{"id":414,"date":"2013-05-12T17:18:57","date_gmt":"2013-05-12T17:18:57","guid":{"rendered":"http:\/\/ornbardur.com\/?p=414"},"modified":"2013-05-12T17:18:57","modified_gmt":"2013-05-12T17:18:57","slug":"heim","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/ornbardur.com\/?p=414","title":{"rendered":"Heim"},"content":{"rendered":"<p><strong><a href=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2013\/05\/destiny.jpg\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" class=\"alignleft size-medium wp-image-415\" alt=\"destiny\" src=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2013\/05\/destiny.jpg?w=257\" width=\"257\" height=\"300\" \/><\/a><\/strong><\/p>\n<p><b>Heim<\/b><\/p>\n<p><b>Pr\u00e9dikun vi\u00f0 gu\u00f0s\u00fej\u00f3nustu\u00a0<\/b><\/p>\n<p><b>\u00ed Neskirkju<\/b><\/p>\n<p><b>sunnudaginn 12. ma\u00ed kl. 14<\/b><\/p>\n<p><b>\u00ed samvinnu vi\u00f0 \u00cdsfir\u00f0ingaf\u00e9lagi\u00f0<\/b><\/p>\n<p>K\u00f3r heimamanna lei\u00f0ir s\u00f6ng<\/p>\n<p>Organisti Gu\u00f0n\u00fd Einarsd\u00f3ttir<\/p>\n<p><strong>\u00de\u00fa getur lesi\u00f0 r\u00e6\u00f0una og hlusta\u00f0 \u00e1 hana h\u00e9r fyrir ne\u00f0an.<!--more--><\/strong><\/p>\n<p>Hlusta? Smelltu \u00e1 \u00fer\u00edhyrninginn (play)<\/p>\n\n<p><strong>Fri\u00f0ur<\/strong> Gu\u00f0s s\u00e9 me\u00f0 okkur \u00f6llum.<\/p>\n<p>Sagan af s\u00e9ra Bjarna J\u00f3nssyni, d\u00f3mkirkjupresti, er l\u00f6ngu fleyg or\u00f0in, \u00fear sem sagt er fr\u00e1 \u00fev\u00ed er hann gekk um a\u00f0 morgni dags \u00e1 morgunsloppnum \u00fear sem L\u00e6kjargata og Sk\u00f3labr\u00fa m\u00e6tast. L\u00f6gregluma\u00f0ur sem n\u00fdlega haf\u00f0i hafi\u00f0 st\u00f6rf \u00ed Reykjav\u00edk \u00feekkti ekki klerk, v\u00e9k s\u00e9r a\u00f0 honum og spur\u00f0i:<\/p>\n<p>-Hvert ert \u00fe\u00fa a\u00f0 fara, g\u00f3\u00f0i minn?<\/p>\n<p>S\u00e9ra Bjarni benti \u00e1 rakarastofuna og sag\u00f0i:<\/p>\n<p>-\u00deanga\u00f0.<\/p>\n<p>-Hvar \u00e1ttu heima? spur\u00f0i l\u00f6ggan \u00fe\u00e1.<\/p>\n<p>Prestur benti \u00e1 dyrnar heima hj\u00e1 s\u00e9r \u00ed L\u00e6kjarg\u00f6tunni:<\/p>\n<p>-\u00dearna.<\/p>\n<p>-J\u00e6ja, vinur. Og hvar vinnur \u00fe\u00fa?<\/p>\n<p>-\u00dearna, sag\u00f0i hann og benti \u00e1 D\u00f3mkirkjuna.<\/p>\n<p>Og hj\u00e1 hverjum vinnur\u00f0u?<\/p>\n<p>-Honum, svara\u00f0i s\u00e9ra Bjarni og benti til himins.<\/p>\n<p>Hvar \u00e1ttu heima?<\/p>\n<p>\u00deannig mundi fullor\u00f0in manneskja v\u00e6ntanlega spyrja barn sem v\u00e6ri t\u00fdnt og gr\u00e1tandi \u00fati \u00e1 g\u00f6tu.