{"id":596,"date":"2013-06-21T18:40:08","date_gmt":"2013-06-21T18:40:08","guid":{"rendered":"http:\/\/ornbardur.com\/?p=596"},"modified":"2013-06-21T18:40:08","modified_gmt":"2013-06-21T18:40:08","slug":"arni-hoskuldsson-1934-2013","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/ornbardur.com\/?p=596","title":{"rendered":"+\u00c1rni H\u00f6skuldsson 1934-2013"},"content":{"rendered":"<p>\u00d6rn B\u00e1r\u00f0ur J\u00f3nsson<\/p>\n<p><a href=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2013\/06\/arnihoskuldsson.png\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" src=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2013\/06\/arnihoskuldsson.png\" class=\"alignleft size-full wp-image-597\" alt=\"ArniHoskuldsson\" width=\"216\" height=\"281\"><\/a>Minningaror\u00f0<\/p>\n<p><b>\u00c1rni H\u00f6skuldsson<\/b><\/p>\n<p>gullsmi\u00f0ur<\/p>\n<p>1934-2013<\/p>\n<p>\u00datf\u00f6r fr\u00e1 Neskirkju<\/p>\n<p>f\u00f6studaginn 21. j\u00fan\u00ed 2013 ki. 13<\/p>\n<p>R\u00e6\u00f0una er h\u00e6gt a\u00f0 lesa og hlusta \u00e1 h\u00e9r fyrir ne\u00f0an me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 smella \u00e1 sl\u00f3\u00f0ina sem \u00fear birtist.<\/p>\n<p><!--more--><\/p>\n<p><a href=\"https:\/\/pub-c849b6aaf98340c4bec7b480b0f7ffe9.r2.dev\/2013\/06\/c3a1rni-hc3b6skuldsson.mp3\">https:\/\/pub-c849b6aaf98340c4bec7b480b0f7ffe9.r2.dev\/2013\/06\/c3a1rni-hc3b6skuldsson.mp3<\/a><\/p>\n<p><strong>\u00c9g<\/strong> var barn a\u00f0 aldri \u00feegar \u00c1rni H\u00f6skuldsson f\u00f3r fr\u00e1 \u00cdsafir\u00f0i og man \u00fev\u00ed l\u00edti\u00f0 eftir honum \u00fea\u00f0an enda 15 \u00e1rum yngri og ekki nema 7 \u00e1ra e\u00f0a svo \u00feegar hann f\u00f3r su\u00f0ur. En nafni\u00f0 var \u00feekkt enda setti hann svip \u00e1 b\u00e6inn me\u00f0 dugna\u00f0i s\u00ednum, \u00e1r\u00e6\u00f0ni og upp\u00e1t\u00e6kjum. F\u00f6\u00f0ur hans H\u00f6skuld \u00feekkti \u00e9g og kom stundum \u00e1 verkst\u00e6\u00f0i\u00f0 hans til a\u00f0 l\u00e1ta hann sm\u00ed\u00f0a eitt og anna\u00f0 sm\u00e1legt fyrir mig. Og einu sinni keypti \u00e9g hj\u00e1 honum smokk\u00f6ngla \u00e1\u00f0ur en \u00e9g f\u00f3r minn fyrsta og eina t\u00far inn \u00ed Dj\u00fap \u00e1 smokkfiskvei\u00f0ar me\u00f0 J\u00f3a \u00e1 horninu, Gar\u00f0ari Einars og fleirum \u00e1 einni af D\u00edsunum. \u00deetta var \u00e1 \u00feeim t\u00edma \u00feegar H\u00f6skuldi var meina\u00f0 a\u00f0 augl\u00fdsa smokk\u00f6ngla \u00ed \u00fatvarpi allra landsmanna, einu \u00fatvarspsst\u00f6\u00f0 \u00feess t\u00edma,&nbsp; vegna strangra si\u00f0fer\u00f0iskrafna og mikilla m\u00e1lfarsmeininga. Yngri systkini \u00c1rna \u00feekkti \u00e9g betur enda \u00e1 sama reki og hin elstu \u00ferj\u00fa \u00feeirra.