{"id":3507,"date":"2022-10-05T16:48:33","date_gmt":"2022-10-05T16:48:33","guid":{"rendered":"http:\/\/ornbardur.com\/2022\/10\/05\/reynald-thrainn-jonsson-1938-2022\/"},"modified":"2022-10-05T16:48:33","modified_gmt":"2022-10-05T16:48:33","slug":"reynald-thrainn-jonsson-1938-2022","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/ornbardur.com\/?p=3507","title":{"rendered":"+Reynald \u00der\u00e1inn J\u00f3nsson 1938-2022"},"content":{"rendered":"\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00d6rn B\u00e1r\u00f0ur J\u00f3nsson<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Minningaror\u00f0<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>+Reynald \u00der\u00e1inn J\u00f3nsson<\/strong><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">1938-2022<\/p>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-image size-large\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"924\" height=\"1043\" src=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2022\/10\/reynald-thracc81inn-jocc81nsson.pdf-google-drive-3.png?w=907\" class=\"wp-image-3506\" \/><\/figure>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">B\u00e1lf\u00f6r \u00ed kyrr\u00feey fr\u00e1 Fossvogskirkju<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">mi\u00f0vikudaginn 5. okt\u00f3ber 2022 kl. 13<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">S\u00e1lmaskr\u00e1in er ne\u00f0anm\u00e1ls.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">R\u00e6\u00f0una er h\u00e6gt a\u00f0 lesa og\/e\u00f0a hlusta me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 smella \u00e1 tengilinn.<\/p>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-audio\"><audio controls src=\"https:\/\/pub-c849b6aaf98340c4bec7b480b0f7ffe9.r2.dev\/2022\/10\/reynald-th-jocc81nsson-1938-2022.m4a\"><\/audio><\/figure>\n\n\n\n<!--more-->\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hann var kenndur vi\u00f0 Sigurh\u00e6\u00f0ir \u00e1 Dalv\u00edk. Nafni\u00f0 er fagurt og bjart og h\u00fasi\u00f0 \u00e1 fr\u00e6gt systkin \u00e1 Akureyri er ber sama nafn, Sigurh\u00e6\u00f0ir, og kennt vi\u00f0 hi\u00f0 mikla sk\u00e1ld s\u00e9ra Matth\u00edas Jochumsson, sem h\u00e1\u00f0i marga gl\u00edmuna \u00ed l\u00edfinu vi\u00f0 Gu\u00f0 sinn og orti margt undurfagurt eins og t.a.m. lj\u00f3\u00f0i\u00f0 &#8211; Lofs\u00f6ngur &#8211; sem er \u00fej\u00f3\u00f0s\u00f6ngur \u00cdslendinga og hann samdi me\u00f0 hli\u00f0sj\u00f3n af 90. Dav\u00ed\u00f0ss\u00e1lmi sem vi\u00f0 heyr\u00f0um \u00far nokkur vers h\u00e9r fyrr \u00ed ath\u00f6fninni.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Sigurh\u00e6\u00f0ir eru \u00e1n efa margar \u00ed heiminum en s\u00fa sem gn\u00e6fir yfir allt, ekki s\u00f6kum h\u00e6\u00f0ar sinnar, heldur atbur\u00f0ar, sem \u00fear \u00e1tti s\u00e9r sta\u00f0 fyrir um 2000 \u00e1rum er h\u00e6\u00f0 sem heitir Golgata og hefur veri\u00f0 k\u00f6llu\u00f0 hausk\u00fapuh\u00e6\u00f0 vegna l\u00f6gunar sinnar.