<\/p>\n<p>Hvar \u00e1ttu heima?<\/p>\n<p>Hvar eru heimkynni \u00fe\u00edn?<\/p>\n<p>\u00cd gu\u00f0spjalli dagsins er Jes\u00fas a\u00f0 kve\u00f0ja l\u00e6risveina s\u00edna. Hann er a\u00f0 fara heim. Hann bi\u00f0ur fyrir \u00feeim og \u00e1 s\u00e9r \u00fe\u00e1 von og \u00fer\u00e1 \u00ed brj\u00f3sti s\u00e9r a\u00f0 \u00feeir var\u00f0veitist allt til enda.<\/p>\n<p>Vi\u00f0 munum flest or\u00f0in sem presturinn sag\u00f0i vi\u00f0 ferminguna me\u00f0 h\u00f6nd \u00e1 h\u00f6f\u00f0i okkar:<\/p>\n<p>Vertu tr\u00fa\/r allt til dau\u00f0a og Gu\u00f0 mun gefa \u00fe\u00e9r l\u00edfsins k\u00f3r\u00f3nu.<\/p>\n<p>Fyrir h\u00e1lfum m\u00e1nu\u00f0i voru li\u00f0in 50 \u00e1r fr\u00e1 \u00fev\u00ed \u00e9g fermdist me\u00f0 sk\u00f3lasystkinum m\u00ednum \u00ed g\u00f6mlu \u00cdsafjar\u00f0arkirkju. \u00dea\u00f0 var g\u00f3\u00f0ur dagur me\u00f0 g\u00f3\u00f0 \u00e1form, heitin heil og vonir bjartar.<\/p>\n<p>\u00c9g held a\u00f0 ferming barns \u00e1 14. \u00e1ri s\u00e9 \u00ed senn leyndard\u00f3mur og miki\u00f0 \u00feakkarefni. Barni\u00f0 j\u00e1tast Kristi \u00ed einl\u00e6gni og sakleysi. Svo taka vi\u00f0 m\u00f3tunar\u00e1r og gl\u00edman vi\u00f0 \u00fea\u00f0 a\u00f0 ver\u00f0a fullor\u00f0in manneskja me\u00f0 \u00f6llum s\u00ednu f\u00e1lmi og mist\u00f6kum. For\u00f0um var f\u00f3lk tali\u00f0 til fullor\u00f0inna vi\u00f0 fermingu og margan gamlan sj\u00f3manninn hef \u00e9g jar\u00f0sungi\u00f0 \u00ed gegnum t\u00ed\u00f0ina sem byrja\u00f0i \u00e1 sj\u00f3 daginn eftir fermingu og r\u00e9ri me\u00f0an kraftar entust. Og svo eru \u00fea\u00f0 einnig konurnar sem alvara l\u00edfsins m\u00e6tti upp \u00far fermingu.<\/p>\n<p>Fermingarbarni\u00f0 fer \u00ed vissum skilningi a\u00f0 heiman eftir fermingu og leitar fyrir s\u00e9r \u00ed l\u00edfinu.<\/p>\n<p>L\u00edfi\u00f0 er fer\u00f0alag og enn erum vi\u00f0 a\u00f0 f\u00e1st vi\u00f0 \u00fea\u00f0 verkefni a\u00f0 ver\u00f0a fullor\u00f0nar manneskjur.<\/p>\n<p>Fullor\u00f0inn. \u00dea\u00f0 er merkilegt or\u00f0. Hvefulln\u00e6r ver\u00f0ur ma\u00f0ur fullor\u00f0inn? Full-or\u00f0inn, full-numa, full-kominn. Er \u00fea\u00f0 h\u00e6gt? Nei, \u00fea\u00f0 er ekki \u00ed mannsins valdi a\u00f0 ver\u00f0a full-or\u00f0inn.<\/p>\n<p>En vi\u00f0 getum or\u00f0i\u00f0 \u00fea\u00f0 me\u00f0 Gu\u00f0i.<\/p>\n<p>\u00cd Fjallr\u00e6\u00f0unni segir Jes\u00fas:<\/p>\n<blockquote><p>\u201eVeri\u00f0 \u00fev\u00ed fullkomin eins og fa\u00f0ir y\u00f0ar himneskur er fullkominn.