<\/p>\n<p>\u00deegar \u00e9g fletti eitt sinn i\u00f0na\u00f0armannatali \u00cdsafjar\u00f0ar fr\u00e1 \u00fev\u00ed \u00e1 fyrri hluta li\u00f0innar aldar var\u00f0 \u00e9g undrandi \u00e1 fj\u00f6lda i\u00f0ngreina sem stunda\u00f0ar voru \u00ed b\u00e6num. B\u00e6rinn \u00f3x og dafna\u00f0i \u00e1 fyrstu \u00e1ratugum li\u00f0innar aldar og \u00fear var i\u00f0andi mannl\u00edf og m\u00f6guleikar miklir. Sta\u00f0urinn er undurfagur, n\u00e1tt\u00faran st\u00f3rfengleg og m\u00f6guleikar til \u00fativeru miklir. \u00c1rni var v\u00e6gast sagt virkur sem barn, t\u00e1pmikill str\u00e1kur, sterkbygg\u00f0ur og duglegur. Hann var \u00fat um allt, ni\u00f0r\u00ed fj\u00f6ru, uppi \u00ed Hl\u00ed\u00f0 og uppi \u00e1 fj\u00f6llum. Hann l\u00e9k s\u00e9r \u00fati alla daga ef hann var ekki a\u00f0 vinna hj\u00e1 pabba vi\u00f0 a\u00f0 steypa r\u00f6r e\u00f0a s\u00fdsla eitthva\u00f0 anna\u00f0.<\/p>\n<p>Hann stunda\u00f0i sund og f\u00f3tbolta, var \u00ed Her\u00f0i en algengt var a\u00f0 drengir v\u00e6ri skr\u00e1\u00f0ir \u00ed H\u00f6r\u00f0 e\u00f0a Vestra um lei\u00f0 og \u00feeir voru sk\u00edr\u00f0ir og fengu nafn. Sk\u00ed\u00f0a\u00ed\u00fer\u00f3ttin heilla\u00f0i hann og \u00feegar hann var 8 \u00e1ra f\u00f3r hann dag einn sem oftar inn \u00e1 Dal og var ekki kominn heim um kv\u00f6ldmat. Pabbi var farinn a\u00f0 \u00f3kyrrast en um s\u00ed\u00f0ir koma drengurinn heim. Sk\u00fdringin var a\u00f0 hann haf\u00f0i teki\u00f0 \u00fe\u00e1tt \u00ed Fossavatnsg\u00f6ngunni, eiginlega \u00f3vart. Fyrst hann h\u00f3f g\u00f6nguna \u00fe\u00e1 kl\u00e1ra\u00f0i hann hana auvita\u00f0. \u00de\u00e1 var farin u.\u00fe.b. 20 km lei\u00f0. Fossavatnsgangan er elsta sk\u00ed\u00f0am\u00f3t sem enn er vi\u00f0 l\u00fd\u00f0i \u00e1 \u00cdslandi, en gangan f\u00f3r fyrst fram \u00e1ri\u00f0 1935. Hann ger\u00f0i l\u00edti\u00f0 \u00far afrekinu og sag\u00f0ist ekkert \u00fereyttur en sofna\u00f0i a\u00f0 \u00fev\u00ed b\u00fanu ofan \u00ed kv\u00f6ldmatinn. \u00cd vi\u00f0tali vi\u00f0 hann \u00ed Vestanp\u00f3stinum \u00ed jan\u00faar 1999 (1.tbl. 11. \u00e1rg. s. 17-26) rekur hann minningar s\u00ednar fr\u00e1 \u00e6skud\u00f6gum \u00e1 \u00cdsafir\u00f0i. Hann var alltaf a\u00f0, f\u00f3r \u00ed