{"id":5423,"date":"2024-10-18T13:27:36","date_gmt":"2024-10-18T13:27:36","guid":{"rendered":"http:\/\/ornbardur.com\/2024\/10\/18\/haukur-bodvarsson-1949-1980\/"},"modified":"2024-10-18T13:27:36","modified_gmt":"2024-10-18T13:27:36","slug":"haukur-bodvarsson-1949-1980","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/ornbardur.com\/?p=5423","title":{"rendered":"Haukur B\u00f6\u00f0varsson 1949-1980"},"content":{"rendered":"\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>18. okt\u00f3ber 2024 &#8211; 75 \u00e1r fr\u00e1 f\u00e6\u00f0ingu hans.<\/strong><\/p>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-image aligncenter\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"268\" height=\"345\" src=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2024\/10\/3a1eb585-0e86-40e2-9493-ce1732e2554a-399-000000bced162678_file.jpg?w=268\" alt=\"\" class=\"wp-image-5422\" \/><figcaption class=\"wp-element-caption\">Haukur B\u00f6\u00f0varsson 1949-1980<\/figcaption><\/figure>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Ef \u00fe\u00fa vilt hlusta \u00fe\u00e1 er upptakan h\u00e9r og tekur t\u00e6par 9 m\u00edn\u00fatur:<\/p>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-audio\"><audio controls src=\"https:\/\/pub-c849b6aaf98340c4bec7b480b0f7ffe9.r2.dev\/2024\/10\/haukur-bodvarsson-75-ar.m4a\"><\/audio><\/figure>\n\n\n\n<!--more-->\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">M\u00e9r er lj\u00faft a\u00f0 minnast sk\u00f3labr\u00f3\u00f0ur m\u00edns og \u00e6skuvinar, Hauks B\u00f6\u00f0varssonar, skipstj\u00f3ra, \u00e1 f\u00e6\u00f0ingardegi hans 18. okt\u00f3ber 2024, \u00feegar 75 \u00e1r eru li\u00f0in fr\u00e1 f\u00e6\u00f0ingu hans.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Vinskapur okkar h\u00f3fst um 12 \u00e1ra aldurinn, en hann var einum fimm vikum eldri en \u00e9g (18. okt\/23.n\u00f3v). Kunningsskapur var me\u00f0 foreldrum okkar.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Heimili okkar \u00e1 \u00feeim t\u00edma, hans \u00ed T\u00fang\u00f6tunni og mitt \u00ed S\u00f3lg\u00f6tu, skildu a\u00f0 sj\u00fakrah\u00fast\u00fani\u00f0 og kirkugar\u00f0urinn. G\u00f6ngulei\u00f0in \u00e1 milli h\u00fasanna var \u00fe\u00f3 innan vi\u00f0 \u00ferj\u00fahundru\u00f0 metrar.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c9g hef r\u00e6tt vi\u00f0 sveitunga m\u00edna um bernsku \u00feeirra \u00e1 \u00cdsafir\u00f0i og flestir kannast vi\u00f0 \u00fea\u00f0, a\u00f0 fyrstu vinirnir komu fr\u00e1 heimilum sem voru \u00ed innan vi\u00f0 eitthundra\u00f0 metra rad\u00edus! En \u00feegar komi\u00f0 var yfir 10 \u00e1ra aldurinn og h\u00e6rra, \u00fe\u00e1 st\u00e6kka\u00f0i \u00feessi rad\u00edus &#8211; og st\u00e6kkar reyndar enn!<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Vi\u00f0 fermdumst sinn hvorn sunnudaginn vori\u00f0 1963 og g\u00e1fum hvor \u00f6\u00f0rum gjafir. \u00c9g man ekki hva\u00f0 \u00e9g gaf honum en mamma mundi gj\u00f6fina fr\u00e1 Hauki, silfur mans\u00e9ttuhnappar og bindisn\u00e6la me\u00f0 krosst\u00e1kni og geislum. L\u00edklega f\u00e9kk hann eitthva\u00f0 \u00e1l\u00edka fr\u00e1 m\u00e9r en gjafir af \u00feessu tagi voru vins\u00e6lar \u00e1 \u00feeim \u00e1rum.