{"id":3271,"date":"2022-06-07T21:36:15","date_gmt":"2022-06-07T21:36:15","guid":{"rendered":"http:\/\/ornbardur.com\/2022\/06\/07\/komid-er-ad-skuldadogum\/"},"modified":"2022-06-07T21:36:15","modified_gmt":"2022-06-07T21:36:15","slug":"komid-er-ad-skuldadogum","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/ornbardur.com\/?p=3271","title":{"rendered":"Komi\u00f0 er a\u00f0 skuldad\u00f6gum"},"content":{"rendered":"\n<p class=\"wp-block-paragraph\">eftir \u00d6rn B\u00e1r\u00f0 J\u00f3nsson<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Greinin birtist \u00ed Kjarnanum 7. j\u00fan\u00ed 2022. Texti og hlj\u00f3\u00f0upptaka er h\u00e9r fyrir ne\u00f0an.<\/p>\n\n\n\n<!--more-->\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-audio\"><audio controls src=\"https:\/\/pub-c849b6aaf98340c4bec7b480b0f7ffe9.r2.dev\/2022\/06\/komid-er-ad-skuldadocc88gum.m4a\"><\/audio><\/figure>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hver \u00e1 fiskinn \u00ed sj\u00f3num?<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00cdslenska \u00fej\u00f3\u00f0in.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hver \u00e1 \u00f3veidda fiskinn?<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00cdslenska \u00fej\u00f3\u00f0in.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hver getur framselt hann?<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00cdslenska \u00fej\u00f3\u00f0in.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">En hva\u00f0 hefur gerst?<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hinir gr\u00e1\u00f0ugu efldust og misstu sig, \u00feeir sem fengu leyfi til a\u00f0 vei\u00f0a fiskinn gegn v\u00e6gu gjaldi, mj\u00f6g v\u00e6gu sem s\u00ed\u00f0ar var l\u00e6kka\u00f0. \u00c1byrg\u00f0arlaus yfirv\u00f6ld ger\u00f0u \u00feeim vinargrei\u00f0a, marga sl\u00edka. \u00deau krupu og kysstu gullhringa greifanna sem fengu a\u00f0 vei\u00f0a fyrir n\u00e1nasargjald.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">En svo f\u00f3ru greifarnir a\u00f0 v\u00edla og d\u00edla. \u00deeir voru eins&nbsp; og leigjandi sem allt \u00ed einu f\u00e6r \u00fe\u00e1 flugu \u00ed h\u00f6fu\u00f0i\u00f0 a\u00f0 \u00edb\u00fa\u00f0in, sem hann b\u00fdr \u00ed og leigir, s\u00e9 hans eign. Hann ve\u00f0setur hana. Hann selur hana vinum. \u00deeir selja \u00f6\u00f0rum og svo koll af kolli. Svo lifa \u00feeir \u00ed von um a\u00f0 eigandinn gleymi m\u00e1linu og a\u00f0 \u00feeir f\u00e1i eignarr\u00e9tt bygg\u00f0an \u00e1 hef\u00f0, \u00e1 d\u00f6ngunarleysi stj\u00f3rnvalda.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Stj\u00f3rnm\u00e1lamenn skj\u00e1lfa yfir \u00fev\u00ed \u00ed hva\u00f0a \u00f3g\u00f6ngur gjafakv\u00f3tam\u00e1li\u00f0 er komi\u00f0 \u00ed. \u00deeir r\u00e1\u00f0a r\u00e1\u00f0um s\u00ednum og eru me\u00f0 alvarlegar \u00e1hyggjur yfir \u00fev\u00ed hvernig \u00feeir geti n\u00e1\u00f0 gjafakv\u00f3tanum aftur og s\u00e9rstaklega eru \u00feeir skj\u00e1lfandi \u00e1 beinum yfir \u00fev\u00ed hve miki\u00f0 \u00feeir \u00feurfi a\u00f0 borga \u00feeim sem t\u00f3ku, v\u00edlu\u00f0u og d\u00edlu\u00f0u, seldu og b\u00f3kf\u00e6r\u00f0u me\u00f0 hj\u00e1lp l\u00f6ggiltra endursko\u00f0enda og l\u00f6gfr\u00e6\u00f0inga sem eru v\u00edsast allir me\u00f0 &#8220;master&#8221; \u00ed einhverjum s\u00e9rfr\u00e6\u00f0um, b\u00fanir a\u00f0 grafa s\u00e9r s\u00e9rfr\u00e6\u00f0iskur\u00f0, sem \u00feeir sj\u00e1 ekki upp \u00far og t\u00fdna \u00fear me\u00f0 allri yfirs\u00fdn, \u00f6llu samhengi, si\u00f0viti og tengslum vi\u00f0 \u00fej\u00f3\u00f0 s\u00edna.