{"id":4198,"date":"2023-11-07T20:38:30","date_gmt":"2023-11-07T20:38:30","guid":{"rendered":"http:\/\/ornbardur.com\/2023\/11\/07\/svanhildur-johannesdottir-1950-2023\/"},"modified":"2023-11-07T20:38:30","modified_gmt":"2023-11-07T20:38:30","slug":"svanhildur-johannesdottir-1950-2023","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/ornbardur.com\/?p=4198","title":{"rendered":"+Svanhildur J\u00f3hannesd\u00f3ttir 1950-2023"},"content":{"rendered":"\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Minningaror\u00f0 eftir <strong>\u00d6rn B\u00e1r\u00f0 J\u00f3nsson<\/strong><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Unnt er a\u00f0 lesa r\u00e6\u00f0una og hlusta \u00e1 hlj\u00f3\u00f0uppt\u00f6ku h\u00e9r fyrir ne\u00f0an. Kve\u00f0jur sem b\u00e1rust eru ne\u00f0st \u00ed textanum en voru ekki hluti r\u00e6\u00f0unnar.<\/p>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-image\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"718\" height=\"1603\" src=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2023\/11\/419bad7a-d931-4dd9-8b30-a8ba43b1d6b8-3730-000007a13917c41b_file.jpg?w=459\" alt=\"\" class=\"wp-image-4196\" \/><\/figure>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">leikkona, leiklistarkennari, leikstj\u00f3ri,<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">marka\u00f0s-, skrifstofu- og framkv\u00e6mdastj\u00f3ri<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">og fleira og fleira<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Sk\u00f3garseli 43, Reykjav\u00edk<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">B\u00e1lf\u00f6r fr\u00e1 Neskirkju<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00feri\u00f0judaginn 7. n\u00f3vember 2023 kl. 15<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Ritningarlestrar \u00ed ath\u00f6fninni:<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Matt 5.1-12 S\u00e6lubo\u00f0anirnar (sj\u00e1 ne\u00f0anm\u00e1ls)<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">J\u00f3h. 14.1-6 \u201c\u00c9g er vegurinn, sannleikurinn og l\u00edfi\u00f0\u201d (si\u00e1 ne\u00f0anm\u00e1ls)<\/p>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-image\"><img decoding=\"async\" src=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2023\/11\/d44c5b82-9575-4daf-9f8a-11def3b5bcc9-3730-000007a0b06b69ef_file-1.jpg?w=1024\" alt=\"\" class=\"wp-image-4195\" \/><\/figure>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-image\"><img decoding=\"async\" src=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2023\/11\/7fc10aeb-3e9f-426a-aed1-84dbaf46fcb2-3730-000007a070f2c36e_file-1.jpg?w=1024\" alt=\"\" class=\"wp-image-4194\" \/><\/figure>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-audio\"><audio controls src=\"https:\/\/pub-c849b6aaf98340c4bec7b480b0f7ffe9.r2.dev\/2023\/11\/svanhildur-johannesdottir-1950-2023.m4a\"><\/audio><\/figure>\n\n\n\n<!--more-->\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hvernig er unnt a\u00f0 skilgreina \u00feetta l\u00edf? Um aldir hefur \u00fea\u00f0 veri\u00f0 stunda\u00f0 a\u00f0 skilgreina l\u00edfi\u00f0 og \u00fe\u00e1 duga l\u00edklega hugv\u00edsindin best, listin og sk\u00e1ldskapurinn. B\u00f3kin, sem \u00ed \u00feessu h\u00fasi er \u00ed \u00f6ndvegi, er heilt b\u00f3kasafn, me\u00f0 fj\u00f6ldann allan af myndas\u00f6gum um l\u00edfi\u00f0. Jes\u00fas kenndi \u00ed d\u00e6mis\u00f6gum og Gamla testamenti\u00f0 geymir eina mikilv\u00e6gustu t\u00falkunarlykla mannkyns \u00ed sm\u00e1s\u00f6gum, \u00f6rs\u00f6gum eins og t.d. sk\u00f6punars\u00f6gunni, sem er lofgj\u00f6r\u00f0 felld inn \u00ed 7 daga ramma, sem h\u00f6fundurinn valdi s\u00e9r sem sni\u00f0m\u00e1t. Sl\u00edkar s\u00f6gur detta ekki ni\u00f0ur af himnum, en sk\u00e1ldin f\u00e1 \u00fea\u00f0an innbl\u00e1stur. Svo er \u00f6nnur saga um Adam og Evu \u00ed Eden \u00fear sem \u00feau uppg\u00f6tva nekt s\u00edna og varnarleysi gagnvart \u00fev\u00ed sem skekur \u00feessa ver\u00f6ld og einkum \u00fea\u00f0 sem kalla m\u00e1 breyskleika mannanna sj\u00e1lfra, brotal\u00f6mina \u00ed \u00feeim, sem \u00e1 m\u00e1li N\u00fdja testamentisins er hamartia, geigun. Umr\u00e6dd saga er svo vel samin me\u00f0 or\u00f0um a\u00f0 h\u00fan ver\u00f0ur a\u00f0 litlu m\u00e1lverki \u00ed huga okkar. H\u00fan er t\u00e1knsaga, skrifu\u00f0 af sk\u00e1ldi, sem haf\u00f0i l\u00edklega \u00e1tt \u00ed st\u00e6lum vi\u00f0 kerlu s\u00edna, sinnt \u00f3\u00fe\u00e6gum b\u00f6rnum og \u00e1tt \u00ed erjum vi\u00f0 systkin s\u00edn. Hvers vegna er l\u00edfi\u00f0 eins og \u00fea\u00f0 er? Og hann skrifar um \u00fea\u00f0 s\u00f6gu, m\u00e1lar mynd me\u00f0 or\u00f0um.