{"id":4511,"date":"2024-01-13T21:36:36","date_gmt":"2024-01-13T21:36:36","guid":{"rendered":"http:\/\/ornbardur.com\/2024\/01\/13\/um-synarveruleika-og-gervigreind\/"},"modified":"2024-01-13T21:36:36","modified_gmt":"2024-01-13T21:36:36","slug":"um-synarveruleika-og-gervigreind","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/ornbardur.com\/?p=4511","title":{"rendered":"Um s\u00fdndarveruleika og gervigreind"},"content":{"rendered":"\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Greinin birtist \u00ed Morgunbla\u00f0inu laugardaginn 13. jan\u00faar 2024.<\/p>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-image size-large\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"1587\" height=\"988\" src=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2024\/01\/img_2905-1.jpg?w=1024\" alt=\"\" class=\"wp-image-4510\" \/><figcaption class=\"wp-element-caption\">Mynd \u00feegin a\u00f0 l\u00e1ni af Alnetinu<\/figcaption><\/figure>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Viltu hlusta \u00e1 lestur h\u00f6fundar? Smelltu \u00fe\u00e1 \u00e1 tengilinn:<\/p>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-audio\"><audio controls src=\"https:\/\/pub-c849b6aaf98340c4bec7b480b0f7ffe9.r2.dev\/2024\/01\/eru-syndarveruleiki-og-gervigreind-haettuleg.m4a\"><\/audio><\/figure>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>Eru s\u00fdndarveruleiki og gervigreind h\u00e6ttuleg?<\/strong><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Sko\u00f0um s\u00f6guna um \u00fea\u00f0 hvernig ma\u00f0urinn hefur l\u00e6rt a\u00f0 hugsa \u00f3hlutbundi\u00f0 og n\u00fdtt s\u00e9r t\u00e6knina.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Stafr\u00f3fi\u00f0 er merkileg uppfinning. \u00dea\u00f0 er raki\u00f0 til Kanaan\u00edta \u00ed Mi\u00f0-Austurl\u00f6ndum fyrir um 5000 \u00e1rum. \u00cdslenska stafr\u00f3fi\u00f0 telur 32 stafi. Me\u00f0 \u00feessu stafasetti eru \u00f6ll or\u00f0 myndu\u00f0, sem til eru \u00e1 prenti \u00e1 \u00edslensku e\u00f0a rafr\u00e6num textum.<\/p>\n\n\n\n<!--more-->\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00d6ldum s\u00ed\u00f0ar kom prentlistin til s\u00f6gunnar. Gutenberg fann upp t\u00e6kni sem f\u00f3lst \u00ed \u00fev\u00ed \u201ea\u00f0 prenta me\u00f0 lausaletri og \u00ed pressu\u201c. Marteinn L\u00father hagn\u00fdtti s\u00e9r t.d. prentlistina til hins \u00fdtrasta.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00cdtalski uppfinningarma\u00f0urinn Marconi kom fram me\u00f0 hugmyndina a\u00f0 \u00fatvarpi, e\u00f0a \u00fer\u00e1\u00f0lausum skeytasendingum upp \u00far 1890.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Seinna kom sj\u00f3nvarpi\u00f0 og svo t\u00f6lvurnar og n\u00fa er \u00fea\u00f0 svonefnd gervigreind sem F\u00e6reyingar kalla vitl\u00edki.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Allar \u00feessar byltingar hafa gefi\u00f0 f\u00f3lki aukna m\u00f6guleika \u00e1 a\u00f0 tj\u00e1 sig og var\u00f0veita hugsun s\u00edna. \u00cd raun er enginn e\u00f0lismunur \u00e1 \u00feessum byltingum, \u00fe\u00e6r nota a\u00f0eins \u00f3l\u00edka t\u00e6kni.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c9g var vi\u00f0 messu \u00ed Neskirkju \u00e1 j\u00f3ladag. S\u00f3lin skein inn um glugga \u00e1 su\u00f0urhli\u00f0 kirkjunnar. \u00dear sem \u00e9g sat s\u00e1 \u00e9g ekki gluggann. En vetrars\u00f3lin varpa\u00f0i hinsvegar s\u00fdndarglugga \u00e1 gafl kirkjunnar. \u00dea\u00f0 var f\u00f6gur sj\u00f3n.