{"id":3263,"date":"2022-06-01T12:21:13","date_gmt":"2022-06-01T12:21:13","guid":{"rendered":"http:\/\/ornbardur.com\/2022\/06\/01\/flaekjusaga-um-postinn\/"},"modified":"2022-06-01T12:21:13","modified_gmt":"2022-06-01T12:21:13","slug":"flaekjusaga-um-postinn","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/ornbardur.com\/?p=3263","title":{"rendered":"Fl\u00e6kjusaga um P\u00f3stinn"},"content":{"rendered":"\n<p class=\"wp-block-paragraph\">H\u00f6fundur hefur \u00edtreka\u00f0 lent \u00ed hremmingum \u00feegar hann hefur fengi\u00f0 pakka fr\u00e1 \u00fatl\u00f6ndum me\u00f0 einhverju sem hann hefur panta\u00f0 e\u00f0a fengi\u00f0 sent sem gj\u00f6f. H\u00e9r kemur fl\u00e6kjusagan. <\/p>\n\n\n\n<!--more-->\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-audio\"><audio controls src=\"https:\/\/pub-c849b6aaf98340c4bec7b480b0f7ffe9.r2.dev\/2022\/06\/flaekjusaga-um-pocc81stinn.m4a\"><\/audio><\/figure>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-image size-large\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"392\" height=\"289\" src=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2022\/06\/img_1422.jpg?w=392\" alt=\"\" class=\"wp-image-3261\" \/><\/figure>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Oft hef \u00e9g panta\u00f0 v\u00f6rur \u00ed p\u00f3sti fr\u00e1 \u00fatl\u00f6ndum og margsinnis fr\u00e1 K\u00edna en hef n\u00fa h\u00e6tt \u00fev\u00ed \u00fear \u00fear sem P\u00f3sturinn tekur 400 kr\u00f3nur \u00ed sendingarkostna\u00f0 fr\u00e1 Evr\u00f3pu til \u00cdslands af hverjum sm\u00e1pakka, meira a\u00f0 segja af \u00feeim sem vega allt ni\u00f0ur \u00ed 2 gr\u00f6mm.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">P\u00f3sturinn flytur margskonar v\u00f6rur og n\u00fa hefur honum tekist hi\u00f0 \u00f3m\u00f6gulega, a\u00f0 flytja \u00cdsland \u00far Evr\u00f3pu.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c9g spur\u00f0i fyrirt\u00e6ki\u00f0 um p\u00f3stgjaldi\u00f0 &#8220;fr\u00e1 Evr\u00f3pu&#8221; \u00ed fyrra og var sagt a\u00f0 K\u00ednverjar v\u00e6ru me\u00f0 svo ofurhagst\u00e6\u00f0a samninga vi\u00f0 Evr\u00f3pusv\u00e6\u00f0i\u00f0 og borgu\u00f0u svo l\u00edti\u00f0 fyrir flutninga til \u00e1lfunnar, a\u00f0 P\u00f3sturinn hef\u00f0i fengi\u00f0 s\u00e9rstakt leyfi hj\u00e1 Al\u00feingi til a\u00f0 leggja \u00feennan aukakostna\u00f0 \u00e1 v\u00f6rur sem koma til Evr\u00f3pu enda \u00fe\u00f3tt s\u00e1 e\u00f0a s\u00fa sem pantar hafi \u00feegar greitt K\u00ednverjum fyrir flutning heim a\u00f0 dyrum s\u00ednum \u00e1 \u00cdslandi.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Og vi\u00f0 sem b\u00faum \u00ed Evr\u00f3pu erum neydd til \u00feess a\u00f0 kaupa \u00fej\u00f3nustu \u00feessa einkav\u00e6dda fyrirt\u00e6kis, sem vir\u00f0ist hafa algj\u00f6rlega r\u00fasta\u00f0 arfleif\u00f0 stofnunar sem \u00fej\u00f3na\u00f0i landi og \u00fej\u00f3\u00f0 lengi og vel og h\u00e9t, P\u00f3stur &amp; S\u00edmi, r\u00fasta\u00f0 me\u00f0 einhverskonar n\u00fdv\u00e6\u00f0ingu, me\u00f0 yfirdrifnum fl\u00e6kjustigum og s\u00edmsv\u00f6run \u00far t\u00f6lvu sem talar me\u00f0 kvenmannsr\u00f6dd, heilsar \u00e1 ensku og segir, H\u00c6!