{"id":6320,"date":"2025-04-28T15:38:37","date_gmt":"2025-04-28T15:38:37","guid":{"rendered":"http:\/\/ornbardur.com\/2025\/04\/28\/emil-gudmundsson-1933-2025\/"},"modified":"2025-04-28T15:38:37","modified_gmt":"2025-04-28T15:38:37","slug":"emil-gudmundsson-1933-2025","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/ornbardur.com\/?p=6320","title":{"rendered":"+Emil Gu\u00f0mundsson 1933-2025"},"content":{"rendered":"\n<p class=\"wp-block-paragraph\">fv. h\u00f3telstj\u00f3ri<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">B\u00e1lf\u00f6r fr\u00e1 Fossvogskapellu <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">m\u00e1nudaginn 28. apr\u00edl 2025 kl. 13<\/p>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-image size-large\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"2000\" height=\"1418\" src=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2025\/04\/img_3825-1.jpg?w=1024\" alt=\"\" class=\"wp-image-6317\" \/><\/figure>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-image size-large\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"2000\" height=\"1432\" src=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2025\/04\/img_3826-1.jpg?w=1024\" alt=\"\" class=\"wp-image-6318\" \/><\/figure>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00d6rn B\u00e1r\u00f0ur J\u00f3nsson<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Minningaror\u00f0<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>+Emil Gu\u00f0mundsson<\/strong><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">1933-2025<\/p>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-audio\"><audio controls src=\"https:\/\/pub-c849b6aaf98340c4bec7b480b0f7ffe9.r2.dev\/2025\/04\/emil-gudmundsosn-1933-2025.m4a\"><\/audio><\/figure>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00cd hinni f\u00f6gru Fossvogskapellu kve\u00f0jum vi\u00f0 Emil Gu\u00f0mundsson og \u00fe\u00f6kkum fyrir l\u00edf hans og st\u00f6rf. \u00deetta er s\u00ed\u00f0asta byggingin sem hann dvelur \u00ed \u00e1 l\u00edfsvegi s\u00ednum. L\u00edkja m\u00e1 kapellunni me\u00f0 s\u00ednum f\u00f6gru gluggum og s\u00f6gu \u00feeirra um \u00fej\u00e1ningu Krists og d\u00fdr\u00f0, a\u00f0 h\u00fan s\u00e9 eins og h\u00f3telm\u00f3ttaka. Hinga\u00f0 er hann kominn og h\u00e9\u00f0an fer hann \u00e1 sinn hinsta hv\u00edlusta\u00f0, \u00feegar vi\u00f0 h\u00f6fum kvatt hann, b\u00f3ka\u00f0ur til hv\u00edlu \u00ed helgum reit til a\u00f0 b\u00ed\u00f0a hinsta \u00fatkalls og bir\u00f0ingar til mikilv\u00e6gustu fer\u00f0ar tilverunnar me\u00f0 himininn sj\u00e1lfan a\u00f0 marki og borg Gu\u00f0s. Og lykilinn hefur hann me\u00f0 s\u00e9r \u00ed tr\u00fanni \u00e1 miskunn Gu\u00f0s og elsku.<\/p>\n\n\n\n<!--more-->\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">P\u00e1skar eru a\u00f0 baki og n\u00fa eru teknir vi\u00f0 svonefndir gle\u00f0idagar fram a\u00f0 uppstigningardegi. \u00deeir v\u00edsa til \u00feess t\u00edma \u00feegar Jes\u00fas birtist fylgjendum s\u00ednum upprisinn \u00e1\u00f0ur en hann hvarf \u00feeim sj\u00f3num. Emmausfr\u00e1sagan sem lesin var er um stutta fer\u00f0 og \u00e1fangasta\u00f0 \u00fear sem fer\u00f0alangar settust ni\u00f0ur og sn\u00e6ddu.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Kristin tr\u00fa er ekki heimspekikenning e\u00f0a kerfi heldur byggir h\u00fan \u00e1 fr\u00e1s\u00f6gnum \u00far mannl\u00edfinu. H\u00fan er um f\u00f3lk sem hittist, n\u00fdtur veitinga, spjallar og speglar sig \u00ed atvikun dagsins og veltir fyrir s\u00e9r morgundeginum sem aldrei er fastur \u00ed hendi.