{"id":538,"date":"2013-05-31T14:36:23","date_gmt":"2013-05-31T14:36:23","guid":{"rendered":"http:\/\/ornbardur.com\/?p=538"},"modified":"2013-05-31T14:36:23","modified_gmt":"2013-05-31T14:36:23","slug":"skuli-skulason-1942-2013","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/ornbardur.com\/?p=538","title":{"rendered":"Sk\u00fali Sk\u00falason 1942-2013"},"content":{"rendered":"<p style=\"text-align:left;\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" class=\"size-full wp-image-541 alignleft\" alt=\"skuliskulason2\" src=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2013\/05\/skuliskulason2.png\" width=\"275\" height=\"300\" \/><\/p>\n<p style=\"text-align:left;\">\n<p style=\"text-align:left;\">\u00d6rn B\u00e1r\u00f0ur J\u00f3nsson<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>Minningaror\u00f0<\/p>\n<p><b>Sk\u00fali Sk\u00falason<\/b><\/p>\n<p>verkfr\u00e6\u00f0ingur<\/p>\n<p>1942-2013<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>R\u00e6\u00f0una er h\u00e6gt a\u00f0 <strong>lesa<\/strong> h\u00e9r fyrir ne\u00f0an<\/p>\n<p>og einnig <strong>hlusta<\/strong> \u00e1 hana me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0<\/p>\n<p>smella \u00e1 \u00fer\u00edhyrninginn (Play-takkann)<!--more--><\/p>\n\n<p><strong>L\u00edfinu<\/strong> m\u00e1 l\u00edkja vi\u00f0 leik. L\u00edfi\u00f0 er \u00ed vissum skilningi \u00ed\u00fer\u00f3tt og okkur varpa\u00f0 inn \u00e1 leikv\u00f6llinn og \u00fear ver\u00f0um vi\u00f0 a\u00f0 taka \u00fe\u00e1tt \u00ed leiknum, eigum l\u00edti\u00f0 sem ekkert val um \u00fea\u00f0 af e\u00f0a \u00e1.<\/p>\n<p>Ungur hreifst Sk\u00fali af sk\u00e1k og bridge en \u00fe\u00e6r \u00ed\u00fer\u00f3ttir voru miki\u00f0 stunda\u00f0ar \u00e1 \u00e6skuheimili hans. \u00cd\u00fer\u00f3ttir hugans heillu\u00f0u enda var hann g\u00f3\u00f0ur st\u00e6r\u00f0fr\u00e6\u00f0ingur a\u00f0 upplagi. Sk\u00e1kin er margslungi\u00f0 fyrirbrig\u00f0i og krefst mikillar kunn\u00e1ttu \u00e6tli menn a\u00f0 n\u00e1 langt \u00ed \u00feeirri \u00ed\u00fer\u00f3tt. H\u00fan \u00e1 s\u00e9r \u00ed vissum skilningi tr\u00faarlegar r\u00e6tur. \u00cd \u00fea\u00f0 minnsta \u00fearf tr\u00fa \u00ed \u00feeim leik sem flestum \u00f6\u00f0rum, tr\u00fa og von um a\u00f0 n\u00e1 t\u00f6kum \u00e1 leiknum og m\u00e1ta andst\u00e6\u00f0inginn. Sk\u00e1kin eins og vi\u00f0 \u00feekkjum hana hefur tr\u00faarlegar sk\u00fdrskotanir. \u00dea\u00f0 s\u00e9st \u00e1 taflm\u00f6nnunum. K\u00f3ngur ber k\u00f3r\u00f3nu me\u00f0 krossi og vi\u00f0 hli\u00f0 hans stendur drottningin \u00f6fluga. Riddarar geisast um v\u00ed\u00f0an v\u00f6ll en riddarar voru l\u00f6ngum \u00ed \u00fej\u00f3nustu kristinnar tr\u00faar \u00e1 mi\u00f0\u00f6ldum. \u00de\u00e1 m\u00e1 ekki gleyma biskupunum. Sk\u00e1kin felur ekki \u00ed s\u00e9r tr\u00faarkenningar sem sl\u00edk en h\u00fan er n\u00e1tengd tr\u00fa og von. H\u00fan er leikin af f\u00f3lki innan \u00f3l\u00edkra tr\u00faarbrag\u00f0a og \u00ed sumum tilfellum eru emb\u00e6ttist\u00e1kn fjarl\u00e6g\u00f0 af hinum kristnu taflm\u00f6nnum t.d. \u00ed l\u00f6ndum m\u00faslima. Fleiri \u00ed\u00fer\u00f3ttir m\u00e1 tengja tr\u00fanni og kem \u00e9g a\u00f0 \u00fev\u00ed s\u00ed\u00f0ar.<\/p>\n<p>Sk\u00fali var tr\u00faa\u00f0ur ma\u00f0ur. Hann var einl\u00e6gur og v\u00e6nn, vandvirkur og hei\u00f0arlegur.<\/p>\n<p>Sk\u00fali f\u00e6ddist \u00ed Keflav\u00edk 31. mars 1942. Hann l\u00e9st \u00e1 hj\u00fakrunarheimilinu Eir 23. ma\u00ed 2013.<\/p>\n<p>Sk\u00fali var sonur hj\u00f3nanna Sk\u00fala Helga Sk\u00falasonar, byggingameistara \u00ed Keflav\u00edk, f. 5. febr\u00faar 1913 \u00ed Mi\u00f0dal \u00ed Laugardal, d. 3. desember 1982 og Ragnhei\u00f0ar Gu\u00f0mundu Sigurg\u00edslad\u00f3ttur, f. 10. september 1918 \u00e1 Akranesi, d. 20. n\u00f3vember 1991.<\/p>\n<p>Systkini Sk\u00fala eru<\/p>\n<p>J\u00f3n Gunnar, f. 28. n\u00f3vember 1940,<\/p>\n<p>Baldur, f. 1. n\u00f3vember 1943,<\/p>\n<p>Anna, f. 18. j\u00fan\u00ed 1948,<\/p>\n<p>Sigurg\u00edsli, f. 13. ma\u00ed 1950,<\/p>\n<p>Gu\u00f0r\u00fan, f. 14. ma\u00ed 1951,<\/p>\n<p>Arna, f. 13. ma\u00ed 1956,<\/p>\n<p>Hrefna Margr\u00e9t, f. 2. apr\u00edl 1959 og<\/p>\n<p>Katr\u00edn Freyja, f. 25. mars 1961.<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>Sonur Sk\u00fala og Steinunnar P\u00e9tursd\u00f3ttur f. 13. \u00e1g\u00fast 1948 er Kristinn P\u00e9tur, verkfr\u00e6\u00f0ingur, f. 11. febr\u00faar 1982.<\/p>\n<p>Sk\u00fali \u00f3lst upp \u00ed Keflav\u00edk, lauk \u00fear landspr\u00f3fi, var\u00f0 st\u00fadent fr\u00e1 Menntask\u00f3lanum a\u00f0 Laugarvatni. Hann t\u00f3k fyrrihlutann \u00ed verkfr\u00e6\u00f0i\u00a0 vi\u00f0 H\u00cd og h\u00e9lt svo \u00e1fram \u00ed \u00der\u00e1ndheimi \u00fear sem hann t\u00f3k pr\u00f3f \u00ed byggingaverkfr\u00e6\u00f0i. Hann sarfa\u00f0i hj\u00e1 gatnam\u00e1lastj\u00f3ra Reykjav\u00edkur og vann svo \u00e1 Verkfr\u00e6\u00f0istofu Gu\u00f0mundar G. \u00de\u00f3rarinssonar. \u00de\u00e1 stofna\u00f0i hann \u00e1samt fleirum verkfr\u00e6\u00f0istofuna Fj\u00f6lh\u00f6nnun og var \u00fear framkv\u00e6mdastj\u00f3ri lengst af. Fyrirt\u00e6ki\u00f0 starfa\u00f0i vi\u00f0 hef\u00f0bundna byggingarverkfr\u00e6\u00f0i, \u00e1\u00e6tlanager\u00f0 og h\u00f6nnun, einkum vega og gatna.