{"id":3026,"date":"2022-03-13T12:37:02","date_gmt":"2022-03-13T12:37:02","guid":{"rendered":"http:\/\/ornbardur.com\/2022\/03\/13\/med-thoggun-folsum-vid-soguna\/"},"modified":"2022-03-13T12:37:02","modified_gmt":"2022-03-13T12:37:02","slug":"med-thoggun-folsum-vid-soguna","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/ornbardur.com\/?p=3026","title":{"rendered":"Me\u00f0 \u00fe\u00f6ggun f\u00f6lsum vi\u00f0 s\u00f6guna"},"content":{"rendered":"\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00d6rn B\u00e1r\u00f0ur J\u00f3nsson spyr hvort vi\u00f0 \u00feurfum ekki a\u00f0 horfast \u00ed augum vi\u00f0 menningu okkar og s\u00f6gu og gangast vi\u00f0 hvoru tveggja?<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00de\u00fa getur lesi\u00f0 textann h\u00e9r fyrir ne\u00f0an e\u00f0a hlusta\u00f0 \u00e1 hl\u00f3\u00f0uppt\u00f6ku me\u00f0 h\u00f6fundi &#8211; e\u00f0a gert hvort tveggja, lesi\u00f0 og hlusta\u00f0!<\/p>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-audio\"><audio controls src=\"https:\/\/pub-c849b6aaf98340c4bec7b480b0f7ffe9.r2.dev\/2022\/03\/med-thocc88ggun-focc88lsum-vid-socc88guna.m4a\"><\/audio><\/figure>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hana dreymdi draum. H\u00fan var bara stelpa me\u00f0 f\u00e1na og bl\u00f6\u00f0ru og t\u00f3k \u00fe\u00e1tt \u00ed h\u00e1t\u00ed\u00f0\u00adar\u00adh\u00f6ldum 17. j\u00fan\u00ed. Allir voru \u00ed g\u00f3\u00f0u skapi, margir f\u00e1nar bl\u00f6ktu, \u00ed s\u00f6lu\u00adb\u00e1sum feng\u00adust pylsur og s\u00e6l\u00adg\u00e6ti. \u00dea\u00f0 var sung\u00adi\u00f0, haldnar voru r\u00e6\u00f0\u00adur, en eng\u00adinn sag\u00f0i hvers vegna dag\u00adur\u00adinn v\u00e6ri hald\u00adinn h\u00e1t\u00ed\u00f0\u00adleg\u00adur, hvorki \u00ed r\u00e6\u00f0um n\u00e9 \u00ed fr\u00e9ttum R\u00fav, hvorki \u00ed \u00fatvarpi n\u00e9 sj\u00f3n\u00advarpi. Og draum\u00adur\u00adinn h\u00e9lt \u00e1fram og n\u00fa var allt \u00ed einu runn\u00adinn upp annar dagur sem heitir Hall\u00adoween. Stelpan var \u00ed sv\u00f6rtum b\u00fan\u00adingi me\u00f0 upp\u00admj\u00f3an svartan hatt og sveif \u00e1 milli h\u00fasa \u00fear sem s\u00e6t\u00adindi voru \u00ed bo\u00f0i. D\u00e1sam\u00adlegt \u00e6vin\u00adt\u00fdri. En h\u00fan haf\u00f0i ekki hug\u00admynd um hva\u00f0 \u00feessi dagur merkti e\u00f0a hva\u00f0an hann var kom\u00adinn en haf\u00f0i hug\u00adbo\u00f0 um a\u00f0 \u00feetta v\u00e6ri amer\u00ad\u00edskur barna\u00addag\u00adur. En eng\u00adinn gat svara\u00f0 henni, eng\u00adinn vissi merk\u00adingu \u00feess\u00adara daga.<\/p>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-image size-large\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"1221\" height=\"779\" src=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2022\/03\/img_1224.jpg?w=1024\" alt=\"\" class=\"wp-image-3024\" \/><\/figure>\n\n\n\n<!--more-->\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Au\u00f0\u00advita\u00f0 var \u00feetta bara \u00edmynd\u00adun, fjar\u00adst\u00e6\u00f0u\u00adkenndur draum\u00adur, sem er au\u00f0\u00advita\u00f0 ekki \u00fea\u00f0 sama og veru\u00adleik\u00adinn. E\u00f0a hva\u00f0?