{"id":4012,"date":"2023-07-11T18:05:29","date_gmt":"2023-07-11T18:05:29","guid":{"rendered":"http:\/\/ornbardur.com\/2023\/07\/11\/marianna-elisa-franzdottir-1927-2023\/"},"modified":"2023-07-11T18:05:29","modified_gmt":"2023-07-11T18:05:29","slug":"marianna-elisa-franzdottir-1927-2023","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/ornbardur.com\/?p=4012","title":{"rendered":"+Mar\u00edanna El\u00edsa Franzd\u00f3ttir 1927-2023"},"content":{"rendered":"\n<figure class=\"wp-block-image size-large\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"724\" height=\"1543\" src=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2023\/07\/screenshot-2023-07-11-at-18.04.12.png?w=480\" alt=\"\" class=\"wp-image-4011\" \/><\/figure>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-image size-large\"><img decoding=\"async\" src=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2023\/07\/screenshot-2023-07-11-at-17.56.49-1.png?w=1024\" alt=\"\" class=\"wp-image-4008\" \/><\/figure>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-image size-large\"><img decoding=\"async\" src=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2023\/07\/re-utfor-i-fossvogskapellu-thridjudaginn-11.-juli-kl.15-1.png?w=1024\" alt=\"\" class=\"wp-image-4009\" \/><figcaption class=\"wp-element-caption\">Hlj\u00f3\u00f0upptka og texti r\u00e6\u00f0unnar er h\u00e9r fyrir ne\u00f0an.<\/figcaption><\/figure>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-audio\"><audio controls src=\"https:\/\/pub-c849b6aaf98340c4bec7b480b0f7ffe9.r2.dev\/2023\/07\/marianna-elisa-franzdottir-1927-2023.m4a\"><\/audio><\/figure>\n\n\n\n<!--more-->\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">H\u00fan Mar\u00edanna El\u00edsa Franzd\u00f3ttir mundi t\u00edmana tvenna. \u00c1rin sem h\u00fan lif\u00f0i \u00e1 20. \u00f6ldinni voru vi\u00f0bur\u00f0ar\u00edk, einkum \u00e6sku\u00e1rin. H\u00fan f\u00e6ddist 18. j\u00fan\u00ed 1927 \u00ed Weimar \u00ed \u00de\u00fdskalandi. Fa\u00f0ir hennar var Franz Ludwig Metzner, dr. jur. ritstj\u00f3ri \u00ed Essen (1895-1970) og Marianne Metzner (1901-1998), d\u00f3ttir Viktors Moser, l\u00e6knis \u00ed Weimar og Marianne Moser f. Mirus. Eftir grunnsk\u00f3lan\u00e1m gekk h\u00fan \u00ed Menntask\u00f3la, Oberschule f\u00fcr M\u00e4dchen, Weimar 1944-45. H\u00fan lauk n\u00e1mi vi\u00f0 hj\u00fakrunarkvennask\u00f3la Sophienhaus, Weimar 1948. \u00de\u00e1 t\u00f3k vi\u00f0 eitt \u00e1r \u00ed \u00fej\u00e1lfun. H\u00fan h\u00f3f st\u00f6rf sem hj\u00fakrunarfr\u00e6\u00f0ingur hj\u00e1 \u00de\u00fdska rau\u00f0a krossinum, Deutches Rotes Kreuz, 2. ma\u00ed 1949 til 31. mars 1951. \u00de\u00e1 hj\u00e1 Allgemeines Krankenhaus, Hamburg-Bergedorf 1955-1958 en \u00fe\u00e1 kom h\u00fan til \u00cdslands til