<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">A\u00f0 komast framhj\u00e1 t\u00f6lvuv\u00e6ddum samskiptum kostar a\u00f0 ma\u00f0ur hringi og b\u00ed\u00f0i \u00ed r\u00f6\u00f0 og haldi \u00e1fram a\u00f0 heyra r\u00f6dd t\u00f6lvukonunnar aftur og aftur, sem heilsa\u00f0i me\u00f0 or\u00f0inu, H\u00c6, en segir svo, seint og um s\u00ed\u00f0ir, hva\u00f0a n\u00fameri m\u00e9r hafi veri\u00f0 \u00fathluta\u00f0 \u00ed bi\u00f0r\u00f6\u00f0inni.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c9g haf\u00f0i \u00e1\u00f0ur fengi\u00f0 br\u00e9f fr\u00e1 P\u00f3stinum. \u00dea\u00f0 var dagsett 7. apr\u00edl 2021, en barst m\u00e9r \u00ed p\u00f3stbox \u00fear sem \u00e9g b\u00fd, viku seinna e\u00f0a 14. apr\u00edl. Langar eru lei\u00f0irnar \u00ed henni Reykjav\u00edk og \u00f3f\u00e6r\u00f0in gr\u00ed\u00f0arleg a\u00f0 halda m\u00e6tti \u00e1 snj\u00f3l\u00e9ttasta vetri \u00ed \u00e1ratugi (2020-2021)<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c9g f\u00f3r \u00ed t\u00f6lvuna eftir a\u00f0 hafa opna\u00f0 br\u00e9fi\u00f0, en hn\u00f6krar \u00ed t\u00f6lvukerfi P\u00f3stsins ger\u00f0u \u00fea\u00f0 a\u00f0 verkum a\u00f0 a\u00f0eins hluti \u00feess sem \u00e9g vildi koma til skila n\u00e1\u00f0i \u00ed gegnum t\u00f6lvuheila fyrirt\u00e6kisins.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">M\u00e9r var sagt \u00ed br\u00e9finu a\u00f0 \u00e9g \u00e6tti pakka \u00ed P\u00f3stinum fr\u00e1 Frakklandi sem v\u00e6ri 2 gr\u00f6mm a\u00f0 \u00feyngd. \u00c9g kanna\u00f0ist ekki vi\u00f0 neina p\u00f6ntun fr\u00e1 Frakklandi sem v\u00e6gi 2 gr\u00f6mm. Eftir a\u00f0 hafa horft \u00e1 nokkrar krimmamyndir \u00e1 li\u00f0num vikum \u00ed sj\u00f3nvarpi datt m\u00e9r helst \u00ed hug a\u00f0 einhver hrekkj\u00f3ttur fransma\u00f0ur v\u00e6ri a\u00f0 senda m\u00e9r eitthvert \u00f3l\u00f6glegt duft til a\u00f0 koma h\u00f6ggi \u00e1 mig.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00cd br\u00e9finu kom fram a\u00f0 teki\u00f0 v\u00e6ri geymslugjald fyrir hvern dag upp\u00e1 195 kr\u00f3nur og v\u00e6ntanlega l\u00edka um helgar \u00feegar enginn getur s\u00f3tt pakka \u00fev\u00ed P\u00f3sturinn er me\u00f0 allt loka\u00f0.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">J\u00e6ja, \u00ed dag f\u00e9kk \u00e9g loks t\u00f6lvup\u00f3st, 21. apr\u00edl 2021, \u00feegar li\u00f0nar eru 2 vikur fr\u00e1 komu \u00feessa 2ja gramma pakka.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c9g haf\u00f0i \u00ed millit\u00ed\u00f0inni gefi\u00f0 leyfi fyri \u00fev\u00ed me\u00f0 rafr\u00e6num h\u00e6tti a\u00f0 \u00feessi &#8220;n\u00ed\u00f0\u00feungi&#8221; pakki yr\u00f0i opna\u00f0ur og rannsaka\u00f0ur og borga\u00f0i 495 kr\u00f3nur fyrir \u00feann \u00fej\u00f3nustuv\u00e6na grei\u00f0a hins einkav\u00e6dda P\u00f3sts. \u00c9g spur\u00f0i \u00fej\u00f3nustufulltr\u00faann hvort P\u00f3sturinn hef\u00f0i ekki geta\u00f0 vikta\u00f0 pakkann en f\u00e9kk \u00fea\u00f0 svar a\u00f0 \u00fea\u00f0 m\u00e6tti alls ekki gera \u00fev\u00ed \u00fea\u00f0 g\u00e6ti komi\u00f0 P\u00f3stinum \u00ed l\u00f6gfr\u00e6\u00f0ilegt klandur fyrir d\u00f3mst\u00f3lum og \u00feess vegna v\u00e6ru allar sendingar af \u00f3\u00feekktri \u00feyngd sag\u00f0ar vega 2 gr\u00f6mm!