{"id":3547,"date":"2022-11-17T17:29:39","date_gmt":"2022-11-17T17:29:39","guid":{"rendered":"http:\/\/ornbardur.com\/2022\/11\/17\/sigridur-thorlaksdottir-ottesen-1934-2022\/"},"modified":"2022-11-17T17:29:39","modified_gmt":"2022-11-17T17:29:39","slug":"sigridur-thorlaksdottir-ottesen-1934-2022","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/ornbardur.com\/?p=3547","title":{"rendered":"+Sigr\u00ed\u00f0ur \u00deorl\u00e1ksd\u00f3ttir Ottesen 1926-2022"},"content":{"rendered":"\n<figure class=\"wp-block-image size-large\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"990\" height=\"1452\" src=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2022\/11\/screenshot-2022-11-17-at-17.28.05.png?w=698\" alt=\"\" class=\"wp-image-3546\" \/><\/figure>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00d6rn B\u00e1r\u00f0ur J\u00f3nsson<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>+Sigr\u00ed\u00f0ur \u00deorl\u00e1ksd\u00f3ttir Ottesen<\/strong><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">B\u00e1lf\u00f6r \u00ed kyrr\u00feey<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">fr\u00e1 Neskirkju<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">fimmtudaginn 17. n\u00f3vember kl. 15<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">R\u00e6\u00f0una er h\u00e6gt a\u00f0 lesa h\u00e9r fyrir ne\u00f0an og hlusta \u00e1 me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 smella \u00e1 afspilunartakkann.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">S\u00e1lmaskr\u00e1in er ne\u00f0anm\u00e1ls.<\/p>\n\n\n\n<!--more-->\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-audio\"><audio controls src=\"https:\/\/pub-c849b6aaf98340c4bec7b480b0f7ffe9.r2.dev\/2022\/11\/sigridur-thorlaksdottir-ottesen-1934-2022.m4a\"><\/audio><\/figure>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">F\u00f6gur t\u00f3nlist hlj\u00f3mar h\u00e9r \u00ed dag eins og vera ber vi\u00f0 \u00fatf\u00f6r. Kirkjan hefur \u00e6t\u00ed\u00f0 lagt&nbsp;upp \u00far&nbsp;t\u00f3nlist \u00ed starfi s\u00ednu. S\u00e1lmas\u00f6ngur er undursamlegt fyrirbrig\u00f0i og vanmeti\u00f0 af allt of m\u00f6rgum. A\u00f0 lofa Gu\u00f0 \u00ed s\u00f6ng er \u00ed senn b\u00e6\u00f0i heilandi og l\u00edknandi ath\u00f6fn sem breytir s\u00e1lar\u00e1standi og gle\u00f0ur hjarta\u00f0.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">T\u00f3nlist er undur. Hlj\u00f3\u00f0 er merkilegt fyrirbrig\u00f0i \u00ed \u00feessari ver\u00f6ld en sjaldg\u00e6ft, afar sjaldg\u00e6ft. Til \u00feess a\u00f0 hlj\u00f3\u00f0 berist og heyrist \u00fearf eitthva\u00f0 sem inniheldur sameindir e\u00f0a m\u00f3lek\u00fal \u00e1 m\u00e1li v\u00edsindanna. Hlj\u00f3\u00f0i\u00f0 h\u00e9r \u00e1 j\u00f6r\u00f0u fer\u00f0ast a\u00f0 eyrum okkar me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 hreyfa vi\u00f0 sameindum og l\u00e1ta \u00fe\u00e6r titra.