{"id":2980,"date":"2022-02-15T20:40:53","date_gmt":"2022-02-15T20:40:53","guid":{"rendered":"http:\/\/ornbardur.com\/2022\/02\/15\/mattur-skaldskapar-og-menningar\/"},"modified":"2022-02-15T20:40:53","modified_gmt":"2022-02-15T20:40:53","slug":"mattur-skaldskapar-og-menningar","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/ornbardur.com\/?p=2980","title":{"rendered":"M\u00e1ttur sk\u00e1ldskapar og menningar"},"content":{"rendered":"\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong><em>Um Verb\u00fa\u00f0ina. Huglei\u00f0ing um spillingu, sem gegns\u00fdrir \u00fej\u00f3\u00f0f\u00e9lag okkar og hvernig menningin me\u00f0 sk\u00e1ldskapinn a\u00f0 vopni afhj\u00fapar lygar og spillingu og birtir sannleikann eins og s\u00f3lin sk\u00e6r \u00e1 himni og vekur n\u00fdjar vonir um betri t\u00ed\u00f0.<\/em><\/strong><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Merkilegt hvernig menning og listir t\u00falka veruleikann \u00e1 annan h\u00e1tt en allar a\u00f0rar greinar mannlegrar tj\u00e1ningar. \u00deess vegna getum vi\u00f0 ekki lifa\u00f0 \u00e1n listar og menningar.<\/p>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-image size-large\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"2025\" height=\"1138\" src=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2022\/02\/verbucc81din-wins-big-at-gocc88teborg-film-festival.png?w=1024\" alt=\"\" class=\"wp-image-2979\" \/><\/figure>\n\n\n\n<!--more-->\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-audio\"><audio controls src=\"https:\/\/pub-c849b6aaf98340c4bec7b480b0f7ffe9.r2.dev\/2022\/02\/macc81ttur-skacc81ldskapar-og-menningar.m4a\"><\/audio><\/figure>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Fyrirs\u00f6gn \u00feessa greinarkorns vakna\u00f0i eftir a\u00f0 \u00e9g haf\u00f0i horft \u00e1 lok \u00fe\u00e1ttara\u00f0arinnar, Verb\u00fa\u00f0in. Sk\u00e1ldskapurinn birtir sannleikann betur en nokku\u00f0 anna\u00f0 \u00feegar mannleg tj\u00e1ning \u00e1 \u00ed hlut. \u00de\u00e6ttirnir birtu okkur \u00e1 lj\u00f3san h\u00e1tt hvernig gr\u00e6\u00f0gi og spilling grasserar \u00ed mannl\u00edfinu.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00deessi brotal\u00f6m, e\u00f0a synd, er \u00ed okkur \u00f6llum, en vi\u00f0 getum varist henni me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 vera \u00e1rv\u00f6kul \u00ed daglegu l\u00edfi og leitast vi\u00f0 a\u00f0 lifa \u00ed takti vi\u00f0 r\u00e9ttl\u00e6ti og sannleika, og sty\u00f0ja vi\u00f0 hi\u00f0 sama \u00ed samskiptum okkar vi\u00f0 anna\u00f0 f\u00f3lk, \u00ed nefndum og r\u00e1\u00f0um, \u00ed f\u00e9l\u00f6gum og stj\u00f3rnum, \u00e1 vinnusta\u00f0 og heimili og s\u00ed\u00f0ast en ekki s\u00edst &#8211; \u00ed kj\u00f6rklefanum!