{"id":4662,"date":"2024-03-26T23:39:08","date_gmt":"2024-03-26T23:39:08","guid":{"rendered":"http:\/\/ornbardur.com\/2024\/03\/26\/sigurdur-thoroddsen-1940-2024\/"},"modified":"2024-03-26T23:39:08","modified_gmt":"2024-03-26T23:39:08","slug":"sigurdur-thoroddsen-1940-2024","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/ornbardur.com\/?p=4662","title":{"rendered":"+Sigur\u00f0ur Thoroddsen 1940-2024"},"content":{"rendered":"\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Minningaror\u00f0 sem h\u00e6gt er a\u00f0 lesa og hlusta \u00e1 h\u00e9r fyrir ne\u00f0an.<\/p>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-image size-large\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"816\" height=\"1637\" src=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2024\/03\/screenshot-2024-03-26-at-23.33.07.png?w=510\" alt=\"\" class=\"wp-image-4659\" \/><\/figure>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00d6rn B\u00e1r\u00f0ur J\u00f3nsson<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Minningaror\u00f0<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>+Sigur\u00f0ur H\u00e1kon Thoroddsen<\/strong><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">arkitekt<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">1940-2024<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00datf\u00f6r \u00ed kyrr\u00feey fr\u00e1 Kapellunni \u00ed Fossvogi<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00feri\u00f0judaginn \u00ed kyrruviku<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">26. mars 2024 kl. 13<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">S\u00e1lmaskr\u00e1in er aftast \u00ed f\u00e6rslunni.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Lei\u00f0r\u00e9tting!<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Ein sta\u00f0reyndarvilla sl\u00e6ddist inn \u00ed r\u00e6\u00f0una \u00fer\u00e1tt fyrir yfirlestur kunnugra um \u00e6vi forfe\u00f0ra hins l\u00e1tna og m\u00e6\u00f0ra og h\u00fan er s\u00fa a\u00f0 J\u00f3n Thoroddsen var ekki prestur heldur s\u00fdsluma\u00f0ur \u00e1 s\u00ednum t\u00edma. \u00deetta var lei\u00f0r\u00e9tt \u00ed texta en villan er eftir sem \u00e1\u00f0ur \u00e1 hl\u00f3\u00f0uppt\u00f6kunni og er be\u00f0ist velvir\u00f0ingar \u00e1 \u00fev\u00ed.<\/p>\n\n\n\n<!--more-->\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-audio\"><audio controls src=\"https:\/\/pub-c849b6aaf98340c4bec7b480b0f7ffe9.r2.dev\/2024\/03\/sigurdur-thoroddsen-1940-2024.m4a\"><\/audio><\/figure>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Enski m\u00e1larinn, William Blake (1757-1827), ger\u00f0i fr\u00e6ga mynd \u00fear sem Gu\u00f0 er \u00ed mannsl\u00edki og l\u00edtur ni\u00f0ur me\u00f0 hringfara \u00ed h\u00f6nd og m\u00e6lir ver\u00f6ldina. \u00deetta er mynd af arkitekti alheimsins.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Eftir a\u00f0 heimurinn var ger\u00f0ur \u00far engu, eins og kristin tr\u00fa hefur \u00e6t\u00ed\u00f0 haldi\u00f0 fram og v\u00edsindin hafa n\u00fa vi\u00f0urkennt me\u00f0 kenningunni um Miklahvell, getum vi\u00f0 a\u00f0eins skapa\u00f0 \u00far efni, sem okkur er fengi\u00f0 \u00ed hendur \u00ed sk\u00f6punarverkinu sj\u00e1lfu. Og allt sem vi\u00f0 sk\u00f6pum hefst me\u00f0 hugsun, hugmynd, sem s\u00ed\u00f0ar ver\u00f0ur a\u00f0 veruleika. H\u00fas sprettur ekki upp \u00far j\u00f6r\u00f0inni af sj\u00e1lfu s\u00e9r. \u00dea\u00f0 ver\u00f0ur fyrst til \u00ed huga h\u00f6nnu\u00f0ar, arkitekts, sem breg\u00f0ur s\u00e9r \u00ed hlutverk skapara \u00e1samt i\u00f0na\u00f0ar- og t\u00e6knim\u00f6nnum.