{"id":607,"date":"2013-06-28T17:44:17","date_gmt":"2013-06-28T17:44:17","guid":{"rendered":"http:\/\/ornbardur.com\/?p=607"},"modified":"2013-06-28T17:44:17","modified_gmt":"2013-06-28T17:44:17","slug":"methusalem-thorisson-1946-2013","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/ornbardur.com\/?p=607","title":{"rendered":"Methusalem \u00de\u00f3risson 1946-2013"},"content":{"rendered":"<p><a href=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2013\/06\/methusalem.png\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" class=\"alignleft size-medium wp-image-612\" alt=\"Methusalem\" src=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2013\/06\/methusalem.png?w=228\" width=\"228\" height=\"300\" \/><\/a>\u00d6rn B\u00e1r\u00f0ur J\u00f3nsson<\/p>\n<p>Minningaror\u00f0<\/p>\n<p><b>Methusalem \u00de\u00f3risson<\/b><\/p>\n<p>1946-2013<\/p>\n<p>h\u00famanisti<\/p>\n<p>\u00datf\u00f6r (b\u00e1lf\u00f6r) fr\u00e1 Fr\u00edkirkjunni \u00ed Reykjav\u00edk f\u00f6studaginn 28. j\u00fan\u00ed 2013 kl. 13<\/p>\n<p>R\u00e6\u00f0una er h\u00e6gt a\u00f0 lesa og hlusta \u00e1 h\u00e9r fyrir ne\u00f0an. Semlltu \u00e1 sl\u00f3\u00f0ina sem birtist fyrst og \u00fe\u00e1 fer hlj\u00f3\u00f0upptakan \u00ed gang.<\/p>\n<p><!--more--><\/p>\n<p><a href=\"https:\/\/pub-c849b6aaf98340c4bec7b480b0f7ffe9.r2.dev\/2013\/06\/methusalem-c3bec3b3risson.mp3\">Methusalem \u00de\u00f3risson<\/a><\/p>\n<p><strong>Or\u00f0<\/strong> \u00far einni af \u00feekktustu r\u00e6\u00f0um li\u00f0innar aldar, eru l\u00f6ngu or\u00f0in fleyg, or\u00f0in: I have a dream &#8211; \u00c9g \u00e1 m\u00e9r draum. Mannr\u00e9ttindafr\u00f6mu\u00f0urinn Martin Luther King jr. bar\u00f0ist fyrir r\u00e9ttindum bl\u00f6kkumanna vestra og var deyddur fyrir sko\u00f0anir s\u00ednar.<\/p>\n<p>\u00deau eru m\u00f6rg, sem betur fer, \u00ed heiminum \u00ed dag, sem \u00fer\u00e1 betra samf\u00e9lag, mennskari heim og sj\u00e1 \u00ed gengum skrumi\u00f0 og skjalli\u00f0 sem er a\u00f0 \u00e6ra okkur daglega. Margir telja a\u00f0 \u00e1takal\u00ednur \u00ed stj\u00f3rnm\u00e1lum v\u00ed\u00f0a um heim og einnig h\u00e9r \u00e1 landi liggi \u00e1 milli \u00feeirra sem vilja f\u00e1tt anna\u00f0 en meiri hagv\u00f6xt sem \u00fdtir undir gr\u00e6\u00f0gi og hinna sem vilja taka tillit til lifandi f\u00f3lks og l\u00edfr\u00edkis jar\u00f0ar. Vi\u00f0 eigum a\u00f0eins eina j\u00f6r\u00f0 og ver\u00f0um a\u00f0 komast af sem eitt mannnkyn og stu\u00f0la a\u00f0 j\u00f6fnun l\u00edfsg\u00e6\u00f0a og meiri mennsku &#8211; a\u00f0 j\u00f6r\u00f0in ver\u00f0i b\u00e6rilegri b\u00fasta\u00f0ur og mennskari en n\u00fa er.