{"id":579,"date":"2013-06-16T14:45:15","date_gmt":"2013-06-16T14:45:15","guid":{"rendered":"http:\/\/ornbardur.com\/?p=579"},"modified":"2013-06-16T14:45:15","modified_gmt":"2013-06-16T14:45:15","slug":"heim-2","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/ornbardur.com\/?p=579","title":{"rendered":"Heim"},"content":{"rendered":"<p><a href=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2013\/06\/tc3bdndi-sonurinn.jpg\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" class=\"alignleft size-medium wp-image-581\" alt=\"T\u00fdndi sonurinn\" src=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2013\/06\/tc3bdndi-sonurinn.jpg?w=235\" width=\"235\" height=\"300\" \/><\/a>\u00d6rn B\u00e1r\u00f0ur J\u00f3nsson<\/p>\n<p><strong>Heim<\/strong><\/p>\n<p>Pr\u00e9dikun \u00ed Neskirkju<\/p>\n<p>sunnudaginn 16. j\u00fan\u00ed 2013 kl. 11<\/p>\n<p>trin 2 e 2013<\/p>\n<p>B\u00e6n, \u00e1varp og inngangur.<\/p>\n<p>(Einhver innskot e\u00f0a or\u00f0alagsbreytingar eru \u00e1 hlj\u00f3\u00f0uppt\u00f6kunni)<\/p>\n<p><!--more--><\/p>\n\n<p>Hven\u00e6r f\u00f3rstu a\u00f0 heiman? Hven\u00e6r fer f\u00f3lk a\u00f0 heiman? Foresendan \u00feess a\u00f0 fara a\u00f0 heiman er a\u00f0 eiga heimili. S\u00e1 sem \u00e1 ekkert heimili, engan samasta\u00f0, getur ekki fari\u00f0 a\u00f0 heiman. \u00deau eru m\u00f6rg \u00ed heiminum sem eiga ekkert heimili.<\/p>\n<p>Hvar \u00e1ttu heima? N\u00fana. Hvar \u00e1ttir \u00fe\u00fa heima? Og hven\u00e6r f\u00f3rstu a\u00f0 heiman?<\/p>\n<p>D\u00e6misaga dagsins er um tvo syni. Til s\u00f6gunnar hefur oft veri\u00f0 v\u00edsa\u00f0 sem s\u00f6gunnar af glata\u00f0a syninum e\u00f0a t\u00fdnda syninum. \u00cd hef\u00f0i kirkjunnar hefur jafnan veri\u00f0 l\u00f6g\u00f0 \u00e1 \u00fea\u00f0 \u00e1hersla a\u00f0 h\u00fan sn\u00faist um i\u00f0run sonarins sem f\u00f3r a\u00f0 heiman, vi\u00f0sn\u00faning hans, i\u00f0run hans. Sagan hefur \u00fev\u00ed or\u00f0i\u00f0 a\u00f0 si\u00f0fer\u00f0ilegri br\u00fdningu, m\u00f3ral\u00edseringu. H\u00fan er notu\u00f0 til a\u00f0 pr\u00e9dika yfir f\u00f3lki og \u00fe\u00e1 nota \u00e9g or\u00f0i\u00f0 pr\u00e9dikun \u00ed neikv\u00e6\u00f0ri merkingu eins og oft er gert \u00ed daglegu tali f\u00f3lks. Hver er merking \u00feessarar merku s\u00f6gu?<\/p>\n<p>D\u00e6mis\u00f6gur Jes\u00fa og t\u00e1kns\u00f6gur Bibl\u00edunnar eru merkilegar b\u00f3kmenntir, sumar \u00feeirra hreinar perlur heimsb\u00f3kmenntanna, s\u00f6gur \u00ed farangri f\u00f3lks, \u00ed farteskinu, eins og lyklakippa \u00ed vasa me\u00f0 m\u00f6rgum lyklum sem lj\u00faka upp dyrum a\u00f0 inns\u00e6i og skilningi \u00e1 l\u00edfinu.<\/p>\n<p>Hva\u00f0 segir \u00feessi saga okkur?<\/p>\n<p>H\u00fan er myndr\u00e6n og vel samin. H\u00fan er \u00feess e\u00f0lis a\u00f0 h\u00fan lifir. H\u00fan tala\u00f0i til f\u00f3lks \u00e1 d\u00f6gum Jes\u00fa \u00ed allt \u00f6\u00f0ru \u00fej\u00f3\u00f0f\u00e9lagi en vi\u00f0 lifum \u00ed og h\u00fan talar til okkar sem b\u00faum \u00ed Reykjav\u00edk samt\u00edmans.