{"id":4044,"date":"2023-07-25T17:11:09","date_gmt":"2023-07-25T17:11:09","guid":{"rendered":"http:\/\/ornbardur.com\/2023\/07\/25\/judy-asthildur-wesley-1949-2023\/"},"modified":"2023-07-25T17:11:09","modified_gmt":"2023-07-25T17:11:09","slug":"judy-asthildur-wesley-1949-2023","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/ornbardur.com\/?p=4044","title":{"rendered":"+Judy \u00c1sthildur Wesley 1949-2023"},"content":{"rendered":"\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00d6rn B\u00e1r\u00f0ur J\u00f3nsson<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Minningaror\u00f0<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>+Judy \u00c1sthildur Wesley1949-2023<\/strong><\/p>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-image size-large\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"878\" height=\"1797\" src=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2023\/07\/open-folder-judy-wesley-1949-2023.png?w=500\" alt=\"\" class=\"wp-image-4042\" \/><\/figure>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-image size-large\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"2526\" height=\"1806\" src=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2023\/07\/re-judy-asthildur-wesley.png?w=1024\" alt=\"\" class=\"wp-image-4040\" \/><\/figure>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-image size-large\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"2529\" height=\"1796\" src=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2023\/07\/re-judy-asthildur-wesley-2.png?w=1024\" alt=\"\" class=\"wp-image-4041\" \/><\/figure>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">R\u00e6\u00f0una er h\u00e6gt a\u00f0 lesa h\u00e9r fyrir ne\u00f0an og l\u00edka hlusta \u00e1 hlj\u00f3\u00f0uppt\u00f6ku:<\/p>\n\n\n\n<!--more-->\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-audio\"><audio controls src=\"https:\/\/pub-c849b6aaf98340c4bec7b480b0f7ffe9.r2.dev\/2023\/07\/judy-wesley-1949-2023.m4a\"><\/audio><\/figure>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00deegar \u00e9g tala h\u00e9r yfir sk\u00f3lasystur minni og jafn\u00f6ldru leitar hugurinn vestur til \u00cdsafjar\u00f0ar \u00fear sem vi\u00f0 Judy gengum \u00ed sk\u00f3la saman. \u00c9g man ekki hversu m\u00f6rg \u00e1r h\u00fan var hj\u00e1, Hrefnu Ragnhei\u00f0i Magn\u00fasd\u00f3ttur, m\u00f3\u00f0ursystur sinni, h\u00fasm\u00f3\u00f0ur og saumakonu (17. \u00e1g\u00fast 1908 &#8211; 21. sept. 1999), og manni hennar, Gu\u00f0mundi Benedikti Albertssyni, skipasmi\u00f0i (4. j\u00fan\u00ed 1901 &#8211; 20. mars 1972). Judy gekk \u00ed sk\u00f3la fyrir vestan en einnig \u00ed Keflav\u00edk \u00fear sem m\u00f3\u00f0ir hennar bj\u00f3.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">H\u00fan var alla t\u00ed\u00f0 fj\u00f6rmikil, eftirminnileg, hrein og bein. \u00de\u00e1 duldist h\u00fan ekki \u00ed h\u00f3pi, l\u00e9t \u00ed s\u00e9r heyra og var jafnan \u00ed fremstu r\u00f6\u00f0.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">M\u00f3\u00f0ir Judyar var Svava Ingibj\u00f6rg Magn\u00fasd\u00f3ttir (18. j\u00fal\u00ed 1916 &#8211; 14. des. 1993), f\u00e6dd \u00ed Hesteyrars\u00f3kn, N-\u00cdsafjar\u00f0ars\u00fdslu og var \u00fear 1930, s\u00ed\u00f0ast b\u00fasett \u00ed Keflav\u00edk.