<\/p>\n<p>Methusalem var h\u00famanisti. Hann tr\u00fa\u00f0i \u00e1 betri heim og vildi berjast fyrir betri heimi. Bar\u00e1tta hans var ein\u00f6r\u00f0 en h\u00faman, h\u00fan studdist vi\u00f0 visku en ekki vopn, samtal en ekki yfirgang, k\u00e6rleika en ekki b\u00f3lgna krafta. A\u00f0fe\u00f0ir hans voru ekki n\u00fdjar af n\u00e1linni. \u00cd grunninn eru \u00fe\u00e6r sammannlegar og \u00e6ttu a\u00f0 vera verkf\u00e6ri okkar allra. \u00c9g las \u00e1\u00f0an upphaf Fjallr\u00e6\u00f0u Jes\u00fa sem nefnd hefur veri\u00f0 stj\u00f3rnarskr\u00e1 Gu\u00f0sr\u00edkisins. Hann segir \u00feau s\u00e6l sem eru f\u00e1t\u00e6k \u00ed anda e\u00f0a laus vi\u00f0 st\u00e6ril\u00e6ti. Fjallr\u00e6\u00f0an upphefur h\u00f3gv\u00e6r\u00f0 og miskunnsemi, lofar fri\u00f0flytjendum vegsauka og minnir \u00feau \u00e1 a\u00f0 bar\u00e1ttan fyrir betri heimi kostar andst\u00f6\u00f0u og jafnvel ofs\u00f3knir. Merkilegt a\u00f0 or\u00f0i\u00f0 fri\u00f0flytjendur \u00ed Fjallr\u00e6\u00f0unni v\u00edsar til \u00feeirra sem framkv\u00e6ma fri\u00f0inn, eru fri\u00f0-gerendur. Loks lofar Jes\u00fas syrgjendum huggun og \u00fea\u00f0 er gott a\u00f0 heyra \u00e1 \u00feessum degi \u00feegar fj\u00f6lskylda og vinir kve\u00f0ja l\u00e1tinn \u00e1stvin. Jes\u00fas tala\u00f0i ennfremur \u00ed r\u00e6\u00f0unni um \u00feau sem eru hjartahrein. \u00c9g held a\u00f0 nota m\u00e6tti \u00fea\u00f0 g\u00f3\u00f0a or\u00f0 um hann D\u00faa, hann l\u00fdsti af g\u00f3\u00f0vild, svipurinn var hreinn, brosi\u00f0 feimnislegt en fallegt, augun bj\u00f6rt, hjarta\u00f0 gott og hreint.<\/p>\n<p>Methusalem \u00de\u00f3risson f\u00e6ddist \u00ed Reykjav\u00edk 17. \u00e1g\u00fast 1946. Hann l\u00e9st \u00e1 heimili s\u00ednu \u00ed Reykjav\u00edk 14. j\u00fan\u00ed 2013.<\/p>\n<p>Methusalem var sonur hj\u00f3nanna \u00de\u00f3ris Gu\u00f0mundssonar, f. 9. ma\u00ed 1919, d. 31. ma\u00ed 2004, og Arnfr\u00ed\u00f0ar Snorrad\u00f3ttur, f. 26. febr\u00faar 1925. Systkini hans eru<\/p>\n<p>Oddn\u00fd, f. 1948, maki Ragnar Karlsson,<\/p>\n<p>Snorri, f. 1949, maki Erla Fri\u00f0riksd\u00f3ttir,<\/p>\n<p>Soff\u00eda, f. 1953, maki Baldur Dagbjartsson, og<\/p>\n<p>Ragna Bj\u00f6rg, f. 1957, maki Gylfi G. Kristinsson.<\/p>\n<p>Hann var sprottinn \u00far g\u00f3\u00f0um jar\u00f0vegi sem gaf honum skilyr\u00f0i til a\u00f0 bera g\u00f3\u00f0an \u00e1v\u00f6xt \u00ed l\u00edfinu.<\/p>\n<p>D\u00e6tur Methusalems me\u00f0 fyrri eiginkonu, Halld\u00f3ru J\u00f3nsd\u00f3ttur, eru:<\/p>\n<p>Fr\u00ed\u00f0a, f. 16. okt\u00f3ber 1966, sonur hennar er Jesse \u00de\u00f3rir Vine, (frb. Djess\u00ed \u00de\u00f3rir V\u00e6n) f. 8. jan\u00faar 2003, \u00feau eru b\u00fasett \u00e1 N\u00fdja-Sj\u00e1landi.