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Vi\u00f0 heyr\u00f0um \u00e1\u00f0an vi\u00f0 kistulagninguna stef \u00far verkinu Finlandia eftir S\u00edbel\u00edus. \u00deessi undurfagri hluti verksins er kalla\u00f0ur \u201cs\u00e1lmurinn\u201d \u00ed Finlandiu og \u00ed texta hans er \u00fea\u00f0 lj\u00f3si\u00f0 sem er von hinnar finnsku \u00fej\u00f3\u00f0ar, krafturinn sem breytir n\u00f3tt \u00ed dag.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00cdslenska sk\u00e1ldi\u00f0 T\u00f3mas Gu\u00f0mundsson, orti s\u00e1lm vi\u00f0 umr\u00e6tt t\u00f3nverk \u00fear sem upphafi\u00f0 hlj\u00f3\u00f0ar svo:<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">V\u00e9r treystum \u00fev\u00ed sem h\u00f6nd Gu\u00f0s hefur skr\u00e1\u00f0:<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00cd hverju fr\u00e6i&#8217; er var \u00ed k\u00e6rleik s\u00e1\u00f0<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">b\u00fdr fyrirheit um himnar\u00edki&#8217; \u00e1 j\u00f6r\u00f0u [. . .]<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Fagurlega ort. Mikill og st\u00f3r sannleikur, eins og meitla\u00f0ur \u00ed stein me\u00f0 \u00f6rf\u00e1um or\u00f0um. H\u00e9r er hugsunin a\u00f0 \u00ed hverju fr\u00e6i megi finna elsku og einstaka h\u00f6nnun. \u00deannig er \u00fea\u00f0 me\u00f0 g\u00f3\u00f0a arkitekta, i\u00f0na\u00f0armenn, sk\u00e1ld, listamenn og fleiri, sem leggja allt sitt \u00ed eigin sk\u00f6pun.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Af einu litlu fr\u00e6i vex l\u00edti\u00f0 bl\u00f3m, risafura og heilir sk\u00f3gar. \u00cd fr\u00e6inu b\u00fdr forrit, sem \u00e9g hef ekki hugmynd um, hve m\u00f6rg megab\u00e6ti \u00fearf til a\u00f0 skr\u00e1 rafr\u00e6nt.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Og hva\u00f0 var skr\u00e1\u00f0 \u00ed erf\u00f0av\u00edsa okkar, hvers og eins, vi\u00f0 getna\u00f0? Hva\u00f0 var okkur \u00e6tla\u00f0 a\u00f0 ver\u00f0a? Hva\u00f0 <strong>er<\/strong> okkur \u00e6tla\u00f0? Og hva\u00f0 tekur vi\u00f0 \u00feegar \u00feessu l\u00edfi l\u00fdkur?<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00cd or\u00f0um sk\u00e1ldsins \u201cb\u00fdr fyrirheit um himnar\u00edki\u00b4 \u00e1 j\u00f6r\u00f0\u201d \u00ed hverju fr\u00e6i, hverri frumu, hverri manneskju.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">En l\u00edfi\u00f0 er fl\u00f3knara, \u00fev\u00ed ma\u00f0urinn, sem Gu\u00f0 skapa\u00f0i, hefur viki\u00f0 af lei\u00f0 og \u00feess vegna eru str\u00ed\u00f0 og hry\u00f0juverk framin \u00ed \u00feessum heimi. \u00dear eru syndugir menn a\u00f0 baki og vi\u00f0 sj\u00e1lf erum sama e\u00f0lis og tilheyrum einni og s\u00f6mu \u00e6tt. \u00dea\u00f0 er dimm sta\u00f0reynd, en minnir um lei\u00f0 \u00e1 a\u00f0 vi\u00f0 h\u00f6fum val \u00e1 hverju andartaki, vi\u00f0 hverja \u00e1kv\u00f6r\u00f0un, val um a\u00f0 vera samverkamenn Gu\u00f0s e\u00f0a andst\u00e6\u00f0ingar hins g\u00f3\u00f0a, fagra og fullkomna. Vi\u00f0 erum arkitektar eigin l\u00edfs, a\u00f0 \u00fev\u00ed marki sem l\u00edfi\u00f0 er \u00ed okkar eigin h\u00f6ndum.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">En svo rennur upp s\u00e1 dagur, a\u00f0 vi\u00f0 ver\u00f0um ekki lengur \u00ed \u00feeirri mynd, sem felst \u00ed \u00fev\u00ed a\u00f0 vera lifandi og hugsandi f\u00f3lk. Vi\u00f0 deyjum \u00f6ll \u00ed fyllingu t\u00edmans. Hva\u00f0 tekur \u00fe\u00e1 vi\u00f0? Um \u00fea\u00f0 hefur tr\u00fain \u00fdmislegt a\u00f0 segja, en skilgreiningu \u00e1 hugtakinu tr\u00fa, er \u00fe\u00f3 a\u00f0eins a\u00f0 finna \u00ed einu versi \u00ed Hinni helgu b\u00f3k. \u00cd N\u00fdja testamentinu er br\u00e9f sem \u00e6tla\u00f0 var Gy\u00f0ingum e\u00f0a Hebreum.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00dear segir:<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u201cTr\u00fain er fullvissa um \u00fea\u00f0 sem menn vona, sannf\u00e6ring um \u00fe\u00e1 hluti sem eigi er au\u00f0i\u00f0 a\u00f0 sj\u00e1.