{"id":3186,"date":"2022-04-28T18:46:29","date_gmt":"2022-04-28T18:46:29","guid":{"rendered":"http:\/\/ornbardur.com\/2022\/04\/28\/minningarord-gunnar-i-gudjonsson-1941-2022\/"},"modified":"2022-04-28T18:46:29","modified_gmt":"2022-04-28T18:46:29","slug":"minningarord-gunnar-i-gudjonsson-1941-2022","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/ornbardur.com\/?p=3186","title":{"rendered":"+Gunnar I. Gu\u00f0j\u00f3nsson 1941-2022"},"content":{"rendered":"\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00d6rn B\u00e1r\u00f0ur J\u00f3nsson<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Minningaror\u00f0<\/p>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-image size-large\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"599\" height=\"1034\" src=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2022\/04\/open-fwd-re-sacc81lmaskracc81-neskirkja-1500-28.-apricc81l.png?w=593\" alt=\"\" class=\"wp-image-3184\" \/><\/figure>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>+Gunnar I. Gu\u00f0j\u00f3nsson<\/strong><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">1941-2022<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Myndlistarma\u00f0ur og gr\u00e1sleppukarl m.m.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00datf\u00f6r (b\u00e1lf\u00f6r) fr\u00e1 Neskirkju,<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">fimmtudaginn 28. apr\u00edl 2022 kl. 15<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Ritningarlestrar eru ne\u00f0anm\u00e1ls en eru ekki \u00e1 uppt\u00f6kunni.<\/p>\n\n\n\n<!--more-->\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-audio\"><audio controls src=\"https:\/\/pub-c849b6aaf98340c4bec7b480b0f7ffe9.r2.dev\/2022\/04\/gunnar-i-gudjocc81nsson-1941-2022.m4a\"><\/audio><\/figure>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">&#8220;Allt er s\u00edstritandi,<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">enginn ma\u00f0ur f\u00e6r \u00fev\u00ed me\u00f0 or\u00f0um l\u00fdst,<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">auga\u00f0 ver\u00f0ur aldrei satt af a\u00f0 sj\u00e1<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">og eyra\u00f0 ver\u00f0ur aldrei mett af a\u00f0 heyra.&#8221; (Pr\u00e9d. 1.8)<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hva\u00f0 s\u00e9r\u00f0u og heyrir? Veistu a\u00f0 hvergi \u00ed ver\u00f6ldinni nema h\u00e9r \u00e1 j\u00f6r\u00f0u heyrast hlj\u00f3\u00f0. Hlj\u00f3\u00f0 \u00fearf titrandi agnir til a\u00f0 berast og \u00ed geimnum er algj\u00f6rt t\u00f3mar\u00fam og \u00fev\u00ed ekkert hlj\u00f3\u00f0. En h\u00e9r hlj\u00f3mar n\u00e1tt\u00faran og t\u00f3nlist berst til okkar og vi\u00f0 heyrum flest okkar mannsins m\u00e1l.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Svo er \u00fea\u00f0 sj\u00f3nin. Vi\u00f0 sj\u00e1um vegna \u00feess a\u00f0 vi\u00f0 b\u00faum \u00ed ver\u00f6ld lj\u00f3ss og lita. V\u00ed\u00f0a \u00ed geimnum eru svarthol og \u00fear er ekkert a\u00f0 sj\u00e1.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hvernig s\u00e9r\u00f0u ver\u00f6ldina, umhverfi \u00feitt?<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Gunnar s\u00e1 allt me\u00f0 s\u00ednum n\u00e6mu augum. Hann skynja\u00f0i umhverfi sitt og var mj\u00f6g tengdur \u00fev\u00ed. Hann var n\u00e1tt\u00farubarn, haf\u00f0i yndi af d\u00fdrum, hlusta\u00f0i eftir hlj\u00f3\u00f0um \u00feeirra, fylgdist me\u00f0 atferli \u00feeirra og naut vin\u00e1ttu vi\u00f0 d\u00fdrin. \u00d3lst upp h\u00e9r vi\u00f0 \u00c6gis\u00ed\u00f0una, l\u00e9k s\u00e9r \u00ed fj\u00f6runni sem str\u00e1kur og f\u00f3r ungur me\u00f0 Birni br\u00f3\u00f0ur s\u00ednum \u00e1 gr\u00e1sleppu vi\u00f0 \u00c6gis\u00ed\u00f0u og s\u00ed\u00f0ar ger\u00f0i hann \u00fat sj\u00e1lfur \u00e1 trillunni sinni Birtu.