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00dati \u00ed geimnum, sem er svo \u00e6gist\u00f3r a\u00f0 \u00f3gerlegt er a\u00f0 gera s\u00e9r st\u00e6r\u00f0 hans \u00ed hugarlund \u2013 heilinn okkar r\u00e6\u00f0ur ekki vi\u00f0 a\u00f0 taka utan um sl\u00edkt g\u00edmald \u2013 \u00fear eru engar sl\u00edkar sameindir \u00e1 milli stjarna sem eru \u00ed gr\u00ed\u00f0arlegri fjarl\u00e6g\u00f0 hver fr\u00e1 annarri og \u00fev\u00ed er ekkert hlj\u00f3\u00f0 \u00ed geimnum, ekki einn t\u00f3nn, ekki eitt t\u00edst, ekki einu sinni hv\u00edsl, hva\u00f0 \u00fe\u00e1 su\u00f0. \u00dear er steinhlj\u00f3\u00f0, algj\u00f6rt hlj\u00f3\u00f0, engin t\u00f3nlist, ekkert fyrir mannleg eyru, ekkert! Nema til s\u00e9 \u00f6nnur pl\u00e1neta, ein e\u00f0a fleiri, me\u00f0 \u00e1l\u00edka skilyr\u00f0i og h\u00e9r \u00e1 j\u00f6r\u00f0u.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00deeim mun merkilegra er \u00fea\u00f0 a\u00f0 vi\u00f0 skulum b\u00faa \u00e1 pl\u00e1netu sem er t\u00f3nlistarh\u00f6ll, me\u00f0 himinn yfir s\u00e9r sem t\u00f3nahvelfingu.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">[Innskot \u00e1 hlj\u00f3\u00f0uppt\u00f6kunni.]<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00cd Dav\u00ed\u00f0ss\u00e1lmunum \u00ed&nbsp;GT&nbsp;eru 150 s\u00e1lmar og \u00fear eru undursamlegir lofs\u00f6ngvar um sk\u00f6punarverki\u00f0 sem sungnir voru for\u00f0um daga og hafa rata\u00f0 inn \u00ed s\u00e1lmakve\u00f0skap \u00fej\u00f3\u00f0a me\u00f0 n\u00fdrri t\u00f3nlist.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">[Innskot um hebreskar kve\u00f0skap&nbsp;vs. \u00edslenskan].<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00dej\u00f3\u00f0kirkjan fagnar um \u00feessar mundir \u00fatg\u00e1fu n\u00fdrrar s\u00e1lmab\u00f3kar. Hvern dag er \u00e1st\u00e6\u00f0a til a\u00f0 syngja og \u00e6\u00f0st alls s\u00f6ngs er a\u00f0 lofsyngja honum sem gaf okkur \u00feessa j\u00f6r\u00f0 og \u00feetta l\u00edf.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Sigr\u00ed\u00f0ur \u00deorl\u00e1ksd\u00f3ttir&nbsp;Ottesen&nbsp;f\u00e6ddist 29. \u00e1g\u00fast 1926 og var \u00fev\u00ed or\u00f0in 96 \u00e1ra er h\u00fan l\u00e9st s\u00f6dd l\u00edfdaga og \u00fev\u00ed margt or\u00f0i\u00f0 brosti\u00f0 \u00ed hennar huga og l\u00edkama. H\u00fan og Krist\u00edn voru tv\u00edburar og systkin \u00feeirra voru: Hulda, \u00c1sa, Sigurlaug og Fri\u00f0rik, \u00f6ll l\u00e1tin.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">H\u00fan \u00f3lst upp \u00ed Reykjav\u00edk \u00fear sem foreldrar hennar l\u00e9tu um sig muna \u00ed umr\u00e6\u00f0u daganna \u00fear sem \u00feau b\u00f6r\u00f0ust b\u00e6\u00f0i af atorku fyrir b\u00e6ttum hag almennings. M\u00f3\u00f0ir hennar, \u00deur\u00ed\u00f0ur Fri\u00f0riksd\u00f3ttir, var ein af \u00fevottakonunum \u00ed Reykjav\u00edk sem dr\u00f3gu \u00e1 eftir s\u00e9r handvagna eftir Laugaveginum og alla lei\u00f0 inn \u00ed Laugardal. \u00dear bogru\u00f0u \u00fe\u00e6r \u00ed \u00f6llum ve\u00f0rum yfir gufu og hr\u00e6r\u00f0u \u00ed fatahr\u00fagum \u00ed heitum hverum og undu hverja fl\u00edk \u00ed h\u00f6ndum. \u00de\u00e1 voru engar \u00fevottavindur til me\u00f0 1600 sn\u00faningum \u00e1 m\u00edn\u00fatu. \u00devottur var ekki vinna fyrir puntud\u00fakkur me\u00f0 lakka\u00f0ar neglur og bylgja\u00f0a h\u00e1rlokka. \u00devottur var \u00fer\u00e6lavinna. H\u00fan var me\u00f0al stofnenda hagsmunaf\u00e9lags \u00fevottakvenna og haf\u00f0i miklar meiningar um kaup og kj\u00f6r, a\u00f0b\u00fana\u00f0 \u00feeirra og velfer\u00f0.