{"id":623,"date":"2013-07-02T17:08:33","date_gmt":"2013-07-02T17:08:33","guid":{"rendered":"http:\/\/ornbardur.com\/?p=623"},"modified":"2013-07-02T17:08:33","modified_gmt":"2013-07-02T17:08:33","slug":"helgi-mar-arthursson-1951-2013","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/ornbardur.com\/?p=623","title":{"rendered":"Helgi M\u00e1r Arthursson 1951-2013"},"content":{"rendered":"<p><a href=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2013\/07\/helgi-mc3a1r.png\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" src=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2013\/07\/helgi-mc3a1r.png\" class=\"alignleft size-full wp-image-625\" alt=\"Helgi M\u00e1r\" width=\"177\" height=\"249\"><\/a>\u00d6rn B\u00e1r\u00f0ur J\u00f3nsson<\/p>\n<p>Minningaror\u00f0<\/p>\n<p><b>Helgi M\u00e1r Arthursson<\/b><\/p>\n<p>1951-2013<\/p>\n<p>\u00datf\u00f6r fr\u00e1 Neskirkju<\/p>\n<p>\u00feri\u00f0judaginn 2. j\u00fal\u00ed 2013 kl. 13<\/p>\n<p>Jar\u00f0sett \u00ed G\u00f6r\u00f0um \u00e1 \u00c1lftanesi.<\/p>\n<p>R\u00e6\u00f0una er h\u00e6gt a\u00f0 lesa og hlusta \u00e1 h\u00e9r fyrir ne\u00f0an.<\/p>\n<p>S\u00e9rstakar kve\u00f0jur sem b\u00e1rust eru ekki \u00e1 hlj\u00f3\u00f0uppt\u00f6kunni en voru fluttar s\u00ed\u00f0ar \u00ed athf\u00f6ninni og er texti \u00feeirra ne\u00f0anm\u00e1ls.<\/p>\n<p><!--more-->Fyrri hluti uppt\u00f6kunnar &#8211; smelltu fyrir aftan hornklofann!:&nbsp;<\/p>\n<p>[<a href=\"https:\/\/pub-c849b6aaf98340c4bec7b480b0f7ffe9.r2.dev\/2013\/07\/helgi-mc3a1r-arthc3barsson-11.mp3\">Helgi M\u00e1r Arth\u00farsson 1<\/a><a href=\"https:\/\/pub-c849b6aaf98340c4bec7b480b0f7ffe9.r2.dev\/2013\/07\/helgi-mc3a1r-arthc3barsson_take_2.mp3\">]<br \/>\n<\/a><\/p>\n<p>Seinni hluti uppt\u00f6kunnar:&nbsp;<\/p>\n<p>[<a href=\"https:\/\/pub-c849b6aaf98340c4bec7b480b0f7ffe9.r2.dev\/2013\/07\/helgi-mc3a1r-arthc3barsson-2.mp3\">Helgi M\u00e1r Arth\u00farsson_Take_1<\/a><a href=\"https:\/\/pub-c849b6aaf98340c4bec7b480b0f7ffe9.r2.dev\/2013\/07\/helgi-mc3a1r-arthc3barsson_take_1.mp3\">]<br \/>\n<\/a><\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p><strong>Fri\u00f0ur<\/strong> Gu\u00f0s s\u00e9 me\u00f0 ykkur.<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p><i>N\u00fa b\u00ed\u00f0um vi\u00f0 \u00feess a\u00f0 br\u00e1\u00f0um komi<\/i><\/p>\n<p><i>\u00feessi broslausi dagur \u2013 og svo \u00feetta h\u00f6gg.<\/i><\/p>\n<p><i>\u00deegar l\u00edf okkar er a\u00f0 lokum a\u00f0eins<\/i><\/p>\n<p><i>eitt l\u00edti\u00f0 spor \u00ed morgund\u00f6gg.<\/i><\/p>\n<p>\u00deetta erindi \u00far lj\u00f3\u00f0i eftir Matth\u00edas Johannessen var\u00f0 Helga M\u00e1 hugleiki\u00f0 eftir a\u00f0 hann var\u00f0 fyrir reynslu sem breytti l\u00edfi hans.<\/p>\n<p>Og n\u00fa hefur anna\u00f0 h\u00f6gg ri\u00f0i\u00f0 yfir ykkur, \u00e1stvini hans, h\u00f6gg sem breytir \u00f6llu. Ver\u00f6ld ykkar ver\u00f0ur aldrei s\u00f6m.<\/p>\n<p>Helgi M\u00e1r rita\u00f0i l\u00f6ngu s\u00ed\u00f0ar um reynslu s\u00edna af \u00fev\u00ed a\u00f0 f\u00e1 hjarta\u00e1fall:<\/p>\n<p><em>\u201e\u00c9g vissi ekki hvar \u00e9g var og vissi trau\u00f0la hva\u00f0 haf\u00f0i komi\u00f0 fyrir. \u00c9g l\u00e1, sl\u00f6ngum vafinn og sn\u00farum, \u00ed tjaldi, \u00e1n \u00feess a\u00f0 vita til \u00feess a\u00f0 \u00e9g hef\u00f0i fari\u00f0 \u00ed tjald\u00fatilegu og alls ekki innan um f\u00f3lk sem tala\u00f0i tungum. Eina samband mitt vi\u00f0 veruleikann var \u00fe\u00e9tt hn\u00fdttur, og afskaplega fallegur bl\u00f3mv\u00f6ndur, ekki st\u00f3r, en fagmannlega ger\u00f0ur. Litbrig\u00f0in gl\u00f6ddu mig. \u00dea\u00f0 var hv\u00edtt \u00ed honum og bl\u00e1tt, og rautt.\u201c<\/em><\/p>\n<p>\u00deetta er minning Helga \u00fear sem hann haf\u00f0i \u00ed h\u00f6ndum bl\u00f3mv\u00f6nd forsetafr\u00faarinnar heitinnar.