{"id":3867,"date":"2023-02-21T16:00:32","date_gmt":"2023-02-21T16:00:32","guid":{"rendered":"http:\/\/ornbardur.com\/2023\/02\/21\/reiner-helmut-santuar-1944-2023\/"},"modified":"2023-02-21T16:00:32","modified_gmt":"2023-02-21T16:00:32","slug":"reiner-helmut-santuar-1944-2023","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/ornbardur.com\/?p=3867","title":{"rendered":"+Reiner Helmut Santuar 1944-2023"},"content":{"rendered":"\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00d6rn B\u00e1r\u00f0ur J\u00f3nsson<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Minningaror\u00f0<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>Reiner Helmut Santuar<\/strong><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>1944-2023<\/strong><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>B\u00e1lf\u00f6r fr\u00e1 Neskirkju<\/strong><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>\u00feri\u00f0judaginn 21. febr\u00faar 2023 kl. 11<\/strong><\/p>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-image size-large\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"2532\" height=\"1818\" src=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2023\/02\/fwd-reiner.png?w=1024\" alt=\"\" class=\"wp-image-3865\" \/><\/figure>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-image size-large\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"2540\" height=\"1817\" src=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2023\/02\/screenshot-2023-02-21-at-15.57.39.png?w=1024\" alt=\"\" class=\"wp-image-3866\" \/><\/figure>\n\n\n\n<!--more-->\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Einhver innskot eru \u00ed r\u00e6\u00f0unni sem ekki koma fram \u00ed textanum.<\/p>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-audio\"><audio controls src=\"https:\/\/pub-c849b6aaf98340c4bec7b480b0f7ffe9.r2.dev\/2023\/02\/reiner-helmut-santuar-1944-2023.m4a\"><\/audio><\/figure>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hver var hann Reiner Helmut Santuar sem vi\u00f0 minnumst h\u00e9r \u00ed dag? Hver var hann? \u00c9g \u00feekkti hann ekki en byggi \u00fea\u00f0 sem \u00e9g segi h\u00e9r um hann \u00e1 uppl\u00fdsingum vina hans. Hver var hann? Og hver er \u00e9g og hver ert \u00fe\u00fa? m\u00e1 l\u00edka spyrja. Hver erum vi\u00f0? Og til hvers erum vi\u00f0? Hva\u00f0an komum vi\u00f0 og hva\u00f0 ver\u00f0ur um okkur a\u00f0 l\u00edfi loknu? Um allt \u00feetta vitum vi\u00f0 eitthva\u00f0 en allt sem vi\u00f0 vitum um l\u00edfi\u00f0 og tilveruna er \u00fe\u00f3 brotakennt. Tr\u00faarbr\u00f6g\u00f0in geyma safn \u00edhugana og reynslu f\u00f3lks um l\u00edfi\u00f0 og tilveruna \u00ed gegnum aldir og \u00e1r\u00fe\u00fasund en \u00feau vita samt ekki allt.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Gr\u00edski heimspekingurinn, S\u00f3krates, haf\u00f0i margt a\u00f0 segja um s\u00edna daga. Vi\u00f0 hann eru kennd oro\u00f0in <em>gno\u00fei seauton, \u00feekktu sj\u00e1lfan \u00feig<\/em>. Hann mun l\u00edka hafa sagt eitthva\u00f0 \u00e1 \u00fe\u00e1 lei\u00f0 a\u00f0 s\u00f6nn viska um sj\u00e1lfan sig v\u00e6ri a\u00f0 vita hva\u00f0 ma\u00f0ur veit ekki, a\u00f0 \u00feekkja takm\u00f6rk eigin \u00feekkingar og skilnings &#8211; a\u00f0 \u00feekkja \u00fea\u00f0 sem ma\u00f0ur veit og \u00fea\u00f0 sem ma\u00f0ur \u00e1 \u00f3l\u00e6rt.