{"id":4710,"date":"2024-04-11T16:10:50","date_gmt":"2024-04-11T16:10:50","guid":{"rendered":"http:\/\/ornbardur.com\/2024\/04\/11\/baldvin-johann-erlingsson\/"},"modified":"2024-04-11T16:10:50","modified_gmt":"2024-04-11T16:10:50","slug":"baldvin-johann-erlingsson","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/ornbardur.com\/?p=4710","title":{"rendered":"+Baldvin J\u00f3hann Erlingsson"},"content":{"rendered":"\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Texti r\u00e6\u00f0unna og hlj\u00f3\u00f0upptaka er h\u00e9r a\u00f0eins ne\u00f0ar.<\/p>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-image size-large\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"900\" height=\"1669\" src=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2024\/04\/img_3040-1.jpg?w=552\" alt=\"\" class=\"wp-image-4708\" \/><\/figure>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Minningaro\u00f0in er h\u00e6gt a\u00f0 lesa og hlusta \u00e1 h\u00e9r fyrir ne\u00f0an &#8211; og s\u00e1lmakr\u00e1in er allra ne\u00f0st.<\/p>\n\n\n\n<!--more-->\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-audio\"><audio controls src=\"https:\/\/pub-c849b6aaf98340c4bec7b480b0f7ffe9.r2.dev\/2024\/04\/baldvin-j.-erlingsson-1946-2024.m4a\"><\/audio><\/figure>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00d6rn B\u00e1r\u00f0ur J\u00f3nsson<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Minningaror\u00f0<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>+Baldvin J\u00f3hann Erlingsson<\/strong><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">1946-2024<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00datf\u00f6r fr\u00e1 K\u00f3pavogskirkju<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">fimmtudaginn 11. apr\u00edl kl. 13<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Jar\u00f0sett \u00ed K\u00f3pavogskirkjugar\u00f0i<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Sk\u00e1ldskapur er forsenda allra v\u00edsinda, h\u00e6fileikinn til a\u00f0 t\u00falka veruleikann, me\u00f0 listr\u00e6num h\u00e6tti. Sk\u00e1ldin ritu\u00f0u for\u00f0um og rita enn. Svo segir \u00e1 einum sta\u00f0: \u201cSleipnir var \u00e1ttf\u00e6ttur hestur \u00d3\u00f0ins \u00ed norr\u00e6nni go\u00f0afr\u00e6\u00f0i. Sleipnir f\u00f3r um \u00e1 skei\u00f0i og er sag\u00f0ur hafa mynda\u00f0 \u00c1sbyrgi, en \u00fea\u00f0 er forma\u00f0 eins og h\u00f3fur.\u201d<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c1sbyrgi er me\u00f0al allra fegurstu sta\u00f0a landsins. \u00cd \u00c1sbyrgi voru r\u00e6tur Baldvins J\u00f3hanns og \u00fear \u00e1tti hann g\u00f3\u00f0a bernsku.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hann f\u00e6ddist 9. september 1946 \u00e1 H\u00fasav\u00edk og l\u00e9st laugardaginn 6. apr\u00edl 2024 \u00e1 Hjartadeild Landsp\u00edtalans.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Foreldrar hans voru Sigr\u00fan Baldvinsd\u00f3ttir, h\u00fasfr\u00fa og Erlingur J\u00f3hannsson, b\u00f3ndi og sk\u00f3garv\u00f6r\u00f0ur \u00ed \u00c1sbyrgi. H\u00fan var \u00far Kinninni en hann fr\u00e1 Arnarnesi \u00ed Kelduhverfi, en lengst af bjuggu \u00feau \u00ed \u00c1sbyrgi, stundu\u00f0u \u00fear b\u00faskap og s\u00ed\u00f0ar sk\u00f3garv\u00f6rslu.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Systur Baldvins eru: Sigurveig, sem l\u00e9st 2015, Hulda og Krist\u00edn.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Eftirlifandi eiginkona Baldvins er Gu\u00f0r\u00fan Helga J\u00f3nsd\u00f3ttir.