\u201c<\/p><\/blockquote>\n<p>\u00c1 gr\u00edsku <i>teleioi<\/i>, \u00ferosku\u00f0, fullkomin (enska: mature,\u00a0perfect).<\/p>\n<p>All l\u00edfi\u00f0 eru vi\u00f0 a\u00f0 keppa a\u00f0 hinum \u00f3m\u00f6gulega m\u00f6guleika sem vi\u00f0 r\u00e1\u00f0um ekki vi\u00f0 ein, en me\u00f0 Gu\u00f0i er allt h\u00e6gt.<\/p>\n<p>Jes\u00fas var \u00e1 lei\u00f0inni heim. Hann talar um a\u00f0 vinir hans s\u00e9u enn \u00ed heiminum en hann \u00e1 s\u00e9r \u00fe\u00e1 \u00f3sk og b\u00e6n a\u00f0 \u00feeir ver\u00f0i ekki <b>af<\/b> heiminum. H\u00e9r talar hann um \u00fe\u00e1 sem gesti \u00ed \u00feessum heimi. \u00deeirra b\u00ed\u00f0ur einnig a\u00f0 fara heim. \u00c1 me\u00f0an eiga \u00feeir a\u00f0 g\u00e6ta \u00feess a\u00f0 ver\u00f0a ekki af heiminum, ver\u00f0a ekki fyrir \u00e1hrifum af hinu heimslega, veraldlega. H\u00e9r er viss tv\u00edhyggja \u00ed gangi, hugmyndafr\u00e6\u00f0i \u00feessa heims <i>versus<\/i> hinnar komandi veraldar.<\/p>\n<p>Og enn \u00e1 s\u00e9r sta\u00f0 bar\u00e1tta \u00ed hjarta hverrar manneskju um a\u00f0 ver\u00f0a heil en ekki heltekin af \u00fev\u00ed sem er veraldelgt og h\u00e9g\u00f3mlegt.<\/p>\n<p>M\u00f6rg okkar sem h\u00e9r komum saman \u00ed dag eigum r\u00e6tur \u00e1 \u00cdsafir\u00f0i og sv\u00e6\u00f0inu \u00fear um kring. \u00d6nnur ykkar eigi\u00f0 r\u00e6tur \u00e1 \u00f6\u00f0rum sta\u00f0. \u00dea\u00f0 er gott a\u00f0 finna til r\u00f3tanna og eiga \u00ed hjarta s\u00e9r \u00e1st til \u00e1tthaganna. \u00c1 sama h\u00e1tt er gott a\u00f0 elska sitt land og vera stoltur af landi og \u00fej\u00f3\u00f0. H\u00e6tturnar eru \u00fe\u00e6r a\u00f0 sl\u00edk elska breytist og ver\u00f0i a\u00f0 \u00fej\u00f3\u00f0rembu e\u00f0a \u00e1tthagarembu, yfirdrifinni tilfinningu fyrir yfirbur\u00f0um og \u00fev\u00ed a\u00f0 ma\u00f0ur s\u00e9 yfir a\u00f0ra hafinn og eigi einhvern r\u00e9tt sem a\u00f0rir hafa ekki. D\u00e6min \u00ed s\u00f6gunni er m\u00f6rg og \u00feau eru lj\u00f3t. \u00cd sama anda er s\u00fa afsta\u00f0a a\u00f0 telja a\u00f0flutt f\u00f3lk aldrei sem heimaf\u00f3lk, a\u00f0 horfa \u00e1 f\u00f3lk af \u00f6\u00f0ru bergi broti\u00f0 sem \u00fatlendinga sama hversu marga \u00e1ratugi \u00fea\u00f0 b\u00fdr h\u00e9r og gl\u00edmir vi\u00f0 \u00fea\u00f0 a\u00f0 leggja landi okkar og \u00fej\u00f3\u00f0 til gott eitt \u00far s\u00ednum sj\u00f3\u00f0i og stre\u00f0ar vi\u00f0 \u00fea\u00f0 a\u00f0 lifa vi\u00f0 ford\u00f3ma og ni\u00f0url\u00e6gingu. \u00cd g\u00e6r var h\u00e1t\u00ed\u00f0 \u00ed R\u00e1\u00f0h\u00fasi Reykjav\u00edkur \u00fear sem f\u00f3lk af margv\u00edslegu \u00fej\u00f3\u00f0erni kom saman og gladdist yfir r\u00f3tum s\u00ednum, menningu, tungu og s\u00f6gu.