<\/p>\n<p>Sk\u00fali var me\u00f0al brautry\u00f0jenda \u00ed fiskeldi og stofna\u00f0i \u00e1samt fleirum fiskeldisfyrirt\u00e6ki\u00f0 \u00cds\u00fe\u00f3r \u00ed \u00deorl\u00e1ksh\u00f6fn en \u00fea\u00f0 \u00e6vint\u00fdri f\u00f3r ekki eins og vonir h\u00f6f\u00f0u sta\u00f0i\u00f0 til og tafli\u00f0 tapa\u00f0ist. Sk\u00fali var ekkert a\u00f0 s\u00fdta \u00fea\u00f0 en h\u00e9lt \u00e1fram s\u00ednum st\u00f6rfum. Hann l\u00e9t ekki fort\u00ed\u00f0ina binda sig, t\u00f6pu\u00f0 sk\u00e1k var li\u00f0in sk\u00e1k og alltaf h\u00e6gt a\u00f0 taka n\u00fdja.<\/p>\n<p>Systkini hans rifju\u00f0u \u00fea\u00f0 upp hva\u00f0 hann \u00fe\u00f3tti flj\u00f3tur til sem barn. Sk\u00fali var fyrirfer\u00f0armikill og forvitinn. Foreldrum hans \u00fe\u00f3tti v\u00edst n\u00f3g um og r\u00e6ddu vi\u00f0 l\u00e6kni. Me\u00f0an \u00e1 vi\u00f0talinu st\u00f3\u00f0 var Sk\u00fali \u00e1 kafi ofan \u00ed l\u00e6knist\u00f6skunni og l\u00e6knirinn komst a\u00f0 \u00feeirri ni\u00f0urst\u00f6\u00f0u a\u00f0 ekkert v\u00e6ri a\u00f0 str\u00e1k, hann v\u00e6ri bara forvitinn eins og b\u00f6rn eiga a\u00f0 vera. Sk\u00fali gat rifi\u00f0 allt \u00ed sundur og sett \u00fea\u00f0 saman \u00e1 n\u00fd. Hann haf\u00f0i\u00a0 \u00e1huga \u00e1 v\u00e9lum og t\u00e6kjum, t\u00e6kni og v\u00edsindum. A\u00f0eins tv\u00f6 \u00e1r er \u00e1 milli \u00feeirra br\u00e6\u00f0ra J\u00f3ns og hans og s\u00f6gur herma a\u00f0 Sk\u00fali hafi l\u00edti\u00f0 \u00feurft a\u00f0 segja fram a\u00f0 sk\u00f3laaldri \u00fev\u00ed J\u00f3n tala\u00f0i jafnan fyrir \u00fe\u00e1 b\u00e1\u00f0a.<\/p>\n<p>Hann \u00f3lst upp \u00e1 g\u00f3\u00f0u heimili. Pabbi var framkv\u00e6mdama\u00f0ur sem bygg\u00f0i h\u00fas og mamma s\u00e1 um h\u00f3pinn heima. \u00deau hj\u00f3nin voru r\u00e6ktunarf\u00f3lk og \u00f6gru\u00f0u ve\u00f0urfarinu \u00e1 Su\u00f0urnesjum og vantr\u00fa f\u00f3lksins um a\u00f0 ekkert g\u00e6ti gr\u00f3i\u00f0 \u00e1 \u00feeim sl\u00f3\u00f0um. Me\u00f0 i\u00f0ni, \u00ferautseigju og tr\u00fa t\u00f3kst \u00feeim \u00e6tlunarverk sitt. \u00cd gar\u00f0inum \u00feeirra uxu b\u00e6\u00f0i tr\u00e9 og skrautbl\u00f3m. Og ekki l\u00f6g\u00f0u \u00feau s\u00ed\u00f0ri r\u00e6kt vi\u00f0 b\u00f6rnin s\u00edn sem \u00f6ll hafa bori\u00f0 g\u00f3\u00f0an \u00e1v\u00f6xt. Fj\u00f6lskyldan er st\u00f3r sem kve\u00f0ur hann h\u00e9r \u00ed dag en kve\u00f0ju s\u00edna sendir systursonur hans, Brynj\u00f3lfur sem b\u00fdr \u00ed Stokkh\u00f3lmi.