\u201d (Heb. 11.2)<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Vi\u00f0 tr\u00faum hvorki n\u00e9 vonum \u00e1 \u00fea\u00f0 sem \u00feegar er or\u00f0i\u00f0 heldur horfum vi\u00f0 \u00ed tr\u00fa og von til hins \u00f3komna. \u00deess vegna ver\u00f0ur tr\u00fain aldrei s\u00f6nnu\u00f0, hvorki af gu\u00f0fr\u00e6\u00f0ingum n\u00e9 \u00f6\u00f0rum fr\u00e6\u00f0im\u00f6nnum, hvorki af hugv\u00edsindum n\u00e9 af svonefndum raunv\u00edsindum. Vi\u00f0 getum ekki sanna\u00f0 allt en vi\u00f0 getum samt fjalla\u00f0 um \u00fea\u00f0 \u00e1 vitr\u00e6nan og fr\u00e6\u00f0ilegan h\u00e1tt og reynt a\u00f0 skilja veruleikann.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hugur \u00feess sem vi\u00f0 kve\u00f0jum h\u00e9r \u00ed dag f\u00e9kkst vi\u00f0 margv\u00edslega hluti en \u00ed l\u00edfsstarfinu f\u00e9kkst hann einkum vi\u00f0 \u00fea\u00f0 a\u00f0 teikna, hanna byggingar og skipuleggja hverfi. Sigur\u00f0ur H\u00e1kon Thoroddsen f\u00e9kkst vi\u00f0 a\u00f0 skapa h\u00fas og mannvirki sem a\u00f0rir bygg\u00f0u.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hann f\u00e6ddist 17. apr\u00edl 1940 \u00ed Hafnarfir\u00f0i en l\u00e9st \u00e1 Landsp\u00edtalanum \u00ed Fossvogi 15. mars 2024. Foreldrar hans voru (Jean) Valgard Thoroddsen, rafmagnsverkfr\u00e6\u00f0ingur og rafmagnsveitustj\u00f3ri r\u00edkisins, (f. 27.7. 1906, d. 10.6. 1978) og Marie Tuvnes, h\u00fasm\u00f3\u00f0ir, (f. 8.7. 1912, d. 3.1. 1998).<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Systkini Sigur\u00f0ar eru:<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Anna Margr\u00e9t (f. 8.11. 1935),<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Bj\u00f6rn sem er l\u00e1tinn (f. 11.4. 1937, d. 22.4. 2021) og<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00de\u00f3rd\u00eds (f. 30.8. 1947).<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Eftirlifandi eiginkona Sigur\u00f0ar er Sigr\u00fan M. Magn\u00fasd\u00f3ttir, ritari (f. 7.2. 1942).<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">B\u00f6rn Sigur\u00f0ar og Sigr\u00fanar eru:<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">1) Magn\u00fas, bifrei\u00f0astj\u00f3ri, d\u00faklagninga- og veggf\u00f3\u00f0runarma\u00f0ur f. 17.8. 1963, eiginkona J\u00f3hanna Beinteinsd\u00f3ttir (f. 12.1. 1964), \u00feeirra b\u00f6rn eru: Sigr\u00fan Svava (f. 9.3. 1985), Arnar Freyr (f. 28.4. 1989) og Hildur Bj\u00f6rk (f. 3.12. 1993),<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">2) Anna Margr\u00e9t, tannl\u00e6knir (f. 3.1. 1968), eiginma\u00f0ur \u00d3lafur \u00d3lafsson (f. 28.5. 1967), b\u00f6rn \u00feeirra eru \u00c1sd\u00eds Margr\u00e9t (f. 17.11. 1994), \u00d3lafur T\u00f3mas (f. 12.12. 2002) og Anna Sigr\u00fan (f. 1.12. 2008) og<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">3) Valgar\u00f0, verkefnastj\u00f3ri f. 10.4. 1973, eiginkona Mar\u00eda Bragad\u00f3ttir (f. 2.12. 1974), b\u00f6rn af fyrra hj\u00f3nabandi me\u00f0 Brynd\u00edsi Bjarnad\u00f3ttur (f. 26.8. 1972): Sigur\u00f0ur Bjarni (f. 8.7. 2001), Einar Logi (f. 14.9. 2005) og Brynjar (f. 17.10. 2008), stj\u00fapb\u00f6rn Valgar\u00f0s: Gabr\u00edel Da\u00f0i (f. 10.3. 1999), Agnes Krist\u00edn (f. 10.12. 2009) og Alexander Atli (f. 10.12. 2009).<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Langafab\u00f6rn Sigur\u00f0ar eru: Jenn\u00fd Sara (f. 25.2. 2013), Sandra D\u00eds (f. 31.3. 2019) og Magn\u00fas \u00de\u00f3r (f. 13.3. 2020).<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Sigur\u00f0ur f\u00e6ddist \u00e1 heimili foreldra sinna a\u00f0 Brekkug\u00f6tu \u00ed Hafnarfir\u00f0i en \u00f3lst upp fr\u00e1 frumbernsku a\u00f0 Su\u00f0urg\u00f6tu 66, \u00ed h\u00fasi sem fa\u00f0ir hans bygg\u00f0i. Hann gekk \u00ed Flensborgarsk\u00f3la og Menntask\u00f3lann \u00ed Reykjav\u00edk.