<\/p>\n<p>Frumvarp a\u00f0 n\u00fdrri stj\u00f3rnarskr\u00e1 hefst \u00e1 a\u00f0faraor\u00f0um sem \u00e9g held miki\u00f0 upp\u00e1. Upphafsor\u00f0in eru svohlj\u00f3\u00f0andi:<\/p>\n<blockquote><p>\u201eVi\u00f0 sem byggjum \u00cdsland viljum skapa r\u00e9ttl\u00e1tt samf\u00e9lag \u00fear sem allir sitja vi\u00f0 sama bor\u00f0. \u00d3l\u00edkur uppruni okkar au\u00f0gar heildina og saman berum vi\u00f0 \u00e1byrg\u00f0 \u00e1 arfi kynsl\u00f3\u00f0anna, landi og s\u00f6gu, n\u00e1tt\u00faru, tungu og menningu.\u201c<\/p><\/blockquote>\n<p>H\u00e9r er slegi\u00f0 \u00e1 strengi vir\u00f0ingar gagnvart \u00f6llu f\u00f3lki, hva\u00f0an sem \u00fea\u00f0 kemur.<\/p>\n<p>Hva\u00f0an ertu? Hvar \u00e1ttu heima?<\/p>\n<p>Hvert liggur lei\u00f0 \u00fe\u00edn?<\/p>\n<p>Ertu bara \u00ed heiminum e\u00f0a ertu l\u00edka af heiminum, gagntekinn af \u00fev\u00ed sem er \u00feessa heims en ekki himinsins?<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 er b\u00fdsna erfitt a\u00f0 vera manneskja og oft er \u00fea\u00f0 \u00e1 reiki hvernig r\u00e9ttl\u00e1tt \u00fej\u00f3\u00f0f\u00e9lag skuli vera.<\/p>\n<p>Hvernig eigum vi\u00f0 a\u00f0 vinna \u00far okkar erfi\u00f0u m\u00e1lum? Hvert eigum vi\u00f0 a\u00f0 stefna? Hvert eigum vi\u00f0 a\u00f0 fara? Stunum finnst m\u00e9r \u00cdslandi ekki vera vi\u00f0bjargandi. Vi\u00f0 erum svo reikul sem \u00fej\u00f3\u00f0. Meirihluti \u00fej\u00f3\u00f0arinnar hefur oft \u00ed t\u00edmans r\u00e1s l\u00e1ti\u00f0 blekkjast af lofor\u00f0um sem eru l\u00edti\u00f0 anna\u00f0 en innihaldslausar \u00e1v\u00edsanir sem hugsanlega ver\u00f0 a\u00f0 einhverjum kr\u00f3num og aurum &#8211; en bara hugsanlega. \u00cdslenskan \u00e1 or\u00f0 um sl\u00edk lofor\u00f0: vonarpeningur.<\/p>\n<p>Hvar eru prinsippin hj\u00e1 \u00fej\u00f3\u00f0 okkar? Hvar er festan vi\u00f0 hi\u00f0 sanna og r\u00e9tta?<\/p>\n<p>Hvar \u00e1ttu heima? Hva\u00f0an ertu? Hverju skiptir \u00fea\u00f0 ef \u00f6rf\u00e1ir einstaklingar eignast \u00feetta land, allt sem \u00e1 a\u00f0 vera okkar allra?