<\/p>\n<p>Og enn tala bl\u00f3min sm\u00e1 og n\u00fa til okkar sem kve\u00f0jum \u00feennan v\u00e6na dreng og vitra, bl\u00f3min hv\u00edt og bl\u00e1, og rau\u00f0 &#8211; og gul og \u00ed fleiri litum.<\/p>\n<p>Helgi var \u00ed Finnlandi sem fj\u00f6lmi\u00f0lama\u00f0ur a\u00f0 fylgjast me\u00f0 forseta \u00cdslands 1997 \u00feegar hann f\u00e9kk hjarta\u00e1fall. Hann var staddur \u00ed forsetah\u00f6llinni \u00fear sem allur vi\u00f0b\u00fana\u00f0ur var til sta\u00f0ar og sj\u00fakrab\u00edll \u00e1 n\u00e6sta leyti. En l\u00edklega lif\u00f0i hann fyrir snarr\u00e6\u00f0i \u00edslensks starfsf\u00e9laga s\u00edns, sem skynja\u00f0i hva\u00f0 haf\u00f0i gerst og kalla\u00f0i eftir hj\u00e1lp. Og aftur talar Helgi M\u00e1r:<\/p>\n<p><em>\u201e\u00c9g var of veikbur\u00f0a til a\u00f0 l\u00e1ta hjartaslagi\u00f0 fara \u00ed taugarnar \u00e1 m\u00e9r \u00e1 me\u00f0an \u00e9g var a\u00f0 jafna mig \u00ed Finnlandi. \u00dea\u00f0 var ekki fyrr en \u00e9g kom heim a\u00f0 \u00fea\u00f0 f\u00f3r a\u00f0 renna upp fyrir m\u00e9r a\u00f0 n\u00fa hef\u00f0i \u00fea\u00f0 strik veri\u00f0 sett \u00ed reikning minn gagnvart Gu\u00f0i sem \u00e9g yr\u00f0i a\u00f0 taka tillit til.\u201c<\/em><\/p>\n<p>L\u00edfi\u00f0 var breytt en Helgi M\u00e1r leit aldrei \u00e1 sig sem sj\u00fakling enda \u00fe\u00f3tt hann hef\u00f0i or\u00f0i\u00f0 fyrir \u00feessari gr\u00ed\u00f0arlegu reynslu og svo fengi\u00f0 bl\u00f3\u00f0tappa, fyrst \u00e1ratug s\u00ed\u00f0ar og oft \u00fear \u00e1 eftir. Hann \u00e1tti alltaf l\u00edfi\u00f0 &#8211; og vonina.<\/p>\n<p>Hann nefndi Gu\u00f0 og reikning sinn gangvart honum. Hvernig \u00e6tli b\u00f3khaldi\u00f0 s\u00e9 \u00e1 \u00feeim b\u00e6? \u00c9g tr\u00fai \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fear s\u00e9 meira stroka\u00f0 \u00fat en h\u00e9r \u00ed heimi, afskrifa\u00f0, fyrirgefi\u00f0, gleymt en \u00fe\u00f3 ekki \u00e1 neinum skilanefndakj\u00f6rum, held \u00e9g. Gu\u00f0 getur gleymt. Hann gleymir \u00fev\u00ed sem hann vill gleyma en man allt anna\u00f0. Hann gleymir \u00fev\u00ed sem vi\u00f0 bi\u00f0jum hann a\u00f0 fyrirgefa okkur &#8211; og man \u00fea\u00f0 aldrei aftur enda \u00fe\u00f3tt vi\u00f0 getum ekki gleymt sumu.<\/p>\n<p>En n\u00fa er ekki t\u00edmi til a\u00f0 hugsa um \u00fea\u00f0 b\u00f3khald heldur r\u00e9ttl\u00e6tisb\u00f3khaldi\u00f0 okkar. \u00dear er halli \u00e1 \u00f6llu \u00fev\u00ed okkur finnst \u00fea\u00f0 svo \u00f3r\u00e9ttl\u00e1tt \u00feegar sl\u00edkur ma\u00f0ur sem Helgi M\u00e1r er burtkalla\u00f0ur langt fyrir aldur fram.<\/p>\n<p>\u00cd svipnum hans s\u00e9 \u00e9g \u00e6sku okkar<\/p>\n<p>og eitthva\u00f0 svo vi\u00f0kv\u00e6man sumarstreng,<\/p>\n<p>vi\u00f0 skiljum vart \u00feessi \u00f3bl\u00ed\u00f0u \u00f6rl\u00f6g<\/p>\n<p>sem \u00e6tla s\u00e9r, vinur, \u00feinn g\u00f3\u00f0a dreng. (MJ)<\/p>\n<p>Og n\u00fa hefur \u00fea\u00f0 ri\u00f0i\u00f0 yfir og vi\u00f0 erum \u00f6ll h\u00f6ggdofa af harmi.<\/p>\n<p>En hver var hann \u00feessi ma\u00f0ur sem sag\u00f0ist hafa f\u00e6\u00f0st fyrir nor\u00f0an nor\u00f0urp\u00f3linn?<\/p>\n<p>Helgi M\u00e1r f\u00e6ddist \u00e1 \u00cdsafir\u00f0i 19. febr\u00faar 1951 og \u00ed h\u00fasi \u00ed P\u00f3lg\u00f6tu 6 r\u00e9tt fyrir nor\u00f0an veitingah\u00fasi\u00f0 Nor\u00f0urp\u00f3l sem \u00fe\u00e1 var en \u00f3lst upp \u00e1 Hl\u00ed\u00f0arveginu, var Hl\u00ed\u00f0arvegsp\u00faki eins og \u00fea\u00f0 heitir \u00fear \u00ed b\u00e6.<\/p>\n<p>Helgi M\u00e1r var sonur Arthurs Gestssonar, sem er l\u00e1tinn f. 12. jan\u00faar 1927, d. 6. september 2009 og \u00d6nnu Mar\u00edu Helgad\u00f3ttur, sem kve\u00f0ur son sinn f. 15. september 1927. Systkini hans eru El\u00edn Alma, f. 21. febr\u00faar 1956 og Erlingur, f. 20. febr\u00faar 1961. Helgi M\u00e1r hlaut gott uppeldi g\u00f3\u00f0ra foreldra \u00ed \u00f6flugum b\u00e6 \u00fear sem st\u00f3r fr\u00e6ndgar\u00f0ur bj\u00f3.