<\/p>\n<p>J\u00f3hanna, f. 26. apr\u00edl 1970, ma\u00f0ur hennar er Paul Weil, f. 3. febr\u00faar 1971, d\u00f3ttir \u00feeirra er Lola Salv\u00f6r Weil, f. 12. febr\u00faar 2007. D\u00f3ttir J\u00f3h\u00f6nnu af fyrra hj\u00f3nabandi er India Salv\u00f6r Menuez, (frb. Menj\u00faes) f. 8. ma\u00ed 1993. \u00deau b\u00faa \u00ed New York.<\/p>\n<p>Methusalem kv\u00e6ntist Eldu Thorisson Faurelien (frb. Forl\u00eden) \u00e1ri\u00f0 2006. Sonur hennar er \u00de\u00f3rir Gu\u00f0mundur Faurelien og gekk Methusalem honum \u00ed f\u00f6\u00f0ursta\u00f0. \u00deau kynntust \u00e1 Ha\u00edt\u00ed \u00fear sem D\u00fai vann a\u00f0 mann\u00fa\u00f0arm\u00e1lum. Elda er kennari og \u00feau st\u00f6rfu\u00f0u saman h\u00e9r \u00e1 landi \u00ed fyrirt\u00e6ki s\u00ednu, Caf\u00e9 Ha\u00edt\u00ed. \u00cd texta sem m\u00e9r barst fr\u00e1 Ha\u00edt\u00ed er hans minnst af dj\u00fapri vir\u00f0ingu og \u00fe\u00f6kk fyrir elskusemi alla og f\u00f3rnf\u00fdsi.<\/p>\n<p>Methusalem \u00fatskrifa\u00f0ist me\u00f0 samvinnusk\u00f3lapr\u00f3f og s\u00ed\u00f0ar sem st\u00fadent fr\u00e1 Samvinnusk\u00f3lanum \u00e1 Bifr\u00f6st. \u00cd Samvinnusk\u00f3lanum var hann einn af stofnendum hlj\u00f3msveitarinnar Straumar \u00fear sem hann spila\u00f0i \u00e1 bassa. Hlj\u00f3msveitarme\u00f0limir h\u00e9ldu \u00e1fram a\u00f0 spila saman eftir Samvinnusk\u00f3lann. Systkinin minnast \u00feess \u00feegar D\u00fai kom heim \u00ed helgarfr\u00edum af Bifr\u00f6st, heilla\u00f0ur af B\u00edtlunum og \u00f6\u00f0rum fr\u00e6gum hlj\u00f3msveitum \u00feess t\u00edma. \u00c1 f\u00f3ninum snerust n\u00fdjustu pl\u00f6turnar og D\u00fai dansa\u00f0i um stofuna \u00e1 morgnana \u00ed n\u00e1ttf\u00f6tunum. Hann var alla t\u00ed\u00f0 einl\u00e6gur, lj\u00fafur og l\u00edfsgla\u00f0ur ma\u00f0ur.<\/p>\n<p>Methusalem h\u00f3f st\u00f6rf sem verslunarstj\u00f3ri hj\u00e1 Silla og Valda 1966. Hann flutti \u00e1samt fj\u00f6lskyldu til Berl\u00ednar 1971 og dvaldi \u00fear \u00ed tv\u00f6 \u00e1r vi\u00f0 \u00fdmis st\u00f6rf. Vi\u00f0 heimkomuna h\u00f3f hann st\u00f6rf sem skrifstofustj\u00f3ri hj\u00e1 B\u00e1tal\u00f3ni \u00ed Hafnarfir\u00f0i. S\u00ed\u00f0ar var\u00f0 hann framkv\u00e6mdastj\u00f3ri Umb\u00fa\u00f0ami\u00f0st\u00f6\u00f0varinnar um skei\u00f0. \u00c1ri\u00f0 1995 stofna\u00f0i hann \u00e1samt J\u00fal\u00edusi Valdimarssyni r\u00e1\u00f0gjafarfyrirt\u00e6ki\u00f0 Lausnir ehf. Methusalem var virkur f\u00e9lagi \u00ed H\u00famanistahreyfingunni \u00e1 \u00cdslandi fr\u00e1 