<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hvernig \u00e1tti \u00e9g a\u00f0 geta r\u00e1\u00f0i\u00f0 \u00ed g\u00e1tuna um hva\u00f0 v\u00e6ri \u00ed 2ja gramma pakka fr\u00e1 Frakklandi? Varla b\u00f3k \u00e1 fr\u00f6nsku sem \u00e9g er ekki einu sinni l\u00e6s \u00e1!<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Fyrrgreindan dag, 21. apr\u00edl, sem er s\u00ed\u00f0asti vetrardagur, Gu\u00f0i s\u00e9 lof, f\u00e9kk \u00e9g t\u00f6lvup\u00f3st um a\u00f0 \u00e9g yr\u00f0i a\u00f0 senda inn fulln\u00e6gjandi uppl\u00fdsingar um innihald 2ja gramma pakkans. N\u00fa treysti \u00e9g ekki lengur \u00e1 rafr\u00e6n samskipti og hringdi \u00ed P\u00f3stinn. \u00dear svara\u00f0i v\u00e9lmenni og heilsa\u00f0i: H\u00e6! Loks eftir langa bi\u00f0 \u00f3ska\u00f0i \u00e9g eftir a\u00f0 hringt yr\u00f0i \u00ed mig og \u00fea\u00f0 gekk eftir.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c9g sag\u00f0i farir m\u00ednar ekki sl\u00e9ttar, l\u00fdsti hremmingum m\u00ednum og kvarta\u00f0i undan v\u00e6ntanlegum himinh\u00e1um geymslugj\u00f6ldum og leyf\u00f0i m\u00e9r a\u00f0 segja a\u00f0 virt stofnun, P\u00f3stur &amp; S\u00edmi, hef\u00f0i veri\u00f0 ey\u00f0il\u00f6g\u00f0, af \u00feessu einkahlutaf\u00e9lagi, sem n\u00fa heitir P\u00f3sturinn. M\u00e9r li\u00f0i eins og \u00e9g g\u00e6ti gert m\u00e9r \u00ed hugarlaund a\u00f0 f\u00f3lki hef\u00f0i li\u00f0i\u00f0 \u00ed Sov\u00e9tr\u00edkjunum s\u00e1lugu og b\u00e6tti vi\u00f0 a\u00f0 ef \u00feetta s\u00edmtal v\u00e6ri hlj\u00f3\u00f0rita\u00f0 \u00fe\u00e1 vildi \u00e9g a\u00f0 \u00fea\u00f0 b\u00e6rist forstj\u00f3ranum.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00de\u00fa, lesandi minn g\u00f3\u00f0ur, skilur n\u00fa a\u00f0 m\u00e9r var or\u00f0i\u00f0 nokku\u00f0 heitt \u00ed hamsi.<\/p>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-image size-large\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"763\" height=\"524\" src=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2022\/06\/img_1421.jpg?w=763\" alt=\"\" class=\"wp-image-3262\" \/><\/figure>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">J\u00e6ja, \u00fej\u00f3nustufulltr\u00fainn \u00feaul\u00e6f\u00f0i s\u00fdndi mikla lipur\u00f0 og rausn og sag\u00f0ist geta fellt ni\u00f0ur geymslugj\u00f6ldin. J\u00e1, takk!<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">-En hva\u00f0 er \u00ed pakkanum? spur\u00f0i \u00e9g.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">-\u00dea\u00f0 er b\u00f3k \u00ed \u00feessum pakka. Vi\u00f0 fengum nefnilega leyfir fr\u00e1 \u00fe\u00e9r, eins og \u00fe\u00fa manst, til a\u00f0 opna pakkann, sem \u00fe\u00fa borga\u00f0ir 495 kr\u00f3nur fyrir, en n\u00fa \u00fearftu a\u00f0 senda okkur reikning.