{"id":3667,"date":"2022-12-30T15:16:31","date_gmt":"2022-12-30T15:16:31","guid":{"rendered":"http:\/\/ornbardur.com\/?p=3667"},"modified":"2022-12-30T15:16:31","modified_gmt":"2022-12-30T15:16:31","slug":"magnus-vignir-petursson-1032-2022","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/ornbardur.com\/?p=3667","title":{"rendered":"+Magn\u00fas Vignir P\u00e9tursson 1932-2022"},"content":{"rendered":"\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00d6rn B\u00e1r\u00f0ur J\u00f3nsson<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Minningaror\u00f0<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>+Magn\u00fas Vignir P\u00e9tursson<\/strong><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">1932-2022<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">fv. verzlunarma\u00f0ur, heildsali og knattspyrnud\u00f3mari<\/p>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-image size-large\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"808\" height=\"1170\" src=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2022\/12\/screenshot-2022-12-30-at-15.15.15.png?w=707\" alt=\"\" class=\"wp-image-3666\" \/><\/figure>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00de\u00fa getur lesi\u00f0 og hlusta\u00f0 \u00e1 r\u00e6\u00f0una \u00e1 n\u00e6stu smellu. S\u00e1lmaskr\u00e1in er allra ne\u00f0st.<\/p>\n\n\n\n<!--more-->\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-audio\"><audio controls src=\"https:\/\/pub-c849b6aaf98340c4bec7b480b0f7ffe9.r2.dev\/2022\/12\/magnus-v.-petursson-1932-2022.m4a\"><\/audio><\/figure>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">RRRRRRR<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hvellur hlj\u00f3mur flautunnar sem heyr\u00f0ist r\u00e9tt \u00ed \u00feessu getur fali\u00f0 \u00ed s\u00e9r \u00fdmsar tilv\u00edsanir. Hann getur v\u00edsa\u00f0 til upphafs e\u00f0a loka leiks, hann getur merkt a\u00f0 taka eigi aukaspyrnu e\u00f0a v\u00edti. Flauta d\u00f3marans er m\u00e1ttugt t\u00e6ki og vandme\u00f0fari\u00f0.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Magn\u00fas Vignir P\u00e9tursson var \u00e1n efa \u00feekktasti knattspyrnud\u00f3mari li\u00f0innar aldar. Hann lif\u00f0i fyrir leikina \u00e1 vellinum og svo var hann \u00feekktur fyrir a\u00f0 vera hress \u00ed lund, m\u00e1lgefinn og gamansamur. Hann unni l\u00edka l\u00edfsleiknum og \u00fea\u00f0 er mikilv\u00e6gt a\u00f0 leggja sig fram um a\u00f0 nj\u00f3ta l\u00edfsins, b\u00e6\u00f0i \u00ed leik og starfi.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Og svo var \u00fea\u00f0 sk\u00e1kin, a\u00f0 tefla vi\u00f0 andst\u00e6\u00f0inga, a\u00f0 fylkja li\u00f0i s\u00ednu \u00e1 taflbor\u00f0inu \u00fear sem strangar reglur gilda eins og \u00e1 \u00f6\u00f0rum svi\u00f0um l\u00edfsins. L\u00edfi\u00f0 leysist nefnilega upp \u00ed f\u00e1r\u00e1nleika ef engar reglur eru vi\u00f0haf\u00f0ar og allir fara s\u00ednu fram me\u00f0 olnbogaskotum og frekju.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Og vi\u00f0 d\u00e6mum \u00ed okkar l\u00edfsleik og \u00feurfum a\u00f0 g\u00e6ta \u00feess a\u00f0 ver\u00f0a ekki vilh\u00f6ll sj\u00e1lfum okkur og d\u00e6ma \u00e6t\u00ed\u00f0 v\u00edti \u00e1 andst\u00e6\u00f0inginn en aldrei \u00e1 okkur sj\u00e1lf. \u00c1 okkur hefur og mun \u00e6t\u00ed\u00f0 sannast a\u00f0 enginn er d\u00f3mari \u00ed eigin s\u00f6k.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c1 Bretlandeyjum, \u00fear sem f\u00f3tboltinn \u00e1 upphaf sitt, en \u00fear t\u00f3k hann \u00e1 sig n\u00fat\u00edmamynd me\u00f0 reglum og st\u00f6\u00f0lum og var einkum stunda\u00f0ur \u00ed upphafi a\u00f0 vetrarlagi \u00ed sk\u00f3lum landsins. \u00dear ytra er enn til f\u00e9lag, sem kennir sig vi\u00f0 borgina Korintu \u00e1 Grikklandi eins og tv\u00f6 br\u00e9fa P\u00e1ls postula gera einnig, og \u00fea\u00f0 f\u00e9lag, Corinthian Football Club, hefur svo strangar reglur a\u00f0 \u00fea\u00f0 tekur ekki v\u00edti, \u00fev\u00ed leikmenn telja a\u00f0 herramenn eigi ekki a\u00f0 hafa rangt vi\u00f0 og \u00fev\u00ed hafna \u00feeir v\u00edtaspyrnum. Ef v\u00edti er d\u00e6mt \u00e1 \u00fe\u00e1, v\u00edkur markma\u00f0urinn \u00far markinu og leyfir anst\u00e6\u00f0ingunum a\u00f0 skora \u00ed galopi\u00f0 marki\u00f0, en ef \u00feeir sj\u00e1lfir f\u00e1 v\u00edti spyrna \u00feeir viljandi yfir marki\u00f0 til a\u00f0 skora ekki og taka s\u00e9r \u00fear me\u00f0 st\u00f6\u00f0u me\u00f0 hei\u00f0arleikanum.