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Vesturl\u00f6nd byggja allt sitt vit \u00e1 viskunni \u00far tveim uppsprettum: hinum gr\u00edsk\/f\u00edl\u00f3s\u00f3f\u00edska brunni og hinum gy\u00f0ing\/kristna. Heimspekingurinn P\u00e1ll heitinn Sk\u00falason, fv. h\u00e1sk\u00f3larektor, tala\u00f0i um <em>hugsanaflj\u00f3ti\u00f0<\/em> <em>mikla<\/em> sem er samsett \u00far \u00feessum tveim straumum, gr\u00edsk\/f\u00edl\u00f3s\u00f3f\u00edskum og gy\u00f0ing\/kristnum. \u00dea\u00f0an er \u00f6ll okkar g\u00f3\u00f0u gildi komin &#8211; \u00f6ll!<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Vinir Reiners segja hann hafa \u00feekkt sj\u00e1lfan sig vel. Hann var \u00edhugull og leitandi alla t\u00ed\u00f0. \u00c9g spur\u00f0i vinina: Hver var hann Reiner? Og \u00fe\u00e1 komu fram or\u00f0 eins og einyrki, einsetuma\u00f0ur, einfari en \u00feau or\u00f0 voru \u00f6ll tekin samstundis \u00fat af bor\u00f0inu \u00fev\u00ed ekkert \u00feeirra l\u00fdsir honum \u00ed raun. Or\u00f0 eru eins og hringir sem skarast \u00feegar \u00feau eru l\u00f6g\u00f0 hvert ofan \u00e1 anna\u00f0. Sameiginleg merking \u00feeirra er aldrei fyllilega s\u00f6m.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00deegar \u00e9g kom heim a\u00f0 loknum fundi m\u00ednum me\u00f0 vinum Reiners komst \u00e9g a\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 l\u00edklega v\u00e6ri besta or\u00f0i\u00f0 til a\u00f0 l\u00fdsa honum, or\u00f0i\u00f0, <em>einstakur<\/em>.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">J\u00e1, hann var ekki eins og neinn annar.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Og \u00feegar \u00f6llu er \u00e1 botninn hvolft \u00fe\u00e1 ert \u00fe\u00fa l\u00edka \u00feannig og \u00e9g einnig.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Vi\u00f0 erum \u00f6ll einst\u00f6k og ekki eftirl\u00edkingar af neinni annarri manneskju. Og enda \u00fe\u00f3tt erf\u00f0av\u00edsarnir gefi til kynna skyldleika vi\u00f0 foreldra og fyrri kynsl\u00f3\u00f0ir \u00fe\u00e1 erum vi\u00f0 einst\u00f6k. Enginn hefur t.d. s\u00f6mu fingraf\u00f6r og \u00fe\u00fa. Augun \u00fe\u00edn eru l\u00edka einst\u00f6k.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00cd Dav\u00ed\u00f0ss\u00e1lmum segir:<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">&#8220;Augu \u00fe\u00edn s\u00e1 um mig er \u00e9g enn var \u00f3mynda\u00f0 efni, \u00e6vidagar m\u00ednir voru \u00e1kve\u00f0nir og allir skr\u00e1\u00f0ir \u00ed b\u00f3k \u00fe\u00edna \u00e1\u00f0ur en nokkur \u00feeirra var til or\u00f0inn.&#8221;<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Augu \u00fe\u00edn s\u00e1u mig &#8211; og \u00feau augu sj\u00e1 \u00feig og mig n\u00fana, alla daga og um alla eil\u00edf\u00f0. \u00deegar allir sem n\u00fa lifa eru horfnir, allir sem muna okkur n\u00fa, \u00feegar \u00feau ver\u00f0a \u00f6ll horfin af \u00feessu jar\u00f0l\u00edfi \u00fe\u00e1 er bara einn sem man allt, einn alm\u00e1ttugur, eil\u00edfur Gu\u00f0, \u00e1n upphafs og endis, eil\u00edfur, \u00f3skapa\u00f0ur, uppspretta alls sem er.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Reiner Helmut Santuar f\u00e6ddist b\u00e6num D\u00f6rflach \u00ed Austurr\u00edki sem \u00fe\u00e1 var hluti af \u00de\u00fdskalandi \u00feann 12. febr\u00faar 1944.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><em>(\u00dar \u00e1rb\u00f3lk H\u00e1sk\u00f3la \u00cdslands 1967-68401. Reiner Helmut Santuar, f. i D\u00f6rflach, P\u00ffzkalandi, 12. febr. 1944. St\u00fadent 1965, Duisburg.)