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hann flutti til Helsinki og nam arkitekt\u00far vi\u00f0 Tekniska h\u00f6gskolan \u00ed h\u00f6fu\u00f0borginni, Helsingfors\/Helsinki \u00ed Finnlandi 1960-1966.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hann vann miki\u00f0 vi\u00f0 skipulag og h\u00f6nnun hverfa hj\u00e1 Skipulagi r\u00edkisins sem n\u00fa ber heiti\u00f0 Skipulagsstofnun. Sigur\u00f0ur starfa\u00f0i hj\u00e1 stofnuninni fr\u00e1 1967 til starfsloka 2007.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00de\u00e1 rak hann eigin teiknistofu \u00ed Reykjav\u00edk fr\u00e1 1967-1999.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Sigur\u00f0ur var alla t\u00ed\u00f0 mikill \u00e1hugama\u00f0ur um sitt fag og fer\u00f0a\u00f0ist um heiminn \u00ed h\u00f3pi arkitekta \u00fear sem merkar byggingar voru sko\u00f0a\u00f0ar.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Einnig starfa\u00f0i Sigur\u00f0ur \u00ed \u00fdmsum nefndum og starfsh\u00f3pum \u00e1 vegum hins opinbera, b\u00e6\u00f0i innanlands og \u00ed al\u00fej\u00f3\u00f0a samstarfi um skipulagsm\u00e1l. Me\u00f0al annars m\u00e1 \u00fear nefna Skipulags- og byggingarnefnd varnarsv\u00e6\u00f0a fr\u00e1 1982.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c1hugam\u00e1l Sigur\u00f0ar voru alla t\u00ed\u00f0 flug og flugv\u00e9lar, fr\u00edmerkjas\u00f6fnun og hin s\u00ed\u00f0ari \u00e1r gar\u00f0r\u00e6kt. Sigur\u00f0ur teikna\u00f0i og bygg\u00f0i sitt eigi\u00f0 h\u00fas sem hann bj\u00f3 \u00ed til \u00e6viloka.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c9g hitti f\u00f3lki\u00f0 hans Sigur\u00f0ar og vi\u00f0 r\u00e6ddum l\u00edf hans og st\u00f6rf, pers\u00f3nuleika hans, vi\u00f0horf og daglegt l\u00edf. \u00dear bar margt \u00e1 g\u00f3ma. Sigur\u00f0ur haf\u00f0i skarpan karakter og var \u00e1kve\u00f0inn og fastur fyrir.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c9g spur\u00f0i Sigr\u00fanu hvar \u00feau hef\u00f0u kynnst og h\u00fan svara\u00f0i me\u00f0 brosi \u00e1 v\u00f6r, a\u00f0 \u00fea\u00f0 hef\u00f0i n\u00fa veri\u00f0 \u00e1 balli \u00ed Hafnarfir\u00f0i. N\u00fa hittist f\u00f3lk og kynnist gjarnan rafr\u00e6nt, \u00e1 Netinu og \u00ed sumum tilfellum \u00e1 svonefndum stefnum\u00f3tas\u00ed\u00f0um. \u00c1stin er eins og vatni\u00f0. H\u00fan finnur s\u00e9r \u00e6t\u00ed\u00f0 farveg \u00e1 hverjum t\u00edma og sta\u00f0. Og \u00feau gengu \u00ed hj\u00f3naband og svo komu b\u00f6rnin.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00deau rifju\u00f0u upp b\u00edlt\u00fara \u00fat \u00e1 flugv\u00f6ll og \u00ed \u00edsb\u00fa\u00f0ina. \u00c1 \u00feeim \u00e1rum bjuggu m\u00f6rg b\u00f6rn vi\u00f0 reyk \u00ed b\u00edlum, en \u00edsinn \u00ed lokin b\u00e6tti upp \u00feau \u00f3\u00fe\u00e6gindi.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Svo f\u00f3r Sigur\u00f0ur \u00ed sund, 4-5 sinnum \u00ed viku og sat \u00ed heita pottinum me\u00f0 f\u00f3lki. \u00dev\u00ed er stundum haldi\u00f0 fram a\u00f0 \u00f6ll heimsins vandam\u00e1l s\u00e9u leyst \u00ed pottinum. Eldfjallaorkan leysir \u00far l\u00e6\u00f0ingi p\u00f3lit\u00edskar lausnir \u00e1 \u00f6llum vandam\u00e1lum. \u00c9g \u00feekki \u00feetta af eigin raun. Al\u00feingismenn \u00e6ttu bara a\u00f0 sitja \u00ed pottunum me\u00f0 almenningi \u00ed byrjum hvers vinnudags og \u00fear me\u00f0 l\u00e6gju lausnir fyrir \u00e1 \u00f6llum m\u00e1lum!