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">L\u00edfi\u00f0 er \u00e1 margan h\u00e1tt eins og knattspyrnuleikur. \u00dear leika \u00fe\u00e1tttakendur mismunandi st\u00f6\u00f0ur og gegna \u00f3l\u00edkum hlutverkum en samt me\u00f0 sama markmi\u00f0i, a\u00f0 vinna leikinn og spila innan ramma \u00feess sem m\u00e1.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00cd l\u00edfinu upplifum vi\u00f0 \u00f6ll sigra en l\u00edka \u00f3sigra, vi\u00f0 f\u00f6llum og r\u00edsum upp aftur, rekumst \u00e1 a\u00f0ra og \u00feeir rekast \u00e1 okkur, vi\u00f0 verjumst vel, s\u00e6kjum fram, skorum og f\u00f6gnum. En svo getum vi\u00f0 l\u00edka fengi\u00f0 \u00e1 okkur v\u00edti e\u00f0a \u00f6fugt og \u00fe\u00e1 skiptir \u00f6llu m\u00e1li a\u00f0 brenna ekki af. A\u00f0 geiga \u00ed v\u00edtaspyrnu er eitt \u00fea\u00f0 versta sem leikmenn lenda \u00ed. Vi\u00f0 s\u00e1um \u00feetta \u00ed \u00farslitaleik heimsmeistarakeppninnar \u00ed Qatar fyrr \u00ed m\u00e1nu\u00f0inum, milli Frakklands og Argent\u00ednu, hvernig leikmenn Frakklands, brenndu af \u00ed tv\u00edgang \u00ed v\u00edtaspyrnukeppninni og t\u00f6pu\u00f0u \u00fear me\u00f0 \u00farslitaleiknum. \u00dea\u00f0 er synd a\u00f0 brenna af og \u00feegar \u00e9g nota \u00feessi hugt\u00f6k saman, synd og a\u00f0 brenna af, \u00fe\u00e1 geri \u00e9g \u00fea\u00f0 einmitt \u00ed tr\u00faarlegum tilgangi \u00fev\u00ed \u00ed N\u00fdja testamentinu er mikilv\u00e6gt or\u00f0 sem \u00fe\u00fdtt er me\u00f0 or\u00f0inu synd \u00e1 \u00edslensku, en merkir \u00ed raun a\u00f0 geiga, a\u00f0 brenna af, a\u00f0 skj\u00f3ta framhj\u00e1. Gr\u00edska or\u00f0i\u00f0 er <em>hamartia.<\/em> Syndin \u00ed l\u00edfi okkar felst \u00ed \u00fev\u00ed a\u00f0 okkur mistekst svo margt og \u00feess vegna eru or\u00f0 Jes\u00fa meira og minna um \u00fea\u00f0 a\u00f0 upp\u00f6rva f\u00f3lk sem hefur mistekist og brennt af \u00ed l\u00edfinu og r\u00e9tta \u00fea\u00f0 vi\u00f0 aftur svo \u00fea\u00f0 geti haldi\u00f0 \u00e1fram a\u00f0 lifa og d\u00e6mi sj\u00e1lft sig ekki \u00far leik. \u00deetta \u00feekkjum vi\u00f0 \u00f6ll og eigum \u00fear af lei\u00f0andi br\u00fdnt erindi vi\u00f0 Hann sem kom \u00e1 j\u00f3lum og vi\u00f0 f\u00f6gnum um \u00feessar mundir, hann sem talar \u00ed okkur styrk og hvetur okkur til a\u00f0 halda leiknum \u00e1fram me\u00f0 sigur a\u00f0 markmi\u00f0i.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">RRRRRRR<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Og l\u00edfi\u00f0 heldur \u00e1fram, leiknum okkar er ekki loki\u00f0 og ekki heldur hj\u00e1 Magga P\u00e9 enda \u00fe\u00f3tt hann s\u00e9 farinn af sameiginlegum l\u00edfsvelli okkar, \u00fev\u00ed l\u00edfi\u00f0 hans heldur \u00e1fram samkv\u00e6mt hinni kristnu von og \u00ed vissum skilningi er dau\u00f0inn upphaf en ekki endalok eins og \u00fe\u00fdski presturinn, Dietrich Bonhoeffer, sag\u00f0i \u00feegar nazistar leiddu hann til aft\u00f6ku, sk\u00f6mmu fyrir str\u00ed\u00f0slok. Samfangar hans gr\u00e9tu \u00feegar hann kvaddi \u00fe\u00e1 og var leiddur \u00ed g\u00e1lgann. \u00de\u00e1 sag\u00f0i hann vi\u00f0 samfanga s\u00edna og vini: \u201eFyrir mig eru \u00feetta endalokin en jafnframt upphafi\u00f0.\u201c<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Sn\u00faum okkur n\u00fa a\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 fjalla um manninn sem vi\u00f0 kve\u00f0jum h\u00e9r \u00ed dag.