9lag \u00fer\u00edfst ekki \u00e1n g\u00f3\u00f0ra d\u00f3mara.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">A\u00f0 vera manneskja er b\u00fdsna fl\u00f3ki\u00f0 verkefni. Sagt hefur veri\u00f0 a\u00f0 hamingja manna hv\u00edli \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feeir sinni vel \u00feremur svi\u00f0um \u00e1 l\u00edfslei\u00f0inni:<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">mannl\u00edfi,<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">n\u00e1tt\u00faru og<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">hinu st\u00f3ra samhengi tilverunnar.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Vi\u00f0 \u00feurfum a\u00f0 komast vel af \u00ed samskiptum vi\u00f0 samfer\u00f0af\u00f3lki\u00f0, finna til tengsla vi\u00f0 l\u00edfskraftinn \u00ed n\u00e1tt\u00farunni og velta fyrir okkur \u00e6\u00f0ri r\u00f6kum me\u00f0 hj\u00e1lp v\u00edsinda, heimspeki og tr\u00faar.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00cd Bibl\u00edunni, \u00feeirri miklu b\u00f3k, er a\u00f0eins eitt vers sem skilgreinir tr\u00fana. \u00cd Br\u00e9finu til Hebrea \u00ed N\u00fdja testamentinu segir:<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">&#8220;Tr\u00fain er fullvissa um \u00fea\u00f0 sem menn vona, sannf\u00e6ring um \u00fe\u00e1 hluti sem eigi er au\u00f0i\u00f0 a\u00f0 sj\u00e1.&#8221; (Heb 11.1)<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Margt er \u00fea\u00f0 \u00ed l\u00edfinu sem vi\u00f0 getum ekki sanna\u00f0, en ver\u00f0um a\u00f0 n\u00e1lgast og umgangast \u00ed tr\u00fa. \u00c1stin \u00ed brj\u00f3sti okkar ver\u00f0ur ekki v\u00edsindalega s\u00f6nnu\u00f0 og tr\u00fain \u00e1 Gu\u00f0 ekki heldur.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hrafn minntist \u00e1 \u00ed fyrrgreindu vi\u00f0tali a\u00f0 hann l\u00e6si miki\u00f0. Um sk\u00e1ldskapinn vil \u00e9g segja a\u00f0 hann er eins og menningin \u00f6ll, vi\u00f0leitni manna til a\u00f0 skilja veruleika sinn. Sk\u00e1ldin t\u00falka veruleikann. Rith\u00f6fundar, bla\u00f0amenn, kennarar, v\u00edsindamenn, l\u00f6gmenn, prestar, d\u00f3marar &#8211; t\u00falka veruleikann \u00ed starfi s\u00ednu og tj\u00e1ningu. Allir sem tj\u00e1 sig \u00e1 einn e\u00f0a annan h\u00e1tt, eru a\u00f0 spegla sig \u00ed tj\u00e1ningu annarra, \u00ed samt\u00f6lum, menningu og listum.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">L\u00edfi\u00f0 er \u00e6vint\u00fdri og \u00fea\u00f0 er undur a\u00f0 f\u00e1 a\u00f0 vera til, \u00feessa stuttu stund, sem \u00e6vin er.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">S\u00ed\u00f0ar \u00ed ath\u00f6fninni ver\u00f0ur lesi\u00f0 lj\u00f3\u00f0 eftir Bo Carpeland, sem Bragi, fa\u00f0ir Hrafns, \u00fe\u00fdddi. \u00dear breg\u00f0ur fyrir n\u00e1tt\u00farufegur\u00f0, fuglas\u00f6ng, s\u00f6knu\u00f0i, dau\u00f0a og fingraf\u00f6rum sem hinn dau\u00f0i skilur eftir sig.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Allir sem vi\u00f0 kve\u00f0jum skilja eftir sig f\u00f6r af einhverju tagi. Svo er vatni\u00f0 hin st\u00f3ra myndl\u00edkingin \u00ed lj\u00f3\u00f0inu, sem skilja m\u00e1 sem myndhv\u00f6rf \u00feess er ver\u00f0a mun \u00fe.e. handanveruna sj\u00e1lfa, eil\u00edf\u00f0ina.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c9g l\u00fdk h\u00e9r \u00feessum \u00fe\u00f6nkum yfir m\u00e6tum manni, sem var h\u00f3gv\u00e6r, \u00edhugull og vandvirkur hei\u00f0ursma\u00f0ur.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Gu\u00f0 blessi minningu Hrafns Bragasonar og megi blessun fylgja okkur sem enn erum \u00e1 l\u00edfsveginum og h\u00f6fum enn t\u00e6kif\u00e6ri til a\u00f0 l\u00e1ta gott af okkur lei\u00f0a.