{"id":4341,"date":"2023-12-01T16:46:05","date_gmt":"2023-12-01T16:46:05","guid":{"rendered":"http:\/\/ornbardur.com\/2023\/12\/01\/jon-thorgeir-hallgrimsson-1931-2023\/"},"modified":"2023-12-01T16:46:05","modified_gmt":"2023-12-01T16:46:05","slug":"jon-thorgeir-hallgrimsson-1931-2023","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/ornbardur.com\/?p=4341","title":{"rendered":"+J\u00f3n \u00deorgeir Hallgr\u00edmsson 1931-2023"},"content":{"rendered":"\n<p class=\"wp-block-paragraph\">B\u00e1lf\u00f6r fr\u00e1 Neskirkju f\u00f6studaginn 1. des. 2023<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00d6rn B\u00e1r\u00f0ur J\u00f3nsson<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Minningaror\u00f0<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>+J\u00f3n \u00deorgeir Hallgr\u00edmsson<\/strong><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><em>Yfirl\u00e6knir, lektor og d\u00f3sent vi\u00f0 l\u00e6knadeild H\u00cd og kennari vi\u00f0 Lj\u00f3sm\u00e6\u00f0rask\u00f3la \u00cdslands. Gegndi margv\u00edslegum tr\u00fana\u00f0arst\u00f6rfum.<\/em><\/p>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-image size-large\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"1259\" height=\"1787\" src=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2023\/12\/img_2785-1.jpg?w=721\" alt=\"\" class=\"wp-image-4336\" \/><\/figure>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">f. 20. \u00e1g\u00fast 1931<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">d. 21. n\u00f3vember 2023<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">H\u00e6gt er a\u00f0 hlusta og lesa h\u00e9r fyrir ne\u00f0an. S\u00e1lmaskr\u00e1in er aftast \u00ed f\u00e6rslunni. <\/p>\n\n\n\n<!--more-->\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-audio\"><audio controls src=\"https:\/\/pub-c849b6aaf98340c4bec7b480b0f7ffe9.r2.dev\/2023\/12\/jon-thorgeir-hallgrimsson-1931-2023.m4a\"><\/audio><\/figure>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">J\u00f3n \u00deorgeir Hallgr\u00edmsson var eftirminnilegur ma\u00f0ur, svipmikill, augun sk\u00f6rp og n\u00e6rveran sterk. \u00c9g kynntist honum \u00ed Neskl\u00fabbnum \u00fear sem hann l\u00e9k golf \u00ed g\u00f3\u00f0ra vina h\u00f3pi. M\u00e9r fannst hann \u00e6t\u00ed\u00f0 vera eins og konungur lj\u00f3nanna me\u00f0al f\u00e9laga sinna \u00fear &#8211; The Lion King! \u00deeir eru n\u00fa sumir horfnir og allir a\u00f0rir lifandi menn \u00ed \u00feessari ver\u00f6ld, karlar og konur, n\u00e1lgast lokafl\u00f6tina \u00e1 velli l\u00edfsins.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hann lif\u00f0i merka t\u00edma, s\u00e1 \u00fej\u00f3\u00f0 s\u00edna r\u00edsa \u00far f\u00e1t\u00e6kt og upplif\u00f0i \u00f3tr\u00falegar framfarir \u00e1 sinni starfs\u00e6vi.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">J\u00f3n f\u00e6ddist \u00ed Reykjav\u00edk 20. \u00e1g\u00fast 1931 og lif\u00f0i g\u00f3\u00f0a daga og var\u00f0 92ja \u00e1ra a\u00f0 aldri er hann l\u00e9st \u00e1 heimili s\u00ednu, Sl\u00e9ttuvegi 17, \u00ed Reykjav\u00edk hinn 21. n\u00f3vember s.l.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">For\u00adeldr\u00adar hans voru hj\u00f3n\u00adin Margr\u00e9t Ingir\u00ed\u00f0ur J\u00f3nsd\u00f3ttir, tals\u00edmav\u00f6r\u00f0ur, (f. 20.8.1909, d. 4.3. 1984), og T\u00f3mas Hallgr\u00edmsson T\u00f3masson, bankaritari, (f. 9.8. 1894, d. 21.3 1967). Systkini J\u00f3ns eru \u00cdsak Gu\u00f0mundur, l\u00e6knir, f. 4.7. 1935, og Krist\u00edn Ingir\u00ed\u00f0ur, lyfjat\u00e6knir f. 6.2. 1941.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Um hann hafa margir kollegar sagt a\u00f0 hann hafi veri\u00f0 fars\u00e6ll \u00ed starfi. \u00dea\u00f0 er g\u00f3\u00f0 einkunn og miki\u00f0 l\u00e1n a\u00f0 vera fars\u00e6l manneskja. Fars\u00e6ldin er a\u00f0 hluta til f\u00f3lgin \u00ed \u00fev\u00ed a\u00f0 kunna a\u00f0 vinna \u00far atvikum l\u00edfsins, takast \u00e1 vi\u00f0 \u00e1skoranir, sigrast \u00e1 erfi\u00f0leikum og gefast aldrei upp.