{"id":5487,"date":"2024-11-11T18:05:36","date_gmt":"2024-11-11T18:05:36","guid":{"rendered":"http:\/\/ornbardur.com\/2024\/11\/11\/thorsteinn-haraldsson-1949-2024\/"},"modified":"2024-11-11T18:05:36","modified_gmt":"2024-11-11T18:05:36","slug":"thorsteinn-haraldsson-1949-2024","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/ornbardur.com\/?p=5487","title":{"rendered":"+\u00deorsteinn Haraldsson 1949-2024"},"content":{"rendered":"\n<p class=\"wp-block-paragraph\">l\u00f6ggiltur endursko\u00f0andi<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">1949-2024<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">B\u00e1lf\u00f6r fr\u00e1 Neskirkju m\u00e1nudaginn<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">11. n\u00f3vember 2024 kl. 15<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Viltu lesa\/hlusta? Texti og upptaka fyrir ne\u00f0an myndina.<\/p>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-image size-large\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"822\" height=\"1865\" src=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2024\/11\/img_0184-1.jpg?w=451\" alt=\"\" class=\"wp-image-5486\" \/><\/figure>\n\n\n\n<!--more-->\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-audio\"><audio controls src=\"https:\/\/pub-c849b6aaf98340c4bec7b480b0f7ffe9.r2.dev\/2024\/11\/thorsteinn-haraldsson-1949-2024.m4a\"><\/audio><\/figure>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-image size-large\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"2000\" height=\"1432\" src=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2024\/11\/img_0181-1.jpg?w=1024\" alt=\"\" class=\"wp-image-5483\" \/><\/figure>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-image size-large\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"2000\" height=\"1435\" src=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2024\/11\/img_0182-1.jpg?w=1024\" alt=\"\" class=\"wp-image-5484\" \/><\/figure>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">K\u00e6ra samfer\u00f0af\u00f3lk \u00deorsteins Haraldssonar, \u00fei\u00f0 \u00f6ll sem h\u00e9r kve\u00f0ji\u00f0 g\u00f3\u00f0an dreng. \u00c9g vil vara ykkur vi\u00f0 h\u00e9r \u00ed upphafi \u00fev\u00ed \u00feessi minningaror\u00f0 eru lengri en flest sem \u00e9g hef rita\u00f0. \u00deetta eru or\u00f0 vinar til vinar og hann Steini ver\u00f0ur ekki kvaddur af m\u00e9r me\u00f0 einu litlu lettersbr\u00e9fi.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Vi\u00f0 erum \u00f6ll \u00e1 einum og sama veginum, l\u00edfsveginum sj\u00e1lfum, sem hefur hin miklu vegam\u00f3t framundan, sem enginn sleppur vi\u00f0 a\u00f0 fara yfir. Vegurinn sem liggur <strong><em>fr\u00e1<\/em><\/strong> l\u00edfinu, er fyrir sigur krossins, vegurinn <strong><em>til<\/em><\/strong> l\u00edfsins!<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">A\u00f0 lifa l\u00edfinu er list og a\u00f0 deyja er \u00fea\u00f0 einnig. Hann \u00deorsteinn kunni hvort tveggja. L\u00edfi\u00f0 var honum \u00fe\u00f3 ekki eint\u00f3mur dans \u00e1 r\u00f3sum. \u00dea\u00f0 voru hv\u00f6rf \u00e1 l\u00edfsveginum. Hann var\u00f0 fyrir \u00fev\u00ed sem drengur a\u00f0 missa sj\u00f3n \u00e1 \u00f6\u00f0ru auga vegna flugeldaslyss sem fresta\u00f0i, t.d. fermingu hans um eitt \u00e1r og m\u00f3ta\u00f0i hann fyrir l\u00edfst\u00ed\u00f0. En hann \u00deorsteinn var g\u00e6fuma\u00f0ur.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00deau L\u00e1ra Valger\u00f0ur J\u00fal\u00edusd\u00f3ttir kynntust \u00ed Verzlunarsk\u00f3lanum, en \u00feekktu hvort anna\u00f0 \u00e1\u00f0ur, enda engin lj\u00f3s\u00e1r \u00e1 milli bernskuheimila \u00feeirra. H\u00fan sag\u00f0i m\u00e9r a\u00f0 h\u00fan hef\u00f0i or\u00f0i\u00f0 \u00e1stfangin af skemmtilegasta str\u00e1knum \u00ed \u00e1rganginum. J\u00e1, hann Steini haf\u00f0i s\u00e9rstakan h\u00famor og var jafnan hnittinn \u00ed athugasemdum og sv\u00f6rum og svo var hann l\u00edka svo fallegur yst sem innst.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Og \u00ed dag er br\u00fa\u00f0kaupsdagurinn \u00feeirra! \u00deau gengu \u00ed hj\u00f3naband fyrir r\u00famri h\u00e1lfri \u00f6ld og h\u00e6ttu \u00fear me\u00f0 a\u00f0 vera &#8220;single&#8221; \u00e1 degi einhleypra.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hva\u00f0an kom \u00feessi g\u00f3\u00f0i drengur og greindi?<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Foreldrar hans voru A\u00f0alhei\u00f0ur Sigur\u00f0ard\u00f3ttir, h\u00fasm\u00f3\u00f0ir og h\u00e1rgrei\u00f0slukona og Haraldur \u00deorsteinsson, h\u00fasasm\u00ed\u00f0ameistari. \u00c9g jar\u00f0s\u00f6ng \u00feau b\u00e6\u00f0i h\u00e9r \u00ed Neskirkju. Halli og Dista voru dugna\u00f0arf\u00f3lk og komu upp fj\u00f3rum h\u00e6fileikar\u00edkum b\u00f6rnum:<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Sigur\u00f0ur, vi\u00f0skiptafr\u00e6\u00f0ingur, var elstur, en hann l\u00e9st allt of snemma,<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00fe\u00e1 kom \u00deorsteinn,<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">n\u00e6st Ingibj\u00f6rg, b\u00f3kari og<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">svo \u00c1str\u00e1\u00f0ur, l\u00f6gma\u00f0ur og r\u00edkiss\u00e1ttasemjari.