{"id":4609,"date":"2024-03-20T17:45:03","date_gmt":"2024-03-20T17:45:03","guid":{"rendered":"http:\/\/ornbardur.com\/?p=4609"},"modified":"2024-03-20T17:45:03","modified_gmt":"2024-03-20T17:45:03","slug":"orri-freyr-johannsson-1983-2012","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/ornbardur.com\/?p=4609","title":{"rendered":"+Orri Freyr J\u00f3hannsson 1983-2024"},"content":{"rendered":"\n<p class=\"wp-block-paragraph\">B\u00e1lf\u00f6r \u00ed Neskirkju mi\u00f0vikudaginn 20. mars 2024 kl. 15 <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00de\u00fa getur hlusta\u00f0 \u00e1 r\u00e6\u00f0una me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 nota tengilinn h\u00e9r fyrir ne\u00f0an og lesi\u00f0 textann l\u00edka.<\/p>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-image size-large\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"1374\" height=\"2000\" src=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2024\/03\/img_3008-1.jpg?w=703\" alt=\"\" class=\"wp-image-4616\" \/><\/figure>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-audio\"><audio controls src=\"https:\/\/pub-c849b6aaf98340c4bec7b480b0f7ffe9.r2.dev\/2024\/03\/orri-freyr-johannsson-1983-2024-copy.m4a\"><\/audio><\/figure>\n\n\n\n<!--more-->\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00d6rn B\u00e1r\u00f0ur J\u00f3nsson<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Minningaror\u00f0<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>+Orri Freyr J\u00f3hannsson<\/strong><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">27. desember 1983 &#8211; 7. mars 2024<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">B\u00e1lf\u00f6r fr\u00e1 Neskirkju<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">mi\u00f0vikudaginn 20. mars 2024 kl. 15<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">kistulagt kl. 14<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>Fyrsta<\/strong> or\u00f0i\u00f0, sem m\u00e9r kemur \u00ed hug \u00feegar \u00e9g stend h\u00e9r og tala yfir Orra Frey, er or\u00f0i\u00f0 NEI.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Nei, h\u00e9r vil \u00e9g ekki vera og \u00feetta haf\u00f0i mig aldrei \u00f3ra\u00f0 fyrir, a\u00f0 \u00e9g \u00e6tti eftir a\u00f0 kve\u00f0ja hann \u00e1 mi\u00f0jum aldri.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Nei, segi \u00e9g aftur. Vi\u00f0 \u00e6ttum au\u00f0vita\u00f0 a\u00f0 deyja \u00ed r\u00e9ttri r\u00f6\u00f0, \u00fea\u00f0 v\u00e6ri <em>\u00eddeali\u00f0<\/em>, a\u00f0 deyja eftir aldri, en \u00feannig er l\u00edfi\u00f0 \u00fev\u00ed mi\u00f0ur ekki \u00e6t\u00ed\u00f0.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Nei, er or\u00f0i\u00f0 sem \u00e9g veit a\u00f0 hlj\u00f3mar \u00ed hj\u00f6rtum okkar margra.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Og l\u00edfi\u00f0 b\u00ed\u00f0ur vissulega upp\u00e1 m\u00f6rg nei og margskonar sorg og myrka daga. Ge\u00f0l\u00e6knir sem \u00feekkti s\u00e1larl\u00edf manns sem talinn er hafa veri\u00f0 eitt af mikilmennum li\u00f0innar aldar, afhj\u00fapa\u00f0i fremst \u00ed b\u00f3k sinni um ge\u00f0l\u00e6knisfr\u00e6\u00f0i, a\u00f0 Winston Churchill (1874-1965), fv. fors\u00e6tisr\u00e1\u00f0herra Bretlands, hef\u00f0i \u00fej\u00e1\u00f0st af alvarlegu \u00feunglyndi og einnig man\u00edu. Hann var &#8220;b\u00edp\u00f3lar&#8221;, eins og \u00fea\u00f0 er kalla\u00f0, sveifla\u00f0ist \u00e1 milli depur\u00f0ar og ofl\u00e6tis. Churchill kalla\u00f0i sj\u00fakd\u00f3minn, &#8220;svarta hundinn.&#8221; Var \u00fea\u00f0 tilviljun a\u00f0 Orra langa\u00f0i lengi vel \u00ed svartan labrador?<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Vi\u00f0 \u00feekkjum \u00fea\u00f0 l\u00edklega flest ef ekki \u00f6ll a\u00f0 stundum getur veri\u00f0 hundur \u00ed okkur eins og sagt er. Vi\u00f0 sveiflumst til en f\u00f6rum misdj\u00fapt e\u00f0a h\u00e1tt.