{"id":3349,"date":"2022-07-09T15:05:10","date_gmt":"2022-07-09T15:05:10","guid":{"rendered":"http:\/\/ornbardur.com\/2022\/07\/09\/gudmundur-halldorsson-1933-2022\/"},"modified":"2022-07-09T15:05:10","modified_gmt":"2022-07-09T15:05:10","slug":"gudmundur-halldorsson-1933-2022","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/ornbardur.com\/?p=3349","title":{"rendered":"+Gu\u00f0mundur Halld\u00f3rsson 1933-2022"},"content":{"rendered":"\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Minningaror\u00f0<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>+Gu\u00f0mundur Halld\u00f3rsson<\/strong><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">1933-2022<\/p>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-image size-large\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"758\" height=\"778\" src=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2022\/07\/screenshot-2022-07-09-at-15.19.12.png?w=758\" alt=\"\" class=\"wp-image-3353\" \/><\/figure>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Sj\u00f3ma\u00f0ur fr\u00e1 \u00cdsafir\u00f0i,<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">s\u00ed\u00f0ast b\u00fasettur \u00ed Bolungav\u00edk.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00datf\u00f6r fr\u00e1 \u00cdsafjar\u00f0arkirkju<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">laugardaginn 9. j\u00fal\u00ed 2022.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Texti r\u00e6\u00f0unnar og hlj\u00f3\u00f0upptaka eru h\u00e9r fyrir ne\u00f0an. S\u00e1lmaskr\u00e1in er ne\u00f0st og \u00fear \u00e1 undan kve\u00f0jur sem b\u00e1rust.<\/p>\n\n\n\n<!--more-->\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-audio\"><audio controls src=\"https:\/\/pub-c849b6aaf98340c4bec7b480b0f7ffe9.r2.dev\/2022\/07\/gudmundur-halldocc81rsson-1933-2022.m4a\"><\/audio><\/figure>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Margir \u00ed heimi v\u00edsindanna telja a\u00f0 l\u00edfi\u00f0 hafi kvikna\u00f0 vi\u00f0 heita hveri \u00ed sj\u00f3 e\u00f0a \u00ed heitu umhverfi undir yfirbor\u00f0i jar\u00f0ar. Eldur er \u00ed i\u00f0rum jar\u00f0ar og \u00fea\u00f0an er allt l\u00edf komi\u00f0, af eldinum eina sem er lj\u00f3s af lj\u00f3si heimsins, lj\u00f3si Gu\u00f0s. Uppruni okkar er \u00ed hafdj\u00fapinu. Vi\u00f0 komum \u00far sj\u00f3num. Okkur \u00feykir \u00fea\u00f0 e.t.v. ekki heillandi \u00e6ttfr\u00e6\u00f0i, \u00fev\u00ed \u00fe\u00e1 eru vi\u00f0 einskonar fiskar \u00e1 \u00feurru landi og kann \u00fea\u00f0 a\u00f0 \u00fatsk\u00fdra vandr\u00e6\u00f0agang okkar allra \u00ed l\u00edfinu og mankynsins \u00ed heild.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">En hann Gu\u00f0mundur Halld\u00f3rsson, sem vi\u00f0 kve\u00f0jum h\u00e9r \u00ed dag me\u00f0 vir\u00f0ingu og \u00ed dj\u00fapri \u00fe\u00f6kk, var \u00e1n efa \u00e6tta\u00f0ur \u00far hafdj\u00fapunum. Hann var hafsins ma\u00f0ur. Sem drengur var hann \u00f6llum stundum \u00ed fj\u00f6runni \u00ed kringum sm\u00e1b\u00e1tasj\u00f3mennina sem geymdu b\u00e1ta s\u00edna \u00ed fj\u00f6runni vi\u00f0 Fjar\u00f0arstr\u00e6ti\u00f0 sem liggur me\u00f0fram Prestabugtinni. Hann spur\u00f0i eitt sinn hvort \u00feeir v\u00e6ru ekki a\u00f0 koma me\u00f0 kola og m\u00f6nnum heyr\u00f0ist hann segja gola og upp fr\u00e1 \u00fev\u00ed var hann kalla\u00f0ur Gvendur e\u00f0a Gummi Golli en heima var hann Mummi.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Sem S\u00f3lg\u00f6tup\u00faki, 16 \u00e1run yngri en Gu\u00f0mundur, man \u00e9g \u00feessar karla vel og hj\u00e1lpa\u00f0i stundum til vi\u00f0 sj\u00f3setningu b\u00e1ta og landt\u00f6ku me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 hlaupa me\u00f0 hvalbeinin e\u00f0a hlunnana undir kj\u00f6linn. Fa\u00f0ir Gu\u00f0mundar, Halld\u00f3r J\u00f3nsson var \u00e6skuvinur m\u00f3\u00f0urafa m\u00edns, Gu\u00f0mundar Halld\u00f3rssonar og \u00e9g \u00feekki \u00fev\u00ed fj\u00f6lskyldu hans og \u00e1 g\u00f3\u00f0ar minningar um systkini hans \u00f6ll. Fa\u00f0ir minn, Bolv\u00edkingurinn, J\u00f3n \u00d6rn\u00f3lfur B\u00e1r\u00f0arson, og Gu\u00f0mundur, voru fimmmenningar sem telst til skyldleika skv. fornri hef\u00f0 og \u00ed dag er einmitt f\u00e6\u00f0ingardagur f\u00f6\u00f0ur m\u00edns. N\u00f3g um \u00fea\u00f0.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Gu\u00f0mundur er eftirminnilegur. Hann var brennandi \u00ed andanum, \u00e1kafur og fr\u00f3\u00f0leiksf\u00fas og svo bj\u00f3 hann yfir r\u00edkri fr\u00e1sagnarg\u00e1fu. Hann var sannur sagnabrunnur og tala\u00f0i sterka vestfirsku og \u00fe\u00e1 \u00e1 \u00e9g ekki bara vi\u00f0 l\u00f6ngu a-hlj\u00f3\u00f0in, langa, tanga o.s.frv. heldur skilgreini \u00e9g \u00fea\u00f0 a\u00f0 tala vestfirsku, a\u00f0 tala\u00f0 s\u00e9 af \u00e1str\u00ed\u00f0u og innlifun, me\u00f0 sterkum or\u00f0um og r\u00f6kum, t\u00e6pitungulaust og af hreinskilni. \u00deannig tala\u00f0i Gu\u00f0mundur.