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c1 \u00feeirri h\u00e6\u00f0 vann Jes\u00fas Kristur mesta sigur mannkynss\u00f6gunnar er hann sigra\u00f0i dau\u00f0ann og sta\u00f0festi me\u00f0 upprisu sinni \u00ferem d\u00f6gum s\u00ed\u00f0ar. S\u00fa sigurh\u00e6\u00f0 hefur eflt mannkyni von og tr\u00fa \u00ed tv\u00f6 \u00e1r\u00fe\u00fasund. Og ef vi\u00f0 l\u00edtum yfir heiminn og sko\u00f0um \u00feau l\u00f6nd sem skora h\u00e6st \u00ed \u00f6llum gildak\u00f6nnunum sem ger\u00f0ar hafa veri\u00f0 og m\u00e6la m.a. l\u00edfsg\u00e6\u00f0i svo sem mannr\u00e9ttindi, r\u00e9ttl\u00e6ti, heilbrig\u00f0iskerfi, menntakerfi o.s.frv., \u00fe\u00e1 blasir \u00fea\u00f0 vi\u00f0 a\u00f0 hin kristnu l\u00f6nd Evr\u00f3pu eru \u00fear efst \u00e1 bla\u00f0i \u00e1samt \u00f6\u00f0rum kristnum l\u00f6ndum \u00ed Amer\u00edku, einkum Kanada og \u00ed Eyja\u00e1lfu, \u00c1stral\u00eda og N\u00fdja-Sj\u00e1land. Stj\u00f3rnarfar \u00ed \u00feessum l\u00f6ndum hv\u00edlir \u00ed raun \u00e1 kristnum gildum sem \u00ed deiglu samtals milli stj\u00f3rnm\u00e1laflokka, laun\u00feegahreyfinga, h\u00e1sk\u00f3lafr\u00e6\u00f0a, kirkju og fleiri hreyfinga hafa skila\u00f0 \u00feeirri g\u00f3\u00f0u ni\u00f0urst\u00f6\u00f0u heilbrig\u00f0ra samr\u00e6\u00f0na og samskipta sem birtist \u00ed g\u00f3\u00f0um \u00e1v\u00f6xtum l\u00fd\u00f0r\u00e6\u00f0is og samhj\u00e1lpar \u00ed bl\u00f6ndu\u00f0um hagkerfum \u00fear sem net samhj\u00e1lpar er vel og vandlega ri\u00f0i\u00f0.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c1 heimas\u00ed\u00f0unni Svarfd\u00e6las\u00fdsl er vi\u00f0tal vi\u00f0 Reynald og \u00fear segir m.a.:<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><em>Reynald er sonur J\u00f3ns smi\u00f0s og Fr\u00ed\u00f0u \u00e1 Sigurh\u00e6\u00f0um, f\u00e6ddur og alinn upp \u00e1 einu af go\u00f0sagnakenndum heimilum Dalv\u00edkur. \u00c1 Sigurh\u00e6\u00f0um \u00e1 Akureyri orti s\u00e9ra Matth\u00edas himneska lofs\u00f6ngva en \u00e1 Sigurh\u00e6\u00f0um \u00e1 Dalv\u00edk sm\u00ed\u00f0a\u00f0i Jonni l\u00edkkistur. \u00deannig s\u00f6g\u00f0u g\u00e1rungar \u00ed \u00fea\u00f0 minnsta fr\u00e1 og Jonna leiddist \u00fea\u00f0 ekki. . . .<\/em><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><em>Reynald br\u00e1st vi\u00f0 atvinnuleysi \u00e1 Dalv\u00edk for\u00f0um me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 s\u00e6kja \u00ed vinnu su\u00f0ur \u00e1 Keflav\u00edkurflugv\u00f6ll, \u00e1 vert\u00ed\u00f0 \u00ed Vestmannaeyjum og v\u00ed\u00f0ar. Svo f\u00f3r hann \u00ed t\u00e6knin\u00e1m \u00ed Danm\u00f6rku og eftir \u00fea\u00f0 var ekki aftur til Dalv\u00edkur sn\u00fai\u00f0 nema \u00ed hlutverki brottflutts \u00e6ttingja og sveitunga.<\/em><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><em>Eftir heimkomu \u00far n\u00e1mi ger\u00f0ist hann b\u00e6jart\u00e6knifr\u00e6\u00f0ingur \u00e1 H\u00fasav\u00edk 1965 og f\u00f3r \u00fea\u00f0an til Landsvirkjunar. Lei\u00f0in l\u00e1 s\u00ed\u00f0an me\u00f0al annars \u00ed virkjun vatnsafls \u00e1 h\u00e1lendinu sy\u00f0ra, fyrst vi\u00f0 Sig\u00f6ldu og s\u00ed\u00f0an Hrauneyjarfoss.