<\/p>\n<p>Eftirlifandi eiginkona Helga M\u00e1s er Sigr\u00ed\u00f0ur \u00c1rnad\u00f3ttir, f. 24. ma\u00ed 1960. \u00deeirra b\u00f6rn eru Gunnar Arth\u00far Helgason, f. 23. jan\u00faar 1994 og El\u00edn \u00de\u00f3ra Helgad\u00f3ttir, f. 26. j\u00fal\u00ed 1996. Helgi M\u00e1r \u00e1tti fyrir \u00ferj\u00e1r d\u00e6tur.<\/p>\n<p>\u00d6nnu Mar\u00edu Helgad\u00f3ttur, f. 1. n\u00f3vember 1971. H\u00fan \u00e1 d\u00e6turnar Rakel Gunhild og S\u00f6lku Rigmor me\u00f0 Boris Schi\u00f8ler. M\u00f3\u00f0ir \u00d6nnu Mar\u00edu er Brynja Birgisd\u00f3ttir.<\/p>\n<p>Rebekku Andr\u00ednud\u00f3ttur Humphris, f. 26. jan\u00faar 1981 og er maki hennar Christopher David Humphris.<\/p>\n<p>S\u00f6ru Andr\u00ednud\u00f3ttur, f. 14. apr\u00edl 1983. Maki hennar er Rasmus Poulsen og d\u00f3ttir \u00feeirra Petra Rebekka Rasmusard\u00f3ttir. M\u00f3\u00f0ir \u00feeirra Rebekku og S\u00f6ru er Andr\u00edna G. J\u00f3nsd\u00f3ttir.<\/p>\n<p>\u00c9g man vel eftir \u00feessu h\u00e1vaxna og hugsi str\u00e1k sem gekk oft framhj\u00e1 heimili m\u00ednu \u00e1 lei\u00f0 sinni til og fr\u00e1 sk\u00f3la heima \u00e1 \u00cdsafir\u00f0i. Hann var myndarlegur og fr\u00ed\u00f0ur, kl\u00e1r \u00ed f\u00f3tbolta og n\u00e1msma\u00f0ur g\u00f3\u00f0ur. Hann var alla t\u00ed\u00f0 brosmildur og \u00f6gn sposkur \u00e1 svipinn fannst m\u00e9r \u00e1n \u00feess a\u00f0 undir byggi neitt anna\u00f0 en gott en kannski eitthva\u00f0 \u00edr\u00f3n\u00edskt. \u00deetta var \u00e1 t\u00edmum B\u00edtlanna og hann 13 og \u00e9g 15. \u00de\u00e1 var tveggja \u00e1ra munur sem heil kynsl\u00f3\u00f0 v\u00e6ri \u00e1 milli og svo var \u00e9g farinn \u00far b\u00e6num su\u00f0ur \u00ed n\u00e1m \u00feegar hann kom fram \u00ed bl\u00f3majakkanum sem mamma hans sauma\u00f0i me\u00f0 bl\u00fandum og \u00f6llu regal\u00eda B\u00edtlanna og s\u00f6ng \u00ed hlj\u00f3msveitinni Sie me\u00f0 \u00fe\u00fdskum rith\u00e6tti.<\/p>\n<p>Hann f\u00f3r nor\u00f0ur \u00ed Menntas\u00f3lann \u00e1 Akureyri eins og margir \u00cdsfir\u00f0ingar ger\u00f0u \u00e1\u00f0ur en Menntask\u00f3linn var stofna\u00f0ur \u00fear \u00ed b\u00e6 og lauk st\u00fadentspr\u00f3fi fr\u00e1 MA \u00e1ri\u00f0 1971 og nam s\u00e1lar- og b\u00f3kmenntafr\u00e6\u00f0i vi\u00f0 H\u00e1sk\u00f3la \u00cdslands og Kaupmannahafnarh\u00e1sk\u00f3la fr\u00e1 1971-1978. Hann var kennari vi\u00f0 Menntask\u00f3lann \u00e1 \u00cdsafir\u00f0i 1978-1980. Hann var alla t\u00ed\u00f0 mikill \u00cdsfir\u00f0ingur \u00ed s\u00e9r og geymdi fj\u00f6llin og hamrabeltin \u00ed hjarta s\u00e9r og bar \u00feau \u00f6ll me\u00f0 s\u00e9r hvert sem hann f\u00f3r eins og sannir synir og d\u00e6tur Vestfjar\u00f0a gera. Kj\u00e1lkinn er alltaf me\u00f0 \u00ed farteskinu me\u00f0 s\u00ednum minningum um d\u00f3mkirkjur \u00ed himinh\u00e1um klettableltum, berjam\u00f3 og erfi\u00f0a fjallvegi. Helgi rita\u00f0i eitt sinn um vesturfer\u00f0 me\u00f0 Siggu og b\u00f6rnunum og s\u00e9rstaklega um \u00deingmannahei\u00f0i me\u00f0 \u00feessum or\u00f0um:<\/p>\n<p><em>\u201eVar hei\u00f0in s\u00fa martr\u00f6\u00f0 efnal\u00edtilla bifrei\u00f0aeigenda \u00e1 li\u00f0inni \u00f6ld, en a\u00f0 sama skapi \u00e1v\u00edsun \u00e1 uppgrip b\u00edlavi\u00f0ger\u00f0armanna \u00e1 \u00feeirri t\u00ed\u00f0. \u00deekkt minni \u00far \u00feessum fer\u00f0um voru hlj\u00f3\u00f0k\u00fatar \u00far \u00f6llum tegundum bifrei\u00f0a sem l\u00e1gu eins og fyrir tilviljun \u00ed vegkantinum \u00e1 \u00feessari lei\u00f0, stundum tveir og \u00fer\u00edr saman, r\u00e9tt eins og menn hef\u00f0u \u00e1kve\u00f0i\u00f0 a\u00f0 skipta um k\u00fat \u00fati \u00ed n\u00e1tt\u00farunni.