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hann var flinkur a\u00f0 selja fiskinn e\u00f0a skipta honum fyrir eitthva\u00f0 anna\u00f0. \u00c9g f\u00e6 sj\u00e1lfur vatn \u00ed munninn af tilhugsuninni um signa gr\u00e1sleppu. \u00deegar Gunnar st\u00f3\u00f0 og seldi signa gr\u00e1sleppu hr\u00f3pa\u00f0i hann: &#8220;konfektgr\u00e1sleppa&#8221;. Hann bj\u00f3 til \u00feetta or\u00f0 sem henta\u00f0i fyrir fisk sem var kannski \u00f6gn meira sigin. Hann var or\u00f0heppinn og skemmtilegur.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Gunnar var gle\u00f0igjafi, brosmildur, sag\u00f0i margar meinlausar s\u00f6gur af sj\u00e1lfum s\u00e9r og \u00f6\u00f0ru f\u00f3lki af mikilli innlifun. \u00c9g hef \u00e6t\u00ed\u00f0 fari\u00f0 sparlega me\u00f0 or\u00f0i\u00f0 l\u00edfsk\u00fanstner en \u00fea\u00f0 or\u00f0 get \u00e9g vel teki\u00f0 m\u00e9r \u00ed munn um Gunnar. Hann var n\u00e1tt\u00farubarn, listm\u00e1lari og vei\u00f0ima\u00f0ur lungann \u00far \u00e6vi sinni.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">&#8220;Auga\u00f0 ver\u00f0ur aldrei satt af a\u00f0 sj\u00e1&#8221;. En augun allra sj\u00e1 aldrei n\u00e1kv\u00e6mlega \u00fea\u00f0 sama. Gunnar s\u00e1 ver\u00f6ldina s\u00ednum augum og haf\u00f0i n\u00e6mt lita- og formskin. Hann t\u00f3k vel eftir hlutunum.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Gunnar Ingibergur Gu\u00f0j\u00f3nsson h\u00e9t hann fullu nafni og f\u00e6ddist a\u00f0 Bjarnast\u00f6\u00f0um \u00ed Gr\u00edmssta\u00f0aholti 5. september 1941.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Foreldrar hans voru hj\u00f3nin Gu\u00f0j\u00f3n Bjarnason, f. 28. \u00e1g\u00fast 1888, d. 16. \u00e1g\u00fast 1951, \u00fatvegsb\u00f3ndi \u00e1 Bjarnast\u00f6\u00f0um og Gu\u00f0r\u00fan Valger\u00f0ur Gu\u00f0j\u00f3nsd\u00f3ttir, f. 24. j\u00fan\u00ed 1896, d. 22. jan\u00faar 1988, h\u00fasm\u00f3\u00f0ir og h\u00e6nsnab\u00f3ndi \u00e1 \u00c6gis\u00ed\u00f0u.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Systkini Gunnars voru:<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Bj\u00f6rn, f. 11. n\u00f3vember 1921, d. 2008, trillu\u00fatger\u00f0arma\u00f0ur vi\u00f0 \u00c6gis\u00ed\u00f0u,<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00deorbj\u00f6rg, f. 11. apr\u00edl 1923, d. 2017, h\u00fasm\u00f3\u00f0ir og gar\u00f0yrkjukona vi\u00f0 gr\u00f3\u00f0rarst\u00f6\u00f0ina Gr\u00e6nuhl\u00ed\u00f0 og<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Bjarni, f. 17. \u00e1g\u00fast 1927, bar\u00fej\u00f3nn \u00e1 H\u00f3tel Fluglei\u00f0um, d. 2015.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Gunnar var \u00e1 10. \u00e1ri er fa\u00f0ir hans l\u00e9st og \u00fev\u00ed var hann miki\u00f0 me\u00f0 \u00deorbj\u00f6rgu systur sinni sem t\u00f3k hann undir sinn verndarv\u00e6ng en h\u00fan var 18 \u00e1ra er Gunnar f\u00e6ddist. H\u00fan var honum \u00e6t\u00ed\u00f0 hj\u00e1lpleg.