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c9g svara\u00f0i og sag\u00f0ist \u00feegar hafa sent uppl\u00fdsingar \u00ed t\u00f6lvusvari um ver\u00f0 \u00e1 b\u00f3k (29,99 dollarar) sem \u00e9g hef\u00f0i panta\u00f0 fr\u00e1 Bandar\u00edkjunum \u00ed jan\u00faar og v\u00e6ri ekki enn komin en hef\u00f0i fengi\u00f0 uppl\u00fdsingar fr\u00e1 s\u00f6lua\u00f0ila um a\u00f0 hann hef\u00f0i sent n\u00fdtt eintak en hvergi kom fram \u00ed svari hans a\u00f0 \u00feetta v\u00e6ri 2ja gramma pakki og f\u00e6ri \u00ed gegnum Frakkland. B\u00f3kin er sem sagt fr\u00e1 Bandar\u00edsku fyrirt\u00e6ki og send \u00ed gegnum Frakkland, en samt tekur P\u00f3sturinn s\u00e9rstakt &#8220;K\u00ednagjald&#8221; upp\u00e1 kr\u00f3nur 400. Er stofnunin \u00fe\u00e1 b\u00fain a\u00f0 flytja Bandar\u00edkin til K\u00edna \u00e1 sama h\u00e1tt og \u00cdsland \u00far Evr\u00f3pu? Er P\u00f3sturinn me\u00f0 s\u00e9rstaka sp\u00e1d\u00f3msg\u00e1fu um yfirt\u00f6ku K\u00ednverja \u00e1 \u00f6llum heimsins l\u00f6ndum?<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c9g spur\u00f0i \u00fej\u00f3nustufulltr\u00faann hvernig \u00e9g hef\u00f0i \u00e1tt a\u00f0 geta m\u00e9r \u00feess til a\u00f0 \u00ed pakkanum v\u00e6ri 2ja gramma b\u00f3k. Sl\u00edkar b\u00e6kur f\u00e1st bara \u00ed Putalandi sem G\u00falliver heims\u00f3tti \u00e1 18. \u00f6ld, en v\u00e6ri n\u00fa li\u00f0i\u00f0 undir lok. Blanda\u00f0i henni reyndar ekkert \u00ed s\u00f6guna um Putaland. En \u00fearna var \u00fe\u00e1, sem sagt, komin \u00ed lj\u00f3s, me\u00f0 \u00e6rnum kostna\u00f0i og fyrirh\u00f6fn, sem st\u00f3\u00f0 \u00ed 2 vikur, b\u00f3kin fr\u00e1 bandar\u00edska fyrirt\u00e6kinu.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00de\u00e1 fann \u00e9g \u00ed t\u00f6lvup\u00f3sth\u00f3lfinu m\u00ednu p\u00f3st fr\u00e1 s\u00f6lua\u00f0ilanum fr\u00e1 \u00fev\u00ed \u00ed byrjun jan\u00faar me\u00f0 mynd af reikningi. \u00dear kemur fram a\u00f0 b\u00f3kin kosta\u00f0i 29,99 bandar\u00edkja dali e\u00f0a um 3.700 \u00edslenskar kr\u00f3nur. Flutningskostna\u00f0ur var 9,99 dalir e\u00f0a 1.300 kr\u00f3nur. Samtals 5.000 kr\u00f3nur. \u00c9g haf\u00f0i sent p\u00f3stinum ver\u00f0 b\u00f3karinnar nokkru fyrr en ekki geti\u00f0 um sendingarkostna\u00f0inn sem var au\u00f0vita\u00f0 fyrir flutningi b\u00f3karinnar a\u00f0 dyrum m\u00ednum \u00ed Reykjav\u00edk en ekki til Frakklands sem er \u00ed Evr\u00f3pu en \u00cdsland er ekki lengur \u00fear a\u00f0 skilningi P\u00f3stsins eins og fyrr er geti\u00f0.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Svo kom reikningurinn fyrir alla hina ofurlipru \u00fej\u00f3nustu P\u00f3stsins upp\u00e1 kr\u00f3nur 1.900 og \u00feegar \u00e9g haf\u00f0i reynt a\u00f0 uppf\u00e6ra uppl\u00fdsingar m\u00ednar um grei\u00f0slukort \u00e1 vefnum flotta og borga\u00f0 me\u00f0 kortinu, komu skilabo\u00f0 um a\u00f0 ekki hef\u00f0i tekist a\u00f0 skuldf\u00e6ra fyrir \u00fej\u00f3nustuna.