\u201c<\/em><\/p>\n<p>Helgi M\u00e1r s\u00fdndi \u00fea\u00f0 snemma a\u00f0 hann var einkar ritf\u00e6r. Hann var vel lesinn og fr\u00f3\u00f0ur um margt. Helgi M\u00e1r haf\u00f0i brennandi \u00e1huga \u00e1 \u00fej\u00f3\u00f0f\u00e9lagsm\u00e1lum, s\u00f6gu, \u00e6ttfr\u00e6\u00f0i, b\u00f3kmenntum og atbur\u00f0um l\u00ed\u00f0andi stundar. \u00cd honum var strengur sk\u00e1lds og hann \u00e1tti einkar l\u00e9tt me\u00f0 a\u00f0 n\u00e1 utan um m\u00e1l og koma \u00feeim fyrir \u00ed l\u00e6silegum texta. Hann h\u00e9lt dagb\u00f3k \u00e1rum saman og skrifa\u00f0i margt gott og spakt.<\/p>\n<p>Svo var hann alla t\u00ed\u00f0 \u00f6gn str\u00ed\u00f0inn prakkari.<\/p>\n<p>B\u00f6rnin hans yngstu brostu \u00feegar \u00feau rifju\u00f0u upp hva\u00f0 hann haf\u00f0i mikla gle\u00f0i af a\u00f0 fylgjast me\u00f0 n\u00e1mi \u00feeirra. \u201eEf pabbi var spu\u00f0ur, \u00fe\u00e1 kom allt of miki\u00f0!\u201c, s\u00f6g\u00f0u \u00feau.<\/p>\n<p>Hann var bla\u00f0ama\u00f0ur \u00e1 Al\u00fe\u00fd\u00f0ubla\u00f0inu og vikubla\u00f0inu N\u00fdju landi 1980 og 1981, s\u00e1 um \u00fatg\u00e1fu, fr\u00e6\u00f0slu- og uppl\u00fdsingam\u00e1l fyrir BSRB 1982-1986 og var ritstj\u00f3ri BSRB t\u00ed\u00f0inda. Hann var bla\u00f0ama\u00f0ur og ritstj\u00f3ri \u00e1 Helgarp\u00f3stinum til 1988. Helgi M\u00e1r var eftir \u00fea\u00f0 fr\u00e9ttama\u00f0ur \u00e1 St\u00f6\u00f0 2 og s\u00ed\u00f0ar \u00ed Sj\u00f3nvarpinu, \u00fear sem hann var me\u00f0al annars \u00feingfr\u00e9ttama\u00f0ur. A\u00f0 \u00feeim t\u00edma loknum h\u00f3f hann st\u00f6rf \u00ed heilbrig\u00f0isr\u00e1\u00f0uneytinu \u00e1ri\u00f0 1998 og var uppl\u00fdsingafulltr\u00fai og s\u00ed\u00f0ar skrifstofustj\u00f3ri \u00fear til \u00e1rsloka 2010 \u00feegar velfer\u00f0arr\u00e1\u00f0uneyti\u00f0 var stofna\u00f0. Hann sat \u00ed stj\u00f3rn Bla\u00f0amannaf\u00e9lags \u00cdslands um \u00e1rabil.<\/p>\n<p>\u00c6skust\u00f6\u00f0varnar fyrir vestan voru honum afar k\u00e6rar og saga forfe\u00f0ra hans og m\u00e6\u00f0ra var honum \u00e1vallt hugleikin. Hann var alla t\u00ed\u00f0 mikill \u00e1hugama\u00f0ur um lj\u00f3smyndun og eftir hann liggja \u00fe\u00fasundir mynda en f\u00e1ar af honum sj\u00e1lfum.<\/p>\n<p>Vi\u00f0fangsefnin og \u00e1hugam\u00e1lin s\u00fdna vel hversu vel Helgi var alla t\u00ed\u00f0 tengdur vi\u00f0 f\u00f3lk og fj\u00f6r\u00f0, s\u00f6gu og menningu \u00feessa lands. Hann var jar\u00f0bundinn en um lei\u00f0 himintengdur me\u00f0 tilfinningu fyrir samhengi hlutanna. Hann \u00e1tti au\u00f0velt me\u00f0 a\u00f0 greina hismi\u00f0 fr\u00e1 kjarnanum og sj\u00e1 hva\u00f0 skipti mestu. Hann elska\u00f0i l\u00edfi\u00f0 og \u00fer\u00e1\u00f0i a\u00f0 lifa lengur en svo kom h\u00f6ggi\u00f0.<\/p>\n<p>L\u00edfi\u00f0 er d\u00fdrm\u00e6tt en \u00fea\u00f0 er svo stutt. Vakna \u00e9g \u00e1 morgun? Ver\u00f0 \u00e9g h\u00e9r eftir m\u00e1nu\u00f0? Fagna \u00e9g n\u00e6sta afm\u00e6li? Hven\u00e6r kemur h\u00f6ggi\u00f0? Hvernig ver\u00f0 \u00e9g kvaddur, hvernig ver\u00f0um vi\u00f0 kv\u00f6dd?<\/p>\n<p>Vi\u00f0 uxum \u00far grasi me\u00f0 glitrandi vonir<\/p>\n<p>en gleymdum oftast a\u00f0 hyggja a\u00f0 \u00fev\u00ed<\/p>\n<p>a\u00f0 \u00fea\u00f0 er ekki sj\u00e1lfsagt a\u00f0 s\u00f3lin r\u00edsi<\/p>\n<p>\u00far s\u00e6 hvern einasta dag eins og n\u00fd. (MJ)<\/p>\n<p>Vinkona Helga fr\u00e1 n\u00e1ms\u00e1rum hans \u00ed Danm\u00f6rku, Lisbeth Nebelong, sem er or\u00f0in ver\u00f0launarith\u00f6fundur og \u00fea\u00f0 a\u00f0 vissu marki fyrir atbeina Helga, hvatningu og r\u00e1\u00f0 a\u00f0 s\u00f6gn sk\u00e1ldkonunnar sj\u00e1lfrar, sendi Sigr\u00ed\u00f0i fallegt br\u00e9f. H\u00fan segir \u00fear hvernig h\u00fan \u00f3f or\u00f0um og reynslu Helga og pers\u00f3num \u00far fj\u00f6lskyldu hans inn \u00ed eina sk\u00e1ldsagna sinna sem er \u00ed sm\u00ed\u00f0um og koma mun \u00fat \u00e1 n\u00e6sta \u00e1ri. H\u00fan gerist \u00ed F\u00e6reyjum. Helgi f\u00e9kk a\u00f0 sj\u00e1 dr\u00f6g a\u00f0 s\u00f6gunni er \u00feau hittust \u00ed K\u00f6ben \u00ed n\u00f3vember 2011. Lisbeth skrifar:<\/p>\n<p><em>\u201eEn n\u00fa mun hann ekki lesa endi s\u00f6gunnar, en innbl\u00e1stur hans, andi hans ef svo m\u00e1 segja, er \u00fear me\u00f0, og einnig bein tilvitnun &#8211; \u00far kafla sem hann skrifa\u00f0i m\u00e9r \u00feegar \u00e9g var\u00f0 fimmtug og \u00e9g nota um vin\u00e1ttusamband tveggja sk\u00e1ldsagnarpers\u00f3na, Eriks og K\u00e1ra: \u201e\u00cd \u00ferj\u00e1t\u00edu \u00e1r h\u00f6fum vi\u00f0 veri\u00f0 samfer\u00f0af\u00f3lk hvort \u00ed s\u00ednu landi.