{"id":6332,"date":"2025-05-09T15:36:55","date_gmt":"2025-05-09T15:36:55","guid":{"rendered":"http:\/\/ornbardur.com\/2025\/05\/09\/hakon-sigudsson-1942-2025\/"},"modified":"2025-05-09T15:36:55","modified_gmt":"2025-05-09T15:36:55","slug":"hakon-sigudsson-1942-2025","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/ornbardur.com\/?p=6332","title":{"rendered":"+H\u00e1kon Sigu\u00f0sson 1942-2025"},"content":{"rendered":"\n<figure class=\"wp-block-image size-large\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"2000\" height=\"1462\" src=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2025\/05\/open-folder-hakon-sigurdsson-1942-2025.png?w=1024\" alt=\"\" class=\"wp-image-6329\" \/><\/figure>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-image size-large\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"2000\" height=\"1456\" src=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2025\/05\/img_3836-1.jpg?w=1024\" alt=\"\" class=\"wp-image-6330\" \/><\/figure>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00d6rn B\u00e1r\u00f0ur J\u00f3nsson<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Minningaror\u00f0<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>+H\u00e1kon Sigur\u00f0sson<\/strong><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">fv. framkv\u00e6mdastj\u00f3ri<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00deorras\u00f6lum 9, K\u00f3pavogi<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">B\u00e1lf\u00f6r fr\u00e1 V\u00eddal\u00ednskirkju<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">f\u00f6studaginn 9. ma\u00ed 2025 kl. 13<\/p>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-audio\"><audio controls src=\"https:\/\/pub-c849b6aaf98340c4bec7b480b0f7ffe9.r2.dev\/2025\/05\/hakon-sig-1942-2025-1.m4a\"><\/audio><\/figure>\n\n\n\n<!--more-->\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">&#8220;Svo lengi l\u00e6rir sem lifir&#8221;, segir \u00ed m\u00e1lsh\u00e6tti og \u00f6ll h\u00f6fum vi\u00f0 sungi\u00f0: &#8220;\u00dea\u00f0 er leikur a\u00f0 l\u00e6ra.&#8221; Hvers vegna l\u00e6rir ma\u00f0ur? J\u00fa, \u00fea\u00f0 er til a\u00f0 \u00fej\u00f3na l\u00edfinu, hafa hlutverk og l\u00e1ta gott af s\u00e9r lei\u00f0a. L\u00edfi\u00f0 er nefnilega gu\u00f0s\u00fej\u00f3nusta, sem allir inna af hendi, ekki bara prestar, munkar og nunnur. L\u00father kallinn lag\u00f0i \u00e1herslu \u00e1 \u00feetta og taldi upp hinar og \u00feessar starfsst\u00e9ttir og sag\u00f0i \u00fe\u00e6r allar sinna gu\u00f0s\u00fej\u00f3nustu l\u00edfsins. H\u00fasfreyjan og b\u00f3ndinn \u00fej\u00f3na Gu\u00f0i, saumakonan og kl\u00e6\u00f0skerinn, \u00feeir sem sm\u00ed\u00f0a \u00far tr\u00e9 og j\u00e1rni, sl\u00e1trarinn og s\u00fatarinn, s\u00fdsluma\u00f0urinn og furstinn &#8211; allir! Og svo b\u00e6tti hann vi\u00f0 og sag\u00f0i: Barni\u00f0 \u00fej\u00f3nar Gu\u00f0i me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 leika s\u00e9r! Falleg t\u00falkun \u00e1 l\u00edfinu og hlutverki okkar allra. Vi\u00f0 erum \u00f6ll \u00ed einum og sama heimi, \u00ed samhengi alls sem er og fengum l\u00edfi\u00f0 a\u00f0 gj\u00f6f til a\u00f0 n\u00fdta \u00fea\u00f0 \u00ed \u00fe\u00e1gu f\u00f3lks og heims.