{"id":5243,"date":"2024-09-13T19:01:44","date_gmt":"2024-09-13T19:01:44","guid":{"rendered":"http:\/\/ornbardur.com\/?p=5243"},"modified":"2024-09-13T19:01:44","modified_gmt":"2024-09-13T19:01:44","slug":"bryndis-klara-2007-2024","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/ornbardur.com\/?p=5243","title":{"rendered":"Brynd\u00eds Klara  2007-2024"},"content":{"rendered":"\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Minningaror\u00f0<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>+Brynd\u00eds Klara<\/strong><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>2007-2024<\/strong><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>d\u00f3ttir<\/strong><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>I\u00f0unnar Eir\u00edksd\u00f3ttur og Birgis Karls \u00d3skarssonar<\/strong><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Minningaror\u00f0in eru h\u00e9r fyrir ne\u00f0an, b\u00e6\u00f0i texti og hlj\u00f3\u00f0upptaka og s\u00e1lmaskr\u00e1in er svo ne\u00f0st.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><\/p>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-image size-large\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"1462\" height=\"2000\" src=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2024\/09\/img_3224-1.jpg?w=749\" alt=\"\" class=\"wp-image-5246\" \/><figcaption class=\"wp-element-caption\">Fors\u00ed\u00f0a s\u00e1lmaskr\u00e1r<\/figcaption><\/figure>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><\/p>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-audio\"><audio controls src=\"https:\/\/pub-c849b6aaf98340c4bec7b480b0f7ffe9.r2.dev\/2024\/09\/bryndis-klara-birgisdottir-2007-2024.m4a\"><\/audio><\/figure>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><\/p>\n\n\n\n<!--more-->\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">&#8220;\u00de\u00e9r eru\u00f0 lj\u00f3s heimsins&#8221;, sag\u00f0i Jes\u00fas vi\u00f0 fylgjendur s\u00edna.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">H\u00fan Brynd\u00eds Klara var lj\u00f3ssins barn, f\u00f6gur og t\u00e6r, f\u00ednleg og sterk \u00ed senn, eins og nafni\u00f0 hennar ber me\u00f0 s\u00e9r. Brynd\u00eds sem v\u00edsar til brynju sem er v\u00f6rn og Klara sem merkir hin sk\u00e6ra og bjarta.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">H\u00fan bar \u00fe\u00f3 ekki m\u00e1lmbrynju fremur en a\u00f0rir dau\u00f0legir menn, en h\u00fan bar \u00ed s\u00e9r andlega brynju, vernd himinsins, sem bjargar fr\u00e1 \u00f6llu illu og \u00fea\u00f0 er tr\u00fain \u00e1 Jes\u00fa Krist og Heilagan anda hans.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Tr\u00fa og von eru skyld hugt\u00f6k, kvenkynsor\u00f0, fr\u00e6nkur sem gera okkur \u00f3dau\u00f0leg, \u00feegar liti\u00f0 er til hins st\u00f3ra samhengis. Tr\u00fa og von. Enginn getur lifa\u00f0 \u00e1n tr\u00faar og vonar.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Dau\u00f0inn \u00ed \u00feeirri mynd, sem vi\u00f0 h\u00e9r horfumst \u00ed augu vi\u00f0 \u00ed andl\u00e1ti Brynd\u00edsar Kl\u00f6ru, er hryllileg sta\u00f0reynd, \u00f3skiljanlegur atbur\u00f0ur, \u00fear sem hi\u00f0 illa og f\u00e1r\u00e1nlega var\u00f0 a\u00f0 eldi sem olli \u00f3b\u00e6rilegum harmi \u00ed hug og hjarta okkar allra. Sj\u00e1lfur \u00e1 \u00e9g erfitt me\u00f0 a\u00f0 fella ekki t\u00e1r \u00e1 \u00feessari stundu.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Heimurinn er ekki saklaus Parad\u00eds, eins og sagan um Adam og Evu tj\u00e1ir. S\u00fa saga er t\u00e1knsaga, \u00edhugun viturs rith\u00f6fundar, sem spyr sig hvers vegna hi\u00f0 g\u00f3\u00f0a villist af lei\u00f0. T\u00e1knmynd hins illa \u00ed s\u00f6gunni er h\u00f6ggormur. Sagan um Adam og Evu er sk\u00fdringarfr\u00e1s\u00f6gn, sem vi\u00f0 getum t.d. nota\u00f0 til a\u00f0 skilja hvers vegna d\u00e1samlegar uppfinningar mannsandans eins og stafr\u00f3fi\u00f0 og prentlistin, \u00fatvarp og sj\u00f3nvarp, alneti\u00f0 og gervigreindin, hafa allar veri\u00f0 heims\u00f3ttar af h\u00f6ggormi, sem l\u00fdgur og spillir og misnotar uppfinningar mannsandans.