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Fa\u00f0ir Judyar var Ivan Wesley Sponeman, fr\u00e1 Bandar\u00edkjunum.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c1 \u00cdsafir\u00f0i var gott a\u00f0 alast upp. Vi\u00f0 b\u00f6rnin nutum n\u00e1tt\u00farufegur\u00f0ar og frelsis, umkringd h\u00e1um fj\u00f6llum og b\u00fasett vi\u00f0 sj\u00f3inn. \u00dear voru engir leiksk\u00f3lar \u00e1 bernskud\u00f6gum okkar Judyar. Malarg\u00f6turnar voru okkar leikv\u00f6llur, fjaran og fjalli\u00f0, bryggjurnar og slippurinn, sk\u00ed\u00f0abrekkan \u00e1 J\u00f3ns Andr\u00e9sar t\u00fani og \u00ed St\u00f3rur\u00f0inni og fleiri og fleiri sta\u00f0ir. Skutulsfj\u00f6r\u00f0urinn, \u00fear sem \u00cdsafjar\u00f0arb\u00e6r stendur \u00e1 Eyrinni, skartar oft logni, sem er svo stillt a\u00f0 lj\u00f3smyndum af b\u00e6num m\u00e1 sn\u00faa hvort sem er upp e\u00f0a ni\u00f0ur, svo t\u00e6r er speglunin \u00e1 Pollinum, a\u00f0 himinn og j\u00f6r\u00f0 renna saman sem eitt. En logni\u00f0 getur \u00fev\u00e6lst fyrir \u00feegar gosm\u00f6kkur leggst yfir landi\u00f0, eins og \u00ed g\u00e6r, og vindinn vantar til a\u00f0 bl\u00e1sa \u00fev\u00ed burt og mengun m\u00e6list \u00ed Fa\u00f0mi fjalla bl\u00e1rra.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Gott var a\u00f0 alast upp \u00ed b\u00e6 sem var einskonar sm\u00e6kku\u00f0 mynd af heiminum e\u00f0a \u00fea\u00f0 sem \u00e1 ensku er kalla\u00f0 <em>microcosmos<\/em>. \u00cd b\u00e6num var mannl\u00edfsfl\u00f3ran margbreytileg, f\u00f3lk \u00e1 \u00f6llum aldri, sem starfa\u00f0i vi\u00f0 \u00feetta e\u00f0a hitt. B\u00f6rnin bjuggu flest hj\u00e1 m\u00f6mmu og pabba, en svo voru alltaf nokkur sem bjuggu hj\u00e1 \u00f6mmu og afa, fr\u00e6nda e\u00f0a fr\u00e6nku og jafnvel b\u00f6rn me\u00f0 framandi nafn eins og Judy Wesley. Aldrei man \u00e9g eftir \u00fev\u00ed a\u00f0 vi\u00f0 hef\u00f0um haft eitthva\u00f0 \u00fat \u00e1 \u00fea\u00f0 a\u00f0 setja a\u00f0 h\u00fan h\u00e9t ekki Sigr\u00ed\u00f0ur, Margr\u00e9t, Gu\u00f0r\u00fan e\u00f0a Steinunn. H\u00fan var bara ein af okkur. Au\u00f0vita\u00f0 var b\u00e6rinn ekki laus vi\u00f0 einelti og \u00feess h\u00e1ttar kvilla me\u00f0al barna og fullor\u00f0inna, heg\u00f0unar sem vi\u00f0 \u00feekkjum \u00ed samt\u00edmanum, \u00fev\u00ed vi\u00f0 vorum og erum af sama sau\u00f0ah\u00fasi og allir a\u00f0rir \u00ed \u00feessari ver\u00f6ld, syndugar manneskjur eins og Bibl\u00edan kallar \u00fea\u00f0, sem merkir breyskar og mist\u00e6kar pers\u00f3nur. En \u00fea\u00f0 var gott a\u00f0 alast upp \u00ed fj\u00f6l\u00fe\u00e6ttu samf\u00e9lagi, \u00fear sem betur settir efnahagslega og \u00feau sem minna h\u00f6f\u00f0u milli handa, voru \u00ed einu og sama f\u00e9lagi og allir gengu \u00ed sama sk\u00f3la, me\u00f0an p\u00f3lit\u00edkin t\u00f3kst \u00e1 um skiptingu g\u00e6\u00f0anna b\u00e6\u00f0i \u00e1 Al\u00feingi og \u00ed sveitastj\u00f3rnum landsins, me\u00f0 misj\u00f6fnum \u00e1rangri. Og enn er \u00fe\u00f6rf \u00e1 a\u00f0 berjast fyrir r\u00e9ttl\u00e6ti \u00ed heimi h\u00e9r og \u00feeirri bar\u00e1ttu l\u00fdkur v\u00edst aldrei.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Judy eigna\u00f0ist \u00ferj\u00fa b\u00f6rn. \u00deau eru:<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Svava Bj\u00f6rk J\u00f3ns f. 1968,<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Benedikt \u00de\u00f3r B\u00e1r\u00f0arson, f. 1976 og<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Steingr\u00edmur \u00d6rn B\u00e1r\u00f0arson f. 1978.