<\/p>\n<p>Skiptir \u00feessi heimur einhverju m\u00e1li ef heimkynni okkar eru \u00ed himni Gu\u00f0s? Eigum vi\u00f0 ekki bara a\u00f0 nj\u00f3ta \u00feess a\u00f0 vera \u00ed brottfararsalnum og b\u00ed\u00f0a \u00feess a\u00f0 langr\u00fer\u00e1\u00f0 fer\u00f0alag hefjist og vi\u00f0 f\u00e1um losna\u00f0 fr\u00e1 \u00feessu \u00f6llu? Nei, l\u00edfi\u00f0 h\u00e9r og n\u00fa skiptir \u00f6llu m\u00e1li! Og l\u00edfi\u00f0 er d\u00e1samlegt \u00fer\u00e1tt fyrir andstreymi og ama. L\u00edfi\u00f0 er k\u00f6llun okkar allra hva\u00f0 sem vi\u00f0 st\u00f6rfum e\u00f0a h\u00f6fum starfa\u00f0. \u00d6ll h\u00f6fum vi\u00f0 verk a\u00f0 vinna, f\u00f3lk a\u00f0 heims\u00e6kja, hringja til, brosa til, tala til, hugga og upp\u00f6rva, bi\u00f0ja fyrir, gefa von.<\/p>\n<p>Hvar \u00e1ttu heima?<\/p>\n<p>Vi\u00f0 erum gestir og \u00fatlendingar \u00e1 \u00feessari j\u00f6r\u00f0 og munum deyja sem sl\u00edk. En vi\u00f0 eigum okkur anna\u00f0 heimkynni. \u00cd Hebreabr\u00e9finu er rakin saga \u00feekkts f\u00f3lks \u00ed s\u00f6gu \u00cdsraels og sagt:<\/p>\n<blockquote><p>\u201eAllir \u00feessir menn d\u00f3u \u00ed tr\u00fa \u00e1n \u00feess a\u00f0 hafa \u00f6\u00f0last fyrirheitin. \u00deeir s\u00e1u \u00feau \u00e1lengdar og f\u00f6gnu\u00f0u \u00feeim og j\u00e1tu\u00f0u a\u00f0 \u00feeir v\u00e6ru gestir og \u00fatlendingar \u00e1 j\u00f6r\u00f0inni.\u201c<\/p><\/blockquote>\n<p>Eigum vi\u00f0 \u00fe\u00e1 bara a\u00f0 horfa til himins og l\u00e1ta allt fjas um jar\u00f0neska hluti eiga sig? Nei, vi\u00f0 ver\u00f0um a\u00f0 berjast \u00e1fram fyrir r\u00e9ttl\u00e6ti og sannleika.<\/p>\n<p>Sk\u00e1ldi\u00f0 Marcel Proust sag\u00f0i eitthva\u00f0 \u00e1 \u00feessa lei\u00f0 um fer\u00f0al\u00f6g:<\/p>\n<blockquote><p>\u201eHin raunverulega uppg\u00f6tvun felst ekki \u00ed \u00fev\u00ed a\u00f0 leita st\u00f6\u00f0ugt eftir n\u00fdju landslagi heldur a\u00f0 sj\u00e1 me\u00f0 n\u00fdjum augu.\u201c<\/p><\/blockquote>\n<p>Hvernig s\u00e9r\u00f0u veruleikann? Hvernig l\u00edtur \u00feetta \u00fej\u00f3\u00f0f\u00e9lag \u00fat \u00ed raun og veru? Hvernig eru \u00e1tthagarnir \u00ed \u00fe\u00ednum huga? Hvernig er \u00cdsland? Hvernig s\u00e9r\u00f0u l\u00edfshlaup \u00feitt? Hvernig hefur\u00f0u lifa\u00f0? Hva\u00f0 hefur\u00f0ur lagt a\u00f0 m\u00f6rkum? Hva\u00f0 er framundan? Hva\u00f0 tekur vi\u00f0?<\/p>\n<p>Ver\u00f0um vi\u00f0 einhvernt\u00edmann fullkomin? Munum vi\u00f0 sj\u00e1 r\u00e9ttl\u00e6ti\u00f0 og sannleikann sigra? Ekki s\u00e1u M\u00f3se, Abraham, \u00cdsak e\u00f0a Jakob drauma s\u00edna r\u00e6tast. Og ekki heldur J\u00f3n Sigur\u00f0sson og Fj\u00f6lnismenn, forg\u00f6ngumenn \u00feeirra e\u00f0a eftirfylgjendur. En vi\u00f0 erum samt \u00f6ll \u00e1 lei\u00f0inni til hins fyrirheitna lands og megum aldrei l\u00e1ta deigan s\u00edga \u00ed bar\u00e1ttunni fyrir betri og fegurri heimi.