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Bibl\u00edan byrjar \u00e1 a\u00f0 sta\u00f0setja manninn \u00ed hinni sk\u00f6pu\u00f0u ver\u00f6ld Gu\u00f0s. \u00dear me\u00f0 hefst saga hans og vegfer\u00f0 \u00ed heiminum. Vi\u00f0 erum hluti af \u00feessari s\u00f6gu og vi\u00f0 erum l\u00edka fer\u00f0alangar \u00ed leit a\u00f0 samasta\u00f0 \u00e1 l\u00edfsveginum og s\u00ed\u00f0an lokahv\u00edlu og vist \u00ed himni Gu\u00f0s. Kristin tr\u00fa er \u00fev\u00ed jar\u00f0bundin og lifir einkum \u00ed fr\u00e1s\u00f6gnum af f\u00f3lki eins og okkur. Og meira a\u00f0 segja ger\u00f0ist Gu\u00f0 sj\u00e1lfur ma\u00f0ur \u00ed Kristi. N\u00e6r komumst vi\u00f0 ekki hina \u00e6\u00f0sta og helgasta.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Vi\u00f0 erum fer\u00f0amenn og \u00ed l\u00edfinu m\u00e6tir okkur margur ma\u00f0urinn, karlar, konur, sem veita okkur \u00fej\u00f3nustu. \u00d6ll erum vi\u00f0 \u00fej\u00f3nar og Kristur sag\u00f0i \u00fej\u00f3ninn mestan allra.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">J\u00f3lagu\u00f0spjalli\u00f0 flytur okkur m.a. \u00fe\u00e1 sta\u00f0reynd a\u00f0 J\u00f3sef og Mar\u00eda fengu hvergi inni \u00ed gistih\u00fasi og ur\u00f0u \u00fev\u00ed a\u00f0 dvelja \u00ed fj\u00e1rh\u00fasi. S\u00e1 sta\u00f0ur var ekki upp\u00e1 margar stj\u00f6rnur, en yfir honum skein \u00fe\u00f3 stjarna, sem tekur \u00f6llum \u00f6\u00f0rum st\u00f6rnumerkingum gistista\u00f0a fram, ekki vegna sta\u00f0arins, heldur Hans sem \u00fear f\u00e6ddist til blessunar fyrir mannkyn allt.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">L\u00edfi\u00f0 er vegfer\u00f0, \u00e1fangar, gistista\u00f0ir \u00e1 lei\u00f0inni til hinnar helgu borgar \u00ed himni Gu\u00f0s, \u00e1 lei\u00f0inni heim!<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Gu\u00f0bj\u00f6rn Emil Gu\u00f0munds\u00adson, h\u00e9t hann fullu nafni, fv. h\u00f3t\u00adel\u00adstj\u00f3ri. Hann l\u00e9st \u00e1 Hj\u00fakr\u00adun\u00adar\u00adheim\u00adil\u00adinu Eyri \u00e1 \u00cdsaf\u00adir\u00f0i 11. apr\u00edl s\u00ed\u00f0astli\u00f0inn, 91 \u00e1rs a\u00f0 aldri.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Emil f\u00e6dd\u00adist \u00e1 Akra\u00adnesi 31. j\u00fal\u00ed 1933 og \u00f3lst \u00fear upp.&nbsp;For\u00adeldr\u00adar hans voru Gu\u00f0mund\u00adur Vet\u00adurli\u00f0i Bjarna\u00adson og Gu\u00f0r\u00ed\u00f0ur Gunn\u00adlaugs\u00add\u00f3tt\u00adir. Emil \u00e1tti einn eldri br\u00f3\u00f0ur, Har\u00adald \u00c1rs\u00e6l, sem l\u00e9st 2005.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Emil starfa\u00f0i lengst af sem h\u00f3t\u00adel\u00adstj\u00f3ri H\u00f3t\u00adels Loft\u00adlei\u00f0a, eft\u00adir a\u00f0 hafa veri\u00f0 st\u00f6\u00f0var\u00adstj\u00f3ri hj\u00e1 Loft\u00adlei\u00f0um. Eft\u00adir \u00e1rin \u00e1 h\u00f3t\u00adel\u00adinu var hann sv\u00e6\u00f0is\u00adstj\u00f3ri Flug\u00adlei\u00f0a h\u00e9r \u00e1 landi og er\u00adlend\u00adis um \u00e1ra\u00adbil.&nbsp;Hann er einn af \u00feeim m\u00f6rgu fulltr\u00faum \u00feeirr\u00adar kyn\u00adsl\u00f3\u00f0ar sem lag\u00f0i grunn\u00adinn a\u00f0 al\u00fej\u00f3\u00f0legri flug\u00adstarf\u00adsemi h\u00e9r \u00e1 landi. \u00c1 efri \u00e1rum skipulag\u00f0i Emil fer\u00f0ir til F\u00e6r\u00adeyja, Gr\u00e6n\u00adlands og Danmerk\u00adur og t\u00f3k a\u00f0 s\u00e9r far\u00adar\u00adstj\u00f3rn \u00ed m\u00f6rg\u00adum \u00feeirra.