\u201c<\/em><\/p>\n<p>H\u00e9r eru vinir saman komnir, \u00e1stvinir og samfer\u00f0af\u00f3lk Helga M\u00e1s. Hann er horfinn en vi\u00f0 eigum minningarnar. Saga hans er ekki \u00e1 enda \u00fev\u00ed vi\u00f0 h\u00f6ldum henni \u00e1fram me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 minnast hans og tala um hann. \u00deannig h\u00f6ldum vi\u00f0 \u00fev\u00ed \u00e1fram sem Gu\u00f0 hefur skapa\u00f0. Vi\u00f0 sk\u00f6pum veruleikann me\u00f0 or\u00f0um okkar og ath\u00f6fnum, sk\u00f6pum \u00feeim eil\u00edf\u00f0 sem horfin eru me\u00f0 minningum okkar, or\u00f0um og s\u00f6gum. Vi\u00f0 og hann erum enn samfer\u00f0af\u00f3lk, hann \u00ed sinni v\u00eddd og tilveru og vi\u00f0 h\u00e9r \u00ed \u00feessum heimi t\u00edmans og tregans, uns vi\u00f0 s\u00f6fnumst \u00f6ll \u00fear sem hann er n\u00fa, \u00e9g og \u00fe\u00fa, samfer\u00f0af\u00f3lk \u00e1 s\u00f6mu lei\u00f0.<\/p>\n<p>Og enn m\u00e6lir sk\u00e1ldi\u00f0:<\/p>\n<p>Og ver\u00f6ldin kom eins og vorbj\u00f6rt n\u00f3ttin<\/p>\n<p>me\u00f0 vinalegt bros og gle\u00f0i til \u00fe\u00edn,<\/p>\n<p>og l\u00edfi\u00f0 kom einnig me\u00f0 \u00f3tal drauma<\/p>\n<p>\u00ed \u00f3v\u00e6nta franska heims\u00f3kn til m\u00edn. (MJ)<\/p>\n<p>L\u00edfi\u00f0 er d\u00e1samlegt \u00fer\u00e1tt fyrir allt og enda \u00fe\u00f3tt sorgin gisti n\u00fa hug og hjarta er enn von um bjarta daga og g\u00f3\u00f0a \u00ed \u00fej\u00f3nustu vi\u00f0 Gu\u00f0 og samfer\u00f0af\u00f3lk. Erfi\u00f0ast vi\u00f0 a\u00f0 kve\u00f0ja \u00feetta l\u00edf fyrir f\u00f3lk \u00e1 besta aldri er l\u00edklega a\u00f0 kve\u00f0ja b\u00f6rnin og \u00e1str\u00edkan maka. Sigr\u00ed\u00f0ur hefur&nbsp; sta\u00f0i\u00f0 me\u00f0 manni s\u00ednumn \u00ed gegnum \u00feykkt og \u00feunnt \u00e1samt b\u00f6rnum \u00feeirra, systkinum og m\u00f3\u00f0ur Helga. \u00deegar Sigga s\u00f6\u00f0la\u00f0i um og f\u00f3r \u00ed l\u00f6gfr\u00e6\u00f0in\u00e1m sagi\u00f0 Helgi: \u201e\u00c9g s\u00e9 um \u00feig n\u00fana og svo s\u00e9r\u00f0 \u00fe\u00fa um mig.\u201c \u00deau or\u00f0 r\u00e6ttust en \u00fe\u00f3 me\u00f0 \u00f6r\u00f0um h\u00e6tti en \u00e6tla\u00f0 var.<\/p>\n<p>Sigr\u00ed\u00f0ur skrifa\u00f0i m\u00e9r og sag\u00f0i:<\/p>\n<p><em>\u201eFyrst og s\u00ed\u00f0ast voru \u00fea\u00f0 b\u00f6rnin. \u00deau voru honum allt. Hann \u00fer\u00e1\u00f0i svo a\u00f0 sj\u00e1 \u00feau vaxa \u00far grasi og komast til manns en \u00f3tta\u00f0ist a\u00f0 hann fengi ekki a\u00f0 vera hj\u00e1 okkur lengi.<\/em><\/p>\n<p><em>Helgi vildi taka daginn snemma. Krakkarnir og \u00e9g hl\u00f3gum d\u00e1tt \u00feegar hann sag\u00f0i \u00ed fr\u00edum \u201en\u00fa t\u00f6kum vi\u00f0 daginn snemma\u201c en \u00fe\u00e1 vildum vi\u00f0 (kannski bara \u00e9g) einmitt sofa \u00fat og taka daginn seint. Hann t\u00f3k daginn snemma \u00feegar hann lag\u00f0i upp \u00ed s\u00ed\u00f0ustu fer\u00f0ina &#8211; allt of snemma.