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hann var fr\u00ed\u00f0ur s\u00fdnum, vel bygg\u00f0ur, me\u00f0 li\u00f0a\u00f0 h\u00e1r, augun l\u00fdstu og g\u00f3\u00f0legur svipurinn skapa\u00f0i traust, r\u00f6ddin var dj\u00fap og sterk, m\u00e1lfari\u00f0 skreytt or\u00f0afor\u00f0a \u00far \u00f6ndvegisritum \u00edslenskrar menningar. Hann var vel mennta\u00f0ur ma\u00f0ur og \u00feekking hans var \u00e1n efa \u00e1 vi\u00f0 margar h\u00e1sk\u00f3lagr\u00e1\u00f0ur.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Gu\u00f0mundur Halld\u00f3rsson var f\u00e6ddur \u00e1 \u00cdsafir\u00f0i 21. jan\u00faar 1933 og l\u00e9st 30. j\u00fan\u00ed 2022. Foreldrar hans voru Halld\u00f3r J\u00f3nsson f\u00e6ddur a\u00f0 Fossum \u00ed Skutulsfir\u00f0i 28. apr\u00edl 1890 og Krist\u00edn Svanhildur Gu\u00f0finnsd\u00f3ttir f\u00e6dd \u00e1 Litlab\u00e6 \u00ed Sk\u00f6tufir\u00f0i 6. desember 1907. \u00deau giftu sig \u00e1ri\u00f0 1928 og bjuggu allan sinn b\u00faskap \u00e1 \u00cdsafir\u00f0i, lengst af \u00ed Hrannarg\u00f6tu 10.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Systkini Gu\u00f0mundar eru: J\u00f3n P\u00e1ll, f. 1929 b\u00fasettur \u00e1 \u00cdsafir\u00f0i, Una f. 1931 d. \u00e1ri\u00f0 2000 h\u00fan var s\u00ed\u00f0ast b\u00fasett \u00ed Reykjav\u00edk, \u00d3lafur Bjarni f. 1936, f\u00f3rst \u00ed b\u00edlslysi 1939, \u00d3lafur Bjarni f. 1944, b\u00fasettur \u00e1 \u00cdsafir\u00f0i.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Gu\u00f0mundur kv\u00e6ntist Dagbj\u00f6rtu Torfad\u00f3ttur fr\u00e1 Drangsnesi \u00e1ri\u00f0 1959 b\u00f6rn \u00feeirra eru:<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">1. Krist\u00edn Svanhildur f. 1954, maki Bj\u00f6rn Kristj\u00e1nsson. \u00deau eiga \u00ferj\u00fa b\u00f6rn Gu\u00f0mund Halld\u00f3r, Gu\u00f0n\u00fdju og J\u00f3n Arnar. Gu\u00f0mundur Halld\u00f3r \u00e1 tv\u00f6 b\u00f6rn.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">2. Torfi f. 1957, maki El\u00edn Marrow Theod\u00f3rsd\u00f3ttir. \u00deau skildu. \u00deau eiga tv\u00f6 b\u00f6rn: Dagbj\u00f6rtu sem \u00e1 tv\u00e6r d\u00e6tur og Kolbr\u00fanu Lilju.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">3. \u00c1sa Mar\u00eda f. 1961, maki \u00d6rn Sm\u00e1ri G\u00edslason. \u00deau skildu. \u00deau eiga \u00ferj\u00fa b\u00f6rn: Hildi Dagbj\u00f6rtu, sem \u00e1 fj\u00f6gur b\u00f6rn, \u00d6rnu Mar\u00edu, sem \u00e1 einn son og Aron \u00d3la, sem \u00e1 einn son.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">4. Gu\u00f0bj\u00f6rn f. 1962, maki Fanney \u00d3sk Hallgr\u00edmsd\u00f3ttir. \u00deau eiga \u00ferj\u00fa b\u00f6rn: S\u00f3leyju D\u00f6gg, sem \u00e1 tvo syni, Teit og L\u00edsu.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">5. \u00d3lafur Bjarni f. 1966, maki Sonja Krist\u00edn Jakobsd\u00f3ttir. \u00deau skildu. \u00deau eiga tvo syni: Arnald og Egil Hrafn.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">6. Halld\u00f3ra f. 1975.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Gu\u00f0mundur lauk meira fiskimannapr\u00f3fi fr\u00e1 Sj\u00f3mannask\u00f3lanum \u00ed Reykjav\u00edk \u00e1ri\u00f0 1957. Hann stunda\u00f0i sj\u00f3 allan sinn starfsferil \u00e1 togurum, b\u00e1tum og trillum \u00e1 me\u00f0an starfsorka leyf\u00f0i.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00cd litlu kveri sem \u00d3lafur Bjarni, br\u00f3\u00f0ir hans skrifa\u00f0i um hann segir m.a.:<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">&#8220;Hann f\u00e6ddist \u00e1 annarri h\u00e6\u00f0 \u00ed h\u00fasinu \u00c1sbyrgi \u00e1 \u00cdsafir\u00f0i en flytur me\u00f0 foreldrum s\u00ednum [&#8230;] og systkinum J\u00f3ni P\u00e1li og Unu \u00ed n\u00fd heimkynni Hrannarg\u00f6tu 10 \u00e1 \u00cdsafir\u00f0i, sem var\u00f0 hans \u00e6skuheimili.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c1 unglings\u00e1rum upplif\u00f0i Gu\u00f0mundur margt. Hann var sveitadrengur \u00ed \u00cdsafjar\u00f0ardj\u00fapi, vegavinnuma\u00f0ur \u00ed Dj\u00fapi, sk\u00e1ti \u00e1 \u00cdsafir\u00f0i, sk\u00ed\u00f0ama\u00f0ur \u00e1 heimsm\u00e6likvar\u00f0a. \u00dear naut hann um t\u00edma lei\u00f0sagnar s\u00e6nsks sk\u00ed\u00f0akennara, Axels Vigstr\u00f6ms. Hann l\u00e9t a\u00f0ra nj\u00f3ta g\u00f3\u00f0s af sinni kunn\u00e1ttu og skipulag\u00f0i fj\u00f6lda sk\u00ed\u00f0am\u00f3ta fyrir ungt f\u00f3lk. Eitt sumar r\u00e9\u00f0i hann sig sem kaupamann a\u00f0 H\u00fasafelli \u00ed Borgarfir\u00f0i. \u00dear hlotna\u00f0ist honum s\u00e1 hei\u00f0ur a\u00f0 bera l\u00e9reft, liti og pensla fyrir einn \u00feekktasta listm\u00e1lara \u00cdslendinga fyrr og s\u00ed\u00f0ar \u00c1sgr\u00edm J\u00f3nson, me\u00f0an hann var a\u00f0 vinna sumar af s\u00ednum \u00f3dau\u00f0legu verkum, \u00ed f\u00f6grum sveitum Borgarfjar\u00f0ar.