<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00cd vik\u00adunni sem n\u00fa er h\u00e1lfnu\u00f0 voru 3 dagar haldnir me\u00f0 pompi og prakt: bollu\u00addag\u00adur, sprengi\u00addagur og \u00f6sku\u00addag\u00adur. B\u00f6rnin skemmtu s\u00e9r kon\u00adung\u00adlega, \u00e1tu bollur me\u00f0 bestu lyst og sum l\u00e9tu s\u00e9r meira a\u00f0 segja l\u00edka salt\u00adkj\u00f6t og baun\u00adir. Svo kom \u00f6sku\u00addag\u00adur\u00adinn me\u00f0 f\u00e6rri \u00f6sku\u00adpokum en \u00e1\u00f0ur en kannski meiri og skraut\u00adlegri b\u00fan\u00ading\u00adum. \u00deessum d\u00f6gum voru ger\u00f0 skil \u00ed fr\u00e9ttum R\u00fav \u00ed sj\u00f3n\u00advarpi, miki\u00f0 r\u00e6tt um b\u00fan\u00adinga og nammi og spjalla\u00f0 vi\u00f0 b\u00f6rn \u00ed s\u00e6t\u00adinda\u00adv\u00edmu. En hva\u00f0 vissu \u00feessi b\u00f6rn? Voru \u00feau eitt\u00adhva\u00f0 betur a\u00f0 s\u00e9r en st\u00falkan \u00ed draumnum um upp\u00adruna \u00feess\u00adara daga? \u00deau voru reyndar ekki spur\u00f0. Fj\u00f6l\u00admi\u00f0l\u00adunum fannst \u00fea\u00f0 greini\u00adlega ekki skipta neinu m\u00e1li.<\/p>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-image size-large\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"1619\" height=\"898\" src=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2022\/03\/img_1223.jpg?w=1024\" alt=\"\" class=\"wp-image-3023\" \/><figcaption class=\"wp-element-caption\">Memento mori &#8211; mundu a\u00f0 \u00fe\u00fa ert dau\u00f0leg\/ur<\/figcaption><\/figure>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Er fr\u00e9tta\u00adf\u00f3lk illa upp\u00adl\u00fdst e\u00f0a er \u00fea\u00f0 me\u00f0 for\u00add\u00f3ma og falsar \u00fear me\u00f0 s\u00f6g\u00aduna? \u00c9g vil ekki tr\u00faa sl\u00edku upp\u00e1 hei\u00f0\u00adar\u00adlegt fr\u00e9tta\u00adf\u00f3lk en \u00fea\u00f0 getur au\u00f0\u00advita\u00f0 sog\u00adast inn \u00ed t\u00ed\u00f0\u00adar\u00adanda, sem \u00fea\u00f0 sj\u00e1lft \u00e1 st\u00f3ran \u00fe\u00e1tt \u00ed a\u00f0 m\u00f3ta, t\u00ed\u00f0\u00adar\u00adanda \u00fear sem ekk\u00adert skiptir m\u00e1li nema and\u00adar\u00adtak\u00adi\u00f0, s\u00e6t\u00adind\u00adin, umb\u00fa\u00f0\u00adirn\u00adar, sell\u00ad\u00f3fani\u00f0 lit\u00adr\u00edkt og skrj\u00e1f\u00adandi.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Vi\u00f0 sem eldri erum vitum \u00far hva\u00f0a hef\u00f0 \u00feessir \u00fer\u00edr dagar koma. \u00deeir koma \u00far kristnum menn\u00ading\u00adar\u00adarfi \u00ed Evr\u00ad\u00f3pu. En getur veri\u00f0 a\u00f0 ekki megi minn\u00adast \u00e1 kirkju e\u00f0a kristni vegna \u00feess a\u00f0 \u00fea\u00f0 er ekki lengur \u00ed t\u00edsku?