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">N\u00fa \u00e1 t\u00edmum er tala\u00f0 um a\u00f0 hann e\u00f0a h\u00fan s\u00e9 \u00e1 \u00feessu e\u00f0a hinu r\u00f3finu. R\u00f3f er einskonar skali e\u00f0a kvar\u00f0i. \u00de\u00fa veist \u00f6rugglega hvar \u00fe\u00fa ert \u00ed stafr\u00f3finu. \u00c9g heiti \u00d6rn og er aftast \u00e1 \u00fev\u00ed r\u00f3finu.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Svo erum vi\u00f0 \u00f6ll einhverssta\u00f0ar \u00e1 litr\u00f3finu. Augun \u00fe\u00edn hafa sinn lit, h\u00fa\u00f0in og h\u00e1ri\u00f0 einnig. Vi\u00f0 erum \u00f6ll \u00e1 litr\u00f3finu.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">En hvar erum vi\u00f0 \u00e1 ge\u00f0r\u00f3finu, \u00feessu r\u00f3fi sem dreifir okkur um sig, eftir skapger\u00f0 og ge\u00f0i. Eitt er alveg lj\u00f3st, ekkert okkar er ge\u00f0laust. Vi\u00f0 erum \u00f6ll me\u00f0 ge\u00f0 og \u00fear me\u00f0 \u00e1 ge\u00f0r\u00f3finu, erum r\u00f3faf\u00f3lk \u00ed margv\u00edslegu tilliti.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Orri Freyr var \u00e1 \u00feessu r\u00f3fi \u00fear sem ge\u00f0slagi manna er unnt a\u00f0 ra\u00f0a. V\u00edddirnar voru st\u00f3rar, bili\u00f0 milli hins h\u00e6sta og d\u00fdpsta, gat veri\u00f0 st\u00f3rt hj\u00e1 honum Orra Frey.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Og n\u00fa er hann horfinn fr\u00e1 okkur og vi\u00f0 sitjum h\u00e9r harm\u00ferungin og kve\u00f0jum g\u00f3\u00f0an dreng og g\u00e1fa\u00f0an, sem megna\u00f0i ekki a\u00f0 lifa lengur. Og harmur okkar er st\u00f3r. Harmur fj\u00f6lskyldunnar st\u00e6rstur, s\u00e1rsaukinn mestur. Me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 koma saman og s\u00fdna samkennd, skila sam\u00fa\u00f0 okkar til syrgjenda me\u00f0 \u00fe\u00e9ttu handtaki og augnsambandi, veitum vi\u00f0 styrk og afl. N\u00e6rvera vina er sem smyrsl, \u00e1 s\u00e1r sem m\u00fdkir og gr\u00e6\u00f0ir. S\u00e1rin eru dj\u00fap en \u00feau gr\u00f3a um s\u00ed\u00f0ir en \u00f6rin hverfa l\u00edklega aldrei.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00deegar \u00e9g hitti f\u00f3lki\u00f0 hans minntust \u00feau hans fyrir lj\u00fafmennsku og bl\u00ed\u00f0u. Hann vissi margt og var vel greindur ma\u00f0ur og P\u00e1la sag\u00f0i a\u00f0 hann hef\u00f0i oft reki\u00f0 sig \u00e1 gat \u00ed r\u00f6kr\u00e6\u00f0um. Orri \u00e1tti \u00ed raun m\u00f6rg l\u00edfsskei\u00f0 en \u00f3l\u00edk. Hann var oft m\u00f3t\u00fer\u00f3afullur og st\u00edfur og P\u00e1la segir hann hafa veri\u00f0 sinn st\u00e6rsta kennara \u00ed l\u00edfinu. Orri eigna\u00f0ist g\u00f3\u00f0a vini, b\u00e6\u00f0i fyrr og undir \u00fea\u00f0 s\u00ed\u00f0asta.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00dei\u00f0 eigi\u00f0 miki\u00f0 verk fyrir h\u00f6ndum, k\u00e6ru \u00e1stvinir Orra, en \u00f6ll st\u00f3r verkefni kl\u00e1rast me\u00f0 i\u00f0ni vi\u00f0 hi\u00f0 sm\u00e1a. \u00deurrka m\u00e1 upp stj\u00f3ra tj\u00f6rn me\u00f0 teskei\u00f0 einni, ef \u00feolinm\u00e6\u00f0i og \u00ferautseigja eru me\u00f0 \u00ed li\u00f0i.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Orri Freyr f\u00e6ddist \u00e1 Sau\u00f0\u00e1rkr\u00f3ki 27. desember 1983. Hann l\u00e9st \u00e1 heimili s\u00ednu \u00feann 7. mars s\u00ed\u00f0astli\u00f0inn.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">M\u00f3\u00f0ir hans er P\u00e1la Mar\u00eda \u00c1rnad\u00f3ttir, (f. 25. j\u00fal\u00ed 1964) lyfjat\u00e6knir og maki hennar er Kristj\u00e1n Theod\u00f3rsson, framkv\u00e6mdastj\u00f3ri.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Fa\u00f0ir hans er J\u00f3hann Freyr A\u00f0alsteinsson, (f. 1. mars 1965) starfsma\u00f0ur EFTA \u00ed Genf og maki hans er G\u00faa Hl\u00edfarsd\u00f3ttir.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Systkini Orra Freys eru:<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">samm\u00e6\u00f0ra, Br\u00edet \u00d3sk og Theod\u00f3r Kristj\u00e1nsb\u00f6rn og<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">samfe\u00f0ra, B\u00e1r\u00f0ur J\u00f6kull, Freyja Mar\u00eda og T\u00f3mas Freyr J\u00f3hannsb\u00f6rn.