{"id":3577,"date":"2022-12-05T16:53:40","date_gmt":"2022-12-05T16:53:40","guid":{"rendered":"http:\/\/ornbardur.com\/2022\/12\/05\/albert-gudmundsson-1952-2022\/"},"modified":"2022-12-05T16:53:40","modified_gmt":"2022-12-05T16:53:40","slug":"albert-gudmundsson-1952-2022","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/ornbardur.com\/?p=3577","title":{"rendered":"+Albert Gu\u00f0mundsson 1952-2022"},"content":{"rendered":"\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00d6rn B\u00e1r\u00f0ur J\u00f3nsson<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Minningaror\u00f0<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>+Albert Gu\u00f0mundsson<\/strong><\/p>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-image size-large\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"800\" height=\"1662\" src=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2022\/12\/screenshot-2022-12-05-at-16.50.07.png?w=493\" alt=\"\" class=\"wp-image-3575\" \/><\/figure>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">verkfr\u00e6\u00f0ingur<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">fr\u00e1 Gr\u00e6nagar\u00f0i, \u00cdsafir\u00f0i<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00datf\u00f6r (b\u00e1lf\u00f6r) fr\u00e1 Neskirkju m\u00e1nudaginn 5. desember kl. 13, jar\u00f0sett ver\u00f0ur \u00ed S\u00f3llandi. Texti r\u00e6\u00f0unnar og hlj\u00f3\u00f0upptaka eru h\u00e9r fyrir ne\u00f0an.<\/p>\n\n\n\n<!--more-->\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-audio\"><audio controls src=\"https:\/\/pub-c849b6aaf98340c4bec7b480b0f7ffe9.r2.dev\/2022\/12\/albert-gudmundsson-1952-2022.m4a\"><\/audio><\/figure>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">B\u00fai\u00f0 var a\u00f0 leggja sk\u00ed\u00f0abrautina fyrir st\u00f3rsvig og h\u00fan n\u00e1\u00f0i fr\u00e1 Hrossask\u00e1l \u00ed Brei\u00f0afelli og alla lei\u00f0 a\u00f0 Seljalandi. St\u00e6rsta sk\u00ed\u00f0am\u00f3t \u00e1rsins \u00e1 \u00cdsafir\u00f0i var vi\u00f0 \u00fea\u00f0 a\u00f0 hefjast. Fyrstur til a\u00f0 fara brautina var svonefndur undanfari og hann marka\u00f0i fyrstu sporin, mj\u00f3ar r\u00e1kir eftir svigsk\u00ed\u00f0in, fr\u00e1 r\u00e1smarki og allt til enda brautar. Albert var \u00fe\u00e1 unglingur og einn af bestu sk\u00ed\u00f0am\u00f6nnum heima. Og hann sveif ni\u00f0ur fjalli\u00f0 \u00ed mj\u00fakum sveigjum, st\u00edllinn fagur, sk\u00ed\u00f0in sams\u00ed\u00f0a en ekki glei\u00f0, og hra\u00f0inn mikill. T\u00edmi hans var ekki skr\u00e1\u00f0ur opinberlega en heimildir herma a\u00f0 hann hafi \u00ed raun veri\u00f0 me\u00f0 einn af bestu t\u00edmum m\u00f3tsins \u00e1n \u00feess a\u00f0 keppa \u00fev\u00ed hann var \u00ed hlutverki undanfarans.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Og n\u00fa kve\u00f0jum vi\u00f0 \u00feennan gl\u00e6silega og fj\u00f6lh\u00e6fa mann, Albert Gu\u00f0mundsson, sem er horfinn fr\u00e1 okkur allt of flj\u00f3tt. Vi\u00f0 syrgjum g\u00f3\u00f0an dreng og sorgin bifar brj\u00f3st og t\u00e1rin v\u00e6ta vanga. \u00deannig er e\u00f0li okkar manna, vi\u00f0 syrgjum og s\u00f6knum en mannkyni\u00f0 hefur \u00fe\u00f3 \u00e6t\u00ed\u00f0 lifa\u00f0 af dau\u00f0ann og \u00fe\u00e6r sterku tilfinningar sem honum fylgja.