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">A\u00f0 segja s\u00f6gur, \u00fea\u00f0 er mannanna skemmtan og lei\u00f0 til a\u00f0 skilja veruleikann. \u00dea\u00f0 er l\u00edfsins leikh\u00fas.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hefur\u00f0u hugleitt hve miki\u00f0 undur stafr\u00f3fi\u00f0 okkar er? \u00dea\u00f0 telur 32 b\u00f3kstafi, \u00fear af eru 6 broddstafir. Me\u00f0 \u00feessum t\u00e1knum getum vi\u00f0 sagt allt og hugsa\u00f0 allt me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 velja stafi eins og kubba \u00far Leg\u00f3-setti og ra\u00f0a saman \u00e1 \u00f3teljandi vegu. Og \u00feessir 32 stafir fylla allar b\u00e6kur okkar fr\u00e1 upphafi ritunars\u00f6gu \u00cdslendinga og allt til \u00feessa dags. \u00d6ll b\u00f3kas\u00f6fnin, allar greinarnar \u00e1 Netinu og f\u00e6rslurnar \u00e1 samf\u00e9lagsmi\u00f0lunum, eru ekkert anna\u00f0 en mismunandi g\u00e1fuleg r\u00f6\u00f0un \u00e1 \u00feessum 32 t\u00e1knum. Og \u00feannig er \u00feessum minningaror\u00f0um m\u00ednum ra\u00f0a\u00f0 saman \u00far 32 t\u00e1knum.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Svan\u00fd valdi leikh\u00fasi\u00f0 sem vettvang enda fr\u00e6gt leiklistarf\u00f3lk \u00ed \u00e6tt hennar. Hva\u00f0 sag\u00f0i fr\u00e6gasta leiksk\u00e1ld veraldar, Shakespeare, um l\u00edfi\u00f0? Skakgeir eins og \u00e9g kalla hann \u00e1 okkar \u00e1stk\u00e6ra, l\u00e6tur Jakob segja \u00ed verkinu &#8211; Sem y\u00f0ur \u00fe\u00f3knast &#8211; eftirfarandi:<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00d6ll ver\u00f6ldin er leiksvi\u00f0,<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">og a\u00f0eins leikarar hver karl og kona,<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00feau fara og koma \u00e1 s\u00ednum setta t\u00edma,<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">og s\u00e9rhver breytir oft um gervi,<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">og leikur sj\u00f6 \u00fe\u00e6tti sinnar eigin \u00e6vi.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">(Helgi H\u00e1lfdanarson, Leikrit I, II. \u00fe\u00e1ttur, 7. svi\u00f0, s. 230, Heimskringla, MCMLVI).<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00deannig hlj\u00f3\u00f0ar t\u00falkunin um l\u00edfi\u00f0 \u00ed \u00fe\u00fd\u00f0ingu Helga H\u00e1lfdanarsonar og hefur b\u00e6st vi\u00f0 \u00ed stafr\u00f3fsmengi\u00f0 st\u00f3ra \u00ed heiminum, sem t\u00falkun \u00e1 veruleikanum. Texti Skakgeirs fr\u00e1 Avon, g\u00e6ti svo vel s\u00f3mt s\u00e9r \u00ed hva\u00f0a b\u00f3k sem er. Hann er \u00ed \u00fea\u00f0 minnsta \u00e1 pari vi\u00f0 margar myndl\u00edkingar Bibl\u00edunnar.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u201c\u00dea\u00f0 er leikur a\u00f0 l\u00e6ra\u201d er l\u00edtil myndl\u00edking sem vi\u00f0 sungum sem b\u00f6rn. L\u00edfi\u00f0 er leikur og vi\u00f0 erum \u00f6ll \u00e1 ST\u00d3RA svi\u00f0inu.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Svan\u00fd var leikari &#8211; og l\u00edka margt fleira &#8211; og h\u00fan l\u00e9k \u00e1 svi\u00f0i leikh\u00fasa sem teljast au\u00f0vita\u00f0 \u00f6ll til hinna litlu svi\u00f0a \u00ed samanbur\u00f0i vi\u00f0 hi\u00f0 eiginlega st\u00f3ra svi\u00f0, l\u00edfi\u00f0 sj\u00e1lft. Og \u00e1 hinu st\u00f3ra svi\u00f0i voru l\u00f6g\u00f0 hlutverk \u00e1 her\u00f0ar henni, sem h\u00fan haf\u00f0i ekkert val um. H\u00fan axla\u00f0i \u00ed tv\u00edgang \u00f3v\u00e6nt hlutverk \u00ed harmleik, er h\u00fan missti m\u00f3\u00f0ur s\u00edna 10 \u00e1ra og f\u00f6\u00f0ur sinn er h\u00fan var 17. Engin miskunn \u00fear af l\u00edfsins hendi fremur en hj\u00e1 Adam og Evu hverra augu opnu\u00f0ust \u00ed sm\u00e1s\u00f6gunni um Edensrann. Sorgin opna\u00f0i augun, kenndi henni margt um eigi\u00f0 s\u00e1larl\u00edf og um \u00fea\u00f0 hvernig f\u00f3lk aktar \u00ed \u00feeim a\u00f0st\u00e6\u00f0um sem m\u00f3tleikarar syrgjandans og breg\u00f0ast vi\u00f0 \u00ed mi\u00f0jum harmleik.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">En henni Svan\u00fd var ekki fisja\u00f0 saman. H\u00fan \u00e1tti r\u00e6tur \u00ed nor\u00f0lensku dugna\u00f0arf\u00f3lki \u00ed b\u00e1\u00f0ar \u00e6ttir.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Svanhildur f\u00e6ddist \u00ed Reykjav\u00edk 8. mars 1950. Foreldrar hennar voru J\u00f3hannes Halld\u00f3rsson, skipstj\u00f3ri, f. 1906 &#8211; d. 1967, r\u00e9tt r\u00famlega sextugur, fr\u00e1 Sundi \u00ed H\u00f6f\u00f0ahverfi og kona hans Margr\u00e9t P\u00e1lsd\u00f3ttir, h\u00fasfreyja, f. 1915, d. 1960, \u00fe\u00e1 n\u00fdor\u00f0in 45 \u00e1ra, d\u00f3ttir P\u00e1ls Bergssonar og Svanhildar J\u00f6rundsd\u00f3ttur fr\u00e1 Sy\u00f0stab\u00e6 \u00ed Hr\u00edsey. Langafi hennar var hinn v\u00ed\u00f0fr\u00e6gi H\u00e1karla-J\u00f6rundur sem til eru margar s\u00f6gur um. Eftir honum er haft: &#8220;Ma\u00f0ur ver\u00f0ur aldrei f\u00e1t\u00e6kur af \u00fev\u00ed sem ma\u00f0ur gefur.