starfa \u00e1 Elliheimilinu Grund, 2. okt. 1958 og vann \u00fear fram til marsm\u00e1na\u00f0ar 1961. \u00de\u00e1 f\u00f3r h\u00fan lengra vestur um haf til starfa \u00e1 The Bronx Hospital \u00ed New York fr\u00e1 mars 1961 til j\u00fan\u00ed 1962, svo \u00e1 Boulevard Hospital \u00ed NY okt\u00f3ber 1962 til ma\u00ed 1963 er h\u00fan kom til baka til \u00cdslands og h\u00f3f st\u00f6rf \u00e1 \u00f6ldrunardeild Landsp\u00edtalans \u00ed H\u00e1t\u00fani 10B fr\u00e1 n\u00f3vember 1975 eftir a\u00f0 hafa veri\u00f0 heima me\u00f0an Helga \u00f3x \u00far grasi og vann \u00fear til desember 1996 og s\u00ed\u00f0an \u00e1 Landakoti fr\u00e1 jan\u00faar 1997 til desember 2000 eftir a\u00f0 \u00f6ldrunardeildin \u00ed H\u00e1t\u00fani sameina\u00f0ist Landakoti.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Eftir a\u00f0 h\u00fan kom til \u00cdslands 1958 f\u00f3r h\u00fan \u00e1 n\u00e1mskei\u00f0 \u00ed \u00edslensku \u00ed Mi\u00f0b\u00e6jarsk\u00f3lanum og \u00fear var ungur kennari sem var \u00ed afleysingu og \u00feau kynntust og komust a\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feau voru n\u00e1grannar, h\u00fan \u00e1 Bl\u00f3mvallag\u00f6tu og hann \u00e1 Lj\u00f3svallag\u00f6tu. \u00deau gengu saman til og fr\u00e1 sk\u00f3lanum sem leiddi til \u00feess a\u00f0 \u00feau felldu hugi saman. Mar\u00edanna El\u00edsa og Stef\u00e1n M\u00e1r Ing\u00f3lfsson, gengu \u00ed hj\u00f3naband 16. j\u00fan\u00ed 1963. Stef\u00e1n M\u00e1r var mennta\u00f0ur me\u00f0 BA gr\u00e1\u00f0u \u00ed tungum\u00e1lum, lengst af kennari vi\u00f0 Verzlunarsk\u00f3la \u00cdslands. Stef\u00e1n M\u00e1r var f\u00e6ddur 16. febr\u00faar 1932, sonur Ing\u00f3lfs J\u00f3nssonar, innheimtumanns \u00ed Reykjav\u00edk og Marenar B\u00f6\u00f0varsd\u00f3ttur. Hann l\u00e9st 2021.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">D\u00f3ttir \u00feeirra er Helga Mar\u00eda, f. 2. ma\u00ed 1964, sem starfar hj\u00e1 \u00cdslandsp\u00f3sti, \u00e1\u00f0ur P\u00f3sti og s\u00edma. Eiginkona hennar er Edda Levy, f. 9. mars 1947, fv. hj\u00fakrunarritari sem starfa\u00f0i einnig lengi \u00ed Danm\u00f6rku. Synir \u00feeirra eru tv\u00edburarnir, Stef\u00e1n M\u00e1r Levy Helguson og \u00c1stvaldur \u00de\u00f3r Levy Helguson f\u00e6ddir 22. j\u00fal\u00ed 2008.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Mar\u00edanna var m\u00e9r sem m\u00f3\u00f0ir, segir Edda, tengdad\u00f3ttir hennar, og b\u00e6tir vi\u00f0 a\u00f0 h\u00fan hafi s\u00fdnt s\u00e9r og \u00f6\u00f0ru f\u00f3lki n\u00e6r og fj\u00e6r mikla elskusemi og velvild alla t\u00ed\u00f0.