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Halli og Dista bjuggu um hr\u00ed\u00f0 \u00e1 Miklubraut 56 og \u00fear sl\u00f3 hjarta bernskunnar \u00ed brj\u00f3sti Steina. Miklabrautin var \u00fe\u00e9ttsetin f\u00f3lki af \u00f6llu tagi hva\u00f0 menntun og fj\u00e1rhag var\u00f0a\u00f0i. Steini f\u00f3r um gar\u00f0a og g\u00f6tur, gla\u00f0ur og hress, h\u00e1vaxinn gl\u00f3kollur me\u00f0 munninn fyrir ne\u00f0an nefi\u00f0 eins og Halli, en l\u00edka \u00f6gn feimna og \u00f3r\u00e6\u00f0a brosi\u00f0 hennar Distu. \u00deau bjuggu \u00ed \u00c1lftam\u00fdrinni \u00feegar \u00e9g kynntist Steina.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Foreldrar okkar Steina og \u00feeirra kynsl\u00f3\u00f0 voru ekki a\u00f0 fara neitt \u00e1 l\u00edmingunni \u00fat af skorti \u00e1 leiksk\u00f3lapl\u00e1ssum. N\u00f3g var a\u00f0 hafa \u00edb\u00fa\u00f0 og vinnu &#8211; og a\u00f0 eiga b\u00edl var l\u00faxus. Halli f\u00f3r me\u00f0 Steina \u00fat \u00e1 Klambrat\u00fan eftir a\u00f0 hafa komi\u00f0 heim \u00ed h\u00e1degi til a\u00f0 bor\u00f0a, setti \u00e1 hann beizli og langan taum me\u00f0 h\u00e6l sem negldur var fastur \u00ed sv\u00f6r\u00f0. Steini gat leiki\u00f0 lausum hala innan \u00feverm\u00e1ls hringsins. Dista st\u00f3\u00f0 af og til upp fr\u00e1 s\u00ednum verkum, f\u00e9kk s\u00e9r kaffit\u00e1r og k\u00edkti \u00fat um \u00feakgluggann og leit eftir honum Steina s\u00ednum sem undi gla\u00f0ur vi\u00f0 sitt og kannski l\u00e6r\u00f0i hann einmitt \u00fearna a\u00f0 sitja vi\u00f0 sinn keip, ef \u00e1heyrendur skilja enn \u00fea\u00f0 or\u00f0atilt\u00e6ki. Me\u00f0an Steini kanna\u00f0i s\u00edn m\u00f6rk, \u00f3ku Fordar og Lettar, Dodsar, V\u00faxar og Sk\u00f3dar murrandi eftir Miklubrautinni. Og engin var barnaverndarnefndin r\u00e6st \u00fat, engin l\u00f6gga k\u00f6llu\u00f0 til, hva\u00f0 \u00fe\u00e1 br\u00f3\u00f0ir n\u00e1grannans sem var meira a\u00f0 segja h\u00e1ttvirtur d\u00f3ms- og kirkjum\u00e1lar\u00e1\u00f0herra!<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Steini tj\u00f3\u00f0ra\u00f0ur innan hrings minnir mig \u00e1 lj\u00f3\u00f0 eftir sk\u00e1ldi\u00f0 Stein Steinarr &#8211; UTAN HRINGSINS &#8211;<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c9g geng \u00ed hring<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00ed kringum allt, sem er.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Og innan \u00feessa hrings<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">er ver\u00f6ld \u00fe\u00edn.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Minn skuggi f\u00e9ll um stund<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00e1 gluggans gler.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c9g geng \u00ed hring<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00ed kringum allt, sem er.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Og utan \u00feessa hrings<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">er ver\u00f6ld m\u00edn.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Allskonar f\u00f3lk bj\u00f3 vi\u00f0 Miklubrautina. \u00deetta var l\u00f6ngu \u00e1\u00f0ur en f\u00f3lk f\u00f3r a\u00f0 byggja \u00ed Smartlandi s\u00fdndarveruleikans.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Uppeldi\u00f0 og gildin, sem Steini l\u00e6r\u00f0i heima, ger\u00f0u hann a\u00f0 \u00feeim manni sem hann var, en au\u00f0vita\u00f0 voru \u00e1hrifa\u00fe\u00e6ttirnir fleiri. Hann tala\u00f0i oft um \u00e1rin er hann sem drengur var sendill hj\u00e1 Sveini Ben og f\u00f3r \u00e1 milli skrifstofa og stofnana me\u00f0 mikilv\u00e6g br\u00e9f og skilabo\u00f0. Hann var\u00f0 sendill eins og s\u00e1 sem h\u00e9r talar og hlj\u00f3p me\u00f0 v\u00f6rur milli verzlana og h\u00fasa \u00e1 \u00cdsafir\u00f0i.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Vi\u00f0 sendlarnir kynntumst hvor \u00f6\u00f0rum \u00ed \u00feeirri d\u00e1samlegu deiglu sem Verzl\u00f3 var. Lei\u00f0ir okkar l\u00e1gu saman \u00ed f\u00e9lagsl\u00edfinu. Y\u00f0ar einl\u00e6gur var forseti Nemendaf\u00e9lagsins, en Steini ritst\u00fdr\u00f0i bla\u00f0i f\u00e9lagsins, Viljanum, og haf\u00f0i s\u00ednar sko\u00f0anir og vilja me\u00f0 bla\u00f0i\u00f0, sem fylltist frj\u00f3u og skemmtilegu efni.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Miki\u00f0 var bralla\u00f0 \u00e1 \u00feessum \u00e1rum. Steini kom stundum \u00ed heims\u00f3kn til m\u00edn \u00ed Gar\u00f0ab\u00e6inn \u00fear sem \u00e9g bj\u00f3, en \u00fe\u00e1 voru samg\u00f6ngur ekki eins og \u00ed dag. Fyrir kom a\u00f0 Steini gisti \u00e1 s\u00f3lbekk \u00ed herbergi m\u00ednu og vi\u00f0 kj\u00f6ftu\u00f0um \u00fear saman uns vi\u00f0 duttum \u00fat af. Steini var \u00fe\u00e1 einmana enda L\u00e1ra skiptinemi \u00ed God&#8217;s Own Country. Og \u00ed byrjun vetrar eftir \u00fatskrift okkar \u00far Verzl\u00f3, 2. des., var\u00f0 Steini tv\u00edtugur. Fyrr um daginn f\u00e6ddist mitt fyrsta barn, Hrafnhildur, sem n\u00fa er listakona \u00ed New York og kallar sig Shoplifter! Og ekki spillti \u00fea\u00f0 n\u00fa vin\u00e1ttunni okkar, \u00feessi samstilling himnanna \u00e1 sameiginlegum f\u00e6\u00f0ingardegi \u00feeirra beggja.