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Amen<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">&#8212;<\/p>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-audio\"><audio controls src=\"https:\/\/pub-c849b6aaf98340c4bec7b480b0f7ffe9.r2.dev\/2025\/05\/skogurinn-flygur-bo-carpelan-bragi-sigurjonsson.m4a\"><\/audio><\/figure>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Sk\u00f3gurinn fl\u00fdgur<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Sk\u00f3gurinn fl\u00fdgur, tr\u00e9n sv\u00edfa \u00ed t\u00edbr\u00e1.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Fj\u00e6rst \u00fea\u00f0an ber sk\u00e6ran fuglas\u00f6ng<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">inn \u00ed \u00feetta afskekkta, hlj\u00f3\u00f0a h\u00fas,<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00fear sem gluggatj\u00f6ld blakta vi\u00f0 g\u00f3lf<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">eins og br\u00fa\u00f0arsl\u00f3\u00f0i.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">S\u00f3largeislar fara hverft um blinda glugga,<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">allar \u00fer\u00e1r eru \u00feegar \u00e1 burt.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Innan dyra dau\u00f0s manns er \u00fe\u00f6gnin dj\u00fap,<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00fe\u00f3tt \u00e1 munum megi enn sj\u00e1 fingraf\u00f6r:<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Komi\u00f0, sj\u00e1i\u00f0 mig sem fugl stakan<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">teyg\u00f0an \u00e1 flugi \u00fat yfir vatni\u00f0, vatni\u00f0.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">(Bo Carpelan; \u00fe\u00fd\u00f0. Bragi Sigurj\u00f3nsson)<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Kve\u00f0jur:<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Elsku fj\u00f6lskylda og a\u00f0standendur, okkar innilegustu sam\u00fa\u00f0arkve\u00f0jur til ykkar allra, hugsum til ykkar.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><br \/>Berg\u00fe\u00f3ra Steinunn og Magn\u00fas \u00de\u00f3r sem eru st\u00f6dd \u00ed \u00fatl\u00f6ndum.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>1938-2025 fv. h\u00e6star\u00e9ttard\u00f3mari Viltu lesa og\/e\u00f0a hlusta? Smelltu \u00e1 nafni\u00f0 efst og \u00fe\u00e1 opnast allt.<\/p>\n","protected":false},"author":2,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_jetpack_newsletter_access":"","_jetpack_dont_email_post_to_subs":false,"_jetpack_newsletter_tier_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paywalled_content":false,"_jetpack_hide_featured_image":false,"_jetpack_featured_image_duplicate_dismissed":0,"_jetpack_feature_clip_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":"","jetpack_post_was_ever_published":false},"categories":[7],"tags":[243,246,518,542,552,640,698],"class_list":["post-6350","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-minningarord-eulogies","tag-gud","tag-gudfraedi","tag-rettlaeti","tag-sannleikur","tag-syndarveruleiki","tag-tru","tag-virtual-reality"],"jetpack_sharing_enabled":true,"jetpack_featured_media_url":"","_links":{"self":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/6350","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/users\/2"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcomments&post=6350"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/6350\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fmedia&parent=6350"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcategories&post=6350"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Ftags&post=6350"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}