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">B\u00f6rn Gunnars eru:<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00d3l\u00f6f, f. 28. desember 1968,<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hlynur, f. 23. apr\u00edl 1973,<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c1sd\u00eds Birta, f. 13. ma\u00ed 1978,<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Dagmar Evelyn, f. 31. mars 1986,<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Alexandra An\u00edta, f. 20. desember 1988 og<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Erik Bjarni, f. 21. j\u00fan\u00ed 1991.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Gunnar skilur eftir sig st\u00f3ran h\u00f3p afa- og langafabarna. Hann var afar stoltur af \u00f6llum s\u00ednum afkomendum.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hann var kvennalj\u00f3mi og \u00e1tti margar k\u00e6rustur um \u00e6vina og eigna\u00f0ist 6 b\u00f6rn me\u00f0 4 konum. B\u00f6rnin brostu til m\u00edn undirleit \u00feegar kom a\u00f0 \u00feessu \u00e1 uppl\u00fdsingarfundi sem \u00e9g \u00e1tti me\u00f0 \u00feeim. \u00c9g sag\u00f0i \u00feeim a\u00f0 eitt sinn hef\u00f0i \u00e9g jar\u00f0sungi\u00f0 mann sem eigna\u00f0ist 5 b\u00f6rn me\u00f0 5 konum og sag\u00f0ist hafa sagt \u00ed \u00fatf\u00f6r hans a\u00f0 hann hafi veri\u00f0 eins og vitur hagfr\u00e6\u00f0ingur sem setti ekki \u00f6ll eggin s\u00edn \u00ed s\u00f6mu k\u00f6rfu. M\u00e1li\u00f0 var leyst. L\u00edfi\u00f0 er oft skemmtilegt einmitt \u00ed s\u00ednum b\u00e6gslagangi og \u00f3\u00fearfi a\u00f0 hneykslast \u00e1 \u00e1stinni sem fer s\u00ednar lei\u00f0ir \u00ed mannl\u00edfinu.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Margs er a\u00f0 minnast. Gunnar haf\u00f0i auga fyrir f\u00f6grum hlutum og gjarnan ant\u00edk. Hann s\u00e1 notagildi \u00ed \u00f6llu. Hann var gjafmildur og sag\u00f0i oft: &#8220;A\u00f0rir hafa meira not fyrir \u00feetta en \u00e9g&#8221;. Hann t\u00f3k eitt sinn af s\u00e9r sk\u00f3na og gaf n\u00e1unga nokkrum en f\u00f3r sj\u00e1lfur heim \u00ed rifnum sk\u00f3r\u00e6flum hans. Gunnar gaf oft til \u00feeirra sem minna mega s\u00edn \u00fer\u00e1tt fyrir a\u00f0 oft hafi l\u00edti\u00f0 veri\u00f0 \u00ed veskinu. Hann gat veri\u00f0 svona imp\u00fals\u00edfur. Ef ver\u00f0ri\u00f0 var lei\u00f0inlegt \u00fe\u00e1 h\u00e9lt hann sig heima og slaka\u00f0i \u00e1 me\u00f0 g\u00f3\u00f0a b\u00f3k.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hann f\u00f3r v\u00ed\u00f0a. \u00deekkti landi\u00f0 sitt vel og var fr\u00f3\u00f0ur um \u00cdsland. Hann las alla t\u00ed\u00f0 miki\u00f0 og haf\u00f0i \u00e1huga \u00e1 heimspeki og ein af hans upp\u00e1hdsb\u00f3kum b\u00f3kum var B\u00f3kin um veginn efti Lao Tse sem er yfir tv\u00f6 \u00fe\u00fasund \u00e1ra g\u00f6mul. Hann var s\u00f6guma\u00f0ur og sag\u00f0i f\u00f3lki s\u00f6gur sem hann kalla\u00f0i,Vessels\u00f6gur. \u00de\u00e6r voru sk\u00e1lda\u00f0ar og t\u00f3ku breytingum \u00ed hvert sinn sem hann dr\u00f3 \u00fe\u00e6r fram.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hann dvaldi oft \u00ed Grafningnum \u00e1 skika sem hann \u00e1tti \u00ed landi Kr\u00f3ks vi\u00f0 \u00deingvallavatn sem heitir, H\u00f3nef. Hann keypti sm\u00e1h\u00fdsi sem var pr\u00edmit\u00edft og rafmagnslaust en hann gat elda\u00f0 \u00fear og sofi\u00f0 og noti\u00f0 tilverunnar. Hann \u00e1tti d\u00fafur mestan part \u00e6vi sinnar og eitt sinn kom hann me\u00f0 skrautd\u00fafu fr\u00e1 \u00fatl\u00f6ndum og faldi hana vi\u00f0 brj\u00f3st s\u00e9r.