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c9g man Mar\u00ed\u00f6nnu El\u00edsu fr\u00e1 \u00e1runum 15 sem \u00e9g \u00fej\u00f3na\u00f0i vi\u00f0 Neskirkju. H\u00fan kom oft til messu og t\u00f3k \u00fe\u00e1tt \u00ed dagskr\u00e1 fyrir eldri borgara \u00e1 vegum safna\u00f0arins. \u00c9g man brosi\u00f0 hennar og sk\u00e6r augun er h\u00fan heilsa\u00f0i kurteislega. \u00c9g komst a\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 h\u00fan v\u00e6ri gift Stef\u00e1ni M\u00e1, sem kenndi m\u00e9r \u00fe\u00fdsku \u00ed Verzl\u00f3 og h\u00fan skila\u00f0i stundum kve\u00f0ju fr\u00e1 honum og til baka fr\u00e1 m\u00e9r, en \u00ed Verzl\u00f3 var l\u00f6g\u00f0 r\u00edk \u00e1hersla \u00e1 tungum\u00e1l, sem \u00fe\u00f3ttu mikilv\u00e6gust \u00ed vi\u00f0skiptum vi\u00f0 Evr\u00f3pu &#8211; d\u00f6nsku, ensku og \u00fe\u00fdsku. Stef\u00e1n var \u00feolinm\u00f3\u00f0ur kennari og skipti aldrei skapi enda \u00fe\u00f3tt \u00e1hugi nemenda og athygli v\u00e6ri ekki \u00e6t\u00ed\u00f0 \u00ed h\u00e6stum h\u00e6\u00f0um.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Mar\u00edanna kom til starfa h\u00e9r \u00e1 landi og n\u00fdtti krafta s\u00edna og g\u00e1fur \u00ed \u00fe\u00e1gu sj\u00fakra. H\u00fan var alla t\u00ed\u00f0 mikill \u00dej\u00f3\u00f0verji \u00ed s\u00e9r, stolt af uppruna s\u00ednum og \u00e6tterni. H\u00fan lif\u00f0i t\u00edmana tvenna, var 12 \u00e1ra er Hitler h\u00f3f Fyrri heimsstyrj\u00f6ldina me\u00f0 innr\u00e1sinni \u00ed P\u00f3lland. \u00c1rin eftir \u00fea\u00f0 \u00feekkjum vi\u00f0 af s\u00f6gunni, \u00e1r \u00e1taka og mikilla h\u00f6rmunga fyrir \u00dej\u00f3\u00f0verja og alla Evr\u00f3pu og \u00ed reynd heiminn allan enda str\u00ed\u00f0i\u00f0 nefnt Heimsstyrj\u00f6ldin s\u00ed\u00f0ari.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Merkilegt hvernig \u00e1lfan okkar engdist og \u00fej\u00e1\u00f0ist \u00e1 li\u00f0inni \u00f6ld vegna vondra hugmyndafr\u00e6\u00f0ilegra stefna sem t\u00f3kust \u00e1 og kostu\u00f0u tugi millj\u00f3nir manna l\u00edfi\u00f0.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Mar\u00edanna var \u00ed n\u00e1mi s\u00ed\u00f0asta \u00e1r str\u00ed\u00f0sins og vann svo vi\u00f0 hj\u00fakrun \u00ed \u00de\u00fdskalandi til 1955. Me\u00f0 \u00f3tr\u00falegum dugna\u00f0i komst \u00fe\u00fdska \u00fej\u00f3\u00f0in upp \u00far ni\u00f0url\u00e6gingu sinni og reis upp til forystu \u00ed Evr\u00f3pu \u00ed \u00fev\u00ed mikla samstarfi \u00fej\u00f3\u00f0anna, sem vi\u00f0 k\u00f6llum Evr\u00f3pusambandi\u00f0, og var\u00f0 til upp\u00far vi\u00f0leitni \u00fej\u00f3\u00f0anna til a\u00f0 vinna saman \u00e1 svi\u00f0i vi\u00f0skipta og menningar.