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Samf\u00e9lagsmi\u00f0larnir, sem vi\u00f0 notum langflest ef ekki \u00f6ll, eru Parad\u00edsir me\u00f0 \u00e1v\u00f6xtum og trj\u00e1m, en \u00fear skr\u00ed\u00f0a h\u00f6ggormar, sem vilja t\u00e6la okkur til illra hugsana og verka. \u00deess vegna \u00feurfum vi\u00f0 a\u00f0 vera \u00e1 ver\u00f0i, me\u00f0 brynju en l\u00edka kl\u00f6ru e\u00f0a hei\u00f0r\u00edkju hugans. Vi\u00f0 \u00feurfum a\u00f0 l\u00e6ra a\u00f0 umgangast h\u00f6ggorma heimsins og l\u00e1ta \u00fe\u00e1 ekki n\u00e1 t\u00f6kum \u00e1 huga okkar, vera \u00e1 ver\u00f0i og halla okkur \u00e6t\u00ed\u00f0 a\u00f0 lj\u00f3sinu bjarta.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hi\u00f0 illa hefur r\u00e1\u00f0ist inn \u00ed l\u00edf okkar og varnirnar dug\u00f0u ekki, en birtan og lj\u00f3si\u00f0 r\u00edkja og l\u00fdsa \u00ed dimmu sorgar og harms.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Og svo eru \u00fea\u00f0 minningarnar ykkar, k\u00e6ru foreldrar og fj\u00f6lskylda og ykkar l\u00edka, k\u00e6ru sk\u00f3lasystkin og vinir hennar \u00far Verzl\u00f3. <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Og h\u00e9r stend \u00e9g, gamall Verzlingur og fv. forseti Nemendaf\u00e9lagsins, sem var\u00f0 ekki endursko\u00f0andi, \u00fer\u00e1tt fyrir menntun \u00e1 \u00fev\u00ed svi\u00f0i, heldur prestur, sem naut \u00feess hei\u00f0urs a\u00f0 f\u00e1 a\u00f0 sk\u00edra Brynd\u00edsi Kl\u00f6ru sem reifabarn og v\u00edgja hana \u00fear me\u00f0 himninum og eil\u00edf\u00f0inni, vera vi\u00f0staddur \u00feegar h\u00fan var kl\u00e6dd brynjunni andlegu, sem ber \u00ed s\u00e9r fyrirheit um vernd fyrir illskunni og tryggir eil\u00edft l\u00edf \u00ed lj\u00f3sinu hj\u00e1 Drottni, \u00ed lj\u00f3si og sk\u00e6rri &#8220;kl\u00f6ru-birtu&#8221; hans.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c9g hitti hana fyrir r\u00famum m\u00e1nu\u00f0i \u00feegar \u00e9g sk\u00edr\u00f0i l\u00edtinn fr\u00e6nda hennar og \u00fe\u00e1 var sk\u00edrn hennar sj\u00e1lfrar rifju\u00f0 upp. Og h\u00fan brosti me\u00f0 f\u00f6gru sp\u00e9koppunum s\u00ednum \u00feegar \u00e9g t\u00f3k utan um hana og gladdist yfir a\u00f0 sj\u00e1 sk\u00edrnarbarni\u00f0 mitt komi\u00f0 \u00e1 unglings\u00e1r og vera or\u00f0i\u00f0 a\u00f0 gl\u00e6silegri ungri st\u00falku.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Og n\u00fa erum vi\u00f0 prestar h\u00e9r, \u00e9g og s\u00e9ra Gu\u00f0ni M\u00e1r, sem fermdi hana og var me\u00f0 henni og m\u00f6rgum ykkar \u00ed fr\u00e1b\u00e6ru \u00e6skul\u00fd\u00f0sstarfi kirkjunnar og sj\u00fakrah\u00faspresturinn, s\u00e9ra Hj\u00f6rd\u00eds Perla sem \u00e1samt Gu\u00f0na M\u00e1 hefur veitt fj\u00f6lskyldunni \u00f3metanlegan stu\u00f0ning og hj\u00e1lp me\u00f0 elsku sinni og einl\u00e6gri tr\u00fa. \u00de\u00e1 ber a\u00f0 \u00feakka Ryan, hj\u00fakrunarmanni \u00e1 vettvangi, l\u00e6knum og starfsf\u00f3lki sj\u00fakrah\u00fassins fyrir \u00f6ll \u00feeirra g\u00f3\u00f0u verk, l\u00f6greglu og \u00f6\u00f0rum sem tengjast m\u00e1linu vegna starfa sinna. Sam\u00fa\u00f0 einstaklinga og samhyg\u00f0 \u00fej\u00f3\u00f0ar veitir styrk og hj\u00e1lp \u00ed harminum \u00fear sem vi\u00f0 erum \u00f6ll hluthafar.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Brynd\u00eds Klara Birgisd\u00f3ttir f\u00e6ddist \u00ed Reykjav\u00edk 2. febr\u00faar 2007. H\u00fan l\u00e9st \u00e1 gj\u00f6rg\u00e6sludeild Landsp\u00edtalans vi\u00f0 Hringbraut 30. \u00e1g\u00fast 2024.