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00datf\u00f6r er e\u00f0li s\u00ednu samkv\u00e6mt sorgarath\u00f6fn en h\u00fan er jafnframt \u00feakkarh\u00e1t\u00ed\u00f0. \u00cd dag h\u00f6ldum vi\u00f0 h\u00e1t\u00ed\u00f0 \u00ed minningu Alberts og f\u00f6gnum \u00fev\u00ed a\u00f0 hann var til og \u00fe\u00f6kkum \u00fea\u00f0 sem hann st\u00f3\u00f0 fyrir og skilur eftir sig af g\u00f3\u00f0um minningum. Sorgin er verkefni og st\u00e6rst er \u00fea\u00f0 fyrir \u00d6nnu, \u00de\u00f3r og Barb\u00f6ru og svo eiga litlu prinsessurnar, El\u00edsabet R\u00fari og Anna Viktor\u00eda, eftir a\u00f0 heyra um afa og s\u00f6knu\u00f0inn sem hann skildi eftir hj\u00e1 \u00e1stvinum s\u00ednum, um glettni hans og einstaka g\u00f3\u00f0vild, \u00feolinm\u00e6\u00f0i og r\u00f3semi, svipinn hans hreina og milda, augun bl\u00ed\u00f0u og f\u00f6gru. Eitt af einkennum hans sem tali\u00f0 er komi\u00f0 fr\u00e1 Kristj\u00e1ni afa hans er a\u00f0 Albert r\u00e9ri gjarnan fram \u00ed gr\u00e1\u00f0i\u00f0. J\u00e1, hann Albert var fallegur ma\u00f0ur, yst sem innst, vil \u00e9g segja.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hann f\u00e6ddist \u00e1 \u00cdsafir\u00f0i 9. ma\u00ed 1952, sonur Helgu Kristj\u00e1nsd\u00f3ttur og Gu\u00f0mundar Ingvars Gu\u00f0mundssonar. Helga var e\u00f0al h\u00fasm\u00f3\u00f0ir en h\u00fan vann einnig vi\u00f0 netager\u00f0 eins og ma\u00f0ur hennar, b\u00e6\u00f0i \u00cdsfir\u00f0ingar og stolt af uppruna s\u00ednum. \u00deau bjuggu lengst af \u00ed Gr\u00e6nagar\u00f0i og \u00e9g man \u00feau vel og ekki s\u00edst Helgu \u00feegar h\u00fan kom \u00ed verslun f\u00f6\u00f0ur m\u00edns og valdi varning sem vi\u00f0 sendum svo heim til hennar. \u00c9g man er \u00e9g hlj\u00f3p me\u00f0 v\u00f6rurnar upp tr\u00f6ppurnar hj\u00e1 henni og inn \u00ed eldh\u00fas. \u00deau hj\u00f3nin eru eftirminnileg. Muggur me\u00f0 sinn glettna og grallaralega svip og h\u00fan me\u00f0 s\u00edna bl\u00ed\u00f0u \u00e1sj\u00f3nu og yfirbrag\u00f0 r\u00f3semdar. \u00deau voru v\u00e6nar manneskjur og \u00feeirra er enn sakna\u00f0.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00deau eignu\u00f0ust fj\u00f6gur b\u00f6rn.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Elstur er Kristj\u00e1n Rafn, fv. \u00f6kukennari \u00e1 \u00cdsafir\u00f0i, f. 1944,<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">J\u00f3n\u00edna El\u00edsa, stu\u00f0ningsfulltr\u00fai og fyrrum b\u00f3ndi \u00e1 V\u00ed\u00f0iv\u00f6llum f. 1949,<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Albert, verkfr\u00e6\u00f0ingur f. 1952<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">og st\u00falkubarn f. 1958 sem d\u00f3 2ja vikna.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Til \u00feess var teki\u00f0 hva\u00f0 \u00feessi systkini voru dugleg og sterk. \u00deau \u00e1ttu lengstan veg allra \u00cdsfir\u00f0inga a\u00f0 fara \u00ed sk\u00f3la \u00e1 veturna og \u00e9g man a\u00f0 sk\u00f3lasystir m\u00edn, J\u00f3n\u00edna El\u00edsa, kom stundum klakabrynju\u00f0 m\u00f3t kafaldsbyl \u00ed sterku nor\u00f0anb\u00e1li \u00ed sk\u00f3lann, me\u00f0an vi\u00f0 sem bjuggun \u00e1 Eyrinni f\u00f3rum sum a\u00f0eins nokkur hundru\u00f0 metra lei\u00f0, e\u00f0a bara tugi, me\u00f0an h\u00fan f\u00f3r r\u00fama 3 k\u00edl\u00f3metra og svo aftur heim a\u00f0 sk\u00f3ladegi loknum. \u00de\u00e1 var engum b\u00f6rnum eki\u00f0 til og fr\u00e1 sk\u00f3la og enginn gemsinn til a\u00f0 g\u00f3na \u00ed skj\u00e1l\u00fat \u00e1 lei\u00f0inni. \u00c9g veit a\u00f0 