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c9g kynntist honum Konna \u00feegar \u00e9g f\u00e9kkst vi\u00f0 \u00fea\u00f0 a\u00f0 elta k\u00falur \u00ed Vetrarm\u00fdri vi\u00f0 V\u00edfilssta\u00f0i \u00e1 t\u00edunda \u00e1ratugi li\u00f0innar aldar. Seinna var \u00e9g kosinn \u00ed stj\u00f3rn Golfkl\u00fabbs Gar\u00f0ab\u00e6jar. Konni var r\u00e1\u00f0inn framkv\u00e6mdastj\u00f3ri og var \u00ed \u00fev\u00ed eins og fiskur \u00ed vatni. Hann haf\u00f0i mikla og g\u00f3\u00f0a h\u00e6fileika til verkstj\u00f3rnar, var \u00fatsj\u00f3narsamur og haf\u00f0i g\u00f3\u00f0a yfirs\u00fdn. Konni var greindur og n\u00e1tt\u00fartalent \u00e1 m\u00f6rgum svi\u00f0um og \u00e1hugam\u00e1lin \u00f3teljandi.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">H\u00e1kon Sigur\u00f0sson f\u00e6ddist \u00ed Reykjav\u00edk 20. september 1942. Hann l\u00e9st \u00e1 l\u00edknardeild Landakotssp\u00edtala 24. apr\u00edl 2025.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hann bj\u00f3 fyrstu \u00e1rin \u00ed Bl\u00f6nduhl\u00ed\u00f0 \u00ed Reykjav\u00edk en flutti 12 \u00e1ra \u00ed Melger\u00f0i \u00ed K\u00f3pavogi me\u00f0 foreldrum s\u00ednum en fa\u00f0ir hans bygg\u00f0i m\u00f6rg h\u00fas um \u00e6vina og \u00feau hj\u00f3nin r\u00e1ku saman bens\u00ednst\u00f6\u00f0 og litla verzlun yst \u00e1 K\u00e1rsnesinu.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Konni hringdi \u00ed mig \u00ed lok mars og sag\u00f0ist bara vera a\u00f0 tryggja \u00fea\u00f0, a\u00f0 \u00e9g mundi jar\u00f0a sig. Hann var \u00e1 Landsp\u00edtalanum og \u00e9g sag\u00f0ist eiga lei\u00f0 \u00ed b\u00e6inn eftir viku e\u00f0a svo og \u00feegar \u00e9g var lentur \u00e1 Reykjav\u00edkurflugvelli og haf\u00f0i komi\u00f0 t\u00f6skunni heim, r\u00f6lti \u00e9g upp \u00e1 Lansa. \u00dear var fagna\u00f0arfundur og vi\u00f0 r\u00e6ddum heima og geima. Konni \u00edtreka\u00f0i a\u00f0 \u00e9g \u00e6tti a\u00f0 sj\u00e1 um \u00fatf\u00f6r hans og \u00e9g svara\u00f0i \u00e1 sama h\u00e1tt og \u00ed hvert sinn sem \u00e9g f\u00e6 sl\u00edkar bei\u00f0nir: J\u00e1, ef \u00e9g ver\u00f0 ekki farinn \u00e1 undan \u00fe\u00e9r! Vi\u00f0 kv\u00f6ddumst og \u00e9g taldi a\u00f0 Konni \u00e6tti eftir nokkrar vikur ef ekki m\u00e1nu\u00f0i, en svo hringdi tengdasonurinn og tilkynnti m\u00e9r andl\u00e1t hans. Og h\u00e9r erum vi\u00f0 saman komin til a\u00f0 kve\u00f0ja g\u00f3\u00f0an og eftirminnilegan dreng.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Foreldrar H\u00e1konar voru Sigur\u00f0ur Kristj\u00e1n Sigurbj\u00f6rnsson, f. 12. n\u00f3vember 1903, d. 27. september 1989, og Mar\u00eda Finnbogad\u00f3ttir, f. 24. apr\u00edl 1914, d. 14. desember 2013.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">H\u00e1kon var elstur \u00feriggja systkina, en \u00feau eru:<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Bj\u00f6rg, f. 12. desember 1943 og<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Sigr\u00ed\u00f0ur, f. 30. mars 1950, d. 26. jan\u00faar 2012.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">H\u00e1kon kv\u00e6ntist \u00ed j\u00fan\u00ed 1968 eftirlifandi eiginkonu sinni, Katr\u00ednu Hl\u00edf Gu\u00f0j\u00f3nsd\u00f3ttur, f. 1945. H\u00fan er Reykjav\u00edkurm\u00e6r sem \u00f3lst upp a\u00f0 Laugavegi 82. \u00deau kynntust \u00ed vinah\u00f3pi. Katr\u00edn starfar sem l\u00edfeindafr\u00e6\u00f0ingur.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Saman eiga \u00feau eina d\u00f3ttur, Margr\u00e9t Sif, f. 1968, eiginma\u00f0ur \u00d3lafur \u00de\u00f3r J\u00f3elsson, f. 1972.