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Synir \u00feeirra eru tveir:<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">1) Bj\u00f6rn, samb\u00fdliskona Marianne Juul. B\u00f6rn Bj\u00f6rns me\u00f0 Hr\u00f6nn Gu\u00f0j\u00f3nsd\u00f3ttur eru Gu\u00f0j\u00f3n Birkir og Dagn\u00fd.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">2) J\u00f3n Halld\u00f3r, eiginkona Stella Thors. B\u00f6rn \u00feeirra: Baldvin Sm\u00e1ri og Anita. B\u00f6rn J\u00f3ns me\u00f0 Anne D. Carstens eru Andrea Rosenberg og Gu\u00f0r\u00fan Helga. B\u00f6rn me\u00f0 Sigr\u00ed\u00f0i J\u00f3h\u00f6nnu Haraldsd\u00f3ttur eru Viktor \u00d6rn og \u00cdsak Logi.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Baldvin \u00f3lst upp \u00ed \u00c1sbyrgi til 16 \u00e1ra aldurs, en \u00fe\u00e1 fluttu foreldrar hans til Reykjav\u00edkur. Hann t\u00f3k gagnfr\u00e6\u00f0apr\u00f3f fr\u00e1 Vogask\u00f3la.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Baldvin starfa\u00f0i lengst af vi\u00f0 b\u00edlas\u00f6lu og var \u00ed \u00ferj\u00e1t\u00edu \u00e1r s\u00f6lustj\u00f3ri Honda-umbo\u00f0sins. Ekki gat hann seti\u00f0 au\u00f0um h\u00f6ndum \u00feegar \u00e1 eftirlaun var komi\u00f0 og eftir tvo m\u00e1nu\u00f0i r\u00e9\u00f0 hann sig sem vaktstj\u00f3ra hj\u00e1 Ol\u00eds \u00ed Hamraborg, K\u00f3pavogi, og var \u00fear \u00ed sj\u00f6 \u00e1r.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hann f\u00f3r um sem <em>Sleipnir<\/em>, en nafni\u00f0 merkir <em>\u00feann sem rennur hratt<\/em> e\u00f0a hleypur. Og nafni\u00f0 <em>Baldvin<\/em> merkir djarfur vinur og <em>J\u00f3hann<\/em> er j\u00fa komi\u00f0 af hebreska nafninu <em>Jochanan<\/em> sem merkir<em> Drottinn er n\u00e1\u00f0ugur<\/em>. G\u00f3\u00f0 n\u00f6fn \u00e1 g\u00f3\u00f0an mann.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">N\u00f6fn og hugt\u00f6k eru notu\u00f0 til a\u00f0 skilgrein fyrirbrig\u00f0i \u00ed tilverunni. Hva\u00f0 merkir nafni\u00f0 \u00feitt? Hva\u00f0 segir \u00fea\u00f0 um \u00feig?<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Okkur er gefi\u00f0 nafn og vi\u00f0 ger\u00f0 a\u00f0 pers\u00f3num \u00ed samt\u00ed\u00f0 og s\u00f6gu. Flest vorum vi\u00f0 sk\u00edr\u00f0 \u00ed bernsku og \u00fear me\u00f0 v\u00edg\u00f0 l\u00edfinu og eil\u00edf\u00f0inni. Okkur er hleypt af stokkunum eins og skipi og send \u00fat \u00e1 opi\u00f0 l\u00edfsins haf. Hva\u00f0 ver\u00f0um um okkur? Hva\u00f0a verkefni hlutum vi\u00f0 e\u00f0a munum hlj\u00f3ta \u00e1 l\u00edfslei\u00f0inni? \u00dear r\u00e6\u00f0ur aldur og atgervi miklu um sv\u00f6r.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Baldvin var h\u00e6fileikar\u00edkur ma\u00f0ur og sinnti verkefnum l\u00edfsins af brennandi \u00e1huga. Hann haf\u00f0i \u00fatgeislun \u00ed mannlegum samskiptum, naut \u00feess a\u00f0 hitta f\u00f3lk og spjalla vi\u00f0 \u00fea\u00f0. H\u00e6fileiki hans vi\u00f0 a\u00f0 skapa traust og g\u00f3\u00f0a stemmningu var v\u00ed\u00f0kunnur. Hvort sem \u00fea\u00f0 var \u00ed b\u00edlas\u00f6lunni Skeifunni e\u00f0a hj\u00e1 b\u00edlaumbo\u00f0inu Bernhard, l\u00e9k hann \u00e6t\u00ed\u00f0 \u00e1 als oddi.