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Fyrstu \u00e6vi\u00e1rin bj\u00f3 Orri Freyr me\u00f0 m\u00f3\u00f0ur sinni \u00e1 Sau\u00f0\u00e1rkr\u00f3ki en \u00feau fluttu svo til Reykjav\u00edkur 1986 \u00fear sem hann bj\u00f3 lengst af.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c1 Kr\u00f3knum bjuggu \u00feau hj\u00e1 foreldrum hennar, \u00feeim \u00c1rna Gunnarssyni og El\u00edsabetu Svavarsd\u00f3ttur, og var Orri Freyr alla t\u00ed\u00f0 tengdur \u00feeim sterkum b\u00f6ndum og \u00e1tti hj\u00e1 \u00feeim sitt anna\u00f0 heimili, einnig eftir a\u00f0 \u00feau fluttu til Reykjav\u00edkur. Hann bj\u00f3 n\u00e6r alla t\u00ed\u00f0 \u00ed Vesturb\u00e6num og lauk \u00fear hef\u00f0bundinni sk\u00f3lag\u00f6ngu. Hann f\u00f3r \u00ed Kvennask\u00f3lann og lauk \u00fea\u00f0an st\u00fadentspr\u00f3fi eftir a\u00f0 hafa gert hl\u00e9 \u00e1 n\u00e1mi s\u00ednu um skei\u00f0.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Orri Freyr stunda\u00f0i ungur f\u00f3tbolta me\u00f0 KR og \u00e6f\u00f0i lengi keilu me\u00f0 sama f\u00e9lagi. Hann var me\u00f0al efnilegustu leikmanna landsins \u00ed keilu \u00e1 unglings\u00e1rum. \u00c1rin 1996 og 1997 var\u00f0 Orri \u00cdslandsmeistari \u00ed 3. flokki \u00ed keilu (13 og 14 \u00e1ra).<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c9g f\u00e9kk \u00ed hendur g\u00f3\u00f0an texta fr\u00e1 vinum Orra sem \u00e9g vil endilega a\u00f0 \u00fei\u00f0 f\u00e1i\u00f0 a\u00f0 heyra:<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><em>Minningar um Orra Frey<\/em><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><em>\u00dea\u00f0 var \u00e1ri\u00f0 sem Orri Freyr gekk \u00ed bekkinn okkar \u00ed Vesturb\u00e6jarsk\u00f3la, \u00ed \u00f6\u00f0rum bekk. Fr\u00e1 \u00feeim degi vissum vi\u00f0, H\u00f6gni Haraldsson, Stef\u00e1n \u00d6rn Einarsson, og Teitur \u00c1rs\u00e6lsson, a\u00f0 vin\u00e1ttan okkar vi\u00f0 hann yr\u00f0i s\u00e9rst\u00f6k. Saman kl\u00e1ru\u00f0um vi\u00f0 Hagask\u00f3la og h\u00e9ldum sambandi allt til s\u00ed\u00f0asta dags Orra \u00fe\u00f3 a\u00f0 sambandi\u00f0 hafi minnka\u00f0 hj\u00e1 sumum okkar.<\/em><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><em>Orri var greindur str\u00e1kur, me\u00f0 einstaka h\u00e6fileika \u00ed a\u00f0 kynnast f\u00f3lki. Hann var forvitinn, fyndinn og gla\u00f0legur, jafn vel sem barn. \u00c1 \u00feessum \u00e1rum voru F\u00f3stbr\u00e6\u00f0ur \u00fea\u00f0 fyndnasta sem \u00cdsland haf\u00f0i a\u00f0 bj\u00f3\u00f0a, og Orri var alltaf til \u00ed gr\u00edn og gaman. Vi\u00f0 h\u00f6f\u00f0um gaman af \u00fev\u00ed a\u00f0 hringja \u00ed f\u00f3lk me\u00f0 fyndin n\u00f6fn \u00far s\u00edmaskr\u00e1nni og l\u00e9kum okkur me\u00f0 alls kyns brandara \u00f3spart. Minnist\u00e6tt er eitt sinn \u00ec St\u00f3rholtinu \u00fear sem hann sat me\u00f0 heimiliss\u00edmann \u00ed kj\u00f6ltunni og vorum vi\u00f0 b\u00fanir a\u00f0 sigta \u00fat b\u00e6ndur utan a\u00f0 landi til a\u00f0 hringja \u00ed. \u00dear tala\u00f0i Orri h\u00e1tt og sk\u00fdrt og sag\u00f0ist vera fr\u00e1 n\u00e6sta b\u00e6 og v\u00e6ri me\u00f0 mykjudreifara til s\u00f6lu. Gr\u00edni\u00f0 gekk fur\u00f0u vel enda Orri&nbsp;m\u00e6lskur me\u00f0 mikinn og gamaldags or\u00f0afor\u00f0a sem henta\u00f0i vel \u00ed \u00feessar a\u00f0st\u00e6\u00f0ur. Svo kom afi \u00c1rni inn \u00ed herbergi\u00f0 \u00feungur \u00e1 br\u00fan, leit \u00e1 s\u00edmann og sag\u00f0i \u201cOrri Freyr \u00feetta er ekki p\u00edan\u00f3\u201d. Orri var g\u00f3\u00f0ur nemandi \u00feegar hann lag\u00f0i sig fram, kl\u00e1r og mj\u00f6g n\u00e1kv\u00e6mur. Orri haf\u00f0i jafnvel enn meiri h\u00e6fileika en hann sj\u00e1lfur ger\u00f0i s\u00e9r grein fyrir. Hann haf\u00f0i f\u00edna skriftarh\u00e6fileika, sem okkur hina skorti verulega upp \u00e1, og stundum str\u00edddum vi\u00f0 honum fyrir \u00fea\u00f0, r\u00e9tt eins og hann str\u00edddi okkur.