<\/p>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-image size-large\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"2000\" height=\"1500\" src=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2024\/10\/img_7942.jpg?w=1024\" alt=\"\" class=\"wp-image-5421\" \/><figcaption class=\"wp-element-caption\">Fermingargj\u00f6fin fr\u00e1 Hauki vini m\u00ednum B\u00f6\u00f0varssyni.<\/figcaption><\/figure>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">G\u00e6ti tr\u00faa\u00f0 a\u00f0 \u00feessi gj\u00f6f hafi veri\u00f0 keypt hj\u00e1 \u00farsmi\u00f0num sem verzla\u00f0i vi\u00f0 hli\u00f0 I\u00f0unnar, m\u00f3\u00f0ur Hauks og gekk undir nafninu, \u00de\u00f3r\u00f0ur \u00fari. <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">L\u00edklega keypti \u00e9g svipa\u00f0a gj\u00f6f \u00fear handa Hauki. Hnappana nota \u00e9g gjarnan \u00feegar \u00e9g kl\u00e6\u00f0ist prestaskyrtu og bindisn\u00e6luna vi\u00f0 h\u00e1t\u00ed\u00f0leg t\u00e6kif\u00e6ri.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><em>H\u00e9r er minning sem gleymdist \u00ed fyrstu \u00fatg\u00e1fu f\u00e6rslunnar. \u00deegar vi\u00f0 vorum n\u00fdfermdir, fengum vi\u00f0 leyfi til a\u00f0 fara tveir saman me\u00f0 Esjunni fr\u00e1 \u00cdsafir\u00f0i og sigla austurlei\u00f0ina og til Reykjav\u00edkur. Komi\u00f0 var vi\u00f0 \u00ed helstu h\u00f6fnum \u00e1 lei\u00f0inni en \u00ed sumum tilfellum var komi\u00f0 a\u00f0 landi a\u00f0 n\u00e6turlagi og vi\u00f0 misstum \u00fev\u00ed af \u00feeim st\u00f6\u00f0um me\u00f0an vi\u00f0 sv\u00e1fum. Vi\u00f0 f\u00f3rum svo \u00ed land \u00ed H\u00f6fu\u00f0borginni og \u00e9g man ekki hvernig vi\u00f0 f\u00f3rum \u00fea\u00f0an og <\/em>heim en l\u00edklega flugum vi\u00f0 til \u00cds\u00f3.<\/p>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-image size-large\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"1269\" height=\"938\" src=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2024\/10\/img_3278-1.jpg?w=1024\" alt=\"\" class=\"wp-image-5426\" \/><figcaption class=\"wp-element-caption\">Strandfer\u00f0askipinu Esju var hleypt af stokkunum \u00ed \u00c1laborg 1939. <\/figcaption><\/figure>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><em>Fer\u00f0in var eftirminnileg og \u00e9g skil eiginlega ekki hvernig vi\u00f0 fengum foreldra okkar til a\u00f0 gefa okkur fer\u00f0aleyfi, svo ungum og \u00f3reyndum, sem vi\u00f0 vorum \u00fe\u00e1.<\/em><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Sumari\u00f0, \u00e1ri\u00f0 \u00e1\u00f0ur en vi\u00f0 ur\u00f0um sext\u00e1n, f\u00f3r \u00e9g su\u00f0ur \u00ed Verzlunarsk\u00f3lann og nokkru s\u00ed\u00f0ar f\u00f3r Haukur til Vestmannaeyja, \u00fear sem hann lauk n\u00e1mi sem veitti honum skipstj\u00f3rnarr\u00e9ttindi. Hann f\u00f3r heim og s\u00f3tti sj\u00f3inn st\u00edft og flj\u00f3tlega sem skipstj\u00f3ri \u00e1 r\u00e6kjuvei\u00f0um.