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00dea\u00f0 er sagt a\u00f0 snemma beygist kr\u00f3kurinn. Gu\u00f0mundur er alinn upp vi\u00f0 sj\u00e1vars\u00ed\u00f0una og eins og Stj\u00e1na bl\u00e1a dreymdi hann ungan skip og sj\u00f3. \u00dea\u00f0 var \u00fev\u00ed upphafi\u00f0 a\u00f0 fimmt\u00edu \u00e1ra sj\u00f3mannsferli sem farma\u00f0ur \u00ed siglingum erlendis en einkum \u00fe\u00f3 fiskima\u00f0ur \u00e1 \u00f6llum tegundum skipa og me\u00f0 \u00feeim vei\u00f0arf\u00e6rum sem \u00feekkjast \u00e1 \u00cdslandi. Sj\u00f3mannsferill hans v\u00e6ri efni \u00ed nokkrar b\u00e6kur. . . .&#8221;<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Gu\u00f0mundur var st\u00f3r \u00ed s\u00ednum tilfinningum, \u00f6rge\u00f0ja og mj\u00f6g virkur. M\u00e1gkona hans sag\u00f0ist aldrei hafa s\u00e9\u00f0 hann rei\u00f0an. \u00d3li br\u00f3\u00f0ir hans sag\u00f0i vi\u00f0 mig: Hann l\u00e6r\u00f0i af Kitta lj\u00fafi a\u00f0 h\u00e6la f\u00f3lki upp \u00ed h\u00e1stert, var upp\u00f6rvandi og hvetjandi ma\u00f0ur sem sag\u00f0i s\u00f6gur me\u00f0 til\u00ferifum.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Nokkru fyrir aldam\u00f3tin hringdi \u00e9g \u00ed Gu\u00f0mund og ba\u00f0 hann a\u00f0 heims\u00e6kja mig \u00ed Gar\u00f0ab\u00e6inn, \u00fear sem \u00e9g bj\u00f3 \u00fe\u00e1, ef hann \u00e6tti lei\u00f0 su\u00f0ur og segja m\u00e9r s\u00f6gur af Kitta lj\u00fafi sem var n\u00e1granni minn \u00ed bernsku \u00e1 \u00cdsafir\u00f0i. \u00c9g kom oft \u00ed har\u00f0fiskhjall hans. Hann var eini fullor\u00f0ni ma\u00f0urin \u00ed hverfinu sem gaf sig a\u00f0 okkur b\u00f6rnunum og spjalla\u00f0i vi\u00f0 okkur me\u00f0 s\u00ednu r\u00edkulega m\u00e1lfari og k\u00edmni. Gu\u00f0mundur sag\u00f0i m\u00e9r s\u00f6gur af honum \u00ed n\u00e6stum klukkut\u00edma og \u00e9g t\u00f3k \u00fea\u00f0 allt upp\u00e1 band. \u00dear var hann \u00ed essinu s\u00ednu. Gu\u00f0mundur var einkar gamansamur og sag\u00f0i margar s\u00f6gur.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hann var m\u00e1lafylgjuma\u00f0ur og kunnur fyrir r\u00e9ttindabar\u00e1ttu fiskimanna, einkum sm\u00e1b\u00e1tasj\u00f3manna. L\u00ednu\u00edvilnun er hans barn og hugsunin a\u00f0 baki hennir hv\u00edldi m.a. \u00e1 umhverfis- og bygg\u00f0asj\u00f3narmi\u00f0um.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00deegar kv\u00f3tinn hvarf \u00far Bolungav\u00edk og fleiri bygg\u00f0arl\u00f6gum \u00e1 Vestfj\u00f6r\u00f0um, efndi hann til borgarafunda og f\u00f3r v\u00ed\u00f0a og r\u00e6ddi lausnir \u00ed atvinnu- og bygg\u00f0am\u00e1lum. \u00cd kj\u00f6lfar \u00feess hlaut hann s\u00e6mdarheiti\u00f0 Vestfir\u00f0ingur \u00e1rsins og var \u00fea\u00f0 ekki eini hei\u00f0urinn sem honum hlotna\u00f0ist \u00e1 \u00e6vinni. Hann var hei\u00f0ursf\u00e9lagi \u00ed Landssambandi sm\u00e1b\u00e1tasj\u00f3manna og Eldingu, sm\u00e1b\u00e1taf\u00e9laginu \u00e1 Vestfj\u00f6r\u00f0um.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hann var sta\u00f0r\u00e1\u00f0inn \u00ed a\u00f0 leita h\u00f3fanna og s\u00e6kja h\u00e6rra og h\u00e6rra. Hann stefndi \u00e1 landsfund Sj\u00e1lfst\u00e6\u00f0isflokksins og \u00fear \u00e6tla\u00f0i hann a\u00f0 efla hag Vestfjar\u00f0a og sj\u00f3manna \u00e1 sv\u00e6\u00f0inu.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hann s\u00e1 til \u00feess a\u00f0 ver\u00f0a kosinn \u00e1 landsfundinn og f\u00f3r \u00e1 fund sj\u00e1var\u00fatvegsnefndar og bar upp till\u00f6gu s\u00edna um breytingar \u00e1 fiskvei\u00f0istj\u00f3rnunarkerfinu.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00cd b\u00f3kinni \u00cdslenskir sj\u00f3menn segir m.a.:<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">&#8220;Menn t\u00f3ku \u00e1g\u00e6tlega vi\u00f0 henni, fulltr\u00faar L\u00cd\u00da ekki m\u00e6ttir. \u00deegar kvisa\u00f0ist \u00fat [&#8230;] hvers konar tillaga v\u00e6ri \u00e1 fer\u00f0inni fr\u00e1 gamla skipstj\u00f3ranum fr\u00e1 Bolungarv\u00edk \u00fe\u00e1 t\u00fdndust [sic] \u00feeir [af] fundi sj\u00e1var\u00fatvegsnefndar Sj\u00e1lfst\u00e6\u00f0isflokksins, mennirnir fr\u00e1 L\u00cd\u00da. \u00deetta var tv\u00f6hundru\u00f0 manna nefnd, e\u00f0a var \u00fea\u00f0 \u00ed \u00fe\u00e1 daga [&#8230;] Gu\u00f0mundur tapa\u00f0i kosningum \u00ed henni, me\u00f0 einu atkv\u00e6\u00f0i.