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Judy giftist B\u00e1r\u00f0i, f\u00f6\u00f0ur str\u00e1kanna, en \u00feau skildu 1984. B\u00e1r\u00f0ur er l\u00e1tinn en Judy bj\u00f3 um \u00e1rabil me\u00f0 Sveini J\u00f3nssyni.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">H\u00fan vann \u00fdmis st\u00f6rf um \u00e6vina. H\u00fan var fj\u00f6lh\u00e6f, handlagin og f\u00e9lagslynd. H\u00fan vann \u00ed r\u00faman \u00e1ratug \u00ed m\u00f6tuneyti Landsbanka \u00cdslands. \u00de\u00e1 vann h\u00fan og dr\u00f3 hvergi af s\u00e9r \u00ed fyrirt\u00e6kinu sem \u00feau B\u00e1r\u00f0ur r\u00e1ku saman og verku\u00f0u fisk. H\u00fan f\u00f3r s\u00ed\u00f0ar og t\u00f3k sj\u00fakrali\u00f0an\u00e1m og mennta\u00f0i sig til \u00fej\u00f3nsstarfa.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">H\u00fan var kr\u00f6ftug og h\u00e6fileikar\u00edk og stunda\u00f0i \u00ed\u00fer\u00f3ttir af kappi, l\u00e9k handbolta \u00ed Keflav\u00edk og var m.a. \u00ed marki kvennalandsli\u00f0sins um t\u00edma.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Judy haf\u00f0i yndi af a\u00f0 fer\u00f0ast b\u00e6\u00f0i innan lands og utan. B\u00f6rnin segjast hafa veri\u00f0 a\u00f0 hluta til alin upp \u00ed tjaldi. H\u00fan var vinur \u00feeirra og \u00feau vissu a\u00f0 mamma st\u00f3\u00f0 \u00e6t\u00ed\u00f0 me\u00f0 \u00feeim. H\u00fan eigna\u00f0ist marga afkomendur, \u00fev\u00ed barnab\u00f6rnin eru 12 talsins og lang\u00f6mmub\u00f6rnin 3. H\u00fan fylgdist \u00e6t\u00ed\u00f0 me\u00f0 \u00feeim enda \u00fe\u00f3tt h\u00fan hafi ekki hitt \u00feau oft nema helst \u00feau sem voru \u00ed n\u00e1grenninu og spur\u00f0i fr\u00e9tta af \u00feeim og vissi alltaf hva\u00f0 \u00feau voru \u00f6ll a\u00f0 f\u00e1st vi\u00f0.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">H\u00fan var handlagin og naut \u00feess a\u00f0 prj\u00f3na, vinna vi\u00f0 keramik og gler, sem allt krefst listfengis og sk\u00f6punarg\u00e1fu. H\u00fan lag\u00f0i upp \u00far \u00fev\u00ed vi\u00f0 b\u00f6rnin a\u00f0 vera hei\u00f0arleg, hrein og bein.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Og n\u00fa hefur Judy kvatt \u00feetta l\u00edf \u00e1 75. aldurs\u00e1ri, sem er \u00ed raun of stutt mi\u00f0a\u00f0 vi\u00f0 me\u00f0al\u00e6vil\u00edkur \u00edslenskra kvenna sem sag\u00f0ar eru vera r\u00famlega 84 \u00e1r. Vi\u00f0 r\u00e1\u00f0um ekki nema hluta l\u00edfs okkar. Sumt er skr\u00e1\u00f0 \u00ed erf\u00f0av\u00edsana, anna\u00f0 fer eftir \u00e1kv\u00f6r\u00f0unum og svo eru allar tilviljanirnar sem m\u00e6ta okkur dag hvern.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">En l\u00edfi\u00f0 er gj\u00f6f sem \u00feegi\u00f0 er \u00far hendi \u00feess er setti allt af sta\u00f0. L\u00edf mitt og \u00feitt var\u00f0 til eftir \u00f3tr\u00falegt ferli \u00fear sem ein fruma og eitt egg hittust, einn samruni af \u00f3tr\u00falegum m\u00f6guleikum, einum \u00e1 m\u00f3ti 400 trillj\u00f3num, segja v\u00edsindin, og \u00far var\u00f0 \u00e9g og \u00ed \u00f6\u00f0ru tilfelli \u00fe\u00fa. Ef \u00feessi samruni hef\u00f0i ekki or\u00f0i\u00f0, hef\u00f0um vi\u00f0 sem h\u00e9r erum, aldrei or\u00f0i\u00f0 til &#8211; aldrei &#8211; og sama \u00e1 vi\u00f0 um alla a\u00f0ra einstaklinga \u00ed himninum, fyrr og s\u00ed\u00f0ar.