upphafi en h\u00fan barst hinga\u00f0 til lands 1979 og starfa\u00f0i \u00fe\u00e1 undir heitinu Samhyg\u00f0. Hann var einn af stofnendum Flokks mannsins 1984 en nafni flokksins var breytt \u00e1ri\u00f0 1995 og heitir n\u00fa H\u00famanistaflokkurinn. Methusalem var alla t\u00ed\u00f0 einn af forsvarsm\u00f6nnum flokksins og t\u00f3k \u00fe\u00e1tt \u00ed \u00f6llum frambo\u00f0um \u00e1 vegum hans, n\u00fa s\u00ed\u00f0ast \u00ed n\u00fdli\u00f0num al\u00feingiskosningum \u00fear sem hann skipa\u00f0i fyrsta s\u00e6ti \u00e1 lista flokksins \u00ed Reykjav\u00edkurkj\u00f6rd\u00e6mi nor\u00f0ur. Methusalem t\u00f3k einnig \u00fe\u00e1tt \u00ed al\u00fej\u00f3\u00f0legu starfi H\u00famanistahreyfingarinnar og stu\u00f0la\u00f0i m.a. a\u00f0 stofnun H\u00famanistaflokksins \u00ed Bretlandi. \u00de\u00e1 starfa\u00f0i hann einnig a\u00f0 verkefnum H\u00famanistahreyfingarinnar b\u00e6\u00f0i \u00ed S\u00edle og \u00e1 Ha\u00edt\u00ed.<\/p>\n<p>D\u00fai sigldi alla t\u00ed\u00f0 beitivind \u00fe.e. \u00f6gn upp \u00ed vindinn. \u00deannig fann hann kr\u00f6ftum s\u00ednum vi\u00f0n\u00e1m \u00ed bar\u00e1ttunnni fyrir mennskari heimi. \u201e\u00deegar siglt er sk\u00e1hallt \u00e1 m\u00f3ti vindi er tala\u00f0 um a\u00f0 sigla beitivind, beita upp \u00ed vindinn, b\u00edta e\u00f0a flaska. \u00de\u00e1 er b\u00f3man e\u00f0a r\u00e1in h\u00f6f\u00f0 eins sams\u00ed\u00f0a b\u00e1tnum og h\u00e6gt er. Ef beitt er of st\u00edft upp \u00ed vindinn fer vindurinn \u00far seglunum og \u00feau blakta (\u00feau kelur).\u201c<\/p>\n<p>D\u00fai f\u00f3r s\u00ednar lei\u00f0ir \u00ed l\u00edfinu og var ekki eins og fj\u00f6ldinn. Hann \u00e1tti fagrar hugsj\u00f3nir um l\u00edfi\u00f0 og tilveruna, safna\u00f0i ekki au\u00f0i en \u00fer\u00e1\u00f0i fegurri heim. Hann var skilningsr\u00edkur og bar vir\u00f0ingu fyrir \u00f6\u00f0ru f\u00f3lki. \u00c1 kaffih\u00fasinu hitt hann marga og var alltaf til \u00ed a\u00f0 spjalla og r\u00e6\u00f0a um s\u00edn hjartans m\u00e1l. Hann tala\u00f0i m\u00f6rg tungum\u00e1l og haf\u00f0i yndi af a\u00f0 \u00e6fa sig me\u00f0 gestunum \u00e1 Caf\u00e9 Ha\u00edt\u00ed. Hann studdi marga \u00e1 l\u00edfslei\u00f0inni sem \u00e1ttu undir h\u00f6gg a\u00f0 s\u00e6kja og var sannur vinur vina sinna.<\/p>\n<p>Hann bj\u00f3 a\u00f0 g\u00f3\u00f0u uppeldi og m\u00f3tun \u00ed bernsku. \u00deegar hann var 5 \u00e1ra f\u00f3r hann fyrst \u00ed sveit og dvaldi a\u00f0 Bustarfelli \u00ed Vopnafir\u00f0i en \u00fea\u00f0an \u00e1tti hann \u00e6ttir a\u00f0 rekja \u00ed b\u00e1\u00f0ar \u00e6ttir. Eitt sumari\u00f0 \u00feegar hann kom til baka \u00far sveitinni og haf\u00f0i bara umgengist fullor\u00f0i\u00f0 f\u00f3lk \u00ed eitt og h\u00e1lft \u00e1r, or\u00f0inn forframa\u00f0ur og st\u00f3r a\u00f0 honum fannst, leit hann yfir systkinah\u00f3pinn sem st\u00f3\u00f0 \u00ed tr\u00f6ppunum og sag\u00f0i: Miki\u00f0 eru systkini m\u00edn sm\u00e1vaxin!