<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Rifja\u00f0ar voru upp s\u00f6gur fr\u00e1 foreldrum Sigur\u00f0ar, \u00feeim Valgard og Marie, bo\u00f0um \u00feeirra \u00e1 j\u00f3lum og a\u00f0ra daga. \u00deau \u00e1ttu fagurt heimili og \u00ed veislum og j\u00f3labo\u00f0um var vel veitt. Valgard var sl\u00f6kkvili\u00f0sstj\u00f3ri \u00ed Hafnarfir\u00f0i og s\u00ed\u00f0ar rafmagnsveitustj\u00f3ri og Marie kom me\u00f0 s\u00edna norsku si\u00f0i og venjur \u00e1 heimili\u00f0. \u00deau kynntust \u00ed \u00der\u00e1ndheimi \u00feegar Valgard var \u00fear \u00ed verkfr\u00e6\u00f0in\u00e1mi, en h\u00fan var \u00e6ttu\u00f0 fr\u00e1 eynni Fr\u00f6ya e\u00f0a Freyju, en \u00fear \u00fej\u00f3na\u00f0i fr\u00e6ndi minn sem prestur um t\u00edma fyrir nokkrum \u00e1rum, en \u00edslenskir prestar hafa um \u00e1rabil b\u00e6tt \u00far prestaskorti \u00fear \u00ed landi og vorum vi\u00f0 flestir 24 sem \u00fej\u00f3nu\u00f0u \u00fear fyrir 10 \u00e1rum en hefur n\u00fa f\u00e6kka\u00f0 eitthva\u00f0.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Sonarsonur Valgards spila\u00f0i \u00e1 spil me\u00f0 afa og \u00e1tti, ef hann sigra\u00f0i afa sinn, v\u00e6ta fingurg\u00f3m, stinga honum \u00ed \u00f6skubakka og setja punkt \u00e1 nebbann \u00e1 afa! J\u00e1, tilt\u00e6kin voru margv\u00edsleg og ver\u00f0laun oft spaugs\u00f6m, sem ver\u00f0a gulls \u00edgildi \u00ed minningunni, ekki hva\u00f0 efni var\u00f0ar heldur inntak.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Sigur\u00f0ur t\u00f3k \u00fe\u00e1tt \u00ed samkeppni um \u00fdmis verkefni um \u00e6vina og hlaut t.d. 1. ver\u00f0laun fyrir hugmynd s\u00edna um mi\u00f0b\u00e6 K\u00f3pavogs en s\u00fa hugmynd var\u00f0 \u00fe\u00f3 ekki a\u00f0 veruleika. Hann teikna\u00f0i sitt eigi\u00f0 h\u00fas og \u00feau fluttu inni \u00ed \u00fea\u00f0 \u00ed september 1979 enda \u00fe\u00f3tt margt v\u00e6ri \u00f3gert. \u00deetta var \u00e1 \u00feeim t\u00edma \u00feegar ungt f\u00f3lk hlaut margt s\u00edna \u201cmannd\u00f3msv\u00edgslu \u00ed steinsteypu\u201d eins og einn pr\u00f3fessora minna \u00ed gu\u00f0fr\u00e6\u00f0inni kalla\u00f0i \u00fea\u00f0, \u00feegar f\u00f3lk \u00feurfti sj\u00e1lft a\u00f0 byggja s\u00edna b\u00fasta\u00f0i.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hann valdi s\u00e9r bifrei\u00f0ar af kostg\u00e6fni, \u00e1tti fj\u00f3rar tegundir um \u00e6vina, VW-bj\u00f6llu, svo eina \u00ferj\u00e1 Volvoa, \u00fe\u00e1 Audi, \u00ed tv\u00edgang og svo Toyota eftir \u00fea\u00f0.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Magn\u00fas minnist \u00feess er hann 16 \u00e1ra f\u00e9kk a\u00f0 pr\u00f3fa Bj\u00f6lluna \u00e1 loku\u00f0u sv\u00e6\u00f0i vi\u00f0 flugv\u00f6llinn og \u00f3k \u00fear yfir liggjandi s\u00edmastaur. Sigur\u00f0ur hl\u00f3 miki\u00f0 og var mest hissa \u00e1 hva\u00f0 b\u00edllinn \u00feoldi!<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Sigur\u00f0ur haf\u00f0i l\u00edtinn \u00e1huga \u00e1 \u00ed\u00fer\u00f3ttum \u00fear til Valgar\u00f0 sonur hans f\u00f3r a\u00f0 gera \u00fea\u00f0 gott \u00ed handboltanum. Hann horf\u00f0i svo \u00e1 f\u00f3tboltann \u00ed sj\u00f3nvarpinu og \u00feegar kynningarlagi\u00f0 heyr\u00f0ist og Bjarni Fel birtist \u00e1 skj\u00e1num, \u00fe\u00e1 var komin beikonlykt \u00ed h\u00fasi\u00f0 og eggin tilb\u00fain \u00e1 p\u00f6nnunni. Og enn \u00feann dag \u00ed dag finnur Valgar\u00f0 beikonlykt \u00feegar hann heyrir lagi\u00f0.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">D\u00f3ttirin rifjar upp \u00feegar hana langa\u00f0i \u00ed ballett og t\u00f3k sporin heima og uppskar hl\u00e1tur pabba og \u00fear me\u00f0 lauk f\u00f3tafiminni og h\u00fan f\u00f3r \u00ed f\u00e9sin \u00ed sta\u00f0inn \u00fe.e.a.s. tannl\u00e6kningar.