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Foreldrar Brynd\u00edsar Kl\u00f6ru eru I\u00f0unn Eir\u00edksd\u00f3ttir, vi\u00f0skiptafr\u00e6\u00f0ingur og Birgir Karl \u00d3skarsson, l\u00f6gg. endursko\u00f0andi. Systir Brynd\u00edsar Kl\u00f6ru er Vigd\u00eds Edda grunnsk\u00f3lanemi. &nbsp;<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Foreldrar I\u00f0unnar eru Halld\u00f3ra J\u00f3nsd\u00f3ttir, fv. fulltr\u00fai og Eir\u00edkur B\u00f6\u00f0varsson fv. framkv\u00e6mdastj\u00f3ri. Foreldrar Birgis eru Ragnhei\u00f0ur Ingunn Magn\u00fasd\u00f3ttir, fv. kennari og \u00d3skar \u00de\u00f3r Karlsson, fv. framkv\u00e6mdastj\u00f3ri.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Systkini I\u00f0unnar eru Haukur Eir\u00edksson s\u00e9rfr\u00e6\u00f0ingur hj\u00e1 Orkuveitunni, J\u00f3n \u00d3lafur Eir\u00edksson kennari og Ald\u00eds Braga Eir\u00edksd\u00f3ttir verkfr\u00e6\u00f0ingur.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Systir Birgis er Anna Brynd\u00eds \u00d3skarsd\u00f3ttir taugal\u00e6knir, h\u00e1lfsystir hans samm\u00e6\u00f0ra er Krist\u00edn Stef\u00e1nsd\u00f3ttir skrifstofustj\u00f3ri og h\u00e1lfbr\u00f3\u00f0ir hans samfe\u00f0ra er Vilmundur \u00d3skarsson sj\u00f3ma\u00f0ur.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Brynd\u00eds Klara \u00f3lst upp \u00ed Salahverfi \u00ed K\u00f3pavogi og var allt sitt grunnsk\u00f3lan\u00e1m \u00ed Salask\u00f3la. H\u00fan var \u00e1 2. \u00e1ri \u00ed Verzlunarsk\u00f3la \u00cdslands er h\u00fan l\u00e9st. H\u00fan haf\u00f0i mikinn \u00e1huga \u00e1 \u00ed\u00fer\u00f3ttum og stunda\u00f0i fimleika me\u00f0 Gerplu \u00ed m\u00f6rg \u00e1r. H\u00fan \u00e6f\u00f0i einnig knattspyrnu hj\u00e1 Brei\u00f0abliki \u00ed m\u00f6rg \u00e1r og \u00fe\u00f3tti efnilegur f\u00f3tboltakappi. H\u00fan var mj\u00f6g skapandi \u00ed hugsun, h\u00e6fileikar\u00edk \u00ed matarger\u00f0 og bakstri, og haf\u00f0i mikinn \u00e1huga \u00e1 h\u00f6nnun og hannyr\u00f0um. Brynd\u00eds var afbur\u00f0anemandi alla s\u00edna sk\u00f3lag\u00f6ngu og var \u00e1 n\u00e1tt\u00farufr\u00e6\u00f0ibraut vi\u00f0 Verslunarsk\u00f3la \u00cdslands en h\u00fan hug\u00f0i \u00e1 l\u00e6knan\u00e1m a\u00f0 loknu framhaldssk\u00f3lan\u00e1mi s\u00ednu. Samhli\u00f0a n\u00e1minu vann h\u00fan \u00ed hlutastarfi hj\u00e1 Dominos \u00ed Hafnarfir\u00f0i og var einnig \u00ed sumarstarfi \u00e1 leiksk\u00f3la.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Brynd\u00eds Klara bj\u00f3 yfir m\u00f6gum kostum, sem ekki ver\u00f0ur l\u00fdst h\u00e9r, enda yr\u00f0i \u00e9g \u00fe\u00e1 a\u00f0 tala fram \u00e1 kv\u00f6ld. \u00cd minningargreinum og f\u00e6rslum \u00e1 samf\u00e9lagsmi\u00f0lum birtast hins vegar margir af hennar \u00f3teljandi kostum \u00ed l\u00fdsingum \u00e6ttingja og vina. Gu\u00f0 blessi \u00fea\u00f0 allt sem \u00fei\u00f0 hafi\u00f0 sagt og rita\u00f0.&nbsp;Or\u00f0 ykkar hugga og styrkja.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Andl\u00e1t Brynd\u00edsar Kl\u00f6ru hefur haft gr\u00ed\u00f0arleg \u00e1hrif \u00e1 \u00fej\u00f3\u00f0f\u00e9lagi\u00f0. \u00cd\u00fer\u00f3ttaleikir hafa haldi\u00f0 minningu me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 st\u00f6\u00f0va leik \u00e1 17. m\u00edn\u00fatu. F\u00f3lk hefur komi\u00f0 saman og minnst hennar v\u00ed\u00f0a, fj\u00f6lmi\u00f0lar hafa fjalla\u00f0 um l\u00e1t hennar og kalla\u00f0 til s\u00e9rfr\u00e6\u00f0inga a\u00f0 r\u00e6\u00f0a m\u00e1li\u00f0.