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00de\u00e1 ver\u00f0 \u00e9g a\u00f0 geta \u00feess a\u00f0 m\u00f6rg voru br\u00e9fin milli L\u00e1ru og Steina me\u00f0an h\u00fan var \u00ed henni Amer\u00edku, \u00fear sem \u00f6rl\u00f6g margra \u00ed heimsbygg\u00f0inni r\u00e9\u00f0ust og r\u00e1\u00f0ast enn og \u00cdsland \u00e1 stundum eins og l\u00edtil s\u00fdsla \u00ed \u00fev\u00edsa landi og Evr\u00f3pusambandinu.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c9g man \u00feegar \u00e1stfangna pari\u00f0 f\u00f3r eldsnemma a\u00f0 morgni til a\u00f0 sinna \u00ferifum \u00ed verkt\u00f6ku m\u00f3\u00f0ur L\u00e1ru, sem me\u00f0 f\u00e1d\u00e6ma dugna\u00f0i og elju kom s\u00ednum b\u00f6rnum \u00f6llum til mennta. Systkini L\u00e1ru eru Ingibj\u00f6rg, kennari, Halld\u00f3r, s\u00e1lfr\u00e6\u00f0ingur og Sigur\u00f0ur, l\u00e6knir, sem er erlendis \u00e1samt \u00d6nnu konu sinni og senda \u00feau fj\u00f6lskyldunni k\u00e6rar sam\u00fa\u00f0arkve\u00f0jur. Kve\u00f0ja er h\u00e9r einnig flutt f\u00e1 \u00d6nnu Krist\u00ednu, fv. starfsf\u00e9laga \u00deorsteins og Sigr\u00fanu systur hennar.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">L\u00e1ra og Steini l\u00f6g\u00f0u upp \u00ed fer\u00f0 um l\u00edfsveginn, Miklubrautina einu og s\u00f6nnu, sem allir jar\u00f0arb\u00faar fer\u00f0ast \u00e1. \u00deau voru g\u00e6fuf\u00f3lk, h\u00fan h\u00e6star\u00e9ttarl\u00f6gma\u00f0ur og hann l\u00f6ggiltur endursko\u00f0andi.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">B\u00f6rn \u00feeirra eru \u00ferj\u00fa:<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Helga L\u00e1ra, safnstj\u00f3ri, gift P\u00e9tri Erni Fri\u00f0rikssyni, myndlistarmanni,<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Haraldur, taugas\u00e1lfr\u00e6\u00f0ingur, kv\u00e6ntur Kristj\u00f6nu Ernu P\u00e1lsd\u00f3ttur, verkfr\u00e6\u00f0ingi<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">og<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Halld\u00f3r Kristj\u00e1n, l\u00f6gma\u00f0ur, kv\u00e6ntur Lindu Karlsd\u00f3ttur, atferlishagfr\u00e6\u00f0ingi.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Barnab\u00f6rnin \u00deorsteins og L\u00e1ru eru:<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hulda,<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Margr\u00e9t Edda og<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c1str\u00ed\u00f0ur,<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Sigr\u00fan L\u00e1ra,<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00dalfhildur, sem f\u00e6ddist andvana,<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">St\u00edgur Breki og<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">tv\u00edburarnir Stella og N\u00f3i,<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">og svo Hei\u00f0a Krist\u00edn og<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Laufey.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Miki\u00f0 r\u00edkid\u00e6mi!<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Steini \u00e1 Miklubraut 56, var\u00f0 au\u00f0vita\u00f0 Valsari og hetjan hans var s\u00e9ra Fri\u00f0rik Fri\u00f0riksson og \u00dalfar \u00de\u00f3r\u00f0arson, augnl\u00e6knir og fleiri kallar sem bygg\u00f0u v\u00f6llinn vi\u00f0 r\u00e6tur \u00d6skjuhl\u00ed\u00f0ar. Fari\u00f0 var \u00ed Vatnask\u00f3g og gildin tekin inn og reir\u00f0 \u00fe\u00e9ttum hn\u00fatum vi\u00f0 erf\u00f0av\u00edsana. &#8220;L\u00e1ti\u00f0 aldrei kappi\u00f0 bera fegur\u00f0ina ofurli\u00f0i\u201c sag\u00f0i s\u00e9ra Fri\u00f0rik er hann h\u00e9lt r\u00e6\u00f0u vi\u00f0 v\u00edgslu fyrsta knattspyrnuvallar Vals.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">L\u00f6ngu seinna, \u00feegar Steini var or\u00f0inn vir\u00f0ulegur l\u00f6ggiltur endursko\u00f0andi st\u00fdr\u00f0i hann \u00fev\u00ed \u00e1samt \u00f6\u00f0rum V\u00f6lsurum a\u00f0 haldnar voru vikulegar b\u00e6nasamkomur \u00ed Kapellunni sem v\u00edg\u00f0 var 1993.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Segja m\u00e1 a\u00f0 Steini hafi skrifa\u00f0 s\u00e9ra Fri\u00f0rik aftur inn \u00ed Val e\u00f0a inn \u00ed vitund Valsmanna, en sorglegt er til \u00feess a\u00f0 vita a\u00f0 n\u00fa hafa l\u00e6risveinar hans sn\u00fai\u00f0 baki vi\u00f0 stofnandanum sj\u00e1lfum. Framt\u00ed\u00f0in mun lei\u00f0a \u00ed lj\u00f3s hva\u00f0a aflei\u00f0ingar \u00fea\u00f0 kann a\u00f0 hafa \u00ed hinu st\u00f3ra samhengi.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Ungur drengur braut eitt sinn r\u00fa\u00f0u \u00ed h\u00fasi \u00d3lafs Pjeturssonar endursko\u00f0anda me\u00f0 f\u00f3tbolta. Halli kom me\u00f0 Steina, \u00fe\u00e1 8 \u00e1ra pjakk og skipti um gler hj\u00e1 endursko\u00f0andanum og vildi ekki taka neitt fyrir, en sag\u00f0i a\u00f0 hann m\u00e6tti gjarnan kenna honum Steina s\u00ednum endursko\u00f0un \u00feegar hann hef\u00f0i aldur til.