<\/em><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hann l\u00e9st 9. febr\u00faar 2023 \u00e1 Hj\u00fakrunarheimilinu H\u00f6mrum \u00ed Mosfellsb\u00e6, 79 \u00e1ra a\u00f0 aldri.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Foreldrar hans voru Paula og C\u00f6lestin. Hann \u00e1tti einn eldri br\u00f3\u00f0ur, Herbert Santuar, a\u00f0 nafni, sem l\u00e9st fyrir \u00feremur \u00e1rum, eftir \u00fev\u00ed sem okkur er kunnugt.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hann lauk st\u00fadentspr\u00f3fi \u00ed Duisburg 1965.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00cd \u00c1rb\u00f3k H\u00e1sk\u00f3la \u00cdslands sem \u00fat kom 1969 segir m.a.:<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">&#8220;Rikisstj\u00f3rn \u00cdslands veitti eftirfarandi st\u00fadentum styrk til<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">n\u00e1ms vi\u00f0 H\u00e1sk\u00f3lann \u00ed \u00edslenzku, s\u00f6gu \u00cdslands og b\u00f6kmenntum<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">h\u00e1sk\u00f3la\u00e1ri\u00f0 1967-1968.&#8221; Nafn Reiners er me\u00f0al 10 annarra sem komu fr\u00e1 Bandar\u00edkjunum, Bretlandi, Danm\u00f6rku, Frakklandi, Gr\u00e6nlandi, \u00cdrlandi, \u00cdtal\u00edu, Kanada, Sviss og Sv\u00ed\u00fej\u00f3\u00f0. Fj\u00f6lbreyttur h\u00f3pur \u00fea\u00f0 og allt einstakir einstaklingar.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">A\u00f0 \u00feessu n\u00e1mi loknu f\u00f3r hann aftur t\u00edl \u00de\u00fdskalands. En hann sneri aftur til \u00cdslands 1974 og \u00fe\u00e1 a\u00f0alllega til \u00feess a\u00f0 kenna innhverfa \u00edhugun a\u00f0 loknu kennaran\u00e1mi \u00ed \u00feeim fr\u00e6\u00f0um.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hann bj\u00f3 h\u00e9r til \u00e6filoka.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hann t\u00f3k aldrei upp \u00cdslenskan r\u00edkisborgara r\u00e9tt og sagt er a\u00f0 \u00fea\u00f0 hafi veri\u00f0 til \u00feess gert a\u00f0 hann g\u00e6ti sagst b\u00faa \u00ed \u00fatl\u00f6ndum<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hann var fyrsti kennari Innhverfrar \u00edhugunar h\u00e9r \u00e1 landi og einn af stofnendum \u00cdslenska \u00edhugunarf\u00e9lagsins \u00e1ri\u00f0 1975. Hann kenndi um 1500 manns a\u00f0 \u00edhuga. F\u00e9lagi\u00f0 er enn\u00fe\u00e1 starfandi, 48 \u00e1rum eftir stofnun \u00feess og \u00e1 \u00feeim t\u00edma hafa u.\u00fe.b. 5.000 \u00cdslendingar l\u00e6rt \u00fe\u00e1 \u00edhugunara\u00f0fer\u00f0 sem hann i\u00f0ka\u00f0i og kenndi.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Rein er tala\u00f0i g\u00f3\u00f0a \u00edslensku sem hann var flj\u00f3tur a\u00f0 l\u00e6ra og haf\u00f0i gott vald \u00e1.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hann starfa\u00f0i \u00e1rum saman sem \u00fe\u00fdskukennari \u00ed m\u00e1lask\u00f3lanum M\u00edmi og vann vi\u00f0 gar\u00f0yrkju m\u00f6rg sumur. Einnig vann hann sj\u00e1lfst\u00e6tt sem \u00fe\u00fdskukennari og vi\u00f0 a\u00f0 t\u00falka stj\u00f6rnukort fyrir almenning. Hann haf\u00f0i mj\u00f6g g\u00f3\u00f0a f\u00e6rni og \u00feekkingu \u00e1 \u00fev\u00ed svi\u00f0i, b\u00e6\u00f0i \u00ed svonenfdu vestr\u00e6nu kerfi og \u00fev\u00ed indverska.