&nbsp; \u00cd keilu var hann snillingur, hann haf\u00f0i \u00e1huga \u00e1 \u00ed\u00fer\u00f3ttum, var alltaf fr\u00e1b\u00e6r \u00ed \u00feriggja stiga skotum, og hann elska\u00f0i a\u00f0 skipuleggja fer\u00f0ir. Stundum skipulag\u00f0i hann fer\u00f0ir m\u00e1nu\u00f0um fyrir brottf\u00f6r fyrir allan vinah\u00f3pinn, teljandi ni\u00f0ur dagana og ger\u00f0i eftirv\u00e6ntinguna jafnvel skemmtilegri en fer\u00f0ina sj\u00e1lfa. Vi\u00f0 fer\u00f0u\u00f0umst um \u00cdsland, gistum \u00ed tj\u00f6ldum, sumarb\u00fast\u00f6\u00f0um, og t\u00f3kum allt me\u00f0 okkur til a\u00f0 hafa \u00fea\u00f0 gott, s\u00e9rstaklega til a\u00f0 hlusta \u00e1 t\u00f3nlist. Orri elska\u00f0i rafmagnst\u00f3nlist, hip hop og sumar metal hlj\u00f3msveitir. \u00c1n Orra og hans fer\u00f0ah\u00e6fileika hef\u00f0um vi\u00f0 l\u00edklega aldrei yfirgefi\u00f0 vesturb\u00e6 Reykjav\u00edkur. Vi\u00f0 fer\u00f0u\u00f0umst l\u00edka um heiminn, me\u00f0 m\u00f6rgum fer\u00f0um til Benidorm \u00fear sem vi\u00f0 erum vissir um a\u00f0 allir \u00e1 Sp\u00e1ni muna eftir okkur. Vi\u00f0 vorum h\u00e1v\u00e6rir, en sanngjarnir og vildum gera okkur grein fyrir \u00f6llu og stundum gr\u00ednast og gera alla brj\u00e1la\u00f0a, en \u00e1 g\u00f3\u00f0an h\u00e1tt.<\/em><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><em>Orri var vinmargur og haf\u00f0i oft dj\u00fapst\u00e6\u00f0 \u00e1hrif \u00e1 f\u00f3lk \u00ed kringum sig enda sannf\u00e6ringarkraftur hans mikill. Hann \u00e1tti \u00fea\u00f0 til a\u00f0 sn\u00faa sko\u00f0unum f\u00f3lks \u00e1 hinum \u00fdmsu m\u00e1lum \u00ed \u00fever\u00f6fuga \u00e1tt og jafnvel \u00ed heilan hring \u00e1 endanum. \u00dea\u00f0 \u00e1tti ekki s\u00edst vi\u00f0 um hans eigin sko\u00f0anir \u00feegar n\u00fd \u00feekking og uppl\u00fdsingar voru teknar me\u00f0 \u00ed reikninginn. Orri var hnyttinn og ger\u00f0i stundum gr\u00edn a\u00f0 \u00f6\u00f0rum en \u00fe\u00f3 lang mest a\u00f0 sj\u00e1lfum s\u00e9r. Roknahl\u00e1turinn gat veri\u00f0 me\u00f0 emdemum smitandi. Sj\u00e1lfsh\u00f3l og h\u00e9g\u00f3mi eru eiginleikar sem Orri var algj\u00f6rlega laus vi\u00f0 a\u00f0 bera. Ef hann var\u00f0 vitni af \u00feessum eiginleikum hj\u00e1 \u00f6\u00f0rum gat kj\u00e1nahrollurinn or\u00f0i\u00f0 svo mikill a\u00f0 hann neyddist til a\u00f0 k\u00fappla sig \u00fat \u00far a\u00f0st\u00e6\u00f0um.&nbsp;<\/em><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><em>&nbsp;Orri, vinur okkar, \u00fe\u00edn ver\u00f0ur s\u00e1rt sakna\u00f0.<\/em><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Orri starfa\u00f0i um nokkurra \u00e1ra skei\u00f0 sem vaktstj\u00f3ri hj\u00e1 Ol\u00eds \u00e1 Kl\u00f6pp og vann s\u00ed\u00f0ar fj\u00f6lbreytt st\u00f6rf hj\u00e1 \u00cdslandsp\u00f3sti.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hann var mikill d\u00fdravinur og n\u00e1\u00f0i einstakri tengingu vi\u00f0 \u00fe\u00e1 m\u00e1lleysingja sem hann umgekkst.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hann haf\u00f0i gaman af \u00fev\u00ed a\u00f0 fer\u00f0ast til framandi landa og f\u00f3r v\u00ed\u00f0a. \u00de\u00e1 haf\u00f0i hann mikinn \u00e1huga \u00e1 mismunandi menningarheimum og si\u00f0um.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Orri Freyr var \u00f3\u00ferj\u00f3tandi uppspretta alls kyns fr\u00f3\u00f0leiks og var vel lesinn. Hann haf\u00f0i \u00e1huga \u00e1 heimspeki sem og \u00f6\u00f0rum fr\u00e6\u00f0igreinum, og var alltaf tilb\u00fainn \u00ed umr\u00e6\u00f0ur um hinar st\u00f3ru spurningar l\u00edfsins.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00cd ums\u00f6gnum vina hans kemur margt fram. H\u00e9r eru nokkrir punktar:<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Vel gefinn, sannur vinur, mikill p\u00e1skastr\u00e1kur, barng\u00f3\u00f0ur, duglegur, tryggur, hl\u00e9dr\u00e6gur, skemmtilegur, drepfyndinn, b\u00f6rn l\u00f6\u00f0u\u00f0ust a\u00f0 honum, r\u00f6kfastur, en ekki ma\u00f0ur margra or\u00f0a, hei\u00f0arlegur, honum var aldrei kalt og vildi ekki \u00falpu \u00e1 leiksk\u00f3la\u00e1runum, honum l\u00edka\u00f0i sk\u00e1purinn me\u00f0 g\u00f3\u00f0g\u00e6tinu hj\u00e1 vinkonu m\u00f6mmu sem hann kalla\u00f0i &#8220;bo\u00f0st\u00f3lask\u00e1pinn&#8221;!