<\/em><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><em>Fr\u00e1 \u00e1rinu 1982 starfa\u00f0i Reynald \u00e1 eigin vegum. Hann stofna\u00f0i teiknistofu, vann eftir \u00fea\u00f0 sem h\u00f6nnu\u00f0ur og verktaki og \u00e1 t\u00edmabili rak hann l\u00edka verslun vi\u00f0 Grens\u00e1sveg \u00ed Reykjav\u00edk.<\/em><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Gefum honum sj\u00e1lfum or\u00f0i\u00f0:<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><em>\u201e\u00c9g var \u00ed m\u00f6rgum st\u00f3rum og sm\u00e1um verkefnum \u00ed Gar\u00f0ab\u00e6, stofan m\u00edn anna\u00f0ist til a\u00f0 byrja me\u00f0 alla verkfr\u00e6\u00f0ih\u00f6nnun \u00ed \u00c1sb\u00fa\u00f0 og b\u00e6\u00f0i h\u00f6nnun og byggingar n\u00e1nast \u00ed heilum hverfum h\u00e9r. S\u00ed\u00f0ar st\u00f3\u00f0 \u00e9g a\u00f0 miklum framkv\u00e6mdum \u00ed Borgarnesi, b\u00e6\u00f0i n\u00fdjum fj\u00f6lb\u00fdlish\u00fasum og breytti gamla kaupf\u00e9lagsh\u00fasinu \u00fear \u00ed 25 \u00edb\u00fa\u00f0ir.<\/em><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><em>\u00c1 Akureyri keypti \u00e9g brunar\u00fastir skemmtista\u00f0arins H-100 vi\u00f0 Hafnarstr\u00e6ti og \u00fe\u00e1 \u00fe\u00f3tti v\u00edst \u00fdmsum a\u00f0 komi\u00f0 v\u00e6ri a\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 hann Reynald \u00feyrfti a\u00f0 leita s\u00e9r andlegrar a\u00f0sto\u00f0ar. Upp\u00e1t\u00e6ki\u00f0 \u00fe\u00f3tti svo gali\u00f0. Vissulega var \u201eeignin\u201c ekki \u00e1litleg \u00ed upphafi en \u00fearna hanna\u00f0i \u00e9g, bygg\u00f0i og innr\u00e9tta\u00f0i 15 \u00edb\u00fa\u00f0a fj\u00f6lb\u00fdlish\u00fas \u00ed hjarta b\u00e6jarins \u00e1 sk\u00f6mmum t\u00edma. H\u00fasi\u00f0 stendur enn og stendur fyrir s\u00ednu!\u201c<\/em><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Reynald \u00der\u00e1inn J\u00f3nsson, h\u00e9t hann fullu nafni og f\u00e6ddist \u00e1 Dalv\u00edk 3. febr\u00faar 1938, hann l\u00e9st \u00e1 hj\u00fakrunarheimilinu \u00cdsafold \u00ed Gar\u00f0ab\u00e6 24. september 2022.&nbsp;<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">J\u00f3n fa\u00f0ir hans var Sigur\u00f0sson og var h\u00fasasm\u00ed\u00f0ameistari, f. 16.12.1897, d. 16.11.1980 og m\u00f3\u00f0ir hans var H\u00f3lmfr\u00ed\u00f0ur Magn\u00fasd\u00f3ttir, h\u00fasfreyja, f. 26.05.1910, d. 10.09.1995.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Dalv\u00edk var \u00e6vint\u00fdraheimur fyrir str\u00e1k me\u00f0 marga h\u00e6fileika og drauma. \u00c1stin vitjar ungs f\u00f3lk og hann kynntist Sesselju Gu\u00f0mundsd\u00f3ttur sem f\u00e6dd var 8. \u00e1g\u00fast 1940 \u00ed Landlyst \u00ed Vestmannaeyjum, d\u00f3ttir hj\u00f3nanna \u00de\u00f3rhildar Gu\u00f0nad\u00f3ttur, h\u00fasfreyju og Gu\u00f0mundar Hr\u00f3bjartssonar, sk\u00f3smi\u00f0s. Gu\u00f0mundur l\u00e9st \u00e1ri\u00f0 1975 en \u00de\u00f3rhildur 1993. Sella var fimmta \u00ed h\u00f3pi sj\u00f6 systkina.