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">L\u00edfi\u00f0 er \u00f3tr\u00falegt \u00e6vint\u00fdri. L\u00edfi\u00f0 er undursamleg gj\u00f6f, sem l\u00fdkur fyrr en varir. Enginn veit morgundaginn.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">L\u00edttu s\u00e9rhvert s\u00f3larlag,<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">sem \u00feitt hinsta v\u00e6ri \u00fea\u00f0.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00dev\u00ed morgni eftir or\u00f0inn dag<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">enginn gengur v\u00edsum a\u00f0.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Svo segir Bragi Valdimar Sk\u00falason \u00ed lj\u00f3\u00f0i sem oft er sungi\u00f0 vi\u00f0 \u00fatfarir.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Vi\u00f0 eigum andartaki\u00f0, andr\u00e1na, sem er \u00feetta t\u00edmaleysi \u00e1 milli hins li\u00f0na og \u00feess sem ver\u00f0ur.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c9g hlusta\u00f0i \u00e1 heimspeking tala um \u00fea\u00f0 n\u00fdlega a\u00f0 andr\u00e1in v\u00e6r \u00ed raun ekki til. H\u00fan m\u00e6list ekki. Um lei\u00f0 og \u00e9g sleppi einu or\u00f0i er \u00fea\u00f0 horfi\u00f0 til fort\u00ed\u00f0ar og framt\u00ed\u00f0in streymir a\u00f0 m\u00e9r. Mannkyni\u00f0 skilur margt, en t\u00edminn er okkur \u00ed raun eins og eil\u00edf, t\u00edmalaus g\u00e1ta.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hvers vegna er t\u00edminn umdeildur, svo raunverulegur sem hann annars er? Hann er alltaf til sta\u00f0ar og heldur \u00e6t\u00ed\u00f0 \u00e1fram. T\u00edminn streymir, rennur eins og flj\u00f3t. T\u00edminn heldur sinni stefnu, fer alltaf \u00e1fram. T\u00edminn setur allt \u00ed s\u00edna r\u00f6\u00f0, eitt kemur \u00e1 eftir \u00f6\u00f0ru. T\u00edminn hefur lengd, m\u00e6lanleg t\u00edmabil eru \u00e1 milli atbur\u00f0a, en n\u00fai\u00f0, s\u00e9 \u00fea\u00f0 til, er \u00ed \u00fea\u00f0 minnsta raunverulegt \u00ed huga okkar. Vi\u00f0 teljum okkur lifa \u00ed n\u00fainu.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Og h\u00e9r erum vi\u00f0 n\u00fa. Hva\u00f0 tekur vi\u00f0? Tr\u00fain s\u00e9r \u00fat fyrir hinn \u00feekkta heim. H\u00fan s\u00e9r handanveruna. Tr\u00fain er eins og sk\u00e1ld sem s\u00e9r \u00f3or\u00f0na hluti, a\u00f0rar v\u00edddir, \u00fat fyrir rammann. Sumt \u00ed l\u00edfinu ver\u00f0ur bara \u00fatsk\u00fdrt me\u00f0 sk\u00e1ldskap og sk\u00e1ldskapurinn er forsenda allra v\u00edsinda, h\u00e6fileikinn til a\u00f0 sj\u00e1 lengra, ofar, h\u00e6rra. Tr\u00fain n\u00fdtir s\u00e9r sk\u00e1ldskaparg\u00e1funa og hefur \u00e6t\u00ed\u00f0 gert til \u00feess a\u00f0 beina von sinni fram \u00e1 vi\u00f0.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c9g l\u00edkti \u00cdsafir\u00f0i vi\u00f0 sm\u00e6kka\u00f0a mynd af alheiminum, <em>m\u00edkr\u00f3kosmos<\/em>. Or\u00f0i\u00f0 er nota\u00f0 um hinn skapa\u00f0a heim, alheiminn me\u00f0 \u00f6llum s\u00ednum s\u00f3lum og tunglum, hn\u00f6ttum og pl\u00e1netum. \u00cd g\u00e6r s\u00e1 \u00e9g magna\u00f0an sj\u00f3nvarps\u00fe\u00e1tt um fer\u00f0 k\u00f6nnunargeimfarsins J\u00fan\u00f3 til pl\u00e1netunnar J\u00fapiters. \u00d3tr\u00falegt, v\u00edsindalegt afrek, framkv\u00e6mt af fr\u00e1b\u00e6rum v\u00edsindam\u00f6nnum, til a\u00f0 f\u00e1 skili\u00f0 betur ver\u00f6ldina sem vi\u00f0 b\u00faum \u00ed.