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Fa\u00f0ir Sigr\u00ed\u00f0ar var \u00deorl\u00e1kur Gu\u00f0mundsson&nbsp;Ottesen&nbsp;(1894-1986) sem einnig l\u00e9t um sig muna \u00ed r\u00e9ttindabar\u00e1ttu verkaf\u00f3lks og almennings. Hann var me\u00f0al stofnenda KRON, M\u00e1ls og menningar og Helgafells og svo var hann einnig forystuma\u00f0ur vi\u00f0 stofnun hestamannaf\u00e9lagsins F\u00e1ks.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Sigr\u00ed\u00f0ur hlaut \u00ed senn strangt uppeldi og frj\u00e1lst. H\u00fan var l\u00edfsgl\u00f6\u00f0 og k\u00e1t. Ein af m\u00f6rgum minningum hennar er um \u00fea\u00f0 \u00feegar afabr\u00f3\u00f0ir hennar d\u00f3 og l\u00edki\u00f0 \u201est\u00f3\u00f0 uppi\u201c eins og \u00fea\u00f0 h\u00e9t for\u00f0um. Or\u00f0atilt\u00e6ki\u00f0 er d\u00e1l\u00edti\u00f0 villandi \u00fev\u00ed l\u00edk st\u00f3\u00f0u ekki heldur l\u00e1gu \u00ed r\u00fami \u00ed h\u00fasinu e\u00f0a \u00ed kistu. Heima hj\u00e1 Sigr\u00ed\u00f0i var harmon\u00edum sem stundum er kalla\u00f0 orgel en harmon\u00edum voru v\u00ed\u00f0a \u00ed h\u00fasum og st\u00edga \u00feurfti pedala til a\u00f0 pumpa lofti sem munda\u00f0i hlj\u00f3\u00f0i\u00f0. H\u00fan sat vi\u00f0 hlj\u00f3\u00f0f\u00e6ri\u00f0 me\u00f0 baki\u00f0 \u00ed l\u00edki\u00f0 og spila\u00f0i.&nbsp;<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">T\u00f3nlist var alla t\u00ed\u00f0 hennar gle\u00f0i og yndi. H\u00fan \u00f3lst upp vi\u00f0 r\u00edmnas\u00f6ng og m\u00e9r er sagt a\u00f0 \u00feegar&nbsp;KK&nbsp;spilar r\u00edmnas\u00f6ng af&nbsp;uppt\u00f6kum&nbsp;\u00e1 R\u00daV \u00fe\u00e1 heyrast \u00fear mj\u00f6g oft raddir m\u00e6\u00f0gnanna, Sigr\u00ed\u00f0ar og \u00deur\u00ed\u00f0ar. \u00cd portinu \u00e1&nbsp;Verk\u00f3&nbsp;\u00fear sem fj\u00f6lskyldan bj\u00f3 um t\u00edma s\u00f6ng Sigr\u00ed\u00f0ur fyrir \u00feau eyru sem vildu heyra og jafnvel l\u00edka hin sem h\u00f6f\u00f0u ekki m\u00fasikeyru. H\u00fan bara s\u00f6ng me\u00f0 sinni t\u00e6ru r\u00f6dd. H\u00fan l\u00e6r\u00f0i s\u00f6ng og var \u00ed m\u00f6rgum k\u00f3rum og kom v\u00ed\u00f0a fram sem eins\u00f6ngvari.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Kornung kynntist h\u00fan Bandar\u00edkjamanni,&nbsp;Lonne&nbsp;Ralph&nbsp;Baxter&nbsp;og flutti me\u00f0 honum til Bandar\u00edkjanna og bjuggu \u00feau saman \u00ed&nbsp;Texas&nbsp;\u00ed 4 \u00e1r en \u00fe\u00e1 kom h\u00fan heim og \u00feau skildu \u00ed kj\u00f6lfari\u00f0. B\u00f6rn \u00feeirra eru: \u00deur\u00ed\u00f0ur og \u00deorl\u00e1kur.