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Sj\u00e1i\u00f0 fyrir ykkur f\u00f3lk sem sko\u00f0ar b\u00edla. M\u00e9r eru karlar efst \u00ed huga sem vappa \u00ed kring um b\u00edlana, sparka l\u00e9tt \u00ed dekkin, opna hur\u00f0 og skott, k\u00edkja undir h\u00faddi\u00f0, setjast inn og m\u00e1ta sig vi\u00f0 st\u00fdri\u00f0. Standa upp. Taka annan hring, fara svo a\u00f0 sko\u00f0a n\u00e6sta b\u00edl og einn ti. Hva\u00f0 ey\u00f0ir hann miklu, er rafmagn \u00ed r\u00fa\u00f0unum? &#8211; og \u00fe\u00e1 hitta \u00feeir Baldvin, h\u00e1vaxinn og st\u00e6\u00f0ilegan. \u00dea\u00f0 er spjalla\u00f0 og spekulera\u00f0 og eftir korter er karlinn kominn \u00fat \u00e1 hla\u00f0 me\u00f0 lykla a\u00f0 n\u00fdjum b\u00edl! \u00deetta er ekki sk\u00e1ldsaga. \u00c9g upplif\u00f0i \u00feetta sj\u00e1lfur! Svo var hann \u201cb\u00edlam\u00e1lar\u00e1\u00f0herra\u201d fj\u00f6lskyldunnar og jafnvel \u00ed \u00e6ttinni allri! Eitt sinn var hann me\u00f0 trimmh\u00f3pnum s\u00ednum \u00ed mi\u00f0jum hl\u00ed\u00f0um V\u00edfilsfells. S\u00edmninn hringdi, Baldvin settist \u00e1 stein og seldi b\u00edl. Sonur hans rifjar upp er hann hj\u00f3la\u00f0i \u00ed Skeifuna til pabba til a\u00f0 hj\u00e1lpa til vi\u00f0 \u00ferif \u00e1 b\u00edlum og f\u00e9kk \u00ed laun a\u00f0 pr\u00f3fa b\u00edlana \u00e1 planinu \u00fe\u00f3tt pr\u00f3laus v\u00e6ri.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Eftirminnilegar eru fer\u00f0ir hans me\u00f0 b\u00f6rnunum \u00ed S\u00e6d\u00fdrasafni\u00f0 \u00ed Hafnarfir\u00f0i sem var og h\u00e9t. \u00dear voru lj\u00f3n og ekki \u00feurfti a\u00f0 g\u00e6ta barnanna en kannski hef\u00f0i veri\u00f0 r\u00e9tt a\u00f0 g\u00e6ta Baldvins, sem teyg\u00f0i k\u00fast inn \u00e1 milli rimlanna og reyndi a\u00f0 bursta tennurnar \u00ed lj\u00f3nunum, vi\u00f0 takmarka\u00f0a \u00e1n\u00e6gju lj\u00f3nanna.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Skemmtilegar minningar sem lifa \u00e1fram me\u00f0 ykkur.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Topparnir hj\u00e1 Bernhard l\u00e1gu yfir excelskj\u00f6lum og p\u00e6ldu \u00ed gr\u00f3\u00f0anum og komust a\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 n\u00fa \u00feyrfti a\u00f0 draga saman \u00ed mannahaldi og sendu Baldvini br\u00e9f. Hann t\u00f3k \u00fev\u00ed eins og hverju \u00f6\u00f0ru hundsbiti og sag\u00f0i vi\u00f0 Gu\u00f0r\u00fanu s\u00edna er hann kom heim me\u00f0 br\u00e9fi\u00f0: N\u00fa f\u00f6rum vi\u00f0 til s\u00f3larlanda! Og \u00feau f\u00f3ru til Port\u00fagals \u00ed h\u00e1lfan m\u00e1nu\u00f0. \u00deegar heim kom var hringt \u00ed Baldvin og honum sagt a\u00f0 r\u00edfa br\u00e9fi\u00f0 \u00fev\u00ed allt v\u00e6ri \u00ed vandr\u00e6\u00f0um \u00ed fyrirt\u00e6kinu, \u00fear vissi enginn neitt og menn st\u00e6\u00f0u \u00ed bi\u00f0r\u00f6\u00f0um me\u00f0 spurningar tengdar b\u00edlum. Baldvin var m\u00e6ttur \u00e1 g\u00f3lfi\u00f0 daginn eftir og allir fengu lausn sinna m\u00e1la. Vinnan var honum allt og eitt sinn sag\u00f0i hann vi\u00f0 Gu\u00f0r\u00fanu a\u00f0 hann yr\u00f0i eiginlega a\u00f0 deyja \u00e1 sunnudegi \u00fev\u00ed a\u00f0ra daga k\u00e6mist hann ekki \u00far vinnunni &#8211; og \u00fea\u00f0 muna\u00f0i litlu \u00fev\u00ed hann kvaddi \u00e1 fr\u00eddegi, d\u00f3 laugardaginn 6. apr\u00edl.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Baldvin var barng\u00f3\u00f0ur og barnab\u00f6rnin voru honum afar k\u00e6r. Og eins og \u00fei\u00f0 viti\u00f0 \u00fe\u00e1 vissi Baldvin a\u00f0 b\u00f6rn \u00feurfa a\u00f0 l\u00e6ra a\u00f0 standa sig, t.d. ganga heim \u00far sk\u00f3la og hafa svol\u00edti\u00f0 fyrir l\u00edfinu. \u00cd sl\u00edkum hversdagslegum og stundum lei\u00f0inlegum tilvikum getur veri\u00f0 gott &#8220;a\u00f0 hringja \u00ed vin&#8221; og hver er besti vinurinn til a\u00f0 taka a\u00f0 s\u00e9r heimkeyrslu fyrir \u00fereytt barnabarn? \u00dei\u00f0 viti\u00f0 svari\u00f0!