{"id":3310,"date":"2022-06-21T15:40:58","date_gmt":"2022-06-21T15:40:58","guid":{"rendered":"http:\/\/ornbardur.com\/2022\/06\/21\/minningarord-sigurdur-oddsson-1944-2022\/"},"modified":"2022-06-21T15:40:58","modified_gmt":"2022-06-21T15:40:58","slug":"minningarord-sigurdur-oddsson-1944-2022","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/ornbardur.com\/?p=3310","title":{"rendered":"+Sigur\u00f0ur Oddsson 1944-2022"},"content":{"rendered":"\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>Sigur\u00f0ur Oddsson<\/strong><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">1944-2022<\/p>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-image size-large\"><img decoding=\"async\" src=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2022\/06\/img_1470-1.jpg?w=1024\" alt=\"\" class=\"wp-image-3306\" \/><\/figure>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">byggingat\u00e6knifr\u00e6\u00f0ingur<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">fr\u00e1 \u00cdsafir\u00f0i<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00datf\u00f6r fr\u00e1 Digraneskirkju<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00feri\u00f0judaginn 21. j\u00fan\u00ed 2020 kl. 13<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">S\u00e1lmaskr\u00e1in er ne\u00f0anm\u00e1ls.<\/p>\n\n\n\n<!--more-->\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-audio\"><audio controls src=\"https:\/\/pub-c849b6aaf98340c4bec7b480b0f7ffe9.r2.dev\/2022\/06\/sigurdur-oddsson-1944-2022.m4a\"><\/audio><\/figure>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Um \u00e1rabil haf\u00f0i \u00e9g texta \u00far Gamla testamentinu sem einkunnaror\u00f0 \u00e1 heimas\u00ed\u00f0u minni. \u00deau eru \u00far sp\u00e1d\u00f3msb\u00f3k Jesaja og eru talin ritu\u00f0 um 550 \u00e1rum f.Kr. og hlj\u00f3\u00f0a svo:<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">&#8220;Leggi\u00f0 braut, leggi\u00f0 braut, geri\u00f0 veginn grei\u00f0an,<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">ry\u00f0ji\u00f0 hindrunum \u00far vegi \u00fej\u00f3\u00f0ar minnar.&#8221; (Jesaja 57.14)<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00deegar Sigur\u00f0ur Oddsson og Hrefna voru a\u00f0 alast upp \u00e1 \u00cdsafir\u00f0i var b\u00e6rinn ekki \u00ed vegasambandi vi\u00f0 a\u00f0ra landshluta. J\u00e1, \u00e9g er ekki a\u00f0 \u00fdkja. Su\u00f0urlei\u00f0in var ekki or\u00f0in til en unnt var a\u00f0 ferja b\u00edl innst inn \u00ed \u00cdsafja\u00f0ardj\u00fap me\u00f0 Fagranesinu og skr\u00f6nglast \u00fea\u00f0an yfir kr\u00e1kust\u00edga, yfir Vestfjar\u00f0akj\u00e1lkann, um Bar\u00f0astr\u00f6nd, Dalina, Borgarfj\u00f6r\u00f0 og Hvalfj\u00f6r\u00f0, su\u00f0ur til Reykjav\u00edkur, sem t\u00f3k allan daginn fr\u00e1 morgni til kv\u00f6lds ef ekki sprakk \u00e1 hj\u00f3li e\u00f0a p\u00fastkerfi\u00f0 f\u00f3r undan b\u00edlnum. Sumssta\u00f0ar, eins og \u00e1 \u00deingmannahei\u00f0inni, var