jafnaldrar Kitta Muggs upplif\u00f0u \u00fea\u00f0 sama. Jafnaldrar Alberts \u00e1 Seljalandsveginum \u00feurftu enga klukku til a\u00f0 vita hven\u00e6r \u00feau \u00e6ttu a\u00f0 halda af sta\u00f0 \u00ed sk\u00f3lann. \u00deau fylgdust bara me\u00f0 hven\u00e6r Albert gekk \u00e1 m\u00f3ti vindinum, \u00f6gn \u00e1l\u00fatur, en f\u00f6stum og \u00f6ruggum skrefum, ef hann var \u00fe\u00e1 ekki \u00e1 hj\u00f3linu \u00ed betri f\u00e6r\u00f0. Hann var klukkan \u00feeirra. Til er saga fr\u00e1 \u00cdsafir\u00f0i fr\u00e1 t\u00ed\u00f0 s\u00e9ra Sigurgeirs Sigur\u00f0ssonar, s\u00f3knarprests \u00cdsfir\u00f0inga fyrir mi\u00f0ja s\u00ed\u00f0ustu \u00f6ld og s\u00ed\u00f0ar biskups \u00cdslands, sem bj\u00f3 \u00e1 Sj\u00f3narh\u00e6\u00f0 vi\u00f0 Seljalandsveginn og lag\u00f0i hj\u00f3linu s\u00ednum gjarnan vi\u00f0 stakketi\u00f0 heima a\u00f0 loknum vinnudegi. Ma\u00f0ur sem bj\u00f3 innar \u00ed fir\u00f0inum er sag\u00f0ur hafa nota\u00f0 hj\u00f3l prestsins reglulega og skila\u00f0i \u00fev\u00ed svo \u00e1 sama sta\u00f0 a\u00f0 morgni.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Sem drengur f\u00f3r Albert me\u00f0 foreldrum s\u00ednum til Siglufjar\u00f0ar til vinnu. Albert hj\u00e1lpa\u00f0i m\u00f6mmu a\u00f0 salta og ekki laust vi\u00f0 a\u00f0 hinar s\u00f6ltunarst\u00falkurnar litu Helgu \u00f6fundaraugum a\u00f0 hafa \u00feennan kn\u00e1a str\u00e1k s\u00e9r til a\u00f0sto\u00f0ar sem j\u00f3k afk\u00f6st hennar til muna.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Albert var g\u00f3\u00f0ur n\u00e1msma\u00f0ur. Hann lauk sk\u00f3laskyldu \u00e1 \u00cdsafir\u00f0i og t\u00f3k undirb\u00fanings\u00e1r fyrir MA heima og h\u00e9lt svo nor\u00f0ur og lauk st\u00fadentspr\u00f3fi 3 \u00e1rum s\u00ed\u00f0ar. \u00dea\u00f0an l\u00e1 lei\u00f0in su\u00f0ur \u00ed H\u00cd og verkfr\u00e6\u00f0in t\u00f3k hug hans allan. St\u00e6r\u00f0fr\u00e6\u00f0in var honum hugleikin og g\u00e1tur hennar leysti hann me\u00f0 gle\u00f0i eins og sk\u00e1kmeistari tafl sitt.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hann var g\u00f3\u00f0ur \u00ed\u00fer\u00f3ttama\u00f0ur, hann var oftar en ekki st\u00e6rstur og sterkastur \u00ed li\u00f0i s\u00ednu. Hann var sk\u00ed\u00f0akappi, l\u00e9k f\u00f3tbolta af yfirbur\u00f0a fimi og \u00ed k\u00f6rfubolta voru varnir hans og s\u00f3knir kr\u00f6ftugar og vel \u00fatf\u00e6r\u00f0ar. Hann var fyrirmynd annarra, aldrei rei\u00f0ur og aldrei hlaut hann \u00e1minningu \u00ed leik svo vita\u00f0 s\u00e9. \u00deegar f\u00f3tboltanum lauk \u00e1 haustin t\u00f3k k\u00f6rfuboltinn vi\u00f0 og svo sk\u00ed\u00f0in \u00feegar fannir breyttu fir\u00f0inum fagra \u00ed vetrarparad\u00eds. Rifja\u00f0 var upp \u00ed m\u00edn eyru \u00feegar Albert og fj\u00f3rir a\u00f0rir, h\u00e1vaxnir str\u00e1kar, tr\u00f3\u00f0u s\u00e9r inn \u00ed eina Volkswagen Bj\u00f6llu me\u00f0 allan b\u00fana\u00f0 sinn og \u00f3ku \u00e1 Patr\u00f3 til a\u00f0 keppa \u00ed k\u00f6rfubolta. S\u00f6gunnni fylgir a\u00f0 \u00feeir hafi jafnvel \u00feurft a\u00f0 bera Bj\u00f6lluna yfir sumar torf\u00e6rur. \u00deeir voru eins og s\u00edld \u00ed tunnu en leikgle\u00f0in og \u00e1huginn setti engin \u00f3\u00fe\u00e6gindi fyrir sig. Hann l\u00e9k me\u00f0 s\u00ednum heimam\u00f6nnum og svo me\u00f0 \u00de\u00f3r \u00e1 Akureyri \u00ed efstu deild k\u00f6rfuboltans og seinna me\u00f0 \u00cd\u00fer\u00f3ttaf\u00e9lagi st\u00fadenta og me\u00f0 s\u00ednum f\u00e9l\u00f6gum \u00fear t\u00f3k hann \u00fe\u00e1tt \u00ed Evr\u00f3pubikarm\u00f3tinu \u00ed Barcelona.