sendifer\u00f0ir fyrir f\u00f3lk, \u201eelska\u00f0ur af \u00f6llum kerlingum \u00ed b\u00e6num\u201c eins og Didda systir hans or\u00f0a\u00f0i \u00fea\u00f0, sem fengu hann til a\u00f0 hlaupa \u00ed b\u00fa\u00f0ir og s\u00e6kja eitt og anna\u00f0 fyrir sig. Stundum var hann b\u00fainn a\u00f0 taka \u00e6rlegan toll af brau\u00f0inu sem hann s\u00f3tti \u00ed bakar\u00edi\u00f0 enda \u00feurfti vaxandi str\u00e1kur mikla orku. Hann var alltaf brosandi me\u00f0 sitt rau\u00f0a h\u00e1r. \u00dea\u00f0 var bjart \u00ed kringum hann \u00c1rna. Hann haf\u00f0i n\u00f3g fyrir stafni og dagarnir li\u00f0u flj\u00f3tt. Hann var l\u00edklega fyrstur manna \u00e1 landinu til a\u00f0 sm\u00ed\u00f0a s\u00e9r og nota sj\u00f3- e\u00f0a vatnask\u00ed\u00f0i en mynd af honum \u00ed Vestanp\u00f3stinum s\u00fdnir hann \u00e1 fleygifer\u00f0i \u00e1 Pollinum. Styrkur hans og \u00ferek var alla t\u00ed\u00f0 miki\u00f0. En n\u00fa er hann fallinn \u00ed valinn eins og henda mun okkur \u00f6ll \u00ed fyllingu t\u00edmans.<\/p>\n<p>Vi\u00f0 \u00c1rni kynntumst fyrir 15 \u00e1rum e\u00f0a svo en \u00fe\u00e1 hitti \u00e9g hann af og til \u00ed Bankastr\u00e6ti \u00fear sem hann drakk kaffi \u00e1 morgnana \u00ed h\u00f3pi skraffinna. Hann horf\u00f0i gjarnan \u00e1 mig eil\u00edti\u00f0 \u00e1 sk\u00e1 og me\u00f0 bros \u00e1 v\u00f6r og vildi gjarnan r\u00e6\u00f0a vi\u00f0 mig eil\u00edf\u00f0arm\u00e1lin sem voru honum hugleikin \u00ed \u00fea\u00f0 minnsta \u00feegar hann komst \u00ed t\u00e6ri vi\u00f0 prest. Hann l\u00fdsti s\u00e9r sem litlum tr\u00famanni og vi\u00f0 gl\u00edmdum d\u00e1l\u00edti\u00f0 um tr\u00fam\u00e1l. \u00c1hugavert er jafnan a\u00f0 r\u00f6kr\u00e6\u00f0a vi\u00f0 hugsandi f\u00f3lk. \u00c1rni var glettin og \u00f6gn str\u00ed\u00f0inn \u00ed \u00feessum samt\u00f6lum og \u00e9g t\u00f3k au\u00f0vita\u00f0 \u00e1 m\u00f3ti honum \u00ed sama anda og spur\u00f0i hvernig honum li\u00f0i a\u00f0 gr\u00e6\u00f0a \u00e1 gulli me\u00f0 tr\u00faart\u00e1knum og selja hringa til kirkjubr\u00fa\u00f0kaupa. \u00de\u00e1 hl\u00f3 \u00c1rni og sk\u00e1skaut \u00e1 mig augum. \u00deetta voru skemmtilegar samr\u00e6\u00f0ur, glettnar og gr\u00e6skulausar. Eftir kaffi r\u00f6lti hann upp \u00e1 Bergsta\u00f0astr\u00e6ti og settist vi\u00f0 s\u00edna i\u00f0ju sem ekki er n\u00fd af n\u00e1linni \u00fev\u00ed um aldir og \u00e1r\u00fe\u00fasund hafa menn sm\u00ed\u00f0a\u00f0 eitt og anna\u00f0 \u00far m\u00e1lmum. \u00c1 fyrst s\u00ed\u00f0um Bibl\u00edunnar segir:<\/p>\n<p>\u201eFlj\u00f3t rennur fr\u00e1 Eden og v\u00f6kvar gar\u00f0inn. \u00dea\u00f0an kv\u00edslast \u00fea\u00f0 og ver\u00f0ur a\u00f0 fj\u00f3rum st\u00f3r\u00e1m. Hin fyrsta heitir P\u00edson. H\u00fan fellur um allt landi\u00f0 Hav\u00edla \u00fear sem gulli\u00f0 f\u00e6st.