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Magn\u00fas Vignir P\u00e9tursson, f\u00e6dd\u00adist \u00ed Reykja\u00adv\u00edk 31. des\u00adem\u00adber 1932, son\u00adur hj\u00f3n\u00adanna P\u00e9t\u00adurs J\u00f3hannesar Gu\u00f0munds\u00adson\u00adar, trillu\u00adkarls \u00ed Skerjaf\u00adir\u00f0i, og konu hans, Sig\u00adur\u00adbjarg\u00adar <em>J\u00f3nu<\/em> Magn\u00fas\u00add\u00f3tt\u00adur, h\u00fas\u00adfreyju. Hann \u00f3lst upp \u00ed Skerjaf\u00adir\u00f0i sem \u00fe\u00e1 tilheyr\u00f0i D\u00f3mkirkjus\u00f3kn en hefur tilheyrt Nesprestakalli fr\u00e1 stofnun \u00feess \u00e1ri\u00f0 1940. Neskirkja var v\u00edg\u00f0 \u00e1 p\u00e1lmasunnudag 1957 og einmitt h\u00e9r f\u00f3r hj\u00f3nav\u00edgsla hans og Ey\u00fe\u00f3ru fram. [Innskot sem er \u00e1 hlj\u00f3\u00f0uppt\u00f6ku um Neskirkju]. Og h\u00e9\u00f0an er hann kvaddur af fj\u00f6lmenni, daginn fyrir n\u00edr\u00e6\u00f0isafm\u00e6li\u00f0.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Minningargreinar barna hans og vina, \u00ed bla\u00f0i dagsins, bera honum fagurt vitni.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hann \u00e1tti g\u00f3\u00f0a og langa \u00e6vi, vi\u00f0bur\u00f0ar\u00edka og skemmtilega a\u00f0 mestu, enda var hann afar hress ma\u00f0ur og \u00e1tti \u00e6t\u00ed\u00f0 erfitt me\u00f0 a\u00f0 leynast \u00ed h\u00f3pi svo ekki s\u00e9 n\u00fa meira sagt um hressileika hans og m\u00e1lgle\u00f0i.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">L\u00edfi\u00f0 \u00e1 \u00e6sku\u00e1runum \u00ed Skerj\u00f3 einkenndist af g\u00e1ska og gle\u00f0i &#8211; og svo af gr\u00e1sleppuvei\u00f0um.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Br\u00f3\u00f0ir Magn\u00fasar var Gunnar, 2 \u00e1rum eldri, f\u00e6ddur 2. febr\u00faar 1930 og l\u00e9st 4. febr\u00faar 2020, n\u00edr\u00e6\u00f0ur og tveim d\u00f6gum betur. Fa\u00f0ir \u00feeirra d\u00f3 \u00e1 sama aldri. Gunnar l\u00e9k lengi knattspyrnu me\u00f0 Fram og \u00fej\u00e1lfa\u00f0i m.a. yngra landsli\u00f0i\u00f0 \u00e1rum saman. Eiginkona Gunnars, \u00de\u00f3rey Hannesd\u00f3ttir, f\u00e6ddist \u00e1ri\u00f0 1934 en l\u00e9st 1994.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Maggi P\u00e9 f\u00f3r ungur a\u00f0 vinna og fyrsta fasta starfi\u00f0, fyrir utan \u00fea\u00f0 a\u00f0 hj\u00e1lpa pabba vi\u00f0 fiskir\u00edi\u00f0, var sendilstarfi\u00f0. Hann byrja\u00f0i snemma sem sendi\u00adsveinn hj\u00e1 Kaffi H\u00f6ll \u00e1tta \u00e1ra gam\u00adall og var\u00f0 s\u00ed\u00f0an sendi\u00adsveinn hj\u00e1 B\u00fana\u00f0arbank\u00adan\u00adum. Hann var versl\u00adun\u00adar\u00adstj\u00f3ri hj\u00e1 KRON vi\u00f0 F\u00e1lka\u00adg\u00f6tu og s\u00ed\u00f0ar s\u00f6luma\u00f0ur hj\u00e1 verk\u00adsmi\u00f0ju Magn\u00fas\u00adar V\u00edg\u00adlunds\u00adson\u00adar. \u00c1ri\u00f0 1965 stofna\u00f0i hann heild\u00adversl\u00adun\u00adina Hof\u00adfell \u00e1samt J\u00f3ni T\u00f3massyni og rak alla t\u00ed\u00f0 og stofna\u00f0i svo me\u00f0 Valdi\u00admari syni s\u00edn\u00adum knatt\u00adspyrnu\u00adversl\u00adun\u00adina J\u00f3a \u00datherja \u00ed \u00c1rm\u00fala \u00e1ri\u00f0 1999. Versl\u00adun\u00adin keypti s\u00ed\u00f0ar Hof\u00adfell og Magn\u00fas h\u00e6tti kaup\u00admennsku fyr\u00adir um \u00e1tta \u00e1rum.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Sj\u00e1lfur h\u00f3f \u00e9g minn starfsferil sem sendill og b\u00fa\u00f0arma\u00f0ur og s\u00fa reynsla hefur duga\u00f0 m\u00e9r betur en margt anna\u00f0 \u00ed prests\u00fej\u00f3nustunni.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Knattspyrnan var einn af sterkustu \u00fe\u00e1ttum \u00ed f\u00e9lagsl\u00edfi \u00fej\u00f3\u00f0arinnar alla s\u00ed\u00f0ustu \u00f6ld. N\u00fat\u00edma knattspyrna er s\u00f6g\u00f0 eiga upphaf sitt \u00e1 Bretlandseyjum \u00e1 19. \u00f6ld en \u00fe\u00f3 vita\u00f0 er a\u00f0 mannf\u00f3lki\u00f0 hefur leiki\u00f0 s\u00e9r me\u00f0 bolta um aldir. Sagan s\u00fdnir a\u00f0 f\u00f3lk, sem var uppi fyrir 3.000 \u00e1rum \u00ed Mi\u00f0-Amer\u00edku, l\u00e9k s\u00e9r me\u00f0 bolta \u00far g\u00famm\u00edi, efni sem engar a\u00f0rar \u00fej\u00f3\u00f0ir \u00feekktu fyrr en \u00f6ldum seinna. Boltinn var t\u00e1kn s\u00f3larinnar og fyrirli\u00f0a \u00feeirra sem t\u00f6pu\u00f0u leiknum var f\u00f3rna\u00f0 a\u00f0 leik loknum. Sl\u00edkar f\u00f3rnir \u00ed knattspyrnu n\u00fat\u00edmans mundu flj\u00f3tlega ganga a\u00f0 \u00ed\u00fer\u00f3ttinni dau\u00f0ri, b\u00f3kstaflega tala\u00f0.