{"id":6098,"date":"2025-03-09T13:44:26","date_gmt":"2025-03-09T13:44:26","guid":{"rendered":"http:\/\/ornbardur.com\/?p=6098"},"modified":"2025-03-09T13:44:26","modified_gmt":"2025-03-09T13:44:26","slug":"messa-a-hofi-i-vopnafirdi-menning-raektun-og-lif-i-heimi-guds","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/ornbardur.com\/?p=6098","title":{"rendered":"&#8220;Messa&#8221; \u00e1 Hofi &#8211; Menning, r\u00e6ktun og l\u00edf \u00ed heimi Gu\u00f0s"},"content":{"rendered":"\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Gu\u00f0s\u00fej\u00f3nusta \u00ed Hofskirkju \u00ed Vopnafir\u00f0i 1. sunnudag \u00ed f\u00f6stu en texti dagsins \u00far Gamla textamentinu er lykill a\u00f0 skilningi \u00e1 l\u00edfinu, fr\u00e1sagan um Adam og Evu \u00ed Parad\u00eds og fall mannkyns. Gu\u00f0spjalli\u00f0 flytur okkur s\u00f6guna af Freistingu Jes\u00fa og pistillinn \u00e1 milli \u00far 2. Korintubr\u00e9fi fjallar um l\u00edfsbar\u00e1ttuna.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">R\u00e6\u00f0an var flutt af munni fram, \u00e1n handrits, en h\u00fan er h\u00e9r \u00e1 hlj\u00f3\u00f0uppt\u00f6ku. Smelltu \u00e1 til a\u00f0 hlusta:<a href=\"https:\/\/kirkjan.is\/kirkjan\/kirkjuarid\/kirkjuarid-nanar\/?itemid=55975d86-ab47-11ef-9bb4-005056bc428f\">\/?kirkjuarid\/kirkjuarid-nanar\/?itemid=55975d86-ab47-11ef-9bb4-005056bc428f<\/a><\/p>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-audio\"><audio controls src=\"https:\/\/pub-c849b6aaf98340c4bec7b480b0f7ffe9.r2.dev\/2025\/03\/messa-hofi-9.3.25.m4a\"><\/audio><\/figure>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-image size-large\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"2000\" height=\"1126\" src=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2025\/03\/img_8989.jpg?w=1024\" alt=\"\" class=\"wp-image-6101\" \/><figcaption class=\"wp-element-caption\">HOF \u00cd HOFS\u00c1RDAL, VOPNAFIR\u00d0I<br \/>Prestssetur, kirkja og safna\u00f0arheimili <br \/>Skissa eftir BARD, \u00d6rn B\u00e1r\u00f0 J\u00f3nsson<\/figcaption><\/figure>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Til a\u00f0 lesa textana \u00fearftu a\u00f0 smella \u00e1 fyrirs\u00f6gnina efst og \u00fe\u00e1 opnast \u00f6ll f\u00e6rslan!<\/p>\n\n\n\n<!--more-->\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-image size-large\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"1500\" height=\"2000\" src=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2025\/03\/img_8987.jpg?w=768\" alt=\"\" class=\"wp-image-6112\" \/><figcaption class=\"wp-element-caption\">Haraldur tendrar lj\u00f3sin<\/figcaption><\/figure>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-image size-large\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"2000\" height=\"1500\" src=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2025\/03\/20250309_114944-1.jpg?w=1024\" alt=\"\" class=\"wp-image-6113\" \/><figcaption class=\"wp-element-caption\">\u00deau hafa sungi\u00f0 \u00ed yfir 30 \u00e1r \u00ed k\u00f3rnum og voru hei\u00f0ru\u00f0 me\u00f0 skjali fr\u00e1 Biskupi \u00cdslands<\/figcaption><\/figure>\n\n\n\n<h1 class=\"wp-block-heading smaller\">1. sunnudagur \u00ed f\u00f6stu (Invokavit) &#8211; Freistingin \/ Pr\u00f3fi\u00f0<\/h1>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>Vers vikunnar:<\/strong><br \/>\u201eTil \u00feess birtist Gu\u00f0s sonur a\u00f0 hann skyldi brj\u00f3ta ni\u00f0ur verk dj\u00f6fulsins.