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c1 n\u00e1ms\u00e1runum vi\u00f0 H\u00cd kom Anna inn \u00ed l\u00edf hans \u00e1ri\u00f0 1975 me\u00f0 \u00de\u00f3r, f\u00e6dd 1971, sem Albert gekk \u00ed f\u00f6\u00f0ursta\u00f0 af dj\u00fapri elsku og \u00e1byrg\u00f0. Svo f\u00e6ddist \u00feeim Barbara Inga 1982 sem er einst\u00f6k m\u00f3\u00f0ir tv\u00edburanna. \u00de\u00f3r er verkja- og \u00fereytus\u00e9rfr\u00e6\u00f0ingur \u00e1 s\u00e1lfr\u00e6\u00f0ilegum grunni og Barbara l\u00f6gfr\u00e6\u00f0ingur me\u00f0 s\u00e9r\u00feekkingu \u00e1 al\u00fej\u00f3\u00f0al\u00f6gum \u00ed heimi fj\u00e1rm\u00e1la. \u00deau b\u00faa \u00ed Englandi og \u00feanga\u00f0 f\u00f3r Albert \u00ed haust me\u00f0 \u00d6nnu til a\u00f0 upplifa eitt st\u00e6rsta \u00e6vint\u00fdri l\u00edfs \u00feeirra til a\u00f0 sj\u00e1 n\u00fdf\u00e6ddar tv\u00edburasysturnar \u00e1 f\u00e6\u00f0ingardeild Sj\u00fakrah\u00fass heilags T\u00f3masar \u00ed Lund\u00fanum, sem er handan vi\u00f0 Thames-\u00e1na \u00fear sem \u00feingh\u00fasi\u00f0 st\u00f3ra og mikla me\u00f0 El\u00edsabetarturninn h\u00e1a og Big Ben klukkuna voldugu sem n\u00fa hringir aftur eftir langt hl\u00e9. S\u00e1 \u00feekkti ma\u00f0ur, Winston Churchill, fors\u00e6tisr\u00e1\u00f0herra Bretlands \u00e1 li\u00f0inni \u00f6ld, st\u00e1ta\u00f0i af breska \u00feinginu, og vitna\u00f0i \u00ed landa sinn John Bright, sem haf\u00f0i sagt &#8220;England is the Mother of Parliaments&#8221; en hann gleymdi \u00fe\u00e1 v\u00edst a\u00f0 nefna \u00f6mmuna, \u00cdsland, \u00fear sem Al\u00feingi \u00cdslendinga var stofna\u00f0 \u00e1ri\u00f0 930 og telst \u00fev\u00ed elst allra l\u00fd\u00f0r\u00e6\u00f0islegra \u00feinga sem enn er vi\u00f0 l\u00fd\u00f0i.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Myndirnar fr\u00e1 London af fj\u00f6lskyldunni \u00ed s\u00e1lmaskr\u00e1nni segja meir en m\u00f6rg or\u00f0. Albert or\u00f0a\u00f0i \u00fea\u00f0 a\u00f0 n\u00fa v\u00e6ri kominn t\u00edmi til a\u00f0 selja h\u00fasi\u00f0 og kaupa n\u00fdtt me\u00f0 5 svefnherbergjum: einu fyrir \u00feau hj\u00f3nin, tv\u00f6 handa \u00de\u00f3r og Barb\u00f6ru Ingu og tv\u00f6 fyrir prinsessurnar!<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Albert haf\u00f0i yndi af laxvei\u00f0i, f\u00f3r oft \u00ed H\u00edtar\u00e1 og svo var hann virkur \u00ed Lions-hreyfingunni um \u00e1rabil. \u00de\u00e1 naut hann s\u00edn \u00ed matarkl\u00fabbi vina og \u00e1 mannam\u00f3tum almennt t\u00f3k hann gjarnan virkan \u00fe\u00e1tt \u00ed samr\u00e6\u00f0um og ger\u00f0i a\u00f0 gamni s\u00ednu og svo l\u00e9k hann s\u00e9r oft a\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 vera \u00e1 annarri sko\u00f0un en vi\u00f0m\u00e6landinn. Svo haf\u00f0i hann d\u00e1l\u00e6ti \u00e1 svonefndum fimmaurabr\u00f6ndurum, var \u00f6gn str\u00ed\u00f0inn. Hann kunni marga texta og haf\u00f0i g\u00f3\u00f0a s\u00f6ngr\u00f6dd en s\u00f6ng \u00fe\u00f3 aldrei \u00ed k\u00f3r. Hann var sk\u00e1ti fr\u00e1 barnsaldri, haf\u00f0i yndi af dansi og hreyfingu og var gle\u00f0ipinni, segir fj\u00f6lskyldan. \u00deegar hann vann vi\u00f0 \u00ferif heima hlusta\u00f0i hann oft \u00e1 John Denver, sem d\u00f3 ungur en skildi eftir sig margar fagrar lagl\u00ednur og s\u00f6ngtexta.