<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hann \u00f3k ekki a\u00f0eins barnab\u00f6rnum heldur fyllti hann gjarnan b\u00edlinn af b\u00f6rnum \u00ed hverfinu &#8211; og svo heilsa\u00f0i hann b\u00f6rnum! \u00dea\u00f0 er g\u00f3\u00f0ur si\u00f0ur. Alltof f\u00e1ir gefa sig a\u00f0 b\u00f6rnum og kenna \u00feeim g\u00f3\u00f0a si\u00f0i.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00de\u00e1 var hann \u00feolinm\u00f3\u00f0ur og g\u00f3\u00f0 fyrirmynd. Tengdad\u00f3ttir hans sag\u00f0i vi\u00f0 mig a\u00f0 s\u00e9r li\u00f0i vel \u00ed fj\u00f6lskyldunni og fa\u00f0mlagi\u00f0 hans st\u00f3ra hef\u00f0i veri\u00f0 svo gott.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Baldvin vakna\u00f0i \u00e6t\u00ed\u00f0 snemma, \u00f3k str\u00e1kunum og b\u00f6rnum til t\u00f3mstundai\u00f0kuna m.a. margar fer\u00f0ir \u00ed Bl\u00e1fj\u00f6ll \u00e1 sk\u00ed\u00f0i. Hann ger\u00f0i margt me\u00f0 b\u00f6rnunum og \u00feau hj\u00f3nin. Fari\u00f0 var \u00ed margar \u00fatilegur me\u00f0 fellih\u00fdsi e\u00f0a annan b\u00fana\u00f0. Farnar voru kv\u00f6ldg\u00f6ngur og tala\u00f0 um n\u00e1tt\u00faruna. \u00c1sbyrgi og \u00cdsafj\u00f6r\u00f0ur voru mikilv\u00e6gir sta\u00f0ir en \u00e1 \u00feeim s\u00ed\u00f0arnefnda \u00feekkti amma Gu\u00f0r\u00fan Helga sko alla!<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Eitt sinn brotna\u00f0i Baldvin \u00e1 f\u00e6ti og var \u00ed gipsi um hr\u00ed\u00f0. Afastelpa hj\u00fakra\u00f0i honum og l\u00e9k s\u00e9r a\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 standa \u00e1 grj\u00f3th\u00f6r\u00f0u gipsinu og st\u00f3\u00f0 \u00ed \u00feeirri meiningu a\u00f0 \u00fea\u00f0 v\u00e6ri gervif\u00f3tur og afi hef\u00f0i t\u00fdnt f\u00e6tinum \u00ed \u00e1nni. H\u00fan breiddi yfir hann teppi en allar sl\u00edkar \u00e1brei\u00f0ur dug\u00f0u skammt yfir \u201clanga\u201d afa.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Gu\u00f0r\u00fan Helga heilla\u00f0ist af n\u00e1tt\u00farunni fyrir nor\u00f0an, Forv\u00f6\u00f0unum og \u00c1sbyrgi og upplif\u00f0i \u00fea\u00f0 allt me\u00f0 sterkum tilfinningum undir lei\u00f0s\u00f6gn Baldvins. \u00deau voru samr\u00fdmd hj\u00f3n og \u00e1ttu g\u00f3\u00f0a vini. H\u00fan talar um st\u00f3ra Lott\u00f3vinninginn \u00feeirra sem f\u00f3lst \u00ed \u00fev\u00ed a\u00f0 kynnast g\u00f3\u00f0um vinum \u00ed g\u00f6nguh\u00f3pnum sem \u00feau tilheyr\u00f0u \u00e1rum saman og f\u00f3ru me\u00f0 \u00ed g\u00f6ngufer\u00f0i \u00ferisvar sinnum \u00ed viku fyrstu \u00e1rin. H\u00f3purinn hittist s.l. laugardag og f\u00f3lk f\u00e9kk s\u00e9r \u00ed gogginn en f\u00e6\u00f0ingar\u00e1r me\u00f0lima dreifast fr\u00e1 1936-1959!<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Baldvin f\u00e9kk Covid eins og svo margir a\u00f0rir en hjarta\u00f0 hans var\u00f0 aldrei samt eftir \u00fe\u00e1 innr\u00e1s. Honum fannst erfitt a\u00f0 vera bundinn heima s\u00ed\u00f0ustu misserin og \u00fea\u00f0 reyndi \u00e1 \u00feau b\u00e6\u00f0i.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Og n\u00fa er hann fallinn, stofninn h\u00e1i og tignarlegi, str\u00e1kurinn \u00far \u00c1sbyrgi, sem var or\u00f0inn 197 sentimetrar vi\u00f0 fermingu og l\u00edklega me\u00f0 s\u00edna skj\u00e1i \u00ed augnh\u00e6\u00f0 vi\u00f0 prestinn, er hann kraup vi\u00f0 altari\u00f0 og j\u00e1ta\u00f0ist Kristi.