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Svo f\u00f3r a\u00f0 vi\u00f0 Steini f\u00f3rum b\u00e1\u00f0ir \u00ed endursko\u00f0unarn\u00e1m, hann hj\u00e1 \u00d3lafi og \u00e9g \u00ed Keflav\u00edk, en \u00e9g naut \u00feeirrar g\u00e6fu hva\u00f0 mig sj\u00e1lfan var\u00f0ar a\u00f0 hafa endursko\u00f0a\u00f0 \u00feann \u00e1setning og breytt um stefnu og fari\u00f0 \u00ed himnab\u00f3khaldi\u00f0 \u00fear sem Drottinn sj\u00e1lfur skipar \u00ed b\u00f3khaldsd\u00e1lkana, sau\u00f0unum s\u00e9r til h\u00e6gri en h\u00f6frunum til vinstri. (Matt 25.33).<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c9g spur\u00f0i Vesturb\u00e6inga eitt sinn \u00ed heita pottinum \u00ed Vesturb\u00e6jarlauginni, sem margir telja sig h\u00e6grisinna\u00f0a, hvort \u00feeir vissu hvers vegna \u00fea\u00f0 v\u00e6ru tv\u00f6falt fleiri s\u00e6ti vinstra megin \u00ed Neskirkju, en h\u00e6gra megin! \u00deeir ur\u00f0u \u00f6gn hissa og ranghvolfdu augunum og h\u00f6f\u00f0u engin sv\u00f6r, en \u00e9g gat hugga\u00f0 \u00fe\u00e1 me\u00f0 \u00fev\u00ed, a\u00f0 fr\u00e1 altarinu s\u00e9\u00f0, v\u00e6ru \u00feau fleiri til h\u00e6gri en vinstri! Sj\u00f3narh\u00f3llinn skiptir \u00f6llu!<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Steini var \u00e6t\u00ed\u00f0 me\u00f0 sitt \u00e1 hreinu. Hann haf\u00f0i l\u00e6rt a\u00f0 lifa og komast \u00e1fram eftir l\u00edfsveginum, hinni eil\u00edfu Miklubraut og sigrast \u00e1 m\u00f3tl\u00e6ti og hindrunum \u00e1 \u00feeirri braut.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hann veiktist um mi\u00f0bik \u00e6vinnar og \u00fea\u00f0 var heldur betur verkefni a\u00f0 stemma af d\u00e1lkana \u00ed b\u00f3khaldi s\u00e1larinnar. Ge\u00f0hv\u00f6rf eru ekkert lamb a\u00f0 leika s\u00e9r vi\u00f0. Stundum er tala\u00f0 um a\u00f0 hann e\u00f0a h\u00fan s\u00e9 \u00e1 \u00feessu e\u00f0a hinu r\u00f3finu. Snillingar eru gjarnan \u00e1 \u00feessu r\u00f3fi, sem er kannski oftar en ekki nota\u00f0, sem einhverskonar sk\u00e1lkaskj\u00f3l handa \u00f6\u00f0rum en okkur sj\u00e1lfum. Nei, ekki \u00e9g!<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Gl\u00edma hans var sn\u00f6rp og ekki \u00e6tla a\u00f0 gera l\u00edti\u00f0 \u00far veikindunum n\u00e9 heldur hve miki\u00f0 \u00feau reyndu \u00e1 L\u00e1ru og b\u00f6rnin. En \u00fea\u00f0 birti upp og l\u00edfi\u00f0 h\u00e9lt \u00e1fram me\u00f0 s\u00ednum fj\u00f6lbreyttu ve\u00f0rabrig\u00f0um.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">R\u00f3fin eru m\u00f6rg \u00ed l\u00edfinu og vi\u00f0 erum \u00f6ll r\u00f3faf\u00f3lk. Vi\u00f0 eigum okkur t.d. \u00f6ll sta\u00f0 \u00ed stafr\u00f3finu. Augu, h\u00e1r og h\u00fa\u00f0 marka okkur b\u00e1s \u00e1 litr\u00f3finu. Og svo er \u00fea\u00f0 ge\u00f0r\u00f3fi\u00f0 sem vi\u00f0 erum \u00f6ll \u00e1 &#8211; Nota Bene &#8211; og ef vi\u00f0 v\u00e6rum ekki \u00fear, \u00fe\u00e1 m\u00e6ttum vi\u00f0 sko virkilega fara a\u00f0 bi\u00f0ja fyrir okkur! \u00c9g er ekki ge\u00f0laus og \u00fe\u00fa ekki heldur. Vi\u00f0 erum \u00f6ll \u00e1 \u00feessu ge\u00f0r\u00f3fi og f\u00e6rumst \u00fear fram og til baka, upp og ni\u00f0ur, alla daga. Enginn er ge\u00f0laus. Vi\u00f0 eru f\u00f3lki\u00f0 \u00e1 r\u00f3funum sem fer\u00f0ast eftir Miklubraut l\u00edfsins og endum \u00f6ll \u00e1 s\u00f6mu m\u00e6rum.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hvunndags, um klukkan h\u00e1lft\u00edu, er \u00e9g gjarnan a\u00f0 laga fyrsta espressobolla dagsins. Fars\u00edminn fylgir m\u00e9r um \u00edb\u00fa\u00f0ina \u00fev\u00ed \u00e9g \u00e1 von \u00e1 s\u00edmtali. Steini hringir flesta morgna \u00far b\u00fasta\u00f0num s\u00ednum i Hesti, s\u00ed\u00f0ustu misserin. &#8220;S\u00e6lir&#8221;, segir hann alltaf me\u00f0 s\u00ednum s\u00e9rstaka raddbl\u00e6. Vi\u00f0 r\u00e6\u00f0um svefninn og daginn framundan. Steini er a\u00f0 p\u00e6la \u00ed l\u00edfinu. Hann vissi nefnilega a\u00f0 ma\u00f0ur \u00fearf ekki bara a\u00f0 l\u00e6ra a\u00f0 lifa, heldur l\u00edka a\u00f0 l\u00e6ra a\u00f0 deyja. Hann var kominn me\u00f0 illv\u00edgan sj\u00fakd\u00f3m.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c9g d\u00e1\u00f0ist a\u00f0 honum \u00ed \u00fev\u00ed ferli, hvernig hann t\u00f3kst \u00e1 vi\u00f0 veikindi s\u00edn, me\u00f0fer\u00f0ir og r\u00e1\u00f0. \u00c1 endanum t\u00f3k hann r\u00e1\u00f0in \u00ed s\u00ednar hendur og flauta\u00f0i til seinni h\u00e1lfleiks og var \u00fear eigin d\u00f3mari og stefndi \u00e1 sigur me\u00f0 hana L\u00e1ru s\u00edna \u00ed l\u00ednuv\u00f6rslunni. &#8220;Hollur er heimafenginn baggi&#8221;, segir \u00ed m\u00e1lt\u00e6kinu. Tr\u00fain \u00e1 Gu\u00f0 og l\u00edfi\u00f0, tr\u00fain \u00e1 r\u00e9ttl\u00e1tt samf\u00e9lag og j\u00f6fnu\u00f0, f\u00e9kk Steini \u00ed nesti fr\u00e1 foreldrum s\u00ednum og \u00e6ttboga og \u00feau deildu \u00feessum gildum, L\u00e1ra og Steini.