\u201c<\/em><\/p>\n<p>\u00dei\u00f0, k\u00e6ra Sigr\u00ed\u00f0ur, Gunnar Arth\u00far og El\u00edn \u00de\u00f3ra og systurnar eigi\u00f0 l\u00edfi\u00f0 framundan me\u00f0 \u00farvinnslu \u00far missinum, me\u00f0 t\u00e1rum og trega en l\u00edka brosi og hl\u00e1tri yfir g\u00f3\u00f0um minningum um einstakan eiginmann og f\u00f6\u00f0ur. \u00dei\u00f0 munu\u00f0 nj\u00f3ta stu\u00f0nings okkar allra og s\u00e9rstaklega \u00feeirra sem n\u00e6stir standa. Og k\u00e6ra, Anna, vi\u00f0 skynjum \u00f6ll a\u00f0 \u00fea\u00f0 er erfitt a\u00f0 sj\u00e1 \u00e1 eftir syni s\u00ednum. Vi\u00f0 vitum \u00f6ll a\u00f0 foreldrar eiga ekki a\u00f0 \u00feurfa a\u00f0 kve\u00f0ja b\u00f6rnin s\u00edn og ung b\u00f6rn ekki foreldri sitt. En vilji okkar r\u00e6\u00f0ur v\u00edst litlu \u00feegar sj\u00fakd\u00f3mar herja sem mannf\u00f3lki r\u00e6\u00f0ur ekki vi\u00f0 me\u00f0 l\u00e6rd\u00f3mi og \u00ferotlausri leit a\u00f0 lausnum.<\/p>\n<p><em>\u201eHva\u00f0 eigum v\u00e9r \u00fe\u00e1 a\u00f0 segja vi\u00f0 \u00feessu?\u201c<\/em><\/p>\n<p>sag\u00f0i postulinn og b\u00e6tti vi\u00f0:<\/p>\n<p>\u201e<em>Ef Gu\u00f0 er me\u00f0 oss, hver er \u00fe\u00e1 \u00e1 m\u00f3ti oss? Hann sem \u00feyrmdi ekki s\u00ednum eigin syni, heldur framseldi hann fyrir oss alla, hv\u00ed skyldi hann ekki l\u00edka gefa oss allt me\u00f0 honum?\u201c<\/em><\/p>\n<p>J\u00e1, vi\u00f0 eigum allt me\u00f0 honum, eigum l\u00edfi\u00f0 og l\u00edka eil\u00edf\u00f0ina sj\u00e1lfa vegna \u00feess a\u00f0 hann er \u00fear, hann sem sag\u00f0i:<\/p>\n<p><em>\u201e\u00c9g lifi og \u00fe\u00e9r munu\u00f0 lifa.\u201c<\/em><\/p>\n<p>\u00cd honum er vonin, honum sem \u00e1stvinur okkar var helga\u00f0ur sem \u00f3m\u00e1lga barn og v\u00edg\u00f0ur \u00feeirri eil\u00edf\u00f0 sem hann n\u00fa gistir og vi\u00f0 munum gista me\u00f0 honum \u00ed fyllingu t\u00edmans.<\/p>\n<p>Og jafnvel \u00fe\u00f3tt l\u00edfi\u00f0 s\u00e9&nbsp; bara \u201eeitt l\u00edti\u00f0 spor \u00ed morgund\u00f6gg\u201c \u00fe\u00e1 \u00e1 \u00fea\u00f0 s\u00e9r vi\u00f0reisnarvon skv. or\u00f0um sk\u00e1ldsins Einars Benediktssonar:<\/p>\n<p>Vort l\u00edf, sem svo stutt og stopult er,<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 stefnir \u00e1 \u00e6\u00f0ri lei\u00f0ir.<\/p>\n<p>Og svo a\u00f0 lokum skulum vi\u00f0 halda \u00ed vonina sem lesa m\u00e1 \u00far or\u00f0um Lennons \u00ed okkar samhengi, n\u00fana, enda \u00fe\u00f3tt \u00feau haf\u00f0i veri\u00f0 s\u00f6g\u00f0 af allt \u00f6\u00f0ru tilefni og \u00ed allt \u00f6\u00f0ru samhengi, or\u00f0in \u00far laginu sem Helgi M\u00e1r h\u00e9lt svo miki\u00f0 upp \u00e1:<\/p>\n<p>\u201eI\u2019m Only Sleeping\u201c.<\/p>\n<p>Gu\u00f0 blessi minningu Helga M\u00e1s Arth\u00farssonar og Gu\u00f0 blessi \u00feig. Amen.<\/p>\n<p>&#8211; &#8211; &#8211;<\/p>\n<p>Jar\u00f0sett \u00ed G\u00f6r\u00f0um \u00e1 \u00c1lftanesi.<\/p>\n<p>Erfidrykkja \u00e1\u00f0ur en fari\u00f0 ver\u00f0ur \u00ed gar\u00f0inn.<\/p>\n<p>R\u00e6\u00f0an \u00e1 vefnum.<\/p>\n<p>&#8211; &#8211; &#8211;<\/p>\n<p>Flytja \u00feessar kve\u00f0jur eftir lagi\u00f0 I\u2019m Only Sleeping og \u00e1 undan Miskunnarb\u00e6n og Lofs\u00f6gn S\u00edmeons.<\/p>\n<p><strong>Kve\u00f0jur fr\u00e1:<\/strong><\/p>\n<p>Magn\u00fasi J\u00f3hannessyni \u00ed Troms\u00f6 og konu hans Ragnhei\u00f0i Hermannsd\u00f3ttur sem \u00feakka g\u00f3\u00f0 kynni og samverustundir allt fr\u00e1 bernskud\u00f6gum;<\/p>\n<p>fr\u00e1 J\u00f3hanni P\u00e1li S\u00edmonarsyni sem er \u00e1 sj\u00f3 og \u00feakkar Helga g\u00f3\u00f0 r\u00e1\u00f0 \u00ed bar\u00e1ttunni fyrir betra \u00fej\u00f3\u00f0f\u00e9lagi;<\/p>\n<p>fr\u00e1 Vilbergi og \u00c1gotu \u00ed Ungverjalandi sem \u00feakka vin\u00e1ttu allt fr\u00e1 \u00e6skud\u00f6gum \u00e1 \u00cdsafir\u00f0i og samskipti \u00ed gengum t\u00f3nlistarsk\u00f3lann Do-Re-Mi og allar myndirnar sem Helgi M\u00e1r t\u00f3k \u00e1 t\u00f3nleikum nemenda;<\/p>\n<p>fr\u00e1 vinahj\u00f3num, Gu\u00f0r\u00fanu Theod\u00f3rsd\u00f3ttur og Kristj\u00e1ni G. Bj\u00f6rnssyuni, Gu\u00f0r\u00fanu og Didda, sem eru st\u00f6dd \u00ed BNA.