\u201c (1. M\u00f3s 2.10)<\/p>\n<p>Ma\u00f0urinn hefur alla t\u00ed\u00f0 veri\u00f0 fyrir skraut og skart og t\u00e1kn hefur hann bori\u00f0 af \u00fdmstu tagi um aldir. T\u00e1kn eru merkileg \u00fev\u00ed \u00feau benda \u00fat fyrir sig sj\u00e1lf og \u00e1 annan veruleika, oftar en ekki \u00e6\u00f0ri veruleika. Krossinn er l\u00edklega eitt \u00feekktasta t\u00e1kn veraldar og \u00e1 m\u00e1li vi\u00f0skipta \u00feykir hann ver\u00f0m\u00e6tt l\u00f3g\u00f3 eins og sagt er \u00ed h\u00fasum Mamm\u00f3ns. Eitt hi\u00f0 merkilegasta vi\u00f0 krossinn er a\u00f0 hann er \u00ed raun aft\u00f6kut\u00e6ki sem hefur sn\u00faist \u00ed vonart\u00e1kn fyrir upprisu Krists fr\u00e1 dau\u00f0um. Upprisa Jes\u00fa vekur f\u00f3lki enn tr\u00fa og von \u00e1 a\u00f0 l\u00edfi\u00f0 s\u00e9 \u00ed st\u00e6rra samhengi en vi\u00f0 augum blasir \u00ed annr\u00edki daganna.<\/p>\n<p>\u00c1rni H\u00f6skuldsson f\u00e6ddist 31. mars 1934. Hann l\u00e9st 12. j\u00fan\u00ed 2013.<\/p>\n<p>Foreldrar hans voru H\u00f6skuldur \u00c1rnason, gullsmi\u00f0ur f. 6. j\u00fan\u00ed 1898 og Anna J\u00f3nsd\u00f3ttir, f. 23. n\u00f3vember 1897. Stj\u00fapm\u00f3\u00f0ir \u00c1rna, seinni kona H\u00f6skuldar, var Au\u00f0ur Gu\u00f0j\u00f3nsd\u00f3ttir, f. 7. apr\u00edl 1918, d. 30. ma\u00ed 2001.<\/p>\n<p>\u00c1rni eigna\u00f0ist soninn Birgi f. 21. okt\u00f3ber 1957 me\u00f0 \u00c1su Ketilsd\u00f3ttu, fr\u00e1 \u00cdsafir\u00f0i. H\u00fan er f\u00e6dd f. 11. okt\u00f3ber 1939 og var \u00fev\u00ed n\u00fdor\u00f0in 18 \u00e1ra er drengurinn s\u00e1 dagsins lj\u00f3s og \u00c1rni 23 \u00e1ra. H\u00fan flutti su\u00f0ur me\u00f0 drenginn \u00e1samt foreldrum s\u00ednum og l\u00f6ng s\u00ed\u00f0ar t\u00f3k \u00feau saman \u00c1rni og \u00c1sa og gengu \u00ed hj\u00f3naband enn s\u00ed\u00f0ar. \u00deau unnu saman \u00e1 verkst\u00e6\u00f0inu \u00ed 22 \u00e1r, \u00f3l\u00edk og \u00e1kve\u00f0in b\u00e6\u00f0i tv\u00f6 og hvort me\u00f0 sinn smekk \u00e1 skarti og skrauti. \u00c1rni var fylginn s\u00e9r, hann var \u00ferj\u00f3skur \u00ed besta skilningi, segir Birgir sonur hans, ma\u00f0ur me\u00f0 \u00fathald og seiglu sem reyndist m\u00f6rgu f\u00f3lki vel \u00e1 l\u00edfslei\u00f0inni.