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">1. \u00deur\u00ed\u00f0ur&nbsp;Baxter&nbsp;er l\u00e1tin (f.12. ma\u00ed 1945 \u2013 d. 19. \u00e1g\u00fast 2012). Sonur hennar er Stef\u00e1n sem \u00e1 soninn Elvar \u00de\u00f3r.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">2. \u00deorl\u00e1kur&nbsp;Baxter&nbsp;er kv\u00e6ntur Margr\u00e9ti Gunnarsd\u00f3ttur og eiga \u00feau \u00ferj\u00fa b\u00f6rn: Katr\u00ednu, Arnar \u00de\u00f3r og Sigr\u00ed\u00f0i Bj\u00f6rk.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Katr\u00edn og hennar ma\u00f0ur Trausti H\u00e1konarson eiga H\u00e1kon og Dan\u00edel Frey.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Arnar \u00de\u00f3r og kona hans Harpa \u00de\u00f3rsd\u00f3ttir eiga Margr\u00e9ti G\u00edgju.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">B\u00f6rn Sigr\u00ed\u00f0ar Bjarkar og \u00de\u00f3rarins Borg\u00fe\u00f3rssonar, eru \u00deorl\u00e1kur Breki, J\u00f3natan M\u00e1ni og&nbsp;Hrafnhildur&nbsp;Ylva.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Eftir skilna\u00f0inn bj\u00f3 h\u00fan fyrst um sinn \u00ed foreldrah\u00fasum \u00fear til h\u00fan t\u00f3k upp samb\u00fa\u00f0 me\u00f0 Kristj\u00e1ni Gu\u00f0bjartssyni og flutti me\u00f0 honum \u00e1 Hjallaveg 1. \u00dear bjuggu \u00feau saman \u00ed 6-7 \u00e1r og reyndist hann \u00deorl\u00e1ki vel og kom oft \u00ed heims\u00f3kn eftir a\u00f0 \u00feau slitu samvistir.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Sigr\u00ed\u00f0ur anna\u00f0ist f\u00f6\u00f0ur sinn \u00ed m\u00f6rg \u00e1r eftir a\u00f0 hann var\u00f0 ekkjuma\u00f0ur, elda\u00f0i fyrir hann, bau\u00f0 honum \u00ed mat heima hj\u00e1 s\u00e9r, \u00fereif hj\u00e1 honum og \u00fevo\u00f0i \u00fevotta og m\u00e1tti enginn koma n\u00e1l\u00e6gt \u00feeirri&nbsp;\u00fej\u00f3nustu&nbsp;a\u00f0 hans vilja nema h\u00fan.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Sigr\u00ed\u00f0ur giftist seinna Atla \u00c1rnasyni. D\u00f3ttir \u00feeirra er Krist\u00edn Amal\u00eda (f.1961) sem \u00e1 tv\u00f6 b\u00f6rn, Atla og I\u00f0unni Sn\u00e6d\u00edsi, sem umgengust \u00f6mmu s\u00edna mj\u00f6g miki\u00f0. Gagnkv\u00e6m v\u00e6ntum\u00feykja r\u00edkti milli \u00feeirra og \u00f6mmu.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Sigr\u00ed\u00f0ur kom v\u00ed\u00f0a vi\u00f0 um \u00e6vina. Fyrr var \u00feess geti\u00f0 a\u00f0 h\u00fan kynntist s\u00f6ng og hinni fornu kv\u00e6\u00f0ahef\u00f0, m\u00f3\u00f0ir hennar var kv\u00e6\u00f0akona. Sigr\u00ed\u00f0ur var \u00ed Kv\u00e6\u00f0amannaf\u00e9laginu I\u00f0unni. H\u00fan s\u00f6ng v\u00ed\u00f0ar en bara heima \u00ed eldh\u00fasinu e\u00f0a \u00ed portinu \u00ed&nbsp;Verk\u00f3. H\u00fan var um \u00e1rabil \u00ed \u00dej\u00f3\u00f0leikh\u00fassk\u00f3rnum og r\u00f6dd hennar t\u00e6r og sterk hlj\u00f3ma\u00f0i v\u00ed\u00f0a.