eki\u00f0 \u00e1 berum kl\u00f6ppum og margar sm\u00e6rri \u00e1r voru \u00f3br\u00faa\u00f0ar og mesta skemmtun m\u00edn sem drengs var a\u00f0 f\u00e1 a\u00f0 fara \u00fat \u00far b\u00edlnum hj\u00e1 pabba og m\u00f6mmu af og til og opna sau\u00f0fj\u00e1rveikivarnarhli\u00f0 og loka aftur. \u00dea\u00f0 var g\u00f3\u00f0 l\u00e6kning vi\u00f0 b\u00edlveiki en \u00ed \u00fe\u00e1 daga fylltust b\u00edlar af ryki \u00e1 \u00feurrum vegum og vindlareykur pabba blanda\u00f0ist \u00ed m\u00f6kkinn. \u00deegar komi\u00f0 var efst \u00ed \u00c1rt\u00fansbrekkuna t\u00f3k vi\u00f0 malbika\u00f0ur kafli og \u00fe\u00e1 hlj\u00f3\u00f0na\u00f0i malarvegaglamri\u00f0 og allt var\u00f0 eins og \u00ed d\u00e1samlegum, hlj\u00f3\u00f0um draumi.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">M\u00e9r komu \u00feessi or\u00f0 \u00ed hug \u00feegar \u00e9g byrja\u00f0i a\u00f0 rita \u00feessi minningaror\u00f0 yfir sveitunga m\u00ednum, Sigur\u00f0i Oddssyni, sem helga\u00f0i l\u00edf sitt vegager\u00f0, a\u00f0 ry\u00f0ja \u00fej\u00f3\u00f0inni lei\u00f0 um erfitt land.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Sigur\u00f0ur Oddsson f\u00e6ddist \u00e1 \u00cdsafir\u00f0i 13. september 1944. Hann l\u00e9st \u00e1 hj\u00fakrunarheimilinu Sunnuhl\u00ed\u00f0 \u00ed K\u00f3pavogi 4. j\u00fan\u00ed 2022.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Foreldrar Sigur\u00f0ar voru Oddur Oddsson bakari (f\u00e6ddur 10.04.1913, d\u00e1inn 18.10.1998) og Sigr\u00fan \u00c1rnad\u00f3ttir, h\u00fasfreyja (f\u00e6dd 15.11.1914, d\u00e1in 21.06.2004).<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Systir Sigur\u00f0ar, r\u00famum tveimur \u00e1rum eldri, er \u00c1rn\u00fd Herborg Oddsd\u00f3ttir, (f. 02.01.1942), eiginma\u00f0ur hennar er Kristj\u00e1n Fri\u00f0bj\u00f6rnsson (f. 02.05.1942).<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Oddur bakari var fa\u00f0ir hans jafnan kalla\u00f0ur en \u00e1 m\u00ednum unglings\u00e1rum var hann Oddur l\u00f6gga. Svo hleypti hann af og til inn \u00ed b\u00ed\u00f3 og reif stofnana af mi\u00f0unum hj\u00e1 okkur. Vinur minn og n\u00e1granni Odds komst a\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 Oddur t\u00e6mdi stofnana \u00far jakkavasanum \u00ed \u00f6skutunnuna heima. Hann n\u00e1\u00f0i \u00ed stofna, b\u00e6\u00f0i bleika, bl\u00e1a og hv\u00edta og ef vi\u00f0 \u00e1ttum mi\u00f0a \u00ed sama lit \u00fe\u00e1 var h\u00e6gt a\u00f0 festa stofninn vi\u00f0 gamlan mi\u00f0a og svindla s\u00e9r aftur \u00ed b\u00ed\u00f3. En \u00feetta var n\u00fa a\u00f0 mig minnir bara gert einu sinni og syndin s\u00fa er h\u00e9r me\u00f0 j\u00e1tu\u00f0 \u00ed h\u00fasi Drottins og \u00ed \u00e1heyrn ykkar!