<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Sumir halda \u00fev\u00ed jafn\u00advel fram a\u00f0 ekki megi tala um tr\u00fa \u00ed hinu svo\u00adnefnda opin\u00adbera r\u00fdmi. \u00dear megi bara vera hlut\u00adlausar sko\u00f0\u00adan\u00adir. En eru sl\u00edkar sko\u00f0\u00adanir til? Nei, \u00fe\u00e6r fyr\u00adir\u00adfinn\u00adast hvergi \u00ed heim\u00adin\u00adum. Hlut\u00adlaus l\u00edfs\u00adsko\u00f0un er \u00fea\u00f0 sem kalla\u00f0 hefur veri\u00f0 oxymoron \u00ed m\u00e6lsku\u00adlist e\u00f0a ref\u00adhv\u00f6rf. D\u00e6mi um sl\u00edkt er t.d. eld\u00adheitur \u00eds, e\u00f0a hringa\u00adlaga fer\u00adhyrn\u00ading\u00adur. Hvor\u00adugt er til. Hlut\u00adlausar sko\u00f0\u00adanir ekki heldur og \u00feess vegna mega m\u00ednar sko\u00f0\u00adanir og \u00fe\u00ednar vera \u00e1 opin\u00adberum vett\u00advangi svo lengi sem \u00fe\u00e6r ska\u00f0a ekki a\u00f0ra.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Vi\u00f0 lifum \u00ed sam\u00adf\u00e9\u00adlagi sem telst vera undir \u00e1hrifum fj\u00f6l\u00adhyggju \u00fe.e.a.s. margs\u00adkonar \u00f3l\u00edkra sko\u00f0\u00adana. Og \u00fea\u00f0 er f\u00ednt. En \u00fe\u00fas\u00adund \u00e1ra saga okkar \u00fej\u00f3\u00f0ar og menn\u00adingar er \u00ed grunn\u00adinn evr\u00ad\u00f3psk, kristin menn\u00ading. Vi\u00f0 erum m\u00f3tu\u00f0 af gr\u00edsk\/f\u00edl\u00f3\u00ads\u00f3f\u00edskri menn\u00adingu ann\u00adars vegar og hebr\u00adesk\/krist\u00adinni hins vega. \u00deetta kall\u00ada\u00f0i P\u00e1ll heit\u00adinn Sk\u00fala\u00adson, heim\u00adspek\u00adingur og rektor H\u00cd, hugs\u00adanaflj\u00f3t\u00adi\u00f0. \u00dea\u00f0an kemur allt hr\u00e1\u00adefni\u00f0 sem nota\u00f0 hefur veri\u00f0 til a\u00f0 m\u00f3ta sam\u00adf\u00e9\u00adlag n\u00fat\u00edm\u00adans og \u00fea\u00f0 hefur teki\u00f0 aldir a\u00f0 vei\u00f0a hug\u00admyndir \u00far \u00feessu flj\u00f3ti hugs\u00adun\u00adar, tr\u00faar og heim\u00adspeki og fjalla um og r\u00f6k\u00adr\u00e6\u00f0a \u00e1 heim\u00adilum og \u00ed sk\u00f3l\u00adum, sm\u00e6rri h\u00f3pum og st\u00e6rri hreyf\u00ading\u00adum, kirkjum og tr\u00fa\u00adf\u00e9\u00adl\u00f6g\u00adum, laun\u00ad\u00feega\u00adhreyf\u00adingum og stj\u00f3rn\u00adm\u00e1la\u00adflokk\u00adum, \u00e1 \u00fej\u00f3\u00f0\u00ad\u00feingum og sam\u00adkomum \u00fej\u00f3\u00f0a. Evr\u00ad\u00f3pa og hinn Vest\u00adr\u00e6ni heimur eru bygg\u00f0 \u00e1 \u00feess\u00adari vinnu kyn\u00adsl\u00f3\u00f0\u00adanna.<\/p>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-image size-large\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"450\" height=\"246\" src=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2022\/03\/img_1227-1.jpg?w=450\" alt=\"\" class=\"wp-image-3038\" \/><\/figure>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Erum vi\u00f0 or\u00f0in svo skyni skroppin a\u00f0 vi\u00f0 vitum l\u00edti\u00f0 sem ekk\u00adert um upp\u00adruna okkar e\u00f0a r\u00e6tur menn\u00ading\u00adar\u00adinn\u00adar? Erum vi\u00f0 svo hr\u00e6dd vi\u00f0 a\u00f0 leyfa sko\u00f0\u00adanir a\u00f0 vi\u00f0 getum ekki einu sinni sagt hvers vegna fastan er haldin \u00ed allri Evr\u00ad\u00f3pu og hinum kristna heimi? Vita \u00cdslend\u00adingar ekki lengur a\u00f0 efna\u00adhagur \u00feeirra hefur byggst \u00e1 a\u00f0 flytja \u00fat salt\u00adfisk \u00ed a.m.k. 500 \u00e1r? Og hverjir keyptu allan \u00feennan fisk? Einkum ka\u00fe\u00ad\u00f3lsku l\u00f6ndin \u00ed Evr\u00ad\u00f3pu, sem minnka kj\u00f6t\u00adneyslu \u00e1 f\u00f6st\u00adunni, sem stendur \u00ed 