{"id":3398,"date":"2022-08-06T17:04:45","date_gmt":"2022-08-06T17:04:45","guid":{"rendered":"http:\/\/ornbardur.com\/2022\/08\/06\/vida-leynist-vidurstyggdin\/"},"modified":"2022-08-06T17:04:45","modified_gmt":"2022-08-06T17:04:45","slug":"vida-leynist-vidurstyggdin","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/ornbardur.com\/?p=3398","title":{"rendered":"V\u00ed\u00f0a leynist vi\u00f0urstygg\u00f0in"},"content":{"rendered":"\n<p class=\"wp-block-paragraph\">H\u00e9r gertur\u00f0u lesi\u00f0 greinina sem birtist \u00ed Kjarnanum 6. \u00e1g\u00fast 2022 og einnig hlusta\u00f0 \u00e1 lestur h\u00f6fundar.<\/p>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-image size-large\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"1856\" height=\"1165\" src=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2022\/08\/img_1571.jpg?w=1024\" alt=\"\" class=\"wp-image-3397\" \/><\/figure>\n\n\n\n<!--more-->\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-audio\"><audio controls src=\"https:\/\/pub-c849b6aaf98340c4bec7b480b0f7ffe9.r2.dev\/2022\/08\/vicc81da-leynist-vidurstyggdin.m4a\"><\/audio><\/figure>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">M\u00e9r finnst \u00fea\u00f0 \u00f6gn hryggilegt a\u00f0 upplifa \u00fea\u00f0 a\u00f0 sumum gu\u00f0leysingjum er umhuga\u00f0 um a\u00f0 kristi\u00f0 f\u00f3lk s\u00e9 b\u00f3kstafstr\u00faa\u00f0 eins og \u00feeir eru sj\u00e1lfir \u00ed afst\u00f6\u00f0u sinni til helgirita Gy\u00f0inga og kristinna manna, \u00feegar \u00feeir tala um f\u00f3lk sem \u00feeir fyrirl\u00edta. \u00c9g finn til me\u00f0 \u00f6llum, sem eru b\u00f3kstafstr\u00faar, hver sem tr\u00faarh\u00f3purinn er e\u00f0a tr\u00faleysish\u00f3purinn.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Gamla testamenti\u00f0 er hryggjarstykki\u00f0 \u00ed b\u00f3kmenntaarfi Gy\u00f0inga og \u00fear kennir margra grasa. \u00dear er a\u00f0 finna s\u00f6gur um l\u00edfsbar\u00e1ttu og landn\u00e1m, \u00e6ttir og \u00e6vi karla og kvenna, mei\u00f0ingar og manndr\u00e1p, stygg\u00f0aryr\u00f0i og str\u00ed\u00f0, valdaplott, pyntingar og framapot. Merkilegar s\u00f6gur sem \u00e6tla\u00f0 er a\u00f0 vera lyklar a\u00f0 skilningi \u00e1 e\u00f0li manna \u00ed \u00feessum heimi. Og svo er l\u00edka \u00f3tr\u00falega margt \u00ed b\u00f3kinni g\u00f3\u00f0u um fegur\u00f0 mannl\u00edfs og heims.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Kjarninn \u00ed b\u00f3kmenntaarfi okkar \u00fej\u00f3\u00f0ar eru \u00cdslendingas\u00f6gurnar og fleiri rit, b\u00e6\u00f0i hei\u00f0in og kristin. \u00dear kennir margra grasa og sumt er \u00fear hart undir t\u00f6nn og vi\u00f0urstyggilegt eins og \u00ed Bibl\u00edunni.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">William Booth, s\u00e1 merki ma\u00f0ur og stofnandi Hj\u00e1lpr\u00e6\u00f0ishersins, sag\u00f0ist lesa Bibl\u00eduna \u00e1 sama h\u00e1tt og hann bor\u00f0a\u00f0i \u00fdsu. Hann sag\u00f0ist t\u00edna beinin \u00fat \u00far s\u00e9r og leggja \u00feau \u00e1 diskbarminn, en bor\u00f0a \u00fea\u00f0 sem meltanlegt v\u00e6ri. Hann l\u00e9t \u00fea\u00f0 sem sagt eiga sig sem hann skildi ekki.