<\/p>\n<p>Ungur ma\u00f0ur fer a\u00f0 heiman og f\u00e6r arf sinn fyrirfram. \u00cd honum b\u00fdr \u00e6vint\u00fdra\u00fer\u00e1 og eftirs\u00f3kn eftir einhverju \u00f3kunnu. Hann leggur af sta\u00f0 en eftir heima eru fa\u00f0ir og br\u00f3\u00f0ir og anna\u00f0 heimilisf\u00f3lk. M\u00f3\u00f0irin er hvergi nefnd. Hverjar voru \u00e1hyggjur hennar? Vi\u00f0 getum gefi\u00f0 okkur a\u00f0 fa\u00f0irinn hafi ver\u00f0 hugsi yfir \u00feessu flani sonarins me\u00f0 fulla vasa fj\u00e1r.<\/p>\n<p>Hann er farinn. \u00dea\u00f0 er erfitt a\u00f0 fara a\u00f0 heiman og \u00fea\u00f0 er erfitt fyrir foreldra a\u00f0 kve\u00f0ja b\u00f6rnin s\u00edn.<\/p>\n<p>\u00cd vetur las \u00e9g b\u00f3kina um Nonna eftir Gunnar Gu\u00f0mundsson, fr\u00e1b\u00e6rt verk og vanda\u00f0 enda f\u00e9kk h\u00f6fundur virt ver\u00f0laun fyrir skrifin. Nonni fer \u00fat \u00ed hinn st\u00f3ra heim og mamma er eftir h\u00e9r \u00e1 landi og flytur svo til vesturheims og \u00feau sj\u00e1st aldrei aftur. En \u00feau skrifast \u00e1 og br\u00e9fin eru merkileg heimild um l\u00edf drengsins og m\u00f3\u00f0ur hans sem aldrei s\u00e1 drenginn sinn vaxa e\u00f0a ver\u00f0a fullor\u00f0inn. H\u00f6fundur b\u00f3karinn sag\u00f0i m\u00e9r a\u00f0 Nonni hef\u00f0i aldrei \u00e1tt neitt f\u00f6\u00f0urland eftir a\u00f0 hann f\u00f3r fr\u00e1 \u00cdslandi og \u00fev\u00ed eiginlega veir\u00f0 landlaus ma\u00f0ur, sendur til og fr\u00e1 af klausturreglunni sem hann tilheyr\u00f0i. Vi\u00f0 \u00fer\u00e1um \u00f6ll heim um lei\u00f0 og vi\u00f0 ung vildum fara a\u00f0 heiman.<\/p>\n<p>Hin klass\u00edska t\u00falkun s\u00f6gunnar um synina tvo eins og h\u00fan er k\u00f6llu\u00f0 \u00ed dag \u00ed fyrirs\u00f6gn \u00ed hinni helgu b\u00f3k er f\u00f3lgin \u00ed \u00fev\u00ed a\u00f0 leggja \u00e1herslu \u00e1 i\u00f0run sonarins, \u00e1 \u00fea\u00f0 a\u00f0 hann kom til sj\u00e1lfs s\u00edn, gekk \u00ed sig eftir a\u00f0 hafa \u00e1tta\u00f0 sig \u00e1 a\u00f0 hann var or\u00f0inn allslaus og komin \u00ed sva\u00f0i\u00f0 \u00ed b\u00f3kstaflegri merkingu. Hann i\u00f0ra\u00f0ist. S\u00f6gnin a\u00f0 i\u00f0rast \u00e1 gr\u00edsku, sem NT var rita\u00f0 \u00e1, merkir a\u00f0 sn\u00faa vi\u00f0, a\u00f0 taka sinnaskiptum, fara til baka. Vissulega er \u00fea\u00f0 st\u00f3r \u00fe\u00e1ttur \u00ed s\u00f6gunni og \u00e6tla m\u00e1 vi\u00f0 fyrstu s\u00fdn a\u00f0 \u00fear liggi \u00e1sinn, sn\u00faningspunkturinn og \u00e1herslan. Hj\u00e1 \u00fev\u00ed ver\u00f0ur ekki komist a\u00f0 l\u00edta svo \u00e1 a\u00f0 vi\u00f0sn\u00faningurinn skipti sk\u00f6pum \u00ed framvindu s\u00f6gunnar. En ef hann er ekki \u00feungami\u00f0jan hver er h\u00fan \u00fe\u00e1?