\u201c (1J\u00f3h 3.8b)<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>Kollekta:<\/strong><br \/>Drottinn, vi\u00f0 bi\u00f0jum \u00feig: L\u00edt \u00fe\u00fa mildilega til l\u00fd\u00f0s \u00fe\u00edns og v\u00edk \u00ed miskunn fr\u00e1 honum \u00f6llu \u00fev\u00ed, sem gegn honum r\u00eds. Fyrir son \u00feinn Drottin Jes\u00fa Krist sem me\u00f0 \u00fe\u00e9r lifir og r\u00edkir \u00ed einingu heilags anda, einn sannur Gu\u00f0 um aldir alda.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>Lex\u00eda: 1M\u00f3s 3.1-24<\/strong><br \/>H\u00f6ggormurinn var sl\u00f3ttugri en \u00f6ll d\u00fdr merkurinnar sem Drottinn Gu\u00f0 haf\u00f0i gert. Hann sag\u00f0i vi\u00f0 konuna: \u201eEr \u00fea\u00f0 satt a\u00f0 Gu\u00f0 hafi sagt: \u00dei\u00f0 megi\u00f0 ekki eta af neinu tr\u00e9 \u00ed aldingar\u00f0inum?\u201c<br \/>Konan svara\u00f0i h\u00f6ggorminum: \u201eVi\u00f0 megum eta af \u00e1v\u00f6xtum trj\u00e1nna \u00ed aldingar\u00f0inum en um \u00e1v\u00f6xt tr\u00e9sins, sem stendur \u00ed mi\u00f0jum aldingar\u00f0inum, sag\u00f0i Gu\u00f0: Af honum megi\u00f0 \u00fei\u00f0 ekki eta og ekki snerta hann, ella munu\u00f0 \u00fei\u00f0 deyja.\u201c \u00de\u00e1 sag\u00f0i h\u00f6ggormurinn vi\u00f0 konuna: \u201eSanni\u00f0 til, \u00fei\u00f0 munu\u00f0 ekki deyja. En Gu\u00f0 veit a\u00f0 um lei\u00f0 og \u00fei\u00f0 eti\u00f0 af honum lj\u00fakast augu ykkar upp og \u00fei\u00f0 ver\u00f0i\u00f0 eins og Gu\u00f0 og skynji\u00f0 gott og illt.\u201c<br \/>\u00de\u00e1 s\u00e1 konan a\u00f0 tr\u00e9\u00f0 var gott af a\u00f0 eta, fagurt \u00e1 a\u00f0 l\u00edta og girnilegt til fr\u00f3\u00f0leiks. H\u00fan t\u00f3k af \u00e1vexti \u00feess og \u00e1t og gaf einnig manni s\u00ednum, sem me\u00f0 henni var, og hann \u00e1t. \u00de\u00e1 lukust upp augu \u00feeirra beggja og \u00feeim var\u00f0 lj\u00f3st a\u00f0 \u00feau voru nakin. \u00deau saumu\u00f0u \u00fev\u00ed saman f\u00edkjuvi\u00f0arbl\u00f6\u00f0 og ger\u00f0u s\u00e9r mittissk\u00fdlur.<br \/>\u00de\u00e1 heyr\u00f0u \u00feau til Drottins Gu\u00f0s sem gekk um \u00ed aldingar\u00f0inum \u00ed kv\u00f6ldsvalanum og ma\u00f0urinn og kona hans f\u00f6ldu sig fyrir augliti Drottins milli trj\u00e1nna \u00ed aldingar\u00f0inum. Drottinn Gu\u00f0 kalla\u00f0i \u00e1 manninn og sag\u00f0i vi\u00f0 hann: \u201eHvar ertu?\u201c Og hann svara\u00f0i: \u201e\u00c9g heyr\u00f0i til \u00fe\u00edn \u00ed aldingar\u00f0inum og var\u00f0 hr\u00e6ddur \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00e9g er nakinn, og \u00e9g faldi mig.\u201c Hann sag\u00f0i: \u201eHver sag\u00f0i \u00fe\u00e9r a\u00f0 \u00fe\u00fa v\u00e6rir nakinn? Hefur \u00fe\u00fa eti\u00f0 af tr\u00e9nu sem \u00e9g banna\u00f0i \u00fe\u00e9r a\u00f0 eta af?\u201c Ma\u00f0urinn m\u00e6lti: \u201eKonan sem \u00fe\u00fa hefur sett m\u00e9r vi\u00f0 hli\u00f0, h\u00fan gaf m\u00e9r af tr\u00e9nu og \u00e9g \u00e1t.