<\/p>\n<p>Hann bj\u00f3 yfir r\u00edkri fr\u00e1sagnarg\u00e1fu, sag\u00f0i skemmitlega fr\u00e1. Hann var manngl\u00f6ggur, brosmildur og hl\u00fdr \u00ed vi\u00f0kynningu. Hann var gla\u00f0sinna barn og skapger\u00f0in g\u00f3\u00f0a \u00f3x me\u00f0 honum og \u00feroska\u00f0ist.<\/p>\n<p>D\u00e6turnar segja a\u00f0 hann hafi jafnan af n\u00e6rf\u00e6rni og visku leitast vi\u00f0 a\u00f0 f\u00e1 \u00fe\u00e6r til a\u00f0 horfa \u00fat fyrir boxi\u00f0, eins og \u00fea\u00f0 er kalla\u00f0, a\u00f0 sj\u00e1 heiminn me\u00f0 \u00f6\u00f0rum augum en gengur og gerist. Hann var \u00e1 r\u00e9ttum aldri \u00feegar 68-kynsl\u00f3\u00f0in var upp \u00e1 sitt besta og hreifst af hugsj\u00f3num hippanna og kom oft \u00ed Glaumb\u00e6 h\u00e9r vi\u00f0 hli\u00f0 Fr\u00edkirkjunnar.<\/p>\n<p>Hann var s\u00ed og \u00e6 a\u00f0 hugsa um \u201ea\u00f0 styrkja tr\u00fana \u00e1 sj\u00e1lfan sig og l\u00edfi\u00f0\u201c, vakinn og sofinn yfir \u00fev\u00ed a\u00f0 b\u00e6ta sig til a\u00f0 geta b\u00e6tt heiminn.<\/p>\n<p>Hann var v\u00ed\u00f0lesinn og haf\u00f0i gaman a\u00f0 lesa fyrir b\u00f6rnin. Hann las miki\u00f0 fyrir \u00de\u00f3ri Gu\u00f0mund og kenndi honum margt. Fj\u00f6lskyldu D\u00faa er minnisst\u00e6tt j\u00f3labo\u00f0 \u00feegar drengurinn var 6 \u00e1ra og haf\u00f0i dvali\u00f0 h\u00e9r a\u00f0eins nokkra m\u00e1nu\u00f0i a\u00f0 hann gat sungi\u00f0 m\u00f6rg j\u00f3lal\u00f6g \u00e1 \u00edslensku sem D\u00fai haf\u00f0i kennt honum. Systkini D\u00faa segja a\u00f0 \u00feegar veislur voru haldnar var alltaf vonast til a\u00f0 D\u00fai g\u00e6ti m\u00e6tt \u00fev\u00ed hann gat spjalla\u00f0 vi\u00f0 alla og haldi\u00f0 uppi samr\u00e6\u00f0um, spila\u00f0 \u00e1 g\u00edtar og stj\u00f3rna\u00f0 s\u00f6ng.<\/p>\n<p>D\u00fai var samkv\u00e6mur sj\u00e1lfum s\u00e9r og bo\u00f0a\u00f0i \u00fea\u00f0 sem hann tr\u00fa\u00f0i \u00e1.<\/p>\n<p>N\u00fa kann einhverjum a\u00f0 \u00feykja \u00fea\u00f0 \u00e1 skj\u00f6n vi\u00f0 hans l\u00edfssko\u00f0anir a\u00f0 h\u00e9r tali yfir honum prestur. \u00c9g var sj\u00e1lfur \u00f6gn hissa \u00feegar \u00e9g var kvaddur \u00e1 heimili hans um n\u00f3tt eftir a\u00f0 hann var\u00f0 br\u00e1\u00f0kvaddur. \u00deegar \u00e9g spur\u00f0i f\u00f3lki\u00f0 hans hvort \u00fea\u00f0 vildi a\u00f0 \u00e9g