<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Svo er \u00fea\u00f0 athyglisvert a\u00f0 \u00e1 \u00edslensku t\u00f6lum vi\u00f0 um <em>menningu<\/em> me\u00f0an \u00e1 flestum \u00f6\u00f0rum tungum\u00e1lum sem eru skyld okkar, \u00fe.e.a.s. evr\u00f3pskum tungum\u00e1lum, er nota\u00f0 or\u00f0i\u00f0 <em>k\u00falt\u00far,<\/em> sem v\u00edsar til r\u00e6ktunar. Minn g\u00f3\u00f0i og fr\u00f3\u00f0i pr\u00f3fessor, Einar heitinn Sigubj\u00f6rnsson, vakti athygli okkar, nemenda sinna, \u00e1 \u00feessu for\u00f0um daga \u00ed gu\u00f0fr\u00e6\u00f0ideild H\u00cd.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><em>Menning<\/em> er af or\u00f0inu <em>ma\u00f0ur<\/em>. \u00cd gu\u00f0fr\u00e6\u00f0inni eru tv\u00e6r t\u00e1knmyndir um manninn sem r\u00edsa h\u00e6st. \u00d6nnur er <em>Adam<\/em> hinn fyrsti ma\u00f0ur sem br\u00e1st og kallast \u00fev\u00ed <em>hinn gamli Adam<\/em>. Hin er <em>Jes\u00fas Kristur<\/em>, <em>hinn n\u00fdi Adam,<\/em> sem ekki f\u00e9ll fyrir meini heimsins, syndinni, sem \u00e1 frumm\u00e1li N\u00fdjatestamentisins er <em>hamartia <\/em>og merkir <em>geigun e\u00f0a brotal\u00f6m. <\/em>Menningin f\u00e6st \u00fev\u00ed vi\u00f0 a\u00f0 t\u00falka mannl\u00edfi\u00f0 \u00ed gl\u00edmunni sem stendur milli hins g\u00f3\u00f0a og illa og \u00e6tti \u00ed \u00fev\u00ed sambandi a\u00f0 horfa til Mannssonarins, sem var eitt af tignarheitum Krists, sem birti mennskuna\/menninguna \u00ed sinni t\u00e6rustu mynd. Kristnin hefur f\u00e6rt okkur \u00feessa t\u00falkun og skilning \u00e1 tilvist mannsins, manneskjunnar.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c9g hef kalla\u00f0 syndina <em>galla \u00ed st\u00fdri <\/em>og v\u00edsa \u00fear me\u00f0 til fyrsta b\u00edlsins sem \u00e9g eigna\u00f0ist. Hann var af s\u00e6nskri ger\u00f0, en \u00e9g gef ekki upp tegundina! Hlaup var \u00ed st\u00fdrinu og \u00feess vegna leita\u00f0i hann \u00e6t\u00ed\u00f0 \u00fat af veginum og mitt hlutverk var a\u00f0 halda honum \u00e1 r\u00e9ttum vegi. Og b\u00edllinn, \u00e1 sinn sk\u00e1ldlega h\u00e1tt, f\u00e6r\u00f0i m\u00e9r heim sanninn um a\u00f0 \u00e9g er einmitt haldinn samskonar hlaupi \u00ed st\u00fdri og \u00e1 \u00fea\u00f0 \u00fev\u00ed til a\u00f0 leita \u00fat af veginum.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Vi\u00f0 erum \u00f6ll me\u00f0 hlaup \u00ed st\u00fdri, haldin \u00feessari brotal\u00f6m, sem er ekki upprunaleg \u00ed sk\u00f6pun heimsins, heldur tilkomin vegna breyskleika mannsins. Jes\u00fas er hinn fullkomni ma\u00f0ur, s\u00e1 sem ekki f\u00e9ll, heldur fullkomna\u00f0i sitt skei\u00f0 og opna\u00f0i okkur lei\u00f0 til hins g\u00f3\u00f0a, fagra og fullkomna. Hann tala\u00f0i gegn \u00f3r\u00e9tti og dj\u00f6fulgangi \u00e1 s\u00ednum t\u00edma og galt fyrir \u00fea\u00f0 me\u00f0 l\u00edfi s\u00ednu. \u00cd heimi kristninnar, lifir hann og r\u00edkir og lei\u00f0beinir enn me\u00f0 or\u00f0um s\u00ednum og gj\u00f6r\u00f0um.