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00cd b\u00f3kmenntaarfi \u00cdslendinga er margt gott og v\u00e6nlegt til eftirbreytni, en \u00fear er l\u00edka \u00fdmislegt sem vinsa \u00fearf fr\u00e1 og leggja \u00e1 diskbarminn eins og t.d. texta um hefndarskyldu, barna\u00fatbur\u00f0 og a\u00f0 varpa \u00f6ldru\u00f0um og langveikum fyrir \u00e6tternisstapa, sem merkti a\u00f0 kasta \u00feeim hreinlega fyrir bj\u00f6rg.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Margt illt v\u00e9k fyrir kristinni miskunn og mildi \u00ed aldanna r\u00e1s, en au\u00f0vita\u00f0 er mannskepnan s\u00f6m vi\u00f0 sig \u00e1 \u00f6llum \u00f6ldum, ford\u00f3ma- og ofbeldisfull. \u00deess vegna \u00fearf st\u00f6\u00f0ugt a\u00f0 bo\u00f0a henni fegur\u00f0 og halda a\u00f0 henni ford\u00f3maleysi.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Textar Bibl\u00edunnar um samkynhneig\u00f0, b\u00e6\u00f0i \u00ed hinu Gamla testamenti og hinu N\u00fdja, eru b\u00f6rn s\u00edns t\u00edma og \u00feeir textar eru ekki \u00feeir einu sem vinsa ber fr\u00e1 og leggja til hli\u00f0ar. Einnig \u00fearfa a\u00f0 t\u00falka \u00fe\u00e1 me\u00f0 a\u00f0sto\u00f0 v\u00edsinda \u00e1 svi\u00f0i tungum\u00e1la, f\u00e9lagsfr\u00e6\u00f0i, tr\u00faarbrag\u00f0afr\u00e6\u00f0i, mannfr\u00e6\u00f0i og sagnfr\u00e6\u00f0i svo a\u00f0eins nokkur svi\u00f0 s\u00e9u nefnd.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Bibl\u00edufr\u00e6\u00f0ingar hafa hin s\u00ed\u00f0ari \u00e1rin komist a\u00f0 \u00feeirri ni\u00f0urst\u00f6\u00f0u a\u00f0 textar Bibl\u00edunnar \u00fear sem samkynhneig\u00f0 er ford\u00e6md s\u00e9u flestir ef ekki allir um ofbeldi karla gegn \u00f6\u00f0rum k\u00f6rlum, einkum drengjum. Textarnir eru \u00fear me\u00f0 ekki um \u00e1st tveggja einstaklinga af sama kyni.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">P\u00e1ll postuli ford\u00e6mdi sl\u00edkt ofbeldi \u00e1 \u00feeirri forsendu a\u00f0 hann haf\u00f0i fyrir augum \u00ed borgarsamf\u00e9lagi \u00feess t\u00edma, s\u00e9rstaka sta\u00f0i \u00fear sem ungir drengir voru haf\u00f0ir sem leikf\u00f6ng karlar, sem misnotu\u00f0u \u00fe\u00e1, me\u00f0 &#8220;l\u00f6glegum&#8221; h\u00e6tti og leyfi hins hei\u00f0na samf\u00e9lags.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Samkynhneig\u00f0 \u00ed \u00cdslendingas\u00f6gunum.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">S\u00e6r\u00fan L\u00edsa Birgisd\u00f3ttir, \u00fej\u00f3\u00f0fr\u00e6\u00f0ingur, sag\u00f0i \u00ed vi\u00f0tali \u00ed V\u00edsi \u00e1ri\u00f0 2014:<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><em>Reyndar er tala\u00f0 um samkynhneig\u00f0 \u00ed \u00cdslendingas\u00f6gunum, \u00fear var versta n\u00ed\u00f0 sem h\u00e6gt var a\u00f0 segja um mann a\u00f0 hann v\u00e6ri argur, en eftir si\u00f0askipti hverfa \u00feeir gj\u00f6rsamlega \u00far heimildum.<\/em><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Ford\u00f3marnir voru l\u00edka til for\u00f0um daga. Mannf\u00f3lki\u00f0 er samt vi\u00f0 sig.