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">H\u00e9r \u00e6tla \u00e9g a\u00f0 gera hl\u00e9 \u00fev\u00ed r\u00e6\u00f0an er \u00f6gn lengri en gengur og gerist og leyfa ykkur a\u00f0 heyra stef \u00far lagi sem \u00fei\u00f0 \u00feekki\u00f0.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Steingr\u00edmur \u00de\u00f3rhallsson leikur lagi\u00f0 Take Me Home eftir John Denver.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">H\u00e9r \u00fearf a\u00f0 hafa \u00f6rf\u00e1 or\u00f0 um hana \u00d6nnu sem hefur n\u00fdtt h\u00e6fileika s\u00edna \u00e1 \u00fdmsum st\u00f6\u00f0um. H\u00fan hefur alla t\u00ed\u00f0 unni\u00f0 vi\u00f0 hin \u00fdmsu skrifstofust\u00f6rf en \u00e1kva\u00f0 svo a\u00f0 skipta um k\u00fars og fara \u00ed h\u00e1sk\u00f3la \u00e1 fimmtugsaldri, en h\u00fan lag\u00f0i stund \u00e1 marka\u00f0s- og \u00fatflutningsfr\u00e6\u00f0i \u00ed vi\u00f0skiptafr\u00e6\u00f0ideild. Eftir starfslok l\u00e1 lei\u00f0in aftur \u00ed H\u00e1sk\u00f3lann og hefur h\u00fan lagt stund \u00e1 hinar \u00fdmsu greinar, eins og&nbsp;listfr\u00e6\u00f0i, Mi\u00f0-Austurlandafr\u00e6\u00f0i og \u00edslamskar b\u00f3kmenntir. \u00c6rin eru verkefni hennar og n\u00fa b\u00e6tast \u00f6mmub\u00f6rnin vi\u00f0 og ofan \u00e1 allt, \u00farvinnsla sorgar og missis.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">L\u00edfi\u00f0 heldur \u00e1fram.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Albert f\u00f3r oft \u00e1 sk\u00ed\u00f0i um \u00e6vina og eitt sinn eftir nokkurt hl\u00e9 h\u00e9lt hann upp \u00ed Hveradali. Gamli b\u00fana\u00f0urinn st\u00f3\u00f0 enn fyrir s\u00ednu, margra \u00e1ra g\u00f6mul sk\u00ed\u00f0i me\u00f0 \u00fereyttum le\u00f0ur\u00f3lum og margnotu\u00f0um sk\u00f3m sem p\u00f6ssu\u00f0u \u00fe\u00f3 enn. Hann f\u00f3r bara \u00ed gallabuxum og g\u00f6mlu \u00c1lafoss-\u00falpunni og \u00feegar f\u00f3lk s\u00e1 hann \u00ed lyftunni p\u00edskra\u00f0i \u00fea\u00f0 og velti \u00fev\u00ed fyrir s\u00e9r hva\u00f0 \u00feessi ma\u00f0ur v\u00e6ri n\u00fa a\u00f0 gera \u00ed fjallinu sem var ekki einu sinni \u00ed almennilegum sk\u00ed\u00f0afatna\u00f0i og vanta\u00f0i \u00f6ll f\u00ednu t\u00edskumerkin. \u00deegar lyftunni sleppti steig hann fram af \u00f6ryggi og renndi s\u00e9r ni\u00f0ur brekkurnar. F\u00f3lki\u00f0 st\u00f3\u00f0 gapandi og var\u00f0 a\u00f0 gleypa ford\u00f3ma s\u00edna og kyngja \u00fev\u00ed me\u00f0 fersku fjallaloftinu.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Albert kenndi s\u00e9r fyrst meins sl. vor er hann \u00f3k heim \u00far Bl\u00e1fj\u00f6llum \u00fear sem hann haf\u00f0i veri\u00f0 \u00e1 sk\u00ed\u00f0um. Hann f\u00e9kk flog og hringdi \u00ed Ney\u00f0arl\u00ednuna. Hann var kominn me\u00f0 mein \u00ed h\u00f6fu\u00f0 sem dr\u00f3 hann til dau\u00f0a \u00e1 h\u00e1lfu \u00e1ri. Hann f\u00f3r \u00fej\u00e1\u00f0ur til London \u00ed lok september og kom heim \u00ed far\u00feegaflugi um mi\u00f0jan okt\u00f3ber enn \u00fej\u00e1\u00f0ari en \u00e1\u00f0ur og s\u00fdndi \u00f3tr\u00falega seiglu og dugna\u00f0 eins og honum var \u00ed bl\u00f3\u00f0 borin. Og n\u00fa er hann horfinn \u00feessi lj\u00faflingur, sem haf\u00f0i \u00e6t\u00ed\u00f0 sitt r\u00f3lega yfirbrag\u00f0. Honum voru \u00ferj\u00e1r setningar tamar:<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Ekkert m\u00e1l.