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c1 Al\u00feingi s\u00e1tu menn, sem voru hreinir <em>agentar<\/em> s\u00e9rhagsmuna, \u00feegar kv\u00f3tal\u00f6gin voru samin og sam\u00feykkt, <em>agentar<\/em> \u00feeirra sem myndu\u00f0u gr\u00e6\u00f0gis- og valdakl\u00edkur, sem \u00ed a.m.k. sumum tilfellum, hafa \u00ed t\u00edmans r\u00e1s afhj\u00fapa\u00f0 sig sem gl\u00e6pakl\u00edkur. Agentunum t\u00f3kst a\u00f0 sannf\u00e6ra meirihlutann um \u00f3r\u00e9ttinn, m.a. me\u00f0 flokksagann sem tyftara.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Og enn er Al\u00feingi \u00f3f\u00e6rt um a\u00f0 laga skekkjuna, geigunina, hlaupi\u00f0 \u00ed st\u00fdrinu, syndina \u00ed kerfinu, \u00fer\u00edfa upp \u00f3\u00feverrann. \u00c1 Al\u00feingi sitja enn agentar og var\u00f0hundar s\u00e9rhagsmunanna, sem m\u00e6la fl\u00e1tt og hugsa l\u00e1gt. Um \u00fe\u00e1 koma m\u00e9r \u00ed hug or\u00f0 hins \u00fej\u00e1\u00f0a Jobs, sem var\u00f0 fyrir \u00f3tr\u00falegum \u00f3r\u00e9tti af h\u00e1lfu vina sinna, og var\u00f0 a\u00f0 hlusta \u00e1 makalaust tal \u00feeirra. Hann sag\u00f0i:<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">&#8220;\u00dev\u00ed a\u00f0 sannlega samtvinni\u00f0 \u00fe\u00e9r lygar og eru\u00f0 gagnslausir gutlarar allir saman.&#8221; (Job 13.4)<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c9g hef leyft m\u00e9r, oftar en einu sinni, \u00ed m\u00e1lflutningi m\u00ednum, a\u00f0 breyta einum staf \u00ed or\u00f0inu \u00fej\u00f3\u00f0\u00feing og skipt \u00fat \u00f0 fyrir f. \u00deingi\u00f0 er \u00ed \u00feeim sporum a\u00f0 standa v\u00f6r\u00f0 um \u00fej\u00f3fna\u00f0inn og ar\u00f0r\u00e1ni\u00f0 sem \u00fej\u00f3\u00f0in ver\u00f0ur fyrir alla daga me\u00f0an hi\u00f0 b\u00f6lva\u00f0a gjafakv\u00f3takerfi er vi\u00f0 l\u00fd\u00f0i. \u00deingmenn sem vilja breytingar \u00e1 \u00feessari spillingu og eru \u00ed minnihluta, sitja uppi me\u00f0 a\u00f0 vera nytsamir sakleysingjar, sem n\u00e1 engu fram og ver\u00f0a \u00fear me\u00f0 hluti af \u00f3hreinu mengi &#8211; \u00fej\u00f3f\u00feingi.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Al\u00feingi hefur breytt \u00cdslandi \u00ed l\u00e9nsveldi \u00e1 n\u00fd og l\u00e9nsherrarnir eru kv\u00f3tagreifarnir. \u00deeir munu gr\u00e6\u00f0a \u00e1 \u00fev\u00ed um aldur og \u00e6vi me\u00f0an \u00fej\u00f3\u00f0in l\u00e6tur \u00fe\u00e1 og \u00fej\u00f3na \u00feeirra \u00e1 Al\u00feingi og \u00ed r\u00edkisstj\u00f3rnum, skammta s\u00e9r \u00feunnan graut \u00ed sk\u00e1l.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Au\u00f0vita\u00f0 \u00feurfti a\u00f0 setja b\u00f6nd \u00e1 fiskvei\u00f0ar, kv\u00f3takerfi \u00ed einhverri mynd, en ekki \u00feeirri sem n\u00fa er. Og athyglisvert er a\u00f0 kerfinu var \u00e6tla\u00f0 a\u00f0 koma \u00ed veg fyrir ofvei\u00f0i. Hvers vegna berst minni afli \u00e1 land n\u00fa en \u00feegar \u00f3bermis kv\u00f3takerfi\u00f0 var sett \u00e1? Hefur \u00fev\u00ed \u00fe\u00e1 ekki mistekist a\u00f0 koma b\u00f6ndum \u00e1 gr\u00e6\u00f0gina?