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c9g nefndi hugmyndafr\u00e6\u00f0astrauma sem settu Evr\u00f3pu \u00e1 annan endann \u00e1 li\u00f0inni \u00f6ld. Annars vegar var um a\u00f0 r\u00e6\u00f0a nazismann sem bygg\u00f0i \u00ed raun \u00e1 hei\u00f0num hugmyndumH\u00e1 um vald og yfirbur\u00f0i hinna sterku og k\u00fagun hinna veiku, dj\u00f6fullegar hugmyndir um l\u00edfi\u00f0 og heiminn og svo komm\u00fanismann sem var \u00ed raun og er afsprengi kristninnar, einkum bo\u00f0skap Jes\u00fa kristallast \u00ed r\u00e9ttl\u00e6ti til handa k\u00fagu\u00f0um.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Komm\u00fanisminn t\u00f3k \u00feessa hugmyndafr\u00e6\u00f0i, varpa\u00f0i Gu\u00f0i og Kristi fyrir bor\u00f0, og \u00e6ddi \u00e1fram \u00ed ofsa s\u00ednum, \u00fear sem menn t\u00f6ldu sig geta teki\u00f0 r\u00e9ttl\u00e6ti\u00f0 sj\u00e1lft og efstan d\u00f3m \u00ed eigin hendur og me\u00f0 handafli og ofbeldi komi\u00f0 \u00e1 veraldlegu s\u00e6lur\u00edki. \u00deegar menn \u00e6tla a\u00f0 bo\u00f0a eil\u00edf gildi Gu\u00f0sr\u00edkisins me\u00f0 bj\u00f6gun og b\u00f6lvun, me\u00f0 handafli og ofbeldi, er \u00f3hj\u00e1kv\u00e6milegt a\u00f0 allt fari fjandans til. R\u00fassarnir n\u00e1\u00f0u hluta \u00de\u00fdskalands \u00ed str\u00ed\u00f0inu og t\u00f3ku m.a. h\u00fas fj\u00f6lskyldu Mar\u00ed\u00f6nnu El\u00edsu.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Framangreinda t\u00falkun m\u00edna \u00e1 helstefnunum tveimur byggi \u00e9g \u00e1 kenningum eftir, Tom Holland, sagnfr\u00e6\u00f0ing og rith\u00f6fund, fr\u00e1 Bretlandi, sem r\u00e6ddi \u00feessi m\u00e1l n\u00fdlega er hann h\u00e9lt fyrirlestur fyrir fullu h\u00fasi fr\u00e6\u00f0imanna \u00ed R\u00famen\u00edu og ger\u00f0i grein fyrir \u00fev\u00ed hvernig hann \u00f3lst upp hj\u00e1 kristinni m\u00f3\u00f0ur \u00ed ensku biskupakirkjunni en gu\u00f0lausum f\u00f6\u00f0ur, missti tr\u00fana sem ungur ma\u00f0ur, en fann hana aftur me\u00f0 ranns\u00f3knum s\u00ednum \u00e1 \u00e1hrifum kristninnar \u00e1 heiminn.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Kjarninn \u00ed fyrirlestri hans er, a\u00f0 allt hi\u00f0 besta sem vi\u00f0 nj\u00f3tum \u00e1 Vesturl\u00f6ndum, er \u00far kristni komi\u00f0. \u00deess vegna streyma fl\u00f3ttamenn til Evr\u00f3pu, hinnar kristnu \u00e1lfu.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Unga kynsl\u00f3\u00f0in m\u00e6tti gjarnan \u00e1tta sig betur \u00e1 mikilv\u00e6gi kristinnar tr\u00faar fyrir heiminn og reyndar sum hin fullor\u00f0nu l\u00edka hverra l\u00edfslampar vir\u00f0ast n\u00fa gefa fr\u00e1 s\u00e9r \u00feverrandi birtu.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">N\u00f3g um heimsm\u00e1lin og tr\u00faardeyf\u00f0 \u00ed bili!<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Mar\u00edanna var l\u00edfsreynd og g\u00f3\u00f0 manneskja. Edda \u00feakkar fyrir allar \u00de\u00fdskalandsfer\u00f0irnar sem \u00fe\u00e6r Helga f\u00f3ru me\u00f0 henni \u00ed m\u00f6rg sumur. Mikil hl\u00fdja og v\u00e6ntum\u00feykja var milli Mar\u00ed\u00f6nnu og Helgu og t\u00f6lu\u00f0ust \u00fe\u00e6r n\u00e6r daglega vi\u00f0 e\u00f0a hittust alla t\u00ed\u00f0.