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c1rsreikningarnir l\u00edta vel \u00fat og gr\u00f3\u00f0inn er g\u00edgant\u00edskur. Og n\u00fa er best a\u00f0 koma \u00feessu yfir \u00e1 n\u00e6stu kynsl\u00f3\u00f0, l\u00e1ta b\u00f6rnin erfa svo a\u00f0 ekki ver\u00f0i h\u00e6gt a\u00f0 ganga a\u00f0 gr\u00f3\u00f0anum, stolna kv\u00f3tanum, s\u00e9rstaklega \u00ed ranni \u00feeirra, sem munu kannski \u00feurfa a\u00f0 borga h\u00e1ar sektir vegna m\u00fatugrei\u00f0sla \u00ed \u00fer\u00f3unarl\u00f6ndum \u00fear sem m\u00fatu\u00feegarnir sitja \u00ed fangelsi og hafa seti\u00f0 svo m\u00e1nu\u00f0um skiptir me\u00f0an \u00feeir er reiddu fram f\u00e9gjafir \u00ed f\u00f6rmum telja gr\u00f3\u00f0ann, velgreiddir \u00ed sparif\u00f6tum, ba\u00f0andi b\u00f6rnin s\u00edn \u00ed se\u00f0lum, \u00f3hultir \u00ed spilltu landi.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hva\u00f0 vilja greifarnir f\u00e1 greitt fyrir a\u00f0 skila gjafakv\u00f3tanum, vei\u00f0iheimildunum?&nbsp;<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00dearf a\u00f0 grei\u00f0a \u00feeim eitthva\u00f0 fyrir \u00fe\u00fdfi\u00f0?&nbsp;<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00de\u00fdfi er \u00fea\u00f0, \u00fev\u00ed h\u00e9r er um a\u00f0 r\u00e6\u00f0a eign \u00fej\u00f3\u00f0arinnar, sem g\u00e6slumenn hagsmuna hennar, r\u00edkisstj\u00f3rnir \u00ed r\u00f6\u00f0um, g\u00e6ttu ekki. \u00de\u00e6r hafa brug\u00f0ist hver \u00e1 eftir annarri, \u00e1ratugum saman og legi\u00f0 hundflatar fyrir dreissugum greifunum.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Svo eru \u00fea\u00f0 al\u00feingismennirnir sem \u00fej\u00f3\u00f0in hefur kosi\u00f0 til a\u00f0 g\u00e6ta hagsmuna hennar. Hafa \u00feeir gert \u00fea\u00f0? Hefur \u00feeim tekist a\u00f0 n\u00e1 \u00fe\u00fdfinu til baka? Hafa \u00feeir reynt \u00fea\u00f0? Vilji \u00feeirra flestra til r\u00e9ttl\u00e6tis \u00ed \u00feessum efnum m\u00e6list varla me\u00f0 n\u00e6mustu m\u00e6lit\u00e6kjum \u00f6flugustu v\u00edsinda heimsins.&nbsp;<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">En n\u00fa \u00e1 v\u00edst a\u00f0 reyna eitthva\u00f0 n\u00fdtt. Gu\u00f0 l\u00e1ti gott \u00e1 vita. T\u00f6fralausnir margra stj\u00f3rnm\u00e1lamanna felast \u00ed \u00fev\u00ed a\u00f0 setja m\u00e1l \u00ed nefnd. Einhver sag\u00f0i a\u00f0 nefnd nokkur hef\u00f0i fengi\u00f0 \u00fea\u00f0 verkefni a\u00f0 hanna ve\u00f0hlaupahest. \u00datkoman var \u00feungur og svifaseinn tr\u00e9hestur.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">H\u00e9r \u00fearf meira en sm\u00e1skammtal\u00e6kningar og engin \u00e1st\u00e6\u00f0a er til \u00feess a\u00f0 b\u00e6ta \u00fatger\u00f0inni nokkurn skapa\u00f0an hlut. Enginn \u00fearf a\u00f0 b\u00e6ta m\u00f6nnum fyrir a\u00f0 hafa keypt stoli\u00f0 \u00fe\u00fdfi. Hi\u00f0 eina sem r\u00edkisstj\u00f3rnin \u00fearf er vilji og kjarkur til a\u00f0 h\u00f6ggva \u00e1 sj\u00e1lfan Gordionshn\u00fat gjafakv\u00f3tam\u00e1lsins.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00cd till\u00f6gu Stj\u00f3rnlagar\u00e1\u00f0s a\u00f0 n\u00fdrri stj\u00f3rnarskr\u00e1 er skotheld grein um au\u00f0lindir landsins. En \u00fea\u00f0 er einmitt s\u00fa grein sem meirihluti \u00feingmanna hefur \u00f3ttast svo \u00ed meir en \u00e1ratug a\u00f0 \u00feeir hafa \u00e6t\u00ed\u00f0 horft lymskulega framhj\u00e1 gl\u00e6pum \u00feingsins. Greinin er skotheld hva\u00f0 var\u00f0ar hag \u00fej\u00f3\u00f0arinnar og \u00fea\u00f0 \u00feola \u00feingmennirnir ekki sem \u00fej\u00f3na greifunum, me\u00f0vita\u00f0 e\u00f0a \u00f3me\u00f0vita\u00f0.