<\/p>\n<p>Barnsm\u00f3\u00f0ir Birgis er Unnur Sigr\u00ed\u00f0ur Einarsd\u00f3ttir, f. 26. j\u00fan\u00ed 1957. Barn \u00feeirra er \u00c1rni Einar, f. 5. febr\u00faar 1975 sem \u00e1 soninn, Max Le\u00f3. Maki Birgis er Margr\u00e9t P\u00e1lmarsd\u00f3ttir, f. 6. j\u00fal\u00ed 1955. Barn \u00feeirra, Mar\u00eda Anna, f. 30. desember 1999.<\/p>\n<p>B\u00f6rn \u00c1su af fyrra hj\u00f3nabandi eru Sveinn, f. 26. jan\u00faar 1962, Mar\u00eda, f. 30. desember 1964 og Ragnhei\u00f0ur Sveinsb\u00f6rn, f. 2. j\u00fal\u00ed 1966. B\u00f6rn Ragnhei\u00f0ar eru \u00c1sa \u00d3lafsd\u00f3ttir, f. 21.j\u00fal\u00ed 1989, sem \u00e1 \u00c1smundur \u00d3lafsson, f. 8. febr\u00faar 1988 a\u00f0 samb\u00fdlismanni og Rakel Kristj\u00e1nsd\u00f3ttir, f. 27. febr\u00faar 2000.<\/p>\n<p>Systkini \u00c1rna,<\/p>\n<ol>\n<li>Arnhei\u00f0ur El\u00edn, f. 21. n\u00f3vember 1925, d. 3. ma\u00ed 1992.<\/li>\n<li>Vald\u00eds Hildur Valdimars, f. 17. desember 1930, d. 31. mars 1964, d\u00e6tur H\u00f6skuldar fr\u00e1 \u00fev\u00ed fyrir fyrra hj\u00f3naband. \u00de\u00e1 koma n\u00e6st:<\/li>\n<li>Filip \u00de\u00f3r, f. 10. september 1931, maki Anna Ingibj\u00f6rg Hjartard\u00f3ttir, f. 16. n\u00f3vember 1935.<\/li>\n<li>J\u00f3na Valger\u00f0ur, f. 31. mars 1933, maki G\u00edsli Hildibrandur Gu\u00f0laugsson, f. 15. mars 1933, d. 10. j\u00fan\u00ed 1997.<\/li>\n<li>Dav\u00ed\u00f0 Arndal, f. 22. desember 1946, maki Sigr\u00ed\u00f0ur S\u00f6rensen, f. 22. ma\u00ed 1957.<\/li>\n<li>Anna, f. 26. september 1948, maki Egill Sm\u00e1ri Egilsson, f. 17. jan\u00faar 1947.<\/li>\n<li>Gu\u00f0j\u00f3n Halld\u00f3r, f. 25. jan\u00faar 1950.<\/li>\n<li>Gunnhildur Inga, f. 29. \u00e1g\u00fast 1951, maki \u00d3lafur Sn\u00e6var \u00d6gmundsson, f. 18. j\u00fan\u00ed 1944.<\/li>\n<li>Au\u00f0ur Arna, f. 4. september 1956.<\/li>\n<li>Brynhildur Rebekka, f. 29. jan\u00faar 1960, maki Marsel\u00edus Gu\u00f0mundsson, f. 23. jan\u00faa 1954.<\/li>\n<\/ol>\n<p>\u00c1rni var g\u00f3\u00f0ur fa\u00f0ir og stj\u00fapi, elska\u00f0ur af s\u00ednum b\u00f6rnum og barnab\u00f6rnum, grei\u00f0vikinn og vildi allt fyrir alla gera. \u00c1rni l\u00e6r\u00f0i gullsm\u00ed\u00f0i hj\u00e1 f\u00f6\u00f0ur s\u00ednum \u00e1 \u00cdsafir\u00f0i. Hann var strax sem drengur fj\u00f6lh\u00e6fur og flinkur vi\u00f0 margskyns sm\u00ed\u00f0ar, teiknun og litun. \u00dea\u00f0 l\u00e9k allt \u00ed h\u00f6ndum hans, hvort sem voru n\u00fdsm\u00ed\u00f0ar e\u00f0a vi\u00f0ger\u00f0ir. Hann