<\/p>\n<p><strong>Lj\u00f3\u00f0i\u00f0 <\/strong><\/p>\n<p><strong><i>Minning um dreng&nbsp;<\/i><\/strong><\/p>\n<p>sem fl\u00e9tta\u00f0 var inn \u00ed minningaror\u00f0in er eftir Matth\u00edas Johannessen. Helgi M\u00e1r skrifa\u00f0i um reynslu s\u00edna eftir hjarta\u00e1falli\u00f0 og sag\u00f0i:<\/p>\n<p>\u201eOg tilfinningin sem sm\u00e1m saman kviknar \u00ed manni eftir \u00e1falli\u00f0, hvernig er h\u00fan? H\u00fan er eins og dj\u00fapvitur Matth\u00edas:<\/p>\n<p><i>N\u00fa b\u00ed\u00f0um vi\u00f0 \u00feess a\u00f0 br\u00e1\u00f0um komi<\/i><\/p>\n<p><i>\u00feessi broslausi dagur \u2013 og svo \u00feetta h\u00f6gg.<\/i><\/p>\n<p><i>\u00deegar l\u00edf okkar er a\u00f0 lokum a\u00f0eins<\/i><\/p>\n<p><i>eitt l\u00edti\u00f0 spor \u00ed morgund\u00f6gg.<\/i><\/p>\n<p>H\u00e9r er lj\u00f3\u00f0i\u00f0 \u00ed heild:<\/p>\n<p><strong>MINNING UM DRENG<\/strong><\/p>\n<p>\u00cd svipnum hans s\u00e9 \u00e9g \u00e6sku okkar<\/p>\n<p>og eitthva\u00f0 svo vi\u00f0kv\u00e6man sumarstreng,<\/p>\n<p>vi\u00f0 skiljum vart \u00feessi \u00f3bl\u00ed\u00f0u \u00f6rl\u00f6g<\/p>\n<p>sem \u00e6tla s\u00e9r, vinur, \u00feinn g\u00f3\u00f0a dreng.<\/p>\n<p>Vi\u00f0 uxum \u00far grasi me\u00f0 glitrandi vonir<\/p>\n<p>en gleymdum oftast a\u00f0 hyggja a\u00f0 \u00fev\u00ed<\/p>\n<p>a\u00f0 \u00fea\u00f0 er ekki sj\u00e1lfsagt a\u00f0 s\u00f3lin r\u00edsi<\/p>\n<p>\u00far s\u00e6 hvern einasta dag eins og n\u00fd.<\/p>\n<p>Og ver\u00f6ldin kom eins og vorbj\u00f6rt n\u00f3ttin<\/p>\n<p>me\u00f0 vinalegt bros og gle\u00f0i til \u00fe\u00edn,<\/p>\n<p>og l\u00edfi\u00f0 kom einnig me\u00f0 \u00f3tal drauma<\/p>\n<p>\u00ed \u00f3v\u00e6nta franska heims\u00f3kn til m\u00edn.<\/p>\n<p>N\u00fa b\u00ed\u00f0um vi\u00f0 \u00feess a\u00f0 br\u00e1\u00f0um komi<\/p>\n<p>\u00feessi broslausi dagur \u2013 og svo \u00feetta h\u00f6gg.<\/p>\n<p>\u00deegar l\u00edf okkar er a\u00f0 lokum a\u00f0eins<\/p>\n<p>eitt l\u00edti\u00f0 spor \u00ed morgund\u00f6gg.<\/p>\n<p>Tveggja bakka ve\u00f0ur<br \/>\nLj\u00f3\u00f0ab\u00f3k eftir Matth\u00edas Johannessen (1981)<\/p>\n<p><strong>Ritningarlestrar \u00ed ath\u00f6fninni:<\/strong><\/p>\n<p><strong>Jesaja 57.14-16<\/strong><\/p>\n<p><strong>Fri\u00f0ur veitist au\u00f0mj\u00fakum<\/strong><\/p>\n<p>14Einhver segir:<\/p>\n<p>Leggi\u00f0 braut, leggi\u00f0 braut, geri\u00f0 veginn grei\u00f0an,<\/p>\n<p>ry\u00f0ji\u00f0 hindrunum \u00far vegi \u00fej\u00f3\u00f0ar minnar.<\/p>\n<p>15\u00dev\u00ed a\u00f0 svo segir hinn h\u00e1i og upphafni<\/p>\n<p>sem r\u00edkir \u00e6vinlega og ber nafni\u00f0 Heilagur:<\/p>\n<p>\u00c9g b\u00fd \u00e1 h\u00e1um og helgum sta\u00f0<\/p>\n<p>en einnig hj\u00e1 i\u00f0runarfullum og \u00fej\u00f6ku\u00f0um \u00ed anda<\/p>\n<p>til a\u00f0 gl\u00e6\u00f0a \u00fer\u00f3tt hinna l\u00edtill\u00e1tu<\/p>\n<p>og styrkja hjarta \u00fejaka\u00f0ra.<\/p>\n<p>16\u00c9g \u00fereyti ekki deilur eil\u00edflega<\/p>\n<p>og rei\u00f0ist ekki \u00e6vinlega,<\/p>\n<p>annars mundi kjarkur \u00feeirra bila frammi fyrir m\u00e9r<\/p>\n<p>og l\u00edfsandinn sem \u00e9g skapa\u00f0i.<\/p>\n<p><strong>Upphaf Fjallr\u00e6\u00f0u Jes\u00fa sem nefnd hefur veri\u00f0 stj\u00f3rnarskr\u00e1 Gu\u00f0sr\u00edkisins:<\/strong><\/p>\n<p>1\u00deegar Jes\u00fas s\u00e1 mannfj\u00f6ldann gekk hann upp \u00e1 fjalli\u00f0. \u00dear settist hann og l\u00e6risveinar hans komu til hans. 2\u00de\u00e1 h\u00f3f hann a\u00f0 kenna \u00feeim og sag\u00f0i:<\/p>\n<p>3\u201eS\u00e6lir eru f\u00e1t\u00e6kir \u00ed anda<\/p>\n<p>\u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feeirra er himnar\u00edki.<\/p>\n<p>4S\u00e6lir eru syrgjendur<\/p>\n<p>\u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feeir munu hugga\u00f0ir ver\u00f0a.<\/p>\n<p>5S\u00e6lir eru h\u00f3gv\u00e6rir<\/p>\n<p>\u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feeir munu j\u00f6r\u00f0ina erfa.