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00cd \u00feessu ferli hafa margir tj\u00e1\u00f0 sig. \u00c1 minningarstund \u00ed Lindakirkju var flutt d\u00fdrm\u00e6t tj\u00e1ning og skilabo\u00f0 fr\u00e1 foreldrum Brynd\u00edsar Kl\u00f6ru, sem og \u00e6skuvinkonum hennar \u00far Salask\u00f3la, en \u00fe\u00e6r m\u00e6ttu \u00ed bleiku, upp\u00e1haldslitnum hennar og l\u00e1su \u00feessi or\u00f0:<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">,,Vi\u00f0 viljum byrja \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feakka ykkur \u00f6llum fyrir a\u00f0 koma til a\u00f0 s\u00fdna stu\u00f0ning og minnast Brynd\u00edsar. Fyrir \u00fe\u00e1 sem \u00feekkja okkur ekki \u00fe\u00e1 erum vi\u00f0 \u00e6skuvinkonur Brynd\u00edsar.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">. . .&nbsp;<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00deegar vi\u00f0 hugsum um Brynd\u00edsi er \u00fea\u00f0 fyrsta sem okkur dettur \u00ed hug hva\u00f0 h\u00fan var hress, skemmtileg, brosmild og g\u00f3\u00f0 manneskja en a\u00f0allega hva\u00f0 h\u00fan var \u00f3tr\u00falega fyndin.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">. . .<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Brynd\u00eds var mj\u00f6g \u00e1str\u00ed\u00f0ufull, \u00feegar h\u00fan fann s\u00e9r eitthva\u00f0 sem h\u00fan elska\u00f0i \u00fe\u00e1 ELSKA\u00d0I h\u00fan \u00fea\u00f0. [&#8230;] H\u00fan setti alltaf alla a\u00f0ra \u00ed fyrsta s\u00e6ti og var alltaf til sta\u00f0ar fyrir okkur. H\u00fan var \u00f3tr\u00falega traust og g\u00f3\u00f0 vinkona og h\u00fan l\u00edfga\u00f0i alltaf upp \u00e1 daginn me\u00f0 fallega brosinu s\u00ednu og s\u00e6tu sp\u00e9koppunum s\u00ednum.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">. . .<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00deetta hr\u00e6\u00f0ilega atvik sem \u00e1tti s\u00e9r sta\u00f0 hefur haft \u00e1hrif \u00e1 alla. Brynd\u00eds er hetja og mun bjarga m\u00f6rgum mannsl\u00edfum \u00ed framt\u00ed\u00f0inni. Vi\u00f0 \u00feurfum \u00f6ll a\u00f0 passa upp \u00e1 a\u00f0 dau\u00f0i Brynd\u00edsar ver\u00f0i til \u00feess a\u00f0 \u00fea\u00f0 ver\u00f0i gert \u00e1tak \u00ed m\u00e1lefnum barna og unglinga til \u00feess a\u00f0 eitthva\u00f0 \u00feessu l\u00edkt gerist aldrei aftur. Verum g\u00f3\u00f0 hvert vi\u00f0 anna\u00f0 og hj\u00e1lpumst a\u00f0 a\u00f0 gera heiminn a\u00f0 sta\u00f0 sem leyfir \u00feessu ekki a\u00f0 gerast.&nbsp;<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00deessi t\u00edmi sem vi\u00f0 h\u00f6f\u00f0um elsku Brynd\u00edsi hj\u00e1 okkur var \u00f3metanlega d\u00fdrm\u00e6tur og vi\u00f0 munum aldrei gleyma henni.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">. . .<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00dea\u00f0 hefur ekki sek\u00fanda li\u00f0i\u00f0 \u00fear sem vi\u00f0 hugsum ekki til \u00fe\u00edn en \u00fe\u00f3tt \u00fe\u00fa s\u00e9rt farin munum vi\u00f0 aldrei gleyma \u00fe\u00e9r og \u00fe\u00fa munt alltaf lifa \u00ed hjarta okkar. Or\u00f0 geta ekki l\u00fdst hversu miki\u00f0 \u00fe\u00edn ver\u00f0ur sakna\u00f0.&nbsp; Gu\u00f0 mun taka vel \u00e1 m\u00f3ti \u00fe\u00e9r uppi \u00ed himnar\u00edki. Hv\u00edldu \u00ed fri\u00f0i elsku Brynd\u00eds.\u201c<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">K\u00e6rar \u00feakkir til ykkar, k\u00e6ru vinkonur Brynd\u00edsar Kl\u00f6ru.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">N\u00fdlega hlusta\u00f0i \u00e9g \u00e1 breskan ge\u00f0l\u00e6kni, sem jafnframt er mennta\u00f0ur \u00ed b\u00f3kmenntafr\u00e6\u00f0i, heimspeki og s\u00e9rfr\u00e6\u00f0ingur \u00ed taugakerfi manna, tala um tengsl okkar \u00ed l\u00edfinu. Hann tala\u00f0i um \u00ferj\u00fa svi\u00f0 sem skipta m\u00e1li fyrir b\u00e6\u00f0i andlega heilsu okkar og l\u00edkamlega. Inntaki\u00f0 \u00ed tj\u00e1ningu hans um tengslin m\u00e1 or\u00f0a svo:<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00cd fyrsta lagi, \u00feurfum vi\u00f0 \u00f6ll a\u00f0 vera \u00ed g\u00f3\u00f0u sambandi vi\u00f0 okkur sj\u00e1lf og anna\u00f0 f\u00f3lk \u00fe.e.a.s. vi\u00f0 samf\u00e9lagi\u00f0, hi\u00f0 mannlega.