<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Fimm \u00e1ra var hann \u00e1 Mallorka me\u00f0 m\u00f6mmu og vinkonu hennar. Hann var flj\u00f3tur a\u00f0 \u00e1tta sig \u00e1 sta\u00f0h\u00e1ttum. Eitt sinn var hann kominn ni\u00f0ur og \u00fat \u00ed gar\u00f0 me\u00f0an vinkonurnar s\u00e1tu \u00fati \u00e1 sv\u00f6lum, \u00fe\u00e1 kalla\u00f0i hann upp til \u00feeirra:&nbsp; &#8220;Stelpur, \u00e9g ver\u00f0 \u00e1 barnum.&#8221;&nbsp;\u00c1 barnum vi\u00f0 laugina f\u00e9kkst nefnilega \u00eds.&nbsp;<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Me\u00f0fer\u00f0arvinur sem hann kynntist \u00e1 seinni \u00e1rum, minnist hve hl\u00e1turmildur hann var og svo var \u00fea\u00f0 hi\u00f0 \u00f3r\u00e6\u00f0a bros sem oft l\u00e9k um varir hans &#8211; og svo sag\u00f0i Orri vi\u00f0 Una vin sinn: &#8220;\u00c9g \u00e1 bestu m\u00f6mmu \u00ed heimi.&#8221;<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hann las verk \u00feekktra fr\u00e6\u00f0imanna \u00e1 bor\u00f0 vi\u00f0 Jung og Nietzsche, og gl\u00f3sa\u00f0i miki\u00f0 hj\u00e1 s\u00e9r. Hann las b\u00e6kur \u00ed hillumetrum.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00cd gamla daga voru fr\u00e6ndurnir Orri og \u00d6ssi, f\u00f6\u00f0urbr\u00f3\u00f0ir hans sem er a\u00f0eins einu \u00e1ri eldri, me\u00f0 \u00e1kve\u00f0i\u00f0 &#8220;ritual&#8221; vi\u00f0 a\u00f0 horfa \u00e1 Stellu \u00ed orlofi, \u00ed hvert sinn sem \u00feeir hittust. Myndin var alltaf jafn sprenghl\u00e6gileg, \u00ed fyrsta sinn og l\u00edka \u00fev\u00ed hundra\u00f0asta.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Og svo var \u00fea\u00f0 \u00feegar Orri var \u00ed heims\u00f3kn hj\u00e1 m\u00e9r og \u00f6mmu Fr\u00ed\u00f0u, \u00feegar vi\u00f0 bjuggum \u00ed Grindav\u00edk og \u00e9g var \u00fear s\u00f3knarprestur. Orri var svo spur\u00f0ur \u00feegar hann kom heim, hva\u00f0 hann hef\u00f0i upplifa\u00f0 og hva\u00f0 amma og afi hef\u00f0u veri\u00f0 a\u00f0 gera. \u00dear var af \u00fdmsu a\u00f0 taka. Amma sinnti heimahj\u00fakrun og h\u00fasm\u00f3\u00f0urst\u00f6rfum og afi prestsverkum og \u00feessa helgina var \u00fatf\u00f6r \u00ed Grindav\u00edkurkirkju og um \u00fea\u00f0 haf\u00f0i Orri \u00feau or\u00f0 er heim kom a\u00f0 afi hef\u00f0i veri\u00f0 &#8220;a\u00f0 kirkja gamla konu sem var \u00ed hv\u00edtri kistu.&#8221;<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c9g m\u00e1 til me\u00f0 a\u00f0 minnast lang\u00f6mmu hans \u00ed f\u00f6\u00f0ur\u00e6tt, Sigr\u00ed\u00f0ar J\u00f3nsd\u00f3ttur, sem var einst\u00f6k kona, g\u00f3\u00f0 og tr\u00fau\u00f0, sem elska\u00f0i b\u00f6rn og mannf\u00f3lk. H\u00fan l\u00e9st <em>\u00feennan<\/em> dag, 20. mars 2010. Blessu\u00f0 s\u00e9 minning hennar og annarra \u00e1stvina sem horfnir eru.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Stundum er tala\u00f0 um a\u00f0 l\u00e1tnir \u00e1stvinir taki \u00e1 m\u00f3ti s\u00ednum. \u00c1rni m\u00f3\u00f0urafi Orra var honum \u00e6t\u00ed\u00f0 k\u00e6r. \u00c1rni l\u00e9st fyrir r\u00famu \u00e1ri. Hann og langamma Sigga og fleiri taka \u00e1n efa \u00e1 m\u00f3ti, elsku Orra Frey.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00de\u00e1 er vert a\u00f0 geta \u00feess, a\u00f0 Kristj\u00e1n, stj\u00fapfa\u00f0ir, Orra Freys, hefur reynst honum \u00e1kaflega vel. Hin s\u00ed\u00f0ari \u00e1rin hefur mest \u00e1byrg\u00f0 og umhyggja hv\u00edlt \u00e1 \u00feeim hj\u00f3num P\u00e1lu Mar\u00edu og Kristj\u00e1ni.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Samband Orra og J\u00f3a pabba var \u00e6t\u00ed\u00f0 mj\u00f6g gott. Hann heims\u00f3tti f\u00f6\u00f0urfj\u00f6lskyldu s\u00edna oft er \u00feau bjuggu \u00e1 Sey\u00f0isfir\u00f0i og svo kom hann l\u00edka \u00ed nokkur skipti til \u00feeirra \u00ed Genf og naut \u00feess a\u00f0 heims\u00e6kja Sviss og meginlandi\u00f0. Afar k\u00e6rt hefur \u00e6t\u00ed\u00f0 veri\u00f0 me\u00f0 \u00feeim fe\u00f0gum og f\u00f6\u00f0urfj\u00f6lskyldu Orra.