&#8221; H\u00fan haf\u00f0i \u00e6t\u00ed\u00f0 sterkar taugar til Hr\u00edseyjar og var \u00e6ttr\u00e6kin og stolt af uppruna s\u00ednum. Eitt sinn er Jakob, sonur hennar kom til Hr\u00edseyjar, hitti hann \u00c1rna Tryggvason, leikara, sem bau\u00f0 hann velkominn sem &#8220;erfingjann af Hr\u00edsey&#8221; Jakob \u00e6tta\u00f0ur \u00fea\u00f0an \u00ed b\u00e1\u00f0ar \u00e6ttir.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c9g kynntist Svan\u00fd \u00ed Verzlunarsk\u00f3lanum \u00e1 \u00e1runum 1965-69. \u00dear l\u00e9k h\u00fan \u00e1vallt \u00e1 als oddi og l\u00e9t engan bilbug \u00e1 s\u00e9r finna enda \u00fe\u00f3tt h\u00fan hef\u00f0i hafi\u00f0 n\u00e1m m\u00f3\u00f0urlaus og misst f\u00f6\u00f0ur sinn um vori\u00f0 er h\u00fan var \u00ed 2. bekk og h\u00e1lfnu\u00f0 me\u00f0 Verzl\u00f3. Vi\u00f0 sk\u00f3lasystkinin kunnum f\u00e6st a\u00f0 umgangast sorg og \u00ed kringum allt sl\u00edkt var bara l\u00e1ti\u00f0 sem ekkert hef\u00f0i \u00ed skorist. \u00deannig er n\u00fa mannkyni\u00f0 oft a\u00f0 \u00fea\u00f0 stingur bara h\u00f6f\u00f0inu \u00ed sandinn. En au\u00f0vita\u00f0 s\u00fdndu vinkonur henni og nemendur sem st\u00f3\u00f0u henni n\u00e6st, vinarhug og v\u00e6ntum\u00feykju. N\u00edtj\u00e1n \u00e1ra, eigna\u00f0ist h\u00fan svo sitt fyrsta barn, Ell\u00fd, \u00e1 sj\u00fakrah\u00fasinu \u00e1 Akureyri, sem h\u00fan vegna a\u00f0st\u00e6\u00f0na sinna, gaf til \u00e6ttlei\u00f0ingar til H\u00fasav\u00edkur.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Syrgjandinn var\u00f0 a\u00f0 halda \u00e1fram og leysa \u00far l\u00edfinu, a\u00f0 mesu leyti upp\u00e1 eigin sp\u00fdtur og au\u00f0vita\u00f0 me\u00f0 hj\u00e1lp systkina og \u00e6ttingja. \u00dea\u00f0 sem h\u00fan l\u00e6r\u00f0i af sorginni og \u00ed Verzl\u00f3 gagna\u00f0ist henni alla t\u00ed\u00f0 \u00fev\u00ed h\u00fan var\u00f0 a\u00f0 standa \u00e1 eigin f\u00f3tum, h\u00fan l\u00e6r\u00f0i \u00e1 fj\u00e1rm\u00e1l og b\u00f3khald og \u00e9g s\u00e1 hana hressa \u00e1 g\u00f6mlu myndskei\u00f0i \u00e1 Netinu n\u00fa \u00ed a\u00f0draganda \u00fatfarar \u00fear sem h\u00fan kynnti sig stolt sem fj\u00e1rm\u00e1lastj\u00f3ra \u00ed augl\u00fdsingu Gr\u00e1a hersins sem minnir \u00e1 visku hinna eldri. J\u00e1, \u00fea\u00f0 er n\u00fa eiginlega l\u00edti\u00f0 a\u00f0 marka f\u00f3lk fyrr en upp\u00far sextugu eins og d\u00e6min sanna! M\u00e1 ma\u00f0ur ekki segja \u00feetta \u00e1 gamalsaldri?<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Svan\u00fd bj\u00f3 svo sannarlega yfir visku og l\u00edfsreynslu sem \u00f3x me\u00f0 hverju \u00e1rinu og sumt \u00ed \u00feeim banka var einungis unnt a\u00f0 afla \u00e1 harmami\u00f0um. Forfa\u00f0ir hennar r\u00e9ri \u00e1 h\u00e1karlami\u00f0 en h\u00fan f\u00e9kk \u00fea\u00f0 hlutverk a\u00f0 r\u00f3a \u00e1 harmami\u00f0 en au\u00f0vita\u00f0 l\u00edka hamingjumi\u00f0in \u00fear sem allir vilja fiska!<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">H\u00fan m\u00e6tti \u00f6rl\u00f6gum s\u00ednum af \u00e6\u00f0ruleysi, vissi a\u00f0 hverju stefndi og sag\u00f0i vi\u00f0 okkur Tryggva \u00e1 Lansanum, \u00feegar hann leiddi umr\u00e6\u00f0una varf\u00e6rnislega a\u00f0 \u00fev\u00ed, sem \u00ed v\u00e6ndum v\u00e6ri: Hvernig viltu hafa ath\u00f6fnina? H\u00fan horf\u00f0i \u00e1 okkur b\u00e1\u00f0a og sag\u00f0i svo \u00e6\u00f0rulaus: \u201cVilji\u00f0 \u00fei\u00f0 ekki bara r\u00e1\u00f0a \u00fev\u00ed?\u201d Sex d\u00f6gum s\u00ed\u00f0ar slokkna\u00f0i \u00f6ndin \u00ed brj\u00f3sti hennar. Tryggvi haf\u00f0i veri\u00f0 vi\u00f0 hli\u00f0 hennar daga og n\u00e6tur og b\u00f6rnin, tengdab\u00f6rn, barnab\u00f6rn og vinir, vitju\u00f0u hennar.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">H\u00fan anda\u00f0ist, \u00e1 l\u00edknardeild Landsp\u00edtalans \u00ed K\u00f3pavogi, sunnudaginn 29. okt\u00f3ber \u00fear sem h\u00fan naut faglegrar hj\u00fakrunar. S\u00e1 drottinsdagur var undurfagur. \u00dea\u00f0 var logn og l\u00e1gir geislar s\u00f3lar v\u00f6rpu\u00f0u s\u00e9rstakri birtu \u00e1 hau\u00f0ur og haf. \u00deannig var ve\u00f0ri\u00f0 seinustu vikurnar sem h\u00fan lif\u00f0i. Borgin b\u00f6\u00f0u\u00f0 \u00ed undurfagurri birtu og kyrr\u00f0 yfir \u00f6llu. Gulir litir fr\u00e1 l\u00e1gfleygri s\u00f3l r\u00edkjandi yfir fjallahringnum og h\u00fasunum \u00ed Borginni, litur skyldur \u00feeim sem var r\u00edkjandi \u00ed br\u00fa\u00f0arkj\u00f3lnum hennar eins og s\u00e9st \u00e1 myndinni \u00ed s\u00e1lmaskr\u00e1nni. Litur s\u00f3lar!