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00cd \u00f6\u00f0ru lagi, \u00feurfum vi\u00f0 a\u00f0 finna til tengsla vi\u00f0 n\u00e1tt\u00faruna og fegur\u00f0 hennar.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Og \u00ed \u00feri\u00f0ja lagi, \u00feurfum vi\u00f0 a\u00f0 r\u00e6kta samband okkar vi\u00f0 hi\u00f0 \u00e6\u00f0sta, hi\u00f0 heilaga, vi\u00f0 Gu\u00f0 sem er upphaf alls sem er.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Gu\u00f0 ver\u00f0ur hvorki sanna\u00f0ur n\u00e9 afsanna\u00f0ur. Til \u00feess duga engin v\u00edsindi, enda er hann st\u00e6rri og meiri en allt og sprengir huga og skynjun allra manna. Tr\u00faa\u00f0ur og tr\u00falaus ver\u00f0a \u00fev\u00ed hvor um sig a\u00f0 lifa \u00ed <em>sinni<\/em> <em>tr\u00fa<\/em>. Vi\u00f0 \u00fer\u00edfumst ekki \u00e1n leyndard\u00f3ma, \u00e1n svi\u00f0a sem ver\u00f0a aldrei skilin til botns, enda yr\u00f0i l\u00edfi\u00f0 \u00f3b\u00e6rilegt ef vi\u00f0 vissum allt. Heimspekingurinn Gottlieb Lessing sag\u00f0i a\u00f0 <em>leitin<\/em> a\u00f0 sannleikanum v\u00e6ri d\u00fdrm\u00e6tari en a\u00f0 <em>eignast<\/em> hann.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Enginn einstaklingur hefur haft meiri \u00e1hrif \u00e1 heiminn en Kristur. \u00d6ll \u00feau gildi sem vi\u00f0 Vesturlandab\u00faar h\u00f6fum \u00edhuga\u00f0 og r\u00e6kta\u00f0 og nota\u00f0 til a\u00f0 leggja grunn a\u00f0 bestu \u00fej\u00f3\u00f0f\u00e9l\u00f6gum \u00ed heimi, eru til okkar komin \u00far gy\u00f0ingd\u00f3mi og kristni, annarsvegar, og gr\u00edskri heimspeki hins vegar.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Allt sem vi\u00f0 viljum standa v\u00f6r\u00f0 um er \u00ed raun komi\u00f0 \u00far Hugsanaflj\u00f3tinu, svonefnda.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">[Grein h\u00f6fundar fr\u00e1 2019 um Hugsanaflj\u00f3ti\u00f0 og fleira: http:\/\/localhost:8081\/2019\/01\/07\/kirkja-og-kristni-i-olgusjo\/]<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Vi\u00f0 h\u00f6fum l\u00e6rt a\u00f0 elska n\u00e1ungann og veita honum r\u00e9ttindi og \u00fear me\u00f0 okkur sj\u00e1lfum me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 s\u00e6kja \u00ed Fjallr\u00e6\u00f0u Krists og a\u00f0ra tj\u00e1ningu hans.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Elskan kemur ekki af sj\u00e1lfu s\u00e9r. H\u00fan er nefnilega \u00ed grunni s\u00ednum <em>\u00e1kv\u00f6r\u00f0un<\/em> en ekki tilfinning.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00deess vegna sag\u00f0i Jes\u00fas:<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Elska <em>skaltu<\/em> n\u00e1ungann eins og sj\u00e1lfa\/n \u00feig. Hann sag\u00f0i ekki:<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Elska\u00f0u n\u00e1ungann \u00feegar \u00fe\u00fa ert \u00ed stu\u00f0i, \u00feegar \u00fe\u00e9r l\u00ed\u00f0ur vel, \u00feegar \u00fe\u00fa ert samm\u00e1la honum!<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Elska Jes\u00fa, er alltaf <em>frumkv\u00e6\u00f0<\/em>, <em>pr\u00f3akt\u00edf<\/em>, eins og \u00fea\u00f0 heitir \u00e1 erlendum m\u00e1lum, <em>pr\u00f3akt\u00edf<\/em> en ekki <em>reakt\u00edf<\/em>. \u00deetta kemur sk\u00fdrt fram \u00ed Gullnu reglunni:<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">&#8220;Allt sem \u00fe\u00e9r vilji\u00f0 a\u00f0 a\u00f0rir menn geri y\u00f0ur, \u00fea\u00f0 skulu\u00f0 \u00fe\u00e9r og \u00feeim gera. \u00dev\u00ed a\u00f0 \u00feetta er l\u00f6gm\u00e1li\u00f0 og sp\u00e1mennirnir. (Mt 7.12).<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hva\u00f0 getum vi\u00f0 gert?<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Dau\u00f0i Brynd\u00edsar Kl\u00f6ru hefur vaki\u00f0 \u00fej\u00f3\u00f0ina til vitundar um a\u00f0 n\u00fa \u00feurfi a\u00f0 taka til hendinni og vinna gegn ofbeldi. Vi\u00f0 skulum vona a\u00f0 s\u00fa bylgja vari sem lengst.