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Dagarnir \u00ed skaph\u00f6fn hans voru stundum sk\u00fdja\u00f0ir en au\u00f0vita\u00f0 skein \u00fear l\u00edka oft \u00e1 t\u00ed\u00f0um s\u00f3l \u00ed hei\u00f0i. Hann \u00e1tti f\u00e1a vini, en g\u00f3\u00f0a, var mikill spek\u00falant og naut \u00feess a\u00f0 gr\u00faska, einkum \u00ed s\u00f6gu og p\u00f3lit\u00edk. Hann fylgdist \u00e6t\u00ed\u00f0 me\u00f0 fr\u00e9ttum. Sigur\u00f0ur var g\u00f3\u00f0ur ma\u00f0ur og r\u00e9tts\u00fdnn, en kr\u00f6fuhar\u00f0ur \u00e1 umhverfi sitt og samfer\u00f0af\u00f3lk.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Valgard gamli, fa\u00f0ir hans, var lj\u00fafur ma\u00f0ur og hj\u00e1 honum var stutt \u00ed almennilegheit, eins og sagt var. Fa\u00f0ir hans var Sigur\u00f0ur Thoroddsen, fyrsti mennta\u00f0i verkfr\u00e6\u00f0ingurinn \u00e1 \u00cdslandi, landsverkfr\u00e6\u00f0ingur og s\u00ed\u00f0ar yfirkennari vi\u00f0 L\u00e6r\u00f0a sk\u00f3lann. Fa\u00f0ir hans var  J\u00f3n Thoroddsen, s\u00fdsluma\u00f0ur a\u00f0 Leir\u00e1 \u00ed Leir\u00e1rsveit, sem bj\u00f3 vi\u00f0 miki\u00f0 basl og rak st\u00f3rt heimili, en er helst minnst fyrir sk\u00e1ldskap sinn og b\u00e6kur, sem segja m\u00e1 a\u00f0 \u00fej\u00f3\u00f0in hafi lesi\u00f0 upp til agna, b\u00e6kurnar Piltur og st\u00falka og Ma\u00f0ur og kona eru me\u00f0al \u00feekktustu verka hans.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Sigur\u00f0ur var r\u00e6\u00f0inn og tj\u00e1\u00f0i sig um margt. Hann rita\u00f0i greinar um skipulagsm\u00e1l og birti \u00ed Morgunbla\u00f0inu, en \u00e1 hann runnu n\u00fa tv\u00e6r gr\u00edmur var\u00f0andi flokkinn \u00ed Hruninu og \u00ed kj\u00f6lfar \u00feess f\u00f3r hann a\u00f0 tj\u00e1 sig \u00e1 vefmi\u00f0linum Eyjunni.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hann haf\u00f0i yndi af fer\u00f0al\u00f6gum b\u00e6\u00f0i h\u00e9r heima og \u00fati \u00ed heimi.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Barnab\u00f6rnin voru honum k\u00e6r og hann sat gjarnan me\u00f0 \u00feau \u00ed fangi s\u00e9r og spur\u00f0i oft um \u00feeirra hagi.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Sigur\u00f0ur er jar\u00f0sunginn h\u00e9r \u00ed dag \u00ed kyrr\u00feey a\u00f0 eigin \u00f3sk.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Sk\u00e1ldi\u00f0 T\u00f3mas tala\u00f0i um fr\u00e6 k\u00e6rleikans \u00ed upphafi s\u00edns s\u00e1lms, en heldur svo \u00e1fram me\u00f0 hugsun um fri\u00f0. Heyrum allt versi\u00f0:<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">V\u00e9r treystum \u00fev\u00ed sem h\u00f6nd Gu\u00f0s hefur skr\u00e1\u00f0:<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00cd hverju fr\u00e6i&#8217; er var \u00ed k\u00e6rleik s\u00e1\u00f0<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">b\u00fdr fyrirheit um himnar\u00edki&#8217; \u00e1 j\u00f6r\u00f0u.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hver heil\u00f6g b\u00e6n \u00e1 v\u00edsa Drottins n\u00e1\u00f0.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Og hv\u00ed skal \u00fe\u00e1 ei \u00f3gn og hatri hafna<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">ef hj\u00e1lp og miskunn blasir \u00f6llum vi\u00f0<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00ed tr\u00fa sem ein m\u00e1 \u00fe\u00fasund \u00fej\u00f3\u00f0um safna<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">til \u00fej\u00f3nustu vi\u00f0 sannleik, \u00e1st og fri\u00f0?<\/p>\n\n\n\n<p class=\"has-text-align-center wp-block-paragraph\">S\u00e1lmab\u00f3k \u00dej\u00f3\u00f0kirkjunnar 2022, nr. 694<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Lokaor\u00f0in, hugsunin um a\u00f0 safna megi \u00fej\u00f3\u00f0um til helgrar \u00fej\u00f3nustu, vi\u00f0 \u201csannleik, \u00e1st og fri\u00f0\u201d, vir\u00f0ist fjarri \u00fev\u00ed a\u00f0 r\u00e6tast ef vi\u00f0 dveljum vi\u00f0 \u00e1stand heimsins n\u00fa, j\u00e1, einmitt n\u00fa \u00e1 t\u00edmum, \u00feegar menn berast \u00e1 banaspj\u00f3t \u00e1 m\u00f6rgum st\u00f6\u00f0um \u00ed heiminum.