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Og \u00e1 me\u00f0an ekkert gerist skelfur j\u00f6r\u00f0 og &#8220;\u00fer\u00fagur rei\u00f0innar&#8221; dafna \u00ed hj\u00f6rtum f\u00f3lks og \u00feyngjast og \u00feegar \u00fe\u00e6r ver\u00f0a loks uppskornar m\u00e6ttu sumir fara a\u00f0 bi\u00f0ja fyrir s\u00e9r.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00datger\u00f0ara\u00f0allinn sem telur sig eiga vei\u00f0iheimildirnar, \u00e1 engar heimildir.&nbsp;\u00de\u00e6r eru fengnar a\u00f0 l\u00e1n \u00ed upphafi og svo teknar traustataki, stoli\u00f0 og stungi\u00f0 \u00ed b\u00f3lgna vasa. En allir si\u00f0a\u00f0ir menn vita a\u00f0 \u00fev\u00ed sem fengi\u00f0 er a\u00f0 l\u00e1ni ber a\u00f0 skila \u00ed sama \u00e1standi og var.&nbsp;<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hvers megum vi\u00f0 v\u00e6nta, almenningur \u00feessa lands? Er hlusta\u00f0 \u00e1 \u00feau sem l\u00ed\u00f0a fyrir \u00f3r\u00e9tt og s\u00e9rhygli hinna voldugu? Erum vi\u00f0 sem kveinum undan \u00f3r\u00e9ttinum kannski skyld \u00feeim manni sem Steinn Steinarr orti um lj\u00f3\u00f0i\u00f0 Eftirm\u00e6li?<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">1., 2. og 8. vers hlj\u00f3\u00f0a svo:<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00de\u00fa varst b\u00e6\u00f0i auralaus og illa kl\u00e6ddur ma\u00f0ur,<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">me\u00f0 afar st\u00f3ra f\u00e6tur og raunalegar hendur.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00de\u00fa haf\u00f0ir enga \u00fe\u00fd\u00f0ingu \u00ed \u00fej\u00f3\u00f0m\u00e1lum, sem sl\u00edkur,<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">og \u00fea\u00f0 veit enginn til hvers \u00fe\u00fa varst \u00ed heiminn sendur.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">&#8211;<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Og sjaldan heyr\u00f0ist tala\u00f0 um s\u00e1larg\u00e1fur \u00fe\u00ednar,<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">og sennilegt \u00fe\u00e6r hafi frekar l\u00edtinn \u00e1v\u00f6xt bori\u00f0.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00de\u00fa \u00feekktir hvorki leyndard\u00f3ma \u00feessa heims n\u00e9 annars.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Og \u00fea\u00f0 var ekki meira en svo \u00fe\u00fa kynnir Fa\u00f0irvori\u00f0.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">&#8211;<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00de\u00e9r hlotnu\u00f0ust \u00fe\u00f3 molarnir af h\u00f6f\u00f0ingjanna bor\u00f0um,<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">en hamingjan m\u00e1 vita, hvort \u00fe\u00fa skildir miskunn sl\u00edka,<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">og hvort \u00fe\u00fa hefir lifa\u00f0 samkv\u00e6mt l\u00f6gm\u00e1li vors herra,<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">sem l\u00e6tur \u00feorskinn vei\u00f0ast fyrir f\u00e1t\u00e6ka sem r\u00edka.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">F\u00e1t\u00e6kt ver\u00f0ur kannski aldrei \u00fatr\u00fdmt og \u00f3r\u00e9ttinum ekki heldur, en vi\u00f0 erum sem \u00fej\u00f3\u00f0 k\u00f6llu\u00f0 til a\u00f0 setja marki\u00f0 \u00e1 hinn \u00f3m\u00f6gulega m\u00f6guleika \u00ed voninni um a\u00f0 eitthva\u00f0 muni \u00feokast \u00ed r\u00e9ttl\u00e6tis\u00e1tt \u00feegar horft er til \u00feeirra sem hafa allt og hinna sem ekki hafa.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Ef Steini hefur keypt af Binna \u00fea\u00f0 sem \u00feegi\u00f0 var a\u00f0 l\u00e1ni og Binni selt Guggu og h\u00fan einhverjum \u00f6\u00f0rum, \u00fe\u00e1 hafa \u00feau selt og keypt \u00fe\u00fdfi. Greifarnir og greifynjurnar hafa \u00fev\u00ed engan r\u00e9tt fremur en s\u00e6tkenndur s\u00f3larlandafari, sem eins og flattur \u00feorskur \u00e1 \u00feurrkreiti, keypti sviki\u00f0 Rolex-\u00far af g\u00f6tusala.