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Mar\u00edanna og Stef\u00e1n bjuggu lengi vel \u00e1 Hagamel 18 og svo Kaplaskj\u00f3lsvegi 27 og 55 og undir \u00fea\u00f0 s\u00ed\u00f0asta bj\u00f3 h\u00fan \u00ed S\u00f3leyjarrima \u00ed Grafarvogi.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Br\u00f3\u00f0ir Mar\u00ed\u00f6nnu, G\u00fcnter Metzner, f. 1938, lifir systur s\u00edna. Hann b\u00fdr \u00ed Duisburg og hefur starfa\u00f0 sem enskukennari og a\u00f0sto\u00f0arsk\u00f3lastj\u00f3ri. Hann kom oft til \u00cdslands \u00ed gegnum \u00e1rin, fer\u00f0a\u00f0ist miki\u00f0 um landi\u00f0 og bj\u00f3 \u00fe\u00e1 hj\u00e1 systur sinni. Mikill k\u00e6rleikur var \u00e1 milli \u00feeirra en \u00fev\u00ed mi\u00f0ur getur hann ekki kvatt systur s\u00edna h\u00e9r \u00ed dag.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">H\u00fan kynntist str\u00ed\u00f0inu og f\u00f3r svo til New York og fannst borgin yndisleg og frelsi\u00f0 sem \u00fear r\u00edkti \u00ed samanbur\u00f0i vi\u00f0 erfi\u00f0leikana \u00ed kj\u00f6lfar str\u00ed\u00f0sins \u00ed Evr\u00f3pu. H\u00fan vissi hva\u00f0 hj\u00e1lparstarf var mikilv\u00e6gt og h\u00fan l\u00e9t verk s\u00edn tala \u00ed \u00feeim m\u00e1lum. H\u00fan r\u00e9tti \u00f6\u00f0rum h\u00e1lparh\u00f6nd og s\u00e1 til \u00feess a\u00f0 lagt v\u00e6ri inn reglulegt framlag fr\u00e1 henni til hj\u00e1lparstarfs. H\u00fan styrkti til a\u00f0 mynda tv\u00f6 b\u00f6rn \u00ed Boliv\u00edu til margra \u00e1ra, dreng og st\u00falku.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c1rlega bau\u00f0 h\u00fan \u00fe\u00fdskum vinkonum heim til s\u00edn \u00ed eggjalitun, \u00e1vallt laugardaginn fyrir p\u00e1ska \u00ed u.\u00fe.b. 60 \u00e1r og s\u00ed\u00f0ast n\u00fa \u00ed \u00e1r heima hj\u00e1 Helgu og Eddu og aldrei bar \u00fear skugga \u00e1 \u00feessar samkomur. H\u00fasi\u00f0 st\u00f3\u00f0 opi\u00f0 og \u00fe\u00e6r komu er \u00e1ttu heimangengt hverju sinni. Og au\u00f0vita\u00f0 snerust \u00feessar samkomur ekki bara um eggjalitun heldur l\u00edka kaffi og spjall. Svo heltist \u00far h\u00f3pnum eftir \u00fev\u00ed sem \u00e1runum fj\u00f6lga\u00f0i en \u00fe\u00e6r eru enn\u00fe\u00e1 a\u00f0. Mikilv\u00e6gt var \u00fea\u00f0 henni og vinkonum hennar a\u00f0 halda \u00ed hef\u00f0ir og s\u00fdna hver annarri r\u00e6ktarsemi. Nokkrar \u00feeirra fylgja vinkonu sinni til hinstu hv\u00edlu h\u00e9r \u00ed dag og hei\u00f0ra minningu hennar.