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Emil var jafn\u00adframt virk\u00adur \u00ed f\u00e9\u00adlags\u00adst\u00f6rf\u00adum. Hann sat \u00ed stj\u00f3rn S\u00f6gu\u00adf\u00e9\u00adlags Loft\u00adlei\u00f0a og var i\u00f0inn vi\u00f0 a\u00f0 r\u00e6kta tengsl fyrr\u00adver\u00adandi starfs\u00admanna Loft\u00adlei\u00f0a me\u00f0 reglu\u00adleg\u00adum sam\u00adfund\u00adum. Hann var einn af stofn\u00adend\u00adum Hins \u00eds\u00adlenska sk\u00f6tu\u00adf\u00e9\u00adlags, stofna\u00f0 1971, \u00e1samt Sig\u00adur\u00f0i Magn\u00fas\u00adsyni, sem einnig var \u00feekkt sem Sk\u00f6tu\u00adkl\u00fabb\u00adur Em\u00adils. F\u00e9\u00adlagi\u00f0 stend\u00adur fyr\u00adir sk\u00f6tu\u00adveislu \u00e1 hverju \u00e1ri, \u00e1 Akra\u00adnesi e\u00f0a \u00ed Hafnar\u00adf\u00adir\u00f0i.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Eig\u00adin\u00adkona Em\u00adils var Sig\u00adur\u00adbj\u00f6rt B\u00edb\u00ed G\u00fast\u00adafs\u00add\u00f3tt\u00adir, f. 1935, d. 2019. Syn\u00adir \u00feeirra eru:<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Kjart\u00adan \u00de\u00f3r, fyrr\u00adver\u00adandi flug\u00adgagna\u00adfr\u00e6\u00f0ing\u00adur Isa\u00advia, f. 1955, kv\u00e6nt\u00adur Mar\u00edu Priscillu Zanoriu, og<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Ragn\u00adar,&nbsp;deild\u00adar\u00adstj\u00f3ri eft\u00adir\u00adlits\u00addeild\u00adar Orku\u00adb\u00fas Vest\u00adfjar\u00f0a,&nbsp;f.&nbsp;1962, kv\u00e6nt\u00adur S\u00f3l\u00adeyju Chyr\u00adish Villaespin. Barna\u00adb\u00f6rn\u00adin eru fimm tals\u00adins og barna\u00adbarna\u00adb\u00f6rn\u00adin sj\u00f6.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Ungur ger\u00f0ist hann sk\u00e1ti og drakk \u00ed sig heiln\u00e6ma h\u00e6tti sk\u00e1tastarfsins, sem opnar augu ungra sem eldri \u00e1 umhverfi og n\u00e1tt\u00faru, eflir gle\u00f0i og samf\u00e9lag me\u00f0 samvinnu og s\u00f6ng, v\u00edkkar hugsunina \u00fat fyrir land og \u00e1lfur. Sem drengur var \u00e9g sk\u00e1ti og \u00fear l\u00e6r\u00f0i \u00e9g margt gott og er \u00feeim \u00feakkl\u00e1tur sem leiddu starfi\u00f0 \u00e1 \u00cdsafir\u00f0i for\u00f0um daga.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Ungan dreymdi Emil um a\u00f0 fer\u00f0ast og f\u00f3r \u00ed \u00f3gleymanlega f\u00f6r me\u00f0 sk\u00e1tum \u00e1 Jamboree-m\u00f3t \u00ed Sviss. H\u00f3purinn f\u00f3r utan me\u00f0 Gullfossi og fer\u00f0a\u00f0ist svo me\u00f0 lestum til m\u00f3tsins \u00ed \u00d6lpunum. \u00dear me\u00f0 m\u00e1 segja a\u00f0 st\u00f3rt \u00e6v\u00ednt\u00fdri hafi virkilega fari\u00f0 \u00ed farveg sem hann fylgdi upp fr\u00e1 \u00fev\u00ed. Hann var\u00f0 einn af \u00feeim sem efldu \u00cdsland sem eftirs\u00f3ttan \u00e1fangasta\u00f0 og lag\u00f0i sig \u00e6t\u00ed\u00f0 fram um a\u00f0 m\u00e6ta \u00fe\u00f6rfum fer\u00f0amanna me\u00f0 g\u00e6\u00f0a\u00fej\u00f3nustu og s\u00ednu hl\u00fdlega og bjarta vi\u00f0m\u00f3ti.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c9g m\u00e1 til me\u00f0 a\u00f0 segja fr\u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 er \u00e9g kom hinga\u00f0 til Reykjav\u00edkur til a\u00f0 \u00fereyta innt\u00f6kupr\u00f3f \u00ed Verzlunarsk\u00f3lann haf\u00f0i \u00e9g r\u00faman t\u00edma til undirb\u00fanings en hann f\u00f3r \u00fe\u00f3 m.a. \u00ed a\u00f0 vinna \u00ed byggingarvinnu vi\u00f0 hi\u00f0 n\u00fdja h\u00f3tel Loftlei\u00f0a. \u00dear reif \u00e9g m.a. steypum\u00f3tin utan af gosbrunninum \u00e1 ne\u00f0stu h\u00e6\u00f0 \u00fear sem hringstiginn endar &#8211; e\u00f0a byrjar!