{"id":3344,"date":"2022-06-28T19:30:35","date_gmt":"2022-06-28T19:30:35","guid":{"rendered":"http:\/\/ornbardur.com\/2022\/06\/28\/thungunarrof-samkynhneigd-og-kynusli\/"},"modified":"2022-06-28T19:30:35","modified_gmt":"2022-06-28T19:30:35","slug":"thungunarrof-samkynhneigd-og-kynusli","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/ornbardur.com\/?p=3344","title":{"rendered":"\u00deungunarrof, samkynhneig\u00f0 og kynusli"},"content":{"rendered":"\n<!--more-->\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-audio\"><audio controls src=\"https:\/\/pub-c849b6aaf98340c4bec7b480b0f7ffe9.r2.dev\/2022\/06\/thungunarrof-samkynhneigd-og-kynusli.m4a\"><\/audio><\/figure>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hvernig stendur \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 Bandar\u00edkin sn\u00faa vi\u00f0 g\u00f6mlu og fr\u00e6gu m\u00e1li, Roe gegn Wade, um f\u00f3sturey\u00f0ingar e\u00f0a \u00fea\u00f0 sem n\u00fa er gjarnan kalla\u00f0 \u00feungunarrof? Hva\u00f0 veldur \u00feessu ofr\u00edki gegn \u00e1kv\u00f6r\u00f0unarr\u00e9tti f\u00f3lks?<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hvers vegna eru sumar kirkjudeildir, \u00e9g endurtek, sumar, \u00e1 m\u00f3ti \u00fev\u00ed a\u00f0 f\u00f3lk nj\u00f3ti \u00feeirra sj\u00e1lfs\u00f6g\u00f0u mannr\u00e9ttinda a\u00f0 r\u00e1\u00f0a s\u00ednum m\u00e1lum?<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hva\u00f0 veldur \u00fev\u00ed a\u00f0 sumar kirkjudeildir hafa gert kynl\u00edf og allt sem \u00fev\u00ed tengist, n\u00e6stum a\u00f0 gl\u00e6pi og synd? \u00cd flestum tilfellum er um a\u00f0 r\u00e6\u00f0a bandar\u00edska s\u00f6fnu\u00f0i \u00far r\u00f6\u00f0um svokalla\u00f0ra baptista e\u00f0a endursk\u00edrenda. \u00deetta eru \u00ed flestum tilfellum litlir s\u00f6fnu\u00f0ir e\u00f0a fr\u00edkirkjur me\u00f0 presta og pr\u00e9dikara sem ekki hafa loki\u00f0 akadem\u00edsku gu\u00f0fr\u00e6\u00f0in\u00e1mi heldur a\u00f0eins \u00fej\u00e1lfun \u00ed sk\u00f3lum sem \u00feeir sj\u00e1lfir reka og \u00fear sem \u00feess er g\u00e6tt a\u00f0 ekki s\u00e9 viki\u00f0 fr\u00e1 b\u00f3kstafstr\u00fa og afturhaldsgu\u00f0fr\u00e6\u00f0i. \u00dea\u00f0 er synd.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">En svo eru st\u00f3ru kirkjudeildirnar, ka\u00fe\u00f3lska kirkjan me\u00f0 p\u00e1fann \u00ed R\u00f3m og r\u00e9ttr\u00fana\u00f0arkirkjurnar me\u00f0 s\u00edna patr\u00edarka \u00ed Konstantin\u00f3pel og Moskvu, \u00fe\u00e6r eru ekkert betri \u00ed \u00feessum efnum, \u00fer\u00e1tt fyrir akadem\u00edska gu\u00f0fr\u00e6\u00f0i. L\u00edfi\u00f0 er stundum m\u00f3tsagnarkennt.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">En l\u00fathersku \u00fej\u00f3\u00f0kirkjurnar \u00e1 Nor\u00f0url\u00f6ndum og \u00fear me\u00f0 \u00cdslandi eru b\u00fanar a\u00f0 vinna sig \u00ed gegnum \u00feetta m\u00e1l og komast a\u00f0 sanngjarnri og k\u00e6rleiksr\u00edkri ni\u00f0urst\u00f6\u00f0u.