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Barnab\u00f6rn H\u00e1kons voru tv\u00f6,<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Thelma Hl\u00edf, f. 1995 og<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">J\u00f3n H\u00e1kon, f. 2001.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">D\u00f3ttirin sag\u00f0i \u00e1 m\u00ednum fundi me\u00f0 fj\u00f6lskyldunni: hann var g\u00f3\u00f0ur pabbi og var ekki umv\u00f6ndunarsamur, hann ger\u00f0i kr\u00f6fur til m\u00edn, var m\u00e9r g\u00f3\u00f0ur vinur og b\u00f3ng\u00f3\u00f0ur.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Thelma Hl\u00edf segir afa ekki hafa veri\u00f0 mj\u00f6g \u00feolinm\u00f3\u00f0an. Hann var nammikall sem f\u00f3r me\u00f0 \u00feau \u00ed b\u00edlt\u00far og fannst gaman a\u00f0 gera allt, l\u00edka \u00fea\u00f0 sem var eiginlega \u00e1 bannlista, eins og \u00eds \u00e1 virkum d\u00f6gum. Hann var s\u00e6lkeri og \u00ed kaffibo\u00f0um byrja\u00f0i hann \u00e1 v\u00ednarbrau\u00f0unum.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">A\u00f0 fara \u00ed b\u00fa\u00f0ir var honum \u00e1str\u00ed\u00f0a og Costco var fyrir honum \u00e6vint\u00fdraheimur. Sj\u00e1lfsalarnir \u00e1 Landakoti, \u00fear sem hann var \u00ed tv\u00e6r vikur, voru \u00f3spart nota\u00f0ir.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Svo haf\u00f0i hann sterkar sko\u00f0anir \u00e1 hinu og \u00feessu og fannst allt \u00ed lagi \u00fe\u00f3tt a\u00f0rir v\u00e6ru honum \u00f3samm\u00e1la.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Ef hann \u00feurfti a\u00f0 kaupa eitthva\u00f0 sem var mikilv\u00e6gt \u00fe\u00e1 keypti hann helst tv\u00f6 eint\u00f6k. Konni \u00feurfti tv\u00e6r h\u00e6kjur undir lokin og \u00fe\u00e1 keypti hann au\u00f0vita\u00f0 \u00feri\u00f0ju h\u00e6kjuna. Hann var l\u00edka gjafmildur og grei\u00f0vikinn.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">H\u00e1kon var athafnasamur alla t\u00ed\u00f0 og t\u00f3kst \u00e1 vi\u00f0 fj\u00f6lm\u00f6rg verkefni \u00ed b\u00e6\u00f0i leik og starfi. \u00cd honum var kennarabl\u00f3\u00f0, sag\u00f0i fj\u00f6lskyldan, hann var g\u00f3\u00f0ur a\u00f0 segja okkur til. Hann vildi stj\u00f3rna \u00f6llu, K\u00f6tu l\u00edka. \u00deegar honum voru f\u00e6r\u00f0 lyf \u00e1 sj\u00fakrah\u00fasinu, \u00fe\u00e1 spur\u00f0i hann gjarnan: Hva\u00f0 heitir \u00feetta? Hann vildi skilja hltutina.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hann var virkur \u00ed f\u00e9lagsstarfi og var me\u00f0al annars \u00ed Flugbj\u00f6rgunarsveitinni. \u00de\u00e1 var hann einn af stofnf\u00e9l\u00f6gum Fr\u00edm\u00fararast\u00fakunnar Njar\u00f0ar, en \u00fear sinnti H\u00e1kon m\u00f6rgum emb\u00e6ttum og var \u00f6tull \u00ed starfi hennar.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c9g sk\u00fdt \u00fev\u00ed h\u00e9r inn a\u00f0 \u00e9g haf\u00f0i gengi\u00f0 \u00ed Regluna og teki\u00f0 langt hl\u00e9 og \u00fea\u00f0 var Konni sem kom m\u00e9r aftur \u00ed gang og \u00fe\u00e1 h\u00f3fst eitt af m\u00ednum m\u00f6rgu st\u00f3ru \u00e6vint\u00fdrum. Reglan er g\u00f3\u00f0ur f\u00e9lagsskapur og Konni sag\u00f0i m\u00e9r \u00e1 sp\u00edtalnum a\u00f0 h\u00fan hef\u00f0i haft gr\u00ed\u00f0arleg \u00e1hrif \u00e1 sig og d\u00fdpka\u00f0 allan skilning \u00e1 l\u00edfinu og tilverunni.