<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">H\u00fan unni n\u00e1tt\u00farunni og l\u00e9t s\u00e9r annt landi\u00f0. Tryggvi skrifa\u00f0i m\u00e9r og sag\u00f0i:<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u201cVi\u00f0 Svan\u00fd h\u00f6fum alltaf haft miki\u00f0 yndi af \u00fev\u00ed a\u00f0 fer\u00f0ast um landi\u00f0 og ekki s\u00edst um h\u00e1lendi\u00f0. Vi\u00f0 h\u00f6fum br\u00f6lt um allar trissur, m.a. Arnarvatnshei\u00f0i, Fjallabakslei\u00f0ir og G\u00e6savatnalei\u00f0, oft \u00ed samfylgd g\u00f3\u00f0ra fer\u00f0af\u00e9laga. \u00dev\u00ed er \u00e9g a\u00f0 skrifa \u00feetta a\u00f0 \u00e9g setti \u00e1 f\u00f3ninn geisladisk sem vi\u00f0 spilu\u00f0um gjarnan \u00feegar bygg\u00f0um sleppti og v\u00ed\u00f0\u00e1ttur \u00f3bygg\u00f0anna bl\u00f6stu vi\u00f0, \u00fe.e. &#8211; Clapton Chronicles &#8211; \u00fear sem m.a. er a\u00f0 finna l\u00f6gin &#8211; Tears in Heaven &#8211; sem hann samdi \u00ed minningu kornungs sonar s\u00edns sem f\u00f3rst af slysf\u00f6rum og lagi\u00f0 &#8211; Before You Accuse Me &#8211; og m\u00f6rg fleiri fr\u00e1b\u00e6r n\u00famer.\u201d<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">T\u00f3nlist var \u00feeim k\u00e6r og Svan\u00fd haf\u00f0i g\u00f3\u00f0a r\u00f6dd til tals og s\u00f6ngs. Vi\u00f0 s\u00e1um hana \u00ed sj\u00f3nvarpi \u00e1rlega \u00e1 myndskei\u00f0i vi\u00f0 Stj\u00f3rnarr\u00e1\u00f0sh\u00fasi\u00f0 \u00e1 fyrsta Kvennafr\u00eddaginn 1975, \u00fear sem h\u00fan s\u00f6ng bar\u00e1ttus\u00f6ngva me\u00f0 stelpunum, me\u00f0 skuplu yfir h\u00f6f\u00f0i og lj\u00f3sa h\u00e1ri\u00f0 fl\u00e6\u00f0andi um axlir sem ramma\u00f0i vel inn fegur\u00f0 hennar. Og s\u00f6ng af hjartans list og \u00e1kef\u00f0: &#8220;J\u00e1, \u00e9g \u00feori, get og vil!&#8221;<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">H\u00fan lag\u00f0i s\u00edn l\u00f3\u00f0 \u00e1 vogarsk\u00e1lar \u00feess a\u00f0 sk\u00f3linn S\u00c1L sem stendur fyrir &#8211; Samt\u00f6k \u00e1hugaf\u00f3lks um leiklistarn\u00e1m &#8211; var stofna\u00f0ur, sem var mikilv\u00e6gt framlag ungs f\u00f3lks sem vildi b\u00e6ta \u00far \u00fev\u00ed \u00e1standi a\u00f0 ekkert formlegt leiklistarn\u00e1m var \u00ed bo\u00f0i. Samt\u00f6kin l\u00e9tu til s\u00edna taka \u00e1ri\u00f0 1972 og allt til \u00feess a\u00f0 Al\u00feingi sam\u00feykkti l\u00f6g um Leiklistarsk\u00f3la \u00cdslands \u00ed ma\u00ed 1975 en \u00fe\u00e1 lauk starfi S\u00c1L e\u00f0li m\u00e1ls samkv\u00e6mt. Svan\u00fd \u00e1tti st\u00f3ran \u00fe\u00e1tt \u00ed \u00fev\u00ed a\u00f0 halda rekstri sk\u00f3lans gangandi.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Fyrst sk\u00f3linn var ekki til \u00fe\u00e1 t\u00f3k h\u00fan m\u00e1lin \u00ed s\u00ednar hendur og stofna\u00f0i hann sj\u00e1lf enda hj\u00e1lpar Gu\u00f0 \u00feeim sem hj\u00e1lpa s\u00e9r sj\u00e1lfir.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Innskot. S\u00f6ngur:<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>A\u00f0 hj\u00e1lpast a\u00f0<\/strong><br \/><strong>(Lag \/ texti: Spilverk \u00fej\u00f3\u00f0anna)<\/strong><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Gu\u00f0 hj\u00e1lpar \u00feeim sem hj\u00e1lpa s\u00e9r sj\u00e1lfir.<br \/>Heilagt stendur skrifa\u00f0 \u00e1 bla\u00f0.<br \/>Gu\u00f0 hj\u00e1lpar \u00feeim sem hj\u00e1lpa s\u00e9r sj\u00e1lfir,<br \/>ein l\u00edtil b\u00fdfluga afsannar \u00fea\u00f0.<br \/>Gu\u00f0 hj\u00e1lpar \u00feeim sem hj\u00e1lpast a\u00f0.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Gu\u00f0 hj\u00e1lpar \u00feeim sem hj\u00e1lpa s\u00e9r sj\u00e1lfir.<br \/>Heilagt stendur skrifa\u00f0 \u00e1 bla\u00f0.<br \/>Gu\u00f0 hj\u00e1lpar \u00feeim sem hj\u00e1lpa s\u00e9r sj\u00e1lfir,<br \/>ein l\u00edtil b\u00fdfluga afsannar \u00fea\u00f0.<br \/>Gu\u00f0 hj\u00e1lpar \u00feeim sem hj\u00e1lpast a\u00f0.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>&nbsp;[af pl\u00f6tunni Spilverk \u00fej\u00f3\u00f0anna \u2013 G\u00f6tusk\u00f3r]<\/strong><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">N\u00fdlega s\u00e1 \u00e9g \u00e1 Netinu tilv\u00edsun \u00ed or\u00f0 og visku mannfr\u00e6\u00f0ingsins, Margareth Mead (1901-1978). Kjarninn \u00ed \u00feeirri f\u00e6rslu var a\u00f0 h\u00fan hafi sagt a\u00f0 upphaf si\u00f0menningar v\u00e6ri ekki a\u00f0 f\u00f3lk l\u00e6r\u00f0i a\u00f0 sm\u00ed\u00f0a s\u00e9r verkf\u00e6ri og vopn. Nei, h\u00fan v\u00edsa\u00f0i til mja\u00f0marbeins sem fundist haf\u00f0i, bein sem haf\u00f0i brotna\u00f0 og gr\u00f3i\u00f0. H\u00fan sag\u00f0i \u00feetta bein vitna um upphaf si\u00f0menningar, nefnilega \u00fea\u00f0 a\u00f0 s\u00e1 e\u00f0a s\u00fa sem brotna\u00f0i hlaut hj\u00fakrun og umhyggju til a\u00f0 komast aftur \u00e1 f\u00e6tur. \u00dear me\u00f0 h\u00f3fst si\u00f0menningin! Me\u00f0 samhj\u00e1lpinni sem sungi\u00f0 var um h\u00e9r r\u00e9tt \u00ed \u00feessu.