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00cd veikindunum s\u00f3ttist hann eftir lei\u00f0s\u00f6gn um lestur \u00e1 g\u00f3\u00f0u efni til \u00edhugunar \u00e1 lokametrunum. Hann hlusta\u00f0i gjarnan \u00e1 hlj\u00f3\u00f0b\u00e6kur t.d. \u00e1 Jobsb\u00f3k \u00ed Gamla testamentinu, sem er ein af perlum heimsb\u00f3kmenntanna. Sagan um Job, er saga manns, sem \u00e1tti \u00f6ll veraldleg g\u00e6\u00f0i, en missti allt og var\u00f0 hr\u00e6\u00f0ilega sj\u00fakur. H\u00f6fundur reynir a\u00f0 svara \u00feeirri spurningu hvers vegna g\u00f3\u00f0ir menn ver\u00f0i fyrir m\u00f3tl\u00e6ti og \u00fej\u00e1ningum \u00e1 l\u00edfsveginum. \u00deessa b\u00f3k \u00feurfa allir a\u00f0 st\u00fadera til lokapr\u00f3fs \u00ed sk\u00f3la l\u00edfsins, \u00e1\u00f0ur en Miklabrautin lokast vi\u00f0 m\u00e6rin mestu.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00de\u00e1 hlusta\u00f0i hann \u00e1 Dav\u00ed\u00f0ss\u00e1lmana og Gu\u00f0spj\u00f6llin, Postulas\u00f6guna og fleira hollmeti \u00far hl\u00f6\u00f0um andans.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hva\u00f0 ver\u00f0ur um \u00fe\u00e6r kynsl\u00f3\u00f0ir sem fara a\u00f0 mestu leyti \u00e1 mis vi\u00f0 tr\u00faararf okkar \u00cdslendinga? Kirkjan og kristin tr\u00fa eru grundv\u00f6llur menningar allra Vesturlanda. Allt sem vi\u00f0 teljum til mannr\u00e9ttinda er komi\u00f0 \u00far Hugsanaflj\u00f3tinu mikla, sem heimspekingurinn P\u00e1ll Sk\u00falason, nefndi svo, arfinum fr\u00e1 Grikkjum, Gy\u00f0ingum og Kristnum.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hin kristna menning er au\u00f0lind, henni m\u00e1 l\u00edkja vi\u00f0 jar\u00f0hitann. \u00cd \u00fe\u00fasund \u00e1r var engin t\u00e6kni til a\u00f0 virkja jar\u00f0hitann og f\u00f3lk norpa\u00f0i \u00ed k\u00f6ldum torfb\u00e6jum \u00e1n allar n\u00fat\u00edma\u00fe\u00e6ginda &#8211; en svo t\u00f3kst okkur \u00fea\u00f0 \u00e1 li\u00f0inni \u00f6ld. N\u00fa alast upp kynsl\u00f3\u00f0ir sem \u00feekkja ekki hina andlegu au\u00f0lind og eru \u00fev\u00ed eins og \u00cdslendingar for\u00f0um sem vissu af jar\u00f0hitanum en n\u00e1\u00f0u ekki a\u00f0 virkja orkuna.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Steini l\u00e6r\u00f0i a\u00f0 lifa &#8211; og hann l\u00e6r\u00f0i l\u00edka a\u00f0 deyja og \u00fear skipti tr\u00fa hans mestu, k\u00e6rleikur hans og \u00feakkl\u00e6ti til \u00e1stvina sinna, menningar og kristni.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Oft naut \u00e9g gestrisni L\u00e1ru og Steina \u00ed Hesti. Seinasta heims\u00f3kn m\u00edn til hans var \u00fe\u00f3 ekki \u00feanga\u00f0 heldur \u00e1 Sj\u00fakrah\u00fasi\u00f0 \u00e1 Selfossi 29. n\u00f3vember s.l. Helga L\u00e1ra og P\u00e9tur voru hj\u00e1 honum \u00ed stofunni sem er tv\u00edb\u00fdli. Tjald skildi a\u00f0 sj\u00faklingana tvo. Um lei\u00f0 og \u00e9g heilsa\u00f0i, sag\u00f0i Steini veikri r\u00f6ddu: &#8220;\u00c9g vil heyra s\u00e1lminn, \u00e9g vil heyra s\u00e1lminn!&#8221; Hann \u00e1tti vi\u00f0 s\u00e1lminn hans s\u00e9ra Hallgr\u00edms, &#8220;Um dau\u00f0ans \u00f3vissan t\u00edma&#8221; sem \u00e9g haf\u00f0i flutt \u00ed Neskirkju sunnudaginn \u00e1\u00f0ur. Enga b\u00f3k haf\u00f0i \u00e9g til a\u00f0 sty\u00f0jast vi\u00f0 og sag\u00f0ist mundu reyna.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00deegar \u00e9g haf\u00f0i fari\u00f0 me\u00f0 seinasta versi\u00f0, sag\u00f0i Steini, eins h\u00e1tt og r\u00f6ddin leyf\u00f0i: &#8220;Amen, amen, amen.&#8221; \u00de\u00e1 heyr\u00f0ist r\u00f6dd handan skilr\u00famsins \u00ed stofunni: &#8220;\u00c9g segi l\u00edka, amen &#8211; amen, \u00ed Jes\u00fa nafni.&#8221; Tr\u00faa\u00f0ur ma\u00f0ur var einnig \u00ed hinu r\u00faminu.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hvert er haldreipi okkar \u00e1 \u00f6gurstundu? H.C. Andersen sag\u00f0i barnas\u00f6guna um \u00cdsdrottninguna. H\u00fan er um dreng sem kunni ekki a\u00f0 bi\u00f0ja, kunni ekki a\u00f0 lifa og ekki heldur a\u00f0 deyja. Hann var fastur \u00ed k\u00f6ldum kl\u00f3m \u00cdsdrottningarinnar.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Daginn eftir hringdi \u00e9g \u00ed L\u00e1ru og Steini t\u00f3k vi\u00f0 s\u00edmanum og sag\u00f0i m\u00e9r hr\u00f3\u00f0ugur, a\u00f0 n\u00fa v\u00e6ri hann kominn me\u00f0 l\u00f6gheimili \u00ed Hesti. Daginn sem hann l\u00e9st \u00e6tla\u00f0i \u00e9g a\u00f0 fara til hans seinni partinn, en \u00fe\u00e1 hringdi L\u00e1ra \u00ed mig um morguninn og tilkynnti m\u00e9r a\u00f0 Steini vinur minn v\u00e6ri d\u00e1inn. \u00deegar lei\u00f0 \u00e1 daginn \u00e1tti \u00e9g svo b\u00e6nastund me\u00f0 \u00e1stvinum hans \u00e1 sj\u00fakrah\u00fasinu og vi\u00f0 kv\u00f6ddum hann me\u00f0 t\u00e1rum og \u00fe\u00f6kk. L\u00e1ra st\u00f3\u00f0 honum vi\u00f0 hli\u00f0 me\u00f0 \u00e1st\u00fa\u00f0 og \u00e6\u00f0urleysi, umhyggju og elsku, til hinstu stundar hans. Styrkur hennar er \u00e1\u00f0d\u00e1unarver\u00f0ur og \u00ferautseygjan ekki s\u00ed\u00f0ur og \u00fea\u00f0 ber a\u00f0 \u00feakka. Gu\u00f0 laun, var sagt for\u00f0um.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00cd Hesti er gott a\u00f0 vera. \u00dear ropa\u00f0i rj\u00fapan n\u00fdlega, er \u00e9g var \u00ed heims\u00f3kn, sem sagt er a\u00f0 viti \u00e1 rigningart\u00ed\u00f0. S\u00fa \u00fej\u00f3\u00f0tr\u00fa gekk eftir. Og \u00fea\u00f0 s\u00faldar \u00ed s\u00e1lum okkar vi\u00f0 a\u00f0 kve\u00f0ja g\u00f3\u00f0an samfer\u00f0amann.