stofna\u00f0i Gullsm\u00ed\u00f0averkst\u00e6\u00f0i \u00c1rna H\u00f6skuldssonar flj\u00f3tlega eftir a\u00f0 hann kom su\u00f0ur og rak \u00fea\u00f0 \u00fear til 2009. Hann var einnig mj\u00f6g fj\u00f6lh\u00e6fur \u00ed\u00fer\u00f3ttama\u00f0ur, afreksma\u00f0ur og frumkv\u00f6\u00f0ull. Ennfremur t\u00f3k hann drj\u00fagan \u00fe\u00e1tt \u00ed sk\u00e1tastarfi me\u00f0 Sk\u00e1taf\u00e9laginu Einherjum, me\u00f0al annars \u00ed hj\u00e1lparsveitinni.<\/p>\n<p>S\u00e9rstakar kve\u00f0jur eru h\u00e9r fluttar fr\u00e1 b\u00f6rnum Valger\u00f0ar, Sign\u00fd (framb. lint: Sign\u00fd ekki SiGN\u00fd) \u00ed Brasil\u00edu og Agli Arnari og fj\u00f6lskyldu \u00e1 Englandi me\u00f0 \u00fe\u00f6kk fyrir allt. \u00de\u00e1 bi\u00f0ur Flosi J\u00f3nsson, gullsmi\u00f0ur fyrir g\u00f3\u00f0ar kve\u00f0jur og \u00feakkir fyrir margar \u00f3gleymanlegar stundi, utanfer\u00f0ir og samskipti \u00ed gegnum \u00e1rin.<\/p>\n<p>N\u00fa hefur \u00feessi kraftmikli ma\u00f0ur og \u00ed\u00fer\u00f3ttagarpur loki\u00f0 dagsverki s\u00ednu. \u00c1ratugum saman var \u00c1rni mikill hestama\u00f0ur og \u00e1tti marga hesta en k\u00e6rastur var honum g\u00e6\u00f0ingurinn Gustur. Landi\u00f0 skartar s\u00ednu fegursta \u00ed dag \u00feegar s\u00f3l stendur h\u00e6st vi\u00f0 sumars\u00f3lhv\u00f6rf. \u00deetta er dagur til a\u00f0 skapa og nj\u00f3ta \u00fatveru. F\u00f3lk er \u00e1 fer\u00f0 og flugi og n\u00fdtur \u00feess a\u00f0 leika s\u00e9r. Kylfingar sveifla k\u00f3lfum og hetstamenn gyr\u00f0a g\u00e6\u00f0inga. L\u00edfi\u00f0 er d\u00e1samlegt og fagurt en \u00fev\u00ed l\u00fdkur hj\u00e1 okkur \u00f6lllum og \u00fev\u00ed vissara a\u00f0 nj\u00f3ta \u00feess me\u00f0an dagur er.<\/p>\n<p>\u00cd Dav\u00ed\u00f0ss\u00e1lmum segir:<\/p>\n<p>Hann [Gu\u00f0 ]hefur ekki m\u00e6tur \u00e1 styrk hestsins,<\/p>\n<p>hr\u00edfst ekki af fr\u00e1um f\u00f3tum mannsins.<\/p>\n<p>Drottinn hefur \u00fe\u00f3knun \u00e1 \u00feeim sem \u00f3ttast hann, \u00feeim sem setja von s\u00edna \u00e1 miskunn hans.<\/p>\n<p>Sl 147.10-11<\/p>\n<p>\u00deannig hugsu\u00f0u menn \u00e1 heitum s\u00f6ndum Palest\u00ednu fyrir \u00feremur \u00e1r\u00fe\u00fasundum e\u00f0a svo \u00feegar \u00feeir l\u00e9tu hugann reika \u00fat og ofar hinum daglega striti og r\u00fdndu \u00ed d\u00fdptir og v\u00edddir l\u00edfsins og spur\u00f0u um hinstur r\u00f6k. Og spyrja m\u00e1 \u00ed dag \u00e1 \u00fev\u00ed herrans \u00e1ri 2013: Er n\u00f3g a\u00f0 vera strerkur, a\u00f0 vera r\u00edkur, a\u00f0 