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hverjum tilheyrum vi\u00f0? Hverju e\u00f0a hverjum erum vi\u00f0 helgu\u00f0 e\u00f0a viljum helga l\u00edf okkar? Flestir \u00cdslendingar eru helga\u00f0ir Jes\u00fa Kristi \u00ed heilagri sk\u00edrn me\u00f0 sigrandi t\u00e1kni krossins \u00e1 enni og brj\u00f3sti. Helgum l\u00edf okkar \u00fev\u00ed sem er \u00feess vir\u00f0i a\u00f0 tilheyra \u00ed l\u00edfi &#8211; og \u00ed dau\u00f0a!<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Baldvin kunni lj\u00f3\u00f0 og v\u00edsur og versi\u00f0 \u00far lj\u00f3\u00f0i Einars Benediktssonar, Sumarmorgunn \u00ed \u00c1sbyrgi var honum hjarta n\u00e6rri:<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c1sbyrgi, pr\u00fd\u00f0in vors pr\u00fa\u00f0a lands,<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">perlan vi\u00f0 straumanna festi,<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">frj\u00f3tt eins og \u00f3\u00f0al hins fyrsta manns,<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">fl\u00e9ttar h\u00e9r bl\u00f3min \u00ed hamranna krans.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Standbj\u00f6rgin kve\u00f0junni kasta \u00e1 gesti \u2013<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">kringd, eins og j\u00e1rn undan hesti.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">          Einar Benediktsson<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Baldvin f\u00f3r nor\u00f0ur \u00ed haust til a\u00f0 fylgja sveitunga til grafar. \u00de\u00e1 gat hann ekki lengur eki\u00f0 sj\u00e1lfur en sat sem far\u00feegi hj\u00e1 Gu\u00f0r\u00fanu. \u00deau \u00f3ku \u00far Kinninni og \u00ed \u00c1sbyrgi \u00e1 s\u00f3lbj\u00f6rtum degi, f\u00f3ru saman \u00ed g\u00f6ngut\u00far \u00ed rj\u00f3\u00f0ri\u00f0. \u00dea\u00f0 var logn og bj\u00f6rkin bifa\u00f0ist ekki, en hef\u00f0i veifa\u00f0 honum ef byr hef\u00f0i b\u00e6rt. Hann \u00feekkti hverja \u00fe\u00fafu \u00ed \u00feessu n\u00e1tt\u00faruundri sem \u00c1sbyrgi er. Hann mundi gamla dekki\u00f0 sem enn var \u00ed tj\u00f6rninni, hr\u00edslurnar og klettana, skeiflaga bergi\u00f0 sem h\u00e9lt utan um \u00feau sem fa\u00f0mur alm\u00e6ttisins.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Og n\u00fa er hann horfinn fr\u00e1 okkur. \u00deri\u00f0judaginn \u00ed s\u00ed\u00f0ustu viku var hann fluttur \u00e1 sj\u00fakrah\u00fas og sag\u00f0i \u00fe\u00e1: \u201c\u00c9g ver\u00f0 kominn heim eftir nokkra daga.\u201d<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Og \u00e1fram \u00far m\u00f6gnu\u00f0u lj\u00f3\u00f0i sk\u00e1ldsins um \u00c1sbyrgi:<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Tindrar \u00ed lundinum lj\u00f3ragler.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">L\u00fata sj\u00e1st smalar til berja. \u2013<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">H\u00f3ftungumarki\u00f0 \u00ed mi\u00f0ju er,<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">mannsauga rammara v\u00edgi ei s\u00e9r;<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">vildi h\u00e9r nokkur \u00ed heimi herja,<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">hef\u00f0um v\u00e9r nokku\u00f0 a\u00f0 verja?<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u2013 \u2013 N\u00e1tt\u00faran gr\u00edpur mig, himinhei\u00f0.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">H\u00e9r er sem l\u00fa\u00f0ur mig veki.