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Reynald og h\u00fan gengu \u00ed hj\u00f3naband 5.4.1959 og \u00e1ttu saman g\u00f3\u00f0 \u00e1r upp fr\u00e1 \u00fev\u00ed en Sesselja l\u00e9st \u00ed sviplegu b\u00edlslysi 9. jan\u00faar 1987.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Vinkona hennar, I\u00f0unn Steinsd\u00f3ttir, l\u00fdsir henni \u00ed minningaror\u00f0um me\u00f0 \u00feessum or\u00f0um:<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><em>&#8220;\u00cd v\u00f6ggugj\u00f6f haf\u00f0i Sella hloti\u00f0 einstakan h\u00e6fileika til a\u00f0 sj\u00e1 broslegu hli\u00f0arnar \u00e1 hlutunum. Vi\u00f0 \u00fea\u00f0 b\u00e6ttist r\u00edk fr\u00e1sagnarg\u00e1fa sem ger\u00f0i \u00fea\u00f0 a\u00f0 verkum a\u00f0 fr\u00e1sagnir hennar v\u00f6rpu\u00f0u lj\u00f3ma langt fram \u00e1 veginn.<\/em><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><em>En Sella haf\u00f0i fleiri g\u00f3\u00f0a eiginleika til a\u00f0 bera. H\u00fan var \u00e1byrg \u00ed or\u00f0i og gj\u00f6r\u00f0um, \u00fea\u00f0 sem h\u00fan t\u00f3k a\u00f0 s\u00e9r var \u00ed \u00f6ruggum h\u00f6ndum. Heimili sitt anna\u00f0ist h\u00fan \u00f3a\u00f0finnanlega og af e\u00f0lisl\u00e6gri smekkv\u00edsi. H\u00fan var hreinskiptin og hispurslaus og \u00f6ll yfirbor\u00f0smennska fjarri henni. \u00de\u00f3 er m\u00e9r efst \u00ed huga hve traustur vinur og hve raung\u00f3\u00f0 h\u00fan var. \u00c9g minnist \u00feess ekki a\u00f0 nokkurn t\u00edmann st\u00e6\u00f0i svo illa \u00e1 hj\u00e1 henni a\u00f0 h\u00fan spara\u00f0i t\u00edma og fyrirh\u00f6fn til a\u00f0 hj\u00e1lpa ef \u00ed nau\u00f0irnar rak. Sl\u00edkir vinir eru f\u00e1g\u00e6tir en hver sem ver\u00f0ur \u00feeirra a\u00f0nj\u00f3tandi er ekki einn \u00e1 fer\u00f0.&#8221;<\/em><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Sesselja og Reynald eignu\u00f0ust \u00ferj\u00fa b\u00f6rn, Sigr\u00ed\u00f0i \u00d3sk (1959), Sigur\u00f0 (1966) og Gu\u00f0mund \u00de\u00f3r (1968).&nbsp;Tengdab\u00f6rnin eru Hinrik Hj\u00f6rleifsson, Hafd\u00eds Bj\u00f6rgvinsd\u00f3ttir og \u00de\u00f3runn Erla Einarsd\u00f3ttir. Barnab\u00f6rnin eru Reynald, Silja, Birgitta, Krist\u00f3fer, Einar K\u00e1ri, Gu\u00f0ni \u00de\u00f3r og J\u00f3n Gauti.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Reynald l\u00e6r\u00f0i h\u00fasasm\u00ed\u00f0i hj\u00e1 f\u00f6\u00f0ur s\u00ednum, lauk sveinspr\u00f3fi 1960 og lauk BS pr\u00f3fi \u00ed byggingart\u00e6knifr\u00e6\u00f0i fr\u00e1 Odense Teknikum \u00ed Danm\u00f6rku 1965.&nbsp;<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Sesselja var sto\u00f0 hans og stytta alla \u00e6vi og studdi hann t.d. \u00feegar hann var vi\u00f0 n\u00e1m \u00ed Odense og vann fyrir honum og frumbur\u00f0inum. H\u00fan var gla\u00f0lynd og hress kona og studdi mann sinn \u00ed \u00f6llu sem hann ger\u00f0i. \u00deau voru g\u00f3\u00f0ir vinir og samheldin hj\u00f3n sem b\u00e6ttu hvort anna\u00f0 upp.