vera mennta\u00f0ur, a\u00f0 vera gl\u00e6silegur og st\u00e6ltur? Er eitthva\u00f0 anna\u00f0 sem skiptir meira m\u00e1li en \u00feetta allt sem \u00fe\u00f3 er vissulega vert a\u00f0 b\u00faa yfir og nj\u00f3ta? Hva\u00f0 merkir \u00fea\u00f0 a\u00f0 \u00f3ttast Gu\u00f0 eins og segir \u00ed s\u00e1lminum? \u00dea\u00f0 er a\u00f0 vir\u00f0a hann og hin \u00e6\u00f0ri l\u00f6gm\u00e1l l\u00edfsins. S\u00e1 ma\u00f0ur er r\u00edkur og vitur sem hefur au\u00f0m\u00fdkt a\u00f0 bera andsp\u00e6nis hinum st\u00e6rri tilvistarspurningum. \u00cd musterinu \u00ed Jer\u00fasalem voru F\u00f6grudyr. Hva\u00f0a dyr m\u00e6ta okkur vi\u00f0 l\u00edfslok og hver er a\u00f0gangseyririnn? \u00dear duga hvorki b\u00ed\u00f3mi\u00f0ar \u00far Al\u00fe\u00fd\u00f0uh\u00fasinu \u00e1 \u00cdsafir\u00f0i, sem str\u00e1karnir keyptu for\u00f0um og seldu svo aftu, hvorki gull e\u00f0a silfur, kr\u00f3nur e\u00f0a aurar og ekki einu sinni g\u00f3\u00f0verk hversu m\u00f6rg sem \u00feau kunna annars a\u00f0 vera og \u00e1tti \u00c1rni n\u00fa n\u00f3g af \u00feeim \u00ed s\u00ednum sj\u00f3\u00f0i og m\u00f6rg eru \u00feau sem eiga honum \u00fe\u00f6kk a\u00f0 gjalda.<\/p>\n<p>Eini a\u00f0gangseyririnn sem gildur er og aldrei gengisfellur er tr\u00fa, traust til hins h\u00e6sta og s\u00fa vitund a\u00f0 ma\u00f0urinn er allslaus og \u00e1n innist\u00e6\u00f0u andsp\u00e6nis honum sem \u00e1 alla ver\u00f6ldina.<\/p>\n<p>Til er r\u00famfr\u00e6\u00f0ileg skilgreining \u00e1 Gu\u00f0i sem hlj\u00f3\u00f0ar svo: Gu\u00f0 er hringur hvers mi\u00f0ja er allsta\u00f0ar og ystu m\u00f6rk hvergi.<\/p>\n<p>Vi\u00f0 komumst ekki \u00fat \u00far \u00feessum hring. Gu\u00f0 er og ver\u00f0ur um eil\u00edf\u00f0 og vi\u00f0 erum innan hans hrings hverju sem vi\u00f0 tr\u00faum og hva\u00f0 sem vi\u00f0 h\u00f6ldum um l\u00edfi\u00f0 og tilveruna.<\/p>\n<p>Vi\u00f0 hverfum \u00f6ll af \u00feessu jar\u00f0l\u00edfi sem er svo stutt og stopult, \u00f6rf\u00e1ar \u00feverhendur og eigum \u00fe\u00e1 sem n\u00fa allt undir hinum h\u00e6sta Gu\u00f0i.<\/p>\n<p>Vi\u00f0 kve\u00f0jum \u00c1rna H\u00f6skuldsson vi\u00f0 \u00fe\u00e6r dyr sem skilja a\u00f0 heim l\u00e1tinna og lifenda og bi\u00f0jum honum blessunar Gu\u00f0s sem \u00feekkir gl\u00edmu mannsins vi\u00f0 hinstu r\u00f6k, spurn hans, vangaveltur, efasemdir, bernskubrek og breyskleika allra t\u00edma. Gu\u00f0 er k\u00e6rleikur, sag\u00f0i J\u00f3hannes gu\u00f0spjallama\u00f0ur og hann getur aldrei gengi\u00f0 \u00ed bl\u00f3ra vi\u00f0 eigi\u00f0 e\u00f0li sem er a\u00f0 elska.