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Ver\u00f6ldin \u00fearfnast a\u00f0 heyra meir um elsku Gu\u00f0s, sem b\u00fdr \u00ed hverju fr\u00e6i og um \u00fea\u00f0 hvernig hann forrita\u00f0i heiminn og stefndi honum \u00e1 veg sannleika, \u00e1star og fri\u00f0ar.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Kirkjan hefur s\u00e1\u00f0 \u00feeim bo\u00f0skap \u00ed tv\u00f6\u00fe\u00fasund \u00e1r, \u00ed \u00feeirri tr\u00fa og von, a\u00f0 fagrar hugsanir og heilar, s\u00e9u sem fr\u00e6, er falla \u00ed mold og ver\u00f0i a\u00f0 f\u00f6grum gr\u00f3\u00f0ri sem n\u00e6rir, gle\u00f0ur og sk\u00fdlir \u00ed l\u00edfsins ve\u00f0rum og vindum. Or\u00f0 tr\u00faarinnar duga ein \u00feegar l\u00e6knav\u00edsindi og umhyggja hj\u00fakrunarst\u00e9tta megna ei meir og vi\u00f0 horfumst \u00ed augu vi\u00f0 dau\u00f0a \u00e1stvinar og sorgina \u00ed sinni hr\u00e1u og k\u00f6ldu mynd.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Og svo eigum vi\u00f0 \u00f6ll eftir a\u00f0 deyja.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Um \u00fea\u00f0 m\u00e1 segja margt en \u00fea\u00f0 sem langafabarn Sigur\u00f0ar sag\u00f0i, er dj\u00fap speki eins og \u00ed lj\u00f3\u00f0i sk\u00e1ldsins, \u00ed Bibl\u00edunnni og af munni margra af helstu heimspekingum veraldar:<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u201cAfi er farinn \u00ed bl\u00f3mi\u00f0.\u201d<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00cd 1. M\u00f3seb\u00f3k er sagt fr\u00e1 Adam og Evu \u00ed aldingar\u00f0inum og brottrekstri \u00feeirra \u00fea\u00f0an:<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00cd sveita \u00fe\u00edns andlitis skaltu brau\u00f0s \u00fe\u00edns neyta<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00fear til \u00fe\u00fa hverfur aftur til jar\u00f0arinnar<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00fev\u00ed af henni ertu tekinn.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00dev\u00ed a\u00f0 mold ert \u00fe\u00fa<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">og til moldar skaltu aftur hverfa.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Langafabarni\u00f0 hefur umor\u00f0a\u00f0 d\u00fdpstu speki Hinnar helgu b\u00f3kar, me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 segja:<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u201cAfi er farinn \u00ed bl\u00f3mi\u00f0.\u201d<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Vi\u00f0 hverfum aftur til moldar, erum l\u00f6g\u00f0 \u00fear sem fr\u00e6 \u00ed von um upprisu og eil\u00edft l\u00edf.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00cd \u00feeirri tr\u00fa er gott a\u00f0 kve\u00f0ja. Ennfremur er gott <strong>a\u00f0 lifa<\/strong> \u00ed \u00feeirri tr\u00fa, einkum \u00feegar \u00e1 m\u00f3ti bl\u00e6s. \u00de\u00e1 skulum vi\u00f0 muna a\u00f0 vi\u00f0 erum eins og bl\u00f3min sem s\u00e9ra Hallgr\u00edmur orti um, er hann sag\u00f0i \u00ed s\u00ednum magna\u00f0a s\u00e1lmi:<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Allt eins og bl\u00f3mstri\u00f0 eina \u2026 \u00e1 sn\u00f6ggu augabrag\u00f0i afskori\u00f0 ver\u00f0ur flj\u00f3tt \u2026<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Lokaversi\u00f0 tj\u00e1ir svo hina hinstu von og tr\u00fa og \u00fea\u00f0 syngjum vi\u00f0 \u00ed lokin.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Gu\u00f0 blessi minningu Sigur\u00f0ar H\u00e1konar Thoroddsen og g\u00f3\u00f0ur Gu\u00f0 blessi \u00feig, sem enn ert \u00e1 l\u00edfsveginum og var\u00f0veiti \u00feig, me\u00f0al l\u00edfsbl\u00f3manna, h\u00e9r og \u00ed eil\u00edf\u00f0inni.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Amen.