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">H\u00fan h\u00e9lt \u00e6t\u00ed\u00f0 upp\u00e1 afm\u00e6li Stef\u00e1ns M\u00e1s til a\u00f0 geta bo\u00f0i\u00f0 f\u00f3lki heim en l\u00e9t \u00fea\u00f0 n\u00fa vera a\u00f0 fagna eigin afm\u00e6li me\u00f0 veisluh\u00f6ldum. \u00deannig s\u00fdndi h\u00fan \u00ed verki a\u00f0 h\u00fan lifi\u00f0 til a\u00f0 \u00fej\u00f3na og gefa af s\u00e9r. \u00deannig innti h\u00fan af hendi s\u00edna gu\u00f0s\u00fej\u00f3nustu \u00ed daglegu l\u00edfi eins og margir hafa gert og gera enn, b\u00e6\u00f0i konur og karlar. Reyndar finnst m\u00e9r s\u00fa hugsun fara dv\u00ednandi a\u00f0 f\u00f3lk eigi a\u00f0 \u00fej\u00f3na l\u00edfinu. Alltof margir vilja bara f\u00e1 \u00e1vextina af l\u00edfinu en finnst or\u00f0i\u00f0 <em>a\u00f0 \u00fej\u00f3na <\/em>ni\u00f0url\u00e6gjandi og \u00fev\u00ed er b\u00fai\u00f0 a\u00f0 breyta s\u00f6gninni <em>a\u00f0 \u00fej\u00f3na<\/em> me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 taka nafnor\u00f0 og gera \u00far \u00fev\u00ed s\u00f6gnina <em>a\u00f0 \u00fej\u00f3nusta<\/em> sem \u00e9g, Nota Bene, nota aldrei \u00ed m\u00e1li m\u00ednu, enda finnst m\u00e9r s\u00f6gnin s\u00fa vera h\u00e1lfgert skr\u00edpi \u00ed m\u00e1li voru. Enginn \u00fearf a\u00f0 skammast s\u00edn fyrir \u00fea\u00f0 a\u00f0 vera \u00fej\u00f3nn og \u00fej\u00f3na n\u00e1unga s\u00ednum og l\u00edfinu sj\u00e1lfu. \u00dear er Kristur okkar \u00e6\u00f0sta fyrirmynd.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00deau hj\u00f3nin, Mar\u00edanna og Stef\u00e1n, voru g\u00f3\u00f0um h\u00e6fileikum g\u00e6dd og nutu l\u00edfsins saman og t\u00f6lu\u00f0u \u00e6t\u00ed\u00f0 \u00fe\u00fdsku heima. H\u00fan haf\u00f0i yndi af klass\u00edskri t\u00f3nlist og \u00fear voru \u00f3perur Verdis ofarlega \u00e1 vins\u00e6ldalistanum. S\u00e1lmarnir sem sungnir eru h\u00e9r \u00ed dag yfir henni, valdi h\u00fan til flutnings yfir moldum Stef\u00e1ns M\u00e1s og \u00fev\u00ed eru \u00feeir flestir fluttir h\u00e9r aftur \u00ed dag. Vi\u00f0 breyttum Ave Mar\u00edu Schuberts \u00ed Ave Mar\u00edu Kaldal\u00f3ns en h\u00fan h\u00e9lt mj\u00f6g upp\u00e1 \u00fe\u00e1 s\u00ed\u00f0arnefndu og svo skiptum vi\u00f0 \u00fat einum s\u00e1lmi og settum inn, \u00fe\u00fdska s\u00e1lminn, Nun ruhen alle W\u00e4lder, N\u00fa fj\u00f6ll og bygg\u00f0ir blunda, eftir Paul Gerhardt 1647 \u00ed \u00fe\u00fd\u00f0ingu Helga H\u00e1lfd\u00e1narsonar, \u00far Sb. 1886. Lagi\u00f0 er eftir Heinrich Isaac sem var t\u00f3nsk\u00e1ld fr\u00e1 Ni\u00f0url\u00f6ndum um 1495. \u00deessi s\u00e1lmur hefur veri\u00f0 og er sunginn yfir moldum margra \u00dej\u00f3\u00f0verja um aldir.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00deegar h\u00fan og fj\u00f6lskyldan heims\u00f3ttu \u00de\u00fdskaland var \u00e6t\u00ed\u00f0 fari\u00f0 \u00ed \u00f3peruh\u00fas. M\u00f3\u00f0ir hennar, Marianne, n\u00e1\u00f0i h\u00e1um aldri og var t\u00e6plega 97 \u00e1ra en h\u00fan l\u00e9st 1998.