<\/p>\n<p>Sk\u00fali var g\u00f3\u00f0ur f\u00e9lagi systkina sinna og var \u00feeim \u00f6llum mj\u00f6g k\u00e6r. Hann var\u00f0 aldrei fj\u00f6lskylduma\u00f0ur, \u00f3kv\u00e6ntur alla t\u00ed\u00f0, en eigna\u00f0ist einn son sem var honum afar k\u00e6r. Sk\u00fali sinnti honum gjarnan um helgar me\u00f0an hann var yngri. Samskipti \u00feeirra \u00fer\u00f3u\u00f0ust og voru alla t\u00ed\u00f0 n\u00e1in og g\u00f3\u00f0. Verkfr\u00e6\u00f0ina \u00e1ttu \u00feeir sameiginlega, \u00feeir l\u00e9ku golf saman og f\u00f3ru oft \u00ed b\u00ed\u00f3. \u00deeir st\u00f6rfu\u00f0u saman \u00e1 verkfr\u00e6\u00f0istofu \u00ed tv\u00f6 sumur og h\u00f6f\u00f0u margv\u00edsleg samskipti innan og utan vinnu.<\/p>\n<p>Sk\u00fali leig\u00f0i me\u00f0 m\u00f6rgum systkina sinna me\u00f0an \u00feau voru \u00ed n\u00e1mi og \u00feau kynntust honum \u00fev\u00ed vel sem fullor\u00f0num manni og reyndist hann \u00feeim r\u00e1\u00f0hollur \u00ed m\u00f6rgum m\u00e1lum. Eini skugginn \u00ed \u00feeim efnum var a\u00f0 hann var helst til miki\u00f0 upp\u00e1 \u00e1fengi kominn um t\u00edma en h\u00e6tti alveg fyrir 15 \u00e1rum og n\u00fdtti s\u00e9r 12-sporakerfi\u00f0 og sag\u00f0i gjarnan a\u00f0 \u00fea\u00f0 virka\u00f0i ekki a\u00f0 neinu gagni \u00e1n tr\u00faar. Hann var leitandi ma\u00f0ur sem sko\u00f0a\u00f0i \u00fdmsar hli\u00f0ar tr\u00faar og tr\u00faarbrag\u00f0a og t\u00fdndi aldrei \u00feeirri s\u00fdn a\u00f0 til v\u00e6ri eitt st\u00f3rt samhengi allra hluta. Kannski var \u00fea\u00f0 verkfr\u00e6\u00f0iheilinn sem s\u00e1 samhengi alls, s\u00e1 l\u00edfi\u00f0 eins og eitt st\u00f3rt byggingarverkefni e\u00f0a konstr\u00faksj\u00f3n?<\/p>\n<p>Sk\u00fali l\u00e9k golf um \u00e1rabil og haf\u00f0i miki\u00f0 yndi af \u00feeirri \u00ed\u00fer\u00f3tt. \u00c1ri\u00f0 2007 \u00e1kva\u00f0 hann a\u00f0 h\u00e6tta st\u00f6rfum sem verkfr\u00e6\u00f0ingur til a\u00f0 geta noti\u00f0 meiri t\u00edma \u00ed golfi og til fer\u00f0alaga. Hann f\u00e9kk heilabl\u00f3\u00f0fall \u00ed tv\u00edgang og Alzheimers-sj\u00fakd\u00f3murinn leiddi til \u00feess a\u00f0 s\u00e1 t\u00edmi var\u00f0 styttri en til st\u00f3\u00f0.<\/p>\n<p>Golf er ekki bara tr\u00faarleg e\u00f0a religious \u00ed\u00fer\u00f3tt, h\u00fan er beinl\u00ednis mj\u00f6g kristileg. \u00c9g er n\u00fa l\u00edklega eini prestur landsins sem hef haldi\u00f0 \u00feessu fram b\u00e6\u00f0i \u00ed r\u00e6\u00f0u og riti. Allar reglur \u00ed golfi eru settar, sam\u00feykktar og var\u00f0veittar af Hinum konunglega og forna kl\u00fabbi heilags Andr\u00e9sar \u00ed Skortlandi &#8211; The Royal and Ancient Golf Club of St. Andrews &#8211; og skal engan undra a\u00f0 reglurnar eigi r\u00e6tur \u00ed kristinni tr\u00fa. K\u00f3r\u00f3nan \u00ed \u00feeim efnum er forgj\u00f6fin sem er kerfi til a\u00f0 jafna leikinn og hj\u00e1lpa \u00feeim sem eru meiri klaufar en