<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00cdsafj\u00f6r\u00f0ur var \u00feegar or\u00f0inn myndarlegur b\u00e6r \u00e1 5. \u00e1ratugi li\u00f0innar aldar. \u00dear h\u00f6f\u00f0u veri\u00f0 reistar byggingar sem enn standa sem merkir minnisvar\u00f0ar um st\u00f3rhug b\u00e6jarb\u00faa, h\u00fas sem enn eru \u00ed notkun, m\u00e1 \u00fear nefna Sj\u00fakrah\u00fasi\u00f0 fagra sem byggt var upp\u00far 1920, og nokkru s\u00ed\u00f0ar, Al\u00fe\u00fd\u00f0uh\u00fasi\u00f0 og h\u00fasin \u00ferj\u00fa vi\u00f0 Austurveg: Sundh\u00f6llin og \u00ed\u00fer\u00f3ttah\u00fasi\u00f0, Gagnfr\u00e6\u00f0ask\u00f3linn og H\u00fasm\u00e6\u00f0rask\u00f3linn \u00d3sk sem n\u00fa h\u00fdsir T\u00f3nlistarsk\u00f3la \u00cdsafjar\u00f0ar, \u00fe\u00e1 merku stofnun. B\u00e6rinn skarta\u00f0i verslunarg\u00f6tu og gerir enn, sem minnir \u00e1 borgir og b\u00e6i \u00ed Danm\u00f6rku og \u00de\u00fdskalandi millistr\u00ed\u00f0s\u00e1ranna.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00dea\u00f0 var gaman a\u00f0 alast upp \u00e1 \u00cdsafir\u00f0i &#8211; \u00cd fa\u00f0mi fjalla bl\u00e1rra. \u00c1rgangar barna \u00ed \u00feessum b\u00e6 sem taldi r\u00famlega 2000 \u00edb\u00faa voru st\u00f3rir \u00ed \u00fe\u00e1 daga. \u00c1rgangurinn minn f. 1949 var r\u00fam 60 b\u00f6rn. Pillan haf\u00f0i nefnilega ekki veri\u00f0 fundin upp! J\u00e1, \u00e1stin dafna\u00f0i milli fjallanna fyrir vestan og b\u00f6rnin uxu \u00far grasi, ur\u00f0u unglingar sem fundu \u00e1stina.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c1ri\u00f0 1964 \u00feann 3. okt\u00f3ber kv\u00e6ntist Sigur\u00f0ur, Hrefnu Krist\u00ednu Hrafnsd\u00f3ttur Hagal\u00edn f. 21.05.1942. \u00deau voru n\u00e1grannar. H\u00fan var tveimur \u00e1rum eldri en hann, en Siggi var h\u00e1r og myndarlegur og virtist eldri en hann var, beinn \u00ed baki, st\u00f3r og st\u00e6\u00f0ilegur str\u00e1kur. \u00c9g man hva\u00f0 m\u00e9r \u00fe\u00f3tti \u00feau fallegt par en \u00e9g var \u00e1 fermingaraldri er \u00feau voru a\u00f0 draga sig saman.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">B\u00f6rn \u00feeirra eru:<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">1) Oddur f. 18.01.1965, eiginkona hans er Gu\u00f0bj\u00f6rg Br\u00e1 G\u00edslad\u00f3ttir (f. 11.04.1978). B\u00f6rn \u00feeirra eru Alfa Br\u00e1, Hrafn og Yrsa. \u00c1\u00f0ur \u00e1tti Oddur b\u00f6rnin Sigur\u00f0, R\u00fanu og Maren. Sigur\u00f0ur er kv\u00e6ntur \u00d6nnu L\u00f6llu Patay og synir \u00feeirra eru Marin\u00f3 og Le\u00f3.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">2) Krist\u00edn f. 05.06.1968 eiginma\u00f0ur hennar er Einar Gar\u00f0ar Hjaltason (f. 21.01.1955) \u00feeirra b\u00f6rn eru Viktor M\u00e1ni og Hrafnhildur Eva. \u00c1\u00f0ur \u00e1tti Einar b\u00f6rnin Hjalta, Eddu Katr\u00ednu og Kolbein sem er l\u00e1tinn.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">3) Arna Sigr\u00fan f. 16.01.1970 eiginma\u00f0ur hennar er Fjalar Sigur\u00f0arson (f. 27.01.1964). B\u00f6rn \u00feeirra eru Helga Rakel og Sigur\u00f0ur Patrik. \u00c1\u00f0ur \u00e1tti Arna d\u00f3tturina Hrefnu Hagal\u00edn, samb\u00fdlisma\u00f0ur hennar er Ingi L\u00e1russon, d\u00e6tur \u00feeirra eru Hei\u00f0a \u00cdsey og Milla S\u00f3ley. \u00c1\u00f0ur \u00e1tti Fjalar soninn Atla \u00d3skar.