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Og svo er utan alls \u00feess sem vi\u00f0 \u00feekkjum, veruleiki tr\u00faarinnar, skaparinn sj\u00e1lfur, sem ekki er af \u00feessum heimi, heldur handan hans. En hann sem tilheyrir handanverunni birtist me\u00f0al manna \u00ed h\u00e9rverunni &#8211; \u00e1 j\u00f6r\u00f0inni okkar!<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Kristur kom \u00far handanverunni og bo\u00f0a\u00f0i okkur n\u00fdja tilvist. Hann tala\u00f0i \u00far handanverunni, hann tala\u00f0i \u201chimnesku\u201d til hinna jar\u00f0nesku og sag\u00f0i:<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u201cSj\u00e1, \u00e9g er me\u00f0 y\u00f0ur alla daga allt til enda veraldar.\u201d Hann sag\u00f0i l\u00edka: \u201c\u00e9g er upprisan og l\u00edfi\u00f0\u201d . . . \u201c\u00e9g er vegurinn, sannleikurinn og l\u00edfi\u00f0\u201d.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hann sag\u00f0i hins vegar ekki svo vita\u00f0 s\u00e9: \u00c9g er t\u00edminn. En hann tala\u00f0i um t\u00edmaleysi\u00f0 og \u00fear me\u00f0 eil\u00edf\u00f0ina er hann sag\u00f0i:<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u201cM\u00ednir sau\u00f0ir heyra raust m\u00edna og \u00e9g \u00feekki \u00fe\u00e1 og \u00feeir fylgja m\u00e9r. 28 \u00c9g gef \u00feeim eil\u00edft l\u00edf og \u00feeir skulu aldrei a\u00f0 eil\u00edfu glatast og enginn skal sl\u00edta \u00fe\u00e1 \u00far hendi minni. 29 Fa\u00f0ir minn, sem hefur gefi\u00f0 m\u00e9r \u00fe\u00e1, er meiri en allir og enginn getur sliti\u00f0 \u00fe\u00e1 \u00far hendi f\u00f6\u00f0urins. 30 \u00c9g og fa\u00f0irinn erum eitt.\u201c (J\u00f3h. 10.27-30)<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">M\u00f6gnu\u00f0 fyrirheit, lofor\u00f0 sem vi\u00f0 eigum kost \u00e1 a\u00f0 tr\u00faa og taka til okkar og l\u00e1ta raungerast hi\u00f0 innra me\u00f0 okkur, \u00e1 \u00feessu fer\u00f0alagi, sem enn stendur og stefnir okkur til himinsins heim.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">L\u00edfi\u00f0 er undur og \u00fea\u00f0 er \u00feakkarvert a\u00f0 hafa \u00feegi\u00f0 \u00fea\u00f0 \u00far hendi skaparans. Og l\u00edfi\u00f0 er stutt, \u00f6rstutt, \u00ed samanbur\u00f0i vi\u00f0 s\u00f6gu l\u00edfsins \u00ed hinum skapa\u00f0a heimi. Nj\u00f3tum l\u00edfsins me\u00f0an dagur er og leitumst vi\u00f0 a\u00f0 lifa \u00fev\u00ed \u00ed gle\u00f0i og k\u00e6rleika.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Judy reyndist m\u00f6rgum vel. Hildur, k\u00e6rasta Steina, f\u00e9kk a\u00f0 reyna mannkosti hennar \u00ed erfi\u00f0um a\u00f0st\u00e6\u00f0um, fann ford\u00f3maleysi hennar, k\u00e6rleika og al\u00fa\u00f0, er h\u00fan var unglingur og \u00feurfti \u00e1 lei\u00f0s\u00f6gn a\u00f0 halda. Aldarfj\u00f3r\u00f0ungi s\u00ed\u00f0ar kom h\u00fan inn \u00ed fj\u00f6lskylduna og m\u00e6tti Judy \u00fe\u00e1 sem m\u00f3\u00f0ur k\u00e6rasta s\u00edns og reyndist h\u00fan \u00fe\u00e1 vera, me\u00f0 or\u00f0um Hildar, \u201csama d\u00e1samlega konan.