7 vikur fr\u00e1 \u00f6sku\u00addegi til f\u00f6stu\u00addags\u00adins langa \u00ed kyrru\u00adviku. F\u00f3lk er hvatt til a\u00f0 ein\u00adfalda l\u00edfs sitt og fagna svo hressi\u00adlega \u00feegar p\u00e1ska\u00adh\u00e1\u00adt\u00ed\u00f0in gengu \u00ed gar\u00f0, sem er \u00e1 p\u00e1ska\u00addag a\u00f0 lok\u00adinni kyrru\u00adviku sem heitir ekki p\u00e1ska\u00advika Nota Bene heldur vikan sem hefst me\u00f0 p\u00e1ska\u00addegi. En hvers vegna eru p\u00e1skar haldn\u00adir? S\u00fa er hin st\u00f3ra spurn\u00ading.<\/p>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-image size-large\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"1704\" height=\"2560\" src=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2022\/03\/img_1229.jpg?w=682\" alt=\"\" class=\"wp-image-3042\" \/><figcaption class=\"wp-element-caption\">&#8220;L\u00edfi\u00f0 er saltfiskur&#8221; sag\u00f0i Salka Valka \u00ed sk\u00e1lds\u00f6gu Laxness. <br \/>H\u00e9r er presturinn me\u00f0 saltfisk \u00e1 bakinu \u00e1 h\u00f6klinum sem er \u00ed lillabl\u00e1um lit sem er litur f\u00f6stunnar. Sakramenti\u00f0 sv\u00edfur \u00ed himininum og yfir gn\u00e6fir keltneskur kross me\u00f0 s\u00ednum t\u00e1knr\u00e6na hringi sem minnir \u00e1 a\u00f0 a.m.k. helmingur landn\u00e1msmanna var kristinnar tr\u00faar.  <br \/>M\u00e1la\u00f0 af h\u00f6fundi fyrir m\u00f6rgum \u00e1rum.<\/figcaption><\/figure>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Menn\u00ading deyr ef s\u00f6gu og r\u00f3tum hennar er ekki haldi\u00f0 vi\u00f0 og breyt\u00adist bara \u00ed inni\u00adhalds\u00adlausan f\u00e1r\u00e1n\u00adleika, eins\u00adkonar syk\u00adur\u00add\u00fasu \u00ed skraut\u00adlegu sell\u00ad\u00f3f\u00adani sem br\u00e1\u00f0nar \u00ed barns\u00adins munni og dansi \u00ed kringum gull\u00adk\u00e1lfa sam\u00adt\u00edm\u00adans \u00ed til\u00adbei\u00f0slu f\u00e1n\u00fdtrar tr\u00faar \u00e1 glys \u00ed sta\u00f0 and\u00adlegra ver\u00f0\u00adm\u00e6ta.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Fj\u00f6l\u00admi\u00f0lar eru \u00e1 margan h\u00e1tt \u00ed s\u00f6mu st\u00f6\u00f0u og kristn\u00adin, \u00fea\u00f0 f\u00e6kkar hj\u00e1 \u00feeim b\u00e6\u00f0i neyt\u00adendum og svo hefur or\u00f0i\u00f0 hrun \u00ed manna\u00adhaldi og fj\u00f6ldi bla\u00f0a- og fr\u00e9tta\u00admanna er bara svipur hj\u00e1 sj\u00f3n mi\u00f0a\u00f0 vi\u00f0 fyrir 30 \u00e1rum e\u00f0a svo. Og hva\u00f0 hefur ger\u00adst? Ungt f\u00f3lk er r\u00e1\u00f0i\u00f0 \u00e1 fj\u00f6l\u00admi\u00f0l\u00adana me\u00f0 l\u00edti\u00f0 anna\u00f0 \u00ed fartesk\u00adinu en \u00feessi geng\u00adis\u00adfelldu st\u00fad\u00adents\u00adpr\u00f3f s\u00ed\u00f0\u00adari \u00e1ra og \u00feess vegna heyrir f\u00f3lk og s\u00e9r meiri amb\u00f6gur \u00ed fj\u00f6l\u00admi\u00f0lum en \u00e1\u00f0ur t\u00ed\u00f0k\u00adu\u00f0\u00adust. St\u00fad\u00adent\u00adarnir ungu \u00e1 mi\u00f0l\u00adunum rugl\u00adast oft \u00ed beyg\u00adingum og m\u00e1l\u00adkenndin hefur skroppi\u00f0 saman \u00far \u00fev\u00ed sem \u00e1\u00f0ur var \u00ed senn v\u00edtt og h\u00e1tt ni\u00f0ur \u00ed \u00fer\u00f6ngt og