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">L\u00edfi\u00f0 er samvinna Gu\u00f0s og manns og n\u00e6st komumst vi\u00f0 pers\u00f3nu Gu\u00f0s \u00ed Kristi sem var \u00ed senn t\u00falkandi l\u00f6gm\u00e1lsins \u00fe.e.a.s. laga Gy\u00f0inga, l\u00e6knir sj\u00fakra og ba\u00f0 fyrir f\u00f3lki og heimi, hann var \u00fev\u00ed \u00ed senn l\u00f6gfr\u00e6\u00f0ingur, l\u00e6knir og prestur.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Stephan G. Stephansson, sem flutti til Vesturheims og kynntist \u00fear har\u00f0ri l\u00edfsbar\u00e1ttu, og kalla\u00f0i sig Baslhagmenni\u00f0, var leitandi efasemdarma\u00f0ur og hugsu\u00f0ur. Hann orti margt og m.a. \u00feessa l\u00fdsandi v\u00edsu um basli\u00f0 \u00ed l\u00edfi s\u00ednu sem margir kunna:<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">L\u00f6ngum var \u00e9g l\u00e6knir minn,<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">l\u00f6gfr\u00e6\u00f0ingur, prestur,<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">smi\u00f0ur, k\u00f3ngur, kennarinn,<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">kerra, pl\u00f3gur, hestur.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Og \u00feessi hlutverk sk\u00e1ldsins speglast \u00ed H\u00e1sk\u00f3la \u00cdslands sem<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u201cvar stofna\u00f0ur 17. j\u00fan\u00ed \u00e1ri\u00f0 1911, \u00e1 aldarafm\u00e6li J\u00f3ns Sigur\u00f0ssonar forseta og fyrstu 29 \u00e1rin var hann til h\u00fasa \u00ed Al\u00feingish\u00fasinu vi\u00f0 Austurv\u00f6ll. Vi\u00f0 stofnun H\u00e1sk\u00f3la \u00cdslands voru Prestask\u00f3linn, L\u00e6knask\u00f3linn og Lagask\u00f3linn sameina\u00f0ir og myndu\u00f0u hver s\u00edna deild sk\u00f3lans . . . \u201c<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">H\u00e1sk\u00f3la\u00e1ri\u00f0 1911-1912 voru nemendur einungis 45 og \u00fear af ein kona\u201d.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Margt hefur breyst fr\u00e1 stofnun H\u00cd og n\u00fa skipta nemendur \u00fe\u00fasundum og konur \u00ed meirihluta.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Landsp\u00edtalinn t\u00f3k til starfa 1930 \u00e1ri \u00e1\u00f0ur en J\u00f3n f\u00e6ddist og hornsteinn var lag\u00f0ur a\u00f0 a\u00f0albyggingu H\u00cd 1936 \u00feegar J\u00f3n var 5 \u00e1ra.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00dea\u00f0 voru au\u00f0vita\u00f0 forr\u00e9ttindi a\u00f0 f\u00e6\u00f0ast og alast upp \u00ed henni Reykjav\u00edk. J\u00f3n var r\u00e9ttur ma\u00f0ur \u00e1 r\u00e9ttum t\u00edma. Arkitektinn, Gu\u00f0j\u00f3n Sam\u00faelsson, teikna\u00f0i inn \u00ferj\u00e1r steins\u00falur yfir anddyri H\u00e1sk\u00f3lans, sem eru eins og \u00f6ndvegiss\u00falur og \u00fe\u00e6r t\u00e1kna hinar \u00ferj\u00e1r fornu n\u00e1msgreinar: gu\u00f0fr\u00e6\u00f0i, l\u00e6knisfr\u00e6\u00f0i og l\u00f6gfr\u00e6\u00f0i.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Og \u00ed dag, 1. desember, f\u00f6gnum vi\u00f0 fullveldi \u00cdslands! Til hamingju, \u00cdsland!<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">L\u00edfi\u00f0 er bar\u00e1tta og vi\u00f0 h\u00f6fum s\u00e9\u00f0 hvernig \u00fej\u00f3\u00f0in hefur unni\u00f0 sig \u00far allsleysi til velmegunar \u00e1 li\u00f0inni \u00f6ld. L\u00edfi\u00f0 tekur \u00e1, en verkefni\u00f0 er a\u00f0 sigrast \u00e1 m\u00f3tl\u00e6tinu og komast \u00ed land \u00fe\u00f3tt \u00e1 m\u00f3ti bl\u00e1si. \u00dea\u00f0 vissi f\u00f3lk \u00e1 fyrri hluta li\u00f0innar aldar og \u00fea\u00f0 \u00feekkti J\u00f3n \u00deorgeir, sem \u00f3x \u00far grasi h\u00e9r \u00ed n\u00e1grenninu.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Foreldrar hans bjuggu a\u00f0 Reykjav\u00edkurvegi 1, \u00ed Skerjafir\u00f0i, en h\u00fasi\u00f0 sem \u00ed haf\u00f0i veri\u00f0 P\u00f3sth\u00fasi\u00f0, st\u00f3\u00f0 \u00e1\u00f0ur \u00fear sem H\u00f3tel Borg reis. \u00dear f\u00e6ddust \u00feau systkinin \u00ferj\u00fa. Vegna flugvallarins var h\u00fasi\u00f0 flutt inn \u00e1 Br\u00fanaveg og stendur \u00fear enn. Gantast var me\u00f0 a\u00f0 systkinin hef\u00f0u \u00f6ll komi\u00f0 me\u00f0 p\u00f3stinum!