<\/p>\n<blockquote><p>\u201e\u00c9g \u00e1 m\u00e9r draum\u201c,<\/p><\/blockquote>\n<p>sag\u00f0i bandar\u00edski mannr\u00e9ttindafr\u00f6mu\u00f0urinn og bl\u00f6kkuma\u00f0urinn, Martin Luther-King \u00ed einni fr\u00e6gustu r\u00e6\u00f0u s\u00f6gunnar.<\/p>\n<p>\u00c1tt \u00fe\u00fa \u00fe\u00e9r draum? Eigum vi\u00f0 okkur draum um betra \u00cdsland, betri heim? \u00dea\u00f0 \u00e6tla \u00e9g r\u00e9tt a\u00f0 vona!<\/p>\n<p>H\u00e6ttum aldrei a\u00f0 berjast fyrir r\u00e9ttl\u00e6ti og sannleika \u00ed landi voru, \u00ed \u00feessari ver\u00f6ld sem \u00fearfnast \u00feess umfram allt a\u00f0 gildi himinsins taki gildi \u00e1 j\u00f6r\u00f0u.<\/p>\n<p>Til komi \u00feitt r\u00edki!<\/p>\n<p>Ver\u00f0i \u00feinn vilji, svo \u00e1 j\u00f6r\u00f0u sem \u00e1 himni!<\/p>\n<p>\u00deetta er verkefni okkar allra \u00ed \u00feessum heimi me\u00f0an vi\u00f0 erum \u00e1 lei\u00f0inni heim.<\/p>\n<p>Og postulinn sag\u00f0i:<\/p>\n<blockquote><p>\u201eEn f\u00f6\u00f0urland okkar er \u00e1 himni og fr\u00e1 himni v\u00e6ntum vi\u00f0 frelsarans, Drottins Jes\u00fa Krists. Hann mun breyta veikum og forgengilegum l\u00edkama okkar svo a\u00f0 hann f\u00e1i s\u00f6mu mynd og d\u00fdr\u00f0arl\u00edkami hans \u00fev\u00ed hann hefur kraftinn til a\u00f0 leggja allt undir sig.\u201c Fil 3.20-21<\/p><\/blockquote>\n<p>Hvar \u00e1ttu heima, spur\u00f0i l\u00f6ggan prest. Hvert ertu a\u00f0 fara? Vi\u00f0 erum \u00e1 fer\u00f0alagi \u00ed \u00feessu l\u00edfi.<\/p>\n<p>G\u00f3\u00f0a fer\u00f0, s\u00f6ng h\u00fan Ingibj\u00f6rg fr\u00e6nka m\u00edn me\u00f0 BG og ger\u00f0i lagi\u00f0 fr\u00e6gt. G\u00f3\u00f0a fer\u00f0.<\/p>\n<p>Og n\u00fa segi \u00e9g: G\u00f3\u00f0a fer\u00f0 &#8211; um veg r\u00e9ttl\u00e6tis og sannleika.<\/p>\n<p>G\u00f3\u00f0a fer\u00f0 og gle\u00f0ilega heimkomu \u00ed fyllingu t\u00edmans.<\/p>\n<p>D\u00fdr\u00f0 s\u00e9 Gu\u00f0i, f\u00f6\u00f0ur og syni og heil\u00f6gum anda. Svo sem var \u00ed upphafi er og ver\u00f0ur um aldir alda.<\/p>\n<p>Amen.<\/p>\n<p>&#8211; &#8211; &#8211;<\/p>\n<p>S\u00e1lmar<\/p>\n<p>507 \u00d3, fa\u00f0ir gj\u00f6r mig l\u00edti\u00f0 lj\u00f3s<\/p>\n<p>224 Hallel\u00faja, d\u00fdr\u00f0 s\u00e9 Drottni<\/p>\n<p>330\u00a0\u00d3, Gu\u00f0, m\u00e9r anda gef\u00f0u \u00feinn.