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Eitt af \u00feekktustu ritum \u00far arfi Hind\u00faa er Bhagavad Gita, sem samanstendur af 700 versum \u00far ritningum Hind\u00faa, sem eru hluti af ep\u00edsku lj\u00f3\u00f0i e\u00f0a s\u00f6gulj\u00f3\u00f0inu Mahabharata, sem er tali\u00f0 fr\u00e1 fyrsta \u00e1r\u00fe\u00fasundi fyrir Krist og er d\u00e6migert fyrir hind\u00faist\u00edska <em>n\u00fdmyndun<\/em> e\u00f0a <em>synthesis<\/em>. Riti\u00f0 er tali\u00f0 me\u00f0al heilagra ritninga hind\u00faismans. \u00deess m\u00e1 geta a\u00f0 riti\u00f0 var \u00fe\u00fdtt \u00e1 \u00edslensku \u00e1 li\u00f0inni \u00f6ld og \u00fea\u00f0 ger\u00f0i Sigur\u00f0ur Krist\u00f3fer P\u00e9tursson sem bj\u00f3 sem sj\u00faklingur \u00e1 Holdsveikrasp\u00edtalanum \u00ed Laugarnesi (<a href=\"https:\/\/is.wikipedia.org\/wiki\/9._j%C3%BAl%C3%AD\">9. j\u00fal\u00ed<\/a> <a href=\"https:\/\/is.wikipedia.org\/wiki\/1882\">1882<\/a> \u2013 <a href=\"https:\/\/is.wikipedia.org\/wiki\/19._%C3%A1g%C3%BAst\">19. \u00e1g\u00fast<\/a> <a href=\"https:\/\/is.wikipedia.org\/wiki\/1925\">1925<\/a>) 43 \u00e1ra a\u00f0 aldri.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Reiner var g\u00f3\u00f0um g\u00e1fum g\u00e6ddur, a\u00f0 s\u00f6gn vina hans, las alla t\u00ed\u00f0 miki\u00f0 og haf\u00f0i \u00f3tr\u00falegt minni \u00e1 \u00fea\u00f0 sem hann haf\u00f0i lesi\u00f0 og \u00fereyttist aldrei \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 ausa af s\u00ednum fr\u00f3\u00f0leiksbrunni og skenkja vinum.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hann var g\u00f3\u00f0ur kennari og fj\u00f6lfr\u00f3\u00f0ur og gat l\u00e1ti\u00f0 til s\u00edn taka \u00e1 svi\u00f0i heimspeki, og dulspeki, r\u00e6tt tr\u00faarbr\u00f6g\u00f0, stj\u00f6rnuspeki, heilun, mankyns\u00f6gu, landafr\u00e6\u00f0i, b\u00f3kmenntir og matarger\u00f0 svo f\u00e1tt eitt s\u00e9 nefnt.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hann var skemmtilegur, segja vinir hans og haf\u00f0i g\u00f3\u00f0a k\u00edmnig\u00e1fu. Hann tala\u00f0i \u00ed gamnni um st\u00f3ru K\u00e1in \u00ed l\u00edfi s\u00ednu en \u00feau voru; konur, kynl\u00edf og kaffi, en s\u00fa j\u00e1tning fylgdi a\u00f0 hann teldi sig geta \u00e1 au\u00f0veldan h\u00e1tt lifa\u00f0 \u00e1n kvenna og kynsl\u00edfs, en alls ekki \u00e1n kaffis, sem hann kalla\u00f0i reyndar tveim mismunandi n\u00f6fnum. Anna\u00f0 var K-v\u00edtam\u00edn og hitt arab\u00edsk baunas\u00fapa.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Reiner var \u00f3giftur og barnlaus en hann var barng\u00f3\u00f0ur eins og b\u00f6rn vina hans kynntust, t.d. \u00e1ttu b\u00f6rn Gr\u00edms og July me\u00f0 honum margar, skemmtilegar stundir.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hann var listr\u00e6nn og f\u00e9kkst m.a. vi\u00f0 a\u00f0 m\u00e1la vatnslitamyndir og ein af myndum hans pr\u00fd\u00f0ir opnu s\u00e1lmaskr\u00e1rinnar og er fr\u00e1 Kleifarvatni sem hann h\u00e9lt miki\u00f0 upp\u00e1. J\u00e1, honum var margt til lista lagt.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Reiner gaf fyrirm\u00e6li um a\u00f0 hann skyldi brenndur a\u00f0 jar\u00f0l\u00edfi loknu og a\u00f0 \u00f6sku hans yr\u00f0i dreift vi\u00f0 e\u00f0a \u00ed Kleifarvatn og a\u00f0 \u00feau sem \u00fear yr\u00f0u vi\u00f0st\u00f6dd \u00e6ttu m.a. a\u00f0 bl\u00e1sa s\u00e1puk\u00falur en \u00fea\u00f0 ger\u00f0i hann oft \u00ed t\u00edma og \u00f3t\u00edma t.d. \u00feegar hann vann vi\u00f0 gar\u00f0yrkju \u00e1 sumrin. \u00de\u00e1 \u00e1tti hann \u00fea\u00f0 til a\u00f0 taka upp staukinn og bl\u00e1sa nokkrar k\u00falur.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hann kom v\u00ed\u00f0a vi\u00f0 \u00ed s\u00ednum tr\u00faarp\u00e6lingum, en var skr\u00e1\u00f0ur \u00ed \u00dej\u00f3\u00f0kirkjuna, a\u00f0 s\u00f6gn Gr\u00edms Gr\u00edmssonar, vinar hans.