<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Stj\u00f3rnlagar\u00e1\u00f0 setti fram au\u00f0linda\u00e1kv\u00e6\u00f0i sitt me\u00f0 r\u00e9ttl\u00e1tum og sanngj\u00f6rnum h\u00e6tti \u00ed 34. grein um N\u00e1tt\u00faruau\u00f0lindir:<\/p>\n\n\n\n<blockquote class=\"wp-block-quote is-layout-flow wp-block-quote-is-layout-flow\"><p>Au\u00f0lindir \u00ed n\u00e1tt\u00faru \u00cdslands, sem ekki eru \u00ed einkaeigu, eru sameiginleg og \u00e6varandi eign \u00fej\u00f3\u00f0arinnar. Enginn getur fengi\u00f0 au\u00f0lindirnar, e\u00f0a r\u00e9ttindi tengd \u00feeim, til eignar e\u00f0a varanlegra afnota og aldrei m\u00e1 selja \u00fe\u00e6r e\u00f0a ve\u00f0setja.<\/p><\/blockquote>\n\n\n\n<blockquote class=\"wp-block-quote is-layout-flow wp-block-quote-is-layout-flow\"><p><em>Til au\u00f0linda \u00ed \u00fej\u00f3\u00f0areign teljast n\u00e1tt\u00farug\u00e6\u00f0i, svo sem nytjastofnar, a\u00f0rar au\u00f0lindir hafs og hafsbotns innan \u00edslenskrar l\u00f6gs\u00f6gu og uppsprettur vatns- og virkjunarr\u00e9ttinda, jar\u00f0hita- og n\u00e1mar\u00e9ttinda. Me\u00f0 l\u00f6gum m\u00e1 kve\u00f0a \u00e1 um \u00fej\u00f3\u00f0areign \u00e1 au\u00f0lindum undir tiltekinni d\u00fdpt fr\u00e1 yfirbor\u00f0i jar\u00f0ar.<\/em><\/p><\/blockquote>\n\n\n\n<blockquote class=\"wp-block-quote is-layout-flow wp-block-quote-is-layout-flow\"><p><em>Vi\u00f0 n\u00fdtingu au\u00f0lindanna skal hafa sj\u00e1lfb\u00e6ra \u00fer\u00f3un og almannahag a\u00f0 lei\u00f0arlj\u00f3si.<\/em><\/p><\/blockquote>\n\n\n\n<blockquote class=\"wp-block-quote is-layout-flow wp-block-quote-is-layout-flow\"><p><em>Stj\u00f3rnv\u00f6ld bera, \u00e1samt \u00feeim sem n\u00fdta au\u00f0lindirnar, \u00e1byrg\u00f0 \u00e1 vernd \u00feeirra. Stj\u00f3rnv\u00f6ld geta \u00e1 grundvelli laga veitt leyfi til afnota e\u00f0a hagn\u00fdtingar au\u00f0linda e\u00f0a annarra takmarka\u00f0ra almannag\u00e6\u00f0a, gegn fullu gjaldi og til tiltekins h\u00f3flegs t\u00edma \u00ed senn. Sl\u00edk leyfi skal veita \u00e1 jafnr\u00e6\u00f0isgrundvelli og \u00feau lei\u00f0a aldrei til eignarr\u00e9ttar e\u00f0a \u00f3afturkallanlegs forr\u00e6\u00f0is yfir au\u00f0lindunum.<\/em><\/p><\/blockquote>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">H\u00e9r er tekinn af allur vafi um eignarhald og ve\u00f0setninga. Gengi\u00f0 er \u00fat fr\u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 a\u00f0gangur a\u00f0 au\u00f0lindunum skuli vera &#8220;gegn fullu gjaldi&#8221;. \u00deetta studdu 83% kj\u00f3senda \u00ed \u00fej\u00f3\u00f0aratkv\u00e6\u00f0agrei\u00f0slunni um till\u00f6gur Stj\u00f3rnlagar\u00e1\u00f0s \u00e1ri\u00f0 2012 og 67% s\u00f6g\u00f0ust vilja leggja till\u00f6gur r\u00e1\u00f0sins fram sem grunn a\u00f0 frumvarpi um n\u00fdja stj\u00f3rnarskr\u00e1.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">A\u00f0 \u00feessu or\u00f0alagi &#8220;gegn fullu gjaldi&#8221; hefur \u00edtreka\u00f0 veri\u00f0 ger\u00f0 atlaga m.a. af n\u00faverandi fors\u00e6tisr\u00e1\u00f0herra og flokki hennar VG. \u00de\u00e1 liggur \u00fea\u00f0 \u00ed augum uppi a\u00f0 Sj\u00e1lfst\u00e6\u00f0isflokkur og Frams\u00f3kn vilja ekki heldur \u00feetta or\u00f0alag, en kj\u00f3sa \u00feess \u00ed sta\u00f0 a\u00f0 skiptast \u00e1 um, \u00e1samt me\u00f0 VG, a\u00f0 kl\u00e6\u00f0ast j\u00f3lasveinab\u00faningi og \u00fatdeila &#8220;gj\u00f6fum s\u00ednum&#8221; til l\u00e9nsherranna me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 gegnisfella or\u00f0in &#8211; &#8220;fullt gjald&#8221;.