l\u00e1gt. Sem \u00e9g rita \u00feessar l\u00ednur var sagt fr\u00e1 \u00fev\u00ed \u00ed fr\u00e9ttum R\u00fav a\u00f0 \u201emiki\u00f0 af f\u00f3lki&#8221; hef\u00f0i veri\u00f0 \u00ed mi\u00f0\u00adb\u00e6num \u00e1 li\u00f0\u00adinni n\u00f3tt eftir afl\u00e9tt\u00adingar yfir\u00advalda \u00ed kj\u00f6l\u00adfar \u00feess a\u00f0 vi\u00f0 f\u00f3rum a\u00f0 sj\u00e1 \u00fat \u00far k\u00f3vinu. Vi\u00f0 sem eldri erum t\u00f6lum um fj\u00f6lda f\u00f3lks en m\u00e6lum ekki eins og f\u00f3lk s\u00e9 magn\u00adtek\u00adi\u00f0, vegi\u00f0 og m\u00e6lt eins fiskur dreg\u00adinn \u00far sj\u00f3.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">M\u00e9r er annt um kirkj\u00aduna og m\u00e9r er annt um fj\u00f6l\u00admi\u00f0l\u00adana sem reyna a\u00f0 \u00fej\u00f3na fj\u00f6ld\u00adanum sem er a\u00f0 hverfa \u00ed bj\u00f6rg, inn \u00ed sam\u00adf\u00e9\u00adlags\u00admi\u00f0l\u00adana, sem \u00f3gna n\u00fa rit\u00adst\u00fdr\u00f0um mi\u00f0l\u00adum. \u00c9g \u00e1 minn eigin mi\u00f0\u00adil, heima\u00ads\u00ed\u00f0u og svo get \u00e9g deilt m\u00ednum hugs\u00adunum og greinum um v\u00ed\u00f0an v\u00f6ll \u00e1n \u00feess a\u00f0 vera h\u00e1\u00f0ur bl\u00f6\u00f0\u00adum, \u00fatvarpi, sj\u00f3n\u00advarpi e\u00f0a net\u00admi\u00f0lum sem a\u00f0rir reka.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hvert mun \u00feessi \u00fer\u00f3un lei\u00f0a okk\u00adur? H\u00fan fyllir t\u00f3mi\u00f0 \u00ed hjarta okkar af inni\u00adhalds\u00adlausu \u00ferugli. L\u00edfi\u00f0 ver\u00f0ur f\u00e1t\u00e6kara. Fag\u00adleg, g\u00e6\u00f0a\u00adfj\u00f6l\u00admi\u00f0l\u00adun, fer \u00feverr\u00adandi. Fj\u00f6l\u00admi\u00f0la\u00adf\u00f3lk sem kann sitt fag, hefur vald \u00e1 tungu\u00adm\u00e1l\u00adinu og m\u00f6gu\u00adleikum \u00feess, er a\u00f0 hverfa til ann\u00adarra starfa e\u00f0a h\u00e6ttir s\u00f6kum ald\u00adurs. \u00c9g finn til me\u00f0 ykk\u00adur, k\u00e6ra fj\u00f6l\u00admi\u00f0la\u00adf\u00f3lk \u00e1 sama h\u00e1tt og \u00e9g finn til me\u00f0 kirkju og kristni sem deilir me\u00f0 ykkur \u00feeirri reynslu a\u00f0 b\u00faa vi\u00f0 breyttan veru\u00adleika.<\/p>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-image size-large\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"1836\" height=\"1203\" src=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2022\/03\/img_1226.jpg?w=1024\" alt=\"\" class=\"wp-image-3031\" \/><figcaption class=\"wp-element-caption\">Margskonar kirkju, \u00f3l\u00edkir s\u00f6fnu\u00f0ir og helgisi\u00f0ir, en Kristur er \u00feeim \u00f6llum sameiginlegur.<\/figcaption><\/figure>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Kristnin \u00ed land\u00adinu er ekki bara \u00dej\u00f3\u00f0\u00adkirkj\u00adan, heldur l\u00edka Ka\u00fe\u00ad\u00f3lska kirkj\u00adan, L\u00fath\u00aderskar fr\u00ed\u00adkirkj\u00adur, Ort\u00f3\u00addoxa kirkj\u00adan, b\u00e6\u00f0i hin r\u00fass\u00adneska og serbneska eiga s\u00edna fylgj\u00adendur h\u00e9r \u00e1 landi, Hv\u00edta\u00adsunnu\u00adhreyf\u00adingin og fr\u00ed\u00adkirkjur af sama mei\u00f0i, eru til og svo m\u00e6tti lengur telja. Innan krist\u00adinna