<\/p>\n<p>6S\u00e6lir eru \u00feeir sem hungrar og \u00feyrstir eftir r\u00e9ttl\u00e6tinu<\/p>\n<p>\u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feeir munu saddir ver\u00f0a.<\/p>\n<p>7S\u00e6lir eru miskunnsamir<\/p>\n<p>\u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feeim mun miskunna\u00f0 ver\u00f0a.<\/p>\n<p>8S\u00e6lir eru hjartahreinir<\/p>\n<p>\u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feeir munu Gu\u00f0 sj\u00e1.<\/p>\n<p>9S\u00e6lir eru fri\u00f0flytjendur<\/p>\n<p>\u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feeir munu Gu\u00f0s b\u00f6rn kalla\u00f0ir ver\u00f0a.<\/p>\n<p>10S\u00e6lir eru \u00feeir sem ofs\u00f3ttir eru fyrir r\u00e9ttl\u00e6tis sakir<\/p>\n<p>\u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feeirra er himnar\u00edki.<\/p>\n<p>[. . . ]<\/p>\n<p>Salt og lj\u00f3s<\/p>\n<p>13\u00de\u00e9r eru\u00f0 salt jar\u00f0ar. Ef salti\u00f0 dofnar, me\u00f0 hverju \u00e1 a\u00f0 selta \u00fea\u00f0? \u00dea\u00f0 er \u00fe\u00e1 til einskis n\u00fdtt, menn fleygja \u00fev\u00ed og tro\u00f0a undir f\u00f3tum.<\/p>\n<p>14\u00de\u00e9r eru\u00f0 lj\u00f3s heimsins. Borg, sem \u00e1 fjalli stendur, f\u00e6r ekki dulist. 15Ekki kveikja menn heldur lj\u00f3s og setja undir m\u00e6liker heldur \u00e1 lj\u00f3sastiku og \u00fe\u00e1 l\u00fdsir \u00fea\u00f0 \u00f6llum \u00ed h\u00fasinu. 16\u00deannig l\u00fdsi lj\u00f3s y\u00f0ar me\u00f0al mannanna a\u00f0 \u00feeir sj\u00e1i g\u00f3\u00f0 verk y\u00f0ar og vegsami f\u00f6\u00f0ur y\u00f0ar sem er \u00e1 himnum.<\/p>\n<p><strong>B\u00e6n vi\u00f0 upphaf athafnar:<\/strong><\/p>\n<p>\u00c9g veit ekki hvert \u00fe\u00fa ert a\u00f0 lei\u00f0a mig.<\/p>\n<p>\u00c9g veit ekki einu sinni hva\u00f0 n\u00e6sta<\/p>\n<p>klukkuslag f\u00e6rir m\u00e9r, n\u00e6sti dagur,<\/p>\n<p>komandi vika.<\/p>\n<p>Er \u00e9g leitast vi\u00f0 a\u00f0 hafa opnar hendur<\/p>\n<p>treysti \u00e9g \u00fe\u00e9r a\u00f0 \u00fe\u00fa takir \u00ed h\u00f6nd<\/p>\n<p>m\u00edna og lei\u00f0ir mig heim. \u00de\u00f6kk s\u00e9r \u00fe\u00e9r<\/p>\n<p>fyrir k\u00e6rleika \u00feinn. Amen.<\/p>\n<p>(Henri Nouwen)<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00d6rn B\u00e1r\u00f0ur J\u00f3nsson Minningaror\u00f0 Helgi M\u00e1r Arthursson 1951-2013 \u00datf\u00f6r fr\u00e1 Neskirkju \u00feri\u00f0judaginn 2. j\u00fal\u00ed 2013 kl. 13 Jar\u00f0sett \u00ed G\u00f6r\u00f0um \u00e1 \u00c1lftanesi. R\u00e6\u00f0una er h\u00e6gt a\u00f0 lesa og hlusta \u00e1 h\u00e9r fyrir ne\u00f0an. S\u00e9rstakar kve\u00f0jur sem b\u00e1rust eru ekki \u00e1 hlj\u00f3\u00f0uppt\u00f6kunni en voru fluttar s\u00ed\u00f0ar \u00ed athf\u00f6ninni og er texti \u00feeirra ne\u00f0anm\u00e1ls.<\/p>\n","protected":false},"author":2,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_jetpack_newsletter_access":"","_jetpack_dont_email_post_to_subs":false,"_jetpack_newsletter_tier_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paywalled_content":false,"_jetpack_hide_featured_image":false,"_jetpack_featured_image_duplicate_dismissed":0,"_jetpack_feature_clip_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":"","jetpack_post_was_ever_published":false},"categories":[4],"tags":[],"class_list":["post-623","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-greinar-og-hugvekjur-articles"],"jetpack_sharing_enabled":true,"jetpack_featured_media_url":"","_links":{"self":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/623","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/users\/2"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcomments&post=623"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/623\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fmedia&parent=623"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcategories&post=623"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Ftags&post=623"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}