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c9g hugsa\u00f0i me\u00f0 m\u00e9r: \u00c1 morgun kemur betri t\u00ed\u00f0 me\u00f0 Fyrsta sumardegi og \u00e1 f\u00f6studaginn reyni \u00e9g aftur a\u00f0 grei\u00f0a me\u00f0 kortinu m\u00ednu. En \u00fe\u00e1 fann \u00e9g \u00fea\u00f0 \u00fat \u00e1 vefnum \u00ed millit\u00ed\u00f0inni a\u00f0 b\u00fai\u00f0 v\u00e6ri a\u00f0 skuldf\u00e6ra \u00fej\u00f3nustuna, kr\u00f3nur 1.900 og pakkinn kominn \u00ed afgrei\u00f0slu \u00e1 Melunum. Skilabo\u00f0in um a\u00f0 ekki hef\u00f0i tekist a\u00f0 skuldf\u00e6ra voru \u00fear me\u00f0 ekki r\u00e9tt \u00fev\u00ed grei\u00f0slan var n\u00fa komin \u00ed gengum hina fl\u00f3knu t\u00f6lvuheima fyrirt\u00e6kisins og n\u00fa me\u00f0 s\u00e9rstakri gjaldt\u00f6ku fyrir a\u00f0 taka vi\u00f0 grei\u00f0slunni upp\u00e1 450 kr\u00f3nur, sta\u00f0grei\u00f0slu af Debetkorti!<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Ver\u00f0i\u00f0 \u00e1 b\u00f3kinni me\u00f0 sendingarkostna\u00f0i haf\u00f0i \u00fear me\u00f0 h\u00e6kka\u00f0 um 38%. Og ferli\u00f0 teki\u00f0 2 vikur!<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Mynd af reikningnum fylgir h\u00e9r. Sko\u00f0um hann n\u00e1nar:<\/p>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-image size-large\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"1383\" height=\"951\" src=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2022\/06\/img_1423.jpg?w=1024\" alt=\"\" class=\"wp-image-3265\" \/><figcaption>Ver\u00f0 b\u00f3karinnar og flutningskostna\u00f0ur og svo gjaldtaka P\u00f3stsins<\/figcaption><\/figure>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Sendingargjald fr\u00e1 Evr\u00f3pu til \u00cdslands \u00fe.e.a.s. fr\u00e1 Frakklandi kr. 400. \u00c1st\u00e6\u00f0an er a\u00f0 K\u00ednverjar eru svo sni\u00f0ugir \u00ed samingum vi\u00f0 Evr\u00f3pu. En \u00feetta er ekki p\u00f6ntun fr\u00e1 K\u00edna heldur Bandar\u00edkjunum!<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">N\u00e6st er Ums\u00fdslugjald E3 &#8211; Sj\u00e1lfvirk skuldf\u00e6rsla kr. 450, gjald fyrir a\u00f0 taka af Debetkorti m\u00ednu, sem er \u00edgildi sta\u00f0grei\u00f0slu. Ekki tekur B\u00f3nus 450 kr\u00f3nu gjald fyrir skuldf\u00e6rslu af kortunum m\u00ednum, hvert sinn sem \u00e9g geri innkaup \u00fear \u00e1 b\u00e6 og ekki heldur Kr\u00f3nan e\u00f0a Nett\u00f3, ekkert fyrirt\u00e6ki sem \u00e9g \u00feekki, nema P\u00f3sturinn.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00de\u00e1 ber n\u00e6st a\u00f0 telja fyrrnefnd gjald upp\u00e1 495 kr\u00f3nur fyrir a\u00f0 f\u00e1 leyfi til a\u00f0 \u00feukla 2ja gramma pakkann, opna hann og komast a\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00ed honum v\u00e6ri b\u00f3k \u00e1n reiknings. Hlj\u00f3mar eins og l\u00fdsing \u00ed \u00e6silegri gl\u00e6pas\u00f6gu.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Og a\u00f0 lokum kemur svo krumla r\u00edkisins og tekur 555 kr\u00f3nur af \u00feessum pakka \u00fev\u00ed \u00feetta er b\u00f3k sem kemur inn \u00ed b\u00f3kalandi\u00f0 mikla og sl\u00edkt ver\u00f0ur a\u00f0 tolla \u00fev\u00ed \u00fea\u00f0 ver\u00f0ur a\u00f0 hamla gegn erlendri menningu og listum (\u00feetta er listaverkab\u00f3k) og sekta f\u00f3lk sem les b\u00e6kur \u00e1 \u00fatlensku.