<\/p>\n<p>Gu\u00f0 styrki \u00c1su og b\u00f6rnin \u00feeirra hj\u00f3na, systkini \u00c1rna og fr\u00e6ndgar\u00f0, vini og samfer\u00f0af\u00f3lk og lei\u00f0i okkur um l\u00edfi\u00f0 \u00ed gle\u00f0i og f\u00f6gnu\u00f0i yfir \u00feeirri d\u00e1semd a\u00f0 hafa fengi\u00f0 a\u00f0 vera til \u00ed \u00feetta eina skipti. Nj\u00f3tum daganna og verum gl\u00f6\u00f0 \u00fer\u00e1tt fyrir sorg og missi \u00fev\u00ed l\u00edfi\u00f0 er&nbsp; \u00fer\u00e1tt fyrir allt, d\u00e1samlegt og undursamlegt!<\/p>\n<p>D\u00fdr\u00f0 s\u00e9 Gu\u00f0i, f\u00f6\u00f0ur og syni og heil\u00f6gum anda. Svo sem var \u00ed upphafi er og ver\u00f0ur um aldir alda. Amen.<\/p>\n<p>Ritningarlestrar:<\/p>\n<p>Postulasagan 3<\/p>\n<p>J\u00f3hannes 14<\/p>\n<p>Upphaf beggja kafla.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00d6rn B\u00e1r\u00f0ur J\u00f3nsson Minningaror\u00f0 \u00c1rni H\u00f6skuldsson gullsmi\u00f0ur 1934-2013 \u00datf\u00f6r fr\u00e1 Neskirkju f\u00f6studaginn 21. j\u00fan\u00ed 2013 ki. 13 R\u00e6\u00f0una er h\u00e6gt a\u00f0 lesa og hlusta \u00e1 h\u00e9r fyrir ne\u00f0an me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 smella \u00e1 sl\u00f3\u00f0ina sem \u00fear birtist.<\/p>\n","protected":false},"author":2,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_jetpack_newsletter_access":"","_jetpack_dont_email_post_to_subs":false,"_jetpack_newsletter_tier_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paywalled_content":false,"_jetpack_hide_featured_image":false,"_jetpack_featured_image_duplicate_dismissed":0,"_jetpack_feature_clip_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":"","jetpack_post_was_ever_published":false},"categories":[4],"tags":[],"class_list":["post-596","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-greinar-og-hugvekjur-articles"],"jetpack_sharing_enabled":true,"jetpack_featured_media_url":"","_links":{"self":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/596","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/users\/2"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcomments&post=596"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/596\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fmedia&parent=596"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcategories&post=596"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Ftags&post=596"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}