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">B\u00e6\u00f0i hl\u00e1tur og gr\u00e1tur geta v\u00f6kva\u00f0 augun og vonandi getum vi\u00f0 b\u00e6\u00f0i hlegi\u00f0 og gr\u00e1ti\u00f0 af \u00fev\u00ed tilefni sem kallar okkur saman h\u00e9r \u00ed dag. En \u00fatf\u00f6r er sorgarath\u00f6fn, en \u00ed henni hlj\u00f3ma s\u00e1lmar eins og vera ber, sem v\u00edsa til handanverunnar, til himinsins, gefa von um a\u00f0 l\u00edfi\u00f0 s\u00e9 st\u00e6rra og meira en hi\u00f0 jar\u00f0neska. En dau\u00f0inn hefur ekki l\u00e1ti\u00f0 undan \u00fer\u00e1tt fyrir t\u00e6kniframfarir og gervigreind, sem F\u00e6reyingar kalla &#8220;vitl\u00edki&#8221;. Dau\u00f0inn hefur engu breytt. Hann n\u00e6r allt of m\u00f6rgum ungmennum og f\u00f3lki \u00e1 besta aldri, sem gefst upp \u00ed \u00f3rei\u00f0unni sem fylgir n\u00fat\u00edmanum, kr\u00f6funum, firringunni og tr\u00faleysinu og hinum ey\u00f0andi \u00f6flum sem t\u00e6ra gildagrunninn.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hlutverk kirkjunnar um aldir hefur veri\u00f0 a\u00f0 bo\u00f0a f\u00f3lki von og tr\u00fa \u00ed erfi\u00f0um og oft \u00e1 t\u00ed\u00f0um, hr\u00e6\u00f0ilegum a\u00f0st\u00e6\u00f0um. \u00dej\u00e1ning og dau\u00f0i eru me\u00f0al stefja f\u00f6stunnar sem senn er \u00e1 enda. N\u00e6sti helgidagur er p\u00e1lmasunnudagur og svo tekur kyrravikan vi\u00f0 me\u00f0 sk\u00edrdegi og f\u00f6studeginum langa og svo kemur &#8220;sigurh\u00e1t\u00ed\u00f0 s\u00e6l og bl\u00ed\u00f0&#8221; &#8211; p\u00e1skarnir og p\u00e1skavikan, me\u00f0 bo\u00f0skap upprisunnar og sigurinn yfir dau\u00f0anum. Dau\u00f0inn er mesti \u00f3vinur okkar manna. Hann eirir engum. Krossinn h\u00e9r \u00e1 k\u00f3rveggnum er au\u00f0ur \u00fev\u00ed Kristur er upprisinn. Hann hefur sigra\u00f0 dau\u00f0ann og heiti\u00f0 okkur eil\u00edfu l\u00edfi. Vesturl\u00f6nd byggja allar hugmyndir s\u00ednar um gott mannl\u00edf og fagurt, \u00e1 kristinni tr\u00fa og von. Allt sem vi\u00f0 teljum mikilv\u00e6gast er \u00fea\u00f0an komi\u00f0.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Bibl\u00edan er merkilegt rit. H\u00fan er einskonar s\u00fdndarveruleiki sem v\u00edsar til hins eina sanna veruleika. H\u00fan er margslungin b\u00f3k og helstu b\u00f3kmenntir veraldar ver\u00f0a aldrei skiljanlegar nema \u00ed lj\u00f3si Hinnar helgu b\u00f3kar. Orri f\u00e9kkst vi\u00f0 a\u00f0 lesa Dostojevski sem er einn magna\u00f0asti h\u00f6fundur b\u00f3kmenntas\u00f6gunnar. \u00cd b\u00f3kum s\u00ednum gl\u00edmdi hann vi\u00f0 hin st\u00f3ru stef kristninnar. Orri las b\u00f3kina, Br\u00e6\u00f0urnir Karamazov, \u00ed bland vi\u00f0 heimspeki og kristna tr\u00fa. Hann las Tolstoy l\u00edka og horf\u00f0i \u00e1 hla\u00f0v\u00f6rp me\u00f0 fr\u00e6gum fyrirlesurum samt\u00edmans um listina a\u00f0 lifa \u00e1 grunni g\u00f3\u00f0ra gilda.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hann var tr\u00faa\u00f0ur ma\u00f0ur. Hann var fyrsta barni\u00f0 sem \u00e9g sk\u00edr\u00f0i \u00e1 minni starfs\u00e6vi sem prestur. Me\u00f0an hann dvaldi \u00ed Hla\u00f0ger\u00f0arkoti, p\u00e6ldi hann miki\u00f0 \u00ed kristinni tr\u00fa og l\u00e9t sk\u00edrast \u00e1 n\u00fd.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hann \u00feekkti Krist og ba\u00f0 til hans, tr\u00fa\u00f0i \u00e1 frelsun hans og l\u00e6kningu allra sinna meina. Barnask\u00edrnin er s\u00e1ttm\u00e1li Gu\u00f0s og manns sem hinn fyrrnefndi sv\u00edkur aldrei enda \u00fe\u00f3tt vi\u00f0 sv\u00edkjum \u00f6ll okkar heit, er vi\u00f0 f\u00f6llum hvert um anna\u00f0 og hr\u00f6sum oft \u00e1 l\u00edfsveginum. Barnask\u00edrnin er \u00e1starj\u00e1tning Gu\u00f0s sem enn gildir. Gu\u00f0 elskar \u00feig og Gu\u00f0 elskar Orra Frey og \u00e9g tala \u00ed n\u00fat\u00ed\u00f0 \u00fev\u00ed Orri Freyr lifir \u00ed tr\u00fanni \u00e1 Gu\u00f0.