hef\u00f0i b\u00e6n yfir honum var \u00fev\u00ed teki\u00f0 sem sj\u00e1lfs\u00f6g\u00f0um hlut og \u00feegar \u00e9g loks spur\u00f0i varf\u00e6rnislega hvort \u00feau teldu \u00fea\u00f0 \u00f3vi\u00f0eigandi a\u00f0 \u00e9g signdi yfir hann kv\u00e1\u00f0u \u00feau nei vi\u00f0. Hann var sk\u00edr\u00f0ur sem barn og fermdur sem unglingur. D\u00fai var ekki \u00f3vinur kirkju og kristni enda \u00fe\u00f3tt hann helga\u00f0i sig h\u00famanisma og \u00fatf\u00f6r hans fer fram \u00ed kirkju. H\u00famanismi er ekki ein kenning \u00ed einu flj\u00f3ti. \u00c1r kv\u00edslast \u00fat \u00far flj\u00f3ti og l\u00e6kir renna \u00far \u00e1m. Sumir h\u00famanistar hafna \u00e6\u00f0ri tilveru me\u00f0an a\u00f0rir gera \u00fea\u00f0 ekki.<\/p>\n<p>D\u00fai tr\u00fa\u00f0i \u00ed Lj\u00f3si\u00f0 og \u00ed dag felum vi\u00f0 hann Lj\u00f3sinu. Verkin hans lifa og g\u00f3\u00f0vildin gr\u00e6r \u00e1fram \u00ed hj\u00f6rtum \u00feeirra sem hann snart me\u00f0 elsku sinni.<\/p>\n<p>\u00cd 5.kafla 1. M\u00f3seb\u00f3kar er sagt fr\u00e1 Met\u00fasala:<\/p>\n<p>\u201eEnok var sext\u00edu og fimm \u00e1ra er hann gat Met\u00fasala. [. . . ] Met\u00fasala var hundra\u00f0 \u00e1ttat\u00edu og sj\u00f6 \u00e1ra er hann gat Lamek. Eftir f\u00e6\u00f0ingu Lameks lif\u00f0i Met\u00fasala \u00ed sj\u00f6 hundru\u00f0 \u00e1ttat\u00edu og tv\u00f6 \u00e1r og gat syni og d\u00e6tur. \u00c6vidagar Met\u00fasala ur\u00f0u n\u00edu hundru\u00f0 sext\u00edu og n\u00edu \u00e1r. \u00de\u00e1 d\u00f3 hann.\u201c<\/p>\n<p>D\u00fai lif\u00f0i allt of stutt, hann lif\u00f0i mun skemur en hinn langl\u00edfi nafni hans en hugsj\u00f3nir D\u00faa eru gamlar og \u00fe\u00e6r munu l\u00edklega lifa lengur en Met\u00fasala sonur Enoks. Hugsj\u00f3nir um betir heim munu lifa me\u00f0an ma\u00f0urinn byggir \u00feessa j\u00f6r\u00f0.<\/p>\n<p>Seinni li\u00f0urinn \u00ed nafni hans, salem, merkir fri\u00f0samur, heill. Hann bar nafn sitt me\u00f0 rentu og reisn og vi\u00f0 kve\u00f0jum Methusalem me\u00f0 vir\u00f0ingu og \u00fe\u00f6kk fyrir l\u00edf hans og st\u00f6rf. Blessu\u00f0 s\u00e9 minning Methusalems \u00de\u00f3rissonar.<\/p>\n<p>\u00c9g \u00e1 m\u00e9r draum, sag\u00f0i r\u00e6\u00f0uma\u00f0ur for\u00f0um daga. \u00c1tt \u00fe\u00fa \u00fe\u00e9r draum um betri heim? J\u00e1, \u00fe\u00fa \u00e1tt \u00fe\u00e9r \u00e1n efa draum um betra l\u00edf, manneskjulegri heim. L\u00e1ttu drauminn r\u00e6tast, fylgdu hjarta \u00fe\u00ednu og visku aldanna, gr\u00f3\u00f0ursettu tr\u00e9 elsku og vir\u00f0ingar, andm\u00e6ltu \u00f3r\u00e9tti og lygi og stattu v\u00f6r\u00f0 um r\u00e9ttl\u00e6ti og sannleika og gr\u00f3\u00f0urstarf \u00feitt Amen.