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Eigum vi\u00f0 a\u00f0 sko\u00f0a or\u00f0i\u00f0 synd \u00ed N\u00fdja testamentinu?<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hva\u00f0 merkir or\u00f0i synd \u00e1 gr\u00edsku sem NT var rita\u00f0 \u00e1?<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Or\u00f0i\u00f0 synd er \u00e1 gr\u00edsku <em>hamartia,<\/em> sem merkir a\u00f0 missa marks e\u00f0a geiga. \u00de\u00fa setur \u00f6r \u00e1 streng og mi\u00f0ar \u00e1 skotsk\u00edfuna, en \u00fe\u00fa missir marks. Knattspyrnuma\u00f0urinn tekur v\u00edtaspyrnu og brennir af. Kylfingurinn sl\u00e6r til vinstri e\u00f0a h\u00e6gri, h\u00fakkar e\u00f0a sl\u00e6sar, en sl\u00e6r sjaldan beint.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00deetta er syndin \u00ed sinni frummerkingu, okkur mistekst svo margt. H\u00fan er geigun, brotal\u00f6m, sem er \u00ed \u00f6llum m\u00f6nnum, konum og k\u00f6rlum og vi\u00f0 losnum aldrei vi\u00f0.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Fyrsti b\u00edllinn sem \u00e9g eigna\u00f0ist var af s\u00e6nskri ger\u00f0, en \u00e9g gef ekki upp framlei\u00f0andann. \u00c9g keypti hann nota\u00f0an, en \u00feetta var syndugur b\u00edll. Syndin kom fram \u00ed \u00fev\u00ed a\u00f0 hlaup var \u00ed st\u00fdri sem ger\u00f0i \u00fea\u00f0 a\u00f0 verkum a\u00f0 b\u00edllinn leita\u00f0i st\u00f6\u00f0ugt \u00fat af veginum. Mitt hlutverk var a\u00f0 halda b\u00edlnum \u00e1 veginum.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Seinna eftir a\u00f0 \u00e9g l\u00e6r\u00f0i gu\u00f0fr\u00e6\u00f0i komst \u00e9g a\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00ed m\u00e9r sj\u00e1lfum er sama tilhneiging, a\u00f0 fara \u00fat af veginum. Mitt hlutverk er a\u00f0 st\u00fdra m\u00ednu eigin l\u00edfi og halda mig \u00e1 veginum og g\u00e6ta \u00feess a\u00f0 aka ekki \u00fat \u00ed skur\u00f0.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hvers vegna er kynl\u00edf or\u00f0i\u00f0 a\u00f0 einhverskonar meginhugtaki um \u00fea\u00f0 sem kalla\u00f0 er synd. Kynl\u00edf er ein fegursta gj\u00f6f sem Gu\u00f0 hefur gefi\u00f0 sk\u00f6pun sinni. Allar l\u00edfverur stunda kynl\u00edf \u00ed einni e\u00f0a annarri mynd. Er \u00fea\u00f0 synd? Nei, au\u00f0vita\u00f0 ekki, svo fremi a\u00f0 ofbeldi annars a\u00f0ilans gegn hinum s\u00e9 ekki til sta\u00f0ar.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00deegar \u00e9g vann sem prestur \u00ed Noregi var \u00e9g stundum spur\u00f0ur hvort \u00cdslendingar v\u00e6ru ekki fremur fj\u00e1lslyndir \u00feegar k\u00e6mi a\u00f0 kynl\u00edfi og barneignum fyrir hj\u00f3naband. \u00c9g svara\u00f0i eitthva\u00f0 \u00e1 \u00fe\u00e1 lei\u00f0 a\u00f0 vi\u00f0 v\u00e6rum ekki miki\u00f0 a\u00f0 skipta okkur af k\u00e6rleikanum og \u00e1stinni, sem f\u00e6ri s\u00ednu fram og rynni eins og l\u00e6kurinn, sem \u00e6t\u00ed\u00f0 finnur