<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">S\u00ed\u00f0ustu j\u00f3lin \u00ed Skerjafir\u00f0inum var T\u00f3mas pabbi \u00feeirra \u00e1 V\u00edfilsst\u00f6\u00f0um vegna berkla. \u00deau heims\u00f3ttu hann um j\u00f3laleiti\u00f0 &#8211; og eiginlega til a\u00f0 kve\u00f0ja hann. \u00cdsak, br\u00f3\u00f0ir J\u00f3ns, haf\u00f0i \u00e1 or\u00f0i a\u00f0 \u00ed \u00feeirri heims\u00f3kn, hafi afi Tom, eins og hann var kalla\u00f0ur, ekki veri\u00f0 \u00feess megnugur a\u00f0 tala, en engu a\u00f0 s\u00ed\u00f0ur bragga\u00f0ist hann nokku\u00f0 eftir \u00feetta, en n\u00e1\u00f0i \u00fe\u00f3 aldrei fullri heilsu. \u00c1 \u00feessum \u00e1rum var h\u00fasn\u00e6\u00f0isskortur \u00ed Reykjav\u00edk og um t\u00edma var fj\u00f6lskyldan \u00e1 vergangi.  \u00de\u00e1 var mikils vir\u00f0i a\u00f0 eiga gott bakland. Afi J\u00f3ns \u00deorgeirs, J\u00f3n Magn\u00fasson yfirfiskmats- og \u00fatger\u00f0arma\u00f0ur og kona hans, Ingibj\u00f6rg amma  \u00e1ttu h\u00fas \u00e1 Vesturvallag\u00f6tu 6, sem h\u00e9t Lindarbrekka. \u00c1 bakl\u00f3\u00f0 Lindarbrekku  var pakkh\u00fas sem \u00feau innr\u00e9ttu\u00f0u fyrir fj\u00f6lskylduna. \u00dearna er J\u00f3n \u00deorgeir st\u00e1lpa\u00f0ur drengur og me\u00f0 f\u00e9laga s\u00ednum lag\u00f0i hann til heimilisins me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 selja b\u00f6kur og k\u00f3k\u00f3sbollur. K\u00f3k\u00f3sbollur voru alltaf hans upp\u00e1halds s\u00e6lg\u00e6ti.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Br\u00e6\u00f0urnir hj\u00e1lpu\u00f0u til heima. J\u00f3n var l\u00e1tinn vaska upp, en \u00cdsaki fannst \u00fea\u00f0 mikil upphef\u00f0 \u00feegar hann f\u00e9kk a\u00f0 \u00feerra \u00fea\u00f0 sem ekki var broth\u00e6tt. \u00cd stofunni hj\u00e1 \u00f6mmu, \u00c1stu J\u00fal\u00edu, var forl\u00e1ta ruggust\u00f3ll. Hj\u00e1 henni l\u00e6r\u00f0u \u00feeir b\u00e6nir. J\u00f3n s\u00e1 um <em>Fa\u00f0ir vori\u00f0<\/em>, en \u00cdsak, <em>\u00d3, Jes\u00fa, br\u00f3\u00f0ir besti<\/em>, sem er sex erindi og \u00e1tti \u00cdsak \u00fea\u00f0 til a\u00f0 sofna \u00ed ruggust\u00f3l \u00f6mmu \u00e1\u00f0ur en hann gat kl\u00e1ra\u00f0 versin.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Jorri, eins og hann var oft kalla\u00f0ur, \u00f3lst upp \u00e1 vonar\u00f6ld, \u00feegar f\u00f3lki\u00f0 \u00ed landinu l\u00e9t sig dreyma um bjarta framt\u00ed\u00f0, l\u00fd\u00f0veldi, togara, verksmi\u00f0jur, fleira f\u00f3lk til a\u00f0 \u00fej\u00f3na \u00fej\u00f3\u00f0f\u00e9laginu me\u00f0 margskonar menntun.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">J\u00f3n kv\u00e6ntist Steinger\u00f0i \u00de\u00f3risd\u00f3ttur 14. j\u00fan\u00ed 1952. H\u00fan var f\u00e6dd 9.2. 1935 og l\u00e9st 12.3. 2015. Foreldrar hennar voru hj\u00f3nin Steinunn Sveinsd\u00f3ttir, h\u00fasm\u00f3\u00f0ir, (f. 1.2. 1911, d. 3.12. 2002), og \u00de\u00f3rir Kjartansson, l\u00f6gfr\u00e6\u00f0ingur, (f. 6.6. 1909, d. 12.6. 1974).<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">B\u00f6rn Steinger\u00f0ar og J\u00f3ns eru:<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">1. Ingibj\u00f6rg \u00de\u00f3ra, hj\u00fakrunarfr\u00e6\u00f0ingur, f. 8.12. 1952. D\u00f3ttir hennar og fv. eiginmanns, Kristj\u00e1ns V\u00edkingssonar, l\u00e6knis, (f. 26.6. 1949, d. 21.1. 1982), er Steinger\u00f0ur Gn\u00e1 og h\u00fan \u00e1 \u00ferj\u00fa b\u00f6rn. Seinni eiginma\u00f0ur Ingibjargar var H\u00f6r\u00f0ur \u00deorvaldsson, bifv\u00e9lavirkjameistari, (f. 12.11. 1942, d. 4.1. 2011). B\u00f6rn \u00feeirra eru H\u00f6rn, h\u00fan \u00e1 tv\u00f6 b\u00f6rn og \u00deorgeir Orri, sem \u00e1 tv\u00f6 b\u00f6rn.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">2. Steinunn Gu\u00f0n\u00fd, br\u00e1\u00f0a- og heimilisl\u00e6knir, f. 18.9. 1956. Eiginma\u00f0ur hennar er Frosti F. J\u00f3hannsson \u00fej\u00f3\u00f0h\u00e1ttafr\u00e6\u00f0ingur og fv. framkv\u00e6mdastj\u00f3ri, f. 27.4. 1952. B\u00f6rn \u00feeirra eru Hallgr\u00edmur Sn\u00e6r, sem \u00e1 eitt barn, \u00deorger\u00f0ur Dr\u00edfa, sem \u00e1 \u00ferj\u00fa b\u00f6rn og Kristr\u00fan Mj\u00f6ll, sem \u00e1 tv\u00f6 b\u00f6rn.