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Annar st\u00f3r \u00fe\u00e1ttur \u00ed l\u00edfi hennar var \u00fativist og g\u00f6ngur. H\u00fan var hei\u00f0ursf\u00e9lagi \u00ed Fer\u00f0af\u00e9lagi \u00cdslands. K\u00e1t og l\u00edfsgl\u00f6\u00f0 gekk h\u00fan \u00e1 fj\u00f6ll og s\u00f6ng, orkumikil kona, sem f\u00f3r oft \u00ed \u00fatilegur um helgar og margar fer\u00f0ir f\u00f3r h\u00fan \u00ed Skaftafell og hlj\u00f3p vi\u00f0 f\u00f3t er h\u00fan skrapp&nbsp;upp \u00e1&nbsp;Krist\u00ednartind. N\u00e1tt\u00faran, g\u00f6ngur og s\u00f6ngur voru hennar yndi. \u00c1ttr\u00e6\u00f0 gekk h\u00fan \u00e1 Valahnj\u00fak \u00ed \u00de\u00f3rsm\u00f6rk en svo missti h\u00fan af n\u00edr\u00e6\u00f0isafm\u00e6li s\u00ednu \u00feegar h\u00fan var\u00f0 ve\u00f0urteppt \u00e1 Sprengisandi.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">J\u00e1, h\u00fan Sigr\u00ed\u00f0ur var kona sem f\u00f3lk gleymir ekki. H\u00fan vakti alls sta\u00f0ar athygli. \u00c1 hj\u00fakrunarheimilinu haf\u00f0i h\u00fan \u00e1hrif og \u00fear mun hennar ver\u00f0a sakna\u00f0. H\u00fan var lj\u00faf og g\u00f3\u00f0 en l\u00edka \u00e1kve\u00f0in \u00ed framkomu. Var hrj\u00faf og bl\u00ed\u00f0 \u00ed senn. H\u00fan var s\u00f6nn bar\u00e1ttukona alla t\u00ed\u00f0. Gat veri\u00f0 erfi\u00f0 og stundum s\u00e6randi en m\u00fdktist me\u00f0 aldrinum.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Margr\u00e9t tengdad\u00f3ttir talar um hve lj\u00faf h\u00fan var henni sem tengdam\u00f3\u00f0ir og l\u00e9t s\u00e9r annt um f\u00f3lk og spur\u00f0i \u00fev\u00ed oft: ertu ekki sv\u00f6ng, \u00fearftu ekki a\u00f0 bor\u00f0a, hvar \u00e6tlar\u00f0u a\u00f0 gista?<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">H\u00fan haf\u00f0i r\u00edka m\u00e1lkennd og bj\u00f3 yfir g\u00f3\u00f0um or\u00f0afor\u00f0a og var a\u00f0finnslus\u00f6m um m\u00e1lfar f\u00f3lks og ofbau\u00f0 amb\u00f6gurnar \u00ed fj\u00f6lmi\u00f0lum og \u00fat um allt hin s\u00ed\u00f0ari \u00e1rin. Tala\u00f0i miki\u00f0 alla t\u00ed\u00f0, var or\u00f0heppin til hinstu stundar. Tala\u00f0i og mundi allt en svo andartaki s\u00ed\u00f0ar \u00ed samtalinu var h\u00fan kannski b\u00fain a\u00f0 gleyma \u00f6llu \u2013 og svo tala\u00f0i h\u00fan ensku \u00e1 d\u00e1narbe\u00f0inum<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">H\u00fan tr\u00fa\u00f0i sta\u00f0fast \u00e1 l\u00edf eftir dau\u00f0ann, var berdreymin og skynja\u00f0i \u00fdmislegt.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">H\u00fan lif\u00f0i gr\u00ed\u00f0arlega miklar \u00fej\u00f3\u00f0f\u00e9lagsbreytingar \u00e1 sinni \u00e6vi, f\u00e6dd r\u00e9tt fyrir kreppuna, svo komu str\u00ed\u00f0s\u00e1rin, sem gj\u00f6rbreyttu \u00fej\u00f3\u00f0f\u00e9laginu me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 f\u00f3lk \u00e1tti allt \u00ed einu peninga og f\u00e9kk laun s\u00edn greidd \u00ed se\u00f0lum. \u00dea\u00f0 var n\u00fd reynsla fyrir marga. Setuli\u00f0i\u00f0 haf\u00f0i mikil \u00e1hrif \u00e1 vinnumarka\u00f0inn og svo ur\u00f0u einnig til m\u00f6rg \u00e1starsamb\u00f6nd milli \u00edslenskra kvenna og hermanna. Sl\u00edkt var af m\u00f6rgum liti\u00f0 hornauga og me\u00f0 miklum