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">N\u00fa taka til m\u00e1ls Gr\u00edmur Gr\u00edmsson og July og bl\u00e1sa nokkrar hugl\u00e6gar s\u00e1puk\u00falur \u00ed minningu hans:<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">[Upptakan heldur \u00e1fram me\u00f0 innskoti fr\u00e1 July og svo fr\u00e1 Gr\u00edm en svo kom ma\u00f0ur og ba\u00f0 um a\u00f0 f\u00e1 a\u00f0 minnast hans og \u00e9g gaf honum leyfi fyrir stuttu innleggi sem var\u00f0 reyndar allt of langt]<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c9g minntist \u00e1\u00f0an \u00e1 lj\u00f3\u00f0i\u00f0 Baghava Gita, en meginstef \u00feess er hi\u00f0 sama og S\u00f3krates nefndi, a\u00f0 \u00feekkja sitt sanna sj\u00e1lf og a\u00f0 lei\u00f0in til \u00feess v\u00e6ri \u00ed gegnum eigin l\u00edkama, g\u00e1fur og skynjunarf\u00e6ri, sem ger\u00f0u m\u00f6nnum kleyft a\u00f0 tilbi\u00f0ja gu\u00f0d\u00f3minn. Lj\u00f3\u00f0i\u00f0 hj\u00e1lpar einnig til vi\u00f0 \u00fea\u00f0 a\u00f0 f\u00f3lk n\u00e1i \u00fev\u00ed marki a\u00f0 lifa \u00ed hreinleika, styrkleika, aga, hei\u00f0arleika, g\u00f3\u00f0vild, heilindum og sta\u00f0festu til \u00feess a\u00f0 finna tilgang l\u00edfsins og a\u00f0 lifa \u00ed innihaldsr\u00edku l\u00edfi \u00ed fyllingu alls hins g\u00f3\u00f0a..<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Sigur\u00f0ur Krist\u00f3fer P\u00e9turssson, sem fyrr var geti\u00f0 var <a href=\"https:\/\/is.wikipedia.org\/w\/index.php?title=Sj%C3%A1lfmenntun&amp;action=edit&amp;redlink=1\">sj\u00e1lfmennta\u00f0ur<\/a> fr\u00e6\u00f0ima\u00f0ur og <a href=\"https:\/\/is.wikipedia.org\/wiki\/%C3%9E%C3%BD%C3%B0andi\">\u00fe\u00fd\u00f0andi<\/a>, en hann \u00fe\u00fdddi t.d. <em>H\u00e1vam\u00e1l Ind\u00edalands: Bhagavad-G\u00edta<\/em>. Hann var mikill m\u00e1lama\u00f0ur, las nor\u00f0urlandam\u00e1lin \u00f6ll, og tala\u00f0i og rita\u00f0i <a href=\"https:\/\/is.wikipedia.org\/wiki\/Danska\">d\u00f6nsku<\/a>. Ensku og <a href=\"https:\/\/is.wikipedia.org\/wiki\/%C3%9E%C3%BDska\">\u00fe\u00fdsku<\/a> nam hann svo vel a\u00f0 hann gat lesi\u00f0 v\u00edsindarit \u00e1 \u00feeim m\u00e1lum, og tala\u00f0i <a href=\"https:\/\/is.wikipedia.org\/wiki\/Esperanto\">esperanto<\/a> og orti \u00e1 \u00fev\u00ed m\u00e1li.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00deegar Sigur\u00f0ur Krist\u00f3fer var 14 vetra var\u00f0 hann <a href=\"https:\/\/is.wikipedia.org\/wiki\/Holdsveiki\">holdsveikur<\/a>. Tveimur vetrum s\u00ed\u00f0ar, \u00e1ri\u00f0 <a href=\"https:\/\/is.wikipedia.org\/wiki\/1898\">1898<\/a>, t\u00f3k <a href=\"https:\/\/is.wikipedia.org\/wiki\/Laugarnessp%C3%ADtali\">Laugarnessp\u00edtali<\/a> til starfa. F\u00e9kk hann \u00fe\u00e1 vist \u00fear og var hann einn af fyrstu sj\u00faklingum sem \u00feanga\u00f0 fluttust. Dvaldist hann \u00fear til dau\u00f0adags.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hann orti s\u00e1lm sem veri\u00f0 hefur \u00ed s\u00e1lmab\u00f3kum \u00dej\u00f3\u00f0kirkjunnar og er \u00fear enn \u00ed gl\u00e6n\u00fdrri \u00fatg\u00e1fu og ber nafni\u00f0 Drottinn vakir.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hvers vegna erum vi\u00f0 h\u00e9r? \u00deessi spurning leitar \u00e1 marga \u00e1 l\u00edfslei\u00f0inni, hvar sem er \u00ed heiminum. Vi\u00f0 spyrjum um tilvist okkar og tilgang.