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Og meira fr\u00e1 henni:<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><em>S\u00e6r\u00fan segist munu fjalla [\u00ed fyrirlestri s\u00ednum] um hvernig \u00fe\u00f6ggunin hefur veri\u00f0 fylgifiskur samkynhneig\u00f0ar fr\u00e1 \u00f6r\u00f3fi alda og hva\u00f0 samkynhneig\u00f0ir eru \u00f3s\u00fdnilegir \u00ed \u00edslenskri s\u00f6gu. \u201e\u00c9g tengi \u00feetta vi\u00f0 hulduf\u00f3lks- og \u00fatilegumannas\u00f6gur. \u00dea\u00f0 sem f\u00f3lk gat ekki sagt og m\u00e1tti ekki segja var nefnilega ofi\u00f0 inn \u00ed \u00fe\u00e6r, \u00feannig a\u00f0 kannski er h\u00e6gt, \u00e1n allrar \u00e1byrg\u00f0ar, a\u00f0 setja \u00e1 sig gleraugun og sko\u00f0a s\u00f6gurnar okkar \u00fat fr\u00e1 \u00feessum sj\u00f3narh\u00f3li.\u201c<\/em><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00de\u00f6ggun var einnig \u00feekkt fyrr \u00e1 \u00f6ldum. Vi\u00f0 h\u00f6fum ekkert breyst a\u00f0 e\u00f0li til en sko\u00f0anir okkar breytast ef vi\u00f0 nennum a\u00f0 reita illgresi\u00f0 \u00far be\u00f0um hugans.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Me\u00f0 hva\u00f0a gleraugum les \u00e9g Bibl\u00eduna? \u00c9g leitast vi\u00f0 a\u00f0 lesa hana me\u00f0 augum Jes\u00fa Krists, ef svo m\u00e1 a\u00f0 or\u00f0i komast og \u00fe\u00e1 sty\u00f0st \u00e9g vi\u00f0 texta, sem l\u00fdsa miskunn hans og elsku til f\u00f3lks almennt tala\u00f0 og nota \u00fe\u00e1 mynd af Jes\u00fa, sem gu\u00f0spj\u00f6llin birta til a\u00f0 vinsa svo fr\u00e1 \u00fea\u00f0 anna\u00f0 \u00ed Bibl\u00edunni, sem ekki fellur a\u00f0 k\u00e6rleiksr\u00edkri mynd hans.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hvers vegna l\u00e6rir f\u00f3lk akadem\u00edska gu\u00f0fr\u00e6\u00f0i \u00e1rum saman? Svar mitt er: Til a\u00f0 l\u00e6ra vi\u00f0urkenndar, akadem\u00edskar, a\u00f0fer\u00f0ir til a\u00f0 lesa og t\u00falka texta, \u00fe\u00fd\u00f0a \u00fe\u00e1 af einu tungum\u00e1li yfir \u00e1 anna\u00f0, \u00e1n \u00feess a\u00f0 bjaga merkingu textans og svo til a\u00f0 geta vinsa\u00f0 \u00far og haldi\u00f0 hinu g\u00f3\u00f0a, en hafna hinu mannfjandsamlega og illa.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Undir gu\u00f0fr\u00e6\u00f0i falla margar a\u00f0rar greinar, svo sem heimspeki, tr\u00faarheimspeki, tr\u00faarbrag\u00f0afr\u00e6\u00f0i, tr\u00faarl\u00edfsf\u00e9lagsfr\u00e6\u00f0i, si\u00f0fr\u00e6\u00f0i, kirkjusaga, forn tungum\u00e1l eins og lat\u00edna, gr\u00edska og hebreska og svo s\u00e1lg\u00e6slufr\u00e6\u00f0i og margt fleira.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00deannig er \u00fea\u00f0 n\u00fa \u00ed l\u00edfinu yfirleitt a\u00f0 vi\u00f0 veljum \u00e1 milli sko\u00f0ana, hvort sem \u00fe\u00e6r eru \u00e1 prenti e\u00f0a \u00ed t\u00f6lu\u00f0u m\u00e1li og \u00feess vegna skil \u00e9g ekki, hvers vegna flestir svonefndir gu\u00f0leysingjar, skuli vera b\u00f3kstafstr\u00faar \u00feegar kemur a\u00f0 Bibl\u00edunni. \u00deeir krefjast \u00feess og heimta, a\u00f0 vi\u00f0 sem viljum hafa Krist a\u00f0 fyrirmynd og lei\u00f0toga l\u00edfsins, a\u00f0 vi\u00f0 gleypum \u00ed heilu lagi alla Bibl\u00eduna me\u00f0 beinum, innyflum og \u00f6llu saman og fro\u00f0ufella af van\u00fe\u00f3knum ef vi\u00f0 segjumst ekki taka hva\u00f0 sem er sem gott og gilt \u00far Bibl\u00edunni. \u00deeir leyfa okkur ekki a\u00f0 hafa valfrelsi, byggt \u00e1 akadem\u00edskum forsendum.