&nbsp;&nbsp;<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Reynald var b\u00e6jart\u00e6knifr\u00e6\u00f0ingur og byggingarfulltr\u00fai \u00e1 H\u00fasav\u00edk 1966-71, sinnti jafnframt stundakennslu vi\u00f0 I\u00f0nsk\u00f3lann \u00e1 H\u00fasav\u00edk.&nbsp; \u00de\u00e1 vann hann hj\u00e1 Landsvirkjun vi\u00f0 undirb\u00faning og eftirlit me\u00f0 Sig\u00f6lduvirkjun og Hrauneyjafossvirkjun 1971-79.&nbsp; \u00c1 \u00feessu t\u00edmabili var hann fjarri fj\u00f6lskyldunni yfir vetrarm\u00e1nu\u00f0ina en svo flutti Silla me\u00f0 b\u00f6rnin upp \u00e1 h\u00e1lendi\u00f0 til hans yfir sumart\u00edmann. B\u00f6rnin f\u00e1 blik \u00ed augun vi\u00f0 a\u00f0 rifja upp d\u00e1semdir h\u00e1lendisins og a\u00f0 f\u00e1 a\u00f0 vera n\u00e6rri pabba \u00e1 sumrin og upplifa fegur\u00f0 landsins.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Reynald starfr\u00e6kti s\u00ed\u00f0ar eigin teiknistofu, rak verslunina Alno eldh\u00fas og \u00fear unnu \u00feau hj\u00f3nin saman og enda\u00f0i sinn feril svo \u00ed byggingarframkv\u00e6mdum v\u00ed\u00f0a um land eins og fyrr var greint fr\u00e1.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Samb\u00fdliskona Reynalds fr\u00e1 1987 var Katr\u00edn \u00c1rnad\u00f3ttir fi\u00f0lukennari f. 30.5.1942, sonur Katr\u00ednar og stj\u00fapsonur Reynalds er \u00c1rni J\u00f3n Eggertsson, eiginkona hans er Krist\u00edn Halla Hannesd\u00f3ttir.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Reynald er fyrstur til a\u00f0 kve\u00f0ja \u00far st\u00f3rum systkinah\u00f3p, eftirlifandi eru: \u00d3sk, Sigur\u00f0ur, Mar\u00eda, Sigr\u00ed\u00f0ur, Filipp\u00eda og Krist\u00edn J\u00f3na.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Reynald haf\u00f0i yndi af t\u00f3nlist, einkum jazz-m\u00fas\u00edk. Hann var listr\u00e6nn \u00ed s\u00e9r, teikna\u00f0i og m\u00e1la\u00f0i myndir. Hann var n\u00e1kv\u00e6mur \u00ed \u00f6llu sem hann t\u00f3k s\u00e9r fyrir hendur og naut \u00feess a\u00f0 slaka \u00e1 me\u00f0 vindil og Whisk\u00fd-t\u00e1r \u00ed glasi e\u00f0a \u00edskaldan \u00e1 kantinum, eins og sagt er. Reynald var or\u00f0var, tala\u00f0i ekki af s\u00e9r, lei\u00f0 vel \u00ed \u00fe\u00f6gn en oftar en ekki greindu menn glettni og k\u00e6ti \u00ed svip hans.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hann var g\u00f3\u00f0ur vi\u00f0 f\u00f3lk og d\u00fdr. Hann unni t\u00e6kni og var d\u00e1l\u00edtill t\u00e6kjakarl og haf\u00f0i unun af flottum b\u00edlum sem hann l\u00e1na\u00f0i b\u00f6rnunum a\u00f0 vild. Hann bj\u00f3 yfir jafna\u00f0arge\u00f0i og \u00e6\u00f0ruleysi.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Og n\u00fa er hann horfinn af \u00feessari jar\u00f0vist og hans er s\u00e1rt sakna\u00f0 af \u00e1stvinum.