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Tr\u00faarbr\u00f6g\u00f0in geyma \u00f6ll margv\u00edslegar hugmyndir um \u00fea\u00f0 allt. Margt er \u00feeim sameiginelgt og anna\u00f0 ekki. \u00deau eru l\u00edk en um lei\u00f0 \u00f3l\u00edk, eins og vi\u00f0 mannf\u00f3lki\u00f0.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">En markmi\u00f0 \u00feeirra eru \u00e1\u00feekk, a\u00f0 b\u00faa til heimsmynd, kerfi sem f\u00f3lk getur m\u00e1ta\u00f0 l\u00edf sitt vi\u00f0.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Kristnin er stundum talin vera \u00ed h\u00f3pi tr\u00faarbrag\u00f0a e\u00f0a tr\u00faarkerfa e\u00f0a \u00fea\u00f0 sem \u00e1 sumum tungum\u00e1lum er kalla\u00f0 religion. En \u00fev\u00ed er l\u00edka haldi\u00f0 fram a\u00f0 kristin tr\u00fa s\u00e9 einmitt ekki tr\u00faarbr\u00f6g\u00f0 \u00ed skilningnum tr\u00faarkerfi e\u00f0a tilbei\u00f0slukerfi, \u00fev\u00ed kristin tr\u00fa byggist \u00e1 k\u00e6rleikssambandi vi\u00f0 pers\u00f3nu Jes\u00fa og gefi f\u00f3lki \u00fev\u00ed frelsi til a\u00f0 \u00feroska \u00fea\u00f0 k\u00e6rleikssamband \u00e1 s\u00ednum forsendum.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">En l\u00e1tum vera a\u00f0 fara n\u00e1nar \u00fat \u00ed \u00fea\u00f0. H\u00e9r erum vi\u00f0 \u00ed h\u00fasi sem helga\u00f0 er Kristi en \u00f6llum opi\u00f0 \u00fev\u00ed s\u00e1 Gu\u00f0 sem h\u00e9r er tala\u00f0 um elskar alla menn, konur og karla, og algj\u00f6rlega \u00e1n allra skilyr\u00f0a. H\u00e9r er enginn vi\u00f0 dyrnar sem spyr um hver margar b\u00e6nir \u00fe\u00fa hafir be\u00f0i\u00f0 \u00ed dag e\u00f0a s\u00ed\u00f0ustu daga, hvort \u00fe\u00fa s\u00e9rt b\u00fainn a\u00f0 fyrirgefa \u00feessum e\u00f0a hinum, b\u00fainn a\u00f0 vinna svo og svo m\u00f6rg g\u00f3\u00f0verk og borga\u00f0 svo og svo miki\u00f0 \u00ed sj\u00f3\u00f0i kirkjunnar e\u00f0a til annarra l\u00edknarstofnana, enginn spyr um kynhneig\u00f0 a\u00f0 hj\u00faskaparst\u00f6\u00f0u \u00fe\u00edna, menntun e\u00f0a \u00e1hugam\u00e1l. Nei, hinga\u00f0 koma allir \u00e1 s\u00ednum forsendum.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00cd g\u00e6r hitti \u00e9g mann og \u00ed okkar samtali barst Laugarnes \u00ed tal en hann haf\u00f0i veri\u00f0 \u00fear \u00e1 gangi og kanna\u00f0 s\u00f6gu \u00feess. \u00c9g f\u00f3r a\u00f0 rifja upp s\u00f6gu Sigur\u00f0ar Krist\u00f3fers P\u00e9turssonar og fann \u00fdmislegt um hann \u00e1 vefnum \u00ed s\u00edmanum m\u00ednum. Og einmitt \u00fear var tala\u00f0 um \u00fe\u00fd\u00f0ingu hans \u00e1 Baghava G\u00edta.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Er \u00fea\u00f0 tilviljun a\u00f0 einmitt \u00ed g\u00e6r, me\u00f0an \u00e9g var a\u00f0 undirb\u00faa \u00feessa ath\u00f6fn a\u00f0 \u00e9g var leiddur a\u00f0 nafni \u00feessa merka manns? \u00c9g held ekki. \u00c9g f\u00e6 svon hj\u00e1lp \u00ed hvert einasta sinn sem \u00e9g undirb\u00fd pr\u00e9dikun e\u00f0a \u00fatf\u00f6r og oft koma hugbo\u00f0 m\u00edn og \u00fea\u00f0, sem a\u00f0 s\u00e1lu minni er hv\u00edsla\u00f0, m\u00e9r gj\u00f6rsamlega \u00e1 \u00f3vart, en svo f\u00e6 \u00e9g \u00fea\u00f0 oft sta\u00f0fest a\u00f0 \u00fatf\u00f6r lokinni a\u00f0 einmitt \u00feessi e\u00f0a hin tilvitnunin hafi einmitt \u00e1tt vi\u00f0 um \u00fe\u00e1 pers\u00f3nu sem kv\u00f6dd var hverju sinni. \u00c9g held a\u00f0 hugbo\u00f0i\u00f0 um \u00fe\u00fd\u00f0anda Baghava G\u00edta hafi ekki veri\u00f0 tilviljun og \u00fev\u00ed leyfi \u00e9g m\u00e9r a\u00f0 lesa s\u00e1lm Sigur\u00f0ar Krist\u00f3fers P\u00e9turssonar sem hann orti \u00e1 sinni \u00e6vi sem einkenndist af sj\u00fakd\u00f3mum og m\u00f3tl\u00e6ti en um lei\u00f0 sterkri tr\u00fa \u00e1 hi\u00f0 st\u00f3ra samhengi alls sem er og tr\u00fa \u00e1 elskandi Drottin:<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">1 Drottinn vakir, Drottinn vakir<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">daga&#8217; og n\u00e6tur yfir \u00fe\u00e9r.