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Svanhildur var yngst \u00feriggja systkina en \u00feau eru Sigurlaug J\u00f3hannesd\u00f3ttir, f. 24. september 1945, gift Hrafni Hallgr\u00edmssyni, f. 13. september 1938 og J\u00f3hannes J\u00f3hannesson, f. 2. september 1947, d. 19. okt\u00f3ber 1997, kv\u00e6ntur \u00d3laf\u00edu Bj\u00f6rk Dav\u00ed\u00f0sd\u00f3ttur, f. 21. ma\u00ed 1951.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">H\u00fan giftist 20. n\u00f3vember 1971 eftirlifandi eiginmanni s\u00ednum, Tryggva Jakobssyni, f. 19. apr\u00edl 1950. Foreldrar hans voru Jakob Tryggvason, organisti vi\u00f0 Akureyrarkirkju, f. 31. jan\u00faar 1907, d. 13. mars 1999 og kona hans, Unnur Tryggvad\u00f3ttir h\u00fasfreyja, f. 27. desember 1907, d. 24. ma\u00ed 1987. Tryggi og Svan\u00fd kynntust \u00e1 Akureyri er \u00feau l\u00e9ku b\u00e6\u00f0i \u00ed L\u00fdsistr\u00f6tu.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00deau fluttu su\u00f0ur 1971. Tryggvi f\u00f3r \u00ed n\u00e1m \u00ed H\u00cd og svo fluttu \u00feau aftur nor\u00f0ur 1978.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Svan\u00fd var \u00e6ti\u00f0 vel teki\u00f0 af fj\u00f6lskyldu Tryggva, og h\u00fan sag\u00f0i um hana a\u00f0 ef h\u00fan hef\u00f0i h\u00e6tt me\u00f0 Tryggva hef\u00f0i h\u00fan flutt heim til tengd\u00f3!<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">&#8220;Vi\u00f0 vorum heppin a\u00f0 kynnast&#8221; sag\u00f0ir Tryggvi, &#8220;og a\u00f0 eiga saman 52 \u00e1r.&#8221;<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">B\u00f6rn Svanhildar eru:<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">1) El\u00edn \u00d3lafsd\u00f3ttir, f. 18. \u00e1g\u00fast 1969 (kj\u00f6rforeldrar El\u00ednar voru \u00d3lafur Erlendsson og Helen Hannesd\u00f3ttir), maki Hj\u00e1lmar Skarph\u00e9\u00f0insson, f. 8. okt\u00f3ber 1969. B\u00f6rn: Dagur, Eva og Orri.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">2) Jakob Tryggvason, f. 20. j\u00fan\u00ed 1972, maki Svanfr\u00ed\u00f0ur Ingjaldsd\u00f3ttir, f. 16. j\u00fan\u00ed 1975. B\u00f6rn: Tryggvi P\u00e1ll og Sigr\u00fan Inga.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">3) J\u00f3hannes Tryggvason, f. 18. j\u00fan\u00ed 1976, maki \u00d3l\u00f6f Helga Jakobsd\u00f3ttir, f. 20. apr\u00edl 1983. B\u00f6rn: Svanhildur, S\u00f6lvi og Valger\u00f0ur Jakob\u00edna.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">El\u00edn \u00feekkti m\u00f3\u00f0ur s\u00edna alla t\u00ed\u00f0 og haf\u00f0i samband vi\u00f0 m\u00f3\u00f0urfj\u00f6lskyldu s\u00edna og segir a\u00f0 s\u00e9r hafi \u00e6t\u00ed\u00f0 veri\u00f0 teki\u00f0 vel af \u00f6llum. \u00deegar Svan\u00fd t\u00f3k \u00fe\u00e1 \u00e1kv\u00f6r\u00f0un a\u00f0 gefa hana fr\u00e1 s\u00e9r, voru sterkustu r\u00f6kin \u00feessi: &#8220;Mitt barn \u00e1 a\u00f0 eiga b\u00e6\u00f0i m\u00f6mmu og pabba.&#8221; Og allt t\u00f3lkst \u00fea\u00f0 vel.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00deau Tryggvi \u00e1ttu saman g\u00f3\u00f0a daga og nutu l\u00edfsins saman me\u00f0 str\u00e1kunum. J\u00f3si rifja\u00f0i upp er hann var \u00fati \u00e1 landi me\u00f0 m\u00f6mmu sem var a\u00f0 leikst\u00fdra \u00ed Borgarfir\u00f0i og svo um h\u00e1vetur \u00ed Bolungav\u00edk. \u00deegar a\u00f0 frums\u00fdningu kom flaug Tryggi vestur \u00e1 \u00cdsafj\u00f6r\u00f0 \u00e1 rellunni sinni. \u00dalfar var me\u00f0 \u00ed f\u00f6r og str\u00e1karnir \u00ed afturs\u00e6tinu. \u00dea\u00f0 \u00feurfti nefnilega a\u00f0 koma n\u00fdjum le\u00f0urst\u00edgv\u00e9lum til leikstj\u00f3rans fyrir kv\u00f6ldi\u00f0. Svo var bara teki\u00f0 striki\u00f0 aftur su\u00f0ur.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Svan\u00fd var fj\u00f6lh\u00e6f. H\u00fan var listr\u00e6n og h\u00f6g, prj\u00f3na\u00f0i, sauma\u00f0i og m\u00e1la\u00f0i. H\u00fan var orkumikil og vildi gjarnan brj\u00f3tast \u00fat \u00far boxinu, eins og sagt er. H\u00fan var bar\u00e1ttukona, dugna\u00f0arforkur. El\u00edn sag\u00f0i \u00feegar \u00e9g sat me\u00f0 fj\u00f6lskyldunni vi\u00f0 undirb\u00faning athafnarinnar: &#8220;\u00dea\u00f0 var svo gaman a\u00f0 eiga m\u00f6mmu sem var hippi.