<\/p>\n<p>L\u00fakas vann sitt verk sem h\u00e6fur rith\u00f6fundur sem ra\u00f0ar efninu eftir \u00e1herslum og byggir upp heildarverk, gu\u00f0spjall sitt, me\u00f0 upphafi, framvindu, mi\u00f0l\u00e6gum atbur\u00f0i og ni\u00f0urlagi Allt \u00ed einni \u00ed heild. Hver kafli er l\u00edka \u00fathugsa\u00f0ur. \u00cd 15. kafla verksins eru \u00ferj\u00e1r d\u00e6mis\u00f6gur. Hin fyrsta er um t\u00fdndan sau\u00f0, \u00f6nnur um t\u00fdnda dr\u00f6kmu og hin \u00feri\u00f0ja um t\u00fdndan son. Fyrsta sagan er andsvar vi\u00f0 \u00f3lund og gagnr\u00fdni far\u00edsea og fr\u00e6\u00f0imanna sem t\u00f6ldu sig vita betur og vera betri en a\u00f0rir og s\u00f6g\u00f0u: \u201e\u00deessi ma\u00f0ur tekur a\u00f0 s\u00e9r syndara og samneytir \u00feeim.\u201c Okkur kann a\u00f0 \u00feykja \u00feetta framandi afsta\u00f0a en h\u00fan er ekki fjarri samt\u00edmanum \u00fev\u00ed enn er til f\u00f3lk sem hneykslast \u00e1 samneyti einstaklinga vi\u00f0 anna\u00f0 f\u00f3lk, t.d. vi\u00f0 \u00fatlendinga, vi\u00f0 f\u00f3lk me\u00f0 a\u00f0rar p\u00f3lit\u00edskar sko\u00f0anir og svo m\u00e6tti lengi telja.<\/p>\n<p>Fyrsta saga Jes\u00fa \u00ed 15. kafla L\u00fakasargu\u00f0pjalls er um t\u00fdndan sau\u00f0. \u00cd s\u00f6gunni er hir\u00f0ir og hj\u00f6r\u00f0 og svo einn villur\u00e1fandi sau\u00f0ur sem fer fr\u00e1. Hir\u00f0irinn skilur hina 99 eftir og fer og finnur hinn t\u00fdnda.<\/p>\n<p>\u00cd n\u00e6stu s\u00f6gu er kona sem \u00e1 10 dr\u00f6kmur en 1 drakma var jafngildi launa 1 dags. H\u00fan t\u00fdndi einni. Og hva\u00f0 gerir konan \u00fe\u00e1. J\u00fa, h\u00fan kveikir lj\u00f3s, s\u00f3par h\u00fasi\u00f0 og leitar vandlega og finnur dr\u00f6kmuna. Og svo er gle\u00f0in mikil a\u00f0 h\u00fan heldur bo\u00f0 fyrir vinkonur s\u00ednar.<\/p>\n<p>\u00deri\u00f0ja sagan er eru t\u00fdndan son. Sagan er listilega samin og \u00ed henni eru allir \u00fe\u00e6ttir g\u00f3\u00f0ra s\u00f6gu me\u00f0 h\u00e1punkti og allt \u00fea\u00f0. En hver er ni\u00f0ursta\u00f0an, hva\u00f0a l\u00e6rd\u00f3m eiga \u00e1heyrendur a\u00f0 draga af s\u00f6gunni?<\/p>\n<p>Vi\u00f0 \u00feekkjum s\u00f6guna um soninn, um ey\u00f0slu hans og \u00f3lifna\u00f0, vi\u00f0sn\u00faning og heimkomu. Hva\u00f0 ger\u00f0ist \u00fe\u00e1? \u00dear r\u00edkti f\u00f6gnu\u00f0ur \u00e1 sama h\u00e1tt og \u00feegar t\u00fdndi sau\u00f0urinn fanns og drakman eina og konan h\u00e9lt bo\u00f0 fyrir vinkonur s\u00ednar. Fa\u00f0irinn s\u00e9r drenginn sinn \u00ed fjarska og hann \u00feekkir fas hans og veit a\u00f0 hann hefur sn\u00fai\u00f0 aftur heim. Hann hleypur \u00e1 m\u00f3ti honum, kennir \u00ed brj\u00f3sti um hann, segir Jes\u00fas, fellur um h\u00e1ls honum og kyssir hann. Sonurinn or\u00f0ar i\u00f0run s\u00edna vi\u00f0 f\u00f6\u00f0urinn sem er mikilv\u00e6gur \u00fe\u00e1ttur\u00a0 \u00ed s\u00f6gunni og \u00ed \u00f6llum uppgj\u00f6rum manna \u00ed millum. Og hva\u00f0 gerist svo? \u00dea\u00f0 er haldin mikil veisla.<\/p>\n<p>Um fund t\u00fdnda sau\u00f0sins sag\u00f0i Jes\u00fas:<\/p>\n<p>\u201e\u00deegar hann kemur heim kallar hann saman vini s\u00edna og n\u00e1granna og segir vi\u00f0 \u00fe\u00e1: Samgle\u00f0jist m\u00e9r \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00e9g hef fundi\u00f0 sau\u00f0inn minn sem t\u00fdndur var. \u00c9g segi y\u00f0ur, \u00feannig ver\u00f0ur meiri f\u00f6gnu\u00f0ur \u00e1 himni yfir einum syndara, sem tekur sinnaskiptum, en yfir n\u00edut\u00edu og n\u00edu r\u00e9ttl\u00e1tum sem \u00feurfa \u00feess ekki vi\u00f0.