tr\u00fa\u00adf\u00e9\u00adlaga er yfir\u00adgn\u00e6f\u00adandi meiri\u00adhluti \u00fej\u00f3\u00f0\u00adar\u00adinnar hva\u00f0 sem l\u00ed\u00f0ur \u201evin\u00ads\u00e6ldum&#8221; ein\u00adstakra tr\u00fa\u00adf\u00e9\u00adlaga. Kristnin \u00ed land\u00adinu hefur l\u00e1ti\u00f0 yfir sig ganga for\u00add\u00f3ma og fyr\u00adir\u00adlitn\u00adingu hin s\u00ed\u00f0\u00adari \u00e1rin og \u00feurft a\u00f0 \u00feola skeyt\u00ading\u00adar\u00adleysi um r\u00e9ttin til a\u00f0 i\u00f0ka s\u00edna tr\u00fa, \u00e1n \u00f6grandi umm\u00e6la e\u00f0a trufl\u00adunar af h\u00e1lfu f\u00f3lks sem \u00e1reitir og trufl\u00adar. \u00deessa hefur or\u00f0i\u00f0 vart \u00ed fj\u00f6l\u00admi\u00f0lum en meir \u00ed sam\u00adf\u00e9\u00adlags\u00admi\u00f0lum sem engin b\u00f6nd eru \u00e1, sem l\u00fata ekki neinni rit\u00adstj\u00f3rn heldur a\u00f0eins ge\u00f0\u00ad\u00fe\u00f3tta\u00advaldi ein\u00adstak\u00adlinga \u00ed mis\u00adg\u00f3\u00f0u \u00e1standi \u00feegar f\u00e6rsl\u00adurnar eru flaust\u00adurs\u00adlega rit\u00ada\u00f0ar og svo skvett \u00fat eins og \u00feegar n\u00e6t\u00adur\u00adgagn var t\u00e6mt \u00ed fl\u00f3r\u00adinn.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00deurfum vi\u00f0 ekki a\u00f0 horfast \u00ed augum vi\u00f0 menn\u00adingu okkar og s\u00f6gu og gang\u00adast vi\u00f0 hvoru tveggja? Sam\u00adf\u00e9\u00adlags\u00admi\u00f0l\u00adarnir munu ekki bjarga menn\u00ading\u00adunni \u00fev\u00ed h\u00fan mun bara bl\u00e1sa upp eins og afr\u00e9ttur \u00fear sem allt of margt f\u00e9 nagar \u00f6ll sumur og ve\u00f0rin geysa \u00e1ri\u00f0 um kring og bl\u00e1sa land\u00adinu \u00e1 haf \u00fat. Sagan geymir margt sem vert er a\u00f0 sko\u00f0a og l\u00e6ra af.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Me\u00f0 kristn\u00adinni kom staf\u00adr\u00f3fi\u00f0 og rit\u00admenn\u00adingin til lands\u00adins. Nor\u00adr\u00e6nir menn ristu r\u00fanir en skrif\u00adu\u00f0u engar b\u00e6k\u00adur. \u00deeir kunnu \u00fea\u00f0 ekki. Kristnin tengdi land okkar og \u00fej\u00f3\u00f0, me\u00f0 beinum og \u00f3beinum h\u00e6tti, vi\u00f0 evr\u00ad\u00f3pskar mennta\u00adstofn\u00adan\u00adir, klaustur og h\u00e1sk\u00f3la. Og kirkjan kenndi \u00edslenskum b\u00f6rnum a\u00f0 lesa eftir a\u00f0 si\u00f0\u00adbreyt\u00adingin haf\u00f0i fest sig \u00ed sessi.<\/p>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-image size-large\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"1645\" height=\"1666\" src=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2022\/03\/img_1225.jpg?w=1011\" alt=\"\" class=\"wp-image-3025\" \/><figcaption class=\"wp-element-caption\">Af heimas\u00ed\u00f0u Gunnlaugs S.E. Briem, leturfr\u00e6\u00f0ings<\/figcaption><\/figure>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00dej\u00f3\u00f0in kaus \u00e1 Al\u00feingi \u00e1ri\u00f0 1000 a\u00f0 taka kristni og t\u00f3k hinn n\u00fdja \u00e1tr\u00fana\u00f0 og hug\u00admynda\u00adfr\u00e6\u00f0i fram yfir hinn nor\u00adr\u00e6na \u00e1tr\u00fan\u00ada\u00f0. \u00dea\u00f0 var gert \u00e1 vitran og fri\u00f0\u00adsaman h\u00e1tt, me\u00f0 skiln\u00adingi \u00e1 a\u00f0 kristnitakan t\u00e6ki langan t\u00edma, en hef\u00f0i ekki bara veri\u00f0 and\u00adar\u00adtaks \u00e1kv\u00f6r\u00f0un \u00e1 al\u00feingi hinu forna. Og kristnitakan stendur enn yfir. Henni er ekki lok\u00adi\u00f0.