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Innilegar sam\u00fa\u00f0arkve\u00f0jur hafa borist fr\u00e1 \u00d3sk e\u00f0a Diddu st\u00f3rusystur Reynalds, d\u00f3ttur hennar S\u00f3lr\u00fanu og \u00f6mmustelpunni, Silf\u00e1 S\u00f3l;<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">fr\u00e1 Birgittu, Gunnari og \u00c1sd\u00edsi Ingu langafastelpu;<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">fr\u00e1 sonarsyni Reynalds, Einari K\u00e1ra Gu\u00f0mundssyni, sem er \u00ed Lundi \u00ed Sv\u00ed\u00fej\u00f3\u00f0;<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">fr\u00e1 systursyni Reynalds, Hilmari Gu\u00f0mundssyni, konu hans, Krist\u00ednu og fj\u00f6lskyldu \u00feeirra;<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">fr\u00e1 Birgittu Sigur\u00f0ard\u00f3ttur og fj\u00f6lskyldu \u00ed Kaupmannah\u00f6fn og<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">fr\u00e1 vinum \u00e1 Sp\u00e1ni, Magna Gu\u00f0mundssyni og Halld\u00f3ru \u00deorvar\u00f0ard\u00f3ttur.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Reynald haf\u00f0i jafnan m\u00f6rg j\u00e1rn \u00ed eldinum \u00e1 sama t\u00edma og margt gekk vel en anna\u00f0 ekki. Svona er l\u00edfi\u00f0. Eftir hruni\u00f0 dr\u00f3 hann saman seglin.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><em>Katr\u00edn h\u00e6tti a\u00f0 vinna um svipa\u00f0 leyti. H\u00fan l\u00e9k \u00ed Sinf\u00f3n\u00eduhlj\u00f3msveit \u00cdslands um \u00e1rabil og kenndi fi\u00f0luleik \u00ed Barnam\u00fas\u00edksk\u00f3la Reykjav\u00edkur, T\u00f3nmenntask\u00f3la Reykjav\u00edkur, N\u00fdja t\u00f3nlistarsk\u00f3lanum og s\u00ed\u00f0ast \u00ed T\u00f3nlistarsk\u00f3lanum \u00ed Hafnarfir\u00f0i. Svo var h\u00fan reyndar \u00e1 sj\u00f3nvarpsskj\u00e1m landsmanna sem dagskr\u00e1r\u00feulur Sj\u00f3nvarpsins \u00ed fimm \u00e1r. . . Vi\u00f0 Reynald komum \u00far gj\u00f6r\u00f3l\u00edkum \u00e1ttum en eigum samt t\u00f3nlistar\u00e1hugann sameiginlegan. Hann hefur mj\u00f6g gaman af m\u00fas\u00edk og syngur sj\u00e1lfur, enda me\u00f0 \u00e1g\u00e6tis s\u00f6ngr\u00f6dd. \u00c1 s\u00ednum t\u00edma dreif hann sig \u00ed Fr\u00edm\u00fararak\u00f3rinn og \u00e9g stu\u00f0la\u00f0i a\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 hann s\u00e6kti kennslu \u00ed Hafnarfir\u00f0i hj\u00e1 Ei\u00f0i \u00c1g\u00fasti Gunnarssyni, \u00f3perus\u00f6ngvara og t\u00f3nlistarmanni.\u201c<\/em><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><em>. . . \u00dear me\u00f0 er komin \u00ed lj\u00f3s n\u00fd og \u00f3v\u00e6nt hli\u00f0 \u00e1 Reynald: s\u00f6ngvari. Og meira til, hann er t\u00f3mstundam\u00e1lari l\u00edka.<\/em><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><em>\u00c1 tr\u00f6num \u00ed stofunni \u00ed Gar\u00f0ab\u00e6 blasti vi\u00f0 eitt m\u00e1lverka hans og m\u00f3t\u00edvi\u00f0 auglj\u00f3slega \u00e6tta\u00f0 fr\u00e1 Sp\u00e1ni. \u00deegar hann m\u00e1lar \u00e1 \u00cdslandi birtist Sp\u00e1nn \u00ed myndunum hans en \u00feegar hann m\u00e1lar \u00e1 Sp\u00e1ni birtist St\u00f3llinn \u00ed Svarfa\u00f0ardal oftar en ekki \u00e1 l\u00e9reftinu.<\/em><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><em>\u00deannig fer\u00f0ast sonur Sigurh\u00e6\u00f0a \u00e1lfa \u00e1 milli en er \u00ed raun alltaf \u00e1 sama sta\u00f0.