s\u00e9r farveg. Dr. Bj\u00f6rn heitinn Bj\u00f6rnsson, pr\u00f3fessor \u00ed si\u00f0fr\u00e6\u00f0i, skrifa\u00f0i doktorsritger\u00f0i s\u00edna \u00ed Skotlandi og rannsaka\u00f0i hj\u00f3nabandi\u00f0 \u00e1 \u00cdslandi. Hann komst m.a. a\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 fyrsta barn foreldra var oftar en ekki f\u00e6tt utan hj\u00f3nabands en anna\u00f0 barni\u00f0 innan. \u00deetta var og er kannski enn hi\u00f0 \u00edslenska munstur. F\u00f3lk kynnist, ver\u00f0ur \u00e1stfangi\u00f0, eignast barn og giftir sig svo \u00feegar anna\u00f0 barni\u00f0 er komi\u00f0 undir.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Og n\u00fa erum vi\u00f0 komin a\u00f0 \u00feeim t\u00edmapunkti \u00ed s\u00f6gunni a\u00f0 eitt af hinum st\u00f3ru l\u00fd\u00f0r\u00e6\u00f0isr\u00edkjum \u00ed heiminum, Bandar\u00edkin, bakkar \u00e1ratugi aftur \u00ed t\u00edmann og vill endurvekja e\u00f0a banna konum a\u00f0 gangast undir \u00feungunarrof.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Au\u00f0vita\u00f0 er f\u00f3sturey\u00f0ing e\u00f0a \u00feungunarrof ey\u00f0ing \u00e1 m\u00f6gulegu l\u00edfi. Sl\u00edkt er ekki l\u00e9ttv\u00e6g \u00e1kv\u00f6r\u00f0un konu e\u00f0a foreldra, en eigi a\u00f0 s\u00ed\u00f0ur ver\u00f0ur a\u00f0 vir\u00f0a vilja konunnar um yfirr\u00e1\u00f0 yfir eigin l\u00edkama.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">L\u00e6knisfr\u00e6\u00f0inni fleygir fram og vi\u00f0 munum sem mannkyn \u00e6t\u00ed\u00f0 fara eins langt og v\u00edsindin leyfa, me\u00f0 \u00feekkingu sinni og uppg\u00f6tvunum, en \u00fe\u00f3 me\u00f0 einhverri hli\u00f0sj\u00f3n af si\u00f0fr\u00e6\u00f0i og r\u00e9ttl\u00e6ti.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">A\u00f0 leggjast gegn vilja kvenna \u00ed \u00feessum efnum er ekki bo\u00f0legt. A\u00f0 r\u00e1\u00f0ast gegn f\u00f3lki sem er samkynhneigt e\u00f0a leitar eftir kynlei\u00f0r\u00e9ttingu er l\u00edka \u00f3bo\u00f0legt. \u00dea\u00f0 er \u00ed raun ofr\u00edki sem er n\u00e1kskylt or\u00f0inu fasismi sem er reyndar ofnota\u00f0 or\u00f0 n\u00fa um stundir en samt finnst m\u00e9r a\u00f0 \u00fea\u00f0 eigi vi\u00f0 \u00ed \u00feessu samhengi. Hvers vegna viljum svo m\u00f6rg beita a\u00f0ra \u00f3r\u00e9tti og me\u00f0 ford\u00f3mum veitast a\u00f0 \u00feeim og sj\u00e1lfs\u00e1kv\u00f6r\u00f0unarr\u00e9tti \u00feeirra? Er \u00fea\u00f0 \u00ed lagi?<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Er \u00ed lagi a\u00f0 banna konum a\u00f0 r\u00e1\u00f0a yfir l\u00edkama s\u00ednum? Er \u00ed lagi a\u00f0 veitast a\u00f0 \u00feeim sem finna sig ekki sem hann e\u00f0a h\u00fan.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Nei, \u00fea\u00f0 er ofr\u00edki e\u00f0a fasismi a\u00f0 neita f\u00f3lki um sj\u00e1lfs\u00e1kv\u00f6\u00f0unarr\u00e9tt \u00ed fyrrgreindum tilfellum.