&#8221; Og \u00feegar h\u00fan f\u00f3r sj\u00e1lf \u00ed Verzl\u00f3 eins og mamma, f\u00e9kk h\u00fan l\u00e1na\u00f0a muni, r\u00f3st\u00f3tt f\u00f6t og Lennon-gleraugu, \u00far safni Svan\u00fdar. \u00de\u00e1 var einnig \u00e1 \u00fea\u00f0 minnst a\u00f0 \u00feegar d\u00f3ttir J\u00f3sa var sk\u00edr\u00f0 og hlaut nafni\u00f0 Svanhildur J\u00f3hannesd\u00f3ttir, \u00fe\u00e1 voru ekki leikin l\u00f6g \u00far s\u00f6ngleiknum T\u00f3naf\u00f3\u00f0, heldur h\u00f3fst &#8220;t\u00e1rafl\u00f3\u00f0&#8221; hj\u00e1 \u00f6mmunni.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Svanhildur kom v\u00ed\u00f0a vi\u00f0 \u00ed st\u00f6rfum s\u00ednum \u00e1 l\u00edfslei\u00f0inni. Hlutverkin voru m\u00f6rg \u00e1 st\u00f3ra svi\u00f0inu og \u00e1 brei\u00f0u r\u00f3fi lita og tilfinninga. H\u00fan var \u00e1kaflega listr\u00e6n, m\u00e1la\u00f0i myndir, samdi leikrit og s\u00f6gur sem h\u00fan haf\u00f0i \u00fe\u00f3 alltaf fyrir sig. Umhverfis- og jafnr\u00e9ttism\u00e1l voru henni hugleikin og fylgdist h\u00fan vel me\u00f0 \u00fev\u00ed sem fram f\u00f3r \u00ed \u00feeim m\u00e1laflokkum. Svo l\u00f6g\u00f0u \u00feau hj\u00f3nin sitt af m\u00f6rkum \u00ed n\u00e1tt\u00faruvernd me\u00f0 st\u00f6rfum s\u00ednum sem landver\u00f0ir \u00ed Her\u00f0ubrei\u00f0arlindum, \u00d6skju og \u00ed Skaftafellli \u00ed ein 6 sumur sem fj\u00f6lskyldan \u00e1 g\u00f3\u00f0ar minningar um. Str\u00e1karnir eiga sterkar minningar fr\u00e1 \u00feessum \u00e1rum.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">H\u00fan var b\u00f3kmenntakona, las alla t\u00ed\u00f0 miki\u00f0 og fj\u00f6lskyldan segir a\u00f0 h\u00fan hafi veri\u00f0 algj\u00f6r &#8220;h\u00e1mlesari&#8221;. H\u00fan var hl\u00e1turmild og skemmtileg og brann fyrir m\u00f6rgum g\u00f3\u00f0um m\u00e1lefnum og \u00fear voru jafnr\u00e9ttism\u00e1lin efst \u00e1 baugi.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Daginn eftir a\u00f0 \u00e9g hitti Svan\u00fd \u00e1 Landsp\u00edtalanum, fylgdist h\u00fan me\u00f0 Kvennaverkfallinu 24. okt. sl. \u00ed fr\u00e9ttum, en h\u00fan haf\u00f0i veri\u00f0 virk fyrir r\u00famri h\u00e1lfri \u00f6ld, \u00feegar konur s\u00f6fnu\u00f0ust saman \u00e1 Arnarh\u00f3li til hins s\u00f6gulega fundar, til eigin eflingar og vitundarvakningar fyrir \u00fej\u00f3\u00f0ina um mikilv\u00e6gi kvenna og \u00feeirra st\u00f6rf, g\u00e1fur og h\u00e6fileika og framlag til menningar, lista og atvinnul\u00edfs.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Dagurinn \u00ed \u00e1r var einstakur. Yfir landinu r\u00edkti fegur\u00f0in ein. Konurnar s\u00fdndu samst\u00f6\u00f0u og sl\u00f3gu \u00f6ll fyrri met. Hlutverkin sem h\u00fan l\u00e9k og starfa\u00f0i \u00ed, h\u00f6f\u00f0u bori\u00f0 \u00e1rangur. H\u00fan f\u00e9kk a\u00f0 reyna a\u00f0 heilbrig\u00f0ar hugsj\u00f3nir, bygg\u00f0ar \u00e1 r\u00e9ttl\u00e6ti og sannleika, skapa n\u00fdja framt\u00ed\u00f0.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">S\u00e6l eru \u00feau sem hungrar og \u00feyrstir eftir r\u00e9ttl\u00e6tinu \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feau munu s\u00f6dd ver\u00f0a.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">&#8220;J\u00e1, \u00e9g \u00feori, get og vil!&#8221;<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">A\u00f0 f\u00e1 a\u00f0 sj\u00e1 \u00e1rangur erfi\u00f0is og bar\u00e1ttu sinnar veitir \u00f3m\u00e6lda \u00e1n\u00e6gju. \u00cd Hebreabr\u00e9finu \u00ed NT er tala\u00f0 um f\u00f3lk sem vona\u00f0i. \u00dear segir:<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u201cAllir \u00feessir menn d\u00f3u \u00ed tr\u00fa \u00e1n \u00feess a\u00f0 hafa \u00f6\u00f0last fyrirheitin. \u00deeir s\u00e1u \u00feau \u00e1lengdar og f\u00f6gnu\u00f0u \u00feeim og j\u00e1tu\u00f0u a\u00f0 \u00feeir v\u00e6ru gestir og \u00fatlendingar \u00e1 j\u00f6r\u00f0inni.\u201d<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">J\u00e1, vi\u00f0 erum gestir h\u00e9r \u00ed heimi og gistum \u00f6ll \u00e1 H\u00f3tel J\u00f6r\u00f0, me\u00f0an vi\u00f0 leikum \u00e1 st\u00f3ra svi\u00f0inu. Hvernig gengur okkur \u00e1 svi\u00f0inu? Erum vi\u00f0 eitthva\u00f0 \u00ed l\u00edkingu vi\u00f0 \u00fea\u00f0 sem Skakgeir l\u00e9t Makbe\u00f0 segja:<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">&#8220;Slj\u00f3r farandskuggi er l\u00edfi\u00f0, leikari sem fremur k\u00e6ki \u00e1 fj\u00f6lunum um stund og \u00feagnar s\u00ed\u00f0an: \u00fea\u00f0 er \u00e6vint\u00fdri \u00feuli\u00f0 af bj\u00e1na, fullt af m\u00f6gli og muldri, og merkir ekkert.&#8221;<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">(Leikrit III, Helgi H\u00e1lfdanarson, Heimskringla, MCMLXIV, s.202).