\u201d<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00de\u00e1 m\u00e1 geta \u00feess a\u00f0 Hulda samb\u00fdliskona og barnsm\u00f3\u00f0ir Benna til margra \u00e1ra, s\u00e1 \u00e6t\u00ed\u00f0 til \u00feess a\u00f0 Judy li\u00f0i vel og \u00fev\u00ed sambandi f\u00e9kk h\u00fan e\u00f0al f\u00f3tsnyrtingu og dekur hj\u00e1 Huldu.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Vegna n\u00e1b\u00fdlis \u00feeirra m\u00e6\u00f0gna, Judyar og Sv\u00f6vu Bjarkar \u00e1 Su\u00f0urnesjum, voru samskipti \u00feeirra mikil \u00ed gegnum \u00e1rin. Sigurj\u00f3n ma\u00f0ur Sv\u00f6vu reyndist tengdam\u00f3\u00f0ur sinni vel og sinnti \u00fdmsum erindum fyrir hana \u00ed gegnum t\u00ed\u00f0ina. \u00deau fengu s\u00e9r kaffi saman n\u00e1nast daglega e\u00f0a t\u00f6lu\u00f0u \u00ed \u00fea\u00f0 minnsta saman \u00ed s\u00edma. \u00deau voru ekki alltaf samm\u00e1la en t\u00f3ku b\u00e6\u00f0i s\u00ednar rispur og t\u00f6lu\u00f0u \u00fat um m\u00e1lin.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Og n\u00fa eru or\u00f0in skil \u00ed l\u00edfi fj\u00f6lskyldunnar. Judy er horfin fr\u00e1 okkur.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Vi\u00f0 felum Judy \u00c1sthildi Wesley Gu\u00f0i og eil\u00edf\u00f0inni me\u00f0 \u00fe\u00f6kk fyrir allt \u00fea\u00f0 g\u00f3\u00f0a sem \u00ed henni bj\u00f3.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Megi Gu\u00f0 geyma hana \u00ed himni s\u00ednum, \u00ed hinni t\u00edmalausu eil\u00edf\u00f0, og lei\u00f0a okkur, sem enn erum h\u00e9r \u00ed heimi t\u00edmans.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Gu\u00f0 blessi minningu Judyar og Gu\u00f0 blessi \u00feig og allt \u00feitt f\u00f3lk.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Amen.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00d6rn B\u00e1r\u00f0ur J\u00f3nsson Minningaror\u00f0 +Judy \u00c1sthildur Wesley1949-2023 R\u00e6\u00f0una er h\u00e6gt a\u00f0 lesa h\u00e9r fyrir ne\u00f0an og l\u00edka hlusta \u00e1 hlj\u00f3\u00f0uppt\u00f6ku:<\/p>\n","protected":false},"author":2,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_jetpack_newsletter_access":"","_jetpack_dont_email_post_to_subs":false,"_jetpack_newsletter_tier_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paywalled_content":false,"_jetpack_hide_featured_image":false,"_jetpack_featured_image_duplicate_dismissed":0,"_jetpack_feature_clip_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":"","jetpack_post_was_ever_published":false},"categories":[4],"tags":[166,243,48,333,407,548,584,640],"class_list":["post-4044","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-greinar-og-hugvekjur-articles","tag-elska","tag-gud","tag-isafjordur","tag-jesus","tag-ljos","tag-soknudur","tag-sorg","tag-tru"],"jetpack_sharing_enabled":true,"jetpack_featured_media_url":"","_links":{"self":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/4044","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/users\/2"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcomments&post=4044"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/4044\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fmedia&parent=4044"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcategories&post=4044"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Ftags&post=4044"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}