<\/em><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Og n\u00fa er hann kvaddur \u00ed h\u00fasi Gu\u00f0s og \u00feess Drottins sem opna\u00f0i okkur lei\u00f0 til himinsins heima \u00e1 hinni miklu Sigurh\u00e6\u00f0, Golgata.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Vi\u00f0 \u00fej\u00f3\u00f0veginn sem liggur milli Akureyrar og Dalv\u00edkur, \u00e1 milli tveggja Sigurh\u00e6\u00f0a, stendur b\u00e6rinn Fagrisk\u00f3gur \u00e1 Galmastr\u00f6nd. \u00dear f\u00e6ddist eitt af \u00e1sts\u00e6lustu sk\u00e1ldum \u00fej\u00f3\u00f0arinnar sem \u00fe\u00fdddi lofs\u00f6ng um Krist sem ber heiti\u00f0 <em>Uppi \u00e1 h\u00e6\u00f0inni miklu.<\/em><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Uppi&#8217; \u00e1 h\u00e6\u00f0inni miklu st\u00f3\u00f0 heilagur kross,<br \/>sem er h\u00e6ddur af \u00fe\u00fasundum enn.<br \/>Sj\u00e1 \u00e9g elska \u00feann kross, \u00fear sem f\u00f3rnin var f\u00e6r\u00f0,<br \/>sem a\u00f0 frelsa\u00f0i synduga menn.<br \/><br \/>Hann er lita\u00f0ur bl\u00f3\u00f0i hins lifanda Gu\u00f0s,<br \/>og hann lj\u00f3mar af fegur\u00f0 og sk\u00edn.<br \/>\u00dev\u00ed hann minnir \u00e1 Krist, sem var krossfestur \u00fear,<br \/>sem a\u00f0 kvaldist og d\u00f3 vegna m\u00edn.<br \/><br \/>\u00c9g hef heiti\u00f0 a\u00f0 taka&#8217; \u00e1 mig krossberans kv\u00f6l,<br \/>og s\u00fa k\u00f6llun er f\u00f6gur og gl\u00e6st.<br \/>Er \u00e9g sm\u00e1\u00f0ur af \u00f6\u00f0rum til Golgata geng,<br \/>er \u00e9g Gu\u00f0i og himninum n\u00e6st.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><em>\u00c9g vil taka&#8217; \u00e1 mig krossberans kv\u00f6l.<br \/>\u00c9g vil krj\u00fapa og bi\u00f0ja um gri\u00f0,<br \/>svo \u00e9g hlj\u00f3ti hinn eil\u00edfa au\u00f0,<br \/>svo \u00e9g \u00f6\u00f0list \u00feann himneska fri\u00f0.<\/em><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Vonin um eil\u00edft l\u00edf b\u00fdr innra me\u00f0 f\u00f3lki af \u00f6llum tr\u00faarbr\u00f6g\u00f0um og jafnvel me\u00f0al tr\u00falausra \u00ed einhverri mynd eins og t.d. g\u00f3\u00f0um or\u00f0st\u00edr eins og segir \u00ed H\u00e1vam\u00e1lum:<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Deyr f\u00e9,<br \/>deyja fr\u00e6ndur,<br \/>deyr sj\u00e1lfur i\u00f0 sama.<br \/>En or\u00f0st\u00edr<br \/>deyr aldregi<br \/>hveim er s\u00e9r g\u00f3\u00f0an getur.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">F\u00f3lk s\u00e9r fyrir s\u00e9r einhvers konar framhald. Sumir kalla \u00fea\u00f0 sumarlandi\u00f0, a\u00f0rir nota or\u00f0i\u00f0 s\u00f3lf\u00f6r um fer\u00f0ina til handanverunnar, kristnir tala um himininn e\u00f0a eil\u00edf\u00f0ina og \u00ed eftirspilinu sem leiki\u00f0 ver\u00f0ur s\u00ed\u00f0ast \u00ed \u00feessari ath\u00f6fn kemur fyrir vonin um fegur\u00f0 l\u00edfsins handan regnbogans: <em>Somwhere Over the Rainbow<\/em>.