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Bl\u00ed\u00f0lynd eins og besta m\u00f3\u00f0ir<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">ber hann \u00feig \u00ed fa\u00f0mi s\u00e9r.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Allir \u00fe\u00f3tt \u00fe\u00e9r a\u00f0rir breg\u00f0ist<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">aldrei hann \u00e1 burtu fer.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Drottinn elskar, Drottinn vakir<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">daga&#8217; og n\u00e6tur yfir \u00fe\u00e9r.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">2 L\u00f6ng \u00fe\u00e1 sj\u00fakd\u00f3mslei\u00f0in ver\u00f0ur<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">l\u00edfi\u00f0 hvergi v\u00e6gir \u00fe\u00e9r,<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00ferautir magnast, \u00ferj\u00f3ta kraftar,<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00feungt og s\u00e1rt hvert spori\u00f0 er,<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">honum treystu, hj\u00e1lpin kemur,<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">hann af raunum sigur ber.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Drottinn l\u00e6knar, Drottinn vakir<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">daga&#8217; og n\u00e6tur yfir \u00fe\u00e9r.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">3 \u00deegar freisting m\u00f6gnu\u00f0 m\u00e6tir,<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">m\u00e6lir fl\u00e1tt \u00ed eyra \u00fe\u00e9r<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">hr\u00f6sun svo \u00feig hendir, br\u00f3\u00f0ir,<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">h\u00e1\u00f0ung a\u00f0 \u00fe\u00e9r s\u00e6kja fer,<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">vinir fl\u00fdja &#8211; \u00e6\u00f0rast ekki,<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">einn er s\u00e1 er tildr\u00f6g s\u00e9r.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Drottinn skilur, Drottinn vakir<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">daga&#8217; og n\u00e6tur yfir \u00fe\u00e9r.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">4 \u00deegar \u00e6vir\u00f6\u00f0ull rennur,<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">r\u00f6kkvar fyrir sj\u00f3num \u00fe\u00e9r,<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">hr\u00e6\u00f0stu eigi, hel er fortjald,<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">hinum megin birtan er.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">H\u00f6ndin sem \u00feig hinga\u00f0 leiddi<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">himins til \u00feig aftur ber.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Drottinn elskar, Drottinn vakir<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">daga&#8217; og n\u00e6tur yfir \u00fe\u00e9r.