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Steini hugsa\u00f0i og p\u00e6ldi \u00ed m\u00f6rgu. Hann sendi m\u00e9r eitt sinn texta. \u00dear segir hann m.a.:<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><em>Myndefni, einmitt. \u00c9g rei\u00f0i mig \u00e1 myndefni.<\/em><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><em>\u00cd draumi vorum vi\u00f0 L\u00e1ra \u00ed st\u00f3rborg. Vi\u00f0 st\u00f3\u00f0um vi\u00f0 umfer\u00f0arg\u00f6tu \u00fear sem b\u00edlar \u00feutu hj\u00e1 og meira a\u00f0 segja heilt hafskip. Og \u00fear kom \u00e1 hra\u00f0fer\u00f0 f\u00f3lkskassab\u00edll af st\u00e6rstu ger\u00f0; b\u00edlstj\u00f3ri framm\u00ed og aftur\u00ed heil fj\u00f6lskylda \u00ed b\u00fari. \u201eS\u00e1stu \u00feetta?\u201c spur\u00f0i \u00e9g \u201eJ\u00e1\u201c sag\u00f0i L\u00e1ra og b\u00e6tti vi\u00f0: \u201e\u00deetta f\u00f3lk er \u00ed pattgr\u00f6f.\u201c Pattgr\u00f6f? \u00c9g h\u00e9kk \u00e1 or\u00f0inu og um lei\u00f0 og \u00e9g vakna\u00f0i rauk \u00e9g framm\u00far og g\u00faggla\u00f0i pattgr\u00f6f. Ekkert kom upp, engin sv\u00f6r. \u00dea\u00f0 \u00fe\u00f3tti m\u00e9r ekki gott, en \u00e9g gafst ekki upp og framkalla\u00f0i m\u00edna eigin mynd:<\/em><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><em>Gr\u00f6f er gr\u00f6f og pattsta\u00f0a getur komi\u00f0 upp \u00ed sk\u00e1k. Patti\u00f0 er \u00e1 grafarbr\u00faninni. Til a\u00f0 sko\u00f0a pattst\u00f6\u00f0una \u00fearf fyrst a\u00f0 fara upp\u00far gr\u00f6finni. \u00dev\u00ed n\u00e6st er a\u00f0 athuga patti\u00f0 &#8211; \u00fev\u00ed hindranirnar eru oft b\u00e6\u00f0i raunverulegar og \u00edmynda\u00f0ar og hver fallin hindrun grei\u00f0ir lei\u00f0.<\/em><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><em>D\u00f6gum oftar hitti \u00e9g f\u00f3lk sem talar um \u00fea\u00f0 sem \u00fev\u00ed liggur \u00e1 hjarta og \u00e9g heyri a\u00f0 margir eru \u00ed pattgr\u00f6f.<\/em><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Steini sendi \u00feanka og m\u00e9r finnst r\u00e9tt a\u00f0 deila \u00feeim me\u00f0 ykkur \u00fev\u00ed \u00feeir segja svo margt um hans karakter og pers\u00f3nulega reynslu. Hann rita\u00f0i:<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><em>\u00c9g haf\u00f0i gaman af lestri sj\u00e1lfs\u00e6vis\u00f6gu Benjam\u00edns Frankl\u00edn. Benjam\u00edn var f\u00e6ddur 1706 en er n\u00fat\u00edmama\u00f0ur og n\u00e6r vel til manns vegna \u00feess a\u00f0 b\u00f3kin er \u00e1 n\u00fat\u00edma \u00edslensku. Au\u00f0vita\u00f0 er fort\u00ed\u00f0in eins og framandi land.<\/em><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><em>\u00c1ri\u00f0 er 2016.<\/em><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><em>\u00c9g skrifa og skemmti m\u00e9r. \u00c9g s\u00fdni engum \u2013 en ver\u00f0 a\u00f0 hafa lesanda.<\/em><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><em>\u00c9g les ekki lei\u00f0beiningarb\u00e6klinga. \u00c9g er lesblindur. \u00c9g les ekki b\u00e6kur, en \u00e9g les \u00ed b\u00f3kum. Sennilega hef\u00f0i \u00e9g n\u00e1\u00f0 verslunarpr\u00f3finu me\u00f0 \u00feeirri einkunn sem dug\u00f0i m\u00e9r \u00ed l\u00e6rd\u00f3msdeildina ef lesblindan k\u00e6mi ekki til. \u00c9g hef \u00ed raun litla sk\u00f3lamenntun. M\u00e1nu\u00f0i eftir a\u00f0 sk\u00f3la lauk f\u00f3r \u00e9g \u00ed starfsn\u00e1m hj\u00e1 \u00d3lafi Pjeturssyni endursko\u00f0anda. \u00deetta var \u00ed j\u00fan\u00ed 1969. \u00d3lafur d\u00f3 \u00ed jan\u00faar 1972. \u00de\u00e1 var b\u00f3klegi hluti n\u00e1msins r\u00e9tt a\u00f0 byrja. \u00deegar \u00d3lafur var d\u00e1inn kenndi \u00e9g m\u00e9r sj\u00e1lfur. L\u00f6ggildingarpr\u00f3fi\u00f0 f\u00f3r fram 1975 og \u00e9g f\u00e9ll \u00e1 \u00fev\u00ed. \u00c9g haf\u00f0i ekki botna\u00f0 \u00ed m\u00f6rgu af \u00fev\u00ed sem til pr\u00f3fs kom. \u00dea\u00f0 var sagt a\u00f0 pr\u00f3fin v\u00e6ru mi\u00f0u\u00f0 vi\u00f0 reynslu og kunn\u00e1ttu nemenda hj\u00e1 St\u00f3ru stofunum. L\u00e1ra var langt komin me\u00f0 lagadeildina og var me\u00f0al \u00feeirra sem st\u00f3\u00f0u sig best. Fyrir mig var a\u00f0 duga e\u00f0a drepast. \u00c9g lauk l\u00f6ggildingarpr\u00f3fi 1976 og var n\u00e6st-h\u00e6stur.<\/em><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><em>Sennilega hef\u00f0i \u00e9g or\u00f0i\u00f0 arkitekt. Hef\u00f0bundin endursko\u00f0un hefur aldrei \u00e1tt vel vi\u00f0 mig. \u00c9g bj\u00f3 m\u00e9r til passandi starfssvi\u00f0 innan fagsins. \u00c9g rak Hlutabr\u00e9famarka\u00f0inn hf. \u00ed \u00ferj\u00fa \u00e1r og Hlutabr\u00e9fasj\u00f3\u00f0inn hf. \u00ed n\u00edu \u00e1r. B\u00e6\u00f0i f\u00e9l\u00f6gin risu s\u00ed\u00f0ar \u00ed h\u00e6\u00f0ir. \u00c9g naut \u00feess a\u00f0 starfa fyrir Listah\u00e1t\u00ed\u00f0 \u00ed 20 \u00e1r. Og til 2016 haf\u00f0i \u00e9g umsj\u00f3n me\u00f0 kjallaranum hans \u00c1rna Sk\u00falasonar \u00ed S\u00ed\u00f0um\u00falanum. \u00dear var \u00e9g 41 \u00e1r. D\u00f3ttur hans \u00ed Sv\u00ed\u00fej\u00f3\u00f0 benti \u00e9g \u00e1 \u00ed vetur a\u00f0 \u00e9g v\u00e6ri a\u00f0 ver\u00f0a jafn gamall og pabbi hennar var \u00feegar \u00e9g var fenginn honum til a\u00f0sto\u00f0ar. D\u00f3ttir \u00c1rna og d\u00f3tturd\u00f3ttir komu heim \u00ed vor og saman fundum vi\u00f0 ungan l\u00f6gmann sem t\u00f3k vi\u00f0 af m\u00e9r.