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">3. Margr\u00e9t Ingir\u00ed\u00f0ur, hj\u00fakrunarfr\u00e6\u00f0ingur og lj\u00f3sm\u00f3\u00f0ir, f. 13.3. 1959. Eiginma\u00f0ur hennar er Kristj\u00e1n Erik Kristj\u00e1nsson, h\u00fasasm\u00ed\u00f0ameistari, (f. 19.4. 1958). B\u00f6rn \u00feeirra eru J\u00f3n \u00deorgeir, sem \u00e1 eitt barn, Kjartan Darri, sem \u00e1 tv\u00f6 b\u00f6rn og Krist\u00edn Erla L\u00edna, sem \u00e1 tv\u00f6 b\u00f6rn.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">4. \u00de\u00f3rir, l\u00f6gfr\u00e6\u00f0ingur og h\u00fasam\u00e1lari, f. 1.10. 1963. Eiginkona hans er Rannveig Ingibj\u00f6rg Thejll, stu\u00f0ningsfulltr\u00fai, (f. 16.11. 1965). Sonur \u00feeirra er Magn\u00fas Birnir. D\u00f3ttir \u00de\u00f3ris og fv. samb\u00fdliskonu, Fri\u00f0ger\u00f0ar Ebbu Sturlud\u00f3ttur, b\u00f3kara, (f. 4.7. 1965), er Steinger\u00f0ur Sonja.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">5. T\u00f3mas, vi\u00f0skiptafr\u00e6\u00f0ingur, f. 1.10. 1963. Fv. eiginkona hans er Gy\u00f0a \u00c1rnad\u00f3ttir, deildarstj\u00f3ri, f. 15.10. 1966. Synir \u00feeirra eru Valgeir, sem \u00e1 eitt barn og Styrmir, sem \u00e1 tv\u00f6 b\u00f6rn.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">St\u00falkurnar f\u00e6ddust allar \u00e1 Br\u00e6\u00f0raborgarst\u00edg 1 en drengirnir \u00ed Sv\u00ed\u00fej\u00f3\u00f0.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Borist hefur kve\u00f0ja:<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00deorgeir Orri Har\u00f0arson, d\u00f3ttursonur J\u00f3ns og \u00c1sd\u00eds kona hans \u00e1samt b\u00f6rnum, senda hugheilar kve\u00f0jur fr\u00e1 Sv\u00ed\u00fej\u00f3\u00f0.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Jorri vakti athygli, hvar sem hann f\u00f3r. Hann var sjarmerandi karakter, en bar ekki tilfinningar s\u00ednar \u00e1 torg. Hann var fr\u00f3\u00f0leiksbrunnur um land og \u00fej\u00f3\u00f0, listir og s\u00f6gu og fylgdist vel me\u00f0 m\u00e1lefnum l\u00ed\u00f0andi stundar. Vegna uppruna s\u00edns og uppvaxtar var hann \u00ed senn borgari og al\u00fe\u00fd\u00f0uma\u00f0ur. Hann spila\u00f0i golf og stunda\u00f0i reglulega l\u00edkamsr\u00e6kt.  Hann leita\u00f0i v\u00ed\u00f0a fr\u00f3\u00f0leiks. Hann var ma\u00f0ur hef\u00f0a, n\u00e6gjusamur, en kunni l\u00edka a\u00f0 nj\u00f3ta l\u00edfsins lystisemda.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">J\u00f3n var mikill s\u00f6guma\u00f0ur og naut \u00feess a\u00f0 segja fr\u00e1 li\u00f0num t\u00edma.&nbsp;<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c1 n\u00e1ms\u00e1runum var hann h\u00e1seti \u00e1 togaranum Fylki og svo \u00e1 hvalvei\u00f0ib\u00e1tum. Sem ungur ma\u00f0ur hj\u00e1lpa\u00f0i hann til hj\u00e1 Sveini afa Steinger\u00f0ar \u00e1 Br\u00e6\u00f0raborgarst\u00edgnum, sem rak Sveinsbakar\u00ed af myndugleik og sag\u00f0i J\u00f3n s\u00ed\u00f0ar a\u00f0 \u00fear hafi hann veri\u00f0 \u201ctekinn \u00ed bakar\u00edi\u00f0\u201d.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">J\u00f3n og systkini hans voru send \u00ed sveit \u00ed Vestur-Landeyjunum sem haf\u00f0i m\u00f3tandi \u00e1hrif \u00e1 \u00feau. Sveitin var \u00ed huga hans mannb\u00e6tandi og efldi tengsl vi\u00f0 l\u00edfi\u00f0 sj\u00e1lft, vi\u00f0 menn og skepnur, ve\u00f0ur og vinda, s\u00f3l og sumar. \u00deegar hann, Reykjav\u00edkurdrengurinn, kom fyrst \u00ed sveitina var hann spur\u00f0ur: Hva\u00f0  viltu bor\u00f0a? Hann svara\u00f0i hiklaust: K\u00f3tilettur! En f\u00f3lki\u00f0 \u00ed sveitinni haf\u00f0i ekki hugmynd um hva\u00f0 \u00ed ver\u00f6ldinni \u00fea\u00f0 v\u00e6ri!<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">J\u00f3n \u00deorgeir lauk st\u00fad\u00adents\u00adpr\u00f3fi fr\u00e1 Mennta\u00adsk\u00f3l\u00adan\u00adum \u00ed Reykja\u00adv\u00edk 1951 og emb\u00e6ttispr\u00f3fi \u00ed l\u00e6knisfr\u00e6\u00f0i fr\u00e1 H\u00e1\u00adsk\u00f3la \u00cdslands 1959. Hann f\u00f3r \u00ed s\u00e9r\u00adn\u00e1m til Dan\u00admerkur og Sv\u00ed\u00fej\u00f3\u00f0ar og var\u00f0 s\u00e9rfr\u00e6\u00f0ing\u00adur \u00ed kven\u00adsj\u00fak\u00add\u00f3m\u00adum og f\u00e6\u00f0ing\u00adar\u00adhj\u00e1lp 1966.