\u201c \u00de\u00e1 sag\u00f0i Drottinn Gu\u00f0 vi\u00f0 konuna: \u201eHva\u00f0 hefur\u00f0u gert?\u201c Konan svara\u00f0i: \u201eH\u00f6ggormurinn t\u00e6ldi mig og \u00e9g \u00e1t.\u201c<br \/>\u00de\u00e1 sag\u00f0i Drottinn Gu\u00f0 vi\u00f0 h\u00f6ggorminn:<br \/>Af \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fe\u00fa ger\u00f0ir \u00feetta<br \/>skaltu vera b\u00f6lva\u00f0ur<br \/>me\u00f0al alls f\u00e9na\u00f0arins<br \/>og me\u00f0al allra d\u00fdra merkurinnar.<br \/>\u00c1 kvi\u00f0i \u00fe\u00ednum skaltu skr\u00ed\u00f0a<br \/>og mold eta<br \/>alla \u00fe\u00edna \u00e6vidaga.<br \/>\u00c9g set fjandskap<br \/>milli \u00fe\u00edn og konunnar<br \/>og milli \u00feinna ni\u00f0ja og hennar ni\u00f0ja.<br \/>\u00deeir skulu merja h\u00f6fu\u00f0 \u00feitt<br \/>og \u00fe\u00fa skalt h\u00f6ggva \u00fe\u00e1 \u00ed h\u00e6linn.<br \/>Vi\u00f0 konuna sag\u00f0i hann:<br \/>Mikla mun \u00e9g gera \u00fej\u00e1ningu \u00fe\u00edna<br \/>er \u00fe\u00fa ver\u00f0ur barnshafandi.<br \/>Me\u00f0 \u00feraut skaltu b\u00f6rn f\u00e6\u00f0a,<br \/>samt skaltu hafa l\u00f6ngun til manns \u00fe\u00edns<br \/>en hann skal drottna yfir \u00fe\u00e9r.<br \/>Vi\u00f0 Adam sag\u00f0i hann:<br \/>Vegna \u00feess a\u00f0 \u00fe\u00fa hl\u00fdddir r\u00f6ddu konu \u00feinnar<br \/>og \u00e1st af tr\u00e9nu sem \u00e9g banna\u00f0i \u00fe\u00e9r a\u00f0 eta af,<br \/>\u00fe\u00e1 s\u00e9 akurlendi\u00f0 b\u00f6lva\u00f0 \u00fe\u00edn vegna.<br \/>Me\u00f0 erfi\u00f0i skaltu hafa vi\u00f0urv\u00e6ri af \u00fev\u00ed<br \/>alla \u00fe\u00edna \u00e6vidaga.<br \/>\u00deyrna og \u00feistla skal landi\u00f0 gefa af s\u00e9r<br \/>og \u00fe\u00fa skalt lifa \u00e1 gr\u00f6sum merkurinnar.<br \/>\u00cd sveita \u00fe\u00edns andlitis skaltu brau\u00f0s \u00fe\u00edns neyta<br \/>\u00fear til \u00fe\u00fa hverfur aftur til jar\u00f0arinnar<br \/>\u00fev\u00ed af henni ertu tekinn.<br \/>\u00dev\u00ed a\u00f0 mold ert \u00fe\u00fa<br \/>og til moldar skaltu aftur hverfa.<br \/>Adam nefndi konu s\u00edna Evu \u00fev\u00ed a\u00f0 h\u00fan var\u00f0 m\u00f3\u00f0ir allra sem lifa. Og Drottinn Gu\u00f0 ger\u00f0i skinnkyrtla handa Adam og konu hans og l\u00e9t \u00feau kl\u00e6\u00f0ast \u00feeim.<br \/>Og Drottinn Gu\u00f0 sag\u00f0i: \u201eN\u00fa er ma\u00f0urinn or\u00f0inn sem einn af oss fyrst hann ber skyn \u00e1 gott og illt. Bara a\u00f0 hann r\u00e9tti n\u00fa ekki \u00fat h\u00f6nd s\u00edna, taki einnig af l\u00edfsins tr\u00e9 og eti og lifi eil\u00edflega.\u201c<br \/>Og Drottinn Gu\u00f0 l\u00e9t manninn fara \u00far aldingar\u00f0inum Eden til \u00feess a\u00f0 yrkja j\u00f6r\u00f0ina sem hann var tekinn af. Og hann rak manninn burt og setti ker\u00fabana fyrir austan Eden og loga hins sveipanda sver\u00f0s til \u00feess a\u00f0 g\u00e6ta vegarins a\u00f0 l\u00edfsins tr\u00e9.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>Pistill: 2Kor 6.1-10<\/strong><br \/>Sem samverkama\u00f0ur Krists hvet \u00e9g ykkur einnig a\u00f0 \u00fei\u00f0 l\u00e1ti\u00f0 ekki n\u00e1\u00f0 Gu\u00f0s, sem \u00fei\u00f0 hafi\u00f0 \u00feegi\u00f0, ver\u00f0a til einskis. Hann segir:<br \/>\u00c1 hagkv\u00e6mri t\u00ed\u00f0 b\u00e6nheyr\u00f0i \u00e9g \u00feig,<br \/>og \u00e1 hj\u00e1lpr\u00e6\u00f0isdegi hj\u00e1lpa\u00f0i \u00e9g \u00fe\u00e9r.