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Horfi eg \u00e1 drenginn vi\u00f0 h\u00f6gginn mei\u00f0,<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">hitti mig sj\u00e1lfan \u00e1 barnanna lei\u00f0,<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00f6ll ver\u00f0ur vizkan a\u00f0 \u00e6skubreki,<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">einfeldnin gu\u00f0d\u00f3mleg speki.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00dea\u00f0, sem \u00e9g ann, ber n\u00fa opinn kn\u00f6r<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00fati, me\u00f0 vonum og kv\u00ed\u00f0a.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u2013 Leiftrar vi\u00f0 svipur af sigurf\u00f6r.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Syrgjandi, fagnandi rek eg m\u00edn kj\u00f6r.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Morgun og sumar og mann skal l\u00ed\u00f0a.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">M\u00f3\u00f0ir vor ein \u00e1 a\u00f0 b\u00ed\u00f0a.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Og lokaerindi\u00f0 um landi\u00f0 okkar fagra:<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Volduga fegur\u00f0, \u00f3, fe\u00f0raj\u00f6r\u00f0,<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">f\u00f6lleit, me\u00f0 sm\u00e1barn \u00e1 armi,<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">elski \u00feig sveinar hj\u00e1 hverri hj\u00f6r\u00f0,<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">helgist \u00fe\u00e9r menn vi\u00f0 hvern einasta fj\u00f6r\u00f0.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Frj\u00e1ls skaltu vefja vor bein a\u00f0 barmi,<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">brosa me\u00f0 s\u00f3l yfir hvarmi.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">J\u00e1, j\u00f6r\u00f0in vefur a\u00f0 lokum &#8220;vor bein a\u00f0 barmi&#8221; en andann geymir Gu\u00f0.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c1sbyrgi! Nafni\u00f0 er \u00far sk\u00e1ldskap fornmanna, \u00e1s og byrgi, gu\u00f0 og skj\u00f3l, gu\u00f0 og bj\u00f6rgun. H\u00f3ffari\u00f0 himneska sem fornmenn s\u00e1u fyrir s\u00e9r \u00e1 sama h\u00e1tt og sk\u00e1ldin for\u00f0um s\u00f6g\u00f0u &#8211; Surtur fer sunnan &#8211; \u00feegar v\u00edsa\u00f0 var til eldgosa.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Sk\u00e1ldskapur eru tiltekin a\u00f0fer\u00f0 til a\u00f0 t\u00falka veruleikann, segja s\u00f6gu, draga upp myndir og l\u00edkingar. N\u00fa eru \u00fea\u00f0 v\u00edsindamenn sem t\u00falka eldsumbrot og kristnin hefur kennt okkur a\u00f0 jar\u00f0eldar og n\u00e1tt\u00faruhamfarir s\u00e9u ekki af gu\u00f0s- e\u00f0a go\u00f0av\u00f6ldum. Kristin gu\u00f0fr\u00e6\u00f0i a\u00f0skilur Gu\u00f0 og sk\u00f6purnarverki\u00f0 eins og hinn spaki ma\u00f0ur sag\u00f0i \u00e1 \u00deingv\u00f6llum for\u00f0um \u00feegar til st\u00f3\u00f0 a\u00f0 taka kristni og fregnir b\u00e1rust um a\u00f0 elsgos v\u00e6ri hafi\u00f0 \u00ed grenndinni.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><em>\u201c\u00de\u00e1 kom ma\u00f0ur hlaupandi og sag\u00f0i, a\u00f0 jar\u00f0eldur var upp kominn \u00ed \u00d6lfusi og mundi hann hlaupa \u00e1 b\u00e6 \u00de\u00f3rodds go\u00f0a. \u00de\u00e1 t\u00f3ku hei\u00f0nir menn til or\u00f0s: \u201eEigi er undur \u00ed, a\u00f0 go\u00f0in rei\u00f0ist t\u00f6lum sl\u00edkum.\u201c \u00de\u00e1 m\u00e6lti Snorri go\u00f0i: \u201eUm hva\u00f0 reiddust go\u00f0in, \u00fe\u00e1 h\u00e9r brann hrauni\u00f0, er n\u00fa st\u00f6ndum v\u00e9r \u00e1?