<\/p>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-image size-large\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"562\" height=\"334\" src=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2022\/06\/img_1484.jpg?w=562\" alt=\"\" class=\"wp-image-3345\" \/><figcaption>Jes\u00fas skrifar \u00ed sandinn.<\/figcaption><\/figure>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Gy\u00f0ingar \u00e1ttu sitt l\u00f6gm\u00e1l \u00e1 d\u00f6gum Jes\u00fa og komu me\u00f0 h\u00f3rseka konu til hans og s\u00f6g\u00f0ust hafa sta\u00f0i\u00f0 hana a\u00f0 verki. L\u00f6gm\u00e1l \u00feeirra sag\u00f0i a\u00f0 gr\u00fdta \u00e6tti sl\u00edka konu. \u00cdslendingar drekktu \u00feeim fyrr \u00e1 \u00f6ldum og t\u00f3ku \u00fear me\u00f0 ekki mi\u00f0 af dj\u00fapum skilningi Jes\u00fa \u00e1 elsku og miskunn \u00ed gar\u00f0 n\u00e1ungans.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">En hva\u00f0 ger\u00f0i Jes\u00fas? Hvernig svara\u00f0i hann spurningu hatursfullu karlanna? Hann laut ni\u00f0ur og skrifa\u00f0i \u00ed sandinn eitthva\u00f0 sem enginn veit hva\u00f0 var en sag\u00f0i svo:<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u201eS\u00e1 ykkar sem syndlaus er kasti fyrstur steini \u00e1 hana.\u201c Og aftur laut hann ni\u00f0ur og skrifa\u00f0i \u00e1 j\u00f6r\u00f0ina. \u00deegar \u00feeir heyr\u00f0u \u00feetta f\u00f3ru \u00feeir burt, einn af \u00f6\u00f0rum, \u00f6ldungarnir fyrstir. Jes\u00fas var einn eftir og konan st\u00f3\u00f0 \u00ed s\u00f6mu sporum. Hann r\u00e9tti sig upp og sag\u00f0i vi\u00f0 hana: \u201eKona, hva\u00f0 var\u00f0 af \u00feeim? Sakfelldi enginn \u00feig?\u201c En h\u00fan sag\u00f0i: \u201eEnginn, Drottinn.\u201c Jes\u00fas m\u00e6lti: \u201e\u00c9g sakfelli \u00feig ekki heldur. Far \u00fe\u00fa. Syndga ekki framar.\u201c (J\u00f3h 8)<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hann v\u00edsar til syndar og \u00fear \u00e1tti hann kannski vi\u00f0 a\u00f0 h\u00fan \u00e6tti a\u00f0 vir\u00f0a sj\u00e1lfa sig og l\u00e1ta eigi l\u00edtill\u00e6kka sig \u00ed samskiptum vi\u00f0 a\u00f0ra, einkum karla.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hvers vegna viljum vi\u00f0 beita anna\u00f0 f\u00f3lk ofr\u00edki, taka fr\u00e1 \u00fev\u00ed sj\u00e1lf\u00e1kv\u00f6r\u00f0unarr\u00e9ttinn, beita k\u00fagum og ofbeldi til a\u00f0 n\u00e6ra eigin ford\u00f3ma?<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Ford\u00f3mar eru eins og illgresi sem sk\u00fdtur r\u00f3tum \u00ed huga okkar. Illgresi\u00f0 berst me\u00f0 vindinum og r\u00e6tir sig \u00e1\u00f0ur en vi\u00f0 gerum okkur grein fyrir \u00fev\u00ed. Hlutverk okkar er a\u00f0 uppr\u00e6ta illgresi\u00f0 \u00far be\u00f0um hugans, alla daga og \u00fev\u00ed starfi l\u00fdkur aldrei. Ford\u00f3marnir eru eins og sk\u00f3garkerfillinn sem er a\u00f0 taka yfir gr\u00f3\u00f0ur v\u00ed\u00f0a um land. Syndin, brotal\u00f6min \u00ed l\u00edfi okkar, veldur \u00fev\u00ed a\u00f0 fr\u00e6 ford\u00f3ma n\u00e1 a\u00f0 r\u00f3tfestast og vaxa \u00ed huga okkar og hjarta. \u00dea\u00f0 er synd og hana \u00fearf a\u00f0 gl\u00edma vi\u00f0 alla \u00e6vina, uppr\u00e6ta illgresi\u00f0 \u00far eigin hugarfylgsnum. Vi\u00f0 erum \u00f6ll me\u00f0 einhverja ford\u00f3ma, \u00e1 \u00f6llum t\u00edmum.