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Sem barn og unglingur var hann \u00e6t\u00ed\u00f0 har\u00f0duglegur og \u00e1r\u00e6\u00f0inn. Hann var ekki h\u00e1vaxinn, en kn\u00e1r og \u00ferautseigur. \u00c9g man hva\u00f0 \u00e9g d\u00e1\u00f0ist a\u00f0 krafti hans \u00ed sk\u00ed\u00f0abrekkunum heima, en \u00fear haf\u00f0i \u00e9g ekki ro\u00f0 vi\u00f0 honum. \u00de\u00e1 voru engar sk\u00ed\u00f0alyftur en hann f\u00f3r hratt upp hl\u00ed\u00f0arnar me\u00f0 g\u00f6ngu \u00ed pl\u00f3g ne\u00f0st og svo sk\u00e1g\u00f6ngu efst og kom svo ni\u00f0ur \u00ed svigi e\u00f0a bruni me\u00f0 til\u00ferifum.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Minningin um fyrsta b\u00edlinn hans, hv\u00edtu VW-bj\u00f6lluna, er sk\u00fdr \u00ed huga m\u00e9r, svo og pl\u00f6tuspilarinn, sem skr\u00fafa\u00f0ur var fastur undir m\u00e6labor\u00f0i\u00f0 fyrir mi\u00f0ju en sl\u00edkar gersemar voru algj\u00f6r n\u00fdjung og me\u00f0 s\u00e9rst\u00f6kum gormum til a\u00f0 varna \u00fev\u00ed a\u00f0 spilarinn hristist \u00e1 hol\u00f3ttum vegum \u00fev\u00ed \u00fe\u00e1 hef\u00f0i n\u00e1lin hlaupi\u00f0 fram og aftur og rispa\u00f0 pl\u00f6tuna.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">45 sn\u00faninga pl\u00f6turnar gengu \u00fat og inn \u00ed spilarann \u00e1 lei\u00f0inni vestur, \u00feegar \u00e9g f\u00e9kk far me\u00f0 honum og Belg\u00f3 systur hans, fr\u00e1 Reykjav\u00edk til \u00cdsafjar\u00f0ar, l\u00edklega vori\u00f0 1966. \u00de\u00e1 var eitt lag sem gn\u00e6f\u00f0i yfir \u00f6ll \u00f6nnur \u00ed b\u00edlnum, <em>Silence is Golden <\/em>me\u00f0 <em>The Tremelo<\/em>es. Lagi\u00f0 er r\u00f3mant\u00edskt og gr\u00edpandi og sl\u00f3 \u00ed gegn \u00e1 heimsv\u00edsu og vi\u00f0 unglingarnir kunnum vel a\u00f0 meta \u00fea\u00f0 og ekki s\u00edst Belg\u00f3 systir (Berglj\u00f3t), sem var n\u00fdtr\u00falofu\u00f0 e\u00f0a \u00ed \u00fea\u00f0 minnsta b\u00fain a\u00f0 kynnast honum J\u00f3ni Gu\u00f0laugi s\u00ednum Magn\u00fassyni \u00far Hafnarfir\u00f0i, en \u00feau voru b\u00e6\u00f0i vi\u00f0 n\u00e1m \u00ed Samvinnusk\u00f3lanum.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Eir\u00edkur br\u00f3\u00f0ir Hauks og Fri\u00f0rik, yngri br\u00f3\u00f0ir minn, eru jafnaldrar og vinskapur var me\u00f0 \u00feeim \u00e1 \u00e6sku\u00e1rum og yngst er Krist\u00edn sem \u00e9g kynntist s\u00ed\u00f0ar. F\u00f3lki\u00f0 hans Hauks heitins er allt gott, duglegt &#8211; og skemmtilegt!<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c1 li\u00f0nu sumri, lag\u00f0i \u00e9g lei\u00f0 m\u00edna \u00ed kirkjugar\u00f0inn \u00e1 \u00cdsafir\u00f0i me\u00f0 eina tvo tugi r\u00f3sa og dreif\u00f0i \u00feeim \u00e1 lei\u00f0i \u00e1stvina, byrja\u00f0i hj\u00e1 afa og \u00f6mmu, \u00ed b\u00e1\u00f0um \u00e6ttum m\u00ednum, loks fr\u00e6ndf\u00f3lki og kom svo \u00ed lokin a\u00f0 lei\u00f0i foreldra Hauks, \u00feeirra, B\u00f6\u00f0vars Sveinbjarnarsonar og I\u00f0unnar Eir\u00edksd\u00f3ttur.