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Fl\u00fdttu \u00fe\u00e9r h\u00e6gt.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Gakk h\u00e6gt um gle\u00f0innar dyr me\u00f0 me\u00f0 bros \u00e1 v\u00f6r.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hann st\u00f3\u00f0 \u00e6t\u00ed\u00f0 eins og klettur me\u00f0 s\u00ednu f\u00f3lki, gegnheill og b\u00f3ng\u00f3\u00f0ur alla t\u00ed\u00f0. Eftir a\u00f0 fa\u00f0ir hans d\u00f3 me\u00f0an Albert var enn \u00ed n\u00e1mi \u00ed H\u00cd, bar hann mikla umhyggju fyrir m\u00f3\u00f0ur sinni eins og endra n\u00e6r og lag\u00f0i upp \u00far \u00fev\u00ed seinna a\u00f0 h\u00fan k\u00e6mi \u00ed heims\u00f3kn til \u00de\u00fdskalands og svo f\u00f3ru \u00feau eitt sinn saman til Bandar\u00edkjanna a\u00f0 vitja fr\u00e6ndf\u00f3lks. \u00de\u00e1 f\u00f3r Helga \u00ed st\u00f3ra hjartaa\u00f0ger\u00f0 \u00ed London 1980 \u00ed fylgd Alberts og \u00d6nnu.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hann var vandvirkur verkfr\u00e6\u00f0ingur. S\u00e9rn\u00e1mi lauk hann \u00ed Aachen \u00ed \u00de\u00fdskalandi og haf\u00f0i \u00e6t\u00ed\u00f0 sterkar taugar \u00feanga\u00f0, i\u00f0ka\u00f0i tungum\u00e1li\u00f0 og h\u00e9lt sambandi vi\u00f0 vini fr\u00e1 n\u00e1ms\u00e1runum.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Albert vann um \u00e1rabil hj\u00e1 RARIK og svo hj\u00e1 Landsvirkjun. \u00dear var hann r\u00e9ttur ma\u00f0ur \u00e1 r\u00e9ttum sta\u00f0, teikna\u00f0i l\u00ednur um landi\u00f0, sem er vandaverk, b\u00e6\u00f0i verkfr\u00e6\u00f0i- og fagurfr\u00e6\u00f0ilega tala\u00f0. R\u00f3legt yfirbrag\u00f0 hans n\u00fdttist oft vel \u00feegar sannf\u00e6ra \u00feurfti landeigendur um legu l\u00ednunnar \u00ed landslaginu. Albert haf\u00f0i einhverja t\u00f6fran\u00e6rveru \u00ed \u00feeim efnum.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hann ger\u00f0i ekki miki\u00f0 \u00far sj\u00e1lfum s\u00e9r, var \u00e6t\u00ed\u00f0 h\u00f3gv\u00e6r en n\u00e6mur \u00e1 l\u00ed\u00f0an annarra. \u00c1 mannam\u00f3tum spur\u00f0i hann vi\u00f0m\u00e6lendur gjarnan um l\u00ed\u00f0an \u00feeirra og hva\u00f0 v\u00e6ri a\u00f0 gerast. Hann haf\u00f0i \u00e1huga \u00e1 f\u00f3lki og unni g\u00f3\u00f0um samverum vina. \u00cd veislum var hann gjarnan n\u00e1l\u00e6gt p\u00edan\u00f3i ef \u00fea\u00f0 var til sta\u00f0ar, hlusta\u00f0i \u00e1 t\u00f3nlistina. \u00d6llum lei\u00f0 vel \u00ed n\u00e1vist hans.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Albert var g\u00f3\u00f0ur st\u00e6r\u00f0fr\u00e6\u00f0ingur og vinir barna hans og margir fleiri fengu tils\u00f6gn hans \u00ed gegnum t\u00ed\u00f0ina.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Og vi\u00f0 mannf\u00f3lki\u00f0 reiknum og reiknum og gerum okkar \u00e1\u00e6tlanir um morgundaginn en vitum \u00fe\u00f3 aldrei hvort hann rennur upp.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">St\u00e6r\u00f0fr\u00e6\u00f0in er merkileg grein og mikilv\u00e6g fyrir okkur mannkyn. Kurt Friedrich G\u00f6del, h\u00e9t ma\u00f0ur, sem f\u00e9kkst vi\u00f0 r\u00f6kfr\u00e6\u00f0i, st\u00e6r\u00f0fr\u00e6\u00f0i og heimspeki \u00e1 li\u00f0inni \u00f6ld og vann ma. me\u00f0 Albert Einstein. Hann setti fram \u00fea\u00f0 sem kalla\u00f0 er &#8220;\u00f3fullkomleikasetning G\u00f6dels&#8221; \u00fear sem hann s\u00fdnir fram \u00e1 a\u00f0 ekki ver\u00f0ur allt sanna\u00f0 \u00ed heimi talnafr\u00e6\u00f0i. \u00c1 \u00fea\u00f0 ekki l\u00edka vi\u00f0 \u00ed v\u00edsindum almennt og hugv\u00edsindum l\u00edka, a\u00f0 m\u00f3tsagnir finnast v\u00ed\u00f0ar en margur heldur?