&#8221;<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Gu\u00f0mundur gafst ekki upp vi\u00f0 svo b\u00fai\u00f0. Hann steig \u00ed pontu fyrir framan alla landsfundarfulltr\u00faana, t\u00f3lfhundru\u00f0 manns, me\u00f0 r\u00e1\u00f0herra \u00e1 b\u00e6\u00f0i bak- og stj\u00f3rnbor\u00f0a, sem voru \u00e1 m\u00f3ti till\u00f6gu hans.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hann var r\u00e6\u00f0u- og sagnama\u00f0ur af Gu\u00f0s n\u00e1\u00f0 og tala\u00f0i alv\u00f6ru vestfirsku. \u00c1hugi fundarmanna \u00e1 m\u00e1li hans var me\u00f0 \u00fdmsu m\u00f3ti. \u00dea\u00f0 glamra\u00f0i \u00ed kaffibollum og f\u00f3lk skrafa\u00f0i undir byrjun r\u00e6\u00f0unnar en svo datt \u00e1 d\u00fanalogn og eyrun opnu\u00f0ust. Gu\u00f0mundur flutti m\u00e1l sitt af tr\u00faarhita og me\u00f0 sterkum r\u00f6kum, eins og honum einum var lagi\u00f0, tala\u00f0i sk\u00fdrt og skorinort me\u00f0 sinni sterku r\u00f6dd og \u00fatgeislun allri og hreif svo a\u00f0 hann f\u00e9kk s\u00edna till\u00f6gu sam\u00feykkta vi\u00f0 dynjandi l\u00f3fatak.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Sagt hefur veri\u00f0 a\u00f0 Sj\u00e1lfst\u00e6\u00f0iskonur \u00far Gar\u00f0ab\u00e6, sem h\u00f6f\u00f0u enga reynslu af sj\u00f3mennsku, en kunnu \u00feeim mun meir \u00e1 r\u00e6ktun skrautjurta, k\u00f6kubakstur og kj\u00f3lat\u00edsku. \u00deegar \u00fe\u00e6r heyr\u00f0u \u00feennan vestfirska sj\u00f3mann tala, \u00fe\u00e1 ur\u00f0u \u00fe\u00e6r svo yfirm\u00e1ta hrifnar, kiknu\u00f0u b\u00f3kstaflega \u00ed hnj\u00e1num og kusu allar me\u00f0 till\u00f6gu hans og meirihluti fundarmanna m\u00e1ta\u00f0i \u00fear me\u00f0 sko\u00f0anir r\u00e1\u00f0herranna og karlanna \u00ed L\u00cd\u00da.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Gu\u00f0mundur sag\u00f0i eitt sinn \u00ed bla\u00f0avi\u00f0tali: &#8220;Vi\u00f0 reyndum allt til a\u00f0 vekja athygli \u00e1 m\u00e1lsta\u00f0 okkar, \u00fev\u00ed tilverur\u00e9ttur bygg\u00f0arlaganna var \u00ed h\u00e6ttu. \u00deetta var upp \u00e1 l\u00edf e\u00f0a dau\u00f0a,&#8221; og &#8220;L\u00ednu\u00edvilnunin var lykillinn a\u00f0 n\u00fdrri uppbyggingu h\u00e9r \u00ed pl\u00e1ssinu og hefur skipt sk\u00f6pum fyrir m\u00f6rg minni bygg\u00f0arl\u00f6g.&#8221;<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c1hugi hans \u00e1 velfer\u00f0 bygg\u00f0anna h\u00e9lt allt til enda. \u00cd ma\u00ed s.l. f\u00f3ru \u00feeir br\u00e6\u00f0ur, hann og \u00d3li, \u00ed tv\u00e6r fer\u00f0ir um Su\u00f0urfir\u00f0ina til a\u00f0 kynna s\u00e9r atvinnuuppbyggingu \u00fear og lesa m\u00e1 \u00edtarlega l\u00fdsingu \u00e1 fer\u00f0inni \u00e1 Facebook s\u00ed\u00f0u \u00d3lafs.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Gu\u00f0mundur Halld\u00f3rsson var einstakur ma\u00f0ur en hann var au\u00f0vita\u00f0 eins og vi\u00f0 \u00f6ll, b\u00e6\u00f0i me\u00f0 kosti og galla. Svona er l\u00edfi\u00f0 hj\u00e1 okkur sem erum stundum eins og fiskar \u00e1 \u00feurru landi. En oftast var Gu\u00f0mundur \u00fe\u00f3 sem &#8220;fagur, fagur fiskur \u00ed sj\u00f3&#8221;, sprelllifandi og gla\u00f0ur.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hann var dugma\u00f0ur en gat l\u00edka veri\u00f0 klaufskur og af \u00f6kumannsh\u00e6fileikum hans fer f\u00e1um s\u00f6gum. &#8220;Ekur\u00f0u ekki me\u00f0 gleraugu, afi? spur\u00f0i afastelpa. Nei, \u00e9g geymi \u00feau \u00ed hanskah\u00f3lfinu \u00fev\u00ed \u00e9g man lei\u00f0ina. \u00c9g nota \u00feau n\u00e6st \u00feegar \u00e9g fer \u00ed sj\u00f3nm\u00e6lingu.&#8221;<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Barnab\u00f6rnin s\u00f6g\u00f0u m\u00e9r fr\u00e1 \u00fev\u00ed \u00feegar afi reyndi a\u00f0 kenna \u00feeim \u00f6ll \u00f6rnefni \u00e1 milli \u00cdsafjar\u00f0ar og Reykjav\u00edkur. \u00deau muna tilsv\u00f6r hans og m\u00e1lfar, sk\u00f6tuveislurnar \u00fear sem \u00feau sem vildu fengu pulsu. Honum var einkar annt um barnab\u00f6rnin s\u00edn og spur\u00f0i oft um \u00feau og hann var reyndar miki\u00f0 fyrir b\u00f6rn yfirleitt og \u00e1tti gott me\u00f0 a\u00f0 n\u00e1lgast \u00feau og r\u00e6\u00f0a vi\u00f0 \u00feau.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00deegar \u00feau komu \u00ed heims\u00f3kn til afa ur\u00f0u \u00feau a\u00f0 heilsa upp\u00e1 Lunda sem stendur uppstoppa\u00f0ur \u00e1 b\u00f3kahillunni. Svo t\u00f3k hann \u00feau \u00e1 kn\u00e9 s\u00e9r, h\u00e9lt um hendur \u00feeirra og s\u00f6ng gamlar v\u00edsur.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c9g geri h\u00e9r stutt <strong>hl\u00e9<\/strong> og b\u00fd\u00f0 ykkur a\u00f0 r\u00edsa \u00far s\u00e6tum og taka undir \u00ed s\u00f6ng:<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">R\u00f3um vi\u00f0 til landanna,<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">velbornir menn,<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">t\u00f6kum fast \u00ed \u00e1rarnar<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">og r\u00f3um \u00fat \u00e1 mi\u00f0.