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00cd sveitinni vissi hann a\u00f0 t\u00f3fan haf\u00f0i \u00e1huga \u00e1 d\u00fafum og g\u00e6tti \u00feess a\u00f0 t\u00f3fan k\u00e6mist ekki of n\u00e1l\u00e6gt. Hann st\u00fadera\u00f0i d\u00fdrin, vissi a\u00f0 t\u00f3fan marka\u00f0i s\u00e9r \u00f3\u00f0al me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 m\u00edga \u00e1 vissum st\u00f6\u00f0um og \u00fea\u00f0 ger\u00f0i Gunnar \u00e1 s\u00ednu landi og \u00fea\u00f0 virka\u00f0i \u00e1 t\u00f3funa sem kom ekki nema a\u00f0 m\u00f6rkum \u00f3\u00f0als Gunnars. Og \u00fear s\u00e1u h\u00fan og krummi um uppvaski\u00f0 fyrir hann en Gunnar lag\u00f0i diskana me\u00f0 afg\u00f6ngum ni\u00f0ur \u00fear og f\u00e9kk \u00fe\u00e1 hreina a\u00f0 morgni. Gunnar var hestama\u00f0ur og vildi eiga fallega hesta og naut \u00feeirra me\u00f0 d\u00e6trum s\u00ednum.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00deingvallavatn er r\u00f3mu\u00f0 n\u00e1tt\u00faruperla og ekki spillti \u00fea\u00f0 \u00e1n\u00e6gju Gunnars a\u00f0 vera \u00fear \u00e1 vei\u00f0um en \u00f6nnur \u00e6ttin hans \u00e1 r\u00e6tur \u00e1 nokkrum st\u00f6\u00f0um \u00ed kringum vatni\u00f0. Hann las vatni\u00f0 svo vel. A\u00f0 vei\u00f0a \u00ed vatninu var honum nautn. Hann dr\u00f3 margan v\u00e6nan fiskinn \u00fear og elda\u00f0i \u00ed H\u00f3nefi og naut \u00feess a\u00f0 gefa f\u00f3lki a\u00f0 bor\u00f0a. Stundum \u00feegar hann f\u00f3r \u00ed b\u00e6inn haf\u00f0i hann me\u00f0 s\u00e9r v\u00e6na fiska og lag\u00f0i \u00fe\u00e1 stundum inn \u00e1 g\u00f3\u00f0um veitingasta\u00f0 og f\u00e9kk a\u00f0 bor\u00f0a \u00fat \u00e1 aflann. Fiskurinn var hans skiptimynt en hann gaf l\u00edka oft vinum \u00ed so\u00f0i\u00f0.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">En \u00fer\u00e1tt fyrir allt frelsi\u00f0 og fur\u00f0ulegheitin h\u00e9lt hann \u00ed hef\u00f0ir. Hann haf\u00f0i gaman af afm\u00e6lum og f\u00e6r\u00f0i b\u00f6rnunum gjafir af \u00fev\u00ed tilefni og svo einnig \u00e1 degi Valent\u00ednusar. \u00c1 gaml\u00e1rskv\u00f6ldi vildi hann hafa alla saman. \u00c1 p\u00e1skum kom hann me\u00f0 p\u00e1skaliljur og h\u00fdacintur \u00e1 j\u00f3lum. Hann elska\u00f0i g\u00f3\u00f0an mat, heimalaga\u00f0an. Hann drakk ekki kaffi einn en f\u00f3r \u00e1 kaffih\u00fas til a\u00f0 hitta f\u00f3lk og \u00fea\u00f0 var einmitt \u00e1 kaffih\u00fasi sem \u00e9g kynntist honum fyrir aldam\u00f3t. Vi\u00f0 spj\u00f6llu\u00f0um oft saman um hitt og \u00feetta.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hann haf\u00f0i komi\u00f0 v\u00ed\u00f0a vi\u00f0. Var \u00ed Barcelona um t\u00edma og l\u00edka \u00ed Hollandi, heims\u00f3tti England og fleiri l\u00f6nd og kom til D\u00f3min\u00edska l\u00fd\u00f0veldisins \u00ed Karab\u00edska hafinu.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hann f\u00f3r s\u00ednar eigin lei\u00f0ir \u00ed l\u00edfinu og svo var hann trendsetter sem haf\u00f0i sinn st\u00edl. \u00dei\u00f0 muni\u00f0 eflaust eftir \u00fev\u00ed a\u00f0 hann gekk oft \u00ed g\u00famm\u00edsk\u00f3m og ullarsokkum en \u00feegar einhverjir uppar f\u00f3ru a\u00f0 herma eftir honum \u00fe\u00e1 h\u00e6tti hann og skipti um st\u00edl. Hann var oft \u00e1 undan \u00f6\u00f0rum og var \u00fev\u00ed s\u00e1 sem m\u00f3ta\u00f0i t\u00edzkuna.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hann m\u00e1la\u00f0i v\u00ed\u00f0a \u00fati \u00ed n\u00e1tt\u00farunni en var \u00e1 mismunandi t\u00edmum me\u00f0 vinnustofu \u00ed Bolholti, Tryggvag\u00f6tu, \u00e1 Arnarstapa og \u00ed Sv\u00ed\u00fe\u00f3\u00f0 og \u00fear kunni hann svo sannarlega a\u00f0 meta sumrin og eplatr\u00e9n.