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Sigur\u00f0ur \u00f3lst upp \u00e1 \u00cdsafir\u00f0i. Eftir hef\u00f0bundna sk\u00f3lag\u00f6ngu f\u00f3r hann \u00ed I\u00f0nsk\u00f3lann \u00e1 \u00cdsafir\u00f0i og l\u00e6r\u00f0i netager\u00f0 hj\u00e1 Netager\u00f0 Vestfjar\u00f0a. Vann hann vi\u00f0 \u00fea\u00f0 \u00ed nokkur \u00e1r.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00de\u00e1 setti hann k\u00farsinn \u00e1 a\u00f0 ry\u00f0ja vegi um landi\u00f0 \u00fe\u00f3 hann vissi \u00fea\u00f0 kannski ekki \u00fe\u00e1 a\u00f0 n\u00e1mi\u00f0 framundan mundi einmitt lei\u00f0a hann inn \u00e1 \u00fe\u00e1 vegu. Hann dreif sig til Noregs \u00ed t\u00e6knisk\u00f3la og l\u00e6r\u00f0i byggingat\u00e6knifr\u00e6\u00f0i sem hann lauk vi\u00f0 vori\u00f0 1971. Var hann \u00fe\u00e1 b\u00fainn a\u00f0 r\u00e1\u00f0a sig hj\u00e1 Vegager\u00f0 r\u00edkisins \u00e1 Akureyri. Vann \u00fear til \u00e1rsins 2008. Var me\u00f0 sj\u00e1lfst\u00e6\u00f0an rekstur eftir \u00fea\u00f0, e\u00f0a \u00fear til hann veiktist \u00ed mars 2010. &nbsp;<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">M\u00e9r \u00fe\u00f3tti gaman a\u00f0 heyra a\u00f0 Sigur\u00f0ur og Hrefna \u00e1samt b\u00f6rnum s\u00ednum hef\u00f0u b\u00fai\u00f0 \u00e1 sama sv\u00e6\u00f0i \u00ed Noregi og \u00e9g \u00fej\u00f3na\u00f0i \u00e1 s\u00ed\u00f0ar sem prestur innan norsku kirkjunnar um 5 \u00e1ra skei\u00f0. \u00deau bjuggu \u00ed Gj\u00f6vik og \u00feanga\u00f0 kom \u00e9g oft.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Sigur\u00f0ur var kraftmikill einstaklingur og l\u00e9t v\u00ed\u00f0a um sig muna. Hann var \u00f6tull \u00ed f\u00e9lagsm\u00e1lum, var m.a. forma\u00f0ur \u00ed\u00fer\u00f3ttaf\u00e9lagsins \u00de\u00f3rs 1980-1984, var ger\u00f0ur a\u00f0 hei\u00f0ursf\u00e9laga \u00fear \u00e1ri\u00f0 2020 og \u00e9g s\u00e1 flotta mynd af honum \u00e1 netinu me\u00f0 hei\u00f0ursmerki\u00f0. Sigur\u00f0ur gekk \u00ed Oddfellowregluna \u00e1ri\u00f0 1984 og gegndi \u00fear fj\u00f6lm\u00f6rgum tr\u00fana\u00f0arst\u00f6rfum.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00deau kunnu vel vi\u00f0 sig \u00e1 Akureyri, h\u00f6fu\u00f0sta\u00f0 Nor\u00f0urlands og \u00feeim var vel teki\u00f0 \u00fear.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Siggi Odds, eins og vi\u00f0 k\u00f6llu\u00f0um hann heima \u00e1 \u00cdsafir\u00f0i, var flottur einstaklingur. Hann var fj\u00f6lskylduma\u00f0ur og unni b\u00f6rnum s\u00ednum og barnab\u00f6rnum og var\u00f0i m\u00f6rgum stundum \u00ed leik me\u00f0 \u00feeim. Fari\u00f0 var \u00ed g\u00f6ngufer\u00f0ir, \u00e1 sk\u00ed\u00f0i, snj\u00f3sle\u00f0a og fleira. B\u00edlar voru \u00e1hugam\u00e1l sem hann \u00e1tti me\u00f0 afkomendum s\u00ednum. Hann var hj\u00e1lpsamur og vakandi yfir velfer\u00f0 fj\u00f6lskyldunnar. Hann var b\u00e6\u00f0i pabbi og afi me\u00f0 st\u00f3rum staf.