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c9g byrja\u00f0i \u00feessa r\u00e6\u00f0u \u00e1 or\u00f0inu Nei! En n\u00fa minni \u00e9g \u00e1 st\u00e6rsta J\u00c1 sem til er \u00ed ver\u00f6ldinni og \u00fea\u00f0 er J\u00c1 Jes\u00fa Krists, hins upprisna frelsara, sem opna\u00f0i lei\u00f0ina til himinsins heim. Gu\u00f0 segir j\u00e1 vi\u00f0 \u00fe\u00e9r og \u00f6llum m\u00f6nnum, hverrar tr\u00faar sem \u00feeir eru.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Og n\u00fa hefur Orri Freyr hloti\u00f0 hv\u00edld. &#8220;Svarti hundurinn&#8221; geltir ekki lengur.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">S\u00ed\u00f0ustu 3-4 \u00e1rin skiptust \u00e1 skin og sk\u00farir. Hann \u00e1tti g\u00f3\u00f0 t\u00edmabil en svo ur\u00f0ur dalirnir mj\u00f6g dj\u00fapir og \u00f6rv\u00e6ntingin algj\u00f6r. Stundum virtist hann vera \u00e1 batavegi og \u00e1 \u00fev\u00ed g\u00f3\u00f0a t\u00edmabili kom vel \u00ed lj\u00f3s hvers hann var \u00ed raun megnugur, en svo kom \u00f3ttinn sem s\u00f3tti a\u00f0 honum aftur og aftur. Hann gat engan veginn \u00fatsk\u00fdrt \u00feann ugg sem hann upplif\u00f0i. En n\u00fa er \u00fev\u00ed loki\u00f0. Hr\u00e6\u00f0lan er horfin, en me\u00f0 allt of d\u00fdrri lausn.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">En n\u00fa tekur vi\u00f0 &#8220;n\u00f3ttlaus voraldar ver\u00f6ld, \u00fear sem v\u00ed\u00f0s\u00fdni\u00f0 sk\u00edn&#8221; eins og Stephan G. orti \u00ed Vesturheimi um landi\u00f0 sitt sem hann unni. Spennan og ofl\u00e6ti\u00f0 eru horfin og &#8220;fri\u00f0ur Gu\u00f0s sem er \u00e6\u00f0ri \u00f6llum skilningi&#8221;, eins og postulinn or\u00f0a\u00f0i \u00fea\u00f0, er yfir og allt um kring.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Vi\u00f0 felum Orra Frey J\u00f3hannsson, himni Gu\u00f0s.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Norska s\u00e1lmask\u00e1ldi\u00f0 Petter Dass, sem var samt\u00edmama\u00f0ur s\u00e9ra Hallgr\u00edms P\u00e9turssonar, orti s\u00e1lm sem Sigurbj\u00f6rn Einarsson, biskup \u00fe\u00fdddi. S\u00e1lmurinn telst til h\u00f6fu\u00f0verka norskrar kristni og er n\u00famer 1 \u00ed Norsku s\u00e1lmab\u00f3kinni og hlj\u00f3\u00f0ar svo \u00e1 okkar tungu:<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">1 Drottinn Gu\u00f0, \u00feitt d\u00fdra nafni\u00f0 sk\u00e6ra<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">d\u00fdrka ber og veita lotning t\u00e6ra.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hver tunga, vera<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">skal vitni bera<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">a\u00f0 voldug eru<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00fe\u00edn r\u00e1\u00f0 og \u00fe\u00e9r \u00feakkir f\u00e6ra.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">2 Gu\u00f0 er Gu\u00f0 \u00fe\u00f3tt ver\u00f6ld v\u00e6ri eigi,<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">ver\u00f0ur Gu\u00f0 \u00fe\u00f3tt allt \u00e1 j\u00f6r\u00f0u deyi.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00de\u00f3tt farist heimur<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">sem hj\u00f3m og eimur<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">mun heilagt streyma<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">n\u00fdtt l\u00edf um geim, Gu\u00f0s \u00e1 degi.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">3 Bj\u00f6rgin hrynja, hamravirkin sv\u00edkja,<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">himinn, j\u00f6r\u00f0 og stj\u00f6rnur munu v\u00edkja<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">en upp mun r\u00edsa<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">og r\u00e1\u00f0 hans pr\u00edsa,<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">hans r\u00edki v\u00edsa<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">og lj\u00f3si\u00f0 l\u00fdsa og r\u00edkja.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">L\u00edf Orra Freys heldur \u00e1fram \u00ed himni Gu\u00f0s en vi\u00f0 h\u00f6ldum \u00e1fram h\u00e9r \u00ed heimi Gu\u00f0s, heimi sem \u00fearfnast bo\u00f0skapar himinsins um k\u00e6rleika, fyrirgefningu og fri\u00f0, \u00fearfnast handa \u00feinna og minna, \u00fearfnast ford\u00f3maleysis og greindar, sem s\u00e9r \u00ed gegnum fals og lygar samt\u00edmans og \u00f3n\u00fdt hugmyndakerfi.