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hann kynnist fyrst m\u00e1laralist \u00feegar hann starfa\u00f0i \u00ed gamla M\u00e1laranum \u00ed Bankastr\u00e6ti \u00e1 unglings\u00e1rum s\u00ednum. \u00dear kynntist hann flestum af starfandi listam\u00f6nnum \u00feess t\u00edma eins og Kjarval, Gunnlaugi Bl\u00f6ndal, Gunnlaugi Scheving og fleirum. Hj\u00e1 \u00feeim hlaut hann lei\u00f0s\u00f6gn og vin\u00e1ttu, d\u00fdrm\u00e6tt veganesti fyrir eigin myndlistarferil.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Um t\u00edma starfa\u00f0i Gunnar vi\u00f0 \u00dej\u00f3\u00f0leikh\u00fasi\u00f0 \u00e1 \u00e1rum 1964-1971 sem svi\u00f0sma\u00f0ur og vi\u00f0 \u00f6nnur listr\u00e6n st\u00f6rf. Hann tala\u00f0i hressilega vi\u00f0 alla sem hann vann me\u00f0 og veitti \u00feeim stu\u00f0ning.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Gunnar stunda\u00f0i n\u00e1m \u00ed og vann a\u00f0 myndlist b\u00e6\u00f0i h\u00e9r heima og erlendis. Hann l\u00e6r\u00f0i k\u00fanstina \u00e1 Sp\u00e1ni vi\u00f0 Escuela Massana Barcelona og \u00fatskrifa\u00f0ist \u00fea\u00f0an 1975. Eftir heimkomuna fr\u00e1 Sp\u00e1ni sama \u00e1r h\u00e9lt hann st\u00f3ra s\u00fdningu \u00e1 verkum s\u00ednum \u00e1 Kjarvalsst\u00f6\u00f0um, 84 verk, og seldi \u00feau \u00f6ll. \u00deetta var hans fyrsta m\u00e1lverkas\u00fdning af \u00f3tal m\u00f6rgum sem hann h\u00e9lt um s\u00edna \u00e6vi, \u00fear \u00e1 me\u00f0al s\u00fdningu \u00ed bo\u00f0i Menningarstofnunar Bandar\u00edkjanna 1981. Myndir Gunnars hafa dreifst v\u00ed\u00f0a um l\u00f6nd.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hann var eftirherma og er sag\u00f0ur hafa n\u00e1\u00f0 a\u00f0 st\u00e6la Stef\u00e1n heitinn fr\u00e1 M\u00f6\u00f0rudal af mikilli snilld, en \u00feeir voru vinir. Hann haf\u00f0i svo gaman af Spaugstofunni a\u00f0 hann hreinlega gr\u00e9t af hl\u00e1tri yfir bestu atri\u00f0unum sem voru ekki f\u00e1.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00cd l\u00edfinu skiptast oft \u00e1 hl\u00e1tur og gr\u00e1tur. Seinustu \u00e1rin voru honum erfi\u00f0, \u00fev\u00ed hann f\u00e9kk heilabl\u00f3\u00f0fall fyrir nokkrum \u00e1rum. Hann haf\u00f0i oft nota\u00f0 or\u00f0 sem Kjarval var tamt \u00e1 tungu: &#8220;L\u00edfi\u00f0 er terpent\u00edna&#8221; og \u00fea\u00f0 v\u00edsa\u00f0i til \u00feess a\u00f0 l\u00edf listamannsins v\u00e6ri basl. L\u00edfi\u00f0 hans var terpent\u00edna hin s\u00ed\u00f0ari misserin og svo fjara\u00f0i \u00fea\u00f0 \u00fat.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00cd b\u00f3k Pr\u00e9dikarans sem fyrr var vitna\u00f0 til segir um dau\u00f0ann: &#8220;moldin hverfur aftur til jar\u00f0arinnar \u00fear sem h\u00fan \u00e1\u00f0ur var og andinn til Gu\u00f0s sem gaf hann.&#8221; (Pr\u00e9d. 12.7)<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00deetta er l\u00edfsins saga. Vi\u00f0 erum af j\u00f6r\u00f0u og hverfum \u00feanga\u00f0 aftur en Gu\u00f0 geymir l\u00edfsandann.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00datf\u00f6r er kve\u00f0ju- og sorgarstund, en h\u00fan er einnig \u00ed \u00feessu tilfelli og flestra annarra l\u00e1tinna, \u00feakkarh\u00e1t\u00ed\u00f0 fyrir \u00fea\u00f0 l\u00edf sem lifa\u00f0 var af \u00e1str\u00ed\u00f0u og gle\u00f0i.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Blessu\u00f0 s\u00e9 minnin Gunnars Ingibergs Gu\u00f0j\u00f3nssonar og Gu\u00f0 blessi \u00feig sem ert \u00e1 l\u00edfsveginum og \u00e1tt enn anda Gu\u00f0s \u00ed vitum \u00fe\u00e9r.