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Mar\u00edanna h\u00e9lt \u00ed \u00fe\u00fdskar hef\u00f0ir allt sitt l\u00edf. H\u00fan var m\u00f3tu\u00f0 af d\u00fapri og sterkri menningu sinnar menntu\u00f0u \u00fej\u00f3\u00f0ar. Kristin gildi voru henni \u00ed bl\u00f3\u00f0 borin. H\u00fan var tr\u00fau\u00f0 og \u00edhuga\u00f0i \u00fea\u00f0 \u00e1 unglingsaldri a\u00f0 ganga \u00ed klaustur. H\u00fan s\u00f3tti reglulega kirkju h\u00e9r \u00e1 landi. Neskirkja var\u00f0 hennar tr\u00faarlega heimili. \u00dear s\u00f3tti h\u00fan helgihald og f\u00e9lagsstarf undir stj\u00f3rn prestanna, s\u00f6ng \u00ed Nesk\u00f3rnum um \u00e1rabil og vann me\u00f0 fr\u00e6nku minni Hrefnu Tynes til margra \u00e1ra \u00ed safna\u00f0arstarfi. S\u00e9ra Frank M. Halld\u00f3rsson, s\u00f3knarprestur var \u00ed miklu upp\u00e1haldi hj\u00e1 henni og hann heims\u00f3tti hana oft \u00e1 efri \u00e1rum og fylgir henni til grafar \u00ed dag. H\u00fan fylgdist \u00e6t\u00ed\u00f0 vel me\u00f0 \u00f6llu \u00ed \u00fej\u00f3\u00f0f\u00e9laginu, las Morgunbla\u00f0i\u00f0 og vildi alla \u00e6vi vita hva\u00f0 var a\u00f0 gerast \u00ed \u00fev\u00ed \u00fej\u00f3\u00f0f\u00e9lagi sem h\u00fan lif\u00f0i \u00ed.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Og n\u00fa hefur \u00feessi m\u00e6ta kona loki\u00f0 l\u00edfsstarfi s\u00ednu og k\u00f6llun. H\u00fan l\u00e9st \u00e1 hj\u00fakrunarheimilinu Eir 27. j\u00fan\u00ed s.l. eftir vi\u00f0bur\u00f0ar\u00edka \u00e6vi \u00fear sem h\u00fan f\u00e9kk a\u00f0 reyna upphef\u00f0 og hrun sinnar eigin \u00fej\u00f3\u00f0ar og upprisu \u00far \u00f6sku styrjaldar og velmegun Evr\u00f3pu eftir a\u00f0 skuldir str\u00ed\u00f0sins voru greiddar fyrir dugna\u00f0 hennar eigin \u00fej\u00f3\u00f0ar og me\u00f0 stu\u00f0ningi Bandamanna. \u00cdsland var\u00f0 hennar heimili st\u00f3ran hluta \u00e6vi hennar og h\u00e9r lei\u00f0 henni vel.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Vi\u00f0 \u00feurfum \u00f6ll a\u00f0 l\u00e6ra a\u00f0 meta au\u00f0inn sem f\u00f3lginn er \u00ed \u00fev\u00ed f\u00f3lki sem hinga\u00f0 kemur og nemur land me\u00f0 menntun s\u00edna, h\u00e6fileika og vilja til a\u00f0 leggja l\u00edfinu li\u00f0 \u00ed landinu. \u00datlendingar af \u00f6llum \u00fej\u00f3\u00f0um sem hinga\u00f0 koma me\u00f0 \u00f3l\u00edkan h\u00fa\u00f0lit og menntun eru au\u00f0lind sem eigi m\u00e1 vanmeta. T\u00f6kum vel \u00e1 m\u00f3ti \u00fev\u00ed f\u00f3lki sem vill setjast a\u00f0 \u00ed landi okkar. \u00cd a\u00f0faraor\u00f0um till\u00f6gu Stj\u00f3rnlagar\u00e1\u00f0s, a\u00f0 n\u00fdrri stj\u00f3rnarskr\u00e1 fr\u00e1 2011, segir m.a.:<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u201cVi\u00f0 sem byggjum \u00cdsland viljum skapa r\u00e9ttl\u00e1tt samf\u00e9lag \u00fear sem allir sitja vi\u00f0 sama bor\u00f0. \u00d3l\u00edkur uppruni okkar au\u00f0gar heildina og saman berum vi\u00f0 \u00e1byrg\u00f0 \u00e1 arfi kynsl\u00f3\u00f0anna, landi og s\u00f6gu, n\u00e1tt\u00faru, tungu og menningu.