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">&#8212;-<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Andl\u00e1ti\u00f0 ver\u00f0ur augl\u00fdst daginn eftir \u00fatf\u00f6rina.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c1stk\u00e6r eiginma\u00f0ur minn, fa\u00f0ir, tengdafa\u00f0ir, afi og langafi,<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Sigur\u00f0ur H. Thoroddsen<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">arkitekt Grj\u00f3taseli 21, Reykjav\u00edk<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">l\u00e9st \u00e1 Landsp\u00edtalanum Fossvogi a\u00f0fararn\u00f3tt f\u00f6studagsins 15. mars. \u00datf\u00f6rin hefur veri\u00f0 ger\u00f0 \u00ed kyrr\u00feey a\u00f0 \u00f3sk hins l\u00e1tna.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Sigr\u00fan M. Magn\u00fasd\u00f3ttir<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Magn\u00fas Thoroddsen J\u00f3hanna Beinteinsd\u00f3ttir<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Anna Margr\u00e9t Thoroddsen \u00d3lafur \u00d3lafsson<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Valgar\u00f0 Thoroddsen Mar\u00eda Bragad\u00f3ttir<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Barnab\u00f6rn og barnabarnab\u00f6rn.<\/p>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-image size-large\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"2000\" height=\"1286\" src=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2024\/03\/img_3025-1.jpg?w=1024\" alt=\"\" class=\"wp-image-4661\" \/><\/figure>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-image size-large\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"2000\" height=\"1317\" src=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2024\/03\/img_3024-1.jpg?w=1024\" alt=\"\" class=\"wp-image-4660\" \/><\/figure>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Minningaror\u00f0 sem h\u00e6gt er a\u00f0 lesa og hlusta \u00e1 h\u00e9r fyrir ne\u00f0an. \u00d6rn B\u00e1r\u00f0ur J\u00f3nsson Minningaror\u00f0 +Sigur\u00f0ur H\u00e1kon Thoroddsen arkitekt 1940-2024 \u00datf\u00f6r \u00ed kyrr\u00feey fr\u00e1 Kapellunni \u00ed Fossvogi \u00feri\u00f0judaginn \u00ed kyrruviku 26. mars 2024 kl. 13 S\u00e1lmaskr\u00e1in er aftast \u00ed f\u00e6rslunni. Lei\u00f0r\u00e9tting! Ein sta\u00f0reyndarvilla sl\u00e6ddist inn \u00ed r\u00e6\u00f0una \u00fer\u00e1tt fyrir yfirlestur kunnugra um \u00e6vi forfe\u00f0ra [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":2,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_jetpack_newsletter_access":"","_jetpack_dont_email_post_to_subs":false,"_jetpack_newsletter_tier_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paywalled_content":false,"_jetpack_hide_featured_image":false,"_jetpack_featured_image_duplicate_dismissed":0,"_jetpack_feature_clip_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":"","jetpack_post_was_ever_published":false},"categories":[7],"tags":[243,246,333,407,409,584,640],"class_list":["post-4662","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-minningarord-eulogies","tag-gud","tag-gudfraedi","tag-jesus","tag-ljos","tag-ljosid","tag-sorg","tag-tru"],"jetpack_sharing_enabled":true,"jetpack_featured_media_url":"","_links":{"self":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/4662","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/users\/2"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcomments&post=4662"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/4662\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fmedia&parent=4662"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcategories&post=4662"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Ftags&post=4662"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}