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">B\u00f3kstafstr\u00faarmenn eru v\u00ed\u00f0a og vi\u00f0urstygg\u00f0 sl\u00edkrar tr\u00faar stingur s\u00e9r ni\u00f0ur \u00ed mannl\u00edfinu enda er h\u00fan af sama mei\u00f0i og ford\u00f3mar yfirh\u00f6fu\u00f0. Sumar kirkjudeildir eru haldnar alvarlegri tr\u00faarvillu sem birtist einkum \u00ed b\u00f3kstafslegri t\u00falkun Bibl\u00edunnar og hluti H\u00e6stir\u00e9ttar Bandar\u00edkjanna er t.d. menga\u00f0ur af s\u00f6mu villu.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00deegar &#8220;b\u00falduleitir&#8221; gu\u00f0leysingjar \u00fevinga sko\u00f0unum upp\u00e1 a\u00f0ra og heimta a\u00f0 f\u00f3lk falli a\u00f0 sta\u00f0almynd b\u00f3kstafstr\u00faarmannsins, eru \u00feeir \u00ed \u00e1l\u00edka sporum og b\u00f3kstafstr\u00faa\u00f0ir h\u00e6star\u00e9ttard\u00f3marara vestra.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Sumir gu\u00f0leysingjar gerast \u00fear me\u00f0 sekir um ofbeldi, sem beitt er me\u00f0 or\u00f0um og lj\u00f3tum yfirl\u00fdsingum um f\u00f3lk, sem hefur a\u00f0rar l\u00edfssko\u00f0anir en \u00feeir sj\u00e1lfir.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">J\u00e1, v\u00ed\u00f0a leynist h\u00fan, vi\u00f0urstygg\u00f0in.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>H\u00e9r gertur\u00f0u lesi\u00f0 greinina sem birtist \u00ed Kjarnanum 6. \u00e1g\u00fast 2022 og einnig hlusta\u00f0 \u00e1 lestur h\u00f6fundar.<\/p>\n","protected":false},"author":2,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_jetpack_newsletter_access":"","_jetpack_dont_email_post_to_subs":false,"_jetpack_newsletter_tier_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paywalled_content":false,"_jetpack_hide_featured_image":false,"_jetpack_featured_image_duplicate_dismissed":0,"_jetpack_feature_clip_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":"","jetpack_post_was_ever_published":false},"categories":[4],"tags":[166,246,291,333,542,557,640],"class_list":["post-3398","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-greinar-og-hugvekjur-articles","tag-elska","tag-gudfraedi","tag-heimurinn","tag-jesus","tag-sannleikur","tag-sidferdi","tag-tru"],"jetpack_sharing_enabled":true,"jetpack_featured_media_url":"","_links":{"self":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/3398","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/users\/2"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcomments&post=3398"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/3398\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fmedia&parent=3398"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcategories&post=3398"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Ftags&post=3398"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}