\u201d<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Vi\u00f0 kve\u00f0jum Mar\u00ed\u00f6nnu El\u00edsu Franzd\u00f3ttur og \u00fe\u00f6kkum fyrir l\u00edf hennar og \u00fej\u00f3nustu vi\u00f0 land og \u00fej\u00f3\u00f0, elskusemi hennar og allt hi\u00f0 g\u00f3\u00f0a sem pr\u00fdddi s\u00e1l hennar.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hin fagra, \u00fe\u00fdska kve\u00f0ja, Auf wiedersehen, hlj\u00f3mar h\u00e9r yfir henni, enda ber kve\u00f0jan \u00ed s\u00e9r von um endurfundi og \u00feannig r\u00edmar h\u00fan einmitt vi\u00f0 upprisutr\u00fa kristninnar.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Blessu\u00f0 s\u00e9 minning Mar\u00ed\u00f6nnu El\u00edsu Franzd\u00f3ttur og Gu\u00f0 blessi \u00feig sem h\u00e9r kve\u00f0ur og lei\u00f0i \u00feig um l\u00edfsveginn \u00ed tr\u00fa, von og k\u00e6rleika.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Auf wiedersehen!<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Amen.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"","protected":false},"author":2,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_jetpack_newsletter_access":"","_jetpack_dont_email_post_to_subs":false,"_jetpack_newsletter_tier_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paywalled_content":false,"_jetpack_hide_featured_image":false,"_jetpack_featured_image_duplicate_dismissed":0,"_jetpack_feature_clip_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":"","jetpack_post_was_ever_published":false},"categories":[7],"tags":[243,246,266,291,333,357,469,518,557,600,640,70,688,697],"class_list":["post-4012","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-minningarord-eulogies","tag-gud","tag-gudfraedi","tag-haegri","tag-heimurinn","tag-jesus","tag-kommunismi","tag-nazismi","tag-rettlaeti","tag-sidferdi","tag-stjornarskra","tag-tru","tag-utlendingar","tag-veroldin","tag-vinstri"],"jetpack_sharing_enabled":true,"jetpack_featured_media_url":"","_links":{"self":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/4012","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/users\/2"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcomments&post=4012"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/4012\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fmedia&parent=4012"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcategories&post=4012"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Ftags&post=4012"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}