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Eft\u00adir heimkomu \u00far s\u00e9r\u00adfr\u00e6\u00f0in\u00e1mi h\u00f3f hann st\u00f6rf \u00e1 f\u00e6\u00f0ing\u00adar- og kvensj\u00fakd\u00f3madeild Land\u00adsp\u00edt\u00adal\u00adans, var s\u00ed\u00f0ar yfirl\u00e6knir s\u00f6mu deildar og svi\u00f0sstj\u00f3ri kvenl\u00e6kningasvi\u00f0s. \u00de\u00e1 vann hann \u00e1 Leit\u00adar\u00adst\u00f6\u00f0 Krabba\u00admeinsf\u00e9\u00adlags \u00cdslands um \u00e1rabil og var einn frumkv\u00f6\u00f0la \u00ed forv\u00f6rnum krabbameina kvenna. Hann var lektor og s\u00ed\u00f0an d\u00f3sent \u00ed f\u00e6\u00f0ingar- og kvensj\u00fakd\u00f3mafr\u00e6\u00f0um vi\u00f0 l\u00e6knadeild H\u00e1sk\u00f3la \u00cdslands. Einnig var hann kennari vi\u00f0 Lj\u00f3s\u00adm\u00e6\u00f0rask\u00f3la \u00cdslands.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hann gegndi fj\u00f6lda tr\u00fana\u00f0arstarfa. Hann var m.a. forma\u00f0ur F\u00e9lags \u00edslenskra f\u00e6\u00f0ingar- og kvensj\u00fakd\u00f3mal\u00e6kna, sat \u00ed stj\u00f3rn F\u00e9lags Nor\u00adr\u00e6nna kven\u00adsj\u00fak\u00add\u00f3ma\u00adl\u00e6kna, var forseti Norr\u00e6nu krabbameinssamtakanna, sat \u00ed l\u00e6knar\u00e1\u00f0i Landsp\u00edtalans og var forma\u00f0ur Krabbameinsf\u00e9lags Reykjav\u00edkur og \u00cdslands.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c1 menntask\u00f3la\u00e1rum barnanna fengu \u00feau og f\u00e9lagar \u00feeirra far \u00ed sk\u00f3lann me\u00f0 honum, oftast \u00e1 Dodge-inum en stundum \u00e1 Sk\u00f3da, \u00fev\u00ed \u00fea\u00f0 var \u00e1 lei\u00f0 hans til vinnu. Eitt sinn teppti \u00f6skub\u00edll g\u00f6tuna \u00feegar hann \u00f3k \u00feeim \u00e1 Sk\u00f3danum. Hann ba\u00f0 karlana vinsamlega a\u00f0 f\u00e6ra b\u00edlinn \u00fev\u00ed hann v\u00e6ri l\u00e6knir og a\u00f0ger\u00f0 bi\u00f0i hans \u00e1 sj\u00fakrah\u00fasinu. \u00deeir bara brostu og hreyf\u00f0u sig hvergi: Ha, ha, l\u00e6knir \u00e1 Sk\u00f3da, sag\u00f0i einn \u00feeirra, nei gl\u00e6tan!  En J\u00f3n var nefnilega ekki mikill efnishyggjuma\u00f0ur og skamma\u00f0ist s\u00edn ekkert fyrir a\u00f0 aka \u00e1 Sk\u00f3danum.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">J\u00f3n og Steinger\u00f0ur bjuggu \u00ed Sv\u00ed\u00fej\u00f3\u00f0 \u00ed sex \u00e1r og tengdust \u00f6\u00f0rum l\u00e6knafj\u00f6lskyldum vin\u00e1ttub\u00f6ndum sem aldrei rofnu\u00f0u. B\u00f6rnin eiga g\u00f3\u00f0ar minningar fr\u00e1 Sv\u00ed\u00fej\u00f3\u00f0ar\u00e1runum. Eftir heimkomuna \u00feegar \u00feau voru b\u00fain a\u00f0 koma s\u00e9r vel fyrir \u00ed B\u00falandinu fer\u00f0u\u00f0ust \u00feau miki\u00f0 og nutu l\u00edfsins. \u00cd B\u00falandi var oft glatt \u00e1 hjalla, fj\u00f6lskyldubo\u00f0 og veislur me\u00f0 vinum, \u00fear sem sk\u00e1la\u00f0 var og sungi\u00f0, i\u00f0ulega undir p\u00edan\u00f3leik.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">En \u00fea\u00f0 ur\u00f0u straumhv\u00f6rf \u00ed l\u00edfi fj\u00f6lskyldunnar \u00feegar Steinger\u00f0ur veiktist skyndilega \u00e1ri\u00f0 1993 og var\u00f0 aldrei s\u00f6m eftir \u00fea\u00f0. H\u00fan lama\u00f0ist og margt breyttist \u00ed hennar f\u00e6rni, en h\u00fan h\u00e9lt \u00fe\u00f3 m\u00e1linu.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Steinger\u00f0ur haf\u00f0i \u00e1tt annr\u00edka daga \u00e1 st\u00f3ru heimili, en \u00e1 \u00feessum t\u00edma voru b\u00f6rnin flogin \u00far hrei\u00f0rinu og h\u00fan farin a\u00f0 nj\u00f3ta t\u00f3mstunda og f\u00e9lagsstarfa, f\u00f3r m.a. a\u00f0 spila golf eins og J\u00f3n og var virk \u00ed Oddfellowreglunni.&nbsp;<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">J\u00f3n sinnti henni vel alla t\u00ed\u00f0 og vitja\u00f0i hennar daglega eftir a\u00f0 h\u00fan \u00feurfti hj\u00fakrunar vi\u00f0 \u00ed Sk\u00f3garb\u00e6. H\u00fan kom vikulega heim \u00fear sem fj\u00f6lskyldan hittist og naut samveru.