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00cd K\u00edna \u00e1 2. og 3. \u00f6ld. e.Kr., var\u00f0 til leikurinn <em>cuju<\/em> me\u00f0 le\u00f0urbolta, fylltum fi\u00f0ri, sem var sparka\u00f0 \u00e1 ferhyrndum velli. Afbrig\u00f0i af \u00feeim leik barst til Japan og kalla\u00f0ist <em>kemari<\/em>. F\u00f3tboltinn er \u00fev\u00ed alls ekki n\u00fdr af n\u00e1linni.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Magn\u00fas h\u00f3f ung\u00adur \u00fe\u00e1tt\u00adt\u00f6ku \u00ed hand\u00adknatt\u00adleik og knatt\u00adspyrnu me\u00f0 Fram og var s\u00ed\u00f0ar einn af stofn\u00adf\u00e9\u00adl\u00f6g\u00adum \u00der\u00f3tt\u00adar 1949. Hann var me\u00f0al for\u00adv\u00edg\u00adis\u00admanna sk\u00e1k\u00ad\u00e6f\u00adinga hj\u00e1 f\u00e9\u00adlag\u00adinu og um t\u00edma forma\u00f0ur brids\u00addeild\u00adar. Hann var flj\u00f3t\u00adlega far\u00adinn a\u00f0 \u00fej\u00e1lfa yngri flokka. \u00de\u00e1 var hann forma\u00f0ur hand\u00adknatt\u00adleiks\u00addeild\u00adar \u00der\u00f3tt\u00adar \u00ed fj\u00f6g\u00adur \u00e1r. \u00c1ri\u00f0 1950 t\u00f3k hann d\u00f3m\u00adara\u00adpr\u00f3f \u00ed knatt\u00adspyrnu, var\u00f0 lands\u00add\u00f3m\u00adari 1956 og al\u00fej\u00f3\u00f0leg\u00adur FIFA-d\u00f3m\u00adari 1965. \u00c9g man hann fr\u00e1 \u00feessum \u00e1rum \u00fev\u00ed sk\u00f3labr\u00f3\u00f0ir minn og k\u00e6r vinur, fr\u00e6ndi Ey\u00fe\u00f3ru, bj\u00f3 \u00ed sama stigagangi og \u00feau hj\u00f3nin, \u00ed \u00c1lftam\u00fdri 6. \u00deanga\u00f0 kom \u00e9g oft og s\u00e1 Magga P\u00e9 \u00e1 planinu a\u00f0 \u00fevo b\u00edlinn e\u00f0a tala vi\u00f0 f\u00f3lk. J\u00e1, hann tala\u00f0i gjarnan miki\u00f0 og \u00e1tti oft hreinlega erfitt me\u00f0 a\u00f0 leynast \u00ed margmenni.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Magn\u00fas var regluma\u00f0ur og hann \u00e1tti \u00fea\u00f0 til \u00feegar hann h\u00e9lt bo\u00f0 a\u00f0 blanda \u00e1fengan drykk handa gestum og sj\u00e1lfum s\u00e9r en helti oftast \u00far s\u00ednu glasi \u00ed vaskinn a\u00f0 bo\u00f0i loknu.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hann starfa\u00f0i sem d\u00f3m\u00adari \u00ed 30 \u00e1r og d\u00e6mdi v\u00ed\u00f0a um l\u00f6nd. Magn\u00fas d\u00e6mdi einnig \u00ed hand\u00adknatt\u00adleik og var me\u00f0 al\u00fej\u00f3\u00f0leg r\u00e9ttindi \u00ed \u00feeirri grein. Hann f\u00f3r margar fer\u00f0ur \u00fat um allt land til a\u00f0 d\u00e6ma og sag\u00f0i skemmtilega fr\u00e1 \u00fev\u00ed \u00ed vi\u00f0tali \u00ed sj\u00f3nvarpi fyrr \u00e1 \u00feessu \u00e1ri m.a. er hann f\u00f3r fer\u00f0 til \u00cdsafjar\u00f0ar me\u00f0 Catal\u00ednu-flugb\u00e1ti sem lenti me\u00f0 miklu frussi \u00e1 Pollinum og svo var f\u00f3lk selflutt upp a\u00f0 bryggju \u00e1 g\u00f6mlum og opnum n\u00f3tab\u00e1ti. Eiginkonan var me\u00f0 \u00ed \u00feeirri fer\u00f0 og m\u00f6rgum \u00f6\u00f0rum.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Magn\u00fas hefur hloti\u00f0 margskonar vi\u00f0urkenningar \u00e1 l\u00edfslei\u00f0inni. Hann var s\u00e6md\u00adur gull\u00admerki \u00der\u00f3tt\u00adar, KS\u00cd, HS\u00cd, \u00cdBR og KRR fyr\u00adir st\u00f6rf s\u00edn, \u00fat\u00adnefnd\u00adur hei\u00f0urs\u00adf\u00e9\u00adlagi \u00der\u00f3tt\u00adar \u00e1 s\u00ed\u00f0asta \u00e1ri og var einnig hei\u00f0ursf\u00e9\u00adlagi n\u00fam\u00ader 1 \u00ed Li\u00adverpool-kl\u00fabbn\u00adum og lagi\u00f0 \u00feeirra, You&#8217;ll Never Walk Alone, ver\u00f0ur sungi\u00f0 \u00e1\u00f0ur en rekum ver\u00f0ur kasta\u00f0. Textinn er \u00ed raun tr\u00faarlegur, \u00fev\u00ed hann bl\u00e6s f\u00f3lki \u00ed brj\u00f3st von \u00ed illvi\u00f0rum l\u00edfsins og v\u00edsar til \u00feess a\u00f0 senn birti upp og s\u00f6ngfuglar muni hefja raust s\u00edna \u00e1 n\u00fd. Vi\u00f0 erum aldrei ein \u00e1 fer\u00f0.