<br \/>N\u00fa er hagkv\u00e6m t\u00ed\u00f0, n\u00fa er hj\u00e1lpr\u00e6\u00f0isdagur. \u00cd engu vil \u00e9g gefa neinum tilefni til \u00e1steytingar, \u00e9g vil ekki a\u00f0 \u00fej\u00f3nusta m\u00edn s\u00e6ti lasti. \u00cd \u00f6llu l\u00e6t \u00e9g sj\u00e1st a\u00f0 \u00e9g er \u00fej\u00f3nn Gu\u00f0s: Me\u00f0 miklu \u00feolg\u00e6\u00f0i \u00ed \u00ferengingum, nau\u00f0um og andstreymi, \u00feegar \u00e9g hef m\u00e1tt \u00feola barsm\u00ed\u00f0ar, veri\u00f0 \u00ed fangelsi, or\u00f0i\u00f0 fyrir a\u00f0s\u00fag, \u00ed erfi\u00f0i m\u00ednu, andv\u00f6kum og sulti, me\u00f0 grandvarleik, \u00feekkingu, \u00feolinm\u00e6\u00f0i og mildi, me\u00f0 heil\u00f6gum anda, me\u00f0 falslausum k\u00e6rleika, me\u00f0 or\u00f0i sannleikans, me\u00f0 krafti Gu\u00f0s, me\u00f0 vopnum r\u00e9ttl\u00e6tisins til s\u00f3knar og varnar, \u00ed hei\u00f0ri og vanhei\u00f0ri, lasti og lofi. \u00de\u00f3tt talinn s\u00e9 villuma\u00f0ur segi \u00e9g sannleikann, sag\u00f0ur \u00f3\u00feekktur en er al\u00feekktur, kominn \u00ed dau\u00f0ann og samt lifi \u00e9g, tyfta\u00f0ur og \u00fe\u00f3 ekki deyddur, hryggur en \u00fe\u00f3 \u00e1vallt gla\u00f0ur, f\u00e1t\u00e6kur en au\u00f0ga \u00fe\u00f3 marga, \u00f6reigi en \u00e1 \u00fe\u00f3 allt.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Gu\u00f0spjall: Matt 4.1-11<br \/>\u00de\u00e1 leiddi andinn Jes\u00fa \u00fat \u00ed \u00f3bygg\u00f0ina til \u00feess a\u00f0 dj\u00f6fullinn g\u00e6ti freista\u00f0 hans. \u00dear fasta\u00f0i Jes\u00fas fj\u00f6rut\u00edu daga og fj\u00f6rut\u00edu n\u00e6tur og var \u00fe\u00e1 or\u00f0inn hungra\u00f0ur. \u00de\u00e1 kom dj\u00f6fullinn og sag\u00f0i vi\u00f0 hann: \u201eEf \u00fe\u00fa ert sonur Gu\u00f0s \u00fe\u00e1 bj\u00f3\u00f0 \u00fe\u00fa a\u00f0 steinar \u00feessir ver\u00f0i a\u00f0 brau\u00f0um.\u201c<br \/>Jes\u00fas svara\u00f0i: \u201eRita\u00f0 er: Eigi lifir ma\u00f0urinn \u00e1 einu saman brau\u00f0i heldur \u00e1 hverju \u00fev\u00ed or\u00f0i sem fram gengur af Gu\u00f0s munni.\u201c<br \/>\u00de\u00e1 tekur dj\u00f6fullinn Jes\u00fa me\u00f0 s\u00e9r \u00ed borgina helgu, setur hann \u00e1 br\u00fan musterisins og segir vi\u00f0 hann: \u201eEf \u00fe\u00fa ert sonur Gu\u00f0s \u00fe\u00e1 kasta \u00fe\u00e9r ofan \u00fev\u00ed a\u00f0 rita\u00f0 er:<br \/>Hann mun fela \u00feig englum s\u00ednum<br \/>og \u00feeir munu bera \u00feig \u00e1 h\u00f6ndum s\u00e9r<br \/>a\u00f0 \u00fe\u00fa steytir ekki f\u00f3t \u00feinn vi\u00f0 steini.\u201c<br \/>Jes\u00fas svara\u00f0i honum: \u201eAftur er rita\u00f0: \u00de\u00fa skalt ekki freista Drottins, Gu\u00f0s \u00fe\u00edns.\u201c<br \/>Enn tekur dj\u00f6fullinn hann me\u00f0 s\u00e9r upp \u00e1 ofurh\u00e1tt fjall, s\u00fdnir honum \u00f6ll r\u00edki heims og d\u00fdr\u00f0 \u00feeirra og segir: \u201eAllt \u00feetta mun \u00e9g gefa \u00fe\u00e9r ef \u00fe\u00fa fellur fram og tilbi\u00f0ur mig.\u201c<br \/>En Jes\u00fas sag\u00f0i vi\u00f0 hann: \u201eV\u00edk brott, Satan! Rita\u00f0 er: Drottin, Gu\u00f0 \u00feinn, skalt \u00fe\u00fa tilbi\u00f0ja og \u00fej\u00f3na honum einum.