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Allir \u00feingmenn, sem kosnir voru til yfirstandandi \u00feings og allra \u00feinga, voru kosnir sem fulltr\u00faar hagsmunaafla og \u00feess vegna eru \u00feingmenn \u00f3f\u00e6rir um a\u00f0 rita \u00fej\u00f3\u00f0inni n\u00fdja stj\u00f3rnarskr\u00e1. \u00dej\u00f3\u00f0in f\u00f3l \u00fea\u00f0 \u00f6\u00f0ru f\u00f3lki, sem kosi\u00f0 var af \u00fej\u00f3\u00f0inni, sem einstaklingar, en ekki agentar flokka og s\u00e9rhagsmuna. \u00deessu verklagi hefur veri\u00f0 fylgt me\u00f0al margra l\u00fd\u00f0r\u00e6\u00f0is\u00fej\u00f3\u00f0a me\u00f0 g\u00f3\u00f0um \u00e1rangri.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Bar\u00e1ttan er har\u00f0v\u00edtug vi\u00f0 spillingar\u00f6flin \u00ed landinu sem smeygja s\u00e9r allssta\u00f0ar inn eins og veira sem s\u00fdkir allt, veikir og sk\u00e6lir hi\u00f0 g\u00f3\u00f0a, fagra og fullkomna.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Syndin, hlaupi\u00f0 \u00ed st\u00fdrinu, geigunin, er eins og veira, h\u00fan er eins og h\u00fasas\u00f3tt, sem hefur lagst \u00e1 Al\u00feingish\u00fasi\u00f0 og brei\u00f0ist \u00fear \u00fat og gerir \u00feingm\u00f6nnum erfitt fyrir a\u00f0 standa uppr\u00e9ttir \u00e1 vegi r\u00e9ttl\u00e6tisins, en l\u00e6tur \u00fe\u00e1 \u00ed sta\u00f0inn skriplast \u00e1 sk\u00f6tu \u00ed s\u00ednum lagasetningum og skrifa l\u00f6g sem minna \u00e1 myndhverfingu um skrattann \u00e1 h\u00e1lum \u00eds sem skakklappast \u00e1 h\u00f3fum s\u00ednum og p\u00e1rar illan og groddalegan bo\u00f0skap me\u00f0 j\u00e1rnkarli \u00e1 svelli\u00f0. R\u00e9ttl\u00e6tiss\u00f3lin mun \u00ed fyllingu t\u00edmans br\u00e6\u00f0a \u00fea\u00f0 svell vondra laga og s\u00f6kkva lj\u00f3tum \u00e1formum spillingaraflanna \u00ed dj\u00fapan s\u00e6. En til \u00feess a\u00f0 svo megi ver\u00f0a, \u00fearf \u00fej\u00f3\u00f0in a\u00f0 vakna af s\u00ednum \u00deyrnir\u00f3sarsvefni.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">A\u00f0koma H\u00e6star\u00e9ttar er svo kap\u00edtuli \u00fat af fyrir sig sem \u00deorvaldur Gylfason hefur gert r\u00e6kileg skil \u00ed grein sinni \u00ed Fr\u00e9ttabla\u00f0inu 18. febr\u00faar 2021, sem hann rita\u00f0i \u00e1samt L\u00fd\u00f0i \u00c1rnasyni og \u00de\u00f3r\u00f0i M\u00e1 J\u00f3nssyni, undir yfirskriftinni: Vanh\u00e6fni \u00ed H\u00e6star\u00e9tti.