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c1 legstein \u00feeirra hefur nafni Hauks veri\u00f0 b\u00e6tt vi\u00f0,  en hann hlaut vota gr\u00f6f \u00ed Dj\u00fapinu \u00feegar hann f\u00f3rst me\u00f0 skipi s\u00ednu, Eir\u00edki Finnssyni, \u00ed \u00f3ve\u00f0ri 25. febr\u00faar 1980. \u00de\u00f3tti m\u00e9r v\u00e6nt um a\u00f0 sj\u00e1 nafni\u00f0 hans meitla\u00f0 \u00ed stein \u00e1 lei\u00f0i foreldra hans. <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Grein um sj\u00f3slysin \u00e1 Vestfj\u00f6r\u00f0um 1980 m\u00e1 sko\u00f0a \u00e1 bak vi\u00f0 tengilinn ne\u00f0anm\u00e1ls. <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">&#8220;\u00d6llu er afm\u00f6rku\u00f0 stund&#8221; segir Pr\u00e9dikarinn \u00ed Gamla testamentinu. L\u00e6t fylgja upphaf 3ja kafla ritsins h\u00e9r ne\u00f0anm\u00e1ls.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Blessu\u00f0 s\u00e9 minning m\u00edns k\u00e6ra \u00e6skuvinar, Hauks B\u00f6\u00f0varssonar.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Himinninn geymir hann og \u00e1stvini alla sem horfnir eru.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">&#8212;<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Pr\u00e9dikarinn 3.1-15<\/p>\n\n\n\n<blockquote class=\"wp-block-quote is-layout-flow wp-block-quote-is-layout-flow\">\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><a href=\"\">1<\/a>\u00d6llu er afm\u00f6rku\u00f0 stund&nbsp;og s\u00e9rhver hlutur undir himninum hefur sinn t\u00edma.<br \/><a href=\"\">2<\/a>A\u00f0 f\u00e6\u00f0ast hefur sinn t\u00edma og a\u00f0 deyja hefur sinn t\u00edma,<br \/>a\u00f0 gr\u00f3\u00f0ursetja hefur sinn t\u00edma og a\u00f0 r\u00edfa upp hi\u00f0 gr\u00f3\u00f0ursetta hefur sinn t\u00edma,<br \/><a href=\"\">3<\/a>a\u00f0 dey\u00f0a hefur sinn t\u00edma og a\u00f0 l\u00e6kna hefur sinn t\u00edma,<br \/>a\u00f0 r\u00edfa ni\u00f0ur hefur sinn t\u00edma og a\u00f0 byggja upp hefur sinn t\u00edma,<br \/><a href=\"\">4<\/a>a\u00f0 gr\u00e1ta hefur sinn t\u00edma og a\u00f0 hl\u00e6ja hefur sinn t\u00edma,<br \/>a\u00f0 harma hefur sinn t\u00edma og a\u00f0 dansa hefur sinn t\u00edma,<br \/><a href=\"\">5<\/a>a\u00f0 kasta steinum hefur sinn t\u00edma og a\u00f0 t\u00edna saman steina hefur sinn t\u00edma,<br \/>a\u00f0 fa\u00f0mast hefur sinn t\u00edma og a\u00f0 halda s\u00e9r fr\u00e1 fa\u00f0ml\u00f6gum hefur sinn t\u00edma,<br \/><a href=\"\">6<\/a>a\u00f0 leita hefur sinn t\u00edma og a\u00f0 t\u00fdna hefur sinn t\u00edma,<br \/>a\u00f0 geyma hefur sinn t\u00edma og a\u00f0 fleygja hefur sinn t\u00edma,<br \/><a href=\"\">7<\/a>a\u00f0 r\u00edfa sundur hefur sinn t\u00edma og a\u00f0 sauma saman hefur sinn t\u00edma,<br \/>a\u00f0 \u00feegja hefur sinn t\u00edma og a\u00f0 tala hefur sinn t\u00edma,<br \/><a href=\"\">8<\/a>a\u00f0 elska hefur sinn t\u00edma og a\u00f0 hata hefur sinn t\u00edma,<br \/>str\u00ed\u00f0 hefur sinn t\u00edma og fri\u00f0ur hefur sinn t\u00edma.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><br \/><a href=\"\">9<\/a>Hva\u00f0a gagn hefur verkama\u00f0urinn af \u00f6llu striti s\u00ednu?&nbsp;<br \/><a href=\"\">10<\/a>&nbsp;\u00c9g virti fyrir m\u00e9r \u00fe\u00e1 \u00feraut sem Gu\u00f0 hefur fengi\u00f0 m\u00f6nnunum a\u00f0 \u00fereyta sig \u00e1.