a\u00f0rir. Forgj\u00f6fin er ekkert anna\u00f0 en fyrirgefning og \u00e6tti au\u00f0vita\u00f0 a\u00f0 bera \u00fea\u00f0 nafn &#8211; fyrirgefning. Sumir f\u00e1 meiri fyrigefningu \u00ed golfi en a\u00f0rir og \u00feannig geta allir veri\u00f0 jafnir \u00ed g\u00f6fugum leik sem hefur margar a\u00f0rar tilv\u00edsanir \u00ed kristna gu\u00f0fr\u00e6\u00f0i sem ekki ver\u00f0a n\u00e1nar raktar \u00ed \u00feessari ath\u00f6fn.<\/p>\n<p>S\u00ed\u00f0ustu misserin var Sk\u00fali \u00e1 hj\u00fakrunarheimilinu Eir. Alltaf var hann a\u00f0 skipuleggja eitthva\u00f0 \u00fe\u00f3tt minni\u00f0 v\u00e6ri stopult og hann jafnvel h\u00e6ttur a\u00f0 \u00feekkja f\u00f3lk. Hann setti gjarnan stj\u00f3rnarfund \u00ed einhverju f\u00e9lagi ef f\u00f3lki\u00f0 hans kom \u00ed heims\u00f3kn, lag\u00f0i l\u00ednur um n\u00fd verkefni, ger\u00f0i fj\u00e1rhags\u00e1\u00e6tlannir og hugsa\u00f0i st\u00f3rt. \u00c1vallt var hann lj\u00fafur og kurteis, skapg\u00f3\u00f0ur og r\u00f3legur \u00ed fasi.<\/p>\n<p>G\u00f3\u00f0 og k\u00e6r vinkona hans \u00ed um \u00ferj\u00e1 \u00e1ratugi er El\u00edn Salka Sn\u00e6dal, hj\u00fakrunarfr\u00e6\u00f0ingur, sem s\u00e9r n\u00fa \u00e1 eftir k\u00e6rum vini. \u00deau \u00e1ttu m\u00f6rg sameiginleg \u00e1hugam\u00e1l, f\u00f3ru oft \u00ed leikh\u00fas og \u00e1 t\u00f3nleika.<\/p>\n<p>Sk\u00fali lif\u00f0i almennt tala\u00f0 \u00ed s\u00e1tt og samlyndi vi\u00f0 f\u00f3lk, hann var n\u00e1kv\u00e6mur og passasamur \u00e1 alla lund og komst vel af \u00ed l\u00edfinu.<\/p>\n<p>\u00cd m\u00e1lt\u00e6kinu segir: K\u00f3ngur vill sigla en byr hl\u00fdtur a\u00f0 r\u00e1\u00f0a. Endatafli\u00f0 var\u00f0 me\u00f0 \u00f6\u00f0rum h\u00e6tti en \u00e1\u00e6tla\u00f0 var hj\u00e1 Sk\u00fala.<\/p>\n<p>\u00c1 v\u00edsindavefnum segir um hugtaki\u00f0 endatafl:<\/p>\n<p>Endatafli\u00f0 er l\u00edklega \u00fea\u00f0 stig sk\u00e1karinnar sem krefst mestrar r\u00f6khugsunar. Oft \u00fearf a\u00f0 reikna langt fram \u00ed t\u00edmann og telja vandlega gang pe\u00f0anna og k\u00f3ngsins; enn fl\u00f3knara er \u00feegar telja \u00fearf gang riddarans. K\u00f6ld r\u00f6khugsun og reiknikunn\u00e1tta er mikilv\u00e6gasta h\u00e6fnin fyrir \u00feetta stig.<\/p>\n<p>Sk\u00fali tefldi marga sk\u00e1kina um \u00e6vina en \u00feegar kom a\u00f0 endataflinu \u00ed l\u00edfi hans sj\u00e1lfs var hann or\u00f0inn laska\u00f0ur \u00e1 minni og atgervi\u00f0 skert.<\/p>\n<p>Endatafli\u00f0 \u00feurfum vi\u00f0 \u00f6ll a\u00f0 tefla og engu skiptir atgevi\u00f0 \u00feegar \u00fear a\u00f0 kemur \u00fev\u00ed vi\u00f0 t\u00f6pum \u00f6ll l\u00edfssk\u00e1kinni. Taflmenn okkar hn\u00edga allir \u00ed valinn, pe\u00f0 og hr\u00f3kar, riddarar og biskupar, drottning og k\u00f3ngur.