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">En svo var\u00f0 \u00feessi st\u00f3ri og sterki ma\u00f0ur fyrir \u00e1falli fyrir r\u00famum 12 \u00e1rum. Hann f\u00e9kk heilabl\u00e6\u00f0ingu sem skerti getu hans til muna \u00fev\u00ed hann missti svo miki\u00f0 \u00far m\u00e1li og tj\u00e1ningu. Hann gat t.a.m. ekki nota\u00f0 nafnor\u00f0 &#8211; nema nafni\u00f0 \u00e1 d\u00f3ttursyni s\u00ednum, Viktori M\u00e1na sem \u00f3lst upp \u00e1 Akureyri og var m.a. 2 \u00e1r hj\u00e1 \u00f6mmu og afa.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"has-text-align-left wp-block-paragraph\"><em>D\u00f3ttur \u00d6rnu, Hrefna \u201elitla\u201c Hagal\u00edn minnist \u00feess \u00feegar afi kenndi henni a\u00f0 hj\u00f3la \u00e1n hj\u00e1lpardekkja, a\u00f0 ver\u00f0a betri b\u00edlstj\u00f3ri, hvort sem var \u00e1 b\u00edl, fj\u00f3rhj\u00f3li e\u00f0a snj\u00f3sle\u00f0a.<\/em><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><em>Afi Siggi hefur veri\u00f0 m\u00e9r alltaf eins og pabbi, segir h\u00fan, helsta sto\u00f0 og stytta \u00ed \u00f6llu, traustasti og kl\u00e1rasti ma\u00f0urinn.<\/em><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><em>Afi reyndi a\u00f0 kenna okkur hva\u00f0 hver einasti vegur, hei\u00f0i, fj\u00f6r\u00f0ur og fjall h\u00e9ti. \u00c9g var eins og talandi landakort sem barn a\u00f0 keyra \u00e1 milli Reykjavikur, Akureyrar og \u00cdsafjar\u00f0ar.<br \/><br \/>Afi var l\u00edka mikill smekkma\u00f0ur, alltaf \u00feegar mamma var a\u00f0 fara eitthva\u00f0 \u00fe\u00e1 f\u00e9kk h\u00fan \u00e1lit fr\u00e1 afa \u00e1 kl\u00e6\u00f0na\u00f0i og haf\u00f0i hann alltaf sterkar sko\u00f0anir \u00e1 f\u00f6tum og \u00fatliti, enda alltaf mj\u00f6g smart sj\u00e1lfur.<br \/><br \/>En afi og amma hafa l\u00edka alltaf gert ALLT fyrir mig fr\u00e1 fyrsta degi og gera enn, \u00e9g veit ekki hvar \u00e9g v\u00e6ri \u00e1n \u00feeirra og eru \u00feau b\u00e6\u00f0i svo rosalega st\u00f3r partur af m\u00e9r og m\u00ednu l\u00edfi.<\/em><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><em>\u00deorl\u00e1ksmessa var upp\u00e1haldsdagurinn minn \u00e1 yngri \u00e1rum \u00fev\u00ed afi og amma voru \u00feekkt fyrir sk\u00f6tuveislurnar s\u00ednar sem \u00feau h\u00e9ldu \u00ed meira en 30 \u00e1r.  Allir hj\u00e1lpu\u00f0ust a\u00f0 \u00ed undirb\u00faningnum, h\u00fasi\u00f0 fylltist af f\u00f3lki, og alltaf var sami\u00f0 lj\u00f3\u00f0, sk\u00f6tulj\u00f3\u00f0i\u00f0, \u00fearna byrju\u00f0u j\u00f3lin.<\/em><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><em>Vi\u00f0 skreyttum j\u00f3latr\u00e9\u00f0 undir strangri lei\u00f0s\u00f6gn afa, hann var afar n\u00e1kv\u00e6mur, sm\u00e1munasamur og me\u00f0 fullkomnunar\u00e1r\u00e1ttu. \u00dea\u00f0 \u00feurfti a\u00f0 gera \u00feetta allt r\u00e9tt og fara vel me\u00f0 hlutina, enda entust \u00feeir mj\u00f6g vel og nota\u00f0i hann s\u00f6mu j\u00f3laser\u00eduna sem var notu\u00f0 \u00feegar hann var barn og \u00e9g held a\u00f0 h\u00fan virki meira a\u00f0 segja enn \u00ed dag. Svo f\u00f3r hann \u00fat \u00ed b\u00edlsk\u00far og f\u00e9kk s\u00e9r har\u00f0fisk \u00far frystikistunni.