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c9g veit ekki hvort \u00fe\u00fa t\u00f3kst eftir \u00fev\u00ed \u00ed lokasenu s\u00ed\u00f0asta \u00fe\u00e1ttar Verb\u00fa\u00f0arinnar, a\u00f0 Harpa, sem uppnefnd var Vestfjar\u00f0a-nornin, horf\u00f0i \u00fat um glugga herbergis s\u00edns \u00e1 H\u00f3tel S\u00f6gu \u00feegar h\u00fan var fl\u00fain a\u00f0 vestan me\u00f0 gr\u00f3\u00f0ann \u00ed rei\u00f0ingum. \u00dear s\u00e1st Neskirkja handan Hagatorgs. \u00dea\u00f0 gladdi mig \u00fev\u00ed \u00fear \u00fej\u00f3na\u00f0i \u00e9g \u00ed ein 15 \u00e1r og tala\u00f0 \u00edtreka\u00f0 af pr\u00e9dikunarst\u00f3li um \u00f3r\u00e9ttinn \u00ed \u00fej\u00f3\u00f0f\u00e9laginu, um au\u00f0lindir landsins og mannsins mein og s\u00e1r og leita\u00f0ist vi\u00f0 a\u00f0 benda \u00e1 veginn til hins g\u00f3\u00f0a fagra og fullkomna. H\u00fan horfir \u00fat um gluggann \u00e1\u00f0ur en skipt er ni\u00f0ur \u00e1 Al\u00feingi \u00fear sem J\u00f3n Hjaltal\u00edn flytur r\u00e6\u00f0u s\u00edna og endar me\u00f0 or\u00f0unum: G\u00f3\u00f0a n\u00f3tt!<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Og enn r\u00edkir n\u00f3ttin!<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">En lifi menningin, lifi sk\u00e1ldskaparhef\u00f0in, me\u00f0 hinu r\u00edka myndm\u00e1li og skarpri gagnr\u00fdni!<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00deakkir til ykkar \u00ed Vesturporti fyrir hugrekki, n\u00e6ma s\u00fdn og sk\u00e1ldlega takta!<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Um Verb\u00fa\u00f0ina. Huglei\u00f0ing um spillingu, sem gegns\u00fdrir \u00fej\u00f3\u00f0f\u00e9lag okkar og hvernig menningin me\u00f0 sk\u00e1ldskapinn a\u00f0 vopni afhj\u00fapar lygar og spillingu og birtir sannleikann eins og s\u00f3lin sk\u00e6r \u00e1 himni og vekur n\u00fdjar vonir um betri t\u00ed\u00f0. Merkilegt hvernig menning og listir t\u00falka veruleikann \u00e1 annan h\u00e1tt en allar a\u00f0rar greinar mannlegrar tj\u00e1ningar. \u00deess vegna getum [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":2,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_jetpack_newsletter_access":"","_jetpack_dont_email_post_to_subs":false,"_jetpack_newsletter_tier_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paywalled_content":false,"_jetpack_hide_featured_image":false,"_jetpack_featured_image_duplicate_dismissed":0,"_jetpack_feature_clip_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":"","jetpack_post_was_ever_published":false},"categories":[4],"tags":[],"class_list":["post-2980","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-greinar-og-hugvekjur-articles"],"jetpack_sharing_enabled":true,"jetpack_featured_media_url":"","_links":{"self":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/2980","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/users\/2"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcomments&post=2980"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/2980\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fmedia&parent=2980"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcategories&post=2980"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Ftags&post=2980"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}