\u201c<\/p>\n<p>Ni\u00f0ursta\u00f0a dr\u00f6kmus\u00f6gunnar er svohlj\u00f3\u00f0andi:<\/p>\n<p>\u201eSamgle\u00f0jist m\u00e9r \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00e9g hef fundi\u00f0 dr\u00f6kmuna sem \u00e9g t\u00fdndi. \u00deannig segi \u00e9g y\u00f0ur a\u00f0 englar Gu\u00f0s munu gle\u00f0jast yfir einum syndara sem b\u00e6tir r\u00e1\u00f0 sitt.\u201c<\/p>\n<p>Ni\u00f0ursta\u00f0a s\u00f6gunnar um t\u00fdnda soninn er svona:<\/p>\n<p>\u201eKomi\u00f0 flj\u00f3tt me\u00f0 hina bestu skikkju og f\u00e6ri\u00f0 hann \u00ed, dragi\u00f0 hring \u00e1 h\u00f6nd hans og sk\u00f3 \u00e1 f\u00e6tur honum. S\u00e6ki\u00f0 og alik\u00e1lfinn og sl\u00e1tri\u00f0, vi\u00f0 skulum eta og gera okkur gla\u00f0an dag. \u00dev\u00ed a\u00f0 \u00feessi sonur minn var dau\u00f0ur og er lifna\u00f0ur aftur. Hann var t\u00fdndur og er fundinn. T\u00f3ku menn n\u00fa a\u00f0 gera s\u00e9r gla\u00f0an dag.\u201c<\/p>\n<p>Ef samhengi\u00f0 er sko\u00f0a\u00f0 \u00fe\u00e1 er i\u00f0runin vissulega mikilv\u00e6gur \u00fe\u00e1ttur \u00ed kennslu Jes\u00fa en ekki s\u00ed\u00f0ur er f\u00f6gnu\u00f0urinn og elskan \u00fea\u00f0 sem mestu skiptir.<\/p>\n<p>\u00deetta eru s\u00f6gur um Gu\u00f0, sem er eins og m\u00f3\u00f0ir og fa\u00f0ir, sem elskar fr\u00e1 d\u00fdpstu hjartans r\u00f3tum, elskar skilyr\u00f0islaust.<\/p>\n<p>Vi\u00f0 lifum \u00ed heimi sem m\u00f3ta\u00f0ur er af elsku og ber \u00ed s\u00e9r \u00e1hrif elsku Gu\u00f0s. \u00dea\u00f0 er kjarninn: Gu\u00f0 er k\u00e6rleikur. Gu\u00f0 elskar og Gu\u00f0 fagnar.<\/p>\n<p>Og svo er \u00fea\u00f0 hin tilvistarlega spurning: Er yfirh\u00f6fu\u00f0 h\u00e6gt a\u00f0 fara a\u00f0 heiman \u00ed \u00feessu l\u00edfi, a\u00f0 fara \u00fat \u00far altumlykjandi verund Gu\u00f0s? Er Gu\u00f0 ekki allssta\u00f0ar? Er \u00fe\u00e1 h\u00e6gt a\u00f0 fara fr\u00e1 honum?<\/p>\n<p>Reynslan segir a\u00f0 f\u00f3lk geti fjarl\u00e6gst Gu\u00f0 \u00ed eigin hug og hjarta. Vi\u00f0 getum fjarl\u00e6gst okkur sj\u00e1lf, t\u00fdnt okkur sj\u00e1lfum.<\/p>\n<p>Hvar erum vi\u00f0 \u00e1 vegi st\u00f6dd? Hvar er \u00edslenska \u00fej\u00f3\u00f0in? Er h\u00fan t\u00fdnd? Eru stj\u00f3rnm\u00e1lin t\u00fdnd? Veit forystuf\u00f3lk okkar hvar \u00fea\u00f0 er \u00e1 vegi statt? Veit \u00fea\u00f0 hvert \u00fea\u00f0 er a\u00f0 fara, f\u00f3lki\u00f0 sem er me\u00f0 allar eigur okkar samborgara sinna \u00e1 s\u00ednu bor\u00f0i? Erum vi\u00f0 \u00ed \u00f6ruggum h\u00f6ndum? Hvar endar \u00feetta allt? Er hruni\u00f0 kannski ekki b\u00fai\u00f0? Er \u00fea\u00f0 bara r\u00e9tt byrja\u00f0? Er drafi\u00f0 framundan og st\u00edan? Hven\u00e6r ver\u00f0ur hinn raunverulegi vi\u00f0sn\u00faningur? Hven\u00e6r \u00e6tlar \u00feessi \u00fej\u00f3\u00f0 a\u00f0 ganga \u00ed sig og kannst vi\u00f0 \u00fea\u00f0 a\u00f0 h\u00fan er \u00e1 fl\u00f3tta fr\u00e1 Gu\u00f0i, skapara s\u00ednum og lausnara? H\u00fan er b\u00fain a\u00f0 s\u00f3lunda \u00f6llum arfinum. En hven\u00e6r sn\u00fdr h\u00fan vi\u00f0 fr\u00e1 villu s\u00edns vegar, fr\u00e1 eftirs\u00f3kn sinni eftir vindi og f\u00f6lskum veraldar g\u00e6\u00f0um? Hven\u00e6r? Hversu lengi? s\u00f6g\u00f0u sp\u00e1menn \u00cdsraels for\u00f0um daga: Hversu lengi? Hversu lengi \u00e6tlar\u00f0u a\u00f0 villast?