<br \/><br \/>\u00c9g \u00e1 endalausar minningar um afa, hann hefur alltaf veri\u00f0 svo st\u00f3r partur af l\u00edfinu m\u00ednu. Hann var alltaf til sta\u00f0ar fyrir alla, alltaf a\u00f0 hj\u00e1lpa \u00f6llum.<\/em><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><em>Krist\u00edn \u00e1 s\u00f6mu s\u00f6gu a\u00f0 segja um hj\u00e1lpsemi pabba s\u00edns og svo rifjar h\u00fan upp a\u00f0 hann hafi alltaf veri\u00f0 a\u00f0 fl\u00fdta s\u00e9r. Hann var mj\u00f6g dr\u00edfandi ma\u00f0ur. Einu sinni voru hann og Viktor M\u00e1ni a\u00f0 koma fr\u00e1 \u00d3lafsfir\u00f0i af snj\u00f3sle\u00f0akeppni og \u00feeir voru svangir og \u00e6tlu\u00f0u a\u00f0 stoppa \u00e1 Dalv\u00edk og f\u00e1 s\u00e9r pylsu en \u00fea\u00f0 var d\u00fdrasta pylsa \u00ed heimi. L\u00f6ggann stoppa\u00f0i Sigga fyrir of hra\u00f0an akstur inn \u00ed b\u00e6inn og \u00fea\u00f0 kosta\u00f0i hann 25 \u00fe\u00fasund kall! Oft hefur \u00feessi saga veri\u00f0 s\u00f6g\u00f0. Viktor rifja\u00f0i hana upp me\u00f0 afa s\u00ednum \u00e1 s\u00fakrah\u00fasinu um s.l. j\u00f3l og Siggi hl\u00f3 miki\u00f0 og mundi \u00feetta vel.<\/em><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">J\u00e1, Hrefna og fj\u00f6lskylda eiga g\u00f3\u00f0ar minningar um g\u00f3\u00f0an eiginmann, pabba og afa. \u00deau tala um stu\u00f0ning hans og \u00e1huga \u00e1 fj\u00f6lskyldunni, einl\u00e6ga vin\u00e1ttu hans og elsku til afkomenda sinna. Hann var \u00feeim \u00f6llum sto\u00f0 og stytta og \u00e6t\u00ed\u00f0 var Siggi bo\u00f0inn og b\u00fainn a\u00f0 hj\u00e1lpa \u00f6llum skilyr\u00f0islaust.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hann var r\u00e9tts\u00fdnn og \u00e1kve\u00f0inn, virtur af \u00feeim sem unnu me\u00f0 honum og voru \u00ed samstarfi vi\u00f0 hann. Hann var dr\u00edfandi og allt st\u00f3\u00f0 sem stafur \u00e1 b\u00f3k. Siggi var stundv\u00eds og \u00e1rrisul A-t\u00fdpa. Hann var flj\u00f3tur a\u00f0 taka \u00e1kvar\u00f0anir og gat stundum hlaupi\u00f0 \u00e1 sig en kunni a\u00f0 bi\u00f0jast afs\u00f6kunar.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Nokkrar kve\u00f0jur hafa borist fr\u00e1 fjarst\u00f6ddum og mun \u00e9g flytja \u00fe\u00e6r s\u00ed\u00f0ar \u00ed ath\u00f6fninni.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00dea\u00f0 hl\u00fdtur a\u00f0 hafa veri\u00f0 Sigur\u00f0i miki\u00f0 \u00e1fall a\u00f0 ver\u00f0a svo heftur sem raun bar vitni eftir heilabl\u00e6\u00f0inguna, en hann naut elsku og umhyggju barna sinna og barnabarna og ekki muna\u00f0i n\u00fa l\u00edti\u00f0 um elsku og umhyggu Hrefnu sem st\u00f3\u00f0 sem hetja honum vi\u00f0 hli\u00f0 til hinstu stundar.