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">S\u00e6kjum okkur feitan fisk<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">og fly\u00f0runa vi\u00f0<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">ekk&#8217;er gott a\u00f0 b\u00edtast vi\u00f0<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00fea\u00f0 B\u00e1r\u00f0ar li\u00f0.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">&#8220;F\u00f6\u00f0urland vort h\u00e1lft er hafi\u00f0&#8221;, segir \u00ed sj\u00f3mannas\u00e1lminum fagra sem sunginn ver\u00f0ur eftir minningaror\u00f0in. \u00deau eru svo s\u00f6nn. Vi\u00f0 eigum ekki bara landi\u00f0, heldur l\u00edka hafi\u00f0 og fiskimi\u00f0in, enda \u00fe\u00f3tt \u00feau s\u00e9u um \u00feessar mundir, a\u00f0 hluta til, \u00ed undarlegri g\u00edslingu sem vonandi l\u00fdkur me\u00f0 Gu\u00f0s hj\u00e1lp og lausn.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Gu\u00f0mundur var sannur bardagama\u00f0ur fyrir r\u00e9ttl\u00e6ti. Hann bar\u00f0ist gegn kv\u00f3takerfinu eins og \u00fea\u00f0 er n\u00fana. Au\u00f0vita\u00f0 \u00fearf a\u00f0 vera kv\u00f3takerfi en framsalsheimildin og \u00f3g\u00f6ngur kerfisins eru Al\u00feingi til skammar a\u00f0 m\u00ednu mati og \u00e9g leyfi m\u00e9r a\u00f0 tala h\u00e9r um \u00feetta m\u00e1l \u00e1 minni vestfirsku.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hann bar\u00f0ist l\u00edka fyrir r\u00e9ttindum Halld\u00f3ru d\u00f3ttur sinnar, a\u00f0 h\u00fan fengi a\u00f0 nj\u00f3ta sj\u00e1lfsag\u00f0ra mannr\u00e9ttinda, g\u00e6ti eignast \u00edb\u00fa\u00f0 og b\u00edl og fengi noti\u00f0 alls hins besta.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00cd veikindum D\u00e6ju konu sinnar bar\u00f0ist hann sem hetja fyrir hennar hag.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Sorgin var mikil eftir fr\u00e1fall hennar.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Gu\u00f0mundur kom v\u00ed\u00f0a vi\u00f0 sem sj\u00f3ma\u00f0ur. Hann var \u00e1 sk\u00fatunni Gr\u00f3ttu, kokkur \u00e1 Mumma III hj\u00e1 Agnari gamla, um t\u00edma \u00e1 Bl\u00e1felli, s\u00e6nsku skipi og \u00fear l\u00e6r\u00f0i hann d\u00e1litla s\u00e6nsku. Hann var \u00e1 m\u00f6rgum togurum; Marz, J\u00fapiter, Austfir\u00f0ingi, Nor\u00f0lendingi og \u00edsfirsku togurunum S\u00f3lborgu og \u00cdsborgu. \u00deegar skuttogararnir komu var\u00f0 hann st\u00fdrima\u00f0ur \u00e1 Gu\u00f0bjarti \u00cdS til margra \u00e1ra en var s\u00ed\u00f0an \u00e1 M\u00e1 \u00ed \u00d3lafsv\u00edk. Sj\u00f3mannsferlinum lauk hann \u00e1 tryllunni T\u00f3ta \u00cdS 12 sem s\u00ed\u00f0ar var\u00f0 \u00cdS30.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c9g minnist fr\u00e1sagnar hans \u00ed \u00fatvarps\u00fe\u00e6tti af bj\u00f6rgunara\u00f0ger\u00f0um \u00feegar togarinn Eir\u00edkur rau\u00f0i stranda\u00f0i vi\u00f0 Gr\u00e6nuhl\u00ed\u00f0 \u00e1ri\u00f0 1955. Hann var \u00ed sparif\u00f6tum \u00e1 sunnudegi og r\u00f6lti ni\u00f0ur \u00e1 B\u00e6jarbryggjuna, en \u00e1 \u00feeim t\u00edma \u00e1tti f\u00f3lk a\u00f0eins fr\u00ed \u00e1 sunnud\u00f6gum. \u00dear var veri\u00f0 a\u00f0 smala m\u00f6nnum um bor\u00f0 \u00ed skip, til a\u00f0 fara \u00e1 slyssta\u00f0. Og Gu\u00f0mundur f\u00f3r um bor\u00f0 \u00ed sparif\u00f6tum og f\u00ednum herrask\u00f3m. Fr\u00e1s\u00f6gn hans er m\u00f6gnu\u00f0 og meistaralega fram sett.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">50 \u00e1rum eftir strandi\u00f0 st\u00f3\u00f0 hann fyrir \u00fev\u00ed a\u00f0 kalla saman skipverja sem lif\u00f0u slysi\u00f0 af og bj\u00f6rgunarmenn. Endurfundir \u00feeirra f\u00f3ru fram me\u00f0 pomp og prakt \u00e1 \u00cdsafir\u00f0i.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hann flutti til Drangsness, \u00e6skusl\u00f3\u00f0a Dagbjartar. \u00dear bygg\u00f0u \u00feau h\u00fas og eignu\u00f0ust b\u00e1t. En Adam var ekki lengi \u00ed Parad\u00eds. Gu\u00f0mundur lenti \u00ed skipsska\u00f0a \u00feegar fyrsti b\u00e1turinn sem hann eigna\u00f0ist og ger\u00f0i \u00fat fr\u00e1 Drangsnesi og bar nafn m\u00f3\u00f0ur hans, Krist\u00edn Svanhildur, stranda\u00f0i og hann komst af vi\u00f0 annan mann me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feeim t\u00f3kst a\u00f0 st\u00f6kkva upp \u00e1 klappir. \u00dear s\u00e1tu \u00feeir blautir og kaldir og horf\u00f0u \u00e1 b\u00e1tinn brotna og hverfa \u00ed brimi\u00f0. Gu\u00f0mundur fann ekkert fyrir n\u00edstingskuldanum \u00fev\u00ed hugur hans var vi\u00f0 b\u00e1tinn sem var \u00f3n\u00fdtur og vi\u00f0 framt\u00ed\u00f0ina.