&nbsp;<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><a href=\"\">11<\/a>&nbsp;Allt hefur hann gert hagfellt \u00e1 s\u00ednum t\u00edma, jafnvel eil\u00edf\u00f0ina hefur hann lagt \u00ed brj\u00f3st \u00feeirra en ma\u00f0urinn f\u00e6r ekki skili\u00f0 a\u00f0 fullu \u00fea\u00f0 verk sem Gu\u00f0 vinnur.&nbsp;<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><a href=\"\">12<\/a>&nbsp;\u00c9g s\u00e1 a\u00f0 ekkert hugnast \u00feeim betur en a\u00f0 vera gla\u00f0ir og nj\u00f3ta l\u00edfsins me\u00f0an \u00fea\u00f0 endist.&nbsp;<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><a href=\"\">13<\/a>&nbsp;En a\u00f0 matast, drekka og gle\u00f0jast af \u00f6llu erfi\u00f0i s\u00ednu, einnig \u00fea\u00f0 er Gu\u00f0s gj\u00f6f.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><br \/><a href=\"\">14<\/a>&nbsp;\u00c9g komst a\u00f0 raun um a\u00f0 allt sem Gu\u00f0 gerir stendur a\u00f0 eil\u00edfu, vi\u00f0 \u00fea\u00f0 er engu a\u00f0 b\u00e6ta og af \u00fev\u00ed ver\u00f0ur ekkert teki\u00f0. Gu\u00f0 hefur haga\u00f0 \u00fev\u00ed svo til \u00feess a\u00f0 menn virtu hann.&nbsp;<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><a href=\"\">15<\/a>&nbsp;\u00dea\u00f0 sem er, var fyrir l\u00f6ngu, og \u00fea\u00f0 sem ver\u00f0ur, hefur veri\u00f0 fyrir l\u00f6ngu og Gu\u00f0 leitar aftur hins li\u00f0na.<\/p>\n<\/blockquote>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><a href=\"https:\/\/www.legstadaleit.com\/gullfaxi-is-594-eirikur-finnsson-is-26-visir-ba-44\/\">https:\/\/www.legstadaleit.com\/gullfaxi-is-594-eirikur-finnsson-is-26-visir-ba-44\/<\/a><\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>18. okt\u00f3ber 2024 &#8211; 75 \u00e1r fr\u00e1 f\u00e6\u00f0ingu hans. Ef \u00fe\u00fa vilt hlusta \u00fe\u00e1 er upptakan h\u00e9r og tekur t\u00e6par 9 m\u00edn\u00fatur:<\/p>\n","protected":false},"author":2,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_jetpack_newsletter_access":"","_jetpack_dont_email_post_to_subs":false,"_jetpack_newsletter_tier_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paywalled_content":false,"_jetpack_hide_featured_image":false,"_jetpack_featured_image_duplicate_dismissed":0,"_jetpack_feature_clip_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":"","jetpack_post_was_ever_published":false},"categories":[7],"tags":[],"class_list":["post-5423","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-minningarord-eulogies"],"jetpack_sharing_enabled":true,"jetpack_featured_media_url":"","_links":{"self":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/5423","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/users\/2"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcomments&post=5423"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/5423\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fmedia&parent=5423"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcategories&post=5423"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Ftags&post=5423"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}