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Til \u00feess a\u00f0 vi\u00f0halda \u00feessari vitleysu \u00ed rafv\u00e6ddu \u00fej\u00f3\u00f0f\u00e9lagi hefur r\u00edki\u00f0 sam\u00feykkt einkav\u00e6\u00f0ingu P\u00f3stsins sem er reyndar kominn a\u00f0 f\u00f3tum fram vegna brasks og \u00e6vint\u00fdramennsku \u00e1 li\u00f0num \u00e1rum me\u00f0 illa \u00edgrundu\u00f0um fj\u00e1rfestingum \u00ed \u00f3skyldum greinum.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Og vi\u00f0 borgum br\u00fasann, \u00edb\u00faar \u00cdslands, sem er sem stendur, utan Evr\u00f3pu, a\u00f0 skilningi P\u00f3stsins.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hvernig kemst \u00e9g framhj\u00e1 \u00feessu vola\u00f0a fyrirt\u00e6ki sem heitir P\u00f3sturinn?<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Ver\u00f0 \u00e9g a\u00f0 semja vi\u00f0 f\u00f3lk sem fer\u00f0ast me\u00f0 flugi um a\u00f0 bera fyrir mig br\u00e9f og pakka \u00e1 milli landa, milli heims\u00e1lfa, \u00fev\u00ed \u00cdsland er ekki lengur \u00ed Evr\u00f3pu?<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">N\u00e6st \u00feegar \u00e9g \u00fearf a\u00f0 flytja b\u00f3k milli landa fer \u00e9g kannski bara su\u00f0ur \u00ed Leifsst\u00f6\u00f0 og sem vi\u00f0 eitthvert bur\u00f0ard\u00fdr um a\u00f0 taka b\u00f3k me\u00f0 s\u00e9r til m\u00edn \u00ed bakalei\u00f0inni. \u00dea\u00f0 ver\u00f0ur mun \u00f3d\u00fdrara og fyrirhafnarminna en 2ja vikna \u00feref og fl\u00e6kjustig \u00ed P\u00f3stinum me\u00f0 \u00e6rnum kostna\u00f0i.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Tilraun m\u00edn til a\u00f0 velja p\u00f3stbox \u00e1 Grandanum f\u00f3r ekki \u00ed gegnum t\u00f6lvukerfi P\u00f3stsins sem er au\u00f0vita\u00f0 hanna\u00f0 af h\u00e1launu\u00f0um kerfisfr\u00e6\u00f0ingum og \u00fev\u00ed var\u00f0 \u00e9g a\u00f0 st\u00edga \u00e1 bak m\u00ednum hj\u00f3lhesti og \u00feeysa \u00fat \u00e1 Hagatorg og s\u00e6kja pakkann.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00dea\u00f0 reyndist \u00fe\u00f3 vera besta gj\u00f6r\u00f0in \u00ed \u00f6llu \u00feessu ferli, b\u00e6\u00f0i holl og hressandi. St\u00falkan \u00ed afgrei\u00f0slunni \u00fear var kurteis og elskuleg er h\u00fan ba\u00f0 um kennit\u00f6lu og nafn og kvaddi hj\u00f3lrei\u00f0amanninn sem var Nota Bene b\u00e6\u00f0i me\u00f0 hj\u00e1lm og gr\u00edmu.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Teki\u00f0 skal fram a\u00f0 \u00feetta er rita\u00f0 \u00e1 \u00cdslandi \u00e1ri\u00f0 2021, en ekki afrita\u00f0 \u00far b\u00f3kinni 1984 eftir George Orwell.