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00cd kj\u00f6lfar \u00feess haf\u00f0i hann samband vi\u00f0 m\u00f3\u00f0urbr\u00f3\u00f0ur sinn, Einar Gu\u00f0finnsson, sem var\u00f0 til \u00feess a\u00f0 fj\u00f6lskyldan flutti til Bolungav\u00edkur \u00e1ri\u00f0 1962. \u00dear fengu \u00feau h\u00fasn\u00e6\u00f0i og hann skipsr\u00fam sem st\u00fdrima\u00f0ur. Bolungarv\u00edkur\u00e1rin voru g\u00f3\u00f0ur t\u00edmi og afar k\u00e6rt var me\u00f0 Gu\u00f0mundi og D\u00e6ju og Einari fr\u00e6nda og El\u00edsabetu.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Gu\u00f0mundur st\u00f3\u00f0 m.a. fyrir merku sj\u00f3vinnun\u00e1mskei\u00f0i \u00ed Bolungav\u00edk til a\u00f0 kenna str\u00e1kum vinnubr\u00f6g\u00f0 til sj\u00f3s.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00de\u00e1 m\u00e1 nefna sk\u00ed\u00f0am\u00f3tin sem hann st\u00f3\u00f0 fyrir \u00e1 \u00cdsafir\u00f0i og s\u00ed\u00f0ar \u00ed Bolungav\u00edk og m\u00e9r var sagt a\u00f0 hann hafi veri\u00f0 upphafsma\u00f0ur svonefndar Anr\u00e9sar Andar leika \u00ed Bolungav\u00edk, sem bl\u00f3mstru\u00f0u s\u00ed\u00f0ar \u00e1 Akureyri.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Um t\u00edma kom hann tvisvar \u00ed viku \u00ed Hvestu \u00e1 \u00cdsafir\u00f0i, vinnusta\u00f0 fatla\u00f0ra, \u00fear sem Halld\u00f3ra d\u00f3ttir hans starfar og gladdi f\u00f3lk me\u00f0 n\u00e6rveru sinni.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Ekki er laust vi\u00f0 a\u00f0 \u00e9g hafi fundi\u00f0 fyrir \u00fev\u00ed vi\u00f0 undirb\u00faning \u00feessarar athafnar a\u00f0 b\u00e6\u00f0i Bolv\u00edkingar og \u00cdsfir\u00f0ingar geri tilkall til Gu\u00f0mundar og \u00fea\u00f0 skil \u00e9g vel enda sj\u00e1lfur Bolv\u00edkingur a\u00f0 h\u00e1lfu og f\u00e6ddur og uppalinn \u00e1 \u00cdsafir\u00f0i. Vi\u00f0 skiptum honum bara \u00e1 milli okkar. \u00c9g hef b\u00fai\u00f0 lungann af \u00e6vi minni \u00ed Reykjav\u00edk en borgarb\u00faar b\u00edtast samt ekkert um mig vi\u00f0 Vestfir\u00f0ina!<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Margt hefur \u00e1 daga Gu\u00f0mundar drifi\u00f0 \u00e1 \u00e6vivegi hans. Fyrr var minnst \u00e1 \u00feegar b\u00e1turinn hans brotna\u00f0i. Seinna var\u00f0 hann fyrir \u00fev\u00ed a\u00f0 h\u00e1lsbrotna og \u00fea\u00f0 var eiginlega hreint kraftaverk a\u00f0 hann k\u00e6mist \u00ed gegnum \u00fea\u00f0 og \u00ed \u00fev\u00ed sambandi skipti sk\u00f6pum, \u00e1n efa, \u00feekking og f\u00e6rni Halld\u00f3rs J\u00f3nssonar, fr\u00e6nda hans, b\u00e6klunarskur\u00f0l\u00e6knis.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Til er gamans\u00f6m fr\u00e1s\u00f6gn starfsf\u00f3lks um \u00e1stand Gu\u00f0mundar er hann kom \u00e1 deildina og t\u00f6lu\u00f0u \u00feau um manninn sem hef\u00f0i komi\u00f0 &#8220;me\u00f0 h\u00f6fu\u00f0u\u00f0 undir hendinni.&#8221; L\u00edfskraftur Gu\u00f0mundar var mikill og hann naut endurh\u00e6fingar \u00e1 Grens\u00e1sdeildinni og n\u00e1\u00f0i s\u00e9r undravel. Um \u00e1rabil f\u00f3r hann einnig \u00ed l\u00edkamsr\u00e6kt \u00e1 Sj\u00fakrah\u00fasinu \u00e1 \u00cdsafir\u00f0i og hlakka\u00f0i til hvers t\u00edma \u00fev\u00ed \u00fear hitti hann f\u00f3lk sem hann \u00feekkti og gat spjalla\u00f0 vi\u00f0. B\u00f6rnin hans s\u00f6g\u00f0u vi\u00f0 mig a\u00f0 hann hafi a\u00f0allega veri\u00f0 a\u00f0 s\u00e6kja \u00feanga\u00f0 \u00ed f\u00e9lagsskap. Hann var alla t\u00ed\u00f0 mj\u00f6g f\u00e9lagslyndur og vissi a\u00f0 mikilv\u00e6gt v\u00e6ri a\u00f0 \u00fej\u00e1lfa vel m\u00e1lbeini\u00f0.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hvernig hann komst \u00ed gegnum \u00e1f\u00f6ll og lag\u00f0i sitt af m\u00f6rkum til eflingar r\u00e9ttl\u00e6tis og sanngirni \u00ed \u00fej\u00f3\u00f0f\u00e9laginu, er okkur \u00f6llum hvatning til a\u00f0 horfa \u00e6t\u00ed fram \u00e1 veginn \u00ed tr\u00fa og von. Gu\u00f0mundur \u00f3lst upp vi\u00f0 tr\u00fa sem mi\u00f0la\u00f0 var af m\u00f3\u00f0ur og f\u00f6\u00f0ur, kirkju og sk\u00f3la og samf\u00e9laginu sem sl\u00edku.