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hinn kristni, Snorri Sturlu\u00adson, bjarg\u00ada\u00f0i miklum ver\u00f0\u00adm\u00e6tum me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 f\u00e6ra \u00ed letur mik\u00adil\u00adv\u00e6gan fr\u00f3\u00f0\u00adleik. Hann bjarg\u00ada\u00f0i t.d. \u00f6llu sem vita\u00f0 var um hinn nor\u00adr\u00e6na \u00e1tr\u00fan\u00ada\u00f0. Hann hef\u00f0i geta\u00f0 l\u00e1ti\u00f0 \u00fea\u00f0 \u00f3gert, en var vitr\u00adari en svo. Hann hef\u00f0i geta\u00f0 \u00feaga\u00f0 um \u00e1sa\u00adtr\u00fana eins og fj\u00f6l\u00admi\u00f0l\u00adarnir n\u00fa \u00e1 t\u00edmum \u00feegja um hinn kristna arf. Vits er enn \u00fe\u00f6rf!<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Vi\u00f0 h\u00f6fum margt a\u00f0 l\u00e6ra af for\u00adt\u00ed\u00f0\u00adinni, af menn\u00adingu okk\u00adar, af h\u00e1t\u00ed\u00f0\u00adis\u00add\u00f6gum og hef\u00f0\u00adum.<\/p>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-image size-large\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"506\" height=\"911\" src=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2022\/03\/img_1228-1.jpg\" alt=\"\" class=\"wp-image-3040\" \/><\/figure>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">F\u00f6lsum ekki s\u00f6g\u00aduna me\u00f0 \u00fe\u00f6gn og for\u00add\u00f3m\u00adum, segjum fr\u00e1 \u00ed sk\u00f3lum og fj\u00f6l\u00admi\u00f0l\u00adum. T\u00f6lum um r\u00e6tur okkar og menntum \u00fej\u00f3\u00f0\u00adina me\u00f0 s\u00f3ma\u00adsam\u00adlegum h\u00e6tti og um allt milli him\u00adins og jar\u00f0a, allt sem ver\u00f0a m\u00e1 til efl\u00adingar g\u00f3\u00f0u mann\u00adl\u00edfi. Ekki veitir okkur af, breysku f\u00f3lki, hverrar tr\u00faar sem vi\u00f0 ann\u00adars erum.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Dag\u00adinn sem \u00e9g h\u00f3f a\u00f0 rita \u00feetta grein\u00adar\u00adkorn horf\u00f0i \u00e9g \u00e1 for\u00adseta \u00dakra\u00ad\u00ednu flytja r\u00e6\u00f0u, sem er af Gy\u00f0\u00adinga\u00ad\u00e6ttum og tal\u00ada\u00f0i miki\u00f0 um tr\u00fa og svo hlut\u00adverk kirkj\u00adunnar \u00ed landi s\u00ednu. Hr\u00edf\u00adandi r\u00e6\u00f0a, inn\u00adbl\u00e1sin af tr\u00fa og von, tr\u00fa \u00e1 Gu\u00f0, \u00e1 land og \u00fej\u00f3\u00f0 og fram\u00adt\u00ed\u00f0\u00adina. \u00dakra\u00ad\u00ednu\u00admenn stranda augliti til auglitis vi\u00f0 her\u00admenn sem ganga erinda gl\u00e6pa\u00adl\u00fd\u00f0s \u00ed efsta lagi r\u00fass\u00adneskra stj\u00f3rn\u00adm\u00e1la, ein\u00adstak\u00adlinga sem r\u00e6nt hafa au\u00f0\u00ad\u00e6fum \u00fej\u00f3\u00f0ar sinnar og heg\u00f0a s\u00e9r eins og slags\u00adm\u00e1la\u00adhund\u00adar, sem k\u00faga f\u00f3lk til hl\u00fd\u00f0ni vi\u00f0 sinn rotna bo\u00f0\u00adskap, gelt\u00adandi sem hund\u00adar, fyr\u00adir\u00adl\u00edt\u00adandi flest mann\u00adgildi frj\u00e1lsra \u00fej\u00f3\u00f0a.