<\/em><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><em>Menntun hlaut \u00e9g hj\u00e1 samfer\u00f0am\u00f6nnum m\u00ednum. Fjarkennslu hef \u00e9g noti\u00f0 fr\u00e1 Gunnlaugi SE Briem, leturfr\u00e6\u00f0ingi, \u00ed \u00e1ratugi. \u00c1kve\u00f0ni og kjark l\u00e6r\u00f0i \u00e9g af J\u00f3ni Steinari. Vin\u00e1tta okkar var v\u00ed\u00f0a kunn og af henni naut \u00e9g vir\u00f0ingar og \u00f3tta emb\u00e6ttismanna. Baldur Gu\u00f0laugsson kenndi m\u00e9r a\u00f0 vera hei\u00f0arlegur og a\u00f0 fara vel me\u00f0 peninga. Ekki m\u00e1 \u00e9g gleyma foreldrum m\u00ednum og L\u00e1ru \u2013 \u00fe\u00f3tt n\u00f3g \u00fe\u00e6tti m\u00e9r stundum um fe\u00f0raveldi\u00f0. \u00c9g var fimm \u00e1r \u00ed sama h\u00fasi og Leifur Brei\u00f0fj\u00f6r\u00f0 og kom daglega \u00e1 vinnustofu hans. \u00dea\u00f0 var l\u00e6rd\u00f3mur. \u00c9g vann fyrir l\u00e6kna, arkitekta og mennta\u00f0a kunn\u00e1ttumenn. \u00cd faginu naut \u00e9g \u00feess mest. H\u00f3pur arkitekta vildi hafa mig me\u00f0 sem hluthafa og stj\u00f3rnarmann \u00ed fyrirt\u00e6ki s\u00ednu. \u00dea\u00f0 var \u00e9g \u00ed 14 \u00e1r.<\/em><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><em>\u00c9g gleymi m\u00f6rgum sem hafa mennta\u00f0 mig og stutt og bi\u00f0 \u00fe\u00e1 afs\u00f6kunar \u00e1 \u00fev\u00ed.<\/em><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><em>\u00cd g\u00f6mlum b\u00f3kum tre\u00f0ur s\u00e9r margt milli n\u00fat\u00edmamanns og \u00feeirra skilabo\u00f0a sem h\u00f6fundur vill koma \u00e1 framf\u00e6ri. \u00cd endurprenti verka Fri\u00f0riks er sj\u00e1lfsagt a\u00f0 sty\u00f0jast vi\u00f0 n\u00fat\u00edmam\u00e1l. Hann er ma\u00f0ur allra t\u00edma og vill a\u00f0 s\u00f6gur s\u00ednar og erindi s\u00edn komist til skila.<\/em><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><em>[&#8230;]<\/em><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><em>\u00deetta eru vangaveltur og ekkert liggur \u00e1. \u00c9g er \u00feakkl\u00e1tur fyrir a\u00f0 eiga \u00feig a\u00f0 og \u00feigg hvers kyns \u00e1bendingar og athugasemdir.<\/em><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><em>\u00deorsteinn<\/em><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hann hugsa\u00f0i margt um dagana og var n\u00e6mur \u00e1 strauma t\u00edmans. Undir lok starfs\u00e6vinnar vann hann hj\u00e1 Skattrans\u00f3knarstj\u00f3ra og fann \u00ed \u00fev\u00ed starfi st\u00f3rt m\u00e1l \u00fear sem starfsmenn hins opinbera hef\u00f0u fyrir vanr\u00e6kslu sakir valdi\u00f0 gr\u00ed\u00f0arlegum tekjumissi hins opinbera vegna fj\u00e1rm\u00e1labrasks innan tiltekinna fyrirt\u00e6kja. \u00deorsteinn var rekinn fyrir upp\u00e1t\u00e6ki\u00f0 en f\u00f3r \u00ed m\u00e1l og hver nema L\u00e1ra vann \u00fea\u00f0 fyrir h\u00e6star\u00e9tti! Steina voru d\u00e6mdar b\u00e6tur fyrir \u00f3l\u00f6gm\u00e6ta upps\u00f6gn. Steini rita\u00f0i b\u00f3k um m\u00e1li\u00f0, Afgl\u00f6p e\u00f0a spilling &#8211; og gaf \u00fat sj\u00e1lfur, hema hva\u00f0!<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hann rita\u00f0i ennfremur fr\u00e1b\u00e6ra grein um hruni\u00f0 og bygg\u00f0i hana \u00e1 tilvitnun \u00ed Konungsskuggsj\u00e1. Greinin var valin bezta grein sinnar tegundar af sambandi Norr\u00e6na endursko\u00f0enda, \u00e1 me\u00f0an f\u00e9lagi\u00f0 hans h\u00e9r heima vildi ekkert af \u00feessari fr\u00e1b\u00e6ru grein vita og engan s\u00f3ma f\u00e9kk hann \u00fea\u00f0an. Kjarni hugsunar \u00deorsteins \u00ed greininni er tekinn \u00far Konungsskuggsj\u00e1:<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><em>&#8216;N\u00fa er s\u00e1 einn \u00f3taldur \u00e1rgalli er miklu er \u00feyngri einn en allir \u00feessir er n\u00fa h\u00f6fum v\u00e9r talda, ef \u00f3\u00e1ran kann a\u00f0 koma \u00ed f\u00f3lki\u00f0 sj\u00e1lft er byggir landi\u00f0 e\u00f0a enn heldur ef \u00e1rgalli kemur \u00ed si\u00f0u \u00feeirra og manvit og me\u00f0fer\u00f0ir er g\u00e6ta skulu stj\u00f3rnar landsins. &#8230; En ef \u00f3\u00e1ran ver\u00f0ur \u00e1 f\u00f3lkinu e\u00f0a \u00e1 si\u00f0um landsins \u00fe\u00e1 standa \u00fear miklu st\u00e6rstir ska\u00f0ar af, \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fe\u00e1 m\u00e1 ei kaupa af \u00f6\u00f0rum l\u00f6ndum me\u00f0 f\u00e9, hvorki si\u00f0u n\u00e9 manvit ef \u00fea\u00f0 t\u00fdnist e\u00f0a spillist er \u00e1\u00f0ur var \u00ed landinu&#8217; (Kgs45, 51).<\/em><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c1 hva\u00f0a lei\u00f0 erum vi\u00f0 sem \u00fej\u00f3\u00f0?