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00deegar \u00e9g les \u00ed Bibl\u00edunni, e\u00f0a a\u00f0rar fagurb\u00f3kmenntir, \u00fe\u00e1 les \u00e9g s\u00fdndarveruleika, fr\u00e1sagnir af einhverju sem ritarinn skr\u00e1\u00f0i. J\u00f3lagu\u00f0spjalli\u00f0 er t.d. fr\u00e1s\u00f6gn h\u00f6fundar af f\u00e6\u00f0ingu Jes\u00fa. S\u00fa saga er ekki Jes\u00fas sj\u00e1lfur en h\u00fan v\u00edsar til veruleika hans og er \u00fev\u00ed s\u00fdndarveruleiki.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00cd Kastlj\u00f3si 3. jan\u00faar s.l. var r\u00e6tt um hvort nota m\u00e6tti gervigreind me\u00f0 \u00fev\u00ed t.d. a\u00f0 l\u00e1ta fr\u00e6ga einstaklinga, lifandi og l\u00e1tna, birtast \u00e1 skj\u00e1num \u00ed s\u00fdndarveruleika eins og ger\u00f0ist \u00ed Skaupinu og s\u00fdndist sitt hverjum. En er s\u00fdndarveruleiki og gervigreind eitthva\u00f0 n\u00fdtt? Og er hin n\u00fdja greind h\u00e6ttuleg?<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00deegar P\u00e1lmi Gestsson l\u00e9k for\u00f0um daga, \u00d3laf Ragnar Gr\u00edmsson, \u00ed Spaugstofunni, \u00fe\u00e1 var hann ekki \u00d3lafur Ragnar sj\u00e1lfur, heldur tilv\u00edsun \u00ed hann e\u00f0a s\u00fdndarveruleiki, en oft gat \u00fe\u00f3 veri\u00f0 erfitt a\u00f0 greina raunveruleikann!<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hva\u00f0 er greind? \u00cd or\u00f0ab\u00f3k segir: \u201eh\u00e6fileiki til a\u00f0 afla s\u00e9r vitneskju, skilja samhengi \u00f3l\u00edkra fyrirb\u00e6ra, greina m\u00e1lefnin og hugsa \u00f3hlutbundi\u00f0\u201c.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Sk\u00e1ldskaparg\u00e1fan er greind, h\u00e6fileiki til a\u00f0 tj\u00e1 veruleikann \u00ed afleiddri mynd og s\u00fdna hann me\u00f0 aflei\u00f0slu e\u00f0a tilv\u00edsun. \u201eCogito ergo sum\u201c sag\u00f0i Descartes, \u201e\u00c9g hugsa, \u00feess vegna er \u00e9g.\u201c Sk\u00e1ldskaparlistin er l\u00edklega s\u00fa mikilv\u00e6gasta greind sem mannkyn \u00e1 til a\u00f0 beita \u00ed skilningsleit sinni og t\u00falkun \u00e1 veruleikanum.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Bibl\u00edan er m\u00e9r handgengin enda l\u00edklega merkasta b\u00f3k sem til er. H\u00fan geymir allskonar texta, um fagurt l\u00edf og lj\u00f3tt. \u00cdslendingas\u00f6gurnar eru sama marki brenndar. Vi\u00f0 ver\u00f0um a\u00f0 velja og t\u00falka allt sem vi\u00f0 lesum. Ef vi\u00f0 t\u00falkum ekki og metum a\u00f0st\u00e6\u00f0ur, \u00fe\u00e1 lesum vi\u00f0 b\u00f3kstaflega, eins og \u00fea\u00f0 er kalla\u00f0. \u00deannig lesa sumir kristnir Bibl\u00eduna s\u00edna og margir gu\u00f0leysingjar einnig og sl\u00edkt getur reynst ska\u00f0legt og h\u00e6ttulegt. William Booth, stofnandi Hj\u00e1lpr\u00e6\u00f0ishersins, sag\u00f0ist lesa Bibl\u00eduna me\u00f0 s\u00f6mu a\u00f0fer\u00f0 og hann bor\u00f0a\u00f0i \u00feorsk. Hann sag\u00f0ist t\u00edna beinin \u00fat \u00far s\u00e9r og leggja \u00feau \u00e1 diskbarminn en kyngja g\u00f3\u00f0g\u00e6tinu. \u00de\u00e1 m\u00e1 \u00feess geta a\u00f0 \u00feorskurinn, hinn guli \u00far dj\u00fapinu, gefur okkur l\u00fdsi e\u00f0a lj\u00f3s \u00ed sinni!<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Gervigreind er ekkert merkilegri en stafr\u00f3fi\u00f0 e\u00f0a prentlistin, \u00fatvarp e\u00f0a sj\u00f3nvarp, t\u00f6lva e\u00f0a fars\u00edmi. H\u00fan er bara n\u00fdrri t\u00e6kni sem opnar a\u00f0rar v\u00edddir eins og allar hinar eldri greindir ger\u00f0u og gera enn.