\u201c <\/em>(Kristni saga)<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Gu\u00f0 er yfir og allt um kring, en heimurinn er ekki Gu\u00f0, heldur afur\u00f0 hans. Og Gu\u00f0 sem er yfir og allt um kring, helga\u00f0i okkur s\u00e9r, \u00ed heilagri sk\u00edrn. Fr\u00e1 \u00feeirri stundu ur\u00f0um vi\u00f0 hans, hva\u00f0 sem l\u00ed\u00f0ur gengisskr\u00e1ningu okkar eigin tr\u00faar. Hann bregst engum &#8211; fellir aldrei gengi sitt &#8211; sv\u00edkur aldrei!<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Kve\u00f0jur og \u00feakkir:<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">-Halld\u00f3ra systir Gu\u00f0r\u00fanar Helgu sendir kve\u00f0jur me\u00f0 \u00feessum or\u00f0um: \u201cBaldvin var hl\u00fdr og g\u00f3\u00f0ur ma\u00f0ur og einstaklega grei\u00f0vikinn \u00feegar \u00e1 reyndi. Vi\u00f0 minnumst hans me\u00f0 hl\u00fdju \u00ed hjarta og sendum Gu\u00f0r\u00fanu Helgu, b\u00f6rnum og barnab\u00f6rnum \u00feeirra innilegustu kve\u00f0jur h\u00e9\u00f0an af J\u00f3tlandi.\u201d<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">-Sigurbj\u00f6rg fr\u00e6nka sendir \u00e1stvinum sam\u00fa\u00f0arkve\u00f0jur s\u00ednar og systkinanna \u00e1 \u00d3feigsst\u00f6\u00f0um sem \u00feakka lj\u00fafa vin\u00e1ttu vi\u00f0 \u201clanga fr\u00e6nda\u201d.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">-Fri\u00f0rika, fr\u00e6nka og Stef\u00e1n \u00e1 H\u00fasav\u00edk senda innilegar kve\u00f0jur til fj\u00f6lskyldunnar og minnast einnig \u201clanga fr\u00e6nda\u201d me\u00f0 gle\u00f0i \u00ed hjarta.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Og svo er vert a\u00f0 minnast \u00e1 \u00feakkl\u00e6ti Gu\u00f0r\u00fanar Helgu og fj\u00f6lskyldu, sem d\u00e1samar samfylgdina \u00ed gegnum \u00e1rin \u00f6ll &#8211; og \u00feakkar n\u00fa, \u00e1samt \u00e1stvinum s\u00ednu fyrir sam\u00fa\u00f0 ykkar allra, umhyggju og elskusemi og svo starfsf\u00f3lki Hjartadeildarinnar 14EG \u00e1 Landsp\u00edtalanum fyrir hj\u00fakrun og hl\u00fdju.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Margs er a\u00f0 minnast,<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">margt er h\u00e9r a\u00f0 \u00feakka.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Gu\u00f0i s\u00e9 lof fyrir li\u00f0na t\u00ed\u00f0.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Margs er a\u00f0 minnast,<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">margs er a\u00f0 sakna.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Gu\u00f0 \u00feerri tregat\u00e1rin str\u00ed\u00f0.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">(Valdimar Briem Sb. 372)<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u201c\u00c9g ver\u00f0 kominn heim eftir nokkra daga\u201d, sag\u00f0i hann og h\u00e9lt fast \u00ed l\u00edfi\u00f0. Hann vildi b\u00ed\u00f0a eftir a\u00f0 Bj\u00f6rn sonur hans n\u00e6\u00f0i heim fr\u00e1 \u00fatl\u00f6ndum. \u00deeir n\u00e1\u00f0u a\u00f0 hittast.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">En Baldvin komst ekki heim \u00ed K\u00f3pavoginn \u00fev\u00ed \u00f6nnur heimkynni bi\u00f0u hans og n\u00fa felum vi\u00f0 hann himni Gu\u00f0s sem hann var helga\u00f0ur \u00ed heilagri sk\u00edrn.