<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Emil var vins\u00e6ll yfirma\u00f0ur hvar sem hann var valinn til forystu, frams\u00fdnn og hugmyndar\u00edkur og kveikti \u00e1huga samstarfsf\u00f3lks \u00e1 \u00fer\u00f3un \u00fej\u00f3nustu og n\u00fdbreytni.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c9g kynntist Emil l\u00edtillega vegna starfa minna og svo hitti \u00e9g hann \u00e1 fundum \u00ed \u00feeim g\u00f3\u00f0a f\u00e9lagsskap, Fr\u00edm\u00fararareglunni. \u00cd \u00fev\u00ed samhengi valdi hann s\u00e9r \u00feessi einkunnaror\u00f0, sem kallast \u00e1 vi\u00f0 vers \u00ed Or\u00f0skvi\u00f0um Sal\u00f3mons: &#8220;Gott mannor\u00f0 er d\u00fdrm\u00e6tara en mikill au\u00f0ur.&#8221;<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c6t\u00ed\u00f0 var bjart yfir Emil. Hann var ma\u00f0ur lj\u00f3ss og birtu. Vi\u00f0m\u00f3ti\u00f0 hl\u00fdtt og handtaki\u00f0 \u00fe\u00e9tt. Sl\u00edk eru a\u00f0alsmerki manna sem eru heilir og hafa yndi af l\u00edfinu og a\u00f0 m\u00e6ta f\u00f3lkinu, sem ver\u00f0ur \u00e1 vegi \u00feeirra.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Breskur fr\u00e6\u00f0ima\u00f0ur, (Iain McGilchrist) hvers b\u00e6kur \u00e9g hef lesi\u00f0 og hlusta\u00f0 \u00e1 fyrirlestra me\u00f0, bendir \u00e1 a\u00f0 til \u00feess a\u00f0 lifa merkingarb\u00e6ru l\u00edfi \u00fe\u00e1 \u00feurfum vi\u00f0 a\u00f0 lifa \u00ed g\u00f3\u00f0u sambandi \u00e1 \u00feremur svi\u00f0um:<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">&#8211; A\u00f0 vera \u00ed g\u00f3\u00f0um tengslum vi\u00f0 mannl\u00edfi\u00f0, hi\u00f0 f\u00e9lagslega \u00ed ver\u00f6ldinni og a\u00f0 elska n\u00e1ungann.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">&#8211; A\u00f0 vera \u00ed n\u00e1num tengslum vi\u00f0 n\u00e1tt\u00faruna og skynja \u00ed hjarta okkar skyldleikann vi\u00f0 umhverfi\u00f0, landi\u00f0, j\u00f6r\u00f0ina.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">&#8211; A\u00f0 vera \u00ed tengslum vi\u00f0 alm\u00e6tti\u00f0, skynja okkur \u00ed hinu st\u00f3ra samhengi og tr\u00faa \u00e1 Gu\u00f0.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Fr\u00e6\u00f0ima\u00f0urinn er l\u00e6knir \u00e1 ge\u00f0svi\u00f0i, hann er jafnframt mennta\u00f0ur \u00ed l\u00edffr\u00e6\u00f0i, b\u00f3kmenntum og heimspeki.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Annar ma\u00f0ur, n\u00fdgenginn, Franz p\u00e1fi, sem l\u00e9st \u00e1 2. \u00ed p\u00e1skum, setti sterkan svip \u00e1 kirkju s\u00edna og haf\u00f0i mikla \u00fatgeislun og \u00e1hrif. \u00deessi or\u00f0 eru h\u00f6f\u00f0 eftir honum:<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c1r drekka ekki eigi\u00f0 vatn.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Tr\u00e9 eta ekki eigin \u00e1vexti.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">S\u00f3lin sk\u00edn ekki \u00e1 sj\u00e1lfa sig.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Bl\u00f3min ilma ekki \u00ed eigin \u00fe\u00e1gu.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">A\u00f0 lifa fyrir a\u00f0ra er n\u00e1tt\u00farul\u00f6gm\u00e1l.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Vi\u00f0 f\u00e6\u00f0umst \u00f6\u00f0rum til stu\u00f0nings.