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">N\u00fa \u00e6tla \u00e9g a\u00f0 \u00edmynda m\u00e9r fur\u00f0ulegar a\u00f0st\u00e6\u00f0ur. Ef \u00ed borg e\u00f0a b\u00e6 fyndist vatnslei\u00f0sla me\u00f0 eitru\u00f0u vatni, \u00fe\u00e1 mundu yfirv\u00f6ld, \u00e1n nokkurs vafa, skr\u00fafa fyrir vatni\u00f0 tafarlaust. Og \u00fev\u00ed spyr \u00e9g: Hva\u00f0 \u00e6tla yfirv\u00f6ld a\u00f0 gera \u00ed sambandi vi\u00f0 \u00fea\u00f0 fl\u00f3\u00f0 ranghugmynda og h\u00e6ttulegs \u00e1r\u00f3\u00f0urs \u00ed sumum samf\u00e9lagsmi\u00f0lum, sem smj\u00faga inn \u00ed hugarheim f\u00f3lks sem eitur er veldur ska\u00f0a og \u00ed sumum tilfellum algj\u00f6rum ranghugmyndum? Og svo eru f\u00e9lagslegu vandam\u00e1lin, sem eru af \u00f3l\u00edkum toga og lama einstaklinga og b\u00e6kla hug og s\u00e1l. Vi\u00f0 getum ekki haldi\u00f0 \u00e1fram okkar taumlausa dansi \u00ed kringum drasl og h\u00e9g\u00f3ma. S\u00f6nn hamingja ver\u00f0ur aldrei grundv\u00f6llu\u00f0 nema \u00e1 hinu andlega svi\u00f0i.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Vi\u00f0 h\u00f6fum gla\u00f0st yfir \u00fev\u00ed um langa hr\u00ed\u00f0 a\u00f0 vera vopnlaus \u00fej\u00f3\u00f0, en n\u00fa er sumir unglingar og jafnvel eldri einstaklingar, farnir a\u00f0 vopnast hver gegn \u00f6\u00f0rum!<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">L\u00edtil st\u00falka \u00ed Amer\u00edku skrifa\u00f0i j\u00f3lasveininum eitt sinn br\u00e9f og sag\u00f0i:<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><em>K\u00e6ri j\u00f3lasveinn.<\/em><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><em>\u00c9g er me\u00f0 st\u00f3rkostlega hugmynd.<\/em><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><em>\u00deegar \u00fe\u00fa heims\u00e6kir \u00f6ll h\u00fasin \u00ed b\u00e6num um j\u00f3lin, g\u00e6tir \u00fe\u00fa teki\u00f0 allar byssurnar sem eru \u00fear og sett \u00ed pokann \u00feinn og fali\u00f0 \u00fe\u00e6r \u00e1 Nor\u00f0urp\u00f3lnum, \u00fev\u00ed \u00fe\u00e1 getur enginn drepi\u00f0 annan \u00ed heiminum.<\/em><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><em>\u00deakka \u00fe\u00e9r fyrir.<\/em><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">J\u00e1, lausnir barna eru oft \u00fe\u00e6r allra bestu \u00fev\u00ed b\u00f6rn reynast oft d\u00fdpstu heimspekingar veraldar.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hvernig v\u00e6ri a\u00f0 gera \u00e1tak og f\u00e1 unga f\u00f3lki\u00f0 til a\u00f0 skila vopnum s\u00ednum, ekki til a\u00f0 geyma \u00feau \u00e1 Nor\u00f0urp\u00f3lnum, heldur skila \u00feeim \u00ed hendur l\u00f6greglunnar til f\u00f6rgunar?<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00dej\u00f3\u00f0in \u00fearfnast vitundarvakningar \u00e1 m\u00f6rgum svi\u00f0um!<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Kirkjan hefur veri\u00f0 me\u00f0 f\u00f3lki um aldir \u00e1 stundum gle\u00f0i og sorgar.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Kirkjan \u00fej\u00f3nar \u00f6llum og spyr ekki um st\u00e9tt e\u00f0a st\u00f6\u00f0u \u00feegar \u00fe\u00fa leitar til hennar. H\u00fan m\u00e6tir f\u00f3lki \u00e1n skilyr\u00f0a.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Sk\u00edrnin hennar Brynd\u00edsar Kl\u00f6ru skiptir m\u00e1li. H\u00fan var v\u00edg\u00f0 lj\u00f3sinu, k\u00f6llu\u00f0 til a\u00f0 bera \u00fea\u00f0 \u00fat me\u00f0al manna og h\u00fan var v\u00edg\u00f0 himninum og eil\u00edf\u00f0inni. Gu\u00f0 er ekki bundinn af sk\u00edrninni, en hann hefur kalla\u00f0 okkur til a\u00f0 sk\u00edra f\u00f3lk vegna s\u00e1lg\u00e6slunnar sem \u00ed henni er f\u00f3lgin \u00e1 l\u00edfsveginum.