<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Full dimm \u00feykir m\u00e9r n\u00fa \u00feessi t\u00falkun \u00e1 l\u00edfinu sem okkur finnst m\u00f6rgum svo skemmtilegt flesta daga, s\u00e9 \u00fev\u00ed lifa\u00f0 \u00ed tr\u00fa og von \u00e1 \u00e6\u00f0ri gildi, von um a\u00f0 l\u00edfi\u00f0 geti sk\u00e1na\u00f0, a\u00f0 bardagarnir fyrir r\u00e9ttl\u00e6ti og sannleika beri \u00e1rangur og basli\u00f0 l\u00ed\u00f0i undir lok. Viljum vi\u00f0!? \u00deorum vi\u00f0!?<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Vi\u00f0 erum gestir \u00e1 \u00feessari j\u00f6r\u00f0 og \u00feurfum a\u00f0 g\u00e6ta hennar me\u00f0an vi\u00f0 nj\u00f3tum l\u00edfsins \u00ed gle\u00f0i \u00feess og sorgum. Og n\u00fa \u00feegar vi\u00f0 kve\u00f0jum Svanhildi er gott a\u00f0 minna sig \u00e1 s\u00e6lubo\u00f0i\u00f0 \u00far Fjallr\u00e6\u00f0u Jes\u00fa:<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">S\u00e6l eru\u00f0 \u00fei\u00f0 sem n\u00fa syrgi\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fei\u00f0 munu\u00f0 huggu\u00f0 ver\u00f0a.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00dev\u00ed hefur Kristur lofa\u00f0.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">G\u00f6ngum \u00e1fram um st\u00f3ra svi\u00f0i\u00f0 \u00ed \u00feeirri tr\u00fa og von &#8211; og \u00feegar tjaldinu ver\u00f0ur svipt fr\u00e1 \u00e1 lokas\u00fdningu minni og \u00feinni, \u00fe\u00e1 munu \u00feessi or\u00f0 postulans r\u00e6tast:<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">&#8220;N\u00fa sj\u00e1um v\u00e9r svo sem \u00ed skuggsj\u00e1, \u00ed r\u00e1\u00f0g\u00e1tu,<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">en \u00fe\u00e1 munum v\u00e9r sj\u00e1 augliti til auglitis.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">N\u00fa er \u00feekking m\u00edn \u00ed molum<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">en \u00fe\u00e1 mun \u00e9g gj\u00f6r\u00feekkja eins og \u00e9g er sj\u00e1lfur gj\u00f6r\u00feekktur or\u00f0inn.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">En n\u00fa varir tr\u00fa, von og k\u00e6rleikur, \u00feetta \u00ferennt,<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">en \u00feeirra er k\u00e6rleikurinn mestur.&#8221;<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Viljum vi\u00f0!? \u00deorum vi\u00f0!?<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">St\u00f3ra svi\u00f0i\u00f0 b\u00ed\u00f0ur okkar. \u00dear falla s\u00fdningar aldrei ni\u00f0ur og \u00e6t\u00ed\u00f0 fullt h\u00fas.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Gangi okkur \u00f6llum vel \u00e1 st\u00f3ra svi\u00f0inu og m\u00e6ttum vi\u00f0 \u00f6ll vinna sigra &#8211; og a\u00f0 lokum &#8211; hinn eina sanna leiksigur l\u00edfsins, okkar Opus Finale, \u00ed verkinu, Upprisan!<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Amen.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">El\u00edsabet Bjarklind sk\u00f3lasystir Svanhildar \u00far S\u00c1L sk\u00f3lanum bi\u00f0ur fyrir kve\u00f0jur s\u00edna, Helgu Hj\u00f6rvar og Hildar Helgason, kennurum \u00ed sk\u00f3lanum. Einnig fr\u00e1 Sigurbirni J\u00f3nssyni, en \u00feau hafa \u00fev\u00ed mi\u00f0ur ekki t\u00f6k \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 vera vi\u00f0st\u00f6dd ath\u00f6fnina.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">&#8211; &#8211; &#8211;<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Innilegar sam\u00fa\u00f0arkve\u00f0jur voru fluttar fr\u00e1 fjarst\u00f6ddum s\u00ed\u00f0ar \u00ed ath\u00f6fninni:<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Fr\u00e1 Helgu Hj\u00f6rvar og Hilde Helgason, kennurum \u00ed S\u00c1L-sk\u00f3lanum. einnig fra Sigurbirni J\u00f3nssyni, en \u00feau h\u00f6f\u00f0u ekki t\u00f6k \u00e1 a\u00f0 vera vi\u00f0st\u00f6dd ath\u00f6fnina.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Fr\u00e1 N\u00f6nnu Ingibj\u00f6rgu J\u00f3nsd\u00f3ttur, sem gl\u00edmir vi\u00f0 veikindi og komst \u00fev\u00ed ekki.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Fr\u00e1 Vi\u00f0ari Eggertssyni go Sveini Kjartanssyni, sem eru staddir \u00ed Singap\u00far.