<\/p>\n<p>Hvar erum vi\u00f0 \u00e1 vegi st\u00f6dd? Hvar ert \u00fe\u00fa? Ertu heima e\u00f0a ertu t\u00fdnd\/ur? \u00c1ttu \u00ed gl\u00edmu vi\u00f0 l\u00edfi\u00f0, tilvist \u00fe\u00edna, samfer\u00f0af\u00f3lk \u00feitt? Hvar er \u00fe\u00e1 skj\u00f3l a\u00f0 finna?<\/p>\n<p>Sn\u00faum vi\u00f0 og h\u00f6ldum heim til Drottins \u00fev\u00ed \u00fear er alltaf elsku a\u00f0 finna. Hj\u00e1 honum eru okkar hinstu heimkynni.<\/p>\n<p>H\u00e9r er Gu\u00f0 og h\u00e9r \u00e1ttu heima. Velkomin\/n heim.<\/p>\n<p>D\u00fdr\u00f0 s\u00e9 Gu\u00f0i, f\u00f6\u00f0ur og syni og heil\u00f6gm anda. Svo sem var \u00ed upphafi er enn og ver\u00f0ur um aldir alda. Amen.<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>&#8211; &#8211; &#8211;<\/p>\n<p><a href=\"http:\/\/kirkjan.is\/tru\/kirkjuarid\/b\/3-sunnudagur-eftir-threnningarhatid\/\" target=\"_blank\">Textar dagsins.<\/a><\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00d6rn B\u00e1r\u00f0ur J\u00f3nsson Heim Pr\u00e9dikun \u00ed Neskirkju sunnudaginn 16. j\u00fan\u00ed 2013 kl. 11 trin 2 e 2013 B\u00e6n, \u00e1varp og inngangur. (Einhver innskot e\u00f0a or\u00f0alagsbreytingar eru \u00e1 hlj\u00f3\u00f0uppt\u00f6kunni)<\/p>\n","protected":false},"author":2,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_jetpack_newsletter_access":"","_jetpack_dont_email_post_to_subs":false,"_jetpack_newsletter_tier_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paywalled_content":false,"_jetpack_hide_featured_image":false,"_jetpack_featured_image_duplicate_dismissed":0,"_jetpack_feature_clip_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":"","jetpack_post_was_ever_published":false},"categories":[7],"tags":[166,220,233,287,288,289,471,623,624,695],"class_list":["post-579","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-minningarord-eulogies","tag-elska","tag-fyrirgefning","tag-glatadur","tag-heim","tag-heima","tag-heiman","tag-nad","tag-tyndi-sonurinn","tag-tyndur","tag-villtur"],"jetpack_sharing_enabled":true,"jetpack_featured_media_url":"","_links":{"self":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/579","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/users\/2"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcomments&post=579"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/579\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fmedia&parent=579"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcategories&post=579"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Ftags&post=579"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}