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">H\u00e1kon \u00e1tti fars\u00e6lan feril \u00ed starfi og eftir a\u00f0 hann haf\u00f0i byrja\u00f0 a\u00f0 l\u00e6ra rafvirkjun sneri hann s\u00e9r a\u00f0 kaupmennsku og \u00e1tti verslanirnar R\u00e9ttarholt, Heimakj\u00f6r \u00ed S\u00f3lheimum, Kostakaup \u00ed Hafnarfir\u00f0i og Kj\u00f6tb\u00e6 \u00e1 Laugavegi auk \u00feess a\u00f0 reka heildverslunina Ind\u00eda.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">H\u00e1kon var\u00f0 framkv\u00e6mdastj\u00f3ri golfkl\u00fabbsins GKG \u00e1ri\u00f0 1993. H\u00e1kon var mikill \u00e1hugama\u00f0ur um golf og sinnti hann \u00fev\u00ed a\u00f0 miklu kappi me\u00f0 Katr\u00ednu eiginkonu sinni, en auk golfsins var H\u00e1kon \u00e1hugama\u00f0ur um flug og haf\u00f0i einkaflugmannspr\u00f3f. Hann var mikill gr\u00e6jukall og hringdi oft \u00ed tengdasoninn \u00ed \u00feeim efnum og kynnti honum n\u00fdjustu gr\u00e6jurnar. Hann heilla\u00f0ist af t\u00f6lvum og \u00fea\u00f0 n\u00fdjasta n\u00fdtt var gervigreindin. Hann eigna\u00f0ist margar t\u00f6lvur og var me\u00f0 \u00ferj\u00fa netf\u00f6ng. Hann var hra\u00f0ur. A\u00f0 fer\u00f0ast me\u00f0 honum var \u00e6t\u00ed\u00f0 hra\u00f0fer\u00f0. \u00deau Kata f\u00f3ru hringinn \u00e1ri\u00f0 1974 sem var n\u00fdopna\u00f0ur og t\u00f3ku hann allan \u00e1 fimm d\u00f6gum \u00e1 m\u00f6linni. Hann var \u00ed skot- og laxvei\u00f0i, \u00e1tti jeppa, Dodge og Bronco og loftnetsst\u00f6ngin n\u00e1\u00f0i til himins.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hann vann mj\u00f6g skipulega, var me\u00f0 verkefnalista \u00ed excel-skjali.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">J\u00e1, Konni flaug v\u00ed\u00f0a og var \u00e1hugasamur um margt og haf\u00f0i \u00feessa fj\u00f6lgreind eins og \u00e9g sag\u00f0i \u00e1\u00f0an, kunni \u00e1 margt og var brennandi \u00ed andanum um hitt og \u00feetta. L\u00edfi\u00f0 er gu\u00f0s\u00fej\u00f3nusta og l\u00edfi\u00f0 er leikur \u00feegar best l\u00e6tur. Svo hefur l\u00edfi\u00f0 form og reglur. \u00dea\u00f0 eru l\u00f6gm\u00e1l \u00ed l\u00edfinu, r\u00e9tt og rangt og \u00fea\u00f0 skynja b\u00f6rnin flj\u00f3tlega \u00e1 l\u00edfsveginum. \u00cd okkur er vitund um hi\u00f0 \u00e6\u00f0ra samhengi, vitund um r\u00e9tt og rangt, vitund um k\u00e6rleika og miskunn, fegur\u00f0 og fri\u00f0.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Golfi\u00f0 hefur l\u00edka str\u00fakt\u00far og reglukerfi eins og allar \u00ed\u00fer\u00f3ttir hafa. En golf hefur eina hli\u00f0 sem ekki er t.d. \u00ed knattspyrnu e\u00f0a sk\u00ed\u00f0a\u00ed\u00fer\u00f3ttum, lyftingum e\u00f0a fimleikum. Golf er nefnilega &#8220;kristilegri&#8221; \u00ed\u00fer\u00f3tt en a\u00f0rar.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Og n\u00fa s\u00e9 \u00e9g undrunina \u00ed andlitum ykkar.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c9g skal \u00fatsk\u00fdra \u00feetta n\u00e1nar me\u00f0 tilv\u00edsun \u00ed Bibl\u00eduna og n\u00e1nar tilteki\u00f0 \u00ed N\u00fdja testamenti\u00f0, sem rita\u00f0 var upphaflega \u00e1 gr\u00edsku. \u00dear er mikilv\u00e6gt or\u00f0 sem heitir <em>hamartia <\/em>og merkir <em>geigun <\/em>og er \u00fe\u00fdtt \u00e1 \u00edslensku me\u00f0 or\u00f0inu synd. J\u00e1, \u00fea\u00f0 er nefnilega synd a\u00f0 geiga, a\u00f0 brenna af, a\u00f0 sl\u00e6sa og h\u00fakka \u00ed golfi. \u00cd okkur \u00f6llum er geigun, brotal\u00f6m, sem gerir \u00fea\u00f0 a\u00f0 verkum a\u00f0 okkur tekst ekki a\u00f0 lifa fullkomnu l\u00edfi. \u00cd golf\u00ed\u00fer\u00f3ttinni er s\u00e9rstakt kerfi sem kallast forgj\u00f6f og gerir \u00fea\u00f0 a\u00f0 verkum a\u00f0 betri leikmenn og lakari geta leiki\u00f0 og keppt \u00e1 sanngj\u00f6rnum grunni. En or\u00f0i\u00f0 forgj\u00f6f finnst m\u00e9r reyndar vera \u00f6gn misv\u00edsandi \u00fev\u00ed forgj\u00f6f er ekkert anna\u00f0 en fyrirgefning \u00e1 klaufaskap, fyrirgefning \u00e1 geigun, fyrirgefning \u00e1 synd! Og eigum vi\u00f0 ekki sem kristnar manneskjur a\u00f0 fyrirgefa?<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00deessi &#8220;golfgu\u00f0fr\u00e6\u00f0i&#8221; er algj\u00f6rlega \u00e1 minni \u00e1byrg\u00f0, \u00e9g hef bori\u00f0 hana undir pr\u00f3fessora \u00ed greininni og \u00feeim hefur ekki tekist a\u00f0 fella mig \u00e1 neinum pr\u00f3fum, hva\u00f0 hana va\u00f0ar.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00dea\u00f0 er leikur a\u00f0 l\u00e6ra og l\u00edfi\u00f0 er gu\u00f0s\u00fej\u00f3nusta. Golf krefst \u00fej\u00e1lfunar og \u00fear \u00e1 hei\u00f0arleikinn \u00e6t\u00ed\u00f0 a\u00f0 vera \u00ed fyrirr\u00fami, leikreglur, n\u00e1kv\u00e6mni, hvert h\u00f6gg tali\u00f0 og svo er d\u00f3murinn \u00ed lokin \u00feegar b\u00fai\u00f0 er a\u00f0 fyrirgefa og \u00fe\u00e1 finnst skor me\u00f0 forgj\u00f6f.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c9g tr\u00fai \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feannig ver\u00f0i \u00fea\u00f0 einnig \u00feegar vi\u00f0 m\u00e6tum d\u00f3mara okkar \u00ed leik l\u00edfsins \u00e1 efsta degi. Hann reiknar og fyrigefur, \u00fev\u00ed Gu\u00f0 er uppspretta elsku og umhyggju, fyrirgefningar og n\u00e1\u00f0ar &#8211; j\u00e1, hann n\u00e1\u00f0ar okkur \u00fe\u00f3 vi\u00f0 s\u00e9um \u00f6ll sek &#8211; hann er Gu\u00f0 l\u00edfs og leiks og \u00feess vegna er svo magna\u00f0 a\u00f0 f\u00e1 a\u00f0 \u00fej\u00f3na honum \u00ed hva\u00f0a starfi sem er og jafnvel \u00e1n fastrar vinnu og l\u00edka \u00e1 eftirlaunum, me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 efla l\u00edf og leik, gle\u00f0i og f\u00f6gnu\u00f0 yfir \u00fev\u00ed undri a\u00f0 hafa \u00feegi\u00f0 l\u00edfi\u00f0 a\u00f0 gj\u00f6f.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Mikilv\u00e6gustu verkefni l\u00edfsins eru \u00ed rauninni bara \u00ferj\u00fa:<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">&#8211; \u00cd fyrst lagi, a\u00f0 lifa \u00ed k\u00e6rleika og s\u00e1tt vi\u00f0 samfer\u00f0af\u00f3lki\u00f0, a\u00f0 gera eins og Jes\u00fas sag\u00f0i: elska n\u00e1nungann eins og sj\u00e1lfan sig,<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">&#8211; \u00cd \u00f6\u00f0ru lagi, a\u00f0 lifa \u00ed k\u00e6rleika og s\u00e1tt vi\u00f0 n\u00e1tt\u00faruna, umhverfi\u00f0 og nj\u00f3ta \u00feess, ekki bara \u00ed sj\u00f3nvarpinu, heldur me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 fara \u00fat og anda n\u00e1tt\u00farunni a\u00f0 s\u00e9r og skynja sig hluta af n\u00e1tt\u00farunni, sk\u00f6pun Gu\u00f0s.