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Megi sann\u00adleik\u00adur\u00adinn og r\u00e9tt\u00adl\u00e6ti\u00f0 sigra a\u00f0 lok\u00adum, mennskan og k\u00e6r\u00adleik\u00adur\u00adinn, ver\u00f0a hatri og brj\u00e1l\u00ad\u00e6\u00f0i yfir\u00adsterk\u00adari.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Li\u00f0ur \u00ed a\u00f0 svo megi ver\u00f0a er a\u00f0 vi\u00f0 f\u00f6lsum ekki s\u00f6g\u00aduna.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Snorri gaf okkur for\u00add\u00e6mi. <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">&#8211; &#8211; &#8211; <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><em>H\u00f6f\u00adundur er fyrr\u00adver\u00adandi s\u00f3kn\u00ad\u00ad\u00adar\u00ad\u00ad\u00adprest\u00ad\u00adur. \u00adRita\u00f0 fimmtu\u00addag\u00adinn \u00ed f\u00f6stu\u00adinn\u00adgangi 3. mars 2022 og n\u00e6stu daga.<\/em><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Myndirnar eru allar fengnar a\u00f0 l\u00e1ni af Vefnum.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Tengill \u00e1 greinina \u00ed Kjarnanum: <\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">https:\/\/kjarninn.is\/skodun\/med-thoggun-folsum-vid-soguna\/<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00d6rn B\u00e1r\u00f0ur J\u00f3nsson spyr hvort vi\u00f0 \u00feurfum ekki a\u00f0 horfast \u00ed augum vi\u00f0 menningu okkar og s\u00f6gu og gangast vi\u00f0 hvoru tveggja? \u00de\u00fa getur lesi\u00f0 textann h\u00e9r fyrir ne\u00f0an e\u00f0a hlusta\u00f0 \u00e1 hl\u00f3\u00f0uppt\u00f6ku me\u00f0 h\u00f6fundi &#8211; e\u00f0a gert hvort tveggja, lesi\u00f0 og hlusta\u00f0! Hana dreymdi draum. H\u00fan var bara stelpa me\u00f0 f\u00e1na og bl\u00f6\u00f0ru og [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":2,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_jetpack_newsletter_access":"","_jetpack_dont_email_post_to_subs":false,"_jetpack_newsletter_tier_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paywalled_content":false,"_jetpack_hide_featured_image":false,"_jetpack_featured_image_duplicate_dismissed":0,"_jetpack_feature_clip_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":"","jetpack_post_was_ever_published":false},"categories":[4,8],"tags":[202,246,263,372,610,640],"class_list":["post-3026","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-greinar-og-hugvekjur-articles","category-myndlist-my-art","tag-fjolmidlar","tag-gudfraedi","tag-hi","tag-kross","tag-svik","tag-tru"],"jetpack_sharing_enabled":true,"jetpack_featured_media_url":"","_links":{"self":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/3026","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/users\/2"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcomments&post=3026"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/3026\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fmedia&parent=3026"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcategories&post=3026"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Ftags&post=3026"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}