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Amen.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">&#8211; &#8211; &#8211;<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Kve\u00f0ja fr\u00e1 Inger, fv. eiginkonu og foreldrum hennar, An\u00edtu og Erik Beckstr\u00f6m og vinum \u00ed Sv\u00ed\u00fej\u00f3\u00f0.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Eki\u00f0 ver\u00f0ur me\u00f0 kistuna eftir \u00c6gis\u00ed\u00f0unni a\u00f0 ath\u00f6fn lokinni, Gunnari til hei\u00f0urs.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Bo\u00f0i\u00f0 ver\u00f0ur til erfidrykkju h\u00e9r \u00ed safna\u00f0arheimilinu strax a\u00f0 ath\u00f6fn lokinni . . .<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Ritningarlestrar \u00ed ath\u00f6fninni:<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Pr\u00e9dikarinn 1.1-11<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Dav\u00ed\u00f0ss\u00e1lmur 126.5<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Gu\u00f0spjall: J\u00f3h. 14.1-6<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">S\u00e1lmaskr\u00e1in:<\/p>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-image size-large\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"2537\" height=\"1662\" src=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2022\/05\/screenshot-2022-04-28-at-18.42.57.png?w=1024\" alt=\"\" class=\"wp-image-3197\" \/><\/figure>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-image size-large\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"2561\" height=\"1709\" src=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2022\/05\/fwd-re-sacc81lmaskracc81-neskirkja-1500-28.-apricc81l.png?w=1024\" alt=\"\" class=\"wp-image-3198\" \/><\/figure>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00d6rn B\u00e1r\u00f0ur J\u00f3nsson Minningaror\u00f0 +Gunnar I. Gu\u00f0j\u00f3nsson 1941-2022 Myndlistarma\u00f0ur og gr\u00e1sleppukarl m.m. \u00datf\u00f6r (b\u00e1lf\u00f6r) fr\u00e1 Neskirkju, fimmtudaginn 28. apr\u00edl 2022 kl. 15 Ritningarlestrar eru ne\u00f0anm\u00e1ls en eru ekki \u00e1 uppt\u00f6kunni.<\/p>\n","protected":false},"author":2,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_jetpack_newsletter_access":"","_jetpack_dont_email_post_to_subs":false,"_jetpack_newsletter_tier_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paywalled_content":false,"_jetpack_hide_featured_image":false,"_jetpack_featured_image_duplicate_dismissed":0,"_jetpack_feature_clip_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":"","jetpack_post_was_ever_published":false},"categories":[7],"tags":[246,333],"class_list":["post-3186","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-minningarord-eulogies","tag-gudfraedi","tag-jesus"],"jetpack_sharing_enabled":true,"jetpack_featured_media_url":"","_links":{"self":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/3186","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/users\/2"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcomments&post=3186"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/3186\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fmedia&parent=3186"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcategories&post=3186"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Ftags&post=3186"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}