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Og \u00fe\u00e1 breytir engu um hversu erfitt l\u00edfi\u00f0 getur or\u00f0i\u00f0.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">L\u00edfi\u00f0 er gott \u00feegar hamingjan er annars vegar.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">L\u00edfi\u00f0 er enn betra \u00feegar anna\u00f0 f\u00f3lk upplifir hamingju vegna \u00fe\u00edn.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">(Franz p\u00e1fi)<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">L\u00edfi\u00f0 er verkefni, l\u00edfi\u00f0 er \u00fej\u00f3nusta, l\u00edfi\u00f0 er f\u00f3lgi\u00f0 \u00ed \u00fev\u00ed a\u00f0 elska Gu\u00f0 og n\u00e1ungann eins og sj\u00e1lfan sig.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Sk\u00e1tahreyfingin starfar, einmitt \u00e1 \u00feessum svi\u00f0um, mannl\u00edfi, n\u00e1tt\u00faru og tr\u00fa \u00e1 hi\u00f0 st\u00f3ra samhengi alls sem er.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00cd bla\u00f0inu Sk\u00e1tinn \u00ed n\u00f3vember 1931 var m.a. rita\u00f0:<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">&#8220;Vertu vi\u00f0b\u00fainn, \u00fea\u00f0 eru einkunnaror\u00f0 sk\u00e1ta; \u00fea\u00f0 felur \u00ed s\u00e9r l\u00edfsstefnu \u00feess, sem vill ver\u00f0a g\u00f3\u00f0ur og n\u00fdtur ma\u00f0ur. A\u00f0 vera vi\u00f0b\u00fainn hverju, sem a\u00f0 h\u00f6ndum ber og geta fleytt s\u00e9r \u00f3sk\u00f6ddu\u00f0um yfir \u00f3lgusj\u00f3 l\u00edfsins, \u00fea\u00f0 er list, sem aldrei ver\u00f0ur a\u00f0 fullu l\u00e6r\u00f0, \u00fev\u00ed \u00fe\u00f3tt ein b\u00e1ran s\u00e9 sigru\u00f0, \u00fe\u00e1 r\u00eds \u00f3\u00f0ar \u00f6nnur n\u00fd, sem l\u00edka \u00fearf a\u00f0 sigrast \u00e1.&#8221; (T\u00edmarit: Sk\u00e1tinn 8. tbl. 01.11.1931)<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Emil var vins\u00e6ll ma\u00f0ur sem kom v\u00ed\u00f0a vi\u00f0. Hann var fars\u00e6ll g\u00e6fuma\u00f0ur, \u00e1tti g\u00f3\u00f0an l\u00edfsf\u00f6runaut \u00ed sinni elskulegu eiginkonu, B\u00edb\u00ed, sem hann sakna\u00f0i mj\u00f6g. Synir hans og barnab\u00f6rn voru honum til gle\u00f0i og upp\u00f6rvunar, svo og vinir og fyrrum samstarfsmenn.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Einkunnaror\u00f0 sk\u00e1ta eru: Vertu vi\u00f0b\u00fainn. Vi\u00f0 \u00feurfum \u00e1 hverri t\u00ed\u00f0 a\u00f0 vera vi\u00f0b\u00fain a\u00f0 m\u00e6ta \u00fev\u00ed sem a\u00f0 h\u00f6ndum ber og takast \u00e1 vi\u00f0 \u00e1skoranir l\u00edfsins. \u00cd \u00feeim efnum skiptir \u00f6llu a\u00f0 eiga traustan grunn og vera tengdur himninum og gildum hans.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Fyrirheit Gu\u00f0 er a\u00f0 vi\u00f0 eigum v\u00edsa vist hj\u00e1 honum \u00ed himninum, \u00fear sem ver\u00f0ur r\u00fam handa \u00f6llum. Kirkjan okkar er almenn, eins og segir \u00ed Postullegu tr\u00faarj\u00e1tningunni, \u00f6llum opin en geta m\u00e1 \u00feess a\u00f0 or\u00f0i\u00f0 almenn er \u00fe\u00fd\u00f0ing \u00e1 or\u00f0inu ka\u00fe\u00f3lsk. \u00dej\u00f3\u00f0kirkjan okkar er opin eins og a\u00f0rar kirkjudeildir sem ekki fara \u00ed manngreinar\u00e1lit.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Um \u00feessa v\u00eddd kirkjunnar orti s\u00e9ra Fri\u00f0rik Fri\u00f0riksson:<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00cd hennar h\u00e1u s\u00f6lum<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">b\u00fdr heil\u00f6g, frelsu\u00f0 dr\u00f3tt,<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00ed tr\u00fa og einum anda<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">h\u00fan \u00e1 sinn mikla \u00fer\u00f3tt.