&nbsp;<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Eftirlifandi samb\u00fdliskona J\u00f3ns \u00deorgeirs er Gu\u00f0r\u00fan Gy\u00f0a Sveinsd\u00f3ttir, fer\u00f0ar\u00e1\u00f0gjafi, f. 20.3. 1943. Foreldrar hennar voru hj\u00f3nin s\u00e9ra Sveinn \u00d6gmundsson, f. 20.5. 1897, d. 1.10. 1979 og Dagbj\u00f6rt G\u00edslad\u00f3ttir, f. 19.5. 1915, d. 3.4. 2006.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Gy\u00f0a starfa\u00f0i lengst af sem fer\u00f0ar\u00e1\u00f0gjafi hj\u00e1 flugf\u00e9l\u00f6gum og fer\u00f0askrifstofum og reynsla hennar kom s\u00e9r vel \u00feegar skipuleggja \u00e1tti fer\u00f0ir. Gy\u00f0a smita\u00f0ist af golfbakter\u00edunni og f\u00f3ru \u00feau J\u00f3n oft \u00ed golffer\u00f0ir, fer\u00f0u\u00f0ust v\u00ed\u00f0a og sko\u00f0u\u00f0u fjarl\u00e6g l\u00f6nd. \u00deau \u00e1ttu m\u00f6rg sameiginleg \u00e1hugam\u00e1l og \u00fea\u00f0 f\u00f3r ekki fram hj\u00e1 neinum a\u00f0 \u00feau nutu s\u00edn saman. B\u00f6rnin hafa \u00e1tt margar g\u00f3\u00f0ar stundir me\u00f0 \u00feeim. S\u00ed\u00f0ustu misserin, \u00feegar \u00fathald og \u00ferek J\u00f3ns f\u00f3r minnkandi, st\u00f3\u00f0 h\u00fan \u00fe\u00e9tt vi\u00f0 hli\u00f0 hans og var sto\u00f0 hans og stytta. Fyrir \u00fea\u00f0 eru b\u00f6rn J\u00f3ns \u00e6vinlega \u00feakkl\u00e1t. <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">J\u00f3n kynntist golf\u00ed\u00fer\u00f3ttinni \u00e1 Sv\u00ed\u00fej\u00f3\u00f0ar\u00e1runum og var virkur me\u00f0limur \u00ed Neskl\u00fabbnum. J\u00e1, golf er merkileg \u00ed\u00fer\u00f3tt sem \u00fej\u00e1lfar hug og h\u00f6nd, f\u00ednhreyfingar, jafnv\u00e6gi, sj\u00f3n, hjarta og lungu, s\u00e9rstaklega \u00e1 \u00feeim 18 holum sem leiknar eru, en svo er \u00fea\u00f0 hin 19. \u00fear sem liti\u00f0 er yfir farinn veg og tiltekin ger\u00f0 af lyftingum stunda\u00f0ar! Ekki meir um \u00fea\u00f0!<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c9g hef \u00e1\u00f0ur minnst \u00e1 \u00fea\u00f0 vi\u00f0 \u00fatf\u00f6r eins af golff\u00e9l\u00f6gum J\u00f3ns, a\u00f0 golf v\u00e6ri l\u00edklega kristilegust allra \u00ed\u00fer\u00f3tta. \u00cd golfi skiptir nefnilega m\u00e1li a\u00f0 sl\u00e1 beint og fallega, a\u00f0 n\u00e1 a\u00f0 losna vi\u00f0 sl\u00e6s og h\u00fakk og komast a\u00f0 holunni \u00ed sem allra f\u00e6stum h\u00f6ggum. En \u00fea\u00f0 er n\u00fa verkurinn, \u00fev\u00ed sl\u00e6s og h\u00fakk er einn meginkvilli allra manna, hvort sem \u00feeir spila golf e\u00f0ur ei. \u00cd N\u00fdja testamentinu er tala\u00f0 um syndina og \u00e1 frumm\u00e1li \u00feess, gr\u00edsku, er syndin tj\u00e1\u00f0 me\u00f0 or\u00f0inu <em>hamartia<\/em> sem merkir geigun. Vi\u00f0 h\u00fakkum \u00f6ll og sl\u00e6sum, sl\u00e1um feilh\u00f6gg \u00ed l\u00edfinu, en n\u00e1um samt a\u00f0 kl\u00e1ra hringinn hverju sinni. \u00cd f\u00f3tboltanum brenna menn af \u00ed v\u00edtaspyrnu og sama \u00e1 vi\u00f0 um handbolta og k\u00f6rfu. Og golfi\u00f0 hefur svo \u00feessar d\u00e1samlegu jafnr\u00e6\u00f0islausn sem heitir forgj\u00f6f, sem er \u00ed raun \u00f3m\u00f6guleg \u00fe\u00fd\u00f0ing \u00e1 enska or\u00f0inu handicap e\u00f0a f\u00f6tlun. Forgj\u00f6f er \u00e6tla\u00f0 a\u00f0 stu\u00f0la a\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feeir sem minna kunna geti leiki\u00f0 me\u00f0 hinum betri og noti\u00f0 \u00feess. Anna\u00f0 v\u00e6ri synd. Forgj\u00f6f er au\u00f0vita\u00f0 ekkert anna\u00f0 en fyrirgefning synda, fyrirgefning \u00e1 klaufaskap, h\u00fakki, sl\u00e6si og fleiri kvillum. J\u00e1, vi\u00f0 erum nefnilega \u00f6ll n\u00e1skyld!