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00deau or\u00f0 eiga vel vi\u00f0 um Magn\u00fas sem var aldrei einn \u00e1 fer\u00f0. Hann \u00e1tti s\u00e9r vi\u00f0 hli\u00f0, Ey\u00fe\u00f3ru Valdimarsd\u00f3ttur, \u00ed\u00fer\u00f3ttakennara, allt til hinstu stundar. B\u00f6rn \u00feeirra eru Krist\u00ad\u00edn, J\u00f3\u00adhanna Bj\u00f6rg og Valdi\u00admar P\u00e9t\u00adur og svo komu barnab\u00f6rnin og barnabarnab\u00f6rnin d\u00fdrm\u00e6tu.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Fj\u00f6lskyldan segir hann hafa veri\u00f0 opinn og hressan alla t\u00ed\u00f0. Hann gaf miki\u00f0 af s\u00e9r og \u00e1tti au\u00f0velt me\u00f0 a\u00f0 tala vi\u00f0 alla. Hann fylgdist vel me\u00f0 afkomendum s\u00ednum og naut afahlutverksins til hins \u00edtrasta.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hann bj\u00f3 yfir jafnar\u00f0arge\u00f0i og Ey\u00fe\u00f3ra sag\u00f0i vi\u00f0 mig a\u00f0 &#8220;ekki hef\u00f0i veri\u00f0 nokkur lei\u00f0 til a\u00f0 f\u00e1 hann til a\u00f0 r\u00edfast vi\u00f0 sig.&#8221; En au\u00f0vita\u00f0 blossar \u00e1 milli allra hj\u00f3na, eins og gengur.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Eftir a\u00f0 Magn\u00fas og Valdimar gengu fr\u00e1 vi\u00f0skiptum s\u00edn \u00e1 milli vegna reksturs fyrirt\u00e6kjanna \u00fe\u00e1 h\u00e6tti Magn\u00fas ekki a\u00f0 koma heldur m\u00e6tti svo a\u00f0 segja hvern dag og l\u00e9k sk\u00e1k vi\u00f0 vini s\u00edna, haf\u00f0i sitt skrif- og sk\u00e1kbor\u00f0 og hringdi oft \u00ed vini s\u00edna og bau\u00f0 \u00feeim \u00ed sk\u00e1k. En svo f\u00e6kka\u00f0i heims\u00f3knum me\u00f0 \u00e1runum.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00deau eru m\u00f6rg sem \u00fe\u00f3tti gaman a\u00f0 hitta Magga P\u00e9 og a\u00f0 f\u00e1 hann \u00ed afm\u00e6li var vinningur, en me\u00f0an b\u00f6rnin voru ung fannst \u00feeim n\u00fa oft allt of mikill sl\u00e1ttur \u00e1 pabba og h\u00e1lf sk\u00f6mmu\u00f0ust s\u00edn fyrir kallinn, einkum \u00e1 unglings\u00e1runum \u00feegar f\u00e9lagsleg samskipti eru \u00e6t\u00ed\u00f0 \u00e1 afar vi\u00f0kv\u00e6mu stigi. En barnab\u00f6rnin h\u00f6f\u00f0u a\u00f0ra mynd af afa sem \u00feekkti alla og ef ekki \u00fe\u00e1 bara kynntist hann \u00feeim, segja \u00feau!<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Magn\u00fas var \u00f6r \u00ed lund og \u00e6t\u00ed\u00f0 a\u00f0 fl\u00fdta s\u00e9r og t\u00f3k \u00fe\u00e1tt \u00ed m\u00f6rgum svigkeppnum \u00e1 Miklubrautinni og \u00f6\u00f0rum lei\u00f0um \u00ed t\u00edmans r\u00e1s enda sp\u00f6lur a\u00f0 komast \u00far Fremmristekknum \u00fear sem \u00feau bjuggu i 51 \u00e1r og vestur \u00ed b\u00e6 e\u00f0a \u00f6nnur hverfi.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Ey\u00fe\u00f3ra er \u00ed\u00fer\u00f3ttakennari a\u00f0 mennt og \u00fev\u00ed \u00e1ttu \u00feau einkar vel saman en h\u00fan starfa\u00f0i um t\u00edma hj\u00e1 J\u00f3ni \u00deorsteinssyni \u00e1 s\u00ednum yngri \u00e1rum og kenndi svo stelpum leikfimi \u00ed Lindarg\u00f6tusk\u00f3la. &#8220;\u00de\u00e1 f\u00f3r \u00e9g \u00ed barneiginir&#8221; sag\u00f0i h\u00fan, &#8220;og kenndi svo sund \u00ed Sundh\u00f6ll Reykjav\u00edkur&#8221; eftir \u00fea\u00f0, en s\u00fa mikilv\u00e6ga bygging var v\u00edg\u00f0 r\u00e9tt fyrir eins \u00e1rs afm\u00e6li Ey\u00fe\u00f3ru og h\u00fan f\u00f3r \u00feanga\u00f0 oft sem barn enda stutt a\u00f0 fara.