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Gu\u00f0 blessi \u00fe\u00e1 elsku alla.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00cd fyrra f\u00f3r Sigur\u00f0ur til \u00cdsafjar\u00f0ar og skynja\u00f0i a\u00f0 \u00fea\u00f0 yr\u00f0i hans hinsta heims\u00f3kn. Hann tala\u00f0i \u00e6t\u00ed\u00f0 um a\u00f0 fara &#8220;heim&#8221; til \u00cdsafjar\u00f0ar.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Heim!<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hvar eigum vi\u00f0 heima? Hvar eru heimkynni okkar \u00feegar d\u00fdpst er r\u00fdnt?<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">P\u00e1ll postuli rita\u00f0i tr\u00fasystkinum s\u00ednum \u00ed Filipp\u00ed sem er \u00ed Grikklandi, innst \u00ed Eyjahafi, en \u00fear bj\u00f3 l\u00edtill h\u00f3pur kristins f\u00f3lks sem \u00e1tti undir h\u00f6gg a\u00f0 s\u00e6kja \u00e1 marga lund. Filipp\u00edbr\u00e9fi\u00f0 hefur veri\u00f0 kalla\u00f0 &#8220;br\u00e9f gle\u00f0innar&#8221;. Hann skrifa\u00f0i \u00fea\u00f0 \u00ed fangelsi \u00fear sem hann sat vegna tr\u00faar sinnar. S\u00ed\u00f0ar var\u00f0 hann p\u00edslarvottur \u00ed R\u00f3m. Hann \u00feakkar vinaf\u00f3lki s\u00ednu \u00ed Filipp\u00ed fyrir umhyggju \u00feeirra og gjafir, hughreysti \u00feau og segir m.a.:<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">&#8220;En f\u00f6\u00f0urland okkar er \u00e1 himni og fr\u00e1 himni v\u00e6ntum vi\u00f0 frelsarans, Drottins Jes\u00fa Krists. Hann mun breyta veikum og forgengilegum l\u00edkama okkar svo a\u00f0 hann f\u00e1i s\u00f6mu mynd og d\u00fdr\u00f0arl\u00edkami hans \u00fev\u00ed hann hefur kraftinn til a\u00f0 leggja allt undir sig.&#8221; (Fil. 3.20-21)<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Tr\u00fain bendir okkur upp til Krists, sem sigra\u00f0i dau\u00f0ann og alla sj\u00fakd\u00f3ma og f\u00f6tlun, me\u00f0 upprisu sinni. Kristur ruddi veg og opna\u00f0i lei\u00f0, bygg\u00f0i n\u00fdjan veg, yfir h\u00e6stu hindranir l\u00edfsins og upp \u00far d\u00fdpstu d\u00f6lum \u00f6rv\u00e6ntingar og vonleysis.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hann b\u00ed\u00f0ur okkar &#8220;heima&#8221; og mun fagna komu okkar \u00ed fyllingu t\u00edmans.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Gu\u00f0 blessi minningu Sigur\u00f0ar Oddssonar og Gu\u00f0 var\u00f0veiti \u00feig \u00e1 l\u00edfsins vegi. Amen.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Kve\u00f0jur:<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Margir minnast hans h\u00e9r \u00ed dag og svo hafa einnig borist kve\u00f0jur fr\u00e1 fjarst\u00f6ddum \u00e6ttingjum og vinum, fr\u00e1 Sigga Odds, yngri sem er Frakklandi og R\u00fanu Odds systur hans sem er \u00ed Danm\u00f6rku, og fr\u00e1 Gu\u00f0mundi m\u00e1gi hans og eiginkonu sem eru \u00e1 Sp\u00e1ni.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">og \u00e1 bla\u00f0i. . .