<\/p>\n<p>En vonin og tr\u00fain reisir \u00fe\u00e1 alla vi\u00f0 og stillt er upp n\u00fdju tafli fyrir tilstilli hans sem er konungur konunganna og drottinn drottnanna, Christus Victor, sem ber k\u00f3r\u00f3nu sigursins.<\/p>\n<blockquote><p>V\u00edst ertu, Jes\u00fas, k\u00f3ngur kl\u00e1r,<br \/>\nk\u00f3ngur d\u00fdr\u00f0ar um eil\u00edf \u00e1r,<br \/>\nk\u00f3ngur englanna, k\u00f3ngur vor,<br \/>\nk\u00f3ngur alm\u00e6ttis tignarst\u00f3r.<\/p><\/blockquote>\n<p>\u00dea\u00f0 er hann og enginn annar sem kr\u00fdnir okkur a\u00f0 loknum leik \u00ed \u00feessu l\u00edfi \u00ed lj\u00f3si or\u00f0anna \u00ed Opinberunarb\u00f3k J\u00f3hannesar:<\/p>\n<blockquote><p>\u201eVertu tr\u00far allt til dau\u00f0a og Gu\u00f0 mun gefa \u00fe\u00e9r l\u00edfsins k\u00f3r\u00f3nu.\u201c<\/p><\/blockquote>\n<p>Vi\u00f0 kve\u00f0jum Sk\u00fala Sk\u00falason me\u00f0 vir\u00f0ingu og \u00fe\u00f6kk. Blessu\u00f0 s\u00e9 minning hans og Gu\u00f0 blessi \u00feig.\u00a0 Amen.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00d6rn B\u00e1r\u00f0ur J\u00f3nsson &nbsp; Minningaror\u00f0 Sk\u00fali Sk\u00falason verkfr\u00e6\u00f0ingur 1942-2013 &nbsp; R\u00e6\u00f0una er h\u00e6gt a\u00f0 lesa h\u00e9r fyrir ne\u00f0an og einnig hlusta \u00e1 hana me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 smella \u00e1 \u00fer\u00edhyrninginn (Play-takkann)<\/p>\n","protected":false},"author":2,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_jetpack_newsletter_access":"","_jetpack_dont_email_post_to_subs":false,"_jetpack_newsletter_tier_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paywalled_content":false,"_jetpack_hide_featured_image":false,"_jetpack_featured_image_duplicate_dismissed":0,"_jetpack_feature_clip_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":"","jetpack_post_was_ever_published":false},"categories":[4],"tags":[],"class_list":["post-538","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-greinar-og-hugvekjur-articles"],"jetpack_sharing_enabled":true,"jetpack_featured_media_url":"","_links":{"self":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/538","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/users\/2"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcomments&post=538"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/538\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fmedia&parent=538"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcategories&post=538"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Ftags&post=538"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}