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Vi\u00f0 \u00cdsfir\u00f0ingar v\u00f6ndumst \u00fev\u00ed margir \u00ed bernsku a\u00f0 fara \u00ed barnamessur \u00ed kirkjunni, \u00e1 samkomur barna \u00ed Salem hj\u00e1 hv\u00edtasunnum\u00f6nnum og \u00e1 Herinn \u00fear sem g\u00edtarar og tamb\u00far\u00ednur st\u00fdr\u00f0u taktf\u00f6stum s\u00f6ng. <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Margur sj\u00f3ma\u00f0urinn er tr\u00faa\u00f0ur \u00ed n\u00e1nd sinni og gl\u00edmu vi\u00f0 hafi\u00f0. Tr\u00fain fylgir mannkyninu og mun gera \u00fea\u00f0 um alla framt\u00ed\u00f0. Tr\u00fain er hluti af l\u00edfinu og efinn l\u00edka. <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">En \u00fev\u00ed er n\u00fa svo fari\u00f0 og hefur \u00e6t\u00ed\u00f0 veri\u00f0 a\u00f0 enginn getur sanna\u00f0 tilvist Gu\u00f0s n\u00e9 afsanna\u00f0, engin gu\u00f0fr\u00e6\u00f0i og engin v\u00edsindi r\u00e1\u00f0a vi\u00f0 \u00fea\u00f0 verkefni og \u00fev\u00ed lifir tr\u00fain og vonin \u00e1 me\u00f0al okkar \u00e1n \u00feess a\u00f0 vera skilgreind \u00ed excelskj\u00f6lum e\u00f0a l\u00f3garitmum \u00fev\u00ed h\u00fan b\u00fdr \u00ed &#8220;brj\u00f3stkirkjunni&#8221; eins og \u00fea\u00f0 er kalla\u00f0i \u00ed \u00cdslensku h\u00f3mil\u00edub\u00f3kinni fr\u00e1 \u00fev\u00ed um 1200, helgid\u00f3mi hjartans. <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">B\u00f3kviti\u00f0, sem er \u00ed h\u00f6f\u00f0i okkar r\u00e6\u00f0ur ekki vi\u00f0 hinar st\u00f3ru spurningar, skilur hvorki \u00f3endanleika n\u00e9 \u00e1st, en brj\u00f3stviti\u00f0 gerir \u00fea\u00f0 og kvi\u00f0viti\u00f0, sem \u00e9g hef kalla\u00f0 svo \u00ed grein minni, Vitst\u00f6\u00f0varnar \u00ferj\u00e1r, \u00fea\u00f0 st\u00fdrir samkennd okkar og \u00e1st til alls sem lifir. . . . <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Vi\u00f0 erum \u00ed \u00feakkarskuld vi\u00f0 l\u00edfi\u00f0, fyrir umheim og n\u00e1tt\u00faru, fyrir fiskinn \u00ed sj\u00f3num og allt sem l\u00edfsanda dregur. L\u00edfi\u00f0 er komi\u00f0 \u00far hafdj\u00fapinu fyrir Gu\u00f0s kraft og svo eru \u00fea\u00f0 \u00f3rav\u00edddir geimsins sem enginn \u00feekkir til fulls nema s\u00e1 alvitri hugur sem er a\u00f0 baki \u00feessu \u00f6llu. Vi\u00f0 erum hluti af einu st\u00f3ru samhengi.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00deessi \u00fatf\u00f6r er sorgarath\u00f6fn en h\u00fan er um lei\u00f0 mikil \u00feakkarh\u00e1t\u00ed\u00f0. Vi\u00f0 kve\u00f0jum m\u00e6tan mann sem marka\u00f0i dj\u00fap spor.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Gu\u00f0 blessi minningu Gu\u00f0mundar Halld\u00f3rssonar og megi Gu\u00f0 blessa \u00feig og lei\u00f0a sem enn ert \u00e1 l\u00edfsveginum.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Amen.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">&#8212;&#8211;<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Kve\u00f0jur:<\/p>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-audio\"><audio controls src=\"https:\/\/pub-c849b6aaf98340c4bec7b480b0f7ffe9.r2.dev\/2022\/07\/gudmundur-halldocc81rsson-1933-2022-kvedjur.m4a\"><\/audio><\/figure>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Fr\u00e1 b\u00f6rnum og tengdab\u00f6rnum \u00d3lafs Bjarna, Sigur\u00f0i P\u00e1li og Hrafnhildi \u00ddr Elvarsd\u00f3ttur \u00ed L\u00e6rdal, Noregi og fr\u00e1 Halld\u00f3ri Karli og Filipu Teles.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Fr\u00e1 d\u00f3ttur Salbjargar, f\u00f3sturd\u00f3ttur \u00d3lafs Bjarna,&nbsp; sem heitir \u00d3sk Mubaraka. H\u00fan var\u00f0 a\u00f0 fara heim vegna Covid 19. H\u00fan \u00feakkar fyrir stu\u00f0ning og hvatningu s.l. vetur. \u00d3sk, Hj\u00e1lmar og fj\u00f6lskylda<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Fr\u00e1 b\u00f6rnum og tengdab\u00f6rnum J\u00f3ns P\u00e1ls Halld\u00f3rssonar:<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Halld\u00f3ri og Mar\u00edu Gu\u00f0nad\u00f3ttur<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Gu\u00f0finnu og Halld\u00f3ri \u00c1rnasyni<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">P\u00e1lma Kristni og J\u00f3h\u00f6nnu J\u00f3hannesd\u00f3ttur.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00deau sakna \u00feess \u00f6ll a\u00f0 eiga ekki \u00feess kost a\u00f0 vera vi\u00f0 ath\u00f6fnina. Gu\u00f0mundur var \u00feeim \u00f6llum mj\u00f6g k\u00e6r.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00der\u00edr sonasynir Einars Gu\u00f0finnssonar senda kve\u00f0ju s\u00edna og &#8220;minnast einl\u00e6grar vin\u00e1ttu og v\u00e6ntum\u00feykju Gu\u00f0mundar fr\u00e6nda s\u00edns \u00ed \u00feeirra gar\u00f0 og st\u00f3rfj\u00f6lskyldunnar allrar. &nbsp;Minnist\u00e6\u00f0 er einst\u00f6k umhyggja \u00feeirra Gu\u00f0mundar og D\u00e6ju vi\u00f0 El\u00edsabetu \u00f6mmu okkar og Einar afa er \u00feau bjuggu h\u00fasinu me\u00f0 \u00feeim og \u00f6nnu\u00f0ust \u00feau og studdu \u00ed daglegu l\u00edfi. &nbsp;\u00dev\u00ed mi\u00f0ur \u00e1ttum vi\u00f0 ekki kost \u00e1 a\u00f0 kve\u00f0ja fr\u00e6nda okkar hinstu kve\u00f0ju h\u00e9r \u00ed dag. &nbsp;Vi\u00f0 sendum a\u00f0standendum okkar innilegustu sam\u00fa\u00f0arkve\u00f0jur.