<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Tr\u00fa og v\u00edsindi eru ekki andst\u00e6\u00f0ur heldur \u00f3rj\u00fafanlegur hluti af \u00fev\u00ed a\u00f0 vera manneskja \u00ed fl\u00f3knum heimi. A\u00f0 tr\u00faa og vona er i\u00f0ja okkar allra. Enginn getur lifa\u00f0 \u00e1n tr\u00faar og vonar. L\u00edfi\u00f0 byggir \u00e1 \u00feeirri afst\u00f6\u00f0u til allra hluta. Morgundagsins b\u00ed\u00f0um vi\u00f0 hvert kv\u00f6ld \u00ed von og tr\u00fa.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Albert horf\u00f0i fram \u00e1 veginn. Hann stefndi \u00e1 starfslok \u00ed ma\u00ed en um \u00fea\u00f0 leyti d\u00f3 tengdam\u00f3\u00f0ir hans, hann missti af 50 \u00e1ra st\u00fadentsafm\u00e6linu og \u00fatskriftarafm\u00e6li verkfr\u00e6\u00f0inganna og kve\u00f0juh\u00f3fi hj\u00e1 Landsvirkjun vegna starfsloka. Hann \u00e6tla\u00f0 einnig \u00ed vei\u00f0i, hitta Lions-f\u00e9laga og svo voru \u00fea\u00f0 prinsessurnar sem bi\u00f0u um\u00f6nnunar afa. Segja m\u00e1 a\u00f0 hann hafi d\u00e1i\u00f0 \u00ed fullu fj\u00f6ri e\u00f0a eins og Nor\u00f0menn segja: &#8220;Han d\u00f8de med skone p\u00e5!&#8221; Hann d\u00f3 me\u00f0 sk\u00f3na \u00e1 f\u00f3tum.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00deessi svipbjarti, st\u00f3ri og st\u00e6\u00f0ilegi ma\u00f0ur, tryggur me\u00f0 afbrig\u00f0um, fr\u00e6ndr\u00e6kinn, traustur og velvilja\u00f0ur, er n\u00fa fallinn fr\u00e1. Svo breg\u00f0ast krosstr\u00e9 sem \u00f6nnur, segir \u00ed m\u00e1lt\u00e6kinu, sem geymir \u00fe\u00e1 visku a\u00f0 jafnvel hi\u00f0 traustasta og sterka ver\u00f0ur a\u00f0 l\u00e1ta undan.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Enginn r\u00e6\u00f0ur s\u00ednum n\u00e6tursta\u00f0. Tr\u00fain og vonin eru eins og sk\u00e1ldin sem horfa b\u00e6\u00f0i inn \u00e1 vi\u00f0 og svo einnig \u00fat fyrir veruleikann. Vi\u00f0 lifum ekki \u00e1n sk\u00e1ldskapar og tr\u00faar. \u00c9g man \u00feegar \u00e9g las s\u00f6gu Jules Verne sem drengur um fer\u00f0ina til tunglsins og f\u00e9kk svo a\u00f0 hlusta \u00e1 tungllendinguna \u00ed beinni \u00fatsendingu \u00e1 R\u00daV 1969. Sk\u00e1ldi\u00f0 s\u00e1 \u00feetta fyrir. Vi\u00f0 erum flest me\u00f0 fars\u00edma \u00ed vasa okkar sem talast vi\u00f0 \u00ed gegnum gervihnetti. \u00dea\u00f0 var v\u00edsindask\u00e1ldi\u00f0 Arthur C. Clarke, sem kom me\u00f0 hugmyndina \u00ed einni af s\u00f6gum s\u00ednum um spegla \u00fati \u00ed geimnum til a\u00f0 varpa fjarskiptum fram og aftur um hn\u00f6ttinn. S\u00fa sk\u00e1ldlega s\u00fdn r\u00e6ttist \u00ed gervihn\u00f6ttum og fars\u00edmum \u00ed vasa almennings.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">A\u00f0 hugsa \u00fat fyrir kassann er hlutverk v\u00edsindanna og sk\u00e1ldskapurinn er l\u00edklega \u00e6\u00f0stur allra v\u00edsinda. A\u00f0 tr\u00faa og vona, a\u00f0 sj\u00e1 fyrir s\u00e9r hi\u00f0 \u00f3or\u00f0na, a\u00f0 hugsa hi\u00f0 \u00f3hugsanlega, sj\u00e1 hi\u00f0 \u00f3s\u00fdnilega, er heillandi verkefni. \u00cd hinni helgu b\u00f3k, Bibl\u00edunni, er a\u00f0eins eitt vers sem skilgreinir tr\u00fana: &#8220;Tr\u00fain er fullvissa um \u00fea\u00f0 sem menn vona, sannf\u00e6ring um \u00fe\u00e1 hluti sem eigi er au\u00f0i\u00f0 a\u00f0 sj\u00e1.