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Og n\u00fa er jar\u00f0neskt l\u00edf Brynd\u00edsar Kl\u00f6ru \u00e1 enda runni\u00f0, svo stutt, en svo fagurt og gefandi. H\u00fan mun lifa \u00ed hj\u00f6rtum okkar og aldrei gleymast. \u00d6ll eigum vi\u00f0 minningar um horfna \u00e1stvini sem lifa me\u00f0 okkur \u00ed hug og hjarta.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Gu\u00f0 hefur \u00feekkt okkur fr\u00e1 \u00fev\u00ed \u00e1\u00f0ur en heimurinn var\u00f0 til. \u00de\u00e1 vissi hann af \u00feeim m\u00f6guleika a\u00f0 vi\u00f0, hvert og eitt, yr\u00f0um til \u00ed heimi t\u00edmans, fyrir tilstu\u00f0lan stefnum\u00f3ts eggs og frumu. Vi\u00f0 duttum \u00ed lukkupottinn og <em>ur\u00f0um til<\/em> og <em>erum til!<\/em><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Nj\u00f3tum \u00feess me\u00f0an dagur er og l\u00e1tum gott af okkur lei\u00f0a. Gerum heiminn betri og n\u00e1um aftur vopnum okkar \u00ed bar\u00e1ttunni vi\u00f0 hi\u00f0 illa. \u00dear notum vi\u00f0 ekki hn\u00edf heldur l\u00edf &#8211; \u00ed k\u00e6rleika, miskunn, fyrirgefningu og umbur\u00f0arlyndi.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Brynd\u00eds Klara h\u00e6ttir aldrei a\u00f0 vera til, enda \u00fe\u00f3tt h\u00fan s\u00e9 horfin af \u00feessum heimi, \u00fev\u00ed h\u00fan var og er barn Gu\u00f0s og borgari himinsins, me\u00f0 vegabr\u00e9f sk\u00edrnar og fermingar \u00ed s\u00ednu andlega hjarta, sem ei laska\u00f0ist \u00fer\u00e1tt fyrir allt. Gu\u00f0 geymir hana og elskar eins og hann hefur gert fr\u00e1 \u00f6r\u00f3fi alda og mun gera um alla eil\u00edf\u00f0.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Vilt \u00fe\u00fa vera \u00ed sama h\u00f3pi og h\u00fan og allar \u00fe\u00e6r millj\u00f3nir sem treyst hafa \u00e1 Gu\u00f0 \u00ed l\u00edfi og dau\u00f0a? Vertu \u00fe\u00e1 \u00e1 bandi elskunnar. Vi\u00f0 skulum \u00f6ll sl\u00e1st \u00ed f\u00f6r me\u00f0 \u00e1stinni, me\u00f0 elskunni, me\u00f0 k\u00e6rleikanum, sem sigrar allt. \u00dea\u00f0 geta allar manneskjur gert, hverrar tr\u00faar sem \u00fe\u00e6r eru.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Gu\u00f0 geymi ykkur, elsku Birgir Karl og I\u00f0unn og Vigd\u00eds systir.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Sam\u00fa\u00f0 tug\u00fe\u00fasunda einstaklinga um allt land er me\u00f0 ykkur \u00ed dag og ver\u00f0ur \u00e1fram.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Gu\u00f0 styrki ykkur, afar og \u00f6mmur: Halld\u00f3ra og Eir\u00edkur, Ragnhei\u00f0ur Ingunn og \u00d3skar \u00de\u00f3r. Og ykkur \u00f6mmu- og afasystkini, fr\u00e6ndur og fr\u00e6nkur &#8211; okkur \u00f6ll!<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Og n\u00fa tala \u00e9g beint til \u00fe\u00edn, k\u00e6ri \u00e1heyrandi:<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Gu\u00f0 geymi \u00feig \u00e1 vegi elskunnar, Gu\u00f0 blessi l\u00edfsg\u00f6ngu \u00fe\u00edna, &#8220;\u00fatg\u00f6ngu \u00fe\u00edna og inng\u00f6ngu h\u00e9\u00f0an \u00ed fr\u00e1 og a\u00f0 eil\u00edfu&#8221; (Sl. 121)<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">H\u00f6ldum \u00f3trau\u00f0 \u00e1fram!<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Brynd\u00eds Klara var &#8220;lj\u00f3s heimsins&#8221; me\u00f0an h\u00fan lif\u00f0i og lj\u00f3si\u00f0 hennar lifir \u00e1fram me\u00f0 okkur \u00ed minningunum. Vi\u00f0 erum einnig lj\u00f3s heimsins skv. or\u00f0um Jes\u00fa Krists &#8211; lifum sem sl\u00edk!<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Myrkri\u00f0 fl\u00fdr lj\u00f3si\u00f0! Myrkri\u00f0 f\u00e6r aldrei sigra\u00f0 lj\u00f3si\u00f0!<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Lifum \u00ed lj\u00f3sinu!<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Amen.