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">&#8211; \u00cd \u00feri\u00f0ja lagi, a\u00f0 skynja sig \u00ed hinu st\u00f3ra semhengi alls sem er, a\u00f0 vi\u00f0 skynjum okkur sem b\u00f6rn Gu\u00f0s \u00ed heimi hans og l\u00e1ta um okkur muna \u00fear, gefa f\u00f3lki forgj\u00f6f &#8211; fyrirgefningu &#8211; gefa af okkur sj\u00e1lfum me\u00f0 hj\u00e1lpsemi, heims\u00e6kja sj\u00faka, sty\u00f0ja \u00feau sem standa h\u00f6llum f\u00e6ti, reynast \u00f6llum vel og gleyma ekki a\u00f0 \u00feakka Gu\u00f0i fyrir l\u00edfi\u00f0, gj\u00f6fina st\u00e6rstu og \u00fea\u00f0 gerum vi\u00f0 me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 s\u00e6kja gu\u00f0sh\u00fas og efla okkur \u00feannig \u00ed gu\u00f0s\u00fej\u00f3nustu hins daglega l\u00edfs \u00ed heimi Gu\u00f0s.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Gu\u00f0 blessi minningu g\u00f3\u00f0s vinar, H\u00e1kons Sigur\u00f0ssonar og Gu\u00f0 blessi \u00feig, Katr\u00edn k\u00e6r og fj\u00f6lskyldu \u00fe\u00edna, Margr\u00e9ti Sif og \u00d3laf \u00de\u00f3r, barnab\u00f6rnin Thelmu Hl\u00edf og J\u00f3n H\u00e1kon, \u00e6ttingja og vini &#8211; og okkur \u00f6ll sem enn erum \u00e1 l\u00edfsveginum og \u00fer\u00e1um a\u00f0 ver\u00f0a betri manneskjur og l\u00e6kka forgj\u00f6fina &#8211; b\u00e6\u00f0i \u00ed golfinu og l\u00edfsleiknum!<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Amen<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">&#8212;<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Kve\u00f0jur voru fluttar fr\u00e1:<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">-\u00c1stu Baldvinsd\u00f3ttur og Lars Magne Kalvines \u00ed Stavanger \u00ed Noregi<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">-Rakel Sveinsd\u00f3ttur \u00e1 \u00cdtal\u00edu<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">-Sigr\u00fanu og Gunnari \u00ed \u00fatl\u00f6ndum.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00d6rn B\u00e1r\u00f0ur J\u00f3nsson Minningaror\u00f0 +H\u00e1kon Sigur\u00f0sson fv. framkv\u00e6mdastj\u00f3ri \u00deorras\u00f6lum 9, K\u00f3pavogi B\u00e1lf\u00f6r fr\u00e1 V\u00eddal\u00ednskirkju f\u00f6studaginn 9. ma\u00ed 2025 kl. 13<\/p>\n","protected":false},"author":2,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_jetpack_newsletter_access":"","_jetpack_dont_email_post_to_subs":false,"_jetpack_newsletter_tier_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paywalled_content":false,"_jetpack_hide_featured_image":false,"_jetpack_featured_image_duplicate_dismissed":0,"_jetpack_feature_clip_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":"","jetpack_post_was_ever_published":false},"categories":[7],"tags":[166,235,243,246,333,409,518,557,548,640],"class_list":["post-6332","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-minningarord-eulogies","tag-elska","tag-golf","tag-gud","tag-gudfraedi","tag-jesus","tag-ljosid","tag-rettlaeti","tag-sidferdi","tag-soknudur","tag-tru"],"jetpack_sharing_enabled":true,"jetpack_featured_media_url":"","_links":{"self":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/6332","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/users\/2"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcomments&post=6332"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/6332\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fmedia&parent=6332"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcategories&post=6332"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Ftags&post=6332"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}