<\/p>\n<p>Kve\u00f0jur:<\/p>\n<p>Systurd\u00e6tur D\u00faa senda kve\u00f0jur s\u00ednar og eigimanna sinna: \u00cdris og \u00d3lafur, Sonja og Kristj\u00e1n en \u00cdris kvaddi hann \u00ed g\u00e6r vi\u00f0 kistulagningu en gat ekki veri\u00f0 h\u00e9r \u00ed dag og Sonja er b\u00fasett \u00ed Sv\u00ed\u00fej\u00f3\u00f0.<\/p>\n<p>F\u00f6\u00f0urbr\u00f3\u00f0ir D\u00faa, Sigurj\u00f3n og Gu\u00f0r\u00fan fr\u00e1 Ytri-Hl\u00ed\u00f0 senda kve\u00f0ju s\u00edna.<\/p>\n<p>Erfidrykkja \u00ed I\u00f0n\u00f3.<\/p>\n<p>R\u00e6\u00f0an \u00e1 vefnum.<\/p>\n<p>S\u00e1lmaskr\u00e1in er h\u00e9r:  <a href=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2013\/06\/sc3a1lmaskrc3a1-methusalem.pdf\">S\u00e1lmaskr\u00e1 Methusalem<\/a><\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00d6rn B\u00e1r\u00f0ur J\u00f3nsson Minningaror\u00f0 Methusalem \u00de\u00f3risson 1946-2013 h\u00famanisti \u00datf\u00f6r (b\u00e1lf\u00f6r) fr\u00e1 Fr\u00edkirkjunni \u00ed Reykjav\u00edk f\u00f6studaginn 28. j\u00fan\u00ed 2013 kl. 13 R\u00e6\u00f0una er h\u00e6gt a\u00f0 lesa og hlusta \u00e1 h\u00e9r fyrir ne\u00f0an. Semlltu \u00e1 sl\u00f3\u00f0ina sem birtist fyrst og \u00fe\u00e1 fer hlj\u00f3\u00f0upptakan \u00ed gang.<\/p>\n","protected":false},"author":2,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_jetpack_newsletter_access":"","_jetpack_dont_email_post_to_subs":false,"_jetpack_newsletter_tier_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paywalled_content":false,"_jetpack_hide_featured_image":false,"_jetpack_featured_image_duplicate_dismissed":0,"_jetpack_feature_clip_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":"","jetpack_post_was_ever_published":false},"categories":[4],"tags":[101,122,319,420,424],"class_list":["post-607","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-greinar-og-hugvekjur-articles","tag-bifrost","tag-cafe-haiti","tag-humanismi","tag-mannlegur","tag-martin-luther-king-jr"],"jetpack_sharing_enabled":true,"jetpack_featured_media_url":"","_links":{"self":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/607","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/users\/2"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcomments&post=607"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/607\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fmedia&parent=607"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcategories&post=607"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Ftags&post=607"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}