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"has-text-align-left wp-block-paragraph\"><\/p>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-image size-large\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"1461\" height=\"2000\" src=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2024\/09\/img_3225-1.jpg?w=748\" alt=\"\" class=\"wp-image-5248\" \/><\/figure>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-image size-large\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"1469\" height=\"2000\" src=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2024\/09\/img_3226-1.jpg?w=752\" alt=\"\" class=\"wp-image-5249\" \/><\/figure>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-image size-large\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"1472\" height=\"2000\" src=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2024\/09\/img_3227-1.jpg?w=754\" alt=\"\" class=\"wp-image-5250\" \/><\/figure>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-image size-large\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"1464\" height=\"2000\" src=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2024\/09\/img_3228-1.jpg?w=750\" alt=\"\" class=\"wp-image-5251\" \/><\/figure>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-image size-large\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"1466\" height=\"2000\" src=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2024\/09\/img_3229-1.jpg?w=751\" alt=\"\" class=\"wp-image-5255\" \/><\/figure>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-image size-large\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"1464\" height=\"2000\" src=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2024\/09\/img_3230-2-1.jpg?w=750\" alt=\"\" class=\"wp-image-5254\" \/><\/figure>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-image size-large\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"1470\" height=\"2000\" src=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2024\/09\/img_3231-1.jpg?w=753\" alt=\"\" class=\"wp-image-5253\" \/><\/figure>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Minningaror\u00f0 +Brynd\u00eds Klara 2007-2024 d\u00f3ttir I\u00f0unnar Eir\u00edksd\u00f3ttur og Birgis Karls \u00d3skarssonar Minningaror\u00f0in eru h\u00e9r fyrir ne\u00f0an, b\u00e6\u00f0i texti og hlj\u00f3\u00f0upptaka og s\u00e1lmaskr\u00e1in er svo ne\u00f0st.<\/p>\n","protected":false},"author":2,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_jetpack_newsletter_access":"","_jetpack_dont_email_post_to_subs":false,"_jetpack_newsletter_tier_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paywalled_content":false,"_jetpack_hide_featured_image":false,"_jetpack_featured_image_duplicate_dismissed":0,"_jetpack_feature_clip_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":"","jetpack_post_was_ever_published":false},"categories":[7],"tags":[162,166,243,246,291,333,518,537,557,548,584,602,640],"class_list":["post-5243","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-minningarord-eulogies","tag-eitur","tag-elska","tag-gud","tag-gudfraedi","tag-heimurinn","tag-jesus","tag-rettlaeti","tag-samfelagsmidlar","tag-sidferdi","tag-soknudur","tag-sorg","tag-stjornmal","tag-tru"],"jetpack_sharing_enabled":true,"jetpack_featured_media_url":"","_links":{"self":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/5243","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/users\/2"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcomments&post=5243"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/5243\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fmedia&parent=5243"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcategories&post=5243"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Ftags&post=5243"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}