<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00deorsteinn vissi \u00ed hva\u00f0 stefndi og hann undirbj\u00f3 sig og nesta\u00f0i fyrir m\u00e6rin st\u00f3ru vi\u00f0 enda hinnar miklu brautar. Og hann \u00feekkti or\u00f0 Jes\u00fa sem sag\u00f0i:<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><em>Gangi\u00f0 inn um \u00fer\u00f6nga hli\u00f0i\u00f0. \u00dev\u00ed a\u00f0 v\u00edtt er hli\u00f0i\u00f0 og vegurinn brei\u00f0ur sem liggur til gl\u00f6tunar og margir \u00feeir sem \u00fear fara inn. Hve \u00fer\u00f6ngt er \u00fea\u00f0 hli\u00f0 og mj\u00f3r s\u00e1 vegur er liggur til l\u00edfsins og f\u00e1ir \u00feeir sem finna hann. (Mk. 7.13-14)<\/em><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">J\u00e1, g\u00e6tum vor \u00e1 vegum l\u00edfsins.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00cd Opinberun J\u00f3hannesar segir:<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><em>11 \u00de\u00e1 s\u00e1 \u00e9g himininn opinn. Og sj\u00e1: Hv\u00edtur hestur. S\u00e1 sem \u00e1 honum sat h\u00e9t Tr\u00far og Sannur, hann d\u00e6mir og berst me\u00f0 r\u00e9ttl\u00e6ti. 12 Augu hans voru sem eldslogi og \u00e1 h\u00f6f\u00f0i hans voru m\u00f6rg ennisdj\u00e1sn. Og hann ber nafn rita\u00f0 sem enginn \u00feekkir nema hann sj\u00e1lfur. 13 Hann var skr\u00fdddur skikkju, bl\u00f3\u00f0i drifinni, og nafn hans er Or\u00f0i\u00f0 Gu\u00f0s. [&#8230;] 16 Og hann hefur \u00e1 skikkju sinni og lend nafn rita\u00f0: \u201eKonungur konunga og Drottinn drottna.\u201c(Op. J\u00f3h. 19.11-13 og 16)<\/em><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Sem \u00edb\u00fai \u00ed Hesti var \u00deorsteinn fluttur \u00e1 Sj\u00fakrah\u00fasi\u00f0 \u00e1 Selfossi og \u00feanga\u00f0 kom sigurvegari l\u00edfsins \u00e1 hv\u00edtum hesti og \u00feeir hurfu saman inn \u00ed himin Gu\u00f0s.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Og vi\u00f0 st\u00f6ndum h\u00e9r og getum horft til himins \u00ed tr\u00fa, von og k\u00e6rleika. Vi\u00f0 munum \u00f6ll \u00feurfa a\u00f0 m\u00e6ta fyrir d\u00f3ms\u00f3li Gu\u00f0s, en getum fyrir tr\u00fana veri\u00f0 viss um a\u00f0 d\u00f3mur hins h\u00e6sta yfir okkur \u00f6llum, ver\u00f0ur d\u00f3mur n\u00e1\u00f0ar, s\u00fdknud\u00f3mur \u00ed \u00e6\u00f0sta r\u00e9tti tilverunnar og \u00fea\u00f0 er vegna Hans sem t\u00f3k \u00e1 sig sektina og greiddi fyrir hana \u00e1 krossinum, Hans sem er l\u00e1var\u00f0ur allra heimsins l\u00f6gmanna og hefur starfa\u00f0 um aldir, b\u00e6\u00f0i \u00ed Konstant\u00edn\u00f3pel, R\u00f3m og Reykjav\u00edk og \u00e1 hverju bygg\u00f0u b\u00f3li, \u00ed hverri sveit. H\u00f6fum hann me\u00f0 okkur \u00e1 l\u00edfsveginum og ennfremur \u00ed d\u00f3minum vi\u00f0 m\u00e6rin miklu.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00dea\u00f0 er fagna\u00f0arerindi tr\u00faarinnar, a\u00f0 eiga Krist sem grei\u00f0anda og verjanda!<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Blessu\u00f0 s\u00e9 minning vinar m\u00edns k\u00e6ra, \u00deorsteins Haraldssonar<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">&#8211; og g\u00f3\u00f0ur Gu\u00f0 blessi L\u00e1ru, b\u00f6rnin \u00feeirra, tengdab\u00f6rn, barnab\u00f6rn, \u00e6ttf\u00f3lk allt og vini.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Gu\u00f0 var\u00f0veiti okkur \u00f6ll me\u00f0an vi\u00f0 enn erum \u00e1 l\u00edfsins braut og megi sigurvegarinn g\u00f3\u00f0i einnig r\u00ed\u00f0a hj\u00e1 \u00e1 s\u00ednum hv\u00edta hesti \u00ed fyllingu t\u00edmans og taka okkur me\u00f0 s\u00e9r inn \u00ed himin Gu\u00f0s.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Amen, amen, \u00ed Jes\u00fa nafni, amen.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>l\u00f6ggiltur endursko\u00f0andi 1949-2024 B\u00e1lf\u00f6r fr\u00e1 Neskirkju m\u00e1nudaginn 11. n\u00f3vember 2024 kl. 15 Viltu lesa\/hlusta? Texti og upptaka fyrir ne\u00f0an myndina.<\/p>\n","protected":false},"author":2,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_jetpack_newsletter_access":"","_jetpack_dont_email_post_to_subs":false,"_jetpack_newsletter_tier_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paywalled_content":false,"_jetpack_hide_featured_image":false,"_jetpack_featured_image_duplicate_dismissed":0,"_jetpack_feature_clip_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":"","jetpack_post_was_ever_published":false},"categories":[7],"tags":[166,243,246,291,333,518,557,548,584,602,640],"class_list":["post-5487","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-minningarord-eulogies","tag-elska","tag-gud","tag-gudfraedi","tag-heimurinn","tag-jesus","tag-rettlaeti","tag-sidferdi","tag-soknudur","tag-sorg","tag-stjornmal","tag-tru"],"jetpack_sharing_enabled":true,"jetpack_featured_media_url":"","_links":{"self":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/5487","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/users\/2"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcomments&post=5487"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/5487\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fmedia&parent=5487"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcategories&post=5487"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Ftags&post=5487"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}