ford\u00f3mum. \u00dea\u00f0 a\u00f0 lenda \u00ed \u00e1standinu, eins og \u00fea\u00f0 var kalla\u00f0, var stimpill, sem erfitt var a\u00f0 afm\u00e1. Sigr\u00ed\u00f0ur fann fyrir \u00fev\u00ed \u00e1 eigin skinni og s\u00e1larl\u00edfi. Almennings\u00e1liti\u00f0 var grimmt og bj\u00f3 til sk\u00f6mmina \u00ed hj\u00f6rtum \u00f3f\u00e1rra \u00edslenskra kvenna, sem ur\u00f0u \u00e1stfangnar af herm\u00f6nnum, sem margir voru gl\u00e6silegir og kurteisir menn og sag\u00f0ir afar \u00f3l\u00edkir \u00f3heflu\u00f0um \u00edslenskum k\u00f6rlum sem kunnu margir hverjir litla mannasi\u00f0i \u00e1 heimsv\u00edsu tala\u00f0 hva\u00f0 \u00fe\u00e1 f\u00e1ga\u00f0a framkomu vi\u00f0 konur. Hennar \u00f6rl\u00f6g voru litu\u00f0 \u00fej\u00e1ningu vegna \u00feessarar skammar sem a\u00f0rir sk\u00f6pu\u00f0u hj\u00e1 henni og stallsystrum hennar.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c1stin hefur \u00e6t\u00ed\u00f0 fari\u00f0 s\u00ednar lei\u00f0ir. [Innskot \u00e1 uppt\u00f6kunni um ford\u00f3ma] H\u00fan fl\u00e6\u00f0ir eins og l\u00e6kurinn sem finnur s\u00e9r farveg. Hva\u00f0 erum vi\u00f0 a\u00f0&nbsp;hneykslast&nbsp;\u00e1 f\u00f3lki sem ver\u00f0ur \u00e1stfangi\u00f0 af hvort \u00f6\u00f0ru? Hver hefur r\u00e9tt til a\u00f0 hafa ford\u00f3ma&nbsp;gagnvart&nbsp;minni elsku e\u00f0a \u00feinni? Enginn. Sk\u00f6mm Sigr\u00ed\u00f0ar er h\u00e9r me\u00f0 skila\u00f0 til ford\u00f3mafullra \u00cdslendingum&nbsp;\u00e1 \u00f6llum t\u00edmum. Og \u00e9g leyfi m\u00e9r a\u00f0 segja vi\u00f0 \u00feessa ford\u00f3mafullu \u00cdslendinga \u00ed gegnum t\u00ed\u00f0ina: Svei ykkur! fyrir h\u00f6nd Sigr\u00ed\u00f0ar.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Og n\u00fa er s\u00f6ngurinn hennar horfinn. Andardr\u00e1ttur s\u00f6ngkonunnar hreyfir ekki lengur vi\u00f0 sameindunum \u00ed andr\u00famsloftinu sem flytja t\u00f3nana fr\u00e1 barka s\u00f6ngvarans a\u00f0 eyrum f\u00f3lks, fr\u00e1 titrandi strengjum, hvellum og \u00fe\u00fd\u00f0um bl\u00e1sturshlj\u00f3\u00f0f\u00e6rum, trommum og p\u00e1kum. Vi\u00f0 lifum \u00ed heimi t\u00f3nlistar og \u00feeim eina sem fundist hefur \u00ed \u00f6llum alheimi. R\u00f6ddin hennar Sigr\u00ed\u00f0ar var alltaf jafn bj\u00f6rt og h\u00e1. H\u00fan var s\u00f6g\u00f0 besti s\u00f3praninn \u00ed&nbsp;eldriborgarak\u00f3rnum&nbsp;\u00ed K\u00f3pavogi til 93 \u00e1ra aldurs! Geri a\u00f0rir betur!<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00datf\u00f6r hennar er t\u00f3nlistarveisla \u00fear sem h\u00e6fileikaf\u00f3lk spilar og syngur l\u00f6g eftir einst\u00f6k t\u00f3nsk\u00e1ld vi\u00f0 texta eftir h\u00f6fu\u00f0sk\u00e1ld okkar.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Sigr\u00ed\u00f0ur dansar ekki meir \u00ed \u00feessum heimi en \u00e1n efa er t\u00f3nlist \u00ed himni Gu\u00f0s sem er, Nota&nbsp;Bene, ekki \u00fati \u00ed geimnum \u00ed hlj\u00f3\u00f0lausu t\u00f3mi, heldur \u00ed annarri tilveru, annarri v\u00eddd og \u00f3skapa\u00f0ri, sem okkur er heiti\u00f0 \u00ed tr\u00fanni \u00e1 Krist. Er \u00fea\u00f0 ekki d\u00e1samlegt a\u00f0 mega tr\u00faa \u00e1 tilveru, sem tekur \u00feessari jar\u00f0nesku vist fram \u00ed \u00f6llum greinum? Og \u00fear ver\u00f0ur mikil m\u00fas\u00edk!