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Vinur Magga P\u00e9 og sveitungi minn, Einar S. Einarsson, sendi m\u00e9r texta um vin sinn sem rita\u00f0ur var me\u00f0an hann lif\u00f0i eins og s\u00e9st og heyrist \u00e1 t\u00ed\u00f0um sagna \u00ed textanum:<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><em>&#8220;Maggi P\u00e9 er sem kunnugt er v\u00ed\u00f0fr\u00e6gur og virtur millir\u00edkjad\u00f3mari \u00ed knattspyrnu og handbolta og hefur d\u00e6mt fj\u00f6lda f\u00e9lagsli\u00f0a og landsleikja erlendis og fleiri leiki \u00ed efstu deild h\u00e9r \u00e1 landi en nokkur annar.  Hann var\u00f0 fyrstur til a\u00f0 gefa gult spjald \u00e1 Melavellinum 1951 &#8211; sem Helgi Dan\u00edelsson, markv\u00f6r\u00f0ur f\u00e9kk fyrir a\u00f0 br\u00faka kjaft &#8211; og einnig fyrstur til a\u00f0 gefa m\u00f6nnum rau\u00f0a spjaldi\u00f0 h\u00e9r \u00e1 landi og senda menn af velli &#8211; \u00feegar hann rak Ellert Schram og Baldur \u00c1rnason \u00cdA af velli \u00e1ri\u00f0 1955 fyrir \u00e1flog.<\/em><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><em>Magn\u00fas er \u00der\u00f3ttari og var einn af stofnendum Sk\u00e1kdeildar \u00der\u00f3ttar \u00e1 s\u00ednum t\u00edma og starfa\u00f0i \u00fe\u00e1 n\u00e1i\u00f0 me\u00f0 Halld\u00f3ri Sigur\u00f0ssyni fisksala stofnanda f\u00e9lagsins.<\/em><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">[. . . ]<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><em>Magn\u00fas hefur unni\u00f0 s\u00e9r margt til fr\u00e6g\u00f0ar \u00e1 sk\u00e1ksvi\u00f0inu m.a. a\u00f0 gera jafntefli vi\u00f0 Mikhail Tal, fyrrv. heimsmeistara \u00ed sk\u00e1k \u00e1ri\u00f0 1957 \u00ed Moskvu, sem l\u00edkti sk\u00e1kst\u00edl Magn\u00fasar vi\u00f0 Paul Morphy, eins mesta sk\u00e1ksnillings sem uppi hefur veri\u00f0.  \u00deess m\u00e1 og minnast a\u00f0 M. P\u00e9tursson tefldi v\u00ed\u00f0fr\u00e6ga tapsk\u00e1k vi\u00f0 Bent Larsen \u00ed klukkufj\u00f6ltefli \u00e1ri\u00f0 1989, \u00e1 loftinu hj\u00e1 Gunna Gunn \u00ed \u00cdsafold, sem viki\u00f0 var a\u00f0 n\u00fdlega \u00ed pistli um Larsen, sem enda\u00f0i me\u00f0 tv\u00f6f\u00f6ldu biskupsm\u00e1ti.&#8221;<\/em><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00deekktastur er hann \u00fe\u00f3 fyrir knattspyrnuna sem hefur l\u00f6ngum haft mikil tengsl vi\u00f0 kirkjuna \u00ed upprunalandi s\u00ednu. Bretinn, Williams, knattspyrnud\u00f3mari og fv. \u00fej\u00e1lfari, segir um boltann: &#8220;Hann sn\u00fdst um a\u00f0 allir landsmenn finni sig velkomna \u00ed f\u00f3tbolta, hver sem tr\u00fa \u00feeirra er e\u00f0a tr\u00faf\u00e9lagsa\u00f0ild.&#8221; Hann segir ennfremur a\u00f0 \u00e1 s\u00ednum t\u00edma hafi um fj\u00f3r\u00f0ungur allra f\u00e9laga \u00ed enskum f\u00f3tbolta haft s\u00e9rst\u00f6k tengsl vi\u00f0 s\u00f3knarkirkjuna.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">S\u00e9ra Fri\u00f0rik s\u00e1 mikilv\u00e6gi f\u00f3tboltans fyrir drengi \u00e1 \u00feeim t\u00edma og n\u00fa er kvennaboltinn heldur betur or\u00f0inn \u00f6flugur. S\u00e9ra Fri\u00f0rik leit \u00e1 boltann sem lei\u00f0 til a\u00f0 \u00fej\u00e1lfa l\u00edkama, hug og s\u00e1l. Hann stofna\u00f0i tv\u00f6 \u00ed\u00fer\u00f3ttaf\u00e9l\u00f6g, Val og Hauka.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Annar prestur, s\u00e9ra Bjarni J\u00f3nsson, rita\u00f0i br\u00e9f til m\u00f3\u00f0ur sinnar \u00ed a\u00f0draganda j\u00f3la, er hann var starfandi sem sk\u00f3lastj\u00f3ri \u00e1 \u00cdsafir\u00f0i \u00e1ri\u00f0 1909, \u00e1\u00f0ur en hann var\u00f0 D\u00f3mkirkjuprestur \u00ed Reykjav\u00edk. En m\u00f3\u00f0ir Ey\u00fe\u00f3ru f\u00e6ddist einmitt \u00ed \u00feeim merka b\u00e6. R\u00e6\u00f0an hans s\u00e9ra Bjarna var aldrei flutt en h\u00fan \u00e1tti a\u00f0 innihalda \u00fea\u00f0 sem hann skrifa\u00f0i m\u00f6mmu sinni:<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><em>\u201e\u00c9g vona, elsku mamma m\u00edn, a\u00f0 \u00fe\u00fa ver\u00f0ir fr\u00edsk og gl\u00f6\u00f0 \u00e1 j\u00f3lunum, og hvernig sem \u00fe\u00e9r annars l\u00ed\u00f0ur, a\u00f0 \u00fea\u00f0 ver\u00f0i birta og gle\u00f0i \u00ed s\u00e1lu \u00feinni.  