<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00cd l\u00edfinu m\u00e6ta okkur \u00fdmsar \u00f3gnir og \u00feess vegna \u00fe\u00f6rfnumst vi\u00f0 hj\u00e1lpar \u00e1 l\u00edfsveginum. L\u00edfi\u00f0 og samf\u00e9lagi\u00f0 \u00fearfnast mennta\u00f0s f\u00f3lks svo v\u00edsa\u00f0 s\u00e9 til grunndeilda H\u00cd &#8211; \u00fearfnast l\u00edfi\u00f0 n\u00fa sem fyrr, l\u00e6kna og l\u00f6gfr\u00e6\u00f0inga, en l\u00edka kirkju og presta &#8211; \u00fev\u00ed i\u00f0kun tr\u00faar er \u00fej\u00e1lfun \u00ed a\u00f0 lifa vel og \u00ed fars\u00e6ld, \u00fev\u00ed hin kristnu gildi og tr\u00fain \u00e1 Gu\u00f0 og hi\u00f0 g\u00f3\u00f0a, eru undirsta\u00f0a \u00fej\u00f3\u00f0f\u00e9lagsins, grundv\u00f6llur Vestr\u00e6nna l\u00fd\u00f0r\u00e6\u00f0isr\u00edkja. \u00d6ll \u00feau mannr\u00e9ttindi, sem vi\u00f0 viljum standa v\u00f6r\u00f0 um, eru af einum og sama mei\u00f0i, kristinni tr\u00fa, komin fr\u00e1 Honum, sem var \u00ed senn l\u00e6knir, l\u00f6gspekingur, prestur.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">J\u00f3n var st\u00e1lminnugur alla t\u00ed\u00f0 en sj\u00f3nin farin a\u00f0 daprast hin s\u00ed\u00f0ari \u00e1r, en hann fylgdist \u00e1vallt vel me\u00f0. \u00deegar hann var h\u00e6ttur a\u00f0 geta horft \u00e1 fr\u00e9ttaveitur, golf og sn\u00f3ker \u00ed sj\u00f3nvarpinu, hlusta\u00f0i hann \u00e1 sk\u00e1lds\u00f6gur, \u00e6vis\u00f6gur og vi\u00f0tals\u00fe\u00e6tti, var\u00f0 \u00fea\u00f0 upp\u00e1halds d\u00e6gradv\u00f6l hans.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">J\u00f3n var skemmtilegur ma\u00f0ur og eftirminnilegur. Hann tala\u00f0i ekki illa um nokkurn mann og kvarta\u00f0i aldrei. \u00c1 gle\u00f0istundum sag\u00f0i  hann gjarnan: \u201cJohn Brown beautiful har det s\u00e5 gott\u201d. Hann kunni sko a\u00f0 \u201chygge seg\u201d eins og danskurinn segir.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hann er h\u00e9r kvaddur af fj\u00f6lmenni. J\u00f3n var \u00ed senn l\u00e6knir, l\u00f6gfr\u00e6\u00f0ingur og prestur, skv. t\u00falkun minni, kunni sitt fag, \u00feekkti grunngildi samf\u00e9lagsins og m\u00f3ta\u00f0i f\u00f3lki\u00f0 sitt af \u00fev\u00ed g\u00f3\u00f0a sem vestr\u00e6n l\u00fd\u00f0r\u00e6\u00f0is\u00fej\u00f3\u00f0f\u00e9l\u00f6g standa fyrir. Og vi\u00f0 \u00f6ll sem erum foreldrar h\u00f6fum veri\u00f0 l\u00e6knar, l\u00f6gfr\u00e6\u00f0ingar og prestar, me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 kenna \u00feeim a\u00f0 lifa.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">T\u00f3nlistin lyfti honum \u00ed himinh\u00e6\u00f0ir. \u00d6ll fegur\u00f0 \u00e1 s\u00e9r fyrirmynd \u00ed handanverunni eins og heimspekingurinn Plat\u00f3n r\u00e6ddi \u00e1 s\u00ednum t\u00edma. V\u00edsindin halda \u00fev\u00ed fram a\u00f0 hvergi \u00ed alheiminum s\u00e9u skilyr\u00f0i fyrir myndun hlj\u00f3\u00f0s nema \u00e1 \u00feessari agnarlitlu j\u00f6r\u00f0 sem vi\u00f0 byggjum. Hvergi annars sta\u00f0ar fyrirfinnst t\u00f3nlist!<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Alheimurinn er \u00f3gnarst\u00f3r, en utan hans, utan efnisheimsins, er himinninn og Gu\u00f0, \u00fev\u00ed Gu\u00f0 getur ekki veri\u00f0 hluti af efnisheiminum, sem hann skapa\u00f0i sj\u00e1lfur. V\u00edsindin geta ekki \u00fatsk\u00fdrt hvernig efnisheimurinn var\u00f0 til \u00far engu. Tr\u00fain gerir \u00fea\u00f0 me\u00f0 s\u00ednum h\u00e6tti og h\u00f6fundur sk\u00f6punars\u00f6gu Bibl\u00edunnar skynja\u00f0i \u00fea\u00f0 fyrir a.m.k. 2500 \u00e1rum, \u00e1n \u00feekkingar \u00e1 Hubbel-sj\u00f3naukanum, geimfer\u00f0um e\u00f0a v\u00edsindum n\u00fat\u00edmans, a\u00f0 lj\u00f3si\u00f0 v\u00e6ri forsenda alls og lag\u00f0i \u00fev\u00ed Gu\u00f0i sj\u00e1lfum or\u00f0 \u00ed munn, er hann rita\u00f0i fyrstu setningar 1. M\u00f3seb\u00f3kar, Genesis:<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00de\u00e1 sag\u00f0i Gu\u00f0: \u201eVer\u00f0i lj\u00f3s.\u201c<br \/>Og \u00fea\u00f0 var\u00f0 lj\u00f3s.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Einn mesti tr\u00favarnarma\u00f0ur li\u00f0innar aldar, breska sk\u00e1ldi\u00f0 og rith\u00f6fundurinn, C.S. Lewis sag\u00f0i m.a.:<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><em>\u00c9g tr\u00fai \u00e1 kristind\u00f3minn eins og \u00e9g tr\u00fai \u00fev\u00ed a\u00f0 s\u00f3lin hafi komi\u00f0 upp, ekki v.\u00fe.a. \u00e9g sj\u00e1i s\u00f3lina, heldur af \u00fev\u00ed a\u00f0 h\u00fan s\u00fdnir m\u00e9r allt anna\u00f0.<\/em><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Allt sem \u00fe\u00fa s\u00e9r\u00f0 er s\u00f3linni a\u00f0 \u00feakka.