&#8221; Undir \u00feetta rita:<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Einar J\u00f3natansson, Gu\u00f0r\u00fan B. Magn\u00fasd\u00f3ttir, Einar K. Gu\u00f0finnsson, Sigr\u00fan \u00de\u00f3risd\u00f3ttir, G\u00edsli J\u00f3n Hjaltason og Anna Krist\u00edn \u00c1sgeirsd\u00f3ttir.&#8221;<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Svo er h\u00e9r kve\u00f0ja fr\u00e1 Sigur\u00f0i \u00deorleifssyni, samstarfsmanni Gu\u00f0mundar til margra \u00e1ra.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hj\u00f6rtur Torfason, fv. h\u00e6star\u00e9ttard\u00f3mari, sonur Torfa Hjartarsonar, sem var s\u00fdsluma\u00f0ur \u00e1 \u00cdsafir\u00f0i \u00e1\u00f0ur fyrr, ba\u00f0 fyrir kve\u00f0ju til \u00e1stvina Gu\u00f0mundar og sag\u00f0i &#8220;vi\u00f0 Gvendur t\u00f6lu\u00f0um oft saman og \u00f3lumst upp \u00ed Hrannarg\u00f6tunni, \u00e9g \u00e1 nr. 4 og hann \u00e1 nr. 10.&#8221; Hj\u00f6rtur hefur sterkar taugar til \u00cdsafjar\u00f0ar en hann var 3 \u00e1rum yngri en Gu\u00f0mundur og flutti su\u00f0ur 8 \u00e1ra. R\u00f6mm er s\u00fa taug!<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00de\u00e1 senda vinir \u00far &#8220;\u00d3la-kaffi&#8221; k\u00e6rar kve\u00f0jur en \u00fear l\u00e9t hann sig ekki vanta og m\u00e6tti daglega og svo vinirnir \u00ed &#8220;Braga-kaffi.&#8221; Hann hitti l\u00edka karlana \u00ed &#8220;S\u00e9\u00f0 og heyrt&#8221; \u00e1 Ol\u00edsst\u00f6\u00f0inni \u00ed Bolungav\u00edk og \u00e9g veit a\u00f0 hugur allra \u00feessara vina hans er me\u00f0 okkur h\u00e9r \u00ed dag.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Fr\u00e1 Arthuri Bogasyni, formann Landsambands sm\u00e1b\u00e1taeigenda:<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Gu\u00f0mundur Halld\u00f3rsson er ein hjartahl\u00fdasti ma\u00f0ur sem \u00e9g hef kynnst. Ekki einatt \u00fea\u00f0, hann var kempa, bar\u00e1ttuma\u00f0ur fyrir r\u00e9ttl\u00e6ti og \u00feoldi ei \u00f3r\u00e9tt. Einna stoltastur var hann af \u00fe\u00e6tti s\u00ednum \u00ed \u00fev\u00ed a\u00f0 svok\u00f6llu\u00f0 l\u00ednu\u00edvilnun var f\u00e6r\u00f0 \u00ed l\u00f6g. \u00dear l\u00e9k hann a\u00f0alhlutverk, enda kalla\u00f0i \u00e9g hana L\u00ednu\u00edvilnun Gu\u00f0mundard\u00f3ttur.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Blessu\u00f0 s\u00e9 minning \u00feessa g\u00f3\u00f0a drengs.<\/p>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-image size-large\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"2535\" height=\"1772\" src=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2022\/07\/screenshot-2022-07-09-at-15.07.50.png?w=1024\" alt=\"\" class=\"wp-image-3350\" \/><\/figure>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-image size-large\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"2526\" height=\"1799\" src=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2022\/07\/re-sacc81lmaskracc81-gudmundur-halldocc81rsson-1933-2022.png?w=1024\" alt=\"\" class=\"wp-image-3351\" \/><\/figure>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Minningaror\u00f0 +Gu\u00f0mundur Halld\u00f3rsson 1933-2022 Sj\u00f3ma\u00f0ur fr\u00e1 \u00cdsafir\u00f0i, s\u00ed\u00f0ast b\u00fasettur \u00ed Bolungav\u00edk. \u00datf\u00f6r fr\u00e1 \u00cdsafjar\u00f0arkirkju laugardaginn 9. j\u00fal\u00ed 2022. Texti r\u00e6\u00f0unnar og hlj\u00f3\u00f0upptaka eru h\u00e9r fyrir ne\u00f0an. S\u00e1lmaskr\u00e1in er ne\u00f0st og \u00fear \u00e1 undan kve\u00f0jur sem b\u00e1rust.<\/p>\n","protected":false},"author":2,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_jetpack_newsletter_access":"","_jetpack_dont_email_post_to_subs":false,"_jetpack_newsletter_tier_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paywalled_content":false,"_jetpack_hide_featured_image":false,"_jetpack_featured_image_duplicate_dismissed":0,"_jetpack_feature_clip_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":"","jetpack_post_was_ever_published":false},"categories":[7],"tags":[243,254,48,518,602],"class_list":["post-3349","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-minningarord-eulogies","tag-gud","tag-hagsmunir","tag-isafjordur","tag-rettlaeti","tag-stjornmal"],"jetpack_sharing_enabled":true,"jetpack_featured_media_url":"","_links":{"self":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/3349","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/users\/2"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcomments&post=3349"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/3349\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fmedia&parent=3349"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcategories&post=3349"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Ftags&post=3349"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}