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">En h\u00e9r er ekki um neina eftirl\u00edkingu a\u00f0 r\u00e6\u00f0a.&nbsp; Kv\u00f3tinn er ekki svikin vara. Hann er ekta og hann er eign \u00fej\u00f3\u00f0arinnar. En greifarnir eru hins vegar or\u00f0nir eins og hverjir a\u00f0rir g\u00f6tusalar sem braska.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Skili\u00f0 kv\u00f3tanum \u00e1n \u00feess a\u00f0 krefjast b\u00f3ta fyrir svindli\u00f0, fyrir \u00fej\u00f3fna\u00f0inn, fyrir \u00f3sv\u00edfnina gegn eigandanum &#8211; \u00fej\u00f3\u00f0inni! Ey\u00f0i\u00f0 f\u00f6lskum eignf\u00e6rslum \u00ed svindlb\u00f3khaldinu ykkar og geri\u00f0 upp svikin!<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hver \u00e1 fiskinn \u00ed sj\u00f3num?<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00cdslenska \u00fej\u00f3\u00f0in.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hver \u00e1 \u00f3veiddan fiskinn?<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00cdslenska \u00fej\u00f3\u00f0in.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hver getur framselt hann?<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00cdslenska \u00fej\u00f3\u00f0in.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Komi\u00f0 er a\u00f0 skuldad\u00f6gum. Skili\u00f0 \u00fe\u00fdfinu!<\/p>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-image size-large\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"2093\" height=\"2560\" src=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2022\/06\/img_0422-copy.jpg?w=837\" alt=\"\" class=\"wp-image-3272\" \/><figcaption>Hver \u00e1 fiskinn \u00ed sj\u00f3num?<br \/>Komnir inn undir skyrtuna m\u00edna. <br \/>Greifarnir sp\u00e1 \u00ed kv\u00f3tann. <br \/>Mynd m\u00e1lu\u00f0 af h\u00f6fundi \u00e1ri\u00f0 1997, ol\u00eda \u00e1 skyrtu.<\/figcaption><\/figure>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>eftir \u00d6rn B\u00e1r\u00f0 J\u00f3nsson Greinin birtist \u00ed Kjarnanum 7. j\u00fan\u00ed 2022. Texti og hlj\u00f3\u00f0upptaka er h\u00e9r fyrir ne\u00f0an.<\/p>\n","protected":false},"author":2,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_jetpack_newsletter_access":"","_jetpack_dont_email_post_to_subs":false,"_jetpack_newsletter_tier_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paywalled_content":false,"_jetpack_hide_featured_image":false,"_jetpack_featured_image_duplicate_dismissed":0,"_jetpack_feature_clip_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":"","jetpack_post_was_ever_published":false},"categories":[4,8],"tags":[24,206,254,518,557,600,601,602],"class_list":["post-3271","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-greinar-og-hugvekjur-articles","category-myndlist-my-art","tag-althingi","tag-forrettindi","tag-hagsmunir","tag-rettlaeti","tag-sidferdi","tag-stjornarskra","tag-stjornlagarad","tag-stjornmal"],"jetpack_sharing_enabled":true,"jetpack_featured_media_url":"","_links":{"self":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/3271","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/users\/2"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcomments&post=3271"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/3271\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fmedia&parent=3271"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcategories&post=3271"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Ftags&post=3271"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}