<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">G\u00f3\u00f0ur Gu\u00f0 geymi og var\u00f0veiti Sigr\u00ed\u00f0i \u00deorl\u00e1ksd\u00f3ttur&nbsp;Ottesen&nbsp;a\u00f0 eil\u00edfu og megi s\u00e1 sami lei\u00f0a okkur um l\u00edfsins veg me\u00f0an vi\u00f0 enn lifum \u00ed heimi hlj\u00f3\u00f0s og t\u00f3nlistar og me\u00f0an \u00f6ndin b\u00e6rist \u00ed brj\u00f3sti okkar.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Amen.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Amen.<\/p>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-image size-large\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"2501\" height=\"1829\" src=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2022\/11\/screenshot-2022-11-17-at-17.23.07.png?w=1024\" alt=\"\" class=\"wp-image-3544\" \/><\/figure>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-image size-large\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"2519\" height=\"1814\" src=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2022\/11\/screenshot-2022-11-17-at-17.24.03.png?w=1024\" alt=\"\" class=\"wp-image-3545\" \/><\/figure>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00d6rn B\u00e1r\u00f0ur J\u00f3nsson +Sigr\u00ed\u00f0ur \u00deorl\u00e1ksd\u00f3ttir Ottesen B\u00e1lf\u00f6r \u00ed kyrr\u00feey fr\u00e1 Neskirkju fimmtudaginn 17. n\u00f3vember kl. 15 R\u00e6\u00f0una er h\u00e6gt a\u00f0 lesa h\u00e9r fyrir ne\u00f0an og hlusta \u00e1 me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 smella \u00e1 afspilunartakkann. S\u00e1lmaskr\u00e1in er ne\u00f0anm\u00e1ls.<\/p>\n","protected":false},"author":2,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_jetpack_newsletter_access":"","_jetpack_dont_email_post_to_subs":false,"_jetpack_newsletter_tier_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paywalled_content":false,"_jetpack_hide_featured_image":false,"_jetpack_featured_image_duplicate_dismissed":0,"_jetpack_feature_clip_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":"","jetpack_post_was_ever_published":false},"categories":[7],"tags":[],"class_list":["post-3547","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-minningarord-eulogies"],"jetpack_sharing_enabled":true,"jetpack_featured_media_url":"","_links":{"self":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/3547","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/users\/2"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcomments&post=3547"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/3547\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fmedia&parent=3547"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcategories&post=3547"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Ftags&post=3547"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}