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>Ritningarlestur:<\/strong><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>Upphaf fjallr\u00e6\u00f0unnar \u00far Matteusargu\u00f0spjalli 5. kafla<\/strong><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><a href=\"\">1<\/a> \u00deegar Jes\u00fas s\u00e1 mannfj\u00f6ldann gekk hann upp \u00e1 fjalli\u00f0. \u00dear settist hann og l\u00e6risveinar hans komu til hans. <a href=\"\">2<\/a> \u00de\u00e1 h\u00f3f hann a\u00f0 kenna \u00feeim og sag\u00f0i: <br \/><a href=\"\">3<\/a>\u201eS\u00e6lir eru f\u00e1t\u00e6kir \u00ed anda <br \/>\u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feeirra er himnar\u00edki. <br \/><a href=\"\">4<\/a>S\u00e6lir eru syrgjendur <br \/>\u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feeir munu hugga\u00f0ir ver\u00f0a. <br \/><a href=\"\">5<\/a>S\u00e6lir eru h\u00f3gv\u00e6rir <br \/>\u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feeir munu j\u00f6r\u00f0ina erfa. <br \/><a href=\"\">6<\/a>S\u00e6lir eru \u00feeir sem hungrar og \u00feyrstir eftir r\u00e9ttl\u00e6tinu <br \/>\u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feeir munu saddir ver\u00f0a.<br \/><a href=\"\">7<\/a>S\u00e6lir eru miskunnsamir <br \/>\u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feeim mun miskunna\u00f0 ver\u00f0a. <br \/><a href=\"\">8<\/a>S\u00e6lir eru hjartahreinir <br \/>\u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feeir munu Gu\u00f0 sj\u00e1. <br \/><a href=\"\">9<\/a>S\u00e6lir eru fri\u00f0flytjendur <br \/>\u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feeir munu Gu\u00f0s b\u00f6rn kalla\u00f0ir ver\u00f0a. <br \/><a href=\"\">10<\/a>S\u00e6lir eru \u00feeir sem ofs\u00f3ttir eru fyrir r\u00e9ttl\u00e6tis sakir<br \/>\u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feeirra er himnar\u00edki.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>Gu\u00f0spjalli\u00f0 J\u00f3hannes 14.<\/strong><\/p>\n\n\n\n<h3 class=\"wp-block-heading\">Vegurinn, sannleikurinn, l\u00edfi\u00f0<\/h3>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><a href=\"\">1<\/a> \u201eHjarta y\u00f0ar skelfist ekki. Tr\u00fai\u00f0 \u00e1 Gu\u00f0 og tr\u00fai\u00f0 \u00e1 mig. <a href=\"\">2<\/a> \u00cd h\u00fasi f\u00f6\u00f0ur m\u00edns eru margar vistarverur. V\u00e6ri ekki svo hef\u00f0i \u00e9g \u00fe\u00e1 sagt y\u00f0ur a\u00f0 \u00e9g f\u00e6ri burt a\u00f0 b\u00faa y\u00f0ur sta\u00f0? <a href=\"\">3<\/a> \u00deegar \u00e9g er farinn burt og hef b\u00fai\u00f0 y\u00f0ur sta\u00f0 kem \u00e9g aftur og tek y\u00f0ur til m\u00edn svo a\u00f0 \u00fe\u00e9r s\u00e9u\u00f0 einnig \u00fear sem \u00e9g er. <a href=\"\">4<\/a> Veginn \u00feanga\u00f0 sem \u00e9g fer \u00feekki\u00f0 \u00fe\u00e9r.\u201c <br \/><a href=\"\">5<\/a> T\u00f3mas segir vi\u00f0 hann: \u201eDrottinn, vi\u00f0 vitum ekki hvert \u00fe\u00fa fer\u00f0, hvernig getum vi\u00f0 \u00fe\u00e1 \u00feekkt veginn?\u201c <br \/><a href=\"\">6<\/a> Jes\u00fas segir vi\u00f0 hann: \u201e\u00c9g er vegurinn, sannleikurinn og l\u00edfi\u00f0. Enginn kemur til f\u00f6\u00f0urins nema fyrir mig. <\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Minningaror\u00f0 eftir \u00d6rn B\u00e1r\u00f0 J\u00f3nsson Unnt er a\u00f0 lesa r\u00e6\u00f0una og hlusta \u00e1 hlj\u00f3\u00f0uppt\u00f6ku h\u00e9r fyrir ne\u00f0an. Kve\u00f0jur sem b\u00e1rust eru ne\u00f0st \u00ed textanum en voru ekki hluti r\u00e6\u00f0unnar. leikkona, leiklistarkennari, leikstj\u00f3ri, marka\u00f0s-, skrifstofu- og framkv\u00e6mdastj\u00f3ri og fleira og fleira Sk\u00f3garseli 43, Reykjav\u00edk B\u00e1lf\u00f6r fr\u00e1 Neskirkju \u00feri\u00f0judaginn 7. n\u00f3vember 2023 kl. 15 Ritningarlestrar \u00ed ath\u00f6fninni: [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":2,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_jetpack_newsletter_access":"","_jetpack_dont_email_post_to_subs":false,"_jetpack_newsletter_tier_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paywalled_content":false,"_jetpack_hide_featured_image":false,"_jetpack_featured_image_duplicate_dismissed":0,"_jetpack_feature_clip_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":"","jetpack_post_was_ever_published":false},"categories":[7],"tags":[166,243,246,333,409,518,557,548,584,602,640],"class_list":["post-4198","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-minningarord-eulogies","tag-elska","tag-gud","tag-gudfraedi","tag-jesus","tag-ljosid","tag-rettlaeti","tag-sidferdi","tag-soknudur","tag-sorg","tag-stjornmal","tag-tru"],"jetpack_sharing_enabled":true,"jetpack_featured_media_url":"","_links":{"self":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/4198","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/users\/2"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcomments&post=4198"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/4198\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fmedia&parent=4198"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcategories&post=4198"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Ftags&post=4198"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}