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Vi\u00f0 h\u00f6fum verk a\u00f0 vinna. L\u00edfi\u00f0 er gj\u00f6f Gu\u00f0s og vi\u00f0 skulum lifa \u00fev\u00ed me\u00f0 Gu\u00f0i, \u00ed tr\u00fa \u00e1 hann og von um a\u00f0 \u00f6ll \u00e9l birti upp um s\u00ed\u00f0ir.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Vi\u00f0 heyrum n\u00e6st lag sem minnir \u00e1 gle\u00f0ina, &#8220;Horf\u00f0u \u00e6t\u00ed\u00f0 \u00e1 bj\u00f6rtu hli\u00f0ar l\u00edfsins&#8221; &#8211; Always Look on the Bright Side of Life. Gerum \u00fea\u00f0, en \u00fe\u00f3 \u00e1n \u00feess a\u00f0 l\u00edta framhj\u00e1 \u00feeim dimmu, \u00fev\u00ed annars lifum vi\u00f0 \u00ed blekkingu. \u00de\u00fa m\u00e1lar ekki mynd me\u00f0 einu saman hv\u00edtu. Lj\u00f3s og skuggar ver\u00f0a a\u00f0 kallast \u00e1 til a\u00f0 l\u00edfi\u00f0 ver\u00f0i merkingarb\u00e6rt.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">G\u00f3\u00f0ur Gu\u00f0, styrki ykkur, k\u00e6ru \u00e1stvinir:<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">elsku P\u00e1la Mar\u00eda og Kristj\u00e1n, Br\u00edet \u00d3sk og Theod\u00f3r;<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">elsku J\u00f3hann Freyr og G\u00faa, B\u00e1r\u00f0ur J\u00f6kull, Freyja Mar\u00eda og T\u00f3mas Freyr;<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">elsku amma Beta og elsku amma Fr\u00ed\u00f0a, skyldf\u00f3lk og vinir.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Gu\u00f0 blessi minningu Orra Freys J\u00f3hannssonar og Gu\u00f0 blessi okkur \u00f6ll, sem enn erum \u00e1 l\u00edfsveginum og h\u00f6fum verk a\u00f0 vinna og l\u00edfs a\u00f0 nj\u00f3ta.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Amen.<\/p>\n\n\n\n<div class=\"wp-block-file\"><a href=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2024\/03\/thrid.yfirfarin.senda_.final_.final_.prent-edit-orrri-salmaskra-17-x-24.5-cm.pdf\">THRID.YFIRFARIN.SENDA.FINAL.FINAL.Prent-Edit Orrri sa\u0301lmaskra\u0301 (17 x 24.5 cm).pdf<\/a><a href=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2024\/03\/thrid.yfirfarin.senda_.final_.final_.prent-edit-orrri-salmaskra-17-x-24.5-cm.pdf\" class=\"wp-block-file__button wp-element-button\" download>Download<\/a><\/div>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>B\u00e1lf\u00f6r \u00ed Neskirkju mi\u00f0vikudaginn 20. mars 2024 kl. 15 \u00de\u00fa getur hlusta\u00f0 \u00e1 r\u00e6\u00f0una me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 nota tengilinn h\u00e9r fyrir ne\u00f0an og lesi\u00f0 textann l\u00edka.<\/p>\n","protected":false},"author":2,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_jetpack_newsletter_access":"","_jetpack_dont_email_post_to_subs":false,"_jetpack_newsletter_tier_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paywalled_content":false,"_jetpack_hide_featured_image":false,"_jetpack_featured_image_duplicate_dismissed":0,"_jetpack_feature_clip_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":"","jetpack_post_was_ever_published":true},"categories":[7],"tags":[205,243,246,333,409,548,584,640],"class_list":["post-4609","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-minningarord-eulogies","tag-fordomar","tag-gud","tag-gudfraedi","tag-jesus","tag-ljosid","tag-soknudur","tag-sorg","tag-tru"],"jetpack_sharing_enabled":true,"jetpack_featured_media_url":"","_links":{"self":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/4609","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/users\/2"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcomments&post=4609"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/4609\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fmedia&parent=4609"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcategories&post=4609"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Ftags&post=4609"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}