<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Innilegar sam\u00fa\u00f0arkve\u00f0jur<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">&#8211; fr\u00e1 Sverri J\u00f3hannessyni, sk\u00f3labr\u00f3\u00f0ur og vinnuf\u00e9laga til nokkurra \u00e1ra,<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">&#8211; fr\u00e1 Gr\u00edmi Erni Gr\u00edmssyni fr\u00e1 K\u00f3paskeri,<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">&#8211; fr\u00e1 \u00c1sthildio og Rafni Helgasyni, Stokkahl\u00f6\u00f0um og<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">&#8211; fr\u00e1 Bjarna og Elsu \u00e1 Akureyri sem ekki \u00e1ttu heimangengt vegna veikinda.<\/p>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-image size-large\"><img decoding=\"async\" src=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2022\/06\/img_1471-1.jpg?w=1024\" alt=\"\" class=\"wp-image-3307\" \/><\/figure>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-image size-large\"><img decoding=\"async\" src=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2022\/06\/img_1472-1.jpg?w=1024\" alt=\"\" class=\"wp-image-3308\" \/><\/figure>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-image size-large\"><img decoding=\"async\" src=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2022\/06\/img_1473-1.jpg?w=1024\" alt=\"\" class=\"wp-image-3309\" \/><\/figure>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Sigur\u00f0ur Oddsson 1944-2022 byggingat\u00e6knifr\u00e6\u00f0ingur fr\u00e1 \u00cdsafir\u00f0i \u00datf\u00f6r fr\u00e1 Digraneskirkju \u00feri\u00f0judaginn 21. j\u00fan\u00ed 2020 kl. 13 S\u00e1lmaskr\u00e1in er ne\u00f0anm\u00e1ls.<\/p>\n","protected":false},"author":2,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_jetpack_newsletter_access":"","_jetpack_dont_email_post_to_subs":false,"_jetpack_newsletter_tier_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paywalled_content":false,"_jetpack_hide_featured_image":false,"_jetpack_featured_image_duplicate_dismissed":0,"_jetpack_feature_clip_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":"","jetpack_post_was_ever_published":false},"categories":[7],"tags":[243,246,333],"class_list":["post-3310","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-minningarord-eulogies","tag-gud","tag-gudfraedi","tag-jesus"],"jetpack_sharing_enabled":true,"jetpack_featured_media_url":"","_links":{"self":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/3310","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/users\/2"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcomments&post=3310"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/3310\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fmedia&parent=3310"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcategories&post=3310"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Ftags&post=3310"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}