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Verum \u00e1 ver\u00f0i! For\u00f0umst ford\u00f3ma! Leyfum f\u00f3lki a\u00f0 lifa \u00e1 \u00feann h\u00e1tt sem \u00fea\u00f0 telur r\u00edma best vi\u00f0 eigin upplifun og skilning \u00e1 s\u00ednum hneig\u00f0um.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">&#8220;Elska skaltu n\u00e1ungann eins og sj\u00e1lfan \u00feig&#8221;, sag\u00f0i Jes\u00fas. Hann sag\u00f0i &#8220;skaltu&#8221; sem merkir a\u00f0 elskan er ekki tilfinning, heldur \u00e1kv\u00f6r\u00f0un, gj\u00f6r\u00f0, verkna\u00f0ur, h\u00fan er \u00e1 okkar valdi. Ef elskan v\u00e6ri tilfinning hef\u00f0i hann aldrei sagt &#8220;elska skaltu&#8221; \u00fev\u00ed \u00fe\u00e1 hef\u00f0i hann \u00feurft a\u00f0 segja: elska\u00f0u n\u00e1ungann \u00feegar \u00fe\u00e9r l\u00ed\u00f0ur \u00feannig a\u00f0 \u00fe\u00fa viljir n\u00e1unganum vel.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00dea\u00f0 er allt anna\u00f0 en \u00fea\u00f0 sem Jes\u00fas sag\u00f0i og meinti.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Elskan er nefnilega \u00e1 \u00fe\u00ednu valdi!<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Greinin birtist \u00ed Kjarnanum 28. j\u00fan\u00ed 2022 en er n\u00fa einnig birt h\u00e9r \u00e1samt hlj\u00f3\u00f0uppt\u00f6ku.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"","protected":false},"author":2,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_jetpack_newsletter_access":"","_jetpack_dont_email_post_to_subs":false,"_jetpack_newsletter_tier_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paywalled_content":false,"_jetpack_hide_featured_image":false,"_jetpack_featured_image_duplicate_dismissed":0,"_jetpack_feature_clip_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":"","jetpack_post_was_ever_published":false},"categories":[4],"tags":[246,333,518,557,640],"class_list":["post-3344","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-greinar-og-hugvekjur-articles","tag-gudfraedi","tag-jesus","tag-rettlaeti","tag-sidferdi","tag-tru"],"jetpack_sharing_enabled":true,"jetpack_featured_media_url":"","_links":{"self":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/3344","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/users\/2"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcomments&post=3344"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/3344\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fmedia&parent=3344"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcategories&post=3344"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Ftags&post=3344"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}