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Kristind\u00f3murinn er eins og s\u00f3lin, hann er t\u00falkunarlykill a\u00f0 l\u00edfinu. \u00deessu vil \u00e9g koma til skila, einkum til ungu kynsl\u00f3\u00f0arinnar, sem \u00fearf a\u00f0 \u00feekkja hi\u00f0 st\u00f3ra samhengi alls sem er.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Til a\u00f0 vi\u00f0halda \u00feeirri \u00feekkingu, \u00feurfum vi\u00f0 \u00e1fram vel mennta\u00f0 f\u00f3lk, l\u00e6kna, l\u00f6gfr\u00e6\u00f0inga, presta og \u00e1 fleiri svi\u00f0um, f\u00f3lk me\u00f0 gott hjartalag og skarpan og hl\u00fdjan hug, til \u00feess a\u00f0 halda heiminum \u00e1 r\u00e9ttu r\u00f3li k\u00e6rleika og fri\u00f0ar, j\u00f6fnu\u00f0ar og r\u00e9ttl\u00e6tis.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Gu\u00f0 blessi minningu J\u00f3ns \u00deorgeirs og Gu\u00f0 blessi \u00feig sem enn ert \u00e1 l\u00edfsveginum og mundar kylfur l\u00edfsins me\u00f0 \u00f6llum \u00fe\u00ednum h\u00fakkum og sl\u00e6sum. Megi hann lei\u00f0a \u00feig allt til s\u00ed\u00f0ustu gr\u00e6nu flatar \u00feessa l\u00edfs og inn \u00ed himininn sj\u00e1lfan \u00fear sem gle\u00f0in r\u00edkir &#8211; og t\u00f3nlistin!<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Amen.<\/p>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-image size-large\"><img decoding=\"async\" src=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2023\/12\/img_2788-1-1.jpg?w=1024\" alt=\"\" class=\"wp-image-4338\" \/><\/figure>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-image size-large\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"2545\" height=\"1799\" src=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2023\/12\/img_2787-1.jpg?w=1024\" alt=\"\" class=\"wp-image-4339\" \/><\/figure>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-image size-large\"><img decoding=\"async\" src=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2023\/12\/img_2786-1-1.jpg?w=1024\" alt=\"\" class=\"wp-image-4340\" \/><\/figure>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>B\u00e1lf\u00f6r fr\u00e1 Neskirkju f\u00f6studaginn 1. des. 2023 \u00d6rn B\u00e1r\u00f0ur J\u00f3nsson Minningaror\u00f0 +J\u00f3n \u00deorgeir Hallgr\u00edmsson Yfirl\u00e6knir, lektor og d\u00f3sent vi\u00f0 l\u00e6knadeild H\u00cd og kennari vi\u00f0 Lj\u00f3sm\u00e6\u00f0rask\u00f3la \u00cdslands. Gegndi margv\u00edslegum tr\u00fana\u00f0arst\u00f6rfum. f. 20. \u00e1g\u00fast 1931 d. 21. n\u00f3vember 2023 H\u00e6gt er a\u00f0 hlusta og lesa h\u00e9r fyrir ne\u00f0an. S\u00e1lmaskr\u00e1in er aftast \u00ed f\u00e6rslunni.<\/p>\n","protected":false},"author":2,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_jetpack_newsletter_access":"","_jetpack_dont_email_post_to_subs":false,"_jetpack_newsletter_tier_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paywalled_content":false,"_jetpack_hide_featured_image":false,"_jetpack_featured_image_duplicate_dismissed":0,"_jetpack_feature_clip_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":"","jetpack_post_was_ever_published":false},"categories":[7],"tags":[243,246,291,333,518,542,557,584,602,640,688],"class_list":["post-4341","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-minningarord-eulogies","tag-gud","tag-gudfraedi","tag-heimurinn","tag-jesus","tag-rettlaeti","tag-sannleikur","tag-sidferdi","tag-sorg","tag-stjornmal","tag-tru","tag-veroldin"],"jetpack_sharing_enabled":true,"jetpack_featured_media_url":"","_links":{"self":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/4341","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/users\/2"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcomments&post=4341"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/4341\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fmedia&parent=4341"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcategories&post=4341"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Ftags&post=4341"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}