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00dear r\u00famast allir inni<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">me\u00f0 einum hug og s\u00e1l<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">og s\u00e9rhver kynsl\u00f3\u00f0 s\u00e9st \u00fear<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">og s\u00e9rhvert heyrist m\u00e1l.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Gistih\u00fas himinsins er ekki fullb\u00f3ka\u00f0. \u00dear &#8220;r\u00famast allir inni&#8221; og engum ver\u00f0ur v\u00edsa\u00f0 \u00ed kalt fj\u00e1rh\u00fas.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Vi\u00f0 kve\u00f0jum Gu\u00f0bj\u00f6rn Emil Gu\u00f0mundsson, me\u00f0 vir\u00f0ingu og \u00fe\u00f6kk. Honum sem t\u00f3k \u00e1 m\u00f3ti \u00fe\u00fasundum ver\u00f0ur \u00e1n efa vel teki\u00f0 \u00ed m\u00f3tt\u00f6ku himinsins.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Blessu\u00f0 s\u00e9 minning Emils og Gu\u00f0 blessi okkur \u00f6ll sem enn erum \u00e1 l\u00edfsveginum \u00ed leit a\u00f0 gistingu e\u00f0a erum \u00feegar b\u00fain a\u00f0 b\u00f3ka okkur \u00ed \u00fev\u00ed besta og mesta skj\u00f3li sem ver\u00f6ldin \u00feekkir.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Amen.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>fv. h\u00f3telstj\u00f3ri B\u00e1lf\u00f6r fr\u00e1 Fossvogskapellu m\u00e1nudaginn 28. apr\u00edl 2025 kl. 13 \u00d6rn B\u00e1r\u00f0ur J\u00f3nsson Minningaror\u00f0 +Emil Gu\u00f0mundsson 1933-2025 \u00cd hinni f\u00f6gru Fossvogskapellu kve\u00f0jum vi\u00f0 Emil Gu\u00f0mundsson og \u00fe\u00f6kkum fyrir l\u00edf hans og st\u00f6rf. \u00deetta er s\u00ed\u00f0asta byggingin sem hann dvelur \u00ed \u00e1 l\u00edfsvegi s\u00ednum. L\u00edkja m\u00e1 kapellunni me\u00f0 s\u00ednum f\u00f6gru gluggum og s\u00f6gu \u00feeirra um [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":2,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_jetpack_newsletter_access":"","_jetpack_dont_email_post_to_subs":false,"_jetpack_newsletter_tier_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paywalled_content":false,"_jetpack_hide_featured_image":false,"_jetpack_featured_image_duplicate_dismissed":0,"_jetpack_feature_clip_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":"","jetpack_post_was_ever_published":false},"categories":[7],"tags":[98,231,232,243,291,333,584,640],"class_list":["post-6320","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-minningarord-eulogies","tag-betlehem","tag-gistihus","tag-gisting","tag-gud","tag-heimurinn","tag-jesus","tag-sorg","tag-tru"],"jetpack_sharing_enabled":true,"jetpack_featured_media_url":"","_links":{"self":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/6320","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/users\/2"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcomments&post=6320"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/6320\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fmedia&parent=6320"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcategories&post=6320"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Ftags&post=6320"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}