&#8221; (Hebr. 11.1)<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Vi\u00f0 skulum horfa \u00ed \u00fe\u00e1 \u00e1ttina n\u00fana \u00feegar vi\u00f0 kve\u00f0jum Albert Gu\u00f0mundsson sem n\u00fa er farinn \u00ed fylgd \u00feess undanfara allra undanfara, sem opna\u00f0i brautina milli heimanna, milli himins og jar\u00f0ar, milli jar\u00f0l\u00edfs og eil\u00edf\u00f0ar, me\u00f0 dau\u00f0a s\u00ednum \u00e1 krossinum \u00e1 Golgata. Krosstr\u00e9 hans brotna\u00f0i aldrei og stendur enn, h\u00e6r\u00f0ilegt t\u00f3l sem var\u00f0 a\u00f0 sigurt\u00e1kni sem minnt er \u00e1 h\u00e9r \u00e1 k\u00f3rvegg Neskirkju.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">N\u00fa er a\u00f0ventan, en or\u00f0i\u00f0 merkir <em>koma<\/em>. Okkur er bo\u00f0i\u00f0 a\u00f0 \u00edhuga komu hans sem breytti ver\u00f6ldinni, heiminum \u00f6llum og sj\u00e1lfri tilverunni. Hann kom \u00e1 j\u00f3lum og d\u00f3 \u00ed vikunni dimmu fyrir p\u00e1ska. Hann reis upp og birtist fylgjendum s\u00ednum og f\u00f3r svo lei\u00f0ina til himinsins, sem <em>undanfari<\/em> okkar allra sem erum \u00fe\u00e1tttakendur \u00ed \u00feessu l\u00edfi og send \u00e1 s\u00f6mu braut, me\u00f0 \u00e1ritun himinsins \u00e1 enni og bj\u00f3sti eins og utan\u00e1skrift sem skilar sendingunni heim \u00ed loka hli\u00f0i l\u00edfsbrautarinnar. F\u00e6r\u00f0u mig heim. &#8220;Take Me Home!&#8221;<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Gu\u00f0 blessi minningu Alberts Gu\u00f0mundssonar og megi blessun Gu\u00f0s fylgja fj\u00f6lskyldu hans og \u00e1stvinum og okkur \u00f6llum sem enn erum \u00e1 svigbraut l\u00edfsins sem m\u00f6rku\u00f0 er af sporum undanfarans besta.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Amen.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00d6rn B\u00e1r\u00f0ur J\u00f3nsson Minningaror\u00f0 +Albert Gu\u00f0mundsson verkfr\u00e6\u00f0ingur fr\u00e1 Gr\u00e6nagar\u00f0i, \u00cdsafir\u00f0i \u00datf\u00f6r (b\u00e1lf\u00f6r) fr\u00e1 Neskirkju m\u00e1nudaginn 5. desember kl. 13, jar\u00f0sett ver\u00f0ur \u00ed S\u00f3llandi. Texti r\u00e6\u00f0unnar og hlj\u00f3\u00f0upptaka eru h\u00e9r fyrir ne\u00f0an.<\/p>\n","protected":false},"author":2,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_jetpack_newsletter_access":"","_jetpack_dont_email_post_to_subs":false,"_jetpack_newsletter_tier_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paywalled_content":false,"_jetpack_hide_featured_image":false,"_jetpack_featured_image_duplicate_dismissed":0,"_jetpack_feature_clip_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":"","jetpack_post_was_ever_published":false},"categories":[7],"tags":[],"class_list":["post-3577","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-minningarord-eulogies"],"jetpack_sharing_enabled":true,"jetpack_featured_media_url":"","_links":{"self":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/3577","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/users\/2"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcomments&post=3577"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/3577\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fmedia&parent=3577"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcategories&post=3577"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Ftags&post=3577"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}