Er \u00fea\u00f0 ekki erindi j\u00f3lanna til okkar, a\u00f0 benda \u00e1, a\u00f0 h\u00e6gt s\u00e9 a\u00f0 eiga fri\u00f0 og gle\u00f0i, sem ekkert e\u00f0a enginn tekur fr\u00e1 okkur.  \u00dea\u00f0 getur veri\u00f0, a\u00f0 \u00e9g st\u00edgi \u00ed st\u00f3linn einhvern t\u00edma \u00e1 j\u00f3lunum, en \u00fe\u00f3 svo ver\u00f0i ekki, \u00fe\u00e1 hef \u00e9g veri\u00f0 a\u00f0 b\u00faa til j\u00f3lar\u00e6\u00f0u \u00ed huganum, svo a\u00f0 \u00fea\u00f0 er best \u00fe\u00fa ver\u00f0ir \u00ed kirkju hj\u00e1 m\u00e9r \u00ed huganum.  Textinn er Jesaja 9, 6-7.  \u00de\u00e1 mundi \u00e9g tala um fri\u00f0arins h\u00e1t\u00ed\u00f0.  \u00cd heiminum hefur fr\u00e1 \u00f6ndver\u00f0u veri\u00f0 str\u00ed\u00f0 og deilur, veikindi og dau\u00f0i.  En \u00ed \u00f6llu harki heimsins heyrist r\u00f6dd fri\u00f0arh\u00f6f\u00f0ingjans, og me\u00f0 sinni bl\u00ed\u00f0u r\u00f6dd getur hann breytt t\u00e1rum og b\u00f6li \u00ed bros og gefi\u00f0 oss heilagan fri\u00f0.  \u2013 Margir b\u00faa vi\u00f0 \u00f3fri\u00f0 \u00ed hjartanu; syndin vekur \u00feann \u00f3fri\u00f0, freistingarnar bera menn ofurli\u00f0i; en \u00e1 j\u00f3lunum f\u00e6ddist barni\u00f0, sem s\u00ed\u00f0ar var\u00f0 gu\u00f0shetja og getur breytt hinum l\u00edtilm\u00f3tlegasta \u00ed sanna gu\u00f0shetju. Og ef allt vort r\u00e1\u00f0 er \u00e1 reiki, \u00fe\u00e1 birtist hann sem undrar\u00e1\u00f0gjafi, og hans r\u00e1\u00f0 sv\u00edkja engan. Og ef fari\u00f0 er a\u00f0 r\u00e1\u00f0um hans, \u00fe\u00e1 eigum vi\u00f0 v\u00edsan fri\u00f0 hj\u00e1 Gu\u00f0i. \u00deegar Jes\u00fas kom, var himininn opinn, og n\u00fa geta allir komist til himins, \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fev\u00ed vinnur hann, sem er eil\u00edf\u00f0arfa\u00f0ir, a\u00f0 \u00feeir ver\u00f0i margir, sem keppa a\u00f0 \u00fev\u00ed marki a\u00f0 lifa \u00e1 himnum \u00ed eil\u00edfri j\u00f3lagle\u00f0i. \u2013 Svona mundi r\u00e6\u00f0an ver\u00f0a&#8221;.<\/em><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Og \u00feetta er \u00ed raun kjarninn \u00ed bo\u00f0skap j\u00f3lanna. L\u00edfi\u00f0 er keppni og vi\u00f0 keppum a\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 lifa \u00e1fram, lifa um eil\u00edf\u00f0 alla, lifa \u00ed himninum.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00cd l\u00edfsleiknum gellur oft vi\u00f0 kall flautunnar. D\u00e6mdar eru aukaspyrnur \u00e1 okkur vegna brota og vi\u00f0 f\u00e1um \u00f6ll \u00e1 okkur v\u00edti fyrir a\u00f0 hafa rangt vi\u00f0. En s\u00fa flauta, hlj\u00f3mar ekki yfir b\u00e6i og borg, heldur heyrst h\u00fan a\u00f0eins \u00ed hjartanu m\u00ednu og \u00fe\u00ednu, \u00ed samviskunni, og segir me\u00f0 or\u00f0unum \u00far Fjallr\u00e6\u00f0u Jes\u00fa: &#8220;Vertu skj\u00f3tur til s\u00e1tta vi\u00f0 andst\u00e6\u00f0ing \u00feinn me\u00f0an \u00fe\u00fa ert enn \u00e1 vegi me\u00f0 honum&#8230;&#8221; (Mt 5.25)<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Ger\u00f0u \u00fea\u00f0 \u00ed t\u00e6ka t\u00ed\u00f0.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">J\u00e1, me\u00f0an leikurinn er enn \u00ed gangi, er h\u00e6gt a\u00f0 taka aukaspyrnu e\u00f0a v\u00edti og gera upp vi\u00f0 f\u00f3lk \u00e1 \u00e6rlegan og sanngjarnan h\u00e1tt.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">L\u00edfi\u00f0 hefur s\u00ednar leikreglur eins og boltaleikurinn. \u00c1 vellinum leika \u00ed\u00fer\u00f3ttamenn me\u00f0an fylgdarf\u00f3lk li\u00f0anna hr\u00f3par \u00e1 p\u00f6llunum. Stundum misl\u00edkar \u00f6\u00f0ru li\u00f0inu hvernig d\u00f3marinn d\u00e6mir leikinn og hr\u00f3par h\u00e1st\u00f6fum: &#8220;\u00dataf me\u00f0 d\u00f3marann, \u00fataf me\u00f0 d\u00f3marann!