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Sk\u00e1ldin eru s\u00edfellt a\u00f0 f\u00e1st vi\u00f0 \u00feessa von mannskyns og hafa nota\u00f0 margar myndir \u00ed \u00fev\u00ed sambandi og n\u00fdlega hl\u00fdddi \u00e9g \u00e1 lestur b\u00f3karinnar Br\u00f3\u00f0ir minn Lj\u00f3nshjarta eftir Astrid Lindgren sem er heillandi saga um sorg og s\u00e1rsauka, l\u00edf og dau\u00f0a og s\u00ed\u00f0ast en ekki s\u00edst um eil\u00edf\u00f0ina og vonina sem b\u00fdr \u00ed brj\u00f3sti okkar allra \u00ed einni e\u00f0a annarri mynd.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Gu\u00f0 blessi minningu Reynalds \u00der\u00e1ins J\u00f3nssonar og megi Gu\u00f0 lei\u00f0a \u00feig og blessa \u00e1 l\u00edfsveginum og gl\u00e6\u00f0a vonina \u00ed hj\u00f6rtum okkar. Amen.<\/p>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-image size-large\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"1599\" height=\"1159\" src=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2022\/10\/reynald-thracc81inn-jocc81nsson.pdf-google-drive.png?w=1024\" class=\"wp-image-3504\" \/><\/figure>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-image size-large\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"1592\" height=\"1148\" src=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2022\/10\/reynald-thracc81inn-jocc81nsson.pdf-google-drive-2.png?w=1024\" class=\"wp-image-3505\" \/><\/figure>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00d6rn B\u00e1r\u00f0ur J\u00f3nsson Minningaror\u00f0 +Reynald \u00der\u00e1inn J\u00f3nsson 1938-2022 B\u00e1lf\u00f6r \u00ed kyrr\u00feey fr\u00e1 Fossvogskirkju mi\u00f0vikudaginn 5. okt\u00f3ber 2022 kl. 13 S\u00e1lmaskr\u00e1in er ne\u00f0anm\u00e1ls. R\u00e6\u00f0una er h\u00e6gt a\u00f0 lesa og\/e\u00f0a hlusta me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 smella \u00e1 tengilinn.<\/p>\n","protected":false},"author":2,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_jetpack_newsletter_access":"","_jetpack_dont_email_post_to_subs":false,"_jetpack_newsletter_tier_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paywalled_content":false,"_jetpack_hide_featured_image":false,"_jetpack_featured_image_duplicate_dismissed":0,"_jetpack_feature_clip_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":"","jetpack_post_was_ever_published":false},"categories":[7],"tags":[],"class_list":["post-3507","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-minningarord-eulogies"],"jetpack_sharing_enabled":true,"jetpack_featured_media_url":"","_links":{"self":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/3507","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/users\/2"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcomments&post=3507"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/3507\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fmedia&parent=3507"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcategories&post=3507"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Ftags&post=3507"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}