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Ein af lykils\u00f6gum Bibl\u00edunnar er sagan af Adam og Evu \u00ed Eden. \u00deetta er l\u00edtil saga, skrifu\u00f0 af rith\u00f6fundi sem f\u00e9kkst vi\u00f0 \u00fea\u00f0 a\u00f0 r\u00fdna \u00ed r\u00fanir l\u00edfsins og skilja veruleikann, einkum hi\u00f0 neikv\u00e6\u00f0a \u00ed eigin s\u00e1l og samf\u00e9lagi. Tilg\u00e1ta m\u00edn er a\u00f0 h\u00f6fundurinn, l\u00edklega karlkyns, hafi \u00e1tti \u00ed erjum vi\u00f0 kerlu s\u00edna. B\u00f6rnin voru \u00f3\u00feekk og br\u00e6\u00f0ur hans \u00ed f\u00fdlu. Hvers vegna fer allt \u00farskei\u00f0is? Og hann sest ni\u00f0ur og skrifar s\u00f6gu. H\u00fan byrjar vel, en svo l\u00e6\u00f0ist eitthva\u00f0 inn \u00ed hinn fullkomna heim. Allt \u00ed einu skr\u00ed\u00f0ur h\u00f6ggormur \u00e1 grein. Og hann kann a\u00f0 tala! &#8211; og hann kann l\u00edka a\u00f0 lj\u00faga! Hann spyr spurninga og f\u00e6r Adam og Evu til a\u00f0 efast um sig sj\u00e1lf og l\u00edfi\u00f0. \u00deau vissu a\u00f0 \u00feau m\u00e1ttu eta af \u00f6llum \u00e1v\u00f6xtum aldingar\u00f0sins nema \u00feeim er \u00f3x \u00e1 l\u00edfsins tr\u00e9.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Ger\u00f0ist \u00feetta \u00ed raun og veru? Nei, au\u00f0vita\u00f0 ekki, en \u00feetta er alltaf a\u00f0 gerast! Sagan er t\u00falkun innbl\u00e1sins sk\u00e1lds \u00e1 tilvistargl\u00edmu mannsins og h\u00fan er svo dj\u00fap og snj\u00f6ll a\u00f0 h\u00fan talar enn til okkar \u00e1 \u00f6ld gervigreindar og sagan hans er eins og m\u00e1lverk, svo vel er h\u00fan samin, en enginn var samt \u00fear me\u00f0 fars\u00edma til a\u00f0 taka v\u00edde\u00f3.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">H\u00f6fundar Bibl\u00edunnar notu\u00f0u stafr\u00f3fi\u00f0 til a\u00f0 segja s\u00f6gur og b\u00faa til s\u00fdndarveruleika me\u00f0 or\u00f0um og hugmyndum um innsta e\u00f0li l\u00edfsins. Bibl\u00edan geymir margar sl\u00edkar t\u00falkunars\u00f6gur sem eru lyklar a\u00f0 l\u00edfinu, eins og lykilor\u00f0in a\u00f0 s\u00edmum e\u00f0a t\u00f6lvum. \u00de\u00fa kemst ekki langt \u00e1n lykilor\u00f0anna og ekki heldur \u00ed skilningi \u00e1 l\u00edfinu \u00e1n hinnar helgu b\u00f3kar.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Vi\u00f0 getum ekki lifa\u00f0 \u00e1n sk\u00e1ldskapar, \u00e1n greindar og s\u00fdndarveruleika. Sk\u00e1ldskapurinn s\u00e9r \u00e6t\u00ed\u00f0 lengra, kafar d\u00fdpra, birtir okkur sannleikann um l\u00edfi\u00f0. Bibl\u00edan hefur veri\u00f0 k\u00f6llu\u00f0 B\u00f3k b\u00f3kanna. H\u00fan er merkilegt rit, h\u00fan er safn 77 \u00f3l\u00edkra rita, <em>bibliotek, <\/em>skrifu\u00f0 af innbl\u00e1snum sk\u00e1ldum.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Lesum meira, leyfum sk\u00e1ldunum a\u00f0 lei\u00f0a okkur inn \u00e1 n\u00fdjar lendur hugans, \u00ed \u00e1\u00f0ur \u00f3\u00feekktar v\u00edddir, me\u00f0 a\u00f0fer\u00f0 gervigreindar og s\u00fdndarverleika eins og gert hefur veri\u00f0 um aldir. P\u00e1ll postuli tala\u00f0i um k\u00e6rleikann og beitti s\u00fdndarveruleika er hann sag\u00f0i: \u201eN\u00fa sj\u00e1um v\u00e9r svo sem \u00ed skuggsj\u00e1, \u00ed r\u00e1\u00f0g\u00e1tu, en \u00fe\u00e1 munum v\u00e9r sj\u00e1 augliti til auglitis.\u201c Or\u00f0i\u00f0 \u201e\u00fe\u00e1\u201c skiptir h\u00e9r sk\u00f6pum.