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Svo rann upp \u00e1ri\u00f0 2022 og \u00e9g f\u00e6 senda b\u00f3k fr\u00e1 s\u00f6guf\u00e9lagi h\u00e9ra\u00f0sins \u00ed Noregi \u00fear sem \u00e9g bj\u00f3 um hr\u00ed\u00f0. B\u00f3kin er skr\u00e1\u00f0 sem gj\u00f6f og send til \u00cdslands &#8211; og viti menn: Teki\u00f0 er &#8220;Sendingargjald &#8211; Evr\u00f3pa&#8221; kr. 400 sem \u00e9g \u00e1 a\u00f0 borga \u00fer\u00e1tt fyrir a\u00f0 Nor\u00f0menn hafi \u00feegar greitt fyrir sendinguna fr\u00e1 Noregi til \u00cdslands. \u00dea\u00f0 \u00fearf sem sagt a\u00f0 grei\u00f0a tvisvar fyrir a\u00f0 senda eina b\u00f3k fr\u00e1 Noregi til \u00cdslands. Fyrst borga Nor\u00f0menn og svo \u00cdslendingurinn fyrir eina fer\u00f0 fyrir eina b\u00f3k fr\u00e1 Noregi til \u00cdslands. Vi\u00f0 \u00feetta b\u00e6tist fyrrnefnt &#8220;Ums\u00fdslugjald&#8221; 450 kr. fyrir a\u00f0 skuldf\u00e6ra korti\u00f0 mitt og loks tollur e\u00f0a &#8220;A\u00f0flutningsgj\u00f6ld E3&#8221; kr. 372 e\u00f0a samtals 1.222 fyrir l\u00edti\u00f0 kver sem er gj\u00f6f fr\u00e1 Noregi til m\u00edn. Sj\u00e1 reikninginn h\u00e9r:<\/p>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-image size-large\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"1813\" height=\"1775\" src=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2022\/06\/img_1419.jpg?w=1024\" alt=\"\" class=\"wp-image-3266\" \/><figcaption>D\u00fdrt er a\u00f0 kaupa b\u00e6kur fr\u00e1 \u00fatl\u00f6ndum og l\u00e1ta P\u00f3stinn okra \u00e1 \u00fej\u00f3nustunni.<\/figcaption><\/figure>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">N\u00fa er m\u00e9r n\u00f3g bo\u00f0i\u00f0. Hvernig kemst \u00e9g framhj\u00e1 \u00feessu vola\u00f0a fyrirt\u00e6ki sem heitir P\u00f3sturinn?<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c9g ver\u00f0 a\u00f0 finna eitthva\u00f0 anna\u00f0 fyrirt\u00e6ki.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hj\u00e1lp!<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>H\u00f6fundur hefur \u00edtreka\u00f0 lent \u00ed hremmingum \u00feegar hann hefur fengi\u00f0 pakka fr\u00e1 \u00fatl\u00f6ndum me\u00f0 einhverju sem hann hefur panta\u00f0 e\u00f0a fengi\u00f0 sent sem gj\u00f6f. H\u00e9r kemur fl\u00e6kjusagan.<\/p>\n","protected":false},"author":2,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_jetpack_newsletter_access":"","_jetpack_dont_email_post_to_subs":false,"_jetpack_newsletter_tier_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paywalled_content":false,"_jetpack_hide_featured_image":false,"_jetpack_featured_image_duplicate_dismissed":0,"_jetpack_feature_clip_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":"","jetpack_post_was_ever_published":false},"categories":[4],"tags":[],"class_list":["post-3263","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-greinar-og-hugvekjur-articles"],"jetpack_sharing_enabled":true,"jetpack_featured_media_url":"","_links":{"self":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/3263","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/users\/2"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcomments&post=3263"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/3263\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fmedia&parent=3263"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcategories&post=3263"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Ftags&post=3263"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}