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">H\u00e9r er tala\u00f0 um hel, um r\u00edki dau\u00f0ans og \u00fea\u00f0 sem er &#8220;hinum megin&#8221; og \u00fea\u00f0 er himininn, heimkynni okkar allra hverrar tr\u00faar sem vi\u00f0 annars eru. \u00dev\u00ed einn er uppruni okkar allra.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Vi\u00f0 felum Reiner Helmut Santuar hans hinstu heimkynnum og \u00fe\u00f6kkum fyrir l\u00edfi\u00f0 hans, fyrir vin\u00e1ttuna, gle\u00f0ina, g\u00e1skann, s\u00e1puk\u00falubl\u00e1sturinn, fyrir \u00f6ll skemmtilegheitin og frumleikann s\u00edkvika.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Geymi hann hinn h\u00e6sti og megi s\u00e1 sami fylgja \u00fe\u00e9r um l\u00edfsveginn me\u00f0an l\u00edfsandinn b\u00e6rist \u00ed brj\u00f3sti \u00fe\u00e9r.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">&#8220;Augu \u00fe\u00edn s\u00e1u mig&#8221; segir \u00ed b\u00f3kinni g\u00f3\u00f0u &#8211; og augu Gu\u00f0s sj\u00e1 okkur n\u00fa og um alla eil\u00edf\u00f0.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Amen.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Kve\u00f0jur sem fluttar voru s\u00ed\u00f0ar \u00ed ath\u00f6fninni:<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Gu\u00f0mundur \u00deorsteinsson, f\u00e9lagi Reiner, kemst ekki \u00ed Neskirkju en bi\u00f0ur fyrir kve\u00f0ju til vi\u00f0staddra og \u00feakkar vin\u00e1ttu Reiners.<\/p>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-image size-large\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"1183\" height=\"1762\" src=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2023\/02\/img_2172-1.jpg?w=688\" alt=\"\" class=\"wp-image-3863\" \/><\/figure>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-image size-large\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"1168\" height=\"1840\" src=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2023\/02\/img_2171.jpg?w=650\" alt=\"\" class=\"wp-image-3864\" \/><\/figure>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00d6rn B\u00e1r\u00f0ur J\u00f3nsson Minningaror\u00f0 Reiner Helmut Santuar 1944-2023 B\u00e1lf\u00f6r fr\u00e1 Neskirkju \u00feri\u00f0judaginn 21. febr\u00faar 2023 kl. 11<\/p>\n","protected":false},"author":2,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_jetpack_newsletter_access":"","_jetpack_dont_email_post_to_subs":false,"_jetpack_newsletter_tier_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paywalled_content":false,"_jetpack_hide_featured_image":false,"_jetpack_featured_image_duplicate_dismissed":0,"_jetpack_feature_clip_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":"","jetpack_post_was_ever_published":false},"categories":[7],"tags":[166,243,246,333,548,584,640],"class_list":["post-3867","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-minningarord-eulogies","tag-elska","tag-gud","tag-gudfraedi","tag-jesus","tag-soknudur","tag-sorg","tag-tru"],"jetpack_sharing_enabled":true,"jetpack_featured_media_url":"","_links":{"self":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/3867","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/users\/2"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcomments&post=3867"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/3867\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fmedia&parent=3867"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcategories&post=3867"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Ftags&post=3867"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}