\u201c<br \/>\u00de\u00e1 f\u00f3r dj\u00f6fullinn fr\u00e1 Jes\u00fa. Og englar komu og \u00fej\u00f3nu\u00f0u honum.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>S\u00e1lmur: 94<\/strong><br \/>Vi\u00f0 freistingum g\u00e6t \u00fe\u00edn og falli \u00feig ver,<br \/>\u00fev\u00ed freisting hver unnin til sigurs \u00feig ber.<br \/>Gakk \u00f6ruggur rakleitt m\u00f3t \u00e1str\u00ed\u00f0u her,<br \/>en \u00e6t\u00ed\u00f0 haf Jes\u00fa \u00ed verki me\u00f0 \u00fe\u00e9r.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hinn vonda soll varast, en vanda \u00feitt m\u00e1l,<br \/>og geymdu nafn Gu\u00f0s \u00fe\u00edns \u00ed grandvarri s\u00e1l,<br \/>ver dyggur, ver sannur, \u00fev\u00ed Drottinn \u00feig s\u00e9r,<br \/>haf daglega Jes\u00fa \u00ed verki me\u00f0 \u00fe\u00e9r.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hver s\u00e1, er h\u00e9r sigrar, skal sigurkrans f\u00e1,<br \/>\u00ed tr\u00fanni v\u00e9r vinnum, \u00fe\u00f3tt ver\u00f0i margt \u00e1,<br \/>\u00fev\u00ed s\u00e1, er oss hj\u00e1lpar, vi\u00f0 hr\u00f6sun oss ver.<br \/>\u00d3, haf\u00f0u \u00feinn Jes\u00fa \u00ed verki me\u00f0 \u00fe\u00e9r.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Palmer \u2013 Sb. 1886 \u2013 Matth\u00edas Jochumsson<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Gu\u00f0s\u00fej\u00f3nusta \u00ed Hofskirkju \u00ed Vopnafir\u00f0i 1. sunnudag \u00ed f\u00f6stu en texti dagsins \u00far Gamla textamentinu er lykill a\u00f0 skilningi \u00e1 l\u00edfinu, fr\u00e1sagan um Adam og Evu \u00ed Parad\u00eds og fall mannkyns. Gu\u00f0spjalli\u00f0 flytur okkur s\u00f6guna af Freistingu Jes\u00fa og pistillinn \u00e1 milli \u00far 2. Korintubr\u00e9fi fjallar um l\u00edfsbar\u00e1ttuna. R\u00e6\u00f0an var flutt af munni fram, \u00e1n [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":2,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_jetpack_newsletter_access":"","_jetpack_dont_email_post_to_subs":false,"_jetpack_newsletter_tier_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paywalled_content":false,"_jetpack_hide_featured_image":false,"_jetpack_featured_image_duplicate_dismissed":0,"_jetpack_feature_clip_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":"","jetpack_post_was_ever_published":false},"categories":[9],"tags":[166,211,243,246,291,333,447,576,590,591,640],"class_list":["post-6098","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-predikanir-sermons","tag-elska","tag-freisting","tag-gud","tag-gudfraedi","tag-heimurinn","tag-jesus","tag-menning","tag-skuggsja","tag-spegill","tag-speglar","tag-tru"],"jetpack_sharing_enabled":true,"jetpack_featured_media_url":"","_links":{"self":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/6098","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/users\/2"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcomments&post=6098"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/6098\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fmedia&parent=6098"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcategories&post=6098"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Ftags&post=6098"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}