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Okkar allra b\u00ed\u00f0a n\u00fd heimkynni, sem nafni hans, J\u00f3hannes, rita\u00f0i um \u00ed Opinberunarb\u00f3kinni. \u00dear segir hann m.a. um himins-borg:<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u201cOg borgin \u00fearf hvorki s\u00f3lar vi\u00f0 n\u00e9 tungls til a\u00f0 l\u00fdsa s\u00e9r \u00fev\u00ed a\u00f0 d\u00fdr\u00f0 Gu\u00f0s sk\u00edn \u00e1 hana og lambi\u00f0 er lampi hennar. 24 Og \u00fej\u00f3\u00f0irnar munu ganga \u00ed lj\u00f3si hennar og konungar jar\u00f0arinnar f\u00e6ra henni au\u00f0\u00e6fi s\u00edn. 25 Hli\u00f0um hennar ver\u00f0ur ekki loka\u00f0 um daga \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fear mun aldrei koma n\u00f3tt.\u201d (Op. J\u00f3h. 22.23-25)<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">N\u00fa er himinninn hans eil\u00edfa \u00c1sbyrgi, byrgi Gu\u00f0s, borgin eil\u00edfa, \u00fear sem gle\u00f0in r\u00edkir og s\u00f3lin gengur aldrei til vi\u00f0ar.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Gu\u00f0 geymi g\u00f3\u00f0ar minningar um v\u00e6nan dreng og Gu\u00f0 blessi \u00feig, Gu\u00f0r\u00fan Helga k\u00e6r, syni \u00fe\u00edna, tengdad\u00e6tur og barnab\u00f6rn, systkini ykkar Baldvins og \u00e1stvini alla, \u00e1 l\u00edfsins vegi, \u00fear til vi\u00f0 s\u00f6fnumst \u00f6ll \u00ed himins-byrgi.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Amen<\/p>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-image size-large\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"1690\" height=\"1572\" src=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2024\/04\/screenshot-2024-04-11-at-16.40.28-1.png?w=1024\" alt=\"\" class=\"wp-image-4714\" \/><\/figure>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-image size-large\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"1698\" height=\"1572\" src=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2024\/04\/screenshot-2024-04-11-at-16.40.01-1.png?w=1024\" alt=\"\" class=\"wp-image-4715\" \/><\/figure>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Texti r\u00e6\u00f0unna og hlj\u00f3\u00f0upptaka er h\u00e9r a\u00f0eins ne\u00f0ar. Minningaro\u00f0in er h\u00e6gt a\u00f0 lesa og hlusta \u00e1 h\u00e9r fyrir ne\u00f0an &#8211; og s\u00e1lmakr\u00e1in er allra ne\u00f0st.<\/p>\n","protected":false},"author":2,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_jetpack_newsletter_access":"","_jetpack_dont_email_post_to_subs":false,"_jetpack_newsletter_tier_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paywalled_content":false,"_jetpack_hide_featured_image":false,"_jetpack_featured_image_duplicate_dismissed":0,"_jetpack_feature_clip_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":"","jetpack_post_was_ever_published":false},"categories":[7],"tags":[166,243,246,291,333,409,548,584,640],"class_list":["post-4710","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-minningarord-eulogies","tag-elska","tag-gud","tag-gudfraedi","tag-heimurinn","tag-jesus","tag-ljosid","tag-soknudur","tag-sorg","tag-tru"],"jetpack_sharing_enabled":true,"jetpack_featured_media_url":"","_links":{"self":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/4710","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/users\/2"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcomments&post=4710"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/4710\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fmedia&parent=4710"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcategories&post=4710"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Ftags&post=4710"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}