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00d3ttumst ekki t\u00e6knina. H\u00fan er, eins og aldingar\u00f0urinn Eden, me\u00f0 marga \u00e1vexti, en vandinn er s\u00e1 me\u00f0 alla t\u00e6kniheima a\u00f0 inn \u00ed \u00fe\u00e1 l\u00e6\u00f0ist \u00e6t\u00ed\u00f0 h\u00f6ggormur. Verum \u00fev\u00ed allsg\u00e1\u00f0 \u00ed \u00f6llum a\u00f0st\u00e6\u00f0um l\u00edfsins og g\u00e6tum okkar \u00e1 hinni hv\u00edslandi r\u00f6dd sem talar eins og fjandans ormurinn: \u201eSanni\u00f0 til, \u00fei\u00f0 munu\u00f0 ekki deyja.\u201c L\u00e1tum lygina ekki afvegalei\u00f0a okkur, en leitum sannleikans, sem mun gera okkur frj\u00e1ls, eins og Frelsarinn lofa\u00f0i og lofar enn.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Gu\u00f0 gefi \u00fe\u00e9r gle\u00f0ilegt n\u00fdtt s\u00fdndar\u00e1r og megi \u00fea\u00f0 svo ver\u00f0a a\u00f0 veruleika \u00ed hvert sinn er n\u00fdr dagur \u00e1rsins r\u00eds!<\/p>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-image size-large\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"2000\" height=\"1436\" src=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2024\/01\/img_2904-1.jpg?w=1024\" alt=\"\" class=\"wp-image-4509\" \/><figcaption class=\"wp-element-caption\">Greinin eins og h\u00fan birtist \u00ed Morgunbla\u00f0inu<\/figcaption><\/figure>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Greinin birtist \u00ed Morgunbla\u00f0inu laugardaginn 13. jan\u00faar 2024. Viltu hlusta \u00e1 lestur h\u00f6fundar? Smelltu \u00fe\u00e1 \u00e1 tengilinn: Eru s\u00fdndarveruleiki og gervigreind h\u00e6ttuleg? Sko\u00f0um s\u00f6guna um \u00fea\u00f0 hvernig ma\u00f0urinn hefur l\u00e6rt a\u00f0 hugsa \u00f3hlutbundi\u00f0 og n\u00fdtt s\u00e9r t\u00e6knina. Stafr\u00f3fi\u00f0 er merkileg uppfinning. \u00dea\u00f0 er raki\u00f0 til Kanaan\u00edta \u00ed Mi\u00f0-Austurl\u00f6ndum fyrir um 5000 \u00e1rum. \u00cdslenska stafr\u00f3fi\u00f0 telur [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":2,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_jetpack_newsletter_access":"","_jetpack_dont_email_post_to_subs":false,"_jetpack_newsletter_tier_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paywalled_content":false,"_jetpack_hide_featured_image":false,"_jetpack_featured_image_duplicate_dismissed":0,"_jetpack_feature_clip_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":"","jetpack_post_was_ever_published":false},"categories":[4],"tags":[19,22,34,99,176,230,243,246,270,333,407,497,518,542,557,568,602,552,640,688],"class_list":["post-4511","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-greinar-og-hugvekjur-articles","tag-adam","tag-ai","tag-artificial-intelligence","tag-biblian","tag-evar","tag-gervigreind","tag-gud","tag-gudfraedi","tag-hoggormur","tag-jesus","tag-ljos","tag-paradis","tag-rettlaeti","tag-sannleikur","tag-sidferdi","tag-skaldskapur","tag-stjornmal","tag-syndarveruleiki","tag-tru","tag-veroldin"],"jetpack_sharing_enabled":true,"jetpack_featured_media_url":"","_links":{"self":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/4511","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/users\/2"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcomments&post=4511"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/4511\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fmedia&parent=4511"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcategories&post=4511"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Ftags&post=4511"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}