<\/p>\n<p>&#8211; &#8211; &#8211;<\/p>\n<p>480 D\u00fdrlegt kemur sumar eftir pr\u00e9dikun<\/p>\n<p>56 Son Gu\u00f0s ertu me\u00f0 sanni.<\/p>\n<p>Textar Sak 14.5c-9<\/p>\n<p>Post 1.12-14<\/p>\n<p>J\u00f3h 17.9-17 \u00c9g bi\u00f0 fyrir \u00feeim. \u00cd heiminum vs. af heiminum<\/p>\n<p>Textar dagsins:<\/p>\n<p><a href=\"http:\/\/kirkjan.is\/tru\/kirkjuarid\/b\/6-sunnudagur-eftir-paska\/\">http:\/\/kirkjan.is\/tru\/kirkjuarid\/b\/6-sunnudagur-eftir-paska\/<\/a><\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Heim Pr\u00e9dikun vi\u00f0 gu\u00f0s\u00fej\u00f3nustu\u00a0 \u00ed Neskirkju sunnudaginn 12. ma\u00ed kl. 14 \u00ed samvinnu vi\u00f0 \u00cdsfir\u00f0ingaf\u00e9lagi\u00f0 K\u00f3r heimamanna lei\u00f0ir s\u00f6ng Organisti Gu\u00f0n\u00fd Einarsd\u00f3ttir \u00de\u00fa getur lesi\u00f0 r\u00e6\u00f0una og hlusta\u00f0 \u00e1 hana h\u00e9r fyrir ne\u00f0an.<\/p>\n","protected":false},"author":2,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_jetpack_newsletter_access":"","_jetpack_dont_email_post_to_subs":false,"_jetpack_newsletter_tier_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paywalled_content":false,"_jetpack_hide_featured_image":false,"_jetpack_featured_image_duplicate_dismissed":0,"_jetpack_feature_clip_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":"","jetpack_post_was_ever_published":false},"categories":[7],"tags":[57,148,166,216,217,218,288,291,48,333,363,410,518,542,600,601,70,688],"class_list":["post-414","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-minningarord-eulogies","tag-atthagar","tag-draumur","tag-elska","tag-fullkominn","tag-fullnuma","tag-fullordinn","tag-heima","tag-heimurinn","tag-isafjordur","tag-jesus","tag-kosningar","tag-loford","tag-rettlaeti","tag-sannleikur","tag-stjornarskra","tag-stjornlagarad","tag-utlendingar","tag-veroldin"],"jetpack_sharing_enabled":true,"jetpack_featured_media_url":"","_links":{"self":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/414","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/users\/2"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcomments&post=414"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/414\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fmedia&parent=414"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcategories&post=414"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Ftags&post=414"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}