&#8221; En sl\u00edku gaspri er aldrei hl\u00fdtt. D\u00f3marinn r\u00e6\u00f0ur og \u00ed l\u00edfsleiknum er bara einn d\u00f3mari sem aldrei ver\u00f0ur settur af enda d\u00e6mir hann \u00e6t\u00ed\u00f0 h\u00e1rr\u00e9tta og sanngjarna d\u00f3ma og \u00fea\u00f0 er hann sem kallar leikmenn l\u00edfsins af velli og <em>tekur<\/em> \u00fe\u00e1 \u00fataf en <em>rekur<\/em> \u00fe\u00e1 aldrei \u00fat af, \u00fev\u00ed hann er \u00ed e\u00f0li s\u00ednu opinn fa\u00f0mur, sem vi\u00f0 \u00feekkjum \u00f6ll af eigin raun fr\u00e1 \u00e1str\u00edku foreldri, fa\u00f0mur skilnings og elsku. J\u00f3lin eru fa\u00f0mur Gu\u00f0s, sem brei\u00f0ir \u00fat arma s\u00edna m\u00f3t sekum heimi.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Vi\u00f0 erum lukkunnar pamf\u00edlar sem f\u00e1um a\u00f0 spila \u00ed l\u00edfsleiknum hans \u00ed \u00f6ruggri vissu um r\u00e9ttl\u00e1ta d\u00f3ma, d\u00f3ma elsku, n\u00e1\u00f0ar og fyrirgefningar. Eflum sl\u00edka d\u00f3ma me\u00f0 okkur sj\u00e1lfum og vita skulum vi\u00f0 a\u00f0 sl\u00edkt mun hafa l\u00edknandi \u00e1hrif \u00e1 samfer\u00f0af\u00f3lk okkar og samf\u00e9lag og gera l\u00edfsleikinn mun skemmtilegri en ella ef vi\u00f0 komum vel fram vi\u00f0 a\u00f0ra.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Vi\u00f0 f\u00f6gnum h\u00e9r \u00ed dag og h\u00f6ldum minningarh\u00e1t\u00ed\u00f0 um Magn\u00fas Vigni P\u00e9tursson og \u00fe\u00f6kkum fyrir l\u00edf hans og st\u00f6rf.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Gu\u00f0 geymi \u00feig, Ey\u00fe\u00f3ra, b\u00f6rnin \u00fe\u00edn og afkomendur alla, \u00e6ttingja, vini og samfer\u00f0af\u00f3lk.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">G\u00f3\u00f0ur Gu\u00f0 blessi minningu Magn\u00fasar Vignis P\u00e9turssonar og megi hann blessa \u00feig sem enn tekur \u00fe\u00e1tt \u00ed l\u00edfsleiknum &#8211; og blessa \u00feig s\u00e9rstaklega \u00feegar hann flautar \u00ed fyllingu t\u00edmans og b\u00ed\u00f0ur \u00fe\u00edn a\u00f0 leik loknum me\u00f0 opinn fa\u00f0m \u00ed himni s\u00ednum.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Amen<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">RRRRRRR<\/p>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-image size-large\"><img decoding=\"async\" src=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2022\/12\/screenshot-2022-12-30-at-15.09.17-1-1.png?w=1024\" alt=\"\" class=\"wp-image-3664\" \/><\/figure>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-image size-large\"><img decoding=\"async\" src=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2022\/12\/screenshot-2022-12-30-at-15.10.13-2.png?w=1024\" alt=\"\" class=\"wp-image-3662\" \/><\/figure>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00d6rn B\u00e1r\u00f0ur J\u00f3nsson Minningaror\u00f0 +Magn\u00fas Vignir P\u00e9tursson 1932-2022 fv. verzlunarma\u00f0ur, heildsali og knattspyrnud\u00f3mari \u00de\u00fa getur lesi\u00f0 og hlusta\u00f0 \u00e1 r\u00e6\u00f0una \u00e1 n\u00e6stu smellu. S\u00e1lmaskr\u00e1in er allra ne\u00f0st.<\/p>\n","protected":false},"author":2,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_jetpack_newsletter_access":"","_jetpack_dont_email_post_to_subs":false,"_jetpack_newsletter_tier_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paywalled_content":false,"_jetpack_hide_featured_image